Núðlusúpur

Síða 1 af 1

Núðlusúpur eru virkilega mikið„comfort food” (huggi-matur) því rjúkandi heit skál með bragðgóðum súpugrunni, núðlum og grænmeti hressir mann, bætir og kætir við öll tilefni. Núðlusúpur eru líka svo sniðugar því ef maður er með góðan grunn, getur maður endalaust bætt út í af góðgæti t.d. fiski og öðrum sjávarréttum, grænmeti, kjöti (ef þið borðið svoleiðis), eggjahvítum, alls kyns núðlum. Núðlusúpur eru því mjög hentar sem „taka-til-í-ísskápnum” matur.


Kókos- og laxasúpa með núðlum

Kókos- og laxasúpa með hrísgrjónanúðlum

Þessi súpa er frábær þegar maður á afgang af laxi í frystinum. Hún er líka mjög holl því það er holl fita í laxinum sem er okkur nauðsynleg.

Malasíska kókossúpan með núðlum og rækjum

Malasísk kókossúpa með hrísgrjónanúðlum

Þessi uppskrift er svolítið maus en er alveg rosalega góð. Hægt er að nota tofu eða sojakjötsbita í staðinn fyrir rækjurnar.

Matarmikil krabbakjöts/núðlusúpa

Þetta er matarmikil og holl, kínverk súpa þar sem í henni er mikið af grænmeti og nær engin fita.

Ódýr, einföld, bragðgóð og vegan núðlusúpa

Súrsæt (sweet & sour) núðlusúpa

Þetta er eiginlega svona núðlusúpuréttur þ.e. bæði núðlusúpa og núðluréttur. Upphafleg uppskrift inniheldur ekki soba núðlur (úr bókhveiti) en það er hrikalega gott að hafa þær með.

Súpa með 10 þúsund hráefnum, eða þar um bil

Thailensk laksa (ekki laxa) súpa

Súpan virkar kannski flókin en er það í raun ekki. Það er samt ágætt að útbúa súpuna þegar maður er ekki á hraðferð.

Saðsöm, einföld og bragðgóð súpa

Thailensk núðlusúpa með rækjum

Þessi súpa er ægilega góð. Þetta er svolítill svindlmatur og ég kaupi yfirleitt ekki tilbúnar (hollar auðvitað) sósur en svona í miðri viku, eftir vinnu þá er maður bara svo oft upptekinn.

Fínasta útilegumáltíð

Útilegusveppasúpa með fjallagrösum

Frábær máltíð sem maður myndi ekki einu sinni vera óánægður með á fínasta veitingahúsi en úti í náttúrunni, uppi á fjalli, með fallegt útsýni, við sætan læk, í góðu veðri, er bara ekkert betra!