Forsíða CafeSigrun.com
Fara beint í leiðarkerfi vefjarins
Í dag er 3. september, 2010
 

Salöt

Fyrir mér eru salöt meira en bara græn blöð á diski. Salöt eru eins og listaverk og maður getur sett saman mismunandi áferð og liti alveg eins og í málverki eða grafíkmynd (ég er myndlistarmenntuð þannig að ég er ekki bara að bulla). Fyrir utan að vera falleg á borði þá eru þau auðvitað ótrúlega holl og yfirleitt full af vítamínum. Maður getur til dæmis sett saman spínat eða laufsalat (Lambhagasalat), tómata, rauða/appelsínagula papriku, sólþurrkaða tómata, avacado, furuhnetur, sólblómafræ, döðlur, appelsínur, kjúklingabaunir og svo mætti lengi telja. Fallegt, litríkt og hollt.





Ananas-og rauðrófusalat frá Naivasha

20. október, 2007

Litríkt rauðrófusalat - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þetta salat fékk ég fyrst í Naivasha sem er í Kenya, fyrir norðan Nairobi. Rauðrófur eru frekar mikið notaðar í Kenya og ananas er notaður í allt enda vex þessi frábæri ávöxtur víða í Kenya. Þegar ég sá þetta salat fyrst þá horfði ég á það og velti vöngum yfir því hvort ég ætti að prófa eða ekki. Ákvað svo að salat sem væri svona fallegt á litinn ætti skilið að vera smakkað. Ég sá ekki eftir því, salatið var afar bragðgott og skemmtilegt ekki síst af því áferðin á rauðrófum og ananas er svo ólík. Salatið er sérlega hollt og gott, vítamínríkt, járnríkt og gott fyrir meltinguna. Salatið má borða sem meðlæti eða í nesti eitt og sér. Manni þarf að þykja rauðrófur góðar til að geta borðað salatið en ég er heppin því ég elska rauðrófur!
 
Ananas-og rauðrófusalat frá Naivasha
Fyrir 4 sem meðlæti

  • 2 litlar rauðrófur
  • 1/4 ananas
  • 1/4 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)

    Aðferð:
  • Sjóðið rauðrófurnar með saltinu í um 20-25 mínútur eða þangað til þær eru orðnar nokkuð mjúkar.
  • Kælið rófurnar, afhýðið og skerið í litla bita (gott er að nota hanska því liturinn er ansi sterkur og erfitt að ná honum af höndum). Miðið við stóra sykurmola að stærð.
  • Afhýðið ananasinn, skerið miðjuna úr honum og saxið í bita jafnstórum rauðrófubitunum.
  • Best er að setja lúku af ananas í skál, setja svo lúku af rauðrófum, lúku af ananas og koll af kolli svo ananasinn verði ekki fjólublár þegar salatið er borið fram. Ekki hræra í salatinu.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Appelsínu- og ólífusalat frá Morocco

10. júní, 2008

Appelsínu- og ólífusalat frá Morocco - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þetta salat er frískandi og sumarlegt og alveg frábært til að bera fram sem öðruvísi salat hvort sem þið berið fram hefðbundið grænt salat líka eða ekki. Stundum er gaman að breyta til, sérstaklega á sumrin! Uppskriftin er úr frábærri bók sem ég hef átt í mörg ár og heitir North African Cooking.
 
Appelsínu- og ólífusalat frá Morocco
Fyrir 2 sem meðlæti

  • 1 appelsína
  • 1/4 rauðlaukur
  • 6-8 svartar ólífur, steinalausar
  • Smá klípa cayenne pipar
  • 1 msk ólífuolía
  • 1/2 tsk agavesíróp
  • Fersk corianderlauf til skreytingar (má sleppa)

    Aðferð:
  • Skrælið appelsínuna og hreinsið allt hvíta hýðið utan af henni sem og himnuna sem umlykur appelsínuna. Best er að skera appelsínuna á bakka með börmum því þið þurfið að nota safann sem kemur af appelsínunni.
  • Skerið rauðlaukinn í örþunnar sneiðar og aðskiljið hringina í sneiðunum.
  • Raðið appelsínusneiðunum á disk.
  • Dreifið laukhringjunum yfir sneiðarnar.
  • Dreifið ólífunum yfir sneiðarnar.
  • Í litla skál skuluð þið blanda saman ólífuolíunni, cayenne piparnum og agavesírópinu.
  • Hrærið vel og blandið appelsínusafanum saman við.
  • Hellið yfir salatið.
  • Látið standa við stofuhita í um klukkutíma til að bragðið nái að “taka sig”.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Avacado- og melónusalat með sítrónugrass-jógúrtsósu

4. ágúst, 2008

Lítríkt og hollt salat - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Algjört dásemdarsalat yfir sumarið. Cantaloupe melónur eru pakkfullar af Beta Carotene (sem umbreytist í A vítamín í líkamanum) og C vítamínum og eru sérlega góðar fyrir heilsu augnanna. Einnig eru þær stútfullar af andoxunarefnum og sporna gegn krabbameini og hjálpa einnig til við að minnka líkur á heilablóðfalli og hjartaáföllum, pakkfullar af trefjum, potassium, fólinsýru og niacin (B3 vítamín). Einnig stuðla A vítamín að heilbrigðri lungnastarfsemi. Cantaloupe melónur hafa verið borðaðar síðan á tímum Grikkja og Rómverja! Melónurnar eru ekki það eina holla í þessu salati því kirsuberjatómatar eru líka pakkfullir af C vítamínum og innihalda efnið lycopene og ef lycopene efnið væri mennskjur væri það eins konar hermenn gegn krabbameini því lycopene spornar gegn fjölda tegunda krabbameins. Avacado inniheldur svo einómettaðar fitusýrur (oleic acid) sem hjálpar til við að minnka blóðfitu, potassium sem hjálpar til við að stýra blóðþrýstingi, trefjar, fólinsýru og margt fleira gott. Allt í allt er þetta frábæra salat algjört vítamínbúst! Vá þetta var eins og þakkarræða á Óskarsverðlaunahátíð!!
 
Avacado- og melónusalat með sítrónugrass-jógúrtsósu
Fyrir 4 sem meðlæti

  • 2 avacado (lárperur), vel þroskuð
  • 1 cantaloupe melóna, vel þroskuð (þessar sem eru eins og klæddar neti að utan og eru grænar að innan)
  • 200 gr kirsuberjatómatar
  • 1 haus Lambhagasalat eða svipað salat

    Sítrónugrass-jógúrtsósa:
  • 1 stilkur sítrónugras, ystu blöð fjarlægð
  • 200 ml hreinn eplasafi
  • 1 msk sítrónusafi
  • 125 ml hrein sojajógúrt. Einnig má nota venjulega jógúrt eða AB mjólk
  • Smá klípa turmeric
  • 1/2 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
  • 1/4 tsk svartur pipar

    Aðferð:
  • Afhýðið melónuna og saxið í grófa en jafna ferninga. Setjið til hliðar
  • Sneiðið kirsuberjatómatana í helminga. Setjið til hliðar.
  • Saxið sítrónugrasið gróft.
  • Setjið eplasafa, sítrónusafa og sítrónugrasið í lítinn pott, látið sjóða í um 5 mínútur.
  • Látið kólna.
  • Blandið saman jógúrtinu, turmerici, salti og pipar.
  • Fjarlægið sítrónugrasið úr pottinum og hellið vökvanum út í jógúrtið. Hrærið vel.
  • Skolið salatblöðin og raðið á mjög stóran disk eða bakka.
  • Afhýðið avacadoin og saxið í grófa en jafna ferninga.
  • Dreifið melónubitunum yfir salatblöðin.
  • Dreifið avacadoinu yfir melónubitana.
  • Dreifið kirsuberjatómötunum yfir avacadobitana.
  • Hellið jógúrtsósunni yfir eða berið fram í sér skál.
  • Berið fram strax (því avacadoið verður fljótt blettótt).


  • Ef þið eruð rosa mikið að flýta ykkur má gera fína salatsósu með smá agavesírópi og AB mjólk. Kryddið eftir smekk.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Avacado-, ananas- og rauðlaukssalat

5. janúar, 2009

Salat undir afrískum áhrifum - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þetta salat er frísklegt og gott meðlæti með t.d. grillmat. Það minnir mikið á Afríku en er þó ekki afrískt. Avacado, ananas og rauðlaukur er mikið notað hráefni þarna suður frá enda passar þetta allt vel saman. Salatið er líka mjög hollt enda er avacado fullt af K vítamíni og einómettuðum fitusýrum (oleic acid) sem þýðir að það hefur góð áhrif á hjartað í okkur og getur hjálpað til við að lækka blóðþrýsting. Einnig er avacado fullt af trefjum og fólinsýrum sem er B vítamín nauðsynlegt konum sem eru ófrískar (á fyrstu mánuðum) því það stuðlar að heilbrigðum þroska fóstra. Ananas er góður fyrir meltinguna því fyrir utan að vera trefjaríkur inniheldur hann meltingarensímið Bromelain sem er gott fyrir meltinguna. Hann inniheldur líka Thiamin og C vítamín ásamt steinefninu Manganese sem hefur andoxunareiginleika. Laukur á svo að hjálpa til við að sporna gegn krabbameini, inniheldur C vítamín og hefur andoxunareiginleika. Svo er salatið ljómandi frísklegt og fallegt á litinn…..og hefur því jákvæð áhrif á andlega heilsu (a.m.k. mína)!
 
Avacado-, ananas- og rauðlaukssalat
Fyrir 3-4 sem meðlæti

  • 1/4 ananas, skorinn í bita (skerið hýði af og fjarlægið miðjuna)
  • 1/2 rauðlaukur (1 ef hann er lítill), saxið smátt
  • 1 vel þroskað avacado, saxað í bita
  • 1/2 tsk tabasco sósa
  • 3-5 fersk basilblöð, klippt í ræmur (má sleppa en gefur gott bragð)
  • Salt (Himalaya eða sjávarsalt)
  • Pipar

    Aðferð:
  • Setjið saxaða laukinn í vatn ásamt smá klípu af salti og geymið í 30 mínútur. Mér finnst gott að hafa hann ekki of bragðsterkan en ef þið viljið hafa hann sterkari, skuluð þið ekki setja hann í vatn.
  • Hellið vatninu af.
  • Blandið öllu saman.
  • Kryddið með salti og pipar.
  • Klippið basilblöð yfir salatið.


Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Ávaxtasalat frá Afríku

4. ágúst, 2008

Afríka í skál - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Á öllum hótelum sem ég hef komið á í Austur Afríku (og þau eru mörg) er borið fram einhvers konar ávaxtasalat í bland við kökur og pönnukökur og fleira góðgæti fyrir svanga ferðamenn. Ég fer að sjálfsögðu alltaf beinustu leið í ávaxtaskálina enda lítið fyrir mig að hafa á hinum svæðunum. Það gerir þó ekkert til því ávaxtasalötin eru alltaf góð. Reyndar veiði ég alltaf papaya ávöxtinn úr því mér finnst hann aaaaaalgjör viðbjóður og ég nota því mango í staðinn í mitt salat. Mango er þó mikið notað í Afríku svo ég er ekkert að svindla. Eina svindlið í mínu salati er að ég nota vínber en vínber eru sjaldséðir gestir á þessum slóðum. Ástaraldin er ómissandi í þetta salat en það er einmitt afríski punkturinn yfir i-ið. Það er fátt betra en að enda viðburðarríkan og heitan í Afríku á ávaxtasalati og tebolla (sumir reyndar kjósa kökusneið og koníak!). Það er bara ein regla sem ég hef með svona salöt. Hún er: ALDREI, ALDREI skilja eftir steina í melónum eða vínberjum. Það er fátt leiðinlegra en að bíta í gómsætt salat til þess eins að skyrpa út úr sér bragðvondum steinum. Steinar úr ástaraldinum sleppa fyrir horn því þá á að borða. Þetta salat er pakkfullt af vítamínum og trefjum og er sérlega sumarlegt.
 
Ávaxtasalat frá Afríku
Fyrir 3-4 sem meðlæti

  • 1/4 ananas, vel þroskaður
  • 1 mango, vel þroskað. Nota má papaya ef þið viljið í staðinn
  • 3 ástaraldin (enska: passion fruit), veljið þunga ávexti
  • 1 banani, ágætlega þroskaður
  • 1/4 vatnsmelóna, vel þroskuð
  • 1 lúka græn, steinalaus vínber (bara upp á litinn, má sleppa)

    Aðferð:
  • Gott er að miða við að hafa alla bitana jafn stóra eða álíka og sykurmola að stærð.
  • Skerið ananasinn í bita og setjið í skál.
  • Skerið vatnsmelónuna í bita, fræhreinsið og setjið í skál.
  • Skerið mangoið í bita (sneiðið meðfram steininum með löngum hnífi, afhýðið og notið svo bara það sem þið getið skorið í jafna bita. Afganginn má frysta og nota síðar). Setjið í skál.
  • Skerið vínberin í helminga, fræhreinsið ef þarf og setjið í skál.
  • Skerið banana í sneiðar og setjið í skál.
  • Blandið öllu saman í stóra skál. Til að merja ekki ávextina er gott að hella svolitlu úr skálunum ofan í stóru skálina, þannig þarf maður ekki að hræra mikið.
  • Skerið ástaraldinin í helminga og skafið allt úr þeim yfir salatið.
  • Setjið plast yfir skálina ef ekki á að bera salatið fram strax.
  • Ef salatið er ekki nægilega sætt (t.d. ef ananasinn er ekki nægilega vel þroskaður) má setja eins og 50 ml af hreinum appelsínusafa yfir salatið.

  • Til að velja þroskaðan ananas: ef þið potið í botninn á honum ætti hann að gefa aðeins eftir, lyktin af botninum ætti að vera sæt og þung ananaslykt og þið ættuð að geta plokkað blað úr krónunni auðveldlega.
  • Til að velja þroskaða melónu: prófið að ýta á endana á melónunni, þeir ættu að gefa aðeins eftir. Melónan á að virka mjög þung miðað við stærð ef þið haldið á henni og ef þið bankið í hana ættuð þið að finna smá hreyfingu í kjötinu og hún ætti að titra örlítið(ekki gott að útskýra ha ha).
  • Til að velja þroskað ástaraldin: ávöxturinn á að virka þungur eða álíka eins og tómatur. Hýðið má ekki að vera mjög krumpað og ávöxturinn ætti alls ekki að vera loftkenndur eða léttur.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Einfalt salat með tahini salatsósu (dressingu)

20. júní, 2009

Einfalt, sumarlegt og litríkt salat - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Ég er alltaf að reyna að búa til einföld salöt sem geta gengið með öllum mat. Mér finnst alltaf best að blanda saman mismunandi salatblöðum (t.d. eikarlauf, klettasalat o.fl.), svolitlu af sætu (t.d. mango, epli, jarðarber, vínber) og svo hráu grænmeti (t.d. gulrótum, paprikum, gúrkum tómötum). Svo finnst mér öðru hvoru gott að setja út í salöt t.d. fetaost og ólífur. Hnetur set ég gjarnan út í til að fá skemmtilega áferð og gott bragð. Fetaost nota ég reyndar sjaldan og þegar ég nota hann, er það hreinn fetaostur án kryddolíu (sem er oft bölvuð draslolía). Svo eins og með flest salöt þá má skipta út, breyta og bæta. Salatsósan er afar ljúffeng og fljótgerð og hentar vel bæði með salötum, inn í vefjur, ofan á grænmetisborgara, með grillmat o.fl.
 
Einfalt salat með tahini salatsósu (dressingu)
Fyrir 4 sem meðlæti

    Salatið:
  • 200 gr blandað salat (t.d. Lambhagasalat, eikarlauf o.fl.)
  • 1 rauð paprika
  • 1/4 mango, vel þroskað
  • 1/4 gúrka
  • 1/2 avocado, vel þroskað (má sleppa)
  • 2 msk hreinn fetaostur (ekki í olíu)
  • 10-15 svartar ólífur
  • Ein lúka pecanhnetur

    Tahini salatsósan:
  • 2 msk tahini (sesammauk)
  • 50 ml hreinn appelsínusafi
  • 1 msk tamarisósa
  • 1 tsk tabasco sósa (eða piparsósa (hot pepper sauce))
  • 1 tsk hrísgrjónaedik (eða annað edik sem ykkur finnst gott)

    Aðferð:
  • Byrjið á því að undirbúa salatsósuna.
  • Blandið saman tahini, appelsínusafa, tamarisósu, tabasco sósu (setjið nokkra dropa fyrst og bætið svo við meiru ef þið þolið) og hrísgrjónaedik í litla skál. Hrærið mjög vel með skeið. Það þarf ekki að nota blandara en þið getið notað hann ef þið viljið.
  • Geymið við stofuhita þangað til á að bera salatsósuna fram (hún stífnar annars í kæli).
  • Hægt er að útbúa salatsósuna með nokkurra daga fyrirvara og taka svo sósuna út nokkrum klukkustundum áður en á að nota hana.
  • Skolið salatblöðin og setjið á stóran disk eða í skál.
  • Skerið paprikuna í tvennt, fræhreinsið og skerið í frekar þunnar og litlar sneiðar.
  • Skerið gúrkuna í þunnar sneiðar og svo aftur í helminga.
  • Afhýðið mangoið og skerið í litla bita (álíka stóra og sykurmola).
  • Afhýðið avocadoið og skerið í bita.
  • Myljið pecanhneturnar með fingrunum eða saxið frekar fínt.
  • Blandið öllu sem á að fara í salatið vel saman.
  • Berið salatsósuna fram sér.

  • Nota má grænar ólífur í staðinn fyrir svartar.
  • Nota má annan lit af paprikum í staðinn fyrir rauðar.
  • Einnig má nota rifnar gulrætur, melónur, kirsuberjatómata o.fl. í salatið.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Hrísgrjónasalat

16. nóvember, 2003

Þessi réttur er stútfullur af hollustu. Í honum eru paprikur, avacado, hýðishrísgrjón, tómatar og fleira. Það er hægt að borða þennan rétt einan sér, eða hafa hann sem meðlæti með t.d. grænmetisborgurum. Einnig er gott að borða þennan rétt með thailenskum mat þar sem það er límóna, rauðlaukur og coriander í honum sem er mikið notað í thailenskri matargerð
 
Hrísgrjónasalat
Fyrir 4-5 sem meðlæti

  • 200 gr maís korn (best að nota ferskan maísstöngul, sjóða hann og skera svo maísbaunirnar af með beittum hníf. Ef ekki, notið þá niðursoðin eða frosin maískorn)
  • 300 gr (fyrir suðu) hýðishrísgrjón eða bygggrjón (enska: Pearl Barley). Athugið að þeir sem hafa glúteinóþol ættu ekki að borða bygg
  • 1 meðalstór gul paprika, söxuð smátt
  • 1 meðalstór rauð paprika, söxuð smátt
  • 1 meðalstór græn paprika, söxuð smátt
  • 380 gr tómatar, fræhreinsaðir og saxaðir smátt
  • 60 gr radísur, saxaðar smátt
  • 100 gr rauðlaukur, saxaður smátt
  • 250 gr avacado, saxað smátt
  • 80 ml límónusafi eða sítrónusafi
  • 1 tsk ólífuolía
  • 1/4 bolli fínt söxuð corianderlauf

    Aðferð:
  • Ef þið notið ferskan maís, sjóðið hann og skerið af honum maískornin.
  • Blandið saman öllu innihaldinu og látið standa í ísskáp í a.m.k. 1 klukkutíma.
  • Takið réttinn út um 30 mínútur áður en á að borða hann.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Kachumbari (tómat- og rauðlaukssalat)

14. ágúst, 2006

Litríkt og hollt salat - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Uppskriftin kemur frá Lucy Mwuangi svilkonu minni sem er frá Kenya. Þetta salat er svipað og mexikanskt "salsa" en ekki eins sterkt þar sem búið er að útvatna laukinn til að draga úr styrkleika bragðsins. Salatið er borið fram með öllu mögulegu í Kenya, ekki síst grilluðu kjöti eða grænmeti þ.e. notað eins og íslenskt hrásalat en helmingi hollara! Kenyabúar nota mikið af fersku coriander (stundum kallað Cilantro) í matinn sinn.
 
Kachumbari (tómat- og rauðlaukssalat)
Fyrir 3-4 sem meðlæti

  • 1 stór rauðlaukur, saxaður MJÖG fínt
  • 2 tsk salt (t.d. Himalaya eða sjávarsalt)
  • 4-5 tómatar, MJÖG fínt saxaðir
  • 1/2 gúrka, mjög fínt söxuð
  • Handfylli coriander, bara laufin, söxuð
  • 1 rauður chilli, fræhreinsaður og saxaður fínt (má sleppa)
  • 1 vel þroskað avacado, saxað mjög fínt
  • 1 límóna í bátum (má sleppa)

    Aðferð:
  • Látið laukinn liggja í söltu vatni í um 30 mínútur og skolið svo af í sigti (tekur bitra bragðið úr lauknum).
  • Blandað saman og kælið.
  • Gjarnan borið fram með límónubátum.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Kalt hrísgrjónasalat

14. apríl, 2005

Þetta hrísgrjónasalat er fullt af vítamínum og hollustu. Það er bæði hægt að nota salatið sem meðlæti og svo finnst mér voða gott að hafa það í nesti daginn eftir.
 
Kalt hrísgrjónasalat
Fyrir 2

  • 1 bolli hýðishrísgrjón eða bygggrjón (enska: Pearl Barley). Þeir sem hafa glúteinóþol ættu ekki að borða bygg en mega borða hýðishrísgrjón
  • 1 avacado, vel þroskað, saxað gróft (sprautið smávegis af sítrónusafa yfir bitana svo þeir verði ekki brúnir)
  • 4-5 kirsuberjatómatar skornir í helminga
  • 3-4 sólþurrkaðir tómatar, olían þerruð af með eldhúsþurrku, saxaðir smátt
  • 2 msk furunetur, þurrristaðar á pönnu
  • 1 msk sólblómafræ, þurristuð á pönnu
  • 1/2 gul eða appelsínugul paprika, skorin í bita

    Aðferð:
  • Sjóðið grjónin.
  • Blandið öllu varlega saman og berið fram kalt.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Kjúklingasalat með mangó-karrísósu

1. mars, 2003

Það er upplagt að hafa þessa uppskrift daginn eftir Tandoori kjúklinginn því hráefnin eru ekkert ósvipuð (kryddin og mango chutneyið). Kaupið bara helmingi meiri kjúkling og eigið í salatið. Það er frábært að borða þetta salat úti í góðu veðri, ekta sumarsalat, ferskt og gott. Hægt er að nota keypt mangomauk en það er yfirleitt hlaðið sykri og það er rosa gaman að búa það til sjálfur!
 
Kjúklingasalat með mangó-karrísósu
Fyrir 2

  • 1/2-1 grillaðar (helst) eða steiktar kjúklingabringur (án skinns). Ég nota einungis hamingjusama kjúklinga (free range)
  • blandað salat (fæst tilbúið í pokum, annars má nota jöklasalat)
  • 1/2 gúrka skorin í smáa bita
  • 1/2 dós ananasbitar (ekki í sykurlegi)
  • 1/2 dós maískorn
  • 1/2 blaðlaukur, smátt saxaður
  • 1 rauð paprika, skorin í smáa bita
  • 1/2 krukka fetaostur í kryddlegi (má sleppa)

    Aðferð:
  • Skerið kjúklinginn í litla (beinlausa) bita og setjið í skál ásamt salatinu.
  • Bætið öllu öðru saman við og geymið salatið í kæli fram að framreiðslu.

    Mangó-karrísósa
  • 2 msk Mangómauk (enska: mango chutney)
  • 1 tsk karríduft
  • 2 tsk tamarísósa
  • 1,d dl hrein jógúrt, fitulaus

    Aðferð:
  • Hræra saman og bera fram í sér skál
  • Gott er að hafa gróft snittubrauð snittubrauð með eða glúteinlaust brauð fyrir þá sem hafa glúteinóþol.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Kjúklingasumarsalat

1. mars, 2003

Kjúklingasumarsalat - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Eins og nafnið ber með sér, þá er eiginlega skylda að borða þetta kjúklingasalat úti, á góðum sumardegi þegar sólin er alveg að fara að setjast (ok viðurkenni að það er aðeins auðveldara hérna í London heldur en heima á Íslandi, en það má alltaf reyna, tjalda yfir borðið eða eitthvað, he he).
 
Kjúklingasumarsalat
Fyrir 2

  • 250 gr grilluð (helst) eða steikt kjúklingabringa, rifin í strimla. Skinnið ekki notað. Notið "hamingjusaman kjúkling" (þ.e. free range og organic)
  • 1/2 dl ristaðar möndlur (þurristað á heitri pönnu í 5-10 mínútur)
  • 1 1/2 dl sellerí í sneiðum
  • 1 msk appelsínusafi
  • 1 dl hrein, fitusnauð jógúrt
  • 1/2 dl rúsínur
  • 1/2 dl aprikósur, sneiddar smátt
  • 1 marið hvítlauksrif
  • 1/2 tsk svartur pipar
  • 1/2 tsk ground ginger (duft)
  • Jöklasalat (iceberg)
  • 2 tómatar, í sneiðum

    Aðferð:
  • Blandið saman kjúklingi, sellerí, apríkósum og möndlum í stóra skál.
  • Bætið afganginum af hráefninu út í og blandið vel saman.
  • Kælið í ísskáp.
  • Setjið salatblöð og tómatsneiðar á 2 diska og síðan kjúklingasalatið þar ofan á.

    Ég hef stundum haft mango-karrísósu með þessu salati og það passar bara fínt:

    Mangó-karrísósa
  • 2 msk mangomauk (mango chutney)
  • 1 tsk karrí
  • 2 tsk tamarísósa
  • 1 dós hrein jógúrt, fitulaus
  • Hrærið saman og berið fram í sér skál með salatinu

  • Gott með grófu brauði eða jafnvel grófu snittubrauði
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Klettasalat með rauðrófum og parmesan

23. ágúst, 2009

Járn- og vítamínríkt salat - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Ég fékk svipað salat á krá einni í London sem er þekkt fyrir góðan mat enda er eigandi staðarins enginn annar en Gordon Ramsay. Við erum nú ekki þekkt fyrir að þræða krárnar en við vorum dregin þangað með loforð um góðan mat. Við vorum ekki svikin af honum því ég fékk þetta dýrindis salat. Þó það kostaði hvítuna úr augunum þá var samt þess virði að prófa eitthvað nýtt. Ég var líka orðin ansi langeyg eftir rauðrófum (komið fram í miðjan ágúst og þær ekki farnar að láta á sér kræla á Íslandi). Þetta var því fullkomið. Ég ákvað strax að ég skyldi reyna að búa til svona salat þegar heim kæmi. Salatið var borið fram með linsoðnu eggi sem passaði vel við sem sósa ofan á salatið (og er allt í lagi að borða svona spari) en það má líka sleppa því eða nota aðra salatsósu með (eða balsamic edik). Salatið er sérlega járnríkt og auðvitað pakkfullt af andoxunarefnum og vítamínum.
 
Klettasalat með rauðrófum og parmesan
Fyrir 2-3 sem meðlæti

  • 1 rauðrófa, meðalstór
  • 75 gr klettasalat (ruccola)
  • 1 pera, vel þroskuð
  • 10 gr parmesan, ferskur
  • Smá klípa svartur pipar
  • 2 linsoðin egg (má sleppa)

    Aðferð:
  • Skrúbbið rauðrófuna létt undir rennandi vatni.
  • Pakkið rauðrófunni inn í álpappír og bakið við 200°C í um 35-40 mínútur.
  • Látið rauðrófuna kólna og skrælið hana varlega (eða nuddið hýðinu af með fingrunum.
  • Gott er að nota hanska því rauðrófur lita verulega). Setjið rauðrófuna til hliðar (án þess að skera hana...annars fer hún að leka safanum).
  • Skolið klettasalatið og raðið á fallegan disk (ekki í skál).
  • Afhýðið peruna og sneiðið í frekar þunnar sneiðar.
  • Sneiðið parmesan ostinn afar þunnt með ostaskera eða beittum hnífi.
  • Skerið rauðrófuna í frekar litla bita (eða báta).
  • Raðið perusneiðum og rauðrófusneiðum ofan á klettasalatið. Ekki hræra neitt í salatinu því annars verður allt fjólublátt og ógirnilegt.
  • Dreifið parmesansneiðunum yfir.
  • Dreifið svörtum pipar yfir.
  • Linsjóðið eggin (5-7 mínútur) og berið þau fram með salatinu ef þið viljið.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Kókosbananar með afrískum áhrifum

4. ágúst, 2008

Kókosbananar með afrísku ívafi - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Afbragðsgott sem meðlæti með krydduðum mat t.d. indverskum og thailenskum en einnig hentar hann vel með bragðmiklum afrískum mat. Elín svilkona mín hefur gjarnan búið til svona banana og þeir minna mikið á Afríku. Það er frábært að útbúa svona banana líka sem gott nammi fyrir krakka (og fullorðna).
 
Kókosbananar með afrískum áhrifum
Fyrir 2 sem meðlæti

  • 1 banani, vel þroskaður
  • 4-5 msk kókosmjöl

    Aðferð:
  • Skerið bananann í um 5mm þykkar sneiðar.
  • Setjið kókosmjölið í skál.
  • Veltið hverri sneið upp úr kókosmjöli (eða hrúgið sneiðunum ofan í kókosmjölið og hrærið vel).


Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Kryddað kjúklinga- og vínberjasalat

10. maí, 2003

Kryddað kjúklinga- og vínberjasalat - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þetta er einfaldur og hollur réttur, upplagður á sumardegi eða þegar maður vill bera fram kaldan og hollan rétt. Hann inniheldur fullt af vítamínum, kalki og próteinum til að halda heilsunni í lagi og er fitusnauður að auki. Það finnst mér alltaf góð blanda!! Þessi réttur er líka upplagður þegar maður er tímabundinn fyrir t.d. saumaklúbb því það má búa hann til vel áður en á að bera hann fram.
 
Kryddað kjúklinga- og vínberjasalat
Fyrir 2-3

  • 500 gr grilluð (helst) eða steikt kjúklingabringa, rifin í strimla. Skinnið ekki notað. Notið "hamingjusaman kjúkling" (þ.e. free range og organic)
  • 2 sprotar sellerí, sneiddir fínt
  • 250 gr steinlaus, blá vínber, skorin í helminga (má nota græn líka)
  • 60 gr möndluflögur, þurrristaðar á pönnu þangað til aðeins farnar að brúnast (5-10 mín)

    Karrísósa
  • 50 gr majones eða sýrður rjómi frá Mjólku (5%, án gelatíns). Hægt er að kaupa létt majones (6% fita) en það inniheldur sykur og viðbætt efni og getur innihaldið glútein.
  • 175 gr sýrður rjómi frá Mjólku, (5% fita, án gelatíns). Einnig má nota jógúrt
  • 1 msk agavesíróp
  • 2 tsk karríduft
  • 1/4 tsk paprikuduft
  • 1/4 tsk chilliduft
  • 1/4 tsk svartur pipar

    Aðferð:
  • Rífið kjúklinginn í strimla og setjið í skál ásamt celleríinu.
  • Skerið vínberin og setjið í skálina ásamt möndluflögunum
  • Til að búa til karrísósuna, blandið majonesinu, sýrða rjómanum, agavesíropinu, karríinu, chilliduftinu, paprikuduftinu og piparnum saman.
  • Hellið karrísósunni yfir kjúklinginn og blandið vel saman.
  • Berið salatið fram á diskum eða í skálinni (og hver og einn skammtar sér).

  • Það er gott að bera fram salat með icebergi, kirsuberjatómötum og þurrristuðum graskersfræjum (enska: pumpkin seed).
  • Blandið saman og setjið í sér skál.
  • Einnig er gott að bera fram gróft snittubrauð með réttinum eða glúteinlaust brauð fyrir þá sem hafa glúteinóþol.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Mozzarella salat með tómötum og basil

22. júlí, 2006

Þrílitt salat í ítölsku fánalitunum, rauðum, grænum og hvítum - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þetta salat þekkja eflaust margir sem hafa verið á Ítalíu og er líklega ein af ástæðunum fyrir því að Ítalir lifa svona lengi því það er nefnilega svo óskaplega hollt. Þetta er dásamlega einfalt, bragðgott og upplagt sem forréttur eða sem léttur hádegismatur með hvítlauksbrauði. Mér finnst rosa gott að nota avacado líka.
 
Mozzarella salat með tómötum og basil
Fyrir 2 sem forréttur

  • 3 vel þroskaðir, stórir og fallegir tómatar
  • 150 gr mozzarella ostur, léttur ef hann er til
  • 1 msk extra virgin ólífuolía
  • 10 basilblöð
  • 1/2 vel þroskað avacado (má sleppa)
  • Heilsusalt (Herbamere)
  • Svartur pipar

    Aðferð:
  • Setjið tómatana í skál, hellið sjóðandi vatni yfir þá og liggja í 1-2 mínútur.
  • Fjarlægið skinnið af tómötunum og skerið þá í sneiðar.
  • Skerið mozzarella ostinn í sneiðar.
  • Afhýðið avacadoið og skerið í sneiðar.
  • Setjið tómatsneið á stóran disk og mozzarella ost ofan á. Endurtakið þangað til allt er búið.
  • Dreifið avacado sneiðunum yfir.
  • Dreifið basil blöðunum yfir.
  • Hellið ólífuolíunni yfir.
  • Saltið og piprið.
  • Berið fram strax.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




New York salat með grilluðu grænmeti og hnetum

23. nóvember, 2005

Undir áhrifum frá New York, hollt og gott grænmetissalat - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þetta salat er undir beinum áhrifum frá New York. New York er eins og allt sem maður sér í sjónvarpsþáttum og bíómyndum og auðvitað meira en það! Þvílíkt matarhimnarríki. Nefni bara Whole Foods Market. Þar myndi ég glöð dvelja í svona 3 vikur án þess að fara út úr búðinni! Þar var meira að segja hægt að fá íslenskt vatn, fisk og lambakjöt. Fyndið að sjá íslenska fánann í kjötborðinu! Allavega. Þegar ég kom til baka þá langaði mig í eitthvað ferskt og gott salat eins og maður fær á þessum Deli stöðum (smáréttastöðum) og ég bjó til þetta salat. Það sniðuga við salöt er að það má bæta endalaust við þau og skipta út innihaldinu. Svo er það líka æðislega gott innan í vefjur (maís eða speltkökur) og er auðvitað stútfullt af hollustu og vítamínum. Hafið þið prófað að baka maískorn? NAMM.
 
New York salat með grilluðu grænmeti og hnetum
Fyrir 2

  • 2 pokar af blönduðu salati (rauð og/eða græn lauf t.d. eikarlauf, spínat, ruccola, lambhagasalat o.s.frv.)
  • 1 bolli maískorn, frosin
  • 3 paprikur, gul, rauð og appelsínugul
  • 150 gr mjög litlir sveppir (button) ekki niðurskornir. Ef þeir eru stórir má skera þá í helminga
  • 1 lúka ósaltaðar, blandaðar hnetur þurrsteiktar á pönnu, muldar gróft (setjið í plastpoka og lemjið nokkrum sinnum með einhverju þungu)
  • 1 msk af tamarisósu sem fer á hneturnar strax eftir steikingu
  • 15-20 kirsuberjatómatar, skornir í helminga
  • 1 vel þroskað avacado, skorið í grófa teninga
  • 2 msk sesamolía
  • 3 msk tamarisósa
  • 2 msk fiskisósa (Nam Plah). Fiskisósa ætti að fást í austurlensku deildunum í flestum matvöruverslunum


    Aðferð:
  • Skerið paprikurnar langsum í 4-6 sneiðar og setjið á bökunarplötu (bökunarpappír undir) og snúið hýðinu upp.
  • Dreifið sveppum einnig á plötuna.
  • Blandið saman tamarisósu, fiskisósu og sesamolíu og penslið grænmetið á plötunni.
  • Setjið maískornin í skál og smávegis af sósunni út í. Hrærið vel.
  • Dreifið svo maískornunum á aðra plötu.
  • Hitið á hæsta hita undir grilli í um 20-30 mínútur.
  • Fylgist með maískornunum þær mega ekki brenna mikið (mega dökkna þó nokkuð samt) en hitt grænmetið má verða mjög dökkt og jafnvel pínu brunnið. Ef maískornin eru farin að brenna takið þá plötuna úr ofninum eða færið neðar í ofninum.
  • Þurristið hneturnar. Um leið og þær eru orðnar heitar, slettið þá 1 msk af tamarisósu yfir þær.
  • Skolið salat og setjið í stóra skál.
  • Setjið kirsuberjatómatana og avacado út í, breiðið plast yfir skálina.
  • Takið grillaða grænmetið úr ofninum og kælið aðeins. Rífið paprikur í ræmur ef þið viljið hafa þær mjórri og dreifið yfir salatið.
  • Dreifið sveppunum og maískornunum yfir salatið.
  • Dreifið muldu hnetunum yfir salatið.

  • Berið fram með t.d. hollri salatsósu úr ab mjólk eða jógúrt með hvítlauk og kryddi út í og nýju brauði. Svo er upplagt að nota maís- eða speltvefjur (tortilla) með. Athugið þó að yfirleitt er glútein í keyptum vefjum svo lesið vel á innihaldslýsingar.

  • Hægt er að nota annað grillað grænmeti t.d. kúrbít eða eggaldin, tómata o.s.frv. Eins má rífa ferskan parmesan yfir salatið eða nota ristaðar furuhnetur, sólblómafræ, sólþurrkaða tómata, þistilhjörtu, ólífur og svo mætti lengi telja.

  • Fyrir þá sem eru með hnetuofnæmi má nota fitusnauðar kartöfluflögur yfir salatið. Kaupið hollari kartöfluflögur í heilsubúðum.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Rækjusalat

30. október, 2003

Hollt og gott rækjusalat - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þetta er létt útgáfa af hefðbundnu rækjusalati og voðalega gott með brauði, kexi, hrökkbrauði o.fl. Ég set basil og karrí saman við salatið og mér finnst það gefa mjög gott bragð.
 
Rækjusalat
Fyrir 3-4 sem meðlæti

  • 2 harðsoðin egg (notið hvítuna úr einu eggi og svo má nota hitt eggið heilt (með rauðunni og hvítunni))
  • 1/2 tsk basil
  • 1/4 tsk svartur pipar
  • 200 gr þiðnar rækjur (um það bil)
  • 1/2 tsk karrí
  • 3-4 msk majones. Einnig má nota 5% sýrðan rjóma frá Mjólku (hann er án gelatíns). Hægt er að kaupa létt-majones en það er yfirleitt með sykri og viðbættum efnum.

    Aðferð:
  • Sjóðið eggin og kælið.
  • Fjarlægið aðra eggjarauðuna.
  • Notið eggjaskera og skerið eggin fyrst langsum og svo þversum (svo það endi í litlum bitum).
  • Setjið rækjurnar í skál.
  • Setjið egg, majones eða sýrðan rjóma, karrí, basil og svartan pipar í skálina.
  • Hrærið öllu vel saman.


  • Það má breyta hlutföllum eftir hentisemi, ef þið viljið hafa það þynnra, bætið þá meira majonesi saman við og ef þið viljið hafa það þykkara bætið þá við meira af rækjum og eggjum.
  • Salatið er ekki síðra ef það er geymt í sólarhring í ísskápnum svo það er upplagt að búa það til deginum áður en á að nota það.
  • Smakkið til með meira karríi og pipar ef þarf.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Salat í nestið

17. febrúar, 2008

Litríkt salat til að lífga upp á daginn - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Mér finnst þetta salat alveg ferlega fínt í nestið. Það hefur holla fitu úr avacadoinu, trefjar og prótein í kjúklingabaununum og svo allt vítamínið úr ávöxtunum og grænmetinu. Mér finnst líka æðislegt að setja smá tamarisósu yfir salatið.
 
Salat í nestið
Fyrir 1 í nestið

  • 1 appelsínugul paprika, skorin í bita
  • 1/4 dós kjúklingabaunir
  • 1/2 pakki lambhagasalat og eikarlauf (eða annað salat), blöðin rifin gróft
  • Nokkur vínber (steinalaus), skorin í helminga
  • 1/2 vel þroskað avacado, skorið í bita
  • Nokkrir sólþurrkaðir tómatar, olían þerruð af, saxaðir gróft
  • 1 tómatur, saxaður gróft

  • Öllu blandað saman daginn áður, sett í nestisbox og geymt í kæli.

  • Nota má maísbaunir, rifnar gulrætur, nýrnabaunir, eplabita, þurrkaða ávexti o.fl. í salatið. Einnig er gott að nota ristuð sólblómafræ.


Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Salat með ýmsum mat

13. apríl, 2005

Þetta salat er hægt að nota við ýmis tækifæri og með ýmsum mat enda létt að búa til og afskaplega litríkt og fallegt. Fullt af vítamínum!
 
Salat með ýmsum mat
Sem meðlæti fyrir 2-3

  • 2 hausar Lambhagasalat (enska: flat leaf en má nota curly leaf líka)
  • 1/2 gul paprika, skorin í teninga
  • 1/2 rauð eða appelsínugul paprika skorin í teninga
  • 5-7 sólþurrkaðir tómatar, olían þerruð af og skornir í strimla
  • 3 msk furuhnetur, þurrristaðar á pönnu
  • 2 msk sólblómafræ, þurrristuðu á pönnu
  • 5-7 kirsuberjatómatar, skornir í helminga
  • 1 vel þroskað avacado, skorið í teninga (skerið það seinast og sprautið smá sítrónusafa yfir teningana svo þeir verði ekki brúnir)

    Aðferð:
  • Blandið öllu varlega saman (til að kremja ekki avacadoið og tómatana), kælið og berið fram

  • Það er að sjálfsögðu hægt að nota hvað sem er í svona salöt t.d. ef þið hafið ofnæmi fyrir fræjum og hnetum þá má mylja einhverjar kartöfluflögur í hollari kantinum í staðinn (fást í Yggdrasli). Svo má líka nota baunaspírur, eða skera niður appelsínur, döðlur, gráfíkjur og svo framvegis. Einnig er gott að bæta við baunum eins og kjúklingabaunum eða smjörbaunum.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Sashimi túnfisksalat með miso dressingu

11. júní, 2005

Þetta er voða gott salat, sérstaklega sem forréttur fyrir sushimatarboð. Nauðsynlegt er að nota besta mögulega túnfisk sem hægt er að fá. Best er að kaupa túnfiskinn til dæmis í Fylgifiskum á Suðurlandsbraut (hægt að láta senda í litlu búðina á Skólavörðustíg). Ég á æðislega matreiðslubók um japanskan mat og þessi uppskrift er úr henni. Ég á örugglega eftir að setja fleiri uppskriftir úr henni hér inn.
 
Sashimi túnfisksalat með miso dressingu
Fyrir 2-3 sem forréttur

    Marinering
  • 350 gr sashimi túnfiskur (sashimi þýðir bara að hægt er að nota túnfiskinn í sushi og er af bestu gæðum)
  • Blandið saman 2 msk hrísgrjónaedik (enska: rice vinegar), 1 msk ávaxtasykri og 1 tsk heilsusalti (Herbamare)

    Miso dressing
  • 2 msk hvítt miso (mauk sem er hægt að kaupa í túpu í austurlenskum verslunum en líka hægt að kaupa miso súpubréf sem fæst til dæmis í Heilsuhúsinu og nota í staðinn, er samt ekki eins gott). Miso inniheldur yfirleitt ekki glútein en það er alltaf gott að vera viss og lesa innihaldslýsingu
  • 1 msk mirin (það er hálfgert síróp, með sykri svo ég nota smávegis demerera sykur eða hrísgrjónasíróp (enska: brown rice syrup) í staðinn).
  • 1 msk sake (sake er hrísgrjónavín, má sleppa)
  • 1 msk ávaxtasykur
  • 2 msk hrísgrjónaedik
  • 1 tsk tamarisósa
  • 1 tsk japanskt sinnep (ég notaði Dijon og það var líka gott). Sinnep getur innihaldið glútein svo athugið innihaldslýsingu
  • 4 vorlaukar, saxaðir fínt (notið græna hlutann eingöngu)
  • Ég bætti við 1 msk af sesamolíu og það var rosa gott

    Aðferð:
  • Skerið túnfiskinn í 2cm bita eða skerið í þunnar sneiðar. Setjið í skál og hellið hrísgrjónaedikinu með ávaxtasykrinum og saltinu yfir.
  • Látið liggja í um 15 mínútur í leginum og breiðið yfir skálina með plasti.
  • Hellið marineringunni af túnfiskinum og þerrið hann.
  • Setjið túnfiskinn í hreina skál og hellið Miso dressingunni (eða miso duftinu) yfir.
  • Hrærið saman við túnfiskinn og berið fram í einni skál eða mörgum litlum skálum ásamt prjónum.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Soba núðlusalat með wakame, engiferi og grænmeti

13. janúar, 2007

Núðlur í japönskum stíl - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Af því að ég er nýkomin frá Japan þá gat ég ekki annað en sett inn japanskan núðlurétt. Soba núðlur eru mikið notaðar í Japan og Wakame sömuleiðis en Wakame er þangtegund. Soba núðlur sem eru úr 100% bókhveiti henta þeim sem hafa glúteinóþol. Þetta salat er kalt sem þýðir að ekki þarf að eyða miklum tíma fyrir framan pottana og allt vítamínið úr grænmetinu fær að njóta sín til fulls þar sem það er hrátt. Þetta er sannkallað detox-salat. Japanar borða oft kaldar núðlur yfir sumarið og bera yfirleitt sósuna fram sér.
 
Soba núðlusalat með wakame, engiferi og grænmeti
Fyrir 3-4

  • 12 gr wakame (fæst í heilsubúðum, er brimsalt, dökkgrænt og hart þang)
  • 100 gr soba núðlur (úr 100% bókhveiti)
  • 1 gulrót sneidd niður í mjóar lengjur (eins og eldspýtur)
  • 1 gúrka fræhreinsuð (miðjan skafin úr), sneidd niður í mjóar lengjur (eins og eldspýtur)
  • 2 msk þurristuð sesamfræ
  • 2 vorlaukar, saxaðir fínt (græni endinn)
  • Lítill bútur (2 grömm) ferskt engifer, rifið á rifjárni
  • 2 tsk sesamolía
  • 4 msk límónusafi (enska: lime)
  • 2 msk tamarisósa

    Aðferð:
  • Leggið wakame í bleyti í kalt vatn í um 10 mínútur.
  • Hellið vatninu af, fjarlægið harða stilka.
  • Saxið blöðin gróflega.
  • Sjóðið soba núðlurnar samvkæmt leiðbeiningum.
  • Kælið núðlurnar undir köldu vatni þegar þær eru tilbúnar. Hellið af þeim og látið standa í sigtinu.
  • Blandið saman núðlunum, saxaða vorlauknum, gulrótinni, gúrkunni og rifna engiferinu í stóra skál.
  • Blandið saman sesamolíunni, límónusafanum og tamarísósunni og hellið yfir salatið eða berið fram í sér skál (eins og Japanar gera).
  • Berið fram í djúpum skálum með prjónum.

  • Nota má annað grænmeti í staðinn fyrir gúrku og gulrót, t.d. paprikur, kúrbít, baunaspírur og einnig má nota baby mais, brokkolí o.fl. Einnig má nota blaðlauk í staðinn fyrir vorlauk og svört sesamfræ í staðinn fyrir ljós.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Sumarlegt salat með appelsínum og vatnsmelónu

4. ágúst, 2008

Sumarlegt og litríkt salat - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þegar maður borðar þetta salat finnur maður eiginlega hollustuna streyma um sig enda er salatið algjör heimsmeistari í hollustu. Svo getur maður skipt út hráefni og bætt við. Til dæmis er upplagt að nota blá vínber, bláber, ristaðar möndluflögur, baunaspírur, rauðkál, döðlur, graslauk, parmesanost, fetaost og eiginlega allt sem ykkur dettur í hug. Salatið er einstaklega litríkt og skemmtilegt og er afar gaman að bera það fram í matarboðum enda lifnar alltaf yfir fólki. Það sem er líka gaman að gera er að undirbúa allt hráefni, setja í margar skálar og leyfa fólki að raða í sitt eigið salat.
 
Sumarlegt salat með appelsínum og vatnsmelónu
Fyrir 4 sem meðlæti

  • 1 haus Lambhagasalat eða svipuð tegund
  • 1 poki eða kassi blandað salat (það sem ykkur finnst best)
  • 1/2 vel sæt appelsína, skræld og söxuð í bita
  • 2 gulrætur, sneiddar í ræmur (eins og tannstöngla), einnig má rífa gulræturnar á rifjárni
  • 1 rauð paprika, söxuð gróft
  • 1/4 vatnsmelóna, fræhreinsuð og söxuð gróft
  • 1 lúka cashewhnetur eða möndluflögur, þurristaðar á pönnu
  • 1 vel þroskað (ekki þó of) avacado. Afhýtt og saxað gróft (undirbúið alveg í lokin)

    Aðferð:
  • Undirbúið allt hráefni og setjið í skálar.
  • Skolið og rífið salatblöðin gróft.
  • Dreifið innihaldinu (nema cashewhnetunum og avacadoinu) í salatið og blandið varlega með fingrunum eða salatskeiðum.
  • Saxið avacado (helst rétt áður en bera á salatið fram)og setjið út í.
  • Dreifið hnetunum yfir.

  • Berið fram með léttri salatsósu
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Tómata og eggaldin pickle (súrkrás)

5. október, 2003

Þetta er svona frekar sætsterkt meðlæti (samt ekki of sætt) sem er fínt þegar maður er að borða t.d. sætan indverskan mat. Mjög gott með alls kyns indverskum grænmetisréttum.
 
Tómata og eggaldin pickle (súrkrás)
Fyrir 4-5 sem meðlæti

  • 1 stórt eggaldin (500 gr)
  • 1 msk heilsusalt (Herbamare)
  • 1 msk kókosfeiti eða ólífuolía
  • 1 stór laukur (200 gr), saxaður
  • 3 hvítlauksgeirar, marðir eða saxaðir fínt
  • 2 litlir rauðir chilli, saxaðir fínt
  • 4 tómatar (500 gr), eða saxaðir tómatar í dós
  • 2 tsk agavesíróp eða rapadura sykur (fæst í heilsubúðum)
  • 1 tsk garam masala
  • 1 tsk corianderduft
  • 1/2 tsk chilliduft
  • 1 msk hvítvínsedik
  • 160 ml vatn (minna ef notaðir eru tómatar í dós)

    Aðferð:
  • Flysjið eggaldinið og skerið í 1 cm. bita.
  • Hitið kókosfeitina eða olíuna á stórri pönnu og setjið lauk, hvítlauk og chillipiparinn útí. Hitið þangað til laukurinn er aðeins orðinn brúnn. Ef vantar vökva á pönnuna, notið þá vatn með.
  • Bætið eggaldininu við og hitið í 2 mínútur.
  • Bætið loks við salti, tómötunum, rapadura sykrinum/agavesírópinu, kryddunum, hvítvínsedikinu og vatninu.
  • Látið malla í 15 mínútur eða þangað blandan fer að þykkna.
  • Kælið áður en borið er fram.


  • Þetta meðlæti má alveg gera deginum áður en það er borðað.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Túnfisksalat

30. október, 2003

Hollt og gott túnfisksalat - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Létt og gott túnfisksalat, passar æðislega vel með brauði og alls kyns kexi. Ég borða sjaldan hráan lauk en mörgum finnst gott að setja rauðlauk í túnfisksalatið. Sumarið 2007 var ég í hestaferð um hálendið og bjó til túnfisksalat með sýrðum rjóma, majonesi, rauðlauk, karrí og pipar ofan í 12 þýska hestamenn. Þeir fríkuðu út. Þeir sleiktu skálina að innan, þeir hrópuðu upp yfir sig af gleði í hvert skipti þegar þeir sáu salatið og ég var drottning drauma þeirra og ég veit ekki hvað (fyrir túnfisksalat? Kommon). Er túnfisksalat ný uppfinning í þýskalandi? Þau fengu öll sem eitt uppskriftina að túnfisksalatinu. Athugið að það er ekki algengt að sjá karrí í túnfisksalati en mér finnst það passa sérlega vel við.
 
Túnfisksalat
Fyrir 3-4 sem meðlæti

  • 2 harðsoðin egg (notið hvítuna úr einu eggi og svo má nota hitt eggið heilt (með rauðunni og hvítunni)
  • 1/4 tsk svartur pipar
  • 1/4 tsk karrí
  • 1 dós túnfiskur í vatni (100-150 gr). Gætið þess að túnfiskurinn sé Dolphin Friendly, ætti að standa utan á dósinni. Þessi frá Euro Shopper er það ótrúlegt en satt.
  • 3/4-1 dl majones Einnig má nota 5% sýrðan rjóma frá Mjólku (Hann er án gelatíns). Hægt er að kaupa létt-majones en það inniheldur sykur og viðbætt efni og getur innihaldið glútein
  • 1/2 saxaður rauðlaukur (má sleppa)

    Aðferð:
  • Sjóðið eggin og kælið.
  • Fjarlægið aðra eggjarauðuna.
  • Notið eggjaskera og skerið eggin fyrst langsum og svo þversum (svo það endi í litlum bitum).
  • Hellið vatninu af túnfiskinum og setjið hann í skál.
  • Setjið egg, majones eða sýrðan rjóma, karrí og svartan pipar í skálina.
  • Afhýðið og saxið laukinn ef hann er notaður og bætið honum út í.
  • Hrærið öllu vel saman.

  • Það er í góðu lagi að láta salatið standa í ísskáp yfir nótt áður en á að nota það, verður bara betra.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Ævintýragrasker í kókosmjólk

20. október, 2007

Ævintýragraskerið frá Nairobi - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessi réttur fylgdi með spínatréttinum úr dularfulla húsinu í skóginum í Nairobi. Mjög einfaldur réttur sem hentar vel sem meðlæti. Upplagður þegar grasker eru komin á kreik í október og nóvember.
 
Ævintýragrasker í kókosmjólk
Fyrir 4 sem meðlæti

  • 200 gr grasker
  • 50 ml kókosmjólk, létt (enska: Coconut milk, light)
  • 1 tsk heilsusalt (Herbamare)

    Aðferð:
  • Takið börkinn af graskerinu og skerið graskerið í grófa bita (munnbitsstóra).
  • Sjóðið graskerið í vatni og salti þannig að fljóti yfir.
  • Sjóðið í um 15 mínútur eða þangað til graskerið er nokkuð mjúkt þó ekki alveg lint.
  • Hellið vatninu af og setjið aftur í pottinn ásamt kókosmjólkinni. Saltið.
  • Hitið en sjóðið ekki.
  • Berið fram heitt.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp