Penelope

Upptökur á Penelopmyndinni fyrir utan pöbbinn beint á móti
Jæja þá er tökum lokið hér í götunni. Gat ekki staðist freistinguna síðasta föstudag því ég vissi að þeir væru að taka upp hér í götunni og ég stökk heim í hádeginu til að kíkja á herlegheitin. Myndin hér fyrir ofan er tekin á farsímann minn út um stofugluggann. Úti á götu stóðu Richard E. Grant (heimasíðan hefur myndir eiginlega af sömu tökunni og ég tók mynd af. Richard lék til dæmis í Spiceworld) og Catharine O'Hara (lék mömmuna allavega í fyrstu Home Alone myndinni). Atriðið var þannig að Catharine og Richard labba inn götuna okkar og fyrir utan pöbbinn beint fyrir utan lítur Catharine í áttina að húsinu okkar (eða hótelinu við hliðina á) og hrópar "Penelope, Penelope" og svo var bara cööööööttttttt. Þetta var endurtekið nokkrum sinnum. Þeim var skítkalt greyunum enda var hrikalega kalt þennan dag. Það var dáldið gorgeous að labba inn og út úr íbúðinni sinni þegar upptökur voru í götunni á sama tíma, soldið posh sko. Er ekki viss samt um að íbúðin okkar sjáist mikið þar sem myndavélarnar voru á Catharine og Richard en við sjáum til. Það eina sem ég hef heyrt úr myndinni er sem sagt að fólk öskrar "Penelope" :) Við skulum vona að það verði eitthvað meira innihald en það.
Fréttum svo áðan af vinum okkar Marie og Pete að upptökur hefðu verið á Crime Scene Investigation í Villandry bakaríinu/gourmet búðinni hérna rétt hjá. Fólk í einhverjum eiturefnabúningum sem hélt á pizzum og allt teipað CSI og eitthvað meira. En spennó!! Held maður þurfi að fara að kveikja á sjónvarpinu barasta.
Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It  

Ummæli

Sólveig Finnsdóttir
20. mar. 2006

þú ert orðin fræg, greinilega, en ég er mest hissa hvað þetta er góð mynd úr símanum, pabbi þinn er að æfa sig að taka myndir svo hann geti montað sig, minn sími er sko ekki svona tæknilegur bless mamma

Ingibjörg
10. mar. 2007

Elskan mikið er þetta fín síða hjá þér

gestur
05. apr. 2007

flott síða