Kjúklingasalöt

Síða 1 af 1

Kjúklingasalöt er upplagt að gera ef maður á afganga af grilluðum eða soðnum kjúklingi. Kjúklingasalöt eru góð leið til að drýgja hráefnið og henta sérlega vel í boðið, saumaklúbbinn eða bara í nestisboxið. Jóhannes hoppar hæð sína af gleði ef ég útbý handa honum kjúklingasalat.


Mildur og góður kjúklingaréttur fyrir alla fjölskylduna

Coronation kjúklingasalat

Ég hef séð coronation chicken samlokur hérna í UK og þær eru ekki mjög geðslegar, vaðandi í smurolíumajonesi og glúkósasírópi.

Létt og fínt kjúklingasalat

Kjúklingasalat með mangókarrísósu

Það er upplagt að hafa þessa uppskrift daginn eftir Tandoori kjúklinginn því hráefnin eru ekkert ósvipuð (kryddin og mango chutneyið).

Kjúklingasumarsalat

Kjúklingasumarsalat

Eins og nafnið ber með sér, þá er eiginlega skylda að borða þetta kjúklingasalat úti, á góðum sumardegi þegar sólin er alveg að fara að setjast (ok viðurkenni að það er aðeins auðveldara hérna í London heldur en heima á Íslandi, en það má alltaf reyna, tjalda yfir borðið eða eitthvað, he he).

Létt og ljúft kjúklingasalat

Kryddað kjúklinga- og vínberjasalat

Þetta er einfaldur og hollur réttur, upplagður á sumardegi eða þegar maður vill bera fram kaldan og hollan rétt.