New York salat með grilluðu grænmeti og hnetum

Þetta salat er undir beinum áhrifum frá New York. New York er eins og allt sem maður sér í sjónvarpsþáttum og bíómyndum og auðvitað meira en það! Þvílíkt matarhimnarríki. Nefni bara Whole Foods Market. Þar myndi ég glöð dvelja í svona 3 vikur án þess að fara út úr búðinni! Þar var meira að segja hægt að fá íslenskt vatn, fisk og lambakjöt. Fyndið að sjá íslenska fánann í kjötborðinu! Allavega. Þegar ég kom aftur heim til London þá langaði mig í eitthvað ferskt og gott salat eins og maður fær á þessum Deli stöðum (smáréttastöðum) og ég bjó til þetta salat. Það sniðuga við salöt er að það má bæta endalaust við þau og skipta út innihaldinu. Svo er það líka æðislega gott innan í vefjur (maís eða speltkökur) og er auðvitað stútfullt af hollustu og vítamínum. Hafið þið prófað að baka maískorn? NAMM.

Þetta salat er frábært í nestisboxið.

Athugið að í uppskriftinni er notuð sesamolía sem sumir hafa ofnæmi fyrir. Það má að sjálfsögðu líka sleppa henni.

Athugið einnig að ef þið eruð jurtaætur getið þið sleppt fiskisósunni og notað meira af tamarisósu í staðinn.


Undir áhrifum frá New York, hollt og gott grænmetissalat

Þessi uppskrift er:

  • Án glúteins
  • Án mjólkur
  • Án eggja
  • Vegan

New York salat með grilluðu grænmeti og hnetum

Fyrir 2

Innihald

  • 2 pokar af blönduðu salati (rauð og/eða græn lauf t.d. eikarlauf, spínat, ruccola, lambhagasalat o.s.frv.)
  • 1 bolli maískorn, frosin
  • 3 paprikur, gul, rauð og appelsínugul
  • 150 g mjög litlir sveppir. Ef þeir eru stórir má skera þá í helminga
  • 1 lúka ósaltaðar, blandaðar hnetur (t.d. cashewhnetur og macadamiahnetur)  þurrsteiktar á pönnu og saxaðar gróft
  • 1 msk af tamarisósu sem fer á hneturnar strax eftir steikingu
  • 15-20 kirsuberjatómatar, skornir í helminga
  • 1 vel þroskað avocado, skorið í grófa teninga
  • 2 msk sesamolía
  • 3 msk tamarisósa
  • 2 msk fiskisósa (Nam Plah). Fiskisósa ætti að fást í austurlensku deildunum í flestum matvöruverslunum

Aðferð

  1. Skerið paprikurnar langsum í 4-6 sneiðar og setjið á bökunarplötu (bökunarpappír undir) og snúið hýðinu upp.
  2. Dreifið sveppum einnig á plötuna.
  3. Blandið saman tamarisósu, fiskisósu og sesamolíu og penslið grænmetið á plötunni.
  4. Setjið maískornin í skál og smávegis af sósunni út í. Hrærið vel.
  5. Dreifið maískornunum á aðra plötu (með bökunarpappír undir).
  6. Hitið á hæsta hita undir grilli í um 20-30 mínútur.
  7. Fylgist með maískornunum, þau mega ekki brenna mikið (mega dökkna þó nokkuð samt) en hitt grænmetið má verða mjög dökkt og jafnvel pínu brunnið. Ef maískornin eru farin að brenna takið þá plötuna úr ofninum eða færið neðar í ofninum.
  8. Þurristið hneturnar. Um leið og þær eru orðnar heitar, slettið þá 1 msk af tamarisósu yfir þær. Saxið hneturnar gróft.
  9. Skolið salat og setjið í stóra skál.
  10. Skerið kirsuberjatómatana í helminga.
  11. Afhýðið avocadoið, fjarlægið steininn og saxið gróft.
  12. Takið grillaða grænmetið úr ofninum og kælið aðeins. Rífið paprikur í ræmur ef þið viljið hafa þær mjórri og dreifið yfir salatið.
  13. Setjið kirsuberjatómatana og avocado saman við.
  14. Dreifið sveppunum og maískornunum yfir salatið.
  15. Dreifið muldu hnetunum yfir salatið.

Gott að hafa í huga

  • Berið fram með t.d. hollri salatsósu og nýbökuðu brauði.
  • Upplagt er að nota þetta salat innan í vefjur (maís- eða speltvefjur). Athugið að vefjur innihalda oft ger (og glútein).
  • Hægt er að nota annað grillað grænmeti t.d. kúrbít eða eggaldin, tómata o.s.frv. Eins má rífa ferskan parmesan yfir salatið eða nota ristaðar furuhnetur, sólblómafræ, sólþurrkaða tómata, þistilhjörtu, ólífur og svo mætti lengi telja.
  • Ef þið eruð með hnetuofnæmi getið þið notað kartöfluflögur yfir salatið. Kaupið hollari kartöfluflögur í heilsubúðum og myljið smátt eins og eina lúku yfir.
  • Ef þið hafið ofnæmi fyrir sesamfræjum getið þið sleppt sesamolíunni.
  • Ef þið eruð jurtaætur getið þið sleppt fiskisósunni og notað aðeins meira af tamarisósunni.
  • Nota má sojasósu í staðinn fyrir tamarisósu en sojasósa inniheldur hveiti.
  • Í staðinn fyrir appelsínugula papriku má gula.

Ummæli um uppskriftina

gestur
11. mar. 2012

alveg besta síða í heimi, allur minn matur og kökur og fleira kemur héðan :) mmmmmm !! er alveg að elska þessa snildar síðu! Sigrún þú ertt snillingur ! :)

sigrun
11. mar. 2012

Gaman að heyra og verði þér að góðu :)