Epla- og perumauk

Epli og perur eru góð blanda og betri hjón í ávaxtaríkinu er vart hægt að hugsa sér! Þegar kemur að mat fyrir yngstu kynslóðina þá er þessi blanda afar heppileg því það er sjaldan sem epli eða perur valda ofnæmi hjá litlum börnum. Þessi blanda er því nokkuð örugg sem fyrsta maukið í litla kroppa en hafið þó bak við eyrað að hún getur verið stemmandi.

Athugið að skammtastærðin er einungis viðmið. Sum börn þurfa meira og önnur minna. Einnig getur skipt miklu máli hvort barn er byrjað að skríða og hreyfa sig, varðandi hversu mikið það borðar.


Epla- og perumauk, góð blanda

Þessi uppskrift er:

  • Án glúteins
  • Án eggja
  • Án hneta

Þessa uppskrift er auðvelt að gera:

  • Án mjólkur
  • Vegan (fyrir jurtaætur)

Epla- og perumauk

Gerir 6-8 skammta

Innihald

  • 175 g vel þroskaðar perur, afhýddar, þvegnar og saxaðar gróft
  • 175 g sæt epli, afhýdd, þvegin og söxuð gróft
  • 1-2 tsk soðvatn eða móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk
  • 1 tsk kókosolía (eða önnur olía) eða smjör
  • Nokkur korn af kanil (má sleppa)

Aðferð

  1. Skrælið epli og perur, kjarnhreinsið og saxið gróft.
  2. Gufusjóðið perur og epli í um 10 mínútur eða þangað til ávextirnir mýkjast.
  3. Notið töfrasprota til að mauka perurnar og eplin en einnig má nota matvinnsluvél eða blandara. Fyrir yngri börn skal gæta þess að engir stórir bitar séu eftir en fyrir börn sem eru nær 9 mánaða mega vera litlir bitar í maukinu. Ef maukið er stíft bætið þá nokkrum teskeiðum af soðvatninu saman við.
  4. Bætið olíu og mjólk saman við og hrærið vel.
  5. Eftir fyrstu skiptin er gaman að bæta svolitlum kanil út í maukið til að auka fjölbreytni.

Gott að hafa í huga

  • Bæði perur og epli innihalda pectin sem geta hægt á niðurgangi.
  • Gott er að frysta maukið í ísmolabox. Setjið svo molana í góða frystipoka. Merkið pokana með innihaldi og dagsetningu. Í góðum frysti geymist frosinn barnamatur í nokkra mánuði.
  • Börn eiga misjafnlega auðvelt með að kyngja mat svo bætið við meira af vatni/mjólk ef ykkur finnst það henta.
  • Gott getur verið að bæta við meira magni af móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk út í maukið í fyrstu skiptin, þannig fæst kunnuglegt bragð sem sumum börnum líkar vel.
  • Gott er að blanda svolitlu af hrísmjöli/maísmjöli/hirsimjöli saman við grautinn til að fá matarmeiri graut.
  • Ég nota einungis lífrænt ræktað hráefni í barnamat og ég gufusýð alla ávexti og allt grænmeti.
  • Vörur frá Holle, Babynat, Baby Organic og Organix eru mjög góðar og mæli ég með þeim.
  • Ef þið eruð stödd þar sem þið getið ekki blandað hráefnið má bjarga sér með hvítlaukspressu (fyrir litla skammta)!