Þetta er sannkallaður vítamíndrykkur. Í bláberjum eru sterk andoxunarefni, B og C vítamín ásamt kalín og kalki og fleira. Í ananas er hellingur af C vítamíni, fólinsýra, A vítamíni og B vítamínum, kalín og kalki, magnesíum og fleira. Ananas inniheldur ensímið bromelain sem hjálpar niðurbroti á próteinum og er því gott fyrir meltinguna.
Þetta er hollur og góður drykkur, ananas á að hreinsa þvagfærakerfið, bæta meltinguna (inniheldur meltingarensímið bromelain), styrkja beinin, lækka blóðþrýsting, er trefjaríkur og ég veit ekki hvað. Ananassafi á víst að vera góður fyrir hjartasjúklinga. Bananar eru fullir af B6 vítamíni, potassium (kalíum/kalín), kalki, C og A vítamínum og auðvitað trefjum og flóknum kolvetnum sem hjálpa til við meltingu og jöfnum blóðsykri. Kalíum er mikilvægt til að sporna við hjartasjúkdómum. Í einum meðalstórum banana er um 11% dagsþörf af kalíum. Appelsínur er óþarft að kynna :) Hreinn snilldardrykkur, þarf ég að segja meira hí hí. Ægilega góður drykkur, svona þykkur alvöru "smúðí" (smoothie).
Þessi drykkur er fullur af c vítamínum og er hreinsandi líka. Engiferið róar magann og oft hefur engifer verið talið betra en sjóveikistöflur á sjó. Ég hef þó ekki prófað sjálf. Þetta er upplagður drykkur í byrjun árs, eftir allan jólamatinn þegar líkaminn er farinn að öskra á eitthvað hollt og vítamínríkt. Þennan drykk má gera í safapressu en einnig má kaupa ferskan appelsínusafa og lífrænan gulrótarsafa í heilsubúðum.
Þetta te er eitt af mínum uppáhalds og er bæði hreinsandi og auðvitað koffeinlaust. Ferskur og hollur drykkur og upplagður þegar mann langar í eitthvað heitt, hollt og mátulega sætt.
Þessi drykkur er Afríka í glasi (eða að minnsta kosti Tanzanía og Kenya í glasi). Það er ekkert sem hefur minnt mig jafn mikið á þessa staði eins og fyrsti sopinn sem ég tók af þessum drykk þegar ég var að búa hann til. Hann er alveg hreint dásamlega frískur og góður, mitt á milli þess að vera súr og sætur og er upplagður sem sumardrykkur. Á ferðalögum okkar um þessar slóðir kaupum við gjarnan ferska safa hvers konar, og það er fátt betra en að koma t.d. úr morgunsafaríi, svolítið syfjaður en upprifinn eftir ævintýri morgunsins (t.d. eftir að hafa séð ljón, fíla eða blettatígur!!!) og koma beint í morgunmat þar sem svalandi ávaxtadrykkur bíður manns. Fyrir utan að vera frískandi þá er safinn afar hollur því mango er fullt af andoxunarefnum, trefjum, A, K og E vítamíni og inniheldur kalíum (potassium) eins og bananar en kalíum leikur stórt hlutverk í að halda blóðþrýstingi í lagi o.fl. Ástaraldin (sem heitir á ensku Passion Fruit) inniheldur svipaða vítamínbombu. Athugið að þegar þið veljið ástaraldin á ávöxturinn að virka svolítið þungur miðað við stærð og hýðið á að vera svolítið krumpað (virkar ekki girnilegt en þannig er það þroskað). Ef ykkur finnst steinarnir í ástaraldinum ekki góðir (þeir eru ætir) má láta safann renna fyrst í gegnum sigti.
Þessi drykkur er í raun heil máltíð. Hann er fullur af trefjum, próteini, A, C og E-vítamínum, kalki og hollri fitu. Sannkölluð vítamínsprengja. Drykkurinn hentar vel þeim sem eru jurtaætur (enska: vegan) því hann er kalkríkur, próteinríkur og fullur af nauðsynlegum vítamínum. Þeir sem eru jurtaætur myndu samt sleppa hunanginu og undanrennunni og nota hlynsíróp og soyamjólk í staðinn.
Þessi er frábær fyrir alla fjölskylduna. Ananasinn inniheldur ensímið Bromelain sem er frábært fyrir meltinguna og avacado er stútfullt af hollustu. Avacado inniheldur einómettaða fitu, inniheldur mikið af E vítamíni og ekki nóg með það þá inniheldur það oleic sýru sem er talin sporna gegn brjóstakrabbameini. Avacado er stundum kölluð "krókódílapera" vegna áferðarinnar en það er alveg örugglega ekkert krókódílakjöt í þessarri uppskrift! Drykkurinn er góður fyrir krakka en ef þið gefið mjög ungum börnum drykkinn, sleppið þá sítrónusafanum. Drykkurinn er nokkuð þykkur en hann má þynna með því að setja aðeins meiri ananassafa.
Eitt kvöldið þegar ég var ein heima hérna í UK (Jóhannes var í viðskiptaferð í Portúgal), var ekkert til í ísskápnum nema skyr (ótrúlegt en satt því skyr fæst jú ekki hér) og vanillujógúrt. Ég átti líka banana og döðlur og ákvað að gera tilraun. Hún heppnaðist mjög vel og þetta varð kvöldmaturinn minn það kvöldið (verulega saðsamt get ég sagt ykkur). Mér leiðist nefnilega að elda fyrir mig eina og þetta var því fín lausn.
Nammi nammi. Hnetusmjör og bananar. Fínt eftir ræktina, fullt af próteinum. Munið að hnetusmjör er ekki svo óhollt (í litlu magni), kaupið bara það sem er án viðbætts sykurs og helst lífrænt framleitt. Þetta er heimsins einfaldasti drykkur.
Bragðgóður drykkur, upplagður þegar maður kemur heim úr vinnunni og langar í eitthvað sætt en hollt.
Það var um haustið 2007 þegar við Jóhannes vorum (oft sem áður) í Nairobi. Við vorum nýkomin frá Zanzibar en þar áður höfðum við verið að lóðsa nokkra hópa fólks um Kenya. Við vorum með 7 tíma aflögu fyrir næsta flug (til London). Ég hringdi í James sem er innfæddur leigubílstjóri (eða réttara sagt strákpjakkur sem leigir gamla druslu og rúntar með fólk og fær um 500 krónur á dag fyrir). Ég hafði fengið James nokkrum sinnum til að skutla mér og líkaði vel við þennan hægláta en duglega strák. Nú, hann fór með okkur inn til Nairobi og við ákváðum að eyða tímanum í bókabúð, að kaupa hnetur og ávexti í flugvélina (í nesti) og fara á nokkur kaffihús. Við fórum í Sarit Centre sem er stór verslunarmiðstöð í Westlands hverfinu í Nairobi en þar er öruggt og þægilegt að versla. Þó að ég sé ekki hrifin af verslunarmiðstöðvum þá er eitthvað öðruvísi við að versla þar sem varðmenn vopnaðir AK 47 rifflum eru á sveimi….ekki alveg Smáralindsstemmningin. Nú við versluðum nokkrar bækur, þó ekki uppskriftabækur (því ég á þær flestar um afríska matargerð), fengum okkur ljúffengt kaffi á Dorman’s og rétt áður en við ætluðum að hitta James aftur ákváðum við að hendast upp á efstu hæð og grípa með okkur bananadrykkinn góða sem ég fæ mér alltaf þegar á leið þarna um. Við þeystumst upp, þeystumst aftur niður með bananadrykk í hönd (risaglös) og út í bíl. Það vildi ekki betur til en svo að Jóhannes náði að hella yfir sig allan um 400 ml af klístruðum bananadrykk. Það var 30 stiga hiti og engin loftkæling, við á leið út á flugvöll, fötin í töskunni, ekki einu sinni pappír uppi við og bílsætið óóóóóógeðslegt. Aumingja James…. Við vorum alveg miður okkar en tókst að ná í hreinan bol, þurrka það mesta úr sætum og af buxum og hendast út á flugvöll. Jóhannes var svo svekktur að ég gat ekki annað en gefið honum eiginlega allan minn drykk (allt of mikið fyrir mig hvort eð var). Við skildum við James á flugvellinum með fullt af þjórfé og pening fyrir þrifum. Hann brosti bara og sagði "Hakunamatata". En sem sagt þetta er uppskriftin af bananadrykknum og á meðan þið drekkið hann, ímyndið ykkur að þið hellið rúmlega 400 ml yfir ykkur í bíl í 30 stiga hita og með enga loftkælingu. Veeeeel klístrað!
Þessi drykkur er stútfullur af hollustu eins og andoxunarefnum úr berjunum ásamt próteinum og C vítamíni. Mmmmmmm. Ekki vera hrædd við að nota tófú, það finnst nánast ekkert bragð af því en gerir drykkinn bara þykkari. Hægt er að nota hreint skyr í staðinn.
Perur hafa hreinsandi eiginleika og bláber eru hollustuheimsmeistarar, full af andoxunarefnum og járni. Þetta er sannkallaður hollustudrykkur og upplagt að nota bláberin úr berjamó haustsins.
Hvað get ég sagt…ef keppt væri í hollustu drykkja (svona eins og í t.d. 100 metra hlaupi) þá væri þessi drykkur í fyrsta sæti (og sennilega öðru og þriðja líka). Hann fengi einnig heiðursverðlaun í hollustu. Bláberin eru full af andoxunarefnum sem hjálpa til við að sporna gegn krabbameini, og drykkurinn inniheldur kókosvatn sem er svo dæmalaust gott fyrir okkur, t.d. potassíum sem hjálpar hjartanu sem og að halda blóðþrýstingnum í lagi. Vissuð þið að í kókosvatni eru sömu efni og í blöðflögum í líkama okkar...svo ef við erum eitthvað slöpp er gott ráð að drekka kókosvatn. Drykkurinn inniheldur líka sesammauk sem inniheldur fullt af kalki, kopar og járni svo fátt eitt sé nefnt. Koparinn er mikilvægur fyrir þá sem hafa gigt eða eru slæmir í liðunum.
Bláber eru flokkuð sem súperfæða (ofur holl) og ekki skrýtið þar sem þau eru algjörlega pakkfull af andoxunarefnum og vítamínum. Dökkblái liturinn er greinilegt merki um það. Bláber innihalda einnig járn og trefjar, eru góð fyrir hjarta, heila og sjón og þykja góð í að sporna gegn ýmsum tegundum krabbameins. C vítamínið hjálpar svo með upptöku á járninu svo útkoman verður reglulega hollt og gott te sem er bæði járnríkt, bragðgott og á að virka bakteríudrepandi ef við erum t.d. með einhverja slæmsku í maganum. Þetta er uppáhaldsteið mitt á haustin þegar bláberin eru glæný. Ef þið eigið ekki ný bláber má nota lífræna bláberjasultu eða frosin bláber.
Ekki ÚR blóði (ég er ekki vampíra) heldur FYRIR blóðið...því þegar maður er lágur í járni þá er þessi drykkur upplagður. Sveskjurnar eru sérlega járnríkar og appelsínusafinn aðstoðar við upptöku járnsins í líkamanum. Ef þið fáið soyajógúrt er best að nota hana því mjólkurvörur geta hindrað upptöku járns en engu að síður er gott að hjálpa meltingunni við að nýta allt sem hún getur svo þess vegna er ab mjólkin góð.
Þessi drykkur er unaðslegur, hann er hreinlega eins og flauel upp í manni (ég hef ekki smakkað fljótandi flauel en er viss um að það bragðast svona). Drykkurinn er upplagður eftir ræktina eða sem léttur morgunmatur því hann inniheldur bæði holla fitu, prótein og kolvetni. Um 75% fituinnihalds í cashewhnetum er einómettaðar fitusýrur (oleic acid) og sýnt hefur verið fram á að þessar sýrur hjálpa til við að sporna gegn hjartasjúkdómum og sagt er að cashewhnetur séu sérlega góðar fyrir þá sem hafa sykursýki. Cashewhnetur innihalda einnig mikið af kopar og kalki. Kalkið er auðvitað gott fyrir beinin okkar en koparinn skiptir máli líka, sérstaklega fyrir járnbúskapinn en einnig hefur kopar andoxunareiginleika. Kopar er einnig mikilvægur fyrir æðar, bein og liði. Það er samt ekki sniðugt að fara í Byko og kaupa koparrör til að bryðja…cashewhnetur eru sniðugri!
Þetta er einföld og holl uppskrift og hentar vel fyrir þá sem hafa mjólkuróþol. Í uppskriftina þarf frosinn banana en ef þið eruð ekki búin að frysta bananann, setjið þá nokkra klaka út í. Drykkurinn er nokkuð þykkur en hann má þynna eftir smekk.
Þessi drykkur er bara fullur af hollustu. Engifer er hreinsandi og gott fyrir meltinguna og melónan er full af vítamínum. Nota má bæði Galia melónu (ljósgræn að innan) eða hunangsmelónu. Lime er afar frískandi en það má sleppa því ef þið viljið sætari safa. Gott er að nota safapressu fyrir þessa uppskrift en fyrir þá sem ekki eiga svoleiðis má kaupa gulrótarsafa og blanda restina í blandara (rífa engiferið fyrst) og hræra svo saman. Safinn verður þá þykkari.
Engiferöl er mín þýðing á “Ginger Ale” sem er drykkur sem margir sem hafa búið erlendis þekkja. Á Íslandi er það ekki svo mikið þekkt en er mikið drukkið á heitum sumardögum t.d. á Bretlandi, í Bandaríkjunum og víðar. Engifer er sérlega hressandi, hefur bólgueyðandi áhrif og er afar gott fyrir meltinguna, kemur t.d ró á magann hjá þeim sem er flökurt (gott fyrir ófrískar konur eða bílveika). Þessi drykkur, ískaldur er alveg ferlega hressandi og upplagður til að drekka á heitum sumardegi (eða kannski volgum íslenskum sumardegi…þeir verða nú ekki svo heitir). Drykkurinn er líka frábær detoxdrykkur og líka afar góður ef maður er með hálsbólgu eða einhverja slæmsku því hann bókstaflega rífur í kverkarnar! Meira að segja Jóhannes sem vill ekki sjá neinar hóstamixtúrur þegar hann er með hálsbólgu/hósta er farinn að biðja um engiferte og engiferdrykki og segir að virki vel.
Einn ægilega einfaldur og góður. Nota má blá eða rauð vínber í staðinn en þau verða að vera steinalaus. Best er að nota safapressu fyrir þennan safa en einnig er hægt að kaupa vínberjasafa og eplasafa og blanda saman. Þó það sé aldrei eins gott og ferskur safi má bjarga sér svoleiðis! Þetta er líklega ein stysta uppskrift á CafeSigrun!
Gulrætur eru yfirfullar af A vítamíni (Beta Carotene) ásamt B1, B3, B6, fólinsýrum og Kalíum (Potassium), járni og svo mætti lengi telja. Gulrætur örva meltinguna og virka einnig hreinsandi á innvolsið í okkur. Það góða við svona safa er að maður er að fá ofsalega mikið af hollustu án þess að líkaminn þurfi að reyna á sig við að brjóta matinn niður. Svona drykkir eru því eins og vítamínsprautur! Perur og nektarínur eru ekki síðri vítamínbomba en gulrætur!
Þessi safi er frægur í safaheimum (sennilega jafn frægur og Madonna í mannheimum) en líklega þarf hann samt ekki lífverði og svoleiðis. Þetta er ákaflega hollur og góður drykkur og mátulega sætur ef maður vill ekki sætan safa heldur svona rétt keiminn sem kemur af gulrótunum. Traustur og góður, einfaldur og ódýr. Það er alltaf góð blanda. Nauðsynlegt er að nota safapressu við að útbúa þennan drykk (veit ekki til þess að sé hægt að kaupa sellerísafa). Breyta má hlutföllunum þannig að meira selleríbragð sé í staðinn fyrir gulrótarbragðið.
Ég krækti mér í svæsna hálsbólgu um daginn og vantaði eitthvað til að mýkja hálsinn sem var eins og sandpappír af grófleika 12. Þessi drykkur gerði nákvæmlega það. Hann er bæði frískandi og bragðgóður og inniheldur engin skrýtin efni eins og hóstasaft gerir yfirleitt. Ef maður er með kvef er gott að setja smávegis af afhýddu, fersku engiferi (1cm bút) út í og sjóða með.
Þennan hreinsandi (detox) drykk má líka gera í safapressu en fyrir þá sem eiga ekki slíkt er alveg hægt að mauka perurnar í blandara en þá er drykkurinn aðeins þykkari. Lífrænt framleiddan gulrótarsafa má kaupa í heilsubúðum. Bæði perurnar og engiferið hafa hreinsandi eiginleika fyrir innyflin og gulrótarsafinn inniheldur helling af Beta Karótíni (sem breytist í A vítamín í líkamanum) og K og C vítamínum en perurnar innihalda mikið af C vítamíni. A vítamín er sérstaklega gott fyrir lungnastarfsemi. Perur eru líka trefjaríkar og eru sá ávöxtur sem hvað síst kemur af stað ofnæmisviðbrögðum. Þær eru því heppilegar fyrir ung börn. Þetta er upplagður drykkur yfir háveturinn því þarf líkaminn einmitt á þessum vítamínum að halda.
Þessi drykkur minnti mig alveg svakalega á Afríku og sérstaklega Kenya þegar ég var að smakka hann til. Ástæðan er nefnilega sú að í Kenya eru appelsínur eilítið súrari en þessar sem við eigum að venjast á Íslandi sem koma frá Spáni eða Bandaríkjunum. Ég man í fyrsta skipti sem ég sá appelsínur í Kenya. Þær eru aðeins stærri en límónur og eiturgrænar að lit (en reyndar gular að innan sem ég vissi ekki þá). Í fyrsta skipti sem við komum þangað var ég búin að velta því fyrir mér alveg svakalega oft hvers vegna Kenyabúar borðuðu svona oft límónur. Mér fannst það beinlínis stórfurðulegt. Það var ekki fyrr en í næsta skipti sem ég fór þangað að ég fór að spyrjast fyrir um þetta. Ég spurði einn Kenyabúa hvers vegna þessu sætti. Hann horfði á mig eins og ég væri eitthvað ruuuugluð. Já en þetta eru appelsínur!!! Ég sagði að það gæti ekki verið? Þær væru appelsínugular? Hann svaraði á móti að það hlyti að vera eitthvað að appelsínunum okkar þar sem þær væru appelsínugular..kannski væru þær skemmdar? Þetta sýndi glögglega hversu fastheldin við erum á ýmislegt í lífi okkar, hvort sem það er Kenyabúi eða Íslendingur. Í fyrsta skipti sem ég smakkaði appelsínu í Kenya vorum við að sigla á Indlandshafi, í gamalli tréskútu sem notuð hafði verið fyrir krydd, þræla og ýmsan varning milli Mombasa og Zanzibar. Um borð var matur sem við borðuðum með bestu lyst enda orðin svöng. Í eftirmat voru….límónur (sem ég nú vissi að voru appelsínur) og ég borðaði þær auðvitað líka. Þær voru sérlega gómsætar en aðeins súrari en okkar (ekki óþroskaðar súrar heldur svona sterksætsúrar) sem pössuðu vel þarna eftir matinn. Þegar farið er með fólk í köfun á Indlandshafi fá kafarar alltaf appelsínubáta til að hreinsa munninn þegar upp er komið!Þetta var ég sem sagt að hugsa um á meðan ég bjó til drykkinn á köldum vetrardegi á Íslandi. Hann er einstaklega hressandi og hreinsandi og sprengfullur af C vítamínum. Engiferið er einnig gott fyrir meltinguna og við flökurleika (magakveisum). Ef þið viljið meira engiferbragð má rífa engiferið á rifjárni og setja út í drykkinn. Í þennan drykk þarf safapressu eða hreinan gulrótarsafa.
Þessi kemur manni af stað á morgnana. Það er smá leyniinnihald í uppskriftinni en það er sæt kartafla! Það er gaman að bjóða gestum upp á þennan drykk og leyfa þeim að geta upp á innihaldinu. Ég get lofað ykkur að engum dettur í hug sæt kartafla! Nauðsynlegt er að nota safapressu fyrir þessa uppskrift. Sæt kartafla er það grænmeti sem hvað oftast gleymist þegar talað er um ofurhollt grænmeti. Hún er stútfull af andoxunarefnum og er talin hafa góð áhrif á blóðsykurinn (og jafnvel lækka insúlínmótstöðu hjá sykursjúkum). Það´er mikið af A og C vítamínum í sætum kartöflum ásamt fjölmörgum öðrum vítamínum og öðru góðu fyrir okkur.
Ég fékk svona latte fyrst á kaffihúsi sem heitir Englen í Árhúsum sumarið 2006. Setið var úti í ógnarhita í garðinum bak við kaffihúsið. Freysi vinur okkar sagði rogginn að hann gæti búið til álíka gott heima hjá sér en ég var nú ekki svo tilbúin að trúa honum. Pressan á honum var því mikill er heim var komið. En viti menn, þetta tókst hjá stráknum! Danska mjólkin er reyndar mögnuð og ég fæ ekki sömu áferð á mjólkina í Englandi nema með því að nota gerilsneydda mjólk (g-mjólk). Ég hef ekki prófað með íslenskri mjólk reyndar. Starbucks má vara sig sko með sinn Frappuchino he he. Ég hef notað soyamjólk líka og hún er allt í lagi en hún freyðir reyndar lítið.
Þessi drykkur er fullur af próteinum og vítamínum og er upplagður eftir ræktina eða í eftirmiðdaginn þegar mann vantar orkuskot. Þessi drykkur hentar vel fyrir þá sem eru með mjólkuróþol en einnig þeim sem eru jurtaætur (enska: vegan), þá myndu þeir reyndar ekki nota hunang heldur nota t.d. hlynsíróp eða byggmaltsíróp!
Sumardrykkur, fullur af vítamínum!!!
Þurrkaðar aprikósur innihalda helling af járni og appelsínusafinn hjálpar til við upptöku járnsins í líkamanum. Ég get svo svarið fyrir það að eftir að ég drakk þennan fína drykk hresstist ég við til muna…en kannski er það ímyndun (eða óskhyggja). Hann er allavega mjög bragðgóður og hollur og inniheldur C vítamín og trefjar sem halda meltingunni í lagi, fólinsýrur (sem er gott fyrir ófrískar konur) og A vítamín sem passar upp á sjónina okkar.
Ég er sko ekkert að ýkja með því að skíra þennan drykk vítamíndrykk því hann er stútfullur af hollustu. Ég ætti kannski að skíra þennan drykk frekar konudrykk þar sem hann er sérstaklega góður fyrir konur! Þið getið annað hvort búið til ykkar eiginn safa í djúspressu (sem er auðvitað best) en það næst besta væri að kaupa lífrænt framleidda safa í heilsubúð og blanda svo saman í blandara. Rauðrófusafinn er mjög járnríkur og ásamt appelsínusafanum gerir drykkinn súper járnríkann. Rauðrófusafi er líka góður til að hreinsa lifrina og meltingarfærin og inniheldur fólin sem er gott fyrir ófrískar konur. Ekkert grænmeti og enginn ávöxtur inniheldur jafn mikið af andoxunarefnum og bláber. Þau hjálpa til við að sporna gegn alls kyns sjúkdómum, þar með talið hjartasjúkdómum og krabbameini. Perur og ananas hjálpa til við að hreinsa innyflin sem og meltingarfærin. Bananar gefa manni góða orku og innihalda allar 8 af þeim aminósýrum sem líkaminn getur ekki framleitt sjálfur. Það væri hreinlega vitleysa að byrja daginn ekki á þessum drykk! Ég miða uppskriftina við blandara.
Ég smakkaði í fyrsta skipti jólaglögg (óáfenga að sjálfsögðu) í jólaboði hjá yfirmanni mínum í verslun sem ég vann í með skóla í mörg ár. Ég gleymi því ekki hvað mér fannst hún góð og eitthvað svo "traustvekjandi", að halda utan um heitan bollann og finna kanellyktina stíga upp í nef. Þessi glögg er það góð að mig langar alltaf upp í sófa, undir teppi með bók þegar ég bý hana til (bara um jól auðvitað). Það besta er, að glöggin er auðvitað óáfeng og pakkfull af C vítamínum og andoxunarefnum og því verulega holl. Það má að sjálfsögðu sletta rauðvíni út í (og auka þar með andoxunaráhrifin) ef maður vill. Svo er glöggin frábær ef maður er með blöðrubólgu....og myndi þá jafnvel kallast blöðrubólguglögg... en það er nú kannski önnur saga!
Þegar Jóhannes smakkaði þennan drykk sagði hann: "Þennan drykk væri ég til í að kaupa". Svo sem gott að fá góð viðbrögð og allt það en hvað með hinar tæpar fjögur hundruð uppskriftirnar á vefnum mínum sem hann hefur þurft að smakka (og ekki boðist til að kaupa)? Makes you wonder!!! Nú fer ég að rukka gaurinn sko, hmmm. Allavega, hvort sem hann er til sölu eða ekki er þetta ferskur, hreinsandi og nærandi drykkur, yfirfullur af C vítamíni. Best er að nota safapressu fyrir safann.
Ferskur og frísklegur haustdrykkur, fullur af andoxunarefnum úr dökkbláa hýði krækiberjanna en einnig eru krækiber full af trefjum og afar járnrík. Ég hjálpaði svo aðeins upptöku járnsins með því að bæta appelsínusafa í drykkinn. Ef ykkur finnst engifer ekki gott má sleppa því. Krækiber fá ekki alltaf uppreisn æru því yfirleitt eru þau bara nefnd í sambandi við saft og hlaup en fátt annað. Hér njóta krækiberin sín til fulls, óbreytt frá náttúrunnar hendi (nema maukuð).
Varð að henda þessari uppskrift inn. Ég var að nota mango og banana sem var á síðasta snúningi og úr varð alveg voðalega góður drykkur. Hann er fullur af hollum vítamínum, upplagður eftir ræktina eða sem morgundrykkur. Ekki vera hrædd við að nota hnetusmjör því það inniheldur holla og nauðsynlega fitu og í litlu magni er það afar sniðugt (og svooooo gott). Munið bara að kaupa lífrænt framleitt hnetusmjör án viðbætts sykurs.
Hreinsandi og nærandi drykkur, fullur af vítamínum. Upplagður í morgunsárið eða að loknum krefjandi vinnudegi þegar mann langar í eitthvað sætt... en hollt.
Þetta er hollur og næringarríkur drykkur sem hentar vel sem létt máltíð á daginn. Meginuppistaðan er "kremið" af gulrótarkökunni hollu sem ég baka stundum og það er semsagt enginn sykur og engin fita í þessum drykk!
Þessi drykkur er beint úr bókinni Innocent smoothie recipe book frá Innocent fyrirtækinu hér í London sem gerir bestu smoothie drykki í heimi (að mínu mati!!). Fyrirtækið er dásamlegt því það hugsar ekki bara um gróða og skjótan pening heldur greiða þeir 10% af öllum gróða beint til bænda og þeirra sem rækta það sem fyrirtækið þarf. Þeir styðja líka alls kyns verkefni í þróunarlöndum og skapa þar vinnu og sanngjarna viðskiptahætti. Allt hráefni er lífrænt ræktað. Fyrir þá sem fíla ekki hafragrautinn á morgnana þá er þessi drykkur fullkominn því í honum eru hafrar, döðlur, banani, hunang og jógúrt. Fullkomin byrjun á deginum.
Þessi uppskrift er úr bókinni Lean Food sem er frá The Australian Women’s Weekly seríunni sem ég held mikið upp á. Meiriháttar sumardrykkur og einstaklega hollur því hann er góður fyrir meltinguna og er pakkfullur af C vítamínum og andoxunarefnum. Gætið þess bara að ávextirnir séu vel þroskaðir. Þennan drykk má gera að morgni og geyma í ísskáp yfir daginn sem er upplagt ef maður er til dæmis með boð síðar um daginn.
Þetta er nú varla uppskrift, meira bara leiðbeiningar. Ég mæli með því að þið útbúið myntute enda fátt betra en myntute úr ferskum myntublöðum. Ef maður er með hálsbólgu og kvef er rosa gott að fá sér myntute með smá sítrónusafa og hunangi út í…læknar mann kannski ekki en myntan losar aðeins um í nefholinu og hunangið fer vel í hálsinn.
Þessi uppskrift kemur úr bók sem ég á sem heitir Healing Drinks og er hreint út sagt frábær. Möndlur eru algjör undraafurð en í möndlum leynist mikið kalk, E vítamín, magnesíum, B2 vítamín og margt fleira. Þær eru einnig próteinríkar. Bæði magnesium og E vítamín stuðla að heilbrigðu hjarta og æðarkerfi. Ég notaði soyamjólk í staðinn fyrir hrísmjólk en nota má hvoru tveggja eða jafnvel haframjólk, möndlumjólk eða það sem hentar best. Fyrir þá sem eru sérstaklega að styrkja beinin væri möndlumjólk góður kostur. Drykkurinn er bæði léttur og frískur og þeir sem hafa mjólkuróþol geta drukkið hann með góðri samvisku.
Perur eru trefjaríkar og fullar af C og K vítamínum. Fæstir vita að perur er sá ávöxtur sem veldur hvað minnsta fæðuofnæmi af öllum ávöxtum. Þess vegna er hann talinn hentugur ávöxtur fyrir ungabörn. Í nektarínum er mikið af A vítamíni og í bönunum er einnig A vítamín sem og Kalíum (enska: Potassium) sem er mikilvægt í baráttu við of háan blóðþrýsting. Mikið er af steinefnum í bæði perum og nektarínum og þessir ávextir innihalda einnig járn og kalk ásamt því að virka hreinsandi á innvolsið í okkur. Þessi drykkur er hreinlega yfirfullur af vítamínum og hollustu!!
Þessi safi er afar hreinsandi og vítamínríkur þar sem perur innihalda helling af c vítamíni. Til dæmis inniheldur ein pera 11% af ráðlögðum dagskammti af c vítamíni ásamt álíka af kopar. Perur innihalda einnig mikið af trefjum (þó aðallega í hýðinu) sem og andoxunarefnum. Engiferið er gott fyrir meltinguna og sumir segja engifer hafi bólgueyðandi áhrif hjá þeim sem hafa gigt. Það er einnig talið hafa hamlandi áhrif gegn krabbameinsfrumum. Engifer er líka mjög gott fyrir ónæmiskerfið og hjálpar okkur þegar við erum með kvef og hálsbólgu. Það er að lokum afar gott fyrir þá sem þjást af ógleði, t.d. ófrískar konur. Sem sagt algjör galdradrykkur og er einstaklega frísklegur og góður.
Frábær morgundrykkur, mátulega sætur og afar saðsamur. Gefið ykkur nokkra tíma fyrirvara áður en þið gerið drykkinn því það er gott að mýkja pistachiohneturnar upp í vatni.
Þessi drykkur er mjög próteinríkur og hollur fyrir hjartað sem og beinin. Upplagður að morgni eftir ræktina, sérstaklega fyrir þá sem vilja ekki neinar mjólkurvörur. Best er að nota góða matvinnsluvél eða kryddmalara til að hneturnar malist sem best því þannig er drykkurinn bestur. Drykkurinn inniheldur nokkuð mikla fitu svo það er ágætt að drekka hann ekki á hverjum morgni en einnig getur maður líka minnkað skammtinn og drukkið minna í einu! Hafið þó í huga að fitan er holl þ.e. hún samanstendur af einómettuðu fitusýrum sem eru góðar fyrir hjarta og æðar.
Ég veit að drykkurinn lítur ekki sérstaklega girnilega út svona ljósbrúnn en trúið mér...hann er dásamlega góður og fyrirgefst alveg ljótleikinn. Drykkurinn er ofurhollur, fullur af trefjum, C vítamíni, andoxunerefnum o.fl. Einnig er hann góður fyrir blóðrás og hjartað. Rabarbari á að minnka hættu á myndun krabbameinsfruma og á að vera góður við bólgum í liðum, ofnæmum og til að lækka háan blóðþrýsting. Drykkurinn er mildur, sætur og passar eiginlega á hvaða tíma dags sem er, fínn að morgni en líka góður eftir vinnu eða ræktina. Það má sleppa því að sjóða döðlur og rabarbara og láta döðlurnar liggja í bleyti í sólarhring og mauka svo vel með rabarbaranum.
Elva vinkona mín lagði til að ég prófaði þennan drykk en hann er úr bókinni Innocent Smoothie Recipe Book sem ég held mikið upp á. Við eigum báðar bókina en ég hafði aldrei prófað drykkinn. Þegar Elva gaf mér svo fullt af rabarbara gat ég ekki annað en prófað og sá ekki eftir því enda er drykkurinn ferskur og bragðgóður. Hann er líka meinhollur, fullur af A og C vítamínum, trefjum, andoxunarefnum o.fl. Jarðarber eru einnig svo góð fyrir heilsu augnanna og þau eiga einnig að hjálpa til við að sporna gegn gigt. Ég útbjó uppskriftina nánast alveg eftir þeirri upprunalegu en notaði agavesíróp í stað hunangs (því ég átti ekki hunang). Uppskriftin gaf einnig upp eplasafa úr safapressu en ég notaði lífrænt framleiddan eplasafa í staðinn.
Nammi nammi. Það er fátt betra en hristingur (sjeik) á heitum sumardegi og þá er ég auðvitað að meina hollur hristingur. Sá hristingur sem þið getið keypt í ísbúðum og þess háttar (eða skyndibitastöðum) er hlaðinn sykri og fitu og maður ætti að forðast í lengstu lög að láta slíkt ofan í sig. Oft innihalda þeir fleiri hitaeiningar, sykur og fitu en nokkuð annað á matseðlinum. Þessi rabarbara- og jarðarberjahristingur er aftur á móti afar hollur og góður og inniheldur einómettaðar fitusýrur, trefjar, C vítamín og andoxunarefni. Athugið að leggja þarf cashewhneturnar í bleyti í sólarhring áður en hristingurinn er búinn til svo gefið ykkur góðan tíma. Það þarf 250 gr af ísnum fyrir hristinginn svo ef þið eigið hann til er nóg að bæta bara mjólkinni út í.
Þessi er stútfullur af vítamínum og hollustu. Rauðrófur eru fullar af járni og gulrætur eru yfirfullar af A vítamíni (Beta Carotene) ásamt B1, B3, B6, fólinsýrum og Kalíum (Potassium), járni og svo mætti lengi telja. Gulrætur örva meltinguna og virka einnig hreinsandi á innvolsið í okkur. Sama má segja um engiferið og peruna. Eplið er nú bara til að geta sagt "epli á dag kemur heilsunni í lag" en það er samt voða gott í þennan safa! Hægt er að útbúa drykkinn án þess að eiga safapressu (kaupa þá rauðrófusafa, gulrótarsafa, eplasafa, perusafa og mauka engiferið sjálfur t.d. í matvinnsluvél) en alltaf er best að pressa ávextina sjálfur.
Ég fann þessa uppskrift aftan á einum drykk sem ég keypti frá Innocent hér í London og var einmitt detox drykkur. Þetta er eitt af mínum uppáhalds fyrirtækjum þ.e. þeir framleiða aðallega drykki og djúsa og eru umhverfisvænir, nota aðeins 100% lífrænt framleitt og ræktað hráefni, skipta ekki við framleiðendur sem eru siðferðilega ekki í lagi (t.d. að nota börn í þrælavinnu, láta fólk vinna á eitruðum ökrum o.s.frv.) svo ég kaupi vörur frá þeim með glöðu geði. Ef þið eruð á ferð í Bretlandi svipist þá um eftir þessum vörum. Þessi drykkur er svo sannarlega hollur því hann er pakkfullur af vítamínum. Rauðrófur innihalda náttúrulega litarefnið betacyanin sem hjálpa til við að sporna gegn krabbameini (sérstaklega ristilkrabbameini), hjartasjúkdómum og innihalda B vítamínið fólin sem er gott fyrir ófrískar konur að neyta því það hjálpar til við eðlilegan þroska fósturs. Þennan safa má gera í safapressu en einnig má kaupa alla safana í drykkinn og búa hann til þannig ef maður á ekki safapressu. Ég miða uppskriftina við blandara. Rauðrófusafa má yfirleitt finna í heilsuvörubúðum.
Þessi kemur beint af beljunni svo að segja eða réttara sagt úr bókinni Innocent smoothie recipe book: 57 1/2 recipes from our kitchen to yours. Þessi bók er ein af mínum uppáhaldsbókum. Þessi drykkur er bara hollusta út í eitt. Eitt svona glas á morgnana er góð byrjun á góðum degi. Rauðrófur eru fullar af járni og gulrætur innihalda A vítamín (Beta Carotene) ásamt B1, B3, B6, fólinsýrur og Kalíum (Potassium), járn og margt fleira gott fyrir okkur. Sellerí inniheldur mikið af K og C vítamínum sem hjálpa til við upptöku járnsins. Sellerí inniheldur líka efnið phalides sem er talið hjálpa til við að lækka blóðfitu og coumarins sem á að vera gagnlegt til að sporna við krabbameini. Það er svo mikið járn í drykknum að ef Drakúla væri grænmetisæta myndi hann sennilega drekka þennan safa (uppskriftin er samt ekki frá honum). Þennan safa er best að gera með safapressu þar sem erfitt er að fá hreinan sellerísafa. Annan safa í uppskriftinni er hægt að kaupa í heilsubúðum.
Þetta te fékk ég á Zanzibar. Þar fórum ég og Jóhannes að skoða kryddskóg, svonefndur af því að í honum vaxa kryddjurtir eins og negull, kanill, kardimommur, vanilla, pipar, sítrónugras, turmeric, múskat og margt, margt fleira. Það eru nokkrir svona um Zanzibar ásamt kaffiskógum sem við skoðuðum líka. Að vera í svona kryddskógi er eins og að vera í ævintýri og maður trúir því varla að maður sé að horfa á vanillujurtina eða að maður hafi óþroskaða negulnagla í höndunum, að klóra börkinn af kaniltrénu o.s.frv. Maður nuddar blöðum kryddjurtanna á milli fingranna og búmm...kryddlyktin stígur upp eins og fyrir galdur. Í tæpum 40 stigum og steikjandi sól er ekkert skrýtið þó að skógurinn angi eins og kryddbúð. Dásamlegt. Í þessum skógi býr fólk sem vinnur við að rækta kryddplöntur og selja. Við vorum með leiðsögumann með okkur sem sýndi okkur alla töfra kryddanna og þegar við vorum alveg að verða búin í kryddferðinni (sem tók alveg 2 tíma) þá fór hann með okkur í hús þar sem kona kom með heitan vökva í bolla (bollann sem þið sjáið á myndinni). Fyrst fannst mér skrýtið að drekka heitan vökva í þessum hita en af því að við vorum farin að venjast hitanum vel eftir 3ja vikna veru í Afríku þá var þetta allt í lagi og meira en það. Drykkurinn var dásamlega ferskur. Aðeins heitt vatn, sítrónugras og hrásykur (ég nota agave síróp). Þennan drykk á ég eftir að gera oft, ekki síst á veturna.
Í rúmlega 40 stiga sátum við Jóhannes ásamt fleira fólki á Ginger sem er veitingastaður í bænum Jinja. Jinja er alveg við upptök Nílar í Uganda, þar sem Níl byrjar og Viktoríuvatn endar. Við vorum að bráðna, það var nánast óbærilegur hiti og við vorum að borða hádegismatinn á heitasta tíma dagsins. Maturinn á Ginger var frábær, meiriháttar blanda af afrískum og evrópskum mat og matseðillinn sérstakur. Það var eitt á matseðlinum sem vakti athygli okkar allra (svona miðað við ástandið á okkur) og það var Tropical Cooler. Í drykknum var meðal annars ísmolar, ananas (í Uganda er besti ananas í heimi) og kókosvatn. Okkur var lofað að ísmolarnir væru öruggir (þ.e. vatnið hreint) og að drykkurinn væri ÍSkaldur. Það var svo sannarlega tónlist í okkar eyrum. Eftir smástund komu þjónarnir með heila hrúgu af drykkjum á borðið okkar og þetta var svo sannarlega svalandi, suðrænt og frábært. Ekki skemmir fyrir að drykkurinn er afar hollur og vítamínríkur. Kókosvatn (vatnið úr óþroskaðri kókoshnetu inniheldur enga fitu, er hitaeiningasnautt en inniheldur kalk, magnesíum, potassíum og fleira sem er gott fyrir bein og taugar. Vissuð þið að vatn úr óþroskuðum kókoshnetum hefur verið notað í blóðgjafir t.d. í Afríku þar sem kókosvatnið er víst sambærilegur blóðvökvanum í okkur J Að drekka kókosvatn virkar á suma eins og að fá blóð beint í æð! Sem sagt…ef ég væri vampíra en samt grænmetisæta…myndi ég sennilega drekka kókosvatn he he.
Ég gleymi aldrei þegar við komum til Mombasa vorið 2006 í kæfandi hita og fengum ískaldan melónudrykk í glasi þegar við komum á hótelið okkar. Nammmmmm. Það er fátt meira hressandi í sumarhita. Ananasinn inniheldur mikilvæg ensím fyrir meltinguna og vatnsmelónur eru fullar af C vítamínum. Hreinsandi og nærandi drykkur og afar svalandi.
Þessi er einstaklega vítamínríkur og hressandi. Í spergilkáli (brokkolíi) er mikið af C og K sem og A vítamínum. Spergilkál er líka járnríkt og hefur verið sýnt fram á að það berst kröftuglega gegn myndun krabbameins. Einnig er spergilkál trefjaríkt. Drykkurinn ber einungis keim af spergilkálsbragði svo það er afar sniðugt að bjóða krökkum upp á þennan drykk til að koma í þeim vítamínum! Hann er mildur en samt hæfilega sætur. Perur og epli eru einnig sjaldan ofnæmisvaldar svo drykkurinn hentar vel ungum börnum (segið þeim bara að hann heiti "risaeðludrykkur"!!). Nauðsynlegt er að eiga safapressu fyrir þennan drykk.
Þessi er heldur betur upplagður fyrir krakka. Litirnir eru svo skemmtilegir og ef maður hrærir í drykknum þá verða litirnir eins og í töfradrykk. Fullur af vítamínum og andoxunarefnum ásamt kalki úr mjólkinni.
Þessi hristingur er jafn ótrúlega góður og hann er einfaldur. Upplagður á heitum sumardegi í staðinn fyrir að fara í ísbúðina, og milljón sinnum hollari líka. Ég þarf þó að viðurkenna að bíómjólkin inniheldur sætuefni en ég lofa því að það eru aðeins tvær uppskriftir á vefnum mínum sem innihalda sætuefni og það er vegna þess að ég nota vanillubíómjólk í báðar uppskriftirnar. Það er nefnilega ekki til hrein bíómjólk en ég hefði notað hana í staðinn fyrir þessa með vanillubragðinu (og sett vanilluduft sjálf) því ég jú alltaf hreinar afurðir frekar en þær sem eru með tilbúnu bragði. Ég mæli ALLS ekki með því að nota sætuefni en ég geri stundum undantekningu BARA með vanillubíómjólk (ok svona 2var á ári...thats it, búin að skripta).
Þetta salat er frískandi og sumarlegt og alveg frábært til að bera fram sem öðruvísi salat hvort sem þið berið fram hefðbundið grænt salat líka eða ekki. Stundum er gaman að breyta til, sérstaklega á sumrin! Uppskriftin er úr frábærri bók sem ég hef átt í mörg ár og heitir North African Cooking.
Ef þessir bitar koma ykkur ekki upp síðustu metrana á fjallinu þá veit ég ekki hvað gerir það. Stútfullir af próteinum, flóknum kolvetnum, hollri fitu og meira að segja kalki! Þetta er líka gott og hollt nesti í vinnuna svona þegar maður er orðinn svangur og langar í eitthvað í sætari kantinum þegar líða fer á daginn. Mér finnst þessir algjört æði.
Þessi uppskrift er auðveld í undirbúningi því mest af hráefninu fer í matvinnsluvél. Uppskriftin er líka mjög holl því í túnfisknum eru Omega 3 fitusýrur sem hjálpa til að sporna við hjartasjúkdómum. Einnig eru túnfiskur og kjúklingabaunir ríkar af E vítamíni sem eru sterk andoxunarefni og hjálpa til við að sporna t.d. við krabbameini, hjartasjúkdómum og ýmsu öðru. Það er sniðugt að búa til tvöfaldan skammt og frysta rest því borgararnir geymast í um mánuð í frysti.
Þessi er fullkominn að hausti þegar maður getur notað fínu nýju kartöflurnar og ef maður býr svo vel að eiga blómkál úr garðinum þá er það sko ekki verra. Súpan er mild og fín, afar mögur þannig að hún hentar vel fólki sem vill létta máltíð en seðjandi. Mér finnst rosalega gott að setja smávegis af rifnum osti og jafnvel rifnum parmesan út í til að fá meira bragð en það er allt eftir smekk hvers og eins auðvitað. Ég veit fátt betra á köldum haustdegi en að borða súpu úr fersku, nýuppteknu grænmeti. Þessi uppskrift kemur upprunalega úr litlum ítölskum bæklingi en ég er aðeins búin að breyta henni þó og gera hana hollari.
Þetta er svoooo, svoooo, svoooo gott og ekki versnar það með vel þroskuðu avacado söxuðu ofan á tómatana. Namm. Ítalir myndu sennilega fórna höndum yfir þessari útgáfu af bruschetta (brúsketta), með heimabökuðu speltsnittubrauði en mér er alveg sama he he. Fyrir þá sem vilja vera voða ítalskir þarf að kaupa venjulegt snittubrauð en þetta dugar allavega vel fyrir mig. Það sem er svo frábært við bruschetta er að það er einfalt, yfirþyrmandi hollt (tómatar, extra virgin ólífuolía, hvítlaukur) og svo hressandi. Það er sko ekkert skrýtið að Ítalir lifi svona lengi! Bruschetta er upplagt sem létt snarl eða forréttur en við borðum það reyndar oft sem léttan kvöldmat líka....bara nógu mikið af því..enda erfitt að hætta!
Ef Jóhannes fær að ráða hvað eigi að vera í matinn (hann fær stundum að ráða) þá segir hann án undantekningar "bara Borritos!!" :) Honum finnst þessi réttur sem sagt verulega góður og svipurinn á honum þegar hann borðar hann er alveg þess virði. Þetta er voða einfalt og gott svo sem og ég geri alltaf tvöfaldan skammt svo ég geti haft hann í matinn daginn eftir líka (þá er best að gera allt tilbúið og geyma vefjurnar sem þið ætlið ekki ða nota í kæli, óhitaðar).
Þessi réttur er rosa góður. Hver man ekki eftir pönnukökunum á Cafe París eða á Nýja Kökuhúsinu!! Þessar eru ekkert ósvipaðar nema það er ekkert smjörbragð af grjónunum og sinnepssósan er mjög fitulítil. Ég nota magran ost líka. Þegar ég geri venjulegar pönnsur geri ég aðeins fleiri en ég þarf og nota svo í þennan rétt (sleppi þá vanilludropunum og kaffinu). Þegar grjónablandan er svo tilbúin set ég blönduna í hverja pönnuköku og baka aðeins inn í ofni. Pönnsurnar verða aðeins stökkar en mér finnst það bara ekkert verra.
Frábær í skólann, ræktina, vinnuna, gönguna. Allsherjar orkubiti!
Þessi súpa er voðalega einföld og þægileg, upplögð svona í miðri viku. Ég veit aldrei hvað ég á að hafa með súpunni (væri örugglega best að hafa "prawn-crackers" en ég myndi frekar borða málningu heldur en að borða það ógeð, hvoru tveggja stíflar æðarnar sennilega jafnmikið). En allavega, þessi súpa er holl, próteinrík og góð og upplögð í forrétt ef þið eruð með austurlenska veislu á borðum. Hún er líka mjög ódýr og heppileg ef buddan er ekki þung.
Þetta er frekar einfaldur indverskur fiskiréttur. Goa er eyja rétt við utan Indland sem að Portúgalar réðu einu sinni yfir. Það skiptir svo sem engu máli, rétturinn er fínn og hollur. Ekki láta hráefnið hræða ykkur en best er að nálgast þau í austurlenskum matvörubúðum. Ef þið finnið ekki curry leaves er best að sleppa þeim (það kemur ekkert annað í staðinn). Ef þið finnið ekki cuminfræ og corianderfræ má nota malaðar útgáfur af fræjunum. Ef þið eruð viðkvæm fyrir chilli, skuluð þið bara nota einn í staðinn fyrir þrjá.
Þessa uppskrift smakkaði ég fyrst á námskeiði hjá Sólveigu á Grænum kosti. Þetta er mjög saðsamur matur en hollur og góður þar sem í honum eru t.d. hnetur, tófú, grænmeti o.fl. Uppskriftin birtist nánast eins og ég fékk hana en ég breytti bara smá. Ég reyndi þó að taka fram hvar ég breytti henni svo að upprunalega uppskriftin komi fram líka.
Hljómar fáránlega kannski en er alveg jafn fáránlega gott! Þessi réttur er hið fullkomna snarl í miðri viku því hann er fljótlegur og einfaldur og kostar heldur ekki mikið. Hann er líka upplagður fyrir krakka bæði að búa til og borða því flestir krakkar elska tómatsósu! Þetta er líka fín leið til að koma C vítamínum ofan í kroppinn bæði á börnum jafnt sem fullorðnum. Í tómötum eru líka andoxunarefni sem eru nauðsynleg svona í skammdeginu (og reyndar alltaf). Þessi réttur er afrískur þó ótrúlegt megi virðast en hann er úr bókinni Safari Kitchen sem ég held mikið upp á. Ég get ekki lagt nógu mikla áherslu á það að nota ekki venjulega tómatsósu.....hún er mjög óholl. Ég nota tómatsósuna frá Himneskri hollustu og hún er alveg svakalega góð. Þið getið notað hana eða einhverja aðra sem ykkur líst vel á og er án aukaefna, bragðefna, sykurs eða annars sem skemmir fyrir okkur. Þetta brauð er líka æðislegt sem forréttur. Diskinn á myndinni keypti ég í Stone Town, Zanzibar í rykugri antíkbúð. Diskurinn er meira en 100 ára gamall og á hann eru rituð 4 nöfn af 99 nöfnum Allah. Konan tók af mér loforð um að ég myndi ekki nota diskinn sem öskubaska. Ég var fljót að lofa henni því (enda nákvæmlega ekkert heimskulegra en að reykja sígarettur). Diskurinn er yfirleitt notaður í húsum fólks til að draga fram meiri gæfu o.s.frv. Ég verð bara að vona að gamla konan sé sátt við að diskurinn sé notaður undir grillaða brauðið mitt.
Það er voðalega freistandi fyrir marga að leggjast í snakkát um helgar..fá sér tortillaflögur með quacamole og salsa! Það er svo sem skiljanlegt að fólk vilji gera vel við sig öðru hvoru en málið er að við erum ekki að hugsa vel um okkur þegar við kaupum quacamole, salsa og kartöfluflögur út í búð... Það er mikið af fitu, sykri, aukaefnum, bragðefnum, bindiefnum o.fl. í þessarri samsetningu (svona yfirleitt) og afleiðingin er oft líkamleg vanlíðan (eftir á) og andleg (fyrir suma!). Þetta er holl útgáfa af slíkum mat, með heimatilbúnu guacamole og salsa. Það eru engin aukaefni, enginn hvítur sykur og ekkert rugl.... Þetta er alveg svakalega léttur matur og sérlega hollur. Eins og þið sjáið hérna fyrir neðan er matseldin ekki flókin og innihaldslýsingin ekki löng bara kartöflur, smá olía og salt!
Heitið á uppskriftinni ætti eiginlega að vera "Grjónagrauturinn hans Jóhannesar..en mín uppskrift er samt betri". Málið er að Jóhannes kunni að elda grjónagraut þegar við byrjuðum að búa (en ég ekki því ég kunni ekki einu sinni að sjóða pasta) og þetta var eitt af því sem ég bað hann um að elda. Við skiptumst algjörlega í tvennt með blessaða grjónagrautinn. Grjónagrautur eru eins og trúarbrögð. Ég vil ALLS ekki hafa rúsínur í hafragraut, finnst það ekkert gott en Jóhannes var alinn upp við það og stendur gallharður á sínu. Ég vil hafa mjólkina vel fljótandi yfir og ég vil að mjólkin sé sjóðandi heit. Hann vill hafa grautinn hnausþykkan og svo setur hann kalda mjólk út á. Það er gjörsamlega allt rangt við hans útgáfu af grjónagraut. Þetta er eiginlega það eina sem við rífumst um..nokkurn tímann. Við rífumst aldrei en við getum röflað um grjónagraut út í eitt. Jóhannes er með uppskriftina sína alltaf á hreinu því hann eldaði svo oft grjónagraut heima hjá sér og ég verð að viðurkenna að það er fátt betra en heitur grjónagrautur á köldum vetrardegi (mín útgáfa auðvitað), það er BARA best. Það endar alltaf á því að við þurfum að sjóða grautinn í 2 pottum en þetta hefst allt að lokum og við brosum bæði út að eyrum með skál af rjúkandi grjónagraut í tveimur útgáfum. Ég nota brún hrísgrjón fyrir hollari útgáfu af grjónagraut (annars eru yfirleitt notuð hvít í grjónagraut) og það má auðvitað nota hýðishrísgrjón líka en þau eru jú aðeins grófari og þurfa lengri suðu.
Þessir klattar eru komnir frá konu að nafni Sigga Rúna en var send mér af Lísu sem á uppskriftina að Frönsku súkkulaðikökunni hér á vefnum. Ég fékk að birta uppskriftina enda alveg stórgóð og auðveld og mjög 2009 þ.e. ódýr, sannkallaðir Kreppuklattar!! Þetta er einstaklega góð aðferð við að drýgja grautarafganga t.d. af hafragraut eða grjónagraut. Ef nota á uppskriftina sem brauð setur maður aðeins 1 tsk af agavesírópi og sleppir vanilludropum en annars fylgir maður uppskriftinni hér fyrir neðan. Þessi uppskrift virðist laða að sér bæði tví- og ferfætlinga því einu sinni þegar Lísa var að baka klattana kom þar aðvífandi hundahópur (tík með hvolpa) og hreinlega lagðist á gluggana. Uppskriftin laðar gjarnan að sér tvífætlinga í formi svangra gesta líka sem og eiginmanna hef ég tekið eftir. Við Lísa breyttum aðeins uppskriftinni (tókum út smjör, notum 1 eggjahvítu en ekki rauðuna) og ég nota sojamjólk í stað undanrennu. Hugmyndina á þó Sigga Rúna og ég þakka henni fyrir að fá að birta uppskriftina og Lísu fyrir að senda mér uppskriftina. Tillögurnar hér að neðan eru okkar Lísu en ég efast ekki um að Sigga Rúna hafi hugsað um svipaðar samasetningar.
Hafragraut er nú óþarft að kynna. Hann er einfaldur, saðsamur, fullur af hollri og góðri orku og er eitt besta bensín sem maður getur fengið fyrir daginn. Maður getur bætt út á grautinn brytjuðum, þurrkuðum eða ferskum ávöxtum, kanil, hlynsírópi og svo mætti endalaust telja. Besti hafragrautur sem ég hef smakkað var í hálöndum skotlands sumarið 2006. Mitt í fjallendinu (tók 8 tíma með lest þangað frá London) var vin í eyðimörk, smá lestarstopp í Corrour (þar sem Trainspotting myndin var tekin), ég var svöng, mér var ískalt og rétt áður en við lögðum stað í gönguna fékk ég mér fulla skál af hafragraut við opinn arineld. Grauturinn var æði, enda eru Skotar þekktir fyrir hafragrautana sína. Það besta var að hann var búinn til í pottinum hjá Beth sem sá um staðinn og hann var búinn til með umhyggju og aðeins besta fáanlega hráefni. Hafragrauturinn dugði mér vel upp í fjallshlíðina enda er hann eins og áður segir frábært bensín.
Þetta er uppskrift, tekin nánast beint frá Deliu Smith. Hún var "prófuð" á Jóhannesi og mömmu hans, Sigrúnu Sig. þar sem við bjuggum í Harrow (Bretlandi) 2002. Þau lifðu bæði af og kvörtuðu ekki svo mikið svo ég ákvað að setja uppskriftina inn. Það er smá dútl við uppskriftina svo það hentar vel að búa hana til t.d. á laugardagskvöldi.
Það er eitthvað alveg stórkostlegt við að búa til sitt eigið hnetusmjör og um leið spara helling af peningum. Jóhannes borðar mikið af hnetusmjöri (hann borðar ekki kaldan ost (aðeins bræddan) og vantar því oft álegg ofan á brauð o.fl.). Hnetusmjör hentar honum líka vel því það er prótein í því, holl fita og er því ákaflega seðjandi. Hnetusmjör passar líka bara í svo margt. Alls kyns drykki, til ísgerðar, í smákökur, ofan á brauð og margt fleira. Hnetusmjör er líka hollt (í hóflegu magni auðvitað) og ég tala nú ekki um ef maður hleður ekki í það sykri, hellings salti o.fl. eins og í sumu keyptu hnetusmjöri. Jarðhnetur innihalda helling af manganese og eru góðar fyrir hjarta, geta hindrað myndun gallsteina, eru góðar fyrir heilasellurnar og margt fleira. Það er minna en ekkert mál að búa svona hnetusmjör til heima hjá sér. Það eina sem þið þurfið er matvinnsluvél eða blandari. Ef þið eruð ekki með góðar græjur borgar sig að skipta magninu í tvennt og vinna með helminginn í einu. Eini gallinn við jarðhnetur er að margir hafa alvarlegt ofnæmi fyrir þeim (bráðaofnæmi), maður ætti því alltaf að fara varlega í að gefa ungum börnum jarðhnetur/hnetusmjör nema ef þið eruð viss um að þau þoli hneturnar. Vissuð þið að jarðhnetur tilheyra baunum (pea) en ekki hnetum! Athugið að ef þið kaupið saltaðar hnetur getið þið skolað saltið af þeim og bakað við 160°C í 10-12 mínútur.
Þetta poppkorn er alveg örugglega hollasta poppkorn sem þið getið búið til. Það er nauðsynlegt að eiga loftpoppvél (air popper) en þeir fást í flestum heimilistækjabúðum. Best er að kaupa þannig vél að hægt sé að poppa beint í skál. Svoleiðis græja kostar ekki mikið og er frábær fjárfesting. Svo þarf maður olíuúðabrúsa (ég blanda saman smá ólífuolíu og vatni. Svoleiðis fæst í t.d. Pipar og Salt og ég get lofað ykkur að það verður ein mest notaða græjan á heimilinu! Í 100 gr af venjulegu poppkorni sem keypt er geta verið um 400 hitaeiningar og allt að 40 grömm af fitu svona til viðbótar við saltið sem er svo mikið að það gæti hækkað blóðþrýstinginn í grjóti. Í þessu poppi er kannski 1 gramm af fitu, um 2 gr af salti (helmingurinn af því verður eftir í skálbrúnunum) og svona um 50-100 hitaeiningar. Ég ætla ekki einu sinni að nefna "bíópopp" á nafn (bannað á þessu heimili...það er eiginlega blótsyrði he he). Þetta poppkorn er líka sniðugt fyrir krakka því það er mun minna salt í þessu en venjulegu poppi.
Hörfræ eru alveg sérstaklega holl. Þau eru trefjarík og losa um þarna í pípulögninni á neðri hæðinni þannig að ekkert á að stíflast (hvernig getur maður útskýrt hægðir án þess að það hljómi fáránlega?)! Þess vegna eru hörfræ mikilvæg í baráttunni við að sporna gegn krabbameini t.d. í blöðruhálskirtli. Hörfræ eru líka stútfull af Omega 3 fitusýrum sem eru milvæg fyrir bein okkar, hjarta sem og í að sporna gegn of háum blóðþrýstingi(sérstaklega hjá karlmönnum). Fyrir konur á breytingaskeiðinu eru hörfræ gagnleg til að hamla gegn hitakófum. Eða svo er sagt. Þessar kexkökur eru frábærar í stað hefðbundinna brauðsneiða og eru kjörin tilbreyting þegar mann langar í eitthvað hollt en gott og saðsamt.
Kartöfluflögur.....algerlega fitulausar? Jábbs. Prófið bara sjálf. Þessar getið þið borðað fyrir framan sjónvarpið með góðri samvisku!! Ég veit ekkert hversu lengi þessar geymast því þær klárast alltaf á fyrstu 5 mínútum eftir að þær koma út úr ofninum! Ok það vantar djúsí fitubragðið en hverjum er ekki sama. Þessar má allavega borða svona hvunndags og geyma þessar óhollu þá fyrir nammidagana!!
Þessi uppskrift kemur upprunalega úr bók sem ég á sem heitir Delia’s Vegeterian Collection og er ein af uppáhalds uppskriftabókunum mínum. Ég er aðeins búin að breyta uppskriftinni með tímanum en meginuppistaðan er sú sama, kjúklingabaunir. Ég prófaði þessi buff í fyrsta skipti í útilegu! Ég var búin að hafa allt til og meira að segja búin að baka þau og svo hituðum við buffin bara á gasi í tjaldinu okkar undir Sólheimajökli. Það var skrýtinn svipur á lömbunum og mæðrum þeirra fyrir utan tjaldið og satt best að segja var ég mjög fegin því að vera ekki að grilla ættingja þeirra, ég hefði örugglega fengið martraðir og samviskubit. Ég borða hvort eð er ekki lambakjöt, finnst það hrikalega vont og JÁ ég er búin að fá allar heimsins útgáfur, lambalundir, læri, heilt, grillað, marinerað, soðið, hitað, steikt o.s.frv. Mér finnst það alltaf jafn vont og fólki finnst það alltaf jafn mikil landráð og reynir alltaf jafn mikið að sannfæra mig um að það SÉ í rauninni gott (þó mér finnist það ekki):) Svona er maður nú skrýtinn.
Þessir eru alveg svakalega fínir og alveg æðislegir eftir ræktina til að hjálpa vöðvunum aðeins til að stækka. Það er góð orka og holl fita í bitunum og þeir eru því upplagðir líka í skólann, í vinnuna, í gönguna o.s.frv. Gætið að því að börn ættu ekki að borða undanrennuduft (fyrir vaxtarrækt) nema í samráði við lækni eða næringarfræðing. Börn ættu því ekki að borða þessa bita. Það má líka auðvitað sleppa undanrennuduftinu!
Þetta salat þekkja eflaust margir sem hafa verið á Ítalíu og er líklega ein af ástæðunum fyrir því að Ítalir lifa svona lengi því það er nefnilega svo óskaplega hollt. Þetta er dásamlega einfalt, bragðgott og upplagt sem forréttur eða sem léttur hádegismatur með hvítlauksbrauði. Mér finnst rosa gott að nota avacado líka.
Hrikalega hollt og heimatilbúið fyrir utan að vera bæði ódýrara og betra en út úr búð (að mínu mati að minnsta kosti). Eftir langa leit að muesli sem ég gat hugsað mér að kaupa gafst ég upp og bjó til mína eigin útgáfu..ég þoli nefnilega ekki svona kusk og mulning í muesli og það verður að innihalda fullt af gómsætu dóti eins og þurrkuðum ávöxtum og hnetum, þoli ekki eitthvað rugl á morgnana, er nógu úrill fyrir he he. Pakkfullt af vítamínum og hollri fitu, þetta er gott bensín að morgni! Svona okkar á milli er þetta uppáhalds mueslið mitt.
Þetta er nú eiginlega engin uppskrift heldur frekar upptalning. Ég hef aldrei skilið þetta að kaupa sér rúsínur og hnetur í poka því maður getur gert svona blöndu heima hjá sér á innan við 5 mínútum. Svo er líka miklu ódýrara að útbúa svona nemendanasl heima heldur en að kaupa tilbúið nasl í búð. Fyrir utan það að með eigin nemendanasli getur maður blandað nákvæmlega því sem maður vill saman og þarf sem dæmi ekki að tína sykraða banana úr pokanum. Það er afar mikilvægt að námsfólk borði hollt snakk á meðan á lestri stendur og það er einmitt upplagt að borða einómettaðar fitusýrur eins og eru í hnetunum og ef þið eigið valhnetur er það ekki verra því þær eru súper hollar og innihalda omega 3 fitusýrur sem eru góðar fyrir heilasellurnar og allt hitt í líkamanum (æðar og hjarta o.fl.)! Þetta nemendanasl er próteinríkt, inniheldur holla fitu, náttúrulegan sykur úr þurrkuðum ávöxtum og fjölmörg vítamín auðvitað. Einnig er gott að henda út í blönduna svona eins og lúku af möndlum en þær eru auðvitað afar kalkríkar. Sem extra bónus fyrir góða frammistöðu á bókasafninu er súkkulaði í blöndunni en þið getið auðvitað sleppt því (ef þið hafið ekki verið nógu dugleg). Blandan hentar afar vel í prófunum (næg og góð orka) og hentar líka vel í ferðalög, göngur og nesti í vinnuna o.fl.
Verulega, verulega hollt, saðsamt, næringarríkt, fullt af vítamínum, hollri fitu og flóknum kolvetnum. Þetta er eldsneyti sem dugar manni vel yfir daginn, fullkomið í nestisboxið í skólann, vinnuna, í gönguna og í raun hvar sem er. Ég þarf ekki að taka fram að best er að nota lífrænt framleitt/ræktað hráefni. Það má sleppa kreminu en það gefur gott bragð og mótvægi við sætt innihaldið í kökunni. Bitarnir geymast vel í ísskáp í um 2 vikur. Kakan hentar vel fyrir þá sem hafa mjólkuróþol og eins fyrir þá sem eru jurtaætur (enska: vegan).
Ok þetta hljómar kannski pínu skrítið, pítu-pizzur en það sem málið snýst um er sko að nota pítubrauðin sem pizzubotna því það sparar tíma og fyrirhöfn svona þegar maður er að flýta sér. Ég fann þessa uppskrift í grænmetisbók sem Smári og Anna Stína (bróðir minn og konan hans) gáfu mér en þau eru mikið grænmetisfólk (hún er grænmetisæta) og góðir kokkar. Það er auðvitað betra að búa til sína eigin pizzubotna en svona í miðri viku, eftir vinnu þá finnst mér þetta góð lausn. Svo finnst mér líka sniðugt að geta búið til alls konar pizzur með lítilli fyrirhöfn þ.e. maður setur bara það sem maður vill ofan á hverja og eina!! Ef þið viljið búa til ykkar eigin pizzusósu þá er það bara frábært, margir eiga "sína" pizzusósu sem þeir nota alltaf. Ég hef keypt lífrænar pizzusósur sem eru mjög góðar. Upplagt er fyrir krakka að raða ofan á sínar eigin pizzur. Athugið að í pítubrauðum sem maður kaupir út í búð er yfirleitt ger.
Þessir bitar eru hið fullkomna nesti í bíltúrinn, gönguna eða vinnuna (svo lengi sem maður er ekki með hnetuofnæmi). Það má gera úr þessu stangir, stórar kúlur, kubba, litlar konfektkúlur nú eða bita. Dísætir, enginn sykur samt í þeim og fullir af próteinum og kalki, andoxunarefnum og hollri fitu. Það þarf enginn að fara í sjoppuna í þessum bíltúr, nammi namm. Um að gera að búa til helling og geyma innpakkaða í plasti í ísskápnum. Þeir geymast vel í 2-3 vikur.
Þessir bitar eru eingöngu hugsaðir fyrir þá sem eru að bæta á sig vöðvum eða eru í líkamsrækt og eru ekki hentugir fyrir t.d. börn eða þá sem hreyfa sig lítið. Þetta eru afar sniðugir próteinbitar með hnetum, flóknum kolvetnum og vítamínum ásamt undanrennudufti og henta vel fyrir þá sem eru að huga að því að stækka vöðvana. Þessir próteinbitar eru mun hollari en efnahernaðurinn sem maður kaupir út úr búð (próteinstangirnar).
Þetta krem er EINGÖNGU hugsað fyrir þá sem eru að bæta á sig vöðvum og ætti ekki að vera notað fyrir börn eða þá sem hreyfa sig lítið. Það er sem sagt ekki hugsað sem krem á kökur eða þess háttar heldur eingöngu fyrir þá sem eru á fullu í líkamsrækt.
Sesamfræ eru kalk- og próteinrík og valhnetur eru fullar af omega 3 fitusýrum sem eru svo góðar til að sporna gegn hjartasjúkdómum og of háum blóðþrýstingi og af því að líkaminn framleiðir ekki þessar mikilvægu fitusýrur er nauðsynlegt fyrir okkur að hjálpa honum aðeins með því að borða t.d. lúku af valhnetum öðru hvoru. Valhnetur hafa einnig þótt hjálpa einstaklingum með exem og önnur húðvandamál sem og fólki með asthma. Valhnetur innihalda einnig ellagic acid sem hjálpa til við að sporna gegn krabbameini en einnig styðja þær við ónæmiskerfið. Þessir bitar eru upplagðir þegar mann langar í eitthvað hollt en gott svona á milli mála. Mér finnst best að frysta bitana og borða þá nánast frosna. Það má einnig nota deigið sem kökubotn. Nota má sólblómafræ á móti sesamfræjunum.
Það er löng saga að segja frá þessum rétti og hvernig ég fékk "uppskrift" að honum. Það atvikaðist þannig að í september 2007 var ég stödd alein í Nairobi. Ég var að taka á móti ferðafólki morguninn eftir frá Íslandi sem voru á leið í safarí. Jóhannes var með annan hóp í Mombasa. Borgar bróðir minn hafði ætlað að redda fyrir mig hótelherbergi en var aðeins of seinn þannig að ég var eiginlega á vergangi sem er ekkert endilega sniðugt í Nairobi. Nú... bróðir minn þekkir marga í Afríku og Stephanie sem vinnur fyrir hann mundi að vinkona hennar býr einmitt í Nairobi, rétt fyrir utan eða í Karen hverfinu sem heitir eftir Karen Blixen og liggur rétt við þjóðgarð Nairobi (þar sem má finna fíla, ljón, nashyrninga og mörg fleiri dýr). Cornelius, innfæddi bílstjórinn minn sem var að rúnta með mig á glænýja, flotta Land Cruiser safaríbílnum hans Borgars fékk það verkefni að keyra mig til þessarrar konu. Ég vissi ekkert hvert ég var að fara (nema til Karen), hvernig húsið væri, hvort konan væri ein, hvort hún væri almennileg eða hvað. Það var farið að rökkva og Cornelius ákvað að stytta sér leið í Nairobi. Hann keyrði langt inn í eitthvað hverfi Nairobi og þar sátum við í umferðarteppu. Það fór að skyggja og Cornelius að ókyrrast aðeins í sætinu. Þarna eru ekki götuljós nema á stöku stað og alls staðar er verið að selja varning á götunni. Þegar líða tók á umferðarteppuna voru einhverjir pörupiltar farnir að horfa inn um bílgluggann og kalla Mzungu eitthvað....Ég veit hvað mzungu þýðir (hvít manneskja) en ég skildi ekki hitt. Ég spurði Cornelius að því en hann sagði bara "þú vilt ekki vita restina". Hann sagði mér að læsa bílhurðunum. Ekkert sérlega róandi svona í miðri Nairobi að vera á glæ, glænýjum rándýrum safaríjeppa þegar skyggja tekur. Það var eftir klukkutíma, í umferðarteppunni sem ég áttaði mig á því að ég hafði ekki séð eina einustu hvíta manneskju allan þennan tíma í teppunni. Það er mjög óvenjulegt í Nairobi þar sem margir stunda viðskipti frá öllum heimshornum.
Við fáum okkur stundum alveg bláspari, samloku (chiabatta) á Starbucks. Þetta er svo sem enginn hollustumatur enda fáum við okkur afskaplega sjaldan mat á kaffihúsum, bæði dýrt og óhollt!! Þessi samloka hérna að neðan er svona hollari útgáfa af Starbucks samlokunni. Athugið að ég nota annað hvort speltpítubrauð eða grófa brauðhleifa en hægt er að nota alls kyns brauð. Þeir sem þola ekki ger þurfa að vara sig á pítubrauðum og keyptum brauðum nema þau séu merkt gerlaus. Ég nota fitusnautt majones og fitusnauðan mozarella eða magran, venjulegan ost.
Þetta er nú varla uppskrift því aðferðin er svo einföld að það er næstum því hlægilegt. Inniheldur einungis sætar kartöflur. Nákvæmlega ekkert annað. Þetta meðlæti hef ég fengið hjá Smára bróður og Önnu Stínu konunni hans. Ég hafði notað sætar kartöflur í mat áður en aldrei prófað að baka þær beint í ofni eins og þau gera. Þetta er alveg sjúklega gott og maður endar oft á því að borða þessar kartöflur bara sem snakk, mjög erfitt að hætta. Þær eru svo sætar að það lekur stundum úr þeim eins konar síróp við baksturinn (enda er sterkjan stundum notuð sem náttúrulegt sætuefni). Sætar kartöflur eru brúnbleikar á lit, oft ílangar og er hægt að finna þær í grænmetisdeildum í flestum matvörubúðum. Kartöflurnar þarf ekki að skola né skræla bara skera þær í báta og inn í ofn.
Þessi uppskrift er bara býsna góð, tófú og kartöflur er bragðlaust í sjálfu sér, en allt kryddið bætir það upp. Ég hef ekki prófað það, en ég gæti trúað að þessir borgarar væru góðir sem "hamborgarar", þ.e. í brauði með öllu saman.
Ég hef lengi átt þessa uppskrift en ekki birt hana fyrr en nú því ég er alltaf aðeins að breyta henni. Hún er núna orðin fín að mér finnst. Ég er þó ekki sérstaklega klár í að gera tortilla kökur þunnar og flottar en það skiptir engu því þær eru bragðgóðar. Svo eru þær afskaplega fljótlegar svona þegar maður er búinn að fletja þær út. Þær verða tilbúnar á nokkrum mínútum eftir það. Spelti passar afar vel í uppskriftina en ég hef líka notað rúgmjöl. Ég nota alltaf gróft spelti en það má gjarnan nota fínt líka ef ykkur finnst það betra. Ég hef líka notað ljós hörfræ í staðinn fyrir sesamfræ (eða með) og það er líka gott. Þá mala ég hörfræin aðeins fyrst í blandara. Ég hætti að kaupa tortilla kökur úr búð fyrir langa löngu síðan því þær eru frekar óspennandi og þar fyrir utan rándýrar og með fullt af alls kyns aukaefnum og sykri. Ekki minn tebolli eins og Bretarnir myndu segja. Hægt er að frysta bakaðar tortilla kökur og eiga í frystinum. Það flýtir mikið fyrir manni og bara um að gera að baka nógu mikið þegar maður hefur loksins tíma til! Tortilla kökurnar eru frábærar með t.d. hummus, alls kyns niðurskornu grænmeti, pottréttum o.fl. og þær eru líka frábærar í nestið, í garðveisluna og útileguna. Það er kannski svolítið mikið af kókosolíu í uppskriftinni en mér gengur illa að fletja þær út annars og magnið er heldur ekki svo mikið miðað við 3 bolla af spelti. Ég næ 10 tortilla kökum úr uppskriftinni en ef þið getið flatt kökurnar þynnra út, náið þið auðvitað fleirum.
Þessi uppskrift er eiginlega hugmyndin hans Jóhannesar. Við höfðum oft keypt tilbúinn útilegumat sem maður setur vatn út í en eftir að hafa lesið innihaldslýsingar er ég hætt því, ekkert nema hert fita, litarefni og bragðefni. Ekki það sem maður vill borða í íslensku náttúrunni þar sem allt er svo hreint og tært. Það passar eiginlega ekki. Þar sem Jóhannes er svo mikill núðlukarl, datt honum í hug að gott væri að setja núðlur í poka ásamt kryddi sem væri svo hægt að hita upp í potti. Ég lagði aðeins hausinn í bleyti og mér datt í hug að taka með mér hollar pakkasúpur (keypt í Yggdrasli). Það var brilliant því við suðum súpuna, skelltum núðlunum út í og létum malla í um 7 mínútur. Þetta var frábær matur og ótrúlega einfaldur. Rétturinn var eldaður á litlum gas prímusi sem er ætlaður fyrir bakpokaferði (einfaldur og ódýr) svo maður þarf ekki að vera búinn dýrum og stórum græjum. Þennan núðlurétt prófuðum við fyrst á Síldarmannagötum í Hvalfirði, sumarið 2006. Það var svalt veður, við vorum búin að tjalda og ég að krókna úr kulda og ég var ekki lítið ánægð með að fá hlýju í kroppinn.
Frábær máltíð sem maður myndi ekki einu sinni vera óánægður með á fínasta veitingahúsi en úti í náttúrunni, uppi á fjalli með fallegt útsýni, við sætan læk í góðu veðri er bara ekkert betra!
Þessar vefjur fengum við á miðbaug í Uganda. Ef þið eigið leið hjá, endilega gefið ykkur tíma til að stoppa á miðbaug og smakka það sem þeir eru að bjóða upp á t.d. bananasmoothie, risamöffins (þeir stærstu sem ég hef séð á ævinni) og tortilla með guacamole svo fátt eitt sé nefnt. Einnig er góð minjagripaverslun á staðnum sem og fín hilla með áhugaverðum bókum. Allt er þetta til styrktar eyðnismituðum, munaðarlausum börnum. Það sem ég pantaði mér var vefja með avacadomauki og rifnum gulrótum og það var alveg svakalega gott og seðjandi. Þessar eru fínar í nestið eða bara sem léttur hádegismatur.
Þessi réttur er svo hollur og svo einfaldur að það er hálf asnalegt að borða hann ekki oftar! Það sem er líka æðislegt við hann er að maður getur búið til heilan helling og borðað í 2 daga eða haft með sér í nesti. Nammi namm. Þetta er hinn fullkomni föstudagsmatur.
Þessi réttur fylgdi með spínatréttinum úr dularfulla húsinu í skóginum í Nairobi. Mjög einfaldur réttur sem hentar vel sem meðlæti. Upplagður þegar grasker eru komin á kreik í október og nóvember.
Þetta salat fékk ég fyrst í Naivasha sem er í Kenya, fyrir norðan Nairobi. Rauðrófur eru frekar mikið notaðar í Kenya og ananas er notaður í allt enda vex þessi frábæri ávöxtur víða í Kenya. Þegar ég sá þetta salat fyrst þá horfði ég á það og velti vöngum yfir því hvort ég ætti að prófa eða ekki. Ákvað svo að salat sem væri svona fallegt á litinn ætti skilið að vera smakkað. Ég sá ekki eftir því, salatið var afar bragðgott og skemmtilegt ekki síst af því áferðin á rauðrófum og ananas er svo ólík. Salatið er sérlega hollt og gott, vítamínríkt, járnríkt og gott fyrir meltinguna. Salatið má borða sem meðlæti eða í nesti eitt og sér. Manni þarf að þykja rauðrófur góðar til að geta borðað salatið en ég er heppin því ég elska rauðrófur!
Þessi rjómi er sniðugur fyrir þá sem þola ekki mjólkurvörur eða soyarjóma en vilja samt gera vel við sig t.d. á tyllidögum. Þetta er mjög hollur rjómi þar sem cashewhnetur innihalda minni fitu en aðrar hnetur. 75% af fitunni í cashewhnetunum eru ómetteðu fitusýrurnar oleic sýrur sem er sama holla einómettaða fitan sem finnst í ólífuolíu. Sýran stuðlar að heilbrigðu hjarta, sérstaklega hjá sykursjúkum. Cashewhnetur innihalda einnig kopar, kalk og fosfór og auðvitað prótein.
Þetta er heimsins einfaldasta sulta og passar rosa vel með t.d. vöfflum, í haframjölstertur (milli laga) ofan á kex með osti og margt fleira.
Bíðið við
.franskar kartöflur á vef CafeSigrun
er það ekki prentvilla? Er konan orðin klikkuð???? Áður en þið sendið mér, áhyggjufull fyrirspurn um hvort ég sé orðin galin þá skuluð þið skoða innihaldslýsinguna á þessari uppskrift
. Það eru þrjú atriði á listanum, kartöflur, olíuúði og salt
, ekkert annað. Frönskurnar eru því bráðhollar og afar, afar langt frá því sem finna má á skyndibitastöðum. Hugmyndin er byggð á frönskunum hennar Lísu Hjalt sem er dyggur notandi CafeSigrun en hún fékk hugmyndina frá vinkonu sinni. Ég notaði kókosolíu/vatnsúða en Lísa útbýr frönskurnar þannig að hún penslar bökunarpappír með olíu og lætur pappírinn liggja undir kartöflunum í 2 tíma. Við það drekka kartöflurnar í sig olíuna á löngum tíma. Svo saltar hún og bakar. Hvor aðferðin sem þið notið skiptir ekki öllu máli en ég get lofað ykkur hollum og góðum frönskum kartöflum.
Sumir kannski vita að hægt sé að borða laxaroð en aðrir hugsa eflaust með sér að ég sé orðin galin. Ég ætla bara að segja ykkur að eftir að þið smakkið get ég næstum því lofað ykkur að þið eigið eftir að hugsa grátandi til baka í ÖLL þau skipti sem þið hafið hent laxaroði og að þið munið aldrei, aldrei aftur henda því. Grillað laxaroð er bæði svakalega hollt og gott og frábært sem meðlæti t.d. ofan á salöt, sem snakk og auðvitað inn í sushirúllur (en þar nota ég það mest). Ég hef oft, oft, oft beðið um að fá laxaroð með í poka þegar ég kaupi lax og yfirleitt horfir afgreiðslufólk á mig eins og ég sé snar-galin (sem ég er jú pínulítið). Hins vegar hafa þau í Fylgifiskum verið mjög skilningsrík og eru farin að lauma auka laxaroði ofan í pokann þegar ég versla við þau við mikla gleði mína. Ég á sushibók og í henni er uppskrift að steiktu laxaroði en það er óðs manns æði enda er næg fita í roðinu og það verður stökkt og ljúffent eins og snakk með því að grilla það. Ég lærði þessa aðferð af Elínu mágkonu minni sem lærði aðferðina af kanadískum sushisnillingi. Prófið að bera þetta fram sem snakk í næsta matarboði og verið undir það búin að hakan á gestum detti niður þegar þeir smakka þessa dásemd. Ég hef prófað silungaroð líka en finnst laxinn margfalt betri. Aðferðin virkar flókin því lýsingin er löng en það er bara vegna þess að ég hef hana ítarlegra en kannski þarf. Mér finnst algjörlega frábært að geta nýtt afurðina svona vel og þurfa ekki að henda neinu…þetta væri góð viðskiptahugmynd fyrir einhvern áhugasaman! Þetta er uppskrift sem ég ætlaði að taka með mér í gröfina en af því að ég ætla að verða svo langlíf (því ég borða svo hollt) þá fannst mér ómögulegt að bíða í tugi ára með að birta uppskriftina. Hún er sem sagt birt undir miklum þrýstingi þeirra sem hafa fengið að smakka grillað laxaroð hjá mér í gegnum tíðina.
Þegar við fórum í eina af ferðunum okkar til Afríku (Kenya) vorið 2006 þá gistum við á stað sem heitir Coconut Cottages og er sunnarlega á Diani ströndinni í Mombasa. Þetta er himneskur staður, örfá hús, mjög mikið lokuð af og ströndin sem liggur að húsunum er einkaströnd, sem sagt afar fáir túristar. Maður læsir ekki einu sinni á nóttinni! Maður ræður því hvað er í matinn og kokkurinn á staðnum, hann Abdalla Hamisi Pore (sem lítur pínu út eins og Chef í South Park er snillingur. Allan daginn stóð hann sveittur við að undirbúa mat fyrir fólkið með bros á vör, auðvitað allan frá grunni. Hann gaf mér uppskrift að grillsósunni sem hann bar fram fyrir okkur með risastóra Kingfish fiskinum sem við höfðum veitt fyrr um daginn í Indlandshafi. Það var svo heitt þann daginn að ég var hálf hissa á því að fiskurinn hefði ekki hreinlega soðið í sjónum. Það var smá mál að fá uppskriftina, Abdalla þurfti að hugsa sig lengi um og það tók hann óratíma að skrifa uppskriftina og útskýra hana. Það var alveg þess virði.