Tvenns konar mauk: Spergilkál og sæt kartafla með hrísmjöli

Þegar búið er til mikið magn af maukuðu grænmeti í einu er um að gera að prófa sig áfram með hráefni og hlutföll. Hér eru tvö dæmi um það sem má gera með svolitlu af spergilkáli, sætri kartöflu og hrísmjöli. Svo er bara að þreifa sig áfram og gera tilraunir. Það má til dæmis nota gulrætur og kartöflur, steinseljurót, rófur, grasker o.fl. Svo má nota maísmjöl, hirsimjöl í staðinn fyrir hrísmjöl. Það er einnig upplagt að frysta maukið og nota sem grunnmauk fyrir kjöt og fisk þegar barnið er farið að borða úr þeim fæðuflokkum. Bæði maukin henta vel sem fyrsta mauk á eftir hrísmjölsgraut.

Athugið að skammtastærðin er einungis viðmið. Sum börn þurfa meira og önnur minna. Einnig getur skipt miklu máli hvort barn er byrjað að skríða og hreyfa sig, varðandi hversu mikið það borðar.
 

Þessi uppskrift er:

  • Án glúteins
  • Án eggja
  • Án hneta

Þessa uppskrift er auðvelt að gera:

  • Án mjólkur
  • Vegan (fyrir jurtaætur)

Tvenns konar mauk: Spergilkál og sæt kartafla með hrísmjöli

Gerir 6-8 skammta

Innihald

  • 150 g spergilkál (brokkolí), þvegið og saxað gróft
  • 150 g sæt kartafla, skræld, þvegin og söxuð gróft
  • 2-3 msk hrísmjöl
  • 2 msk soðvatn eða móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk
  • 1 tsk kókosolía (eða önnur olía) eða smjör
     

Aðferð

  1. Þvoið spergilkálið og brjótið í sprota.
  2. Skrælið kartöfluna, þvoið og saxið gróft.
  3. Gufusjóðið spergilkál og sæta kartöflu í um 15-20 mínútur eða þangað til allt er orðið mjúkt.
  4. Notið töfrasprota til að mauka sætu kartöfluna en einnig má nota matvinnsluvél eða blandara. Fyrir yngri börn skal gæta þess að engir stórir bitar séu eftir en fyrir börn sem eru nær 9 mánaða mega vera litlir bitar í maukinu. Setjið í skál.
  5. Maukið spergilkálið vel. Notið svolítið af soðvatninu ef illa gengur að mauka. Setjið í skál.
  6. Hrærið hrísmjölið saman við svolítið af mjólk eða soðvatni og olíu. Skiptið jafnt á milli spergilkálsins og sætu kartöflunnar. Hrærið vel.

Gott að hafa í huga

  • Gott er að frysta maukið í ísmolabox. Setjið svo molana í góða frystipoka. Merkið pokana með innihaldi og dagsetningu. Í góðum frysti geymist frosinn barnamatur í nokkra mánuði.
  • Börn eiga misjafnlega auðvelt með að kyngja mat svo bætið við meira af vatni/mjólk ef ykkur finnst það henta.
  • Gott getur verið að bæta við meira magni af móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk út í maukið í fyrstu skiptin, þannig fæst kunnuglegt bragð sem sumum börnum líkar vel.
  • Gott er að blanda svolitlu af hrísmjöli/maísmjöli/hirsimjöli saman við grautinn til að fá matarmeiri graut.
  • Ég nota einungis lífrænt ræktað hráefni í barnamat og ég gufusýð alla ávexti og allt grænmeti.
  • Vörur frá Holle, Babynat, Baby Organic og Organix eru mjög góðar og mæli ég með þeim.
  • Ef þið eruð stödd þar sem þið getið ekki blandað hráefnið má bjarga sér með hvítlaukspressu (fyrir litla skammta)!
     

Ummæli um uppskriftina

HALLDIS EVA
23. mar. 2015

Sael, takk kaerlega fyrir uppskriftirnar :) ein spurning, er sperkikál allt i lagi í magan? thad var búid ad segja mér ad thau fá svo mikid loft í magan v sperkikáls hvad finst thér? takk takk kaer kvedja halldís

sigrun
23. mar. 2015

Sæl Halldís. Flest börn þola spergilkál vel en ávallt ætti að byrja á því að gefa börnum nýjan mat mjög varlega. Gott er að gefa þeim nýjan mat í hádeginu og fylgjast með þeim yfir daginn upp á hvort þau bregðist illa við. Ef barnið þitt er kveisubarn myndi ég kannski fara gætilega en ef því hættir almennt ekki til að fá loft í magann þá er spergilkálið í lagi sem viðbót við annað. Það er gott að blanda spergilkálinu saman við annað sem barnið þolir eins og t.d. avókadó og ef það fer vel í magann má draga úr avókadóinu. Vona að þetta hjálpi!