Sveskju- og bananamauk

Sveskjumauk er kannski ekki besta maukið til að prófa í fyrstu skiptin þar sem það er bæði trefjaríkt og losandi. Það er samt eðalgott fyrir litlu krílin þegar fram líða stundir því það er afar járnríkt. Mér finnst maukið það gott að ég hef notað það ofan á köku fyrir fullorðna (tek það fram að það var EKKI með móðurmjólk heldur sojamjólk he he)!

Gott er að nota appelsínusafa út í maukið til að aðstoða við upptöku á járninu en honum má sleppa ef barnið er viðkvæmt fyrir safanum.

Athugið að skammtastærðin er einungis viðmið. Sum börn þurfa meira og önnur minna. Einnig getur skipt miklu máli hvort barn er byrjað að skríða og hreyfa sig, varðandi hversu mikið það borðar.
&;

Þessi uppskrift er:

  • Án glúteins
  • Án eggja
  • Án hneta

Þessa uppskrift er auðvelt að gera:

  • Án mjólkur
  • Vegan (fyrir jurtaætur)

Sveskju- og bananamauk

Gerir 6-8 skammta

Innihald

  • 150 g steinalausar sveskjur, saxaðar gróft
  • 200 g vel þroskaður banani
  • 1-2 tsk soðvatn eða móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk
  • 1 tsk kókosolía (eða önnur olía) eða smjör
  • 1 tsk hreinn appelsínusafi (má sleppa)

Aðferð

  1. Saxið sveskjurnar gróft (svo að séu örugglega engir steinar til staðar).
  2. Gufusjóðið sveskjurnar í um 20-25 mínútur eða þangað til mjúkar.
  3. Notið töfrasprota til að mauka sveskjurnar en einnig má nota matvinnsluvél eða blandara. Fyrir yngri börn skal gæta þess að engir stórir bitar séu eftir en fyrir börn sem eru nær 9 mánaða mega vera litlir bitar í maukinu. Farið þó varlega þar sem stórar sveskjubitar geta staðið í hálsi barnanna. Setjið í skál.
  4. Afhýðið bananann og stappið hann út í skálina.
  5. Bætið olíu og mjólk ásamt appelsínusafa saman við og hrærið vel.

Gott að hafa í huga

  • Gott er að frysta maukið í ísmolabox. Setjið svo molana í góða frystipoka. Merkið pokana með innihaldi og dagsetningu. Í góðum frysti geymist frosinn barnamatur í nokkra mánuði.
  • Börn eiga misjafnlega auðvelt með að kyngja mat svo bætið við meira af vatni/mjólk ef ykkur finnst það henta.
  • Gott getur verið að bæta við meira magni af móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk út í maukið í fyrstu skiptin, þannig fæst kunnuglegt bragð sem sumum börnum líkar vel.
  • Gott er að blanda svolitlu af hrísmjöli/maísmjöli/hirsimjöli saman við grautinn til að fá matarmeiri graut.
  • Ég nota einungis lífrænt ræktað hráefni í barnamat og ég gufusýð alla ávexti og allt grænmeti.
  • Vörur frá Holle, Babynat, Baby Organic og Organix eru mjög góðar og mæli ég með þeim.
  • Ef þið eruð stödd þar sem þið getið ekki blandað hráefnið má bjarga sér með hvítlaukspressu (fyrir litla skammta)!
     

Ummæli um uppskriftina

Guðrún L
22. maí. 2015

Sæl
Hvernig gufusýðuru grænmeti og ávextina?
Kveðja,
Guðrún

sigrun
22. maí. 2015

Þú getur gert það á nokkra vegu. Annars vegar geturðu fjárfest í sérstökum potti til þess að gufusjóða í (fæst í flestum húsbúnaðarverslunum). Slíkir pottar eru tvöfaldir eða þrefaldir þannig að neðst er pottur, svo annar pottur með götum í botninum og svo lok. Þeir þurfa ekki kosta meira en nokkra þúsund kalla en svo má kaupa rándýra, stafræna pott en ég hef aldrei átt svoleiðis. Hins vegar geturðu sett svolítið vatn í pott og járnsigti yfir og grænmetið þar ofan í. Best er að hafa lok ofan á til að gufan tapist ekki út í andrúmsloftið (tekur lengri tíma að sjóða og suðan verður ekki eins jöfn). Það tekur um 7-12 mínútur að gufusjóða flesta ávexti og flest grænmeti en fer eftir þykkt og fleiru.