Eplamauk

Epli eru prýðileg sem fyrsta mauk þar sem þau valda afar sjaldan ofnæmi hjá litlum börnum. Best er að nota sæt epli eins og gulgræn, bleik eða rauð epli en síður þessi súru grænu epli þar sem þau eru of súr fyrir litlu krílin. Athugið að epli geta verið stemmandi fyrir litla maga.

Athugið að skammtastærðin er einungis viðmið. Sum börn þurfa meira og önnur minna. Einnig getur skipt miklu máli hvort barn er byrjað að skríða og hreyfa sig, varðandi hversu mikið það borðar.
 

Þessi uppskrift er:

  • Án glúteins
  • Án eggja
  • Án hneta

Þessa uppskrift er auðvelt að gera:

  • Án mjólkur
  • Vegan (fyrir jurtaætur)

Eplamauk

Gerir 6-8 skammta

Innihald

  • 350 g sæt epli, skræld og þvegin, kjarnhreinsuð og söxuð gróft
  • 1-2 tsk soðvatn eða móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk
  • 1 tsk kókosolía (eða önnur olía) eða smjör
  • Nokkur korn kanill (má sleppa)
     

Aðferð

  1. Skrælið, þvoið og kjarnhreinsið eplin. Saxið þau síðan gróft.
  2. Gufusjóðið eplin í 6-8 mínútur eða þangað til þau eru farin að mýkjast.
  3. Notið töfrasprota til að mauka eplið en einnig má nota matvinnsluvél eða blandara. Fyrir yngri börn skal gæta þess að engir stórir bitar séu eftir en fyrir börn sem eru nær 9 mánaða mega vera litlir bitar í maukinu.
  4. Bætið olíu og mjólk (og kanil ef notaður) saman við og hrærið vel.

Gott að hafa í huga

  • Epli innihalda pectin sem geta hægt á niðurgangi (þ.e. er stemmandi).
  • Gott er að blanda banana- eða perumauki saman við eplamaukið.
  • Maukið má frysta en athugið að það verður ekki fallegt á litinn.
  • Gott er að frysta maukið í ísmolabox. Setjið svo molana í góða frystipoka. Merkið pokana með innihaldi og dagsetningu. Í góðum frysti geymist frosinn barnamatur í nokkra mánuði.
  • Börn eiga misjafnlega auðvelt með að kyngja mat svo bætið við meira af vatni/mjólk ef ykkur finnst það henta.
  • Gott getur verið að bæta við meira magni af móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk út í maukið í fyrstu skiptin, þannig fæst kunnuglegt bragð sem sumum börnum líkar vel.
  • Gott er að blanda svolitlu af hrísmjöli/maísmjöli/hirsimjöli saman við grautinn til að fá matarmeiri graut.
  • Ég nota einungis lífrænt ræktað hráefni í barnamat og ég gufusýð alla ávexti og allt grænmeti.
  • Vörur frá Holle, Babynat, Baby Organic og Organix eru mjög góðar og mæli ég með þeim.
  • Ef þið eruð stödd þar sem þið getið ekki blandað hráefnið má bjarga sér með hvítlaukspressu (fyrir litla skammta)!

Ummæli um uppskriftina

GLind
06. jan. 2013

Sæl
Má ekki nota þetta mauk í uppskriftir þar sem talað er um "applesauce"?
Kv
Guðrún

sigrun
06. jan. 2013

Algjörlega! Og eins geturðu notað perumauk, mangomauk o.fl. Þú getur fryst og svo afþítt og notað síðar!