Gulrótar-, avocado- og kartöflumauk

Þetta mauk er hentugt að því leytinu að það inniheldur flókin kolvetni og er fyllandi. Það er einnig mátulega sætt vegna gulrótanna og hentar því vel sem grunnmauk með meira grænmeti. Sem dæmi er upplagt að nota spínat, spergilkál (brokkolí) eða jafnvel kjöt eða fisk síðar meir. Áferðin af avocadoinu er einnig mjög skemmtileg og það gefur góða og holla fitu. Mér finnst alltaf gott að gefa avocado að kvöldi því það fyllir magann svo vel og maður er nokkuð viss um að þau muni ekki fá magapínu af því enda svo milt í magann. Þetta hentar 9 mánaða eða eldri en einnig má byrja að gefa maukið fyrr en þá þarf að gæta þess að engir stórir bitar séu í maukinu.

Athugið að skammtastærðin er einungis viðmið. Sum börn þurfa meira og önnur minna. Einnig getur skipt miklu máli hvort barn er byrjað að skríða og hreyfa sig, varðandi hversu mikið það borðar.
&;


Hollur kvöldmatur fyrir litla kroppa

Þessi uppskrift er:

  • Án glúteins
  • Án eggja
  • Án hneta

Þessa uppskrift er auðvelt að gera:

  • Án mjólkur
  • Vegan (fyrir jurtaætur)

Gulrótar-, avocado- og kartöflumauk

Gerir 6-8 skammta

Innihald

  • 150 g gulrætur, skrældar þvegnar og saxaðar gróft
  • 100 g kartöflur, skrældar, þvegnar og saxaðar gróft
  • 100 g vel þroskað avocado, afhýtt, steinhreinsað og saxað gróft
  • 1-2 tsk soðvatn eða móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk
  • 1 tsk kókosolía (eða önnur olía) eða smjör
     

Aðferð

  1. Skrælið gulrætur og kartöflur, þvoið og saxið gróft.
  2. Gufusjóðið gulrætur og kartöflur í 15-20 mínútur eða þangað til grænmetið er orðið mjúkt.
  3. Notið töfrasprota til að mauka gulræturnar og kartöflurnar en einnig má nota matvinnsluvél eða blandara. Fyrir yngri börn skal gæta þess að engir stórir bitar séu eftir en fyrir börn sem eru nær 9 mánaða mega vera litlir bitar í maukinu. Ef illa gengur að blanda hráefnið má setja svolítið af soðvatninu út í og mauka áfram. Setjið í skál.
  4. Afhýðið avocadoið, fjarlægið steininn og stappið kjötið eins mikið og hentar miðað við aldur (mjög vel ef barnið er nær 6 mánaða en litlir bitar mega vera í maukinu ef barnið er nær 9 mánaða). Einnig má setja avocadoið út í matvinnsluvélina ásamt gulrótum og kartöflum og mauka með.
  5. Bætið olíu og mjólk saman við og hrærið vel.

Gott að hafa í huga

  • Gott er að frysta maukið í ísmolabox. Setjið svo molana í góða frystipoka. Merkið pokana með innihaldi og dagsetningu. Í góðum frysti geymist frosinn barnamatur í nokkra mánuði.
  • Börn eiga misjafnlega auðvelt með að kyngja mat svo bætið við meira af vatni/mjólk ef ykkur finnst það henta.
  • Gott getur verið að bæta við meira magni af móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk út í maukið í fyrstu skiptin, þannig fæst kunnuglegt bragð sem sumum börnum líkar vel.
  • Gott er að blanda svolitlu af hrísmjöli/maísmjöli/hirsimjöli saman við grautinn til að fá matarmeiri graut.
  • Ég nota einungis lífrænt ræktað hráefni í barnamat og ég gufusýð alla ávexti og allt grænmeti.
  • Vörur frá Holle, Babynat, Baby Organic og Organix eru mjög góðar og mæli ég með þeim.
  • Ef þið eruð stödd þar sem þið getið ekki blandað hráefnið má bjarga sér með hvítlaukspressu (fyrir litla skammta)!