Blandað grænmeti

Þegar tíminn er naumur (eins og alltaf þegar maður er með smábarn á handleggjunum) getur verið gott að mauka mikið magn í einu og frysta. Það sparar manni ómældan tíma. Þar sem ekki er alltaf mikið pláss til að geyma mauk í ísmolaboxum er gott að frysta maukið og setja svo molana í poka. Jafnvel er hægt að setja 2-3 mola af mismunandi tegund saman í poka til að búa til góða grænmetisblöndu. Gott er að gera eins og Elva vinkona mín gerir, að setja í góða frystipoka, merkja með innihaldi og svo dagsetningu. Þannig ruglast maður aldrei! Mestu máli skiptir að nota það kerfi sem manni finnst best þ.e. hvort maður notar nestisbox, poka, ísmolabox o.s.frv. skiptir ekki öllu máli. Það skiptir líka máli að frysta nóg svo maður sé ekki að eyða mörgum klukkutíma við pottana (nema maður hafi tíma til).

Þessar 4 grænmetistegundir má allar frysta en það má alveg breyta samsetningunni t.d. má nota maukuð maískorn, rófur, steinseljurót, blómkál o.s.frv. Gott er að frysta grunnmauk þ.e. grunnbragðtegundir eins og þessar og bæta svo út í því sem til er þann daginn. Þessa aðferð má líka nota fyrir ávexti. Einnig finnst mér heppilegt þegar barnið verður eldra að eiga til grunnmauk og bæta svo út í t.d. afgangi af kjúklingi, lambi, fiski o.s.frv. eða allt eftir því hvað var í matinn kvöldinu áður.

Athugið að skammtastærðin er einungis viðmið. Sum börn þurfa meira og önnur minna. Einnig getur skipt miklu máli hvort barn er byrjað að skríða og hreyfa sig, varðandi hversu mikið það borðar.


Blandað grænmetismauk í ísmolaboxi

Þessi uppskrift er:

  • Án glúteins
  • Án eggja
  • Án hneta

Þessa uppskrift er auðvelt að gera:

  • Án mjólkur
  • Vegan (fyrir jurtaætur)

Blandað grænmeti

Gerir 24-32 skammta

Innihald

  • 350 g gulrætur, skrældar, þvegnar og saxaðar gróft
  • 350 g spergilkál, þvegið og saxað gróft
  • 350 g sætar kartöflur, skrældar, þvegnar og saxaðar gróft
  • 350 g kartöflur, skrældar, þvegnar og saxaðar gróft
  • 4 tsk kókosolía (eða önnur olía) eða smjör
  • 4-8 tsk móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk eða soðvatn

Aðferð

  1. Skrælið gulrætur, kartöflur og sætar kartöflur og þvoið vel. Saxið í grófa bita.
  2. Skolið spergilkálið og brjótið í sprota.
  3. Gufusjóðið allt grænmetið. Það má alveg sjóða það saman og aðskilja þegar tilbúið.
  4. Aðskiljið grænmetið. Notið töfrasprota til að mauka grænmetið en einnig má nota matvinnsluvél eða blandara. Bætið soðvatni og mjólk saman við og maukið áfram. Fyrir yngri börn skal gæta þess að engir stórir bitar séu eftir en fyrir börn sem eru nær 9 mánaða mega vera litlir bitar í maukinu. 
  5. Notið svolítið meira af soðvatninu ef maukið er of þykkt.
  6. Setjið hverja grænmetistegund í skál og látið kólna.
  7. Bætið olíunni saman við og hrærið vel.
  8. Setjið grænmetið í ísmolabox.

Gott að hafa í huga

  • Gott er að frysta maukið í ísmolabox. Setjið svo molana í góða frystipoka. Merkið pokana með innihaldi og dagsetningu. Í góðum frysti geymist frosinn barnamatur í nokkra mánuði.
  • Börn eiga misjafnlega auðvelt með að kyngja mat svo bætið við meira af vatni/mjólk ef ykkur finnst það henta.
  • Gott getur verið að bæta við meira magni af móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk út í maukið í fyrstu skiptin, þannig fæst kunnuglegt bragð sem sumum börnum líkar vel.
  • Gott er að blanda svolitlu af hrísmjöli/maísmjöli/hirsimjöli saman við grautinn til að fá matarmeiri graut.
  • Ég nota einungis lífrænt ræktað hráefni í barnamat og ég gufusýð alla ávexti og allt grænmeti.
  • Vörur frá Holle, Babynat, Baby Organic og Organix eru mjög góðar og mæli ég með þeim.
  • Ef þið eruð stödd þar sem þið getið ekki blandað hráefnið má bjarga sér með hvítlaukspressu (fyrir litla skammta)!