Spergilkáls- og hrísmjölsmauk
Hrísmjöli má blanda við flest ávaxta- og grænmetismauk. Þar sem lítil börn byrja yfirleitt frekar snemma að smakka á hrísgrautnum og eru fljót að venjast bragðinu (tekur sum kríli lengri tíma) getur verið gott að kynna grænmeti og þess háttar með hrísmjölinu. Þannig eruð þau með kunnuglegt bragð en samt sem áður að prófa eitthvað nýtt. Hlutföllum má breyta þ.e. meiri graut á móti minna magn af spergilkáli o.s.frv. Til að aðstoða við upptöku á járni er gott að setja svolítið af appelsínusafa út í maukið en einungis afar lítið magn. Athugið að sum börn eru viðkvæm fyrir appelsínusafa.
Athugið að skammtastærðin er einungis viðmið. Sum börn þurfa meira og önnur minna. Einnig getur skipt miklu máli hvort barn er byrjað að skríða og hreyfa sig, varðandi hversu mikið það borðar.
Spergilkál og hrísmjöl, járnríkt og gott mauk
Þessi uppskrift er:
- Án glúteins
- Án eggja
- Án hneta
Þessa uppskrift er auðvelt að gera:
- Án mjólkur
- Vegan (fyrir jurtaætur)
Spergilkáls- og hrísmjölsmauk
Innihald
- 300 g spergilkál (brokkolí), þvegið og saxað gróft
- 2-3 msk hrísmjöl
- 1 tsk appelsínusafi (sum börn gætu verið viðkvæm)
- 1-2 tsk soðvatn eða móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk
- 1 tsk kókosolía (eða önnur olía) eða smjör
Aðferð
- Þvoið spergilkálið og brjótið í sprota.
- Gufusjóðið spergilkálið í um 15 mínútur eða þangað til það er orðið mjúkt.
- Notið töfrasprota til að mauka hráefnið en einnig má nota matvinnsluvél eða blandara. Fyrir yngri börn skal gæta þess að engir stórir bitar séu eftir en fyrir börn sem eru nær 9 mánaða mega vera litlir bitar í maukinu. Ef erfitt er að mauka spergilkálið er gott að mauka nokkrar teskeiðar af soðvatninu með. Setjið í skál.
- Hrærið hrísmjölinu út í skálina.
- Bætið olíu og mjólk saman við og hrærið vel.
Gott að hafa í huga
- Gott er að frysta maukið í ísmolabox. Setjið svo molana í góða frystipoka. Merkið pokana með innihaldi og dagsetningu. Í góðum frysti geymist frosinn barnamatur í nokkra mánuði.
- Börn eiga misjafnlega auðvelt með að kyngja mat svo bætið við meira af vatni/mjólk ef ykkur finnst það henta.
- Gott getur verið að bæta við meira magni af móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk út í maukið í fyrstu skiptin, þannig fæst kunnuglegt bragð sem sumum börnum líkar vel.
- Gott er að blanda svolitlu af hrísmjöli/maísmjöli/hirsimjöli saman við grautinn til að fá matarmeiri graut.
- Ég nota einungis lífrænt ræktað hráefni í barnamat og ég gufusýð alla ávexti og allt grænmeti.
- Vörur frá Holle, Babynat, Baby Organic og Organix eru mjög góðar og mæli ég með þeim.
- Ef þið eruð stödd þar sem þið getið ekki blandað hráefnið má bjarga sér með hvítlaukspressu (fyrir litla skammta)!