Avocadomauk

Avocadomauk hljómar kannski ekki vel fyrir suma fullorðna en avocado er svo bráðhollt að maður ætti að byrja að borða það um leið og maður getur! Það er misskilningur að halda að öllum börnum finnist avocado vont (þó að sumum finnist það) og vegna þess hve avocado er fituríkur ávöxtur hentar hann ákaflega vel fyrir yngstu börnin. Fitan úr því er líka sérlega holl. Avocado er hentugt til að mauka í hitt og þetta og hentar vel sem uppfylling því áferðin er silkimjúk. Elva Brá vinkona mín notaði avocado afar mikið fyrir sínar dætur og sama gerði ég fyrir mína dóttur. Hún elskar allt með avocado í. Meira að segja, þegar hún var 6 mánaða gömul og við vorum í Kenya í fríi, torgaði hún einu heilu avocadoi í kvöldmat. Það var hreinlega lygilegt! Það má blanda hverju sem er við avocadomauk, hvort sem um er að ræða grænmeti eða ávexti. Avocado fer nefnilega vel í viðkvæma maga.

Athugið að skammtastærðin er einungis viðmið. Sum börn þurfa meira og önnur minna. Einnig getur skipt miklu máli hvort barn er byrjað að skríða og hreyfa sig, varðandi hversu mikið það borðar.

Þessi uppskrift er:

  • Án glúteins
  • Án eggja
  • Án hneta

Þessa uppskrift er auðvelt að gera:

  • Án mjólkur
  • Vegan (fyrir jurtaætur)

Avocadomauk

Gerir 6-8 skammta

Innihald

  • 350 g avocado (án steinsins)
  • 1-2 tsk móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk
  • 1 tsk kókosolía (eða önnur olía) eða smjör

Aðferð

  1. Fjarlægið hýðið og steininn.
  2. Notið töfrasprota til að mauka hráefnið en einnig má nota matvinnsluvél eða blandara. Fyrir yngri börn skal gæta þess að engir stórir bitar séu eftir en fyrir börn sem eru nær 9 mánaða mega vera litlir bitar í maukinu.
  3. Bætið olíunni og mjólkinni saman við og hrærið vel.

Gott að hafa í huga

  • Maukið má frysta en athugið að það verður ekki fallegt á litinn.
  • Gott er að frysta maukið í ísmolabox. Setjið svo molana í góða frystipoka. Merkið pokana með innihaldi og dagsetningu. Í góðum frysti geymist frosinn barnamatur í nokkra mánuði.
  • Börn eiga misjafnlega auðvelt með að kyngja mat svo bætið við meira af vatni/mjólk ef ykkur finnst það henta.
  • Gott getur verið að bæta við meira magni af móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk út í maukið í fyrstu skiptin, þannig fæst kunnuglegt bragð sem sumum börnum líkar vel.
  • Gott er að blanda svolitlu af hrísmjöli/maísmjöli/hirsimjöli saman við grautinn til að fá matarmeiri graut.
  • Ég nota einungis lífrænt ræktað hráefni í barnamat og ég gufusýð alla ávexti og allt grænmeti.
  • Vörur frá Holle, Babynat, Baby Organic og Organix eru mjög góðar og mæli ég með þeim.
  • Ef þið eruð stödd þar sem þið getið ekki blandað hráefnið má bjarga sér með hvítlaukspressu (fyrir litla skammta)!