Avocado og bananamauk

Þegar maður blandar saman avocadoi og banana þá verða einhverjir töfrar til. Þetta er svo góð blanda og hin fullkomna næring, sérstaklega fyrir lítil börn því avocadoið er fitumikill ávöxtur (já hann er ávöxtur, ekki grænmeti) en hann inniheldur holla og góða fitu. Elva vinkona mín notaði avocado mjög mikið og þetta mauk var eitt af uppáhaldsmaukunum hennar Freyju, dóttur hennar. Ég hafði það í huga með dóttur mína sem bókstaflega elskar avocado, jafnvel eintómt. Þess skal samt gæta að báðir ávextirnir séu vel þroskaðir því annars gæti maukið endað alls staðar annars staðar en í munni og maga! Maukið er líka fljótlegt því það þarf ekki að sjóða hráefnið. Það má spila með hlutföllin að vild, þetta eru bara viðmið, ég gætti þess að hafa meira avocado en banana til að venja dóttur mína strax á ekki of sætt bragð.

P.s. maukið er afar gott sem ís fyrir eldri krakka. Hendið því í frospinnabox og frystið, borðið innan sólarhrings (frostpinnarnir verða annars leiðinlegir á litinn).

Athugið að skammtastærðin er einungis viðmið. Sum börn þurfa meira og önnur minna. Einnig getur skipt miklu máli hvort barn er byrjað að skríða og hreyfa sig, varðandi hversu mikið það borðar.

Þessi uppskrift er:

  • Án glúteins
  • Án eggja
  • Án hneta

Þessa uppskrift er auðvelt að gera:

  • Án mjólkur
  • Vegan (fyrir jurtaætur)

Avocado og bananamauk

Gerir 6-8 skammta

Innihald

  • 200 g vel þroskað, lífrænt ræktað avocado
  • 150 g vel þroskaður, lífrænt ræktaður banani
  • 1-2 tsk móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk
  • 1 tsk kókosolía (eða önnur olía) eða smjör

Aðferð

  1. Afhýðið avocadoið, fjarlægið steininn og stappið avocadoið gróft.
  2. Afhýðið bananann og stappið gróft
  3. Notið töfrasprota til að mauka hráefnið en einnig má nota matvinnsluvél eða blandara. Fyrir yngri börn skal gæta þess að engir stórir bitar séu eftir en fyrir börn sem eru nær 9 mánaða mega vera litlir bitar í maukinu.
  4. Bætið olíu og mjólk saman við og hrærið vel.

Gott að hafa í huga

  • Maukið má frysta en athugið að það verður ekki fallegt á litinn.
  • Gott er að frysta maukið í ísmolabox. Setjið svo molana í góða frystipoka. Merkið pokana með innihaldi og dagsetningu. Í góðum frysti geymist frosinn barnamatur í nokkra mánuði.
  • Börn eiga misjafnlega auðvelt með að kyngja mat svo bætið við meira af vatni/mjólk ef ykkur finnst það henta.
  • Gott getur verið að bæta við meira magni af móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk út í maukið í fyrstu skiptin, þannig fæst kunnuglegt bragð sem sumum börnum líkar vel.
  • Gott er að blanda svolitlu af hrísmjöli/maísmjöli/hirsimjöli saman við grautinn til að fá matarmeiri graut.
  • Ég nota einungis lífrænt ræktað hráefni í barnamat og ég gufusýð alla ávexti og allt grænmeti.
  • Vörur frá Holle, Babynat, Baby Organic og Organix eru mjög góðar og mæli ég með þeim.
  • Ef þið eruð stödd þar sem þið getið ekki blandað hráefnið má bjarga sér með hvítlaukspressu (fyrir litla skammta)!