Mauk úr sætum kartöflum og hrísmjöli
5. febrúar, 2007
Þessi samsetning er hentug því hún er bæði bragðgóð, mild og fer einnig vel í maga. Lítil kríli fúlsa ákaflega sjaldan við sætum kartöflum og með hrísmjöli getur þessi samsetning ekki klikkað! Þetta mauk hentar vel sem fyrsta mauk á eftir hrísmjölsgraut eða þeim graut sem börnin eru búin að venjast. Einnig er þetta mauk gott sem grunnmauk og upplagt að blanda því saman við annað grænmeti eins og t.d. spergilkál (brokkolí), blómkál, rófur o.fl. Það hentar einnig vel síðar með fiski og kjöti.
Athugið að skammtastærðin er einungis viðmið. Sum börn þurfa meira og önnur minna. Einnig getur skipt miklu máli hvort barn er byrjað að skríða og hreyfa sig, varðandi hversu mikið það borðar.

Sæt kartafla með hrísmjöli, góð blanda
Þessi uppskrift er:
- Án glúteins
- Án eggja
- Án hneta
Þessa uppskrift er auðvelt að gera:
- Án mjólkur
- Vegan (fyrir jurtaætur)
Mauk úr sætum kartöflum og hrísmjöli
Gerir 6-8 skammta
Innihald
- 300 g sæt kartafla, skræld, þvegin og söxuð gróft
- 2 msk hrísmjöl eða maísmjöl
- 1-2 tsk soðvatn eða móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk
- 1 tsk kókosolía (eða önnur olía) eða smjör
Aðferð
- Skrælið kartöflurnar, þvoið þær og saxið gróft.
- Gufusjóðið kartöfluna í um 10-15 mínútur eða þangað til hún er orðin mjúk.
- Notið töfrasprota til að mauka kartöfluna en einnig má nota matvinnsluvél eða blandara. Fyrir yngri börn skal gæta þess að engir stórir bitar séu eftir en fyrir börn sem eru nær 9 mánaða mega vera litlir bitar í maukinu. Ef erfitt er að mauka kartöfluna er gott að bæta svolitlu soðvatni út í. Setjið í skál.
- Hrærið mjölinu saman við ásamt olíu og mjólk. Hrærið vel.
Gott að hafa í huga
- Gott er að frysta maukið í ísmolabox. Setjið svo molana í góða frystipoka. Merkið pokana með innihaldi og dagsetningu. Í góðum frysti geymist frosinn barnamatur í nokkra mánuði.
- Börn eiga misjafnlega auðvelt með að kyngja mat svo bætið við meira af vatni/mjólk ef ykkur finnst það henta.
- Gott getur verið að bæta við meira magni af móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk út í maukið í fyrstu skiptin, þannig fæst kunnuglegt bragð sem sumum börnum líkar vel.
- Gott er að blanda svolitlu af hrísmjöli/maísmjöli/hirsimjöli saman við grautinn til að fá matarmeiri graut.
- Ég nota einungis lífrænt ræktað hráefni í barnamat og ég gufusýð alla ávexti og allt grænmeti.
- Vörur frá Holle, Babynat, Baby Organic og Organix eru mjög góðar og mæli ég með þeim.
- Ef þið eruð stödd þar sem þið getið ekki blandað hráefnið má bjarga sér með hvítlaukspressu (fyrir litla skammta)!
Tengdar uppskriftir
© CafeSigrun 2023