Spergilkálsmauk

Spergilkál (brokkolí) inniheldur járn og mikið af C, K og A vítamíni. Eitt og sér er það ekkert sérstakt á bragðið (held að allir aldursflokkar séu sammála um það) en blandað saman við sætara grænmeti eins og gulrætur eða jafnvel sætar kartöflur er það hin besta máltíð fyrir litla kroppa (og stærri auðvitað líka). Einnig er spergilkál gott með alls kyns grautum eins og hirsigraut, hrísgraut o.fl. Það er mjög gott að blanda því saman við kartöflur því kartöflur innihalda C vítamín sem aðstoða við upptöku á járninu.

Athugið að skammtastærðin er einungis viðmið. Sum börn þurfa meira og önnur minna. Einnig getur skipt miklu máli hvort barn er byrjað að skríða og hreyfa sig, varðandi hversu mikið það borðar.
 

Þessi uppskrift er:

  • Án glúteins
  • Án eggja
  • Án hneta

Þessa uppskrift er auðvelt að gera:

  • Án mjólkur
  • Vegan (fyrir jurtaætur)

Spergilkálsmauk

Gerir 6-8 skammta

Innihald

  • 350 g spergikál, þvegið og brotið í sprota
  • 1-2 tsk soðvatn eða móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk
  • 1 tsk kókosolía (eða önnur olía) eða smjör
     

Aðferð

  1. Þvoið spergilkálið og brjótið í sprota.
  2. Gufusjóðið spergilkál í 10-15 mínútur eða þangað til það er orðið mjúkt.
  3. Notið töfrasprota til að mauka hráefnið en einnig má nota matvinnsluvél eða blandara. Fyrir yngri börn skal gæta þess að engir stórir bitar séu eftir en fyrir börn sem eru nær 9 mánaða mega vera litlir bitar í maukinu. Ef erfitt er að mauka spergilkálið er gott að mauka það með svolitlu af soðvatninu.
  4. Bætið olíu og mjólk saman við og hrærið vel.

Gott að hafa í huga

  • Gott er að frysta maukið í ísmolabox. Setjið svo molana í góða frystipoka. Merkið pokana með innihaldi og dagsetningu. Í góðum frysti geymist frosinn barnamatur í nokkra mánuði.
  • Börn eiga misjafnlega auðvelt með að kyngja mat svo bætið við meira af vatni/mjólk ef ykkur finnst það henta.
  • Gott getur verið að bæta við meira magni af móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk út í maukið í fyrstu skiptin, þannig fæst kunnuglegt bragð sem sumum börnum líkar vel.
  • Gott er að blanda svolitlu af hrísmjöli/maísmjöli/hirsimjöli saman við grautinn til að fá matarmeiri graut.
  • Ég nota einungis lífrænt ræktað hráefni í barnamat og ég gufusýð alla ávexti og allt grænmeti.
  • Vörur frá Holle, Babynat, Baby Organic og Organix eru mjög góðar og mæli ég með þeim.
  • Ef þið eruð stödd þar sem þið getið ekki blandað hráefnið má bjarga sér með hvítlaukspressu (fyrir litla skammta)!