Fylltar pönnukökur (crepes) með byggi og sinnepssósu

Nammi namm, við fórum einu sinni á veitingastað í Nice, Frakklandi og fengum okkur „crepes” þ.e. fylltar pönnukökur. Þær voru rosalega góðar nema þeim var algjörlega drekkt í ólífuolíu svo ég gat bara borðað brot af minni pönnuköku og svo var ég bara södd. Mér fannst algjör óþarfi að setja ólífuolíu yfir því pönnukakan og innihaldið var svo gott, ólífuolíubaðið skemmdi eiginlega svolítið fyrir. Hérna er holl útgáfa af „crepes” og er hún byggð á þeirri sem ég fékk í Nice. Ég rúlla reyndar pönnukökunum upp í eins konar aflanga böggla en það er líka allt í lagi að brjóta þær eins og alvöru „crepes”. Best er að vera búin að gera pönnukökurnar áður, því þær taka alltaf svolítinn tíma í undirbúningi. Hægt er að frysta pönnukökur og nota síðar eins og t.d. í svona rétt og sparar það mjög mikinn tíma.

Þessi uppskrift er:

  • Án hneta

Fylltar pönnukökur (crepes) með byggi og sinnepssósu

Fyrir 3-4

Innihald

Pönnukökur

  • 1 bolli spelti
  • 1 msk vínsteinslyftiduft
  • 1 egg
  • 1 bolli sojamjólk eða undanrenna
  • 1 msk kókosolía

Fylling

  • 2 dl bygg
  • 100 g sveppir
  • Hálfur saxaður blaðlaukur (allt nema blöðin)
  • Fjórðungur rauð paprika í bitum
  • 100 g magur ostur, rifinn
  • 0,5 tsk karrí
  • 0,5 tsk hvítlaukssalt (eða hvítlauksrif og 0,5 tsk Himalaya eða sjávarsalt)

Sinnepssósa

  • 3 msk hreint, sætt sinnep (alveg róleg..það er án viðbætts sykurs!)
  • 1 tsk brún sinnepsfræ
  • 1 tsk agavesíróp
  • 3 msk 5% sýrður rjómi (án gelatíns, frá Mjólku)
  • 4 msk AB mjólk

Aðferð

  1. Byrjið á pönnukökunum:
  2. Blandið spelti og vínsteinslyftidufti saman í skál.
  3. Hrærið saman eggi og sojamjólk og hellið út í speltið.
  4. Bætið kókosolíu saman við og hrærið vel.
  5. Hitið pönnu (á um það bil næst hæsta hitastigi) og setjið 1 tsk kókosolíu á pönnuna. Það gæti þurft að lækka á hitanum ef pannan verður mjög heit.
  6. Bakið 6-8 frekar þykkar pönnukökur (setjið eina ausu á pönnuna mjög snöggt, þekjið pönnuna og hellið afganginum af deiginu aftur ofan í skálina með deiginu í, á að taka um 7 sekúndur í allt). Athugið ef göt koma strax í pönnukökuna þegar þið setjið deigið á pönnuna, þá er pannan of heit og skal lækka aðeins á hitanum.
  7. Næst skuluð þið undirbúa fyllinguna: Byrjið á því að sjóða byggið samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum. Setjið svo til hliðar.
  8. Sneiðið eða saxið sveppina smátt.
  9. Saxið blaðlaukinn smátt (allt notað nema blöðin).
  10. Skerið paprikuna í helminga og fræhreinsið. Saxið fjórðung paprikunnar smátt.
  11. Rífið ostinn gróft.
  12. Steikið sveppina og blaðlaukinn á pönnu. Notið vatn til að steikja upp úr og kryddið með karríi og hvítlaukssalti. Setjið byggið, sveppina, blaðlaukinn, paprikuna og ostinn í stóra skál. Hrærið vel.
  13. Að lokum skuluð þið hræra saman því sem á að fara í sinnepssósuna: Hrærið saman sýrðum rjóma, AB mjólk, sinnepi, sinnepsfræjum og agavesírópi. Hrærið sinnepssósunni saman við byggið.
  14. Skiptið fyllingunni á milli pönnukakanna. Rúllið pönnukökunum upp í böggla (eða í sívalninga) og leggið í eldfast mót sem búið er að klæða með bökunarpappír (óþarfi er að smyrja mótið).
  15. Bakið við 180°C í 12-15 mínútur.

Gott að hafa í huga

  • Berið fram með salati og jafnvel meira af sinnepssósunni.
  • Frysta má pönnukökurnar, með fyllingunni, eftir að þær hafa kólnað.
  • Fylltar pönnukökur eru frábærar í nestisboxið, kaldar jafnt sem heitar.
  • Ef kókosolían er hörð má stinga krukkunni í heitt vatn í nokkrar mínútur þar til hún verður fljótandi.
  • Nota má aðra olíu en kókosolíu, t.d. vínberjakjarnaolíu eða repjuolíu.
  • Nota má heilhveiti í staðinn fyrir spelti.
  • Nota má hýðishrísgrjón í staðinn fyrir bygg.
  • Sætt, hreint sinnep fæst í flestum matvöruverslunum (er dökkgult, svolítið sætt en er ekki með viðbættum sykri).

Ummæli um uppskriftina

Heiðrún Finnbogadóttir
02. feb. 2015

Er með þessar í ofninum einu sinni enn, alltaf jafn góðar. Yngri sonurinn "elskar" þær ;)

sigrun
02. feb. 2015

Var einmitt að gera þessar sjálf um helgina...með pönnukökum sem ég átti í frystinum. Ein gömul og góð sem klikkar ekki :) Takk fyrir endurgjöfina Heiðrún :)