Fiskréttir
Mér finnst fiskur yfirleitt æðislega góður og uppáhalds, uppáhaldsmaturinn minn er sushi. Ég er reyndar af þeirri kynslóð sem borðaði yfir sig af fiski á yngri árum enda var ýsan þá ódýr leið til að metta marga. Ég get ekki borðað soðinn fisk (enda er lyktin af soðnum fiski, hamsatólg og kartöflum eitthvað sem vekur ekki neinar gleðilegar matartilfinningar) en ýsuréttir í ofni, lúða, silungur og lax er allt sælkeramatur. Sjálf matreiðslan á fiskinum skiptir auðvitað aðalmáli og svo það að fiskurinn sé ferskur. Ég borða reyndar ekki þorsk (ég er tildurrófa og höndla ekki orma í mat). Allavega þá eru hér alls kyns uppskriftir og ég vona að þið njótið þeirra.
Bauna- og túnfiskborgarar
20. september, 2005

Þessi uppskrift er auðveld í undirbúningi því mest af hráefninu fer í matvinnsluvél. Uppskriftin er líka mjög holl því í túnfisknum eru Omega 3 fitusýrur sem hjálpa til að sporna við hjartasjúkdómum. Einnig eru túnfiskur og kjúklingabaunir ríkar af E vítamíni sem eru sterk andoxunarefni og hjálpa til við að sporna t.d. við krabbameini, hjartasjúkdómum og ýmsu öðru. Það er sniðugt að búa til tvöfaldan skammt og frysta rest því borgararnir geymast í um mánuð í frysti.
Bauna- og túnfiskborgarar
Gerir um 10 borgara
- 2 x 420 gr dósir kjúklingbaunir (sigtið vatnið frá)
- 1 búnt vorlaukar (6-7 stykki), saxaðir gróft (notið miðjuhlutann og grænu blöðin líka)
- 400 gr túnfiskur í dós í eiginn vökva eða vatni (ekki olíu). Kaupið aðeins "Dolphin friendly" túnfisk
- 1 tsk chillipipar (má sleppa og nota svartan pipar fyrir þá sem þola ekki sterkan mat). Einnig má nota paprikuduft
- 1 tsk cumin
- 1 hvítlauksrif, saxað gróft
- 30 ml sítrónusafi
- Hnefafylli corianderlauf, söxuð gróft
- 150 ml hrein jógúrt eða ab mjólk (sojajógúrt fyrir þá sem nota ekki mjólkurvörur)
- Steinselja, coriander eða eitthvað annað ferskt krydd
Aðferð:
- Setjið kjúklingabaunirnar og vorlaukinn í matvinnsluvél og maukið. Ekki samt mauka alveg í spað.
- Bætið túnfisknum, vorlauknum, chillipiparnum, cumin, hvítlauk, sítrónusafa og corianderlaufunum út í, blandið í nokkrar sekúndur þannig að blandist allt vel saman án þess þó að verða að mauki.
- Skiptið deiginu í 10-12 hluta og notið hendurnar til að búa til buffin.
- Hitið í ofni í um 20-25 á hvorri hlið við um 200°C. Hitið lengur ef þið viljið harðari skorpu.
- Fyrir sósuna skuluð þið blanda saman jógúrti eða ab mjólk og fersku kryddi. Einnig er gott að setja hvítlauk út í ásamt smá pipar.
Sósan:
- Blandið saman jógúrti eða ab mjólk og fersku kryddi. Einnig er gott að setja hvítlauk út í ásamt smá pipar.
- Berið fram með salati (t.d. spínati eða lambhagasalati, þurrristuðum furuhnetum, kirsuberjatómötum, ólífum o.fl.).
- Hægt er að nota Borlotti baunir eða Cannellini baunir í stað kjúklingabaunanna.
Eggjadropa- og krabbakjötssúpa
27. febrúar, 2003
Voða létt, próteinrík og góð súpa, mestmegnis vatn og maískorn en afskaplega bragðgóð og fljótleg í undirbúningi. Krabbakjötið er nokkuð dýrt en það gefur gott bragð. Það er hægt að kaupa bæði frosið og niðursoðið krabbakjöt.
Eggjadropa- og krabbakjötssúpa
Fyrir 2-3
- 250 gr maískorn (án viðbætts sykurs)
- 2 eggjahvítur
- 2 msk maísmjöl (þ.e. sósujafnari. Má líka nota arrowroot)
- 1 tsk sesamolía
- 2 stórir gerlausir grænmetisteningar t.d. frá Rapunzel
- 8 dl vatn
- 1 msk hrísgrjónavín eða þurrt sérrí (hægt að nota hrísgrjónaedik líka)
- 2 tsk mjög smátt söxuð, fersk engiferrót
- 1 tsk heilsusalt (Herbamare)
- 1 tsk ávaxtasykur
- 200 gr frosið eða niðursoðið krabbakjöt
Aðferð:
- Blandið maísmjölinu saman við 1-2 msk af vatni. Hrærið vel þangað til kekkirnir hverfa.
- Hrærið eggjahvíturnar vel.
- Blandið eggjahvítunum og maísmjölið vel saman og setjið til hliðar.
- Hleypið suðunni upp í stórum potti og blandið maískornunum og grænmetiskraftinum saman við.
- Látið malla (ekki sjóða) í 15 mínútur, ekki með lokinu á.
- Bætið hrísgrjónavíninu eða sérríinu, engiferinu, saltinu og ávaxtasykrinum saman við.
- Hleypið suðunni aftur upp og lækkið hitann þangað til kraumar.
- Bætið krabbakjötinu út í.
- Hrærið í eggjahvítu/maísmjölsblöndunni og hellið henn út í súpuna, í lítilli, en stöðugri bunu og hrærið í súpunni allan tímann (gætið þess að láta súpuna ekki sjóða). Eggjadroparnir verða að mjóum, hvítum ræmum.
- Bætið sesamolíunni við og látið malla í 2 mínútur án þess að sjóði.
- Kryddið með salti og pipar.
- Hægt að skipta krabbakjötinu út og nota rifið kjúklingakjöt í staðinn.
- Einnig hægt að hafa þetta bara með maískornum og jafnvel smávegis af mjúku tofu ef maður borðar ekki kjöt.
Einföld fiskisúpa
13. janúar, 2008

Þessi fiskisúpa er bæði einföld og ódýr og upplögð þegar maður á t.d. ýsusporð (ýsuafgang) í ísskápnum. Sem er oft einmitt í miðri viku. Þessi súpa kemur úr bókinni The Soup Bible sem er svo sannarlega biblía að mínu skapi enda uppfull af góðum súpuuppskriftum. Ég elska súpur... helst ef þær eru bragðsterkar (ekki of samt) og heitar. Með nýbökuðu brauði finn ég hamingjuna streyma um mig með hverri skeið. Sérstaklega ef er kalt í veðri. Ég skil ekki kaldar súpur, finnst þær algjörlega tilganslausar. Kaldar súpur eiga að heita drykkir í súpuskál. Það ruglar mig að borða kalda súpu með skeið. Ég verð eins og pínu einhverf og verð hrikalega óróleg þegar ég sit fyrir framan skál af einhverju köldu sem heitir súpa því það er eitthvað svo algjörlega rangt við kaldar súpur, algjörlega rangt. Ég er kannski bara með ’súpu-fælni’ (soupaphobia ha ha)! Upprunaleg uppskrift innihélt rjóma og meiri vökva en mér finnst betra að hafa hana aðeins þykkari og bragðmeiri og rjóminn finnst mér óþarfur nema spari. Þessi súpa hentar vel fyrir þá sem eru með glúteinóþol eða ofnæmi því það er ekkert hveiti eða spelti í súpunni. Súpan ætti eiginlega að heita
Ódýra, ósparilega fiskisúpan í miðri viku en
Einföld fiskisúpa er kannski meira aðlaðandi.
Einföld fiskisúpa
Fyrir 4
- 1/2 laukur, saxaður gróft
- 175 gr sæt kartafla, afhýdd og söxuð gróft
- 175 hvítur fiskur (ýsa, þorskur, steinbítur), bein- og roðhreinsaður
- 50 gr gulrót, söxuð
- 1 tsk oregano
- 1/2 tsk kanill
- 1 lítri vatn og 2-3 grænmetisteningar. Ef þið finnið lífrænt framleiddan fiskikraft, kaupið hann þá, annars má nota grænmetiskraft og fiskisósu
- 3 msk fiskisósa (nam plah). Fæst í austurlensku hillunum í flestum stórmörkuðum
- 75 ml léttmjólk (eða magur rjómi, spari)
Aðferð:
- Setjið lauk, sæta kartöflu, fisk, gulrót , oregano, kanil og 800 ml af vatni (ásamt teningum og fiskisósu) út í stóran pott. Ef þið eruð með fiskiafganga (ekki ósoðinn fisk) þá skuluð þið ekki setja fiskinn út í strax.
- Látið sjóða þangað til kartöflurnar eru orðnar mjúkar.
- Kælið aðeins.
- Notið töfrasprota eða matvinnsluvél og maukið allt vel (ef þið eruð með matvinnsluvél, maukið þá í litlum skömmtum). Ef þið eruð með fiskiafganga þá má setja þá út í hér og mauka áfram.
- Setjið súpuna aftur í pottinn, bætið mjólkinni við og hitið upp að suðumarki.
- Berið fram með heitu, nýbökuðu brauði til að ná hinni fullkomnu hamingju.
Ferskur túnfiskur og eggjanúðlur
30. janúar, 2006

Þetta er afar próteinrík og holl fæða og ekki amalegt að fá sér svona fína blöndu af kolvetnum og próteinum eftir ræktina! Gerist varla betra. Ég mæli ekki með því að ódýr, frosinn túnfiskur sé notaður, það er alveg þess virði að eyða aðeins meiri pening og fara í fiskbúðina (t.d. Fylgifiska Suðurlandsbraut) og kaupa ferskan og fínan túnfisk.
Ferskur túnfiskur og eggjanúðlur
Fyrir 2-3
- 4 x 175 gr ferskur túnfiskur
- 4 vorlaukar sneiddir fínt
- 2 cm. fersk engiferrót, söxuð fínt
- 250 gr eggjanúðlur, soðnar samkvæmt leiðbeiningum
- 6 msk tamarisósa
- 3 msk sesamolía
- 1 msk ávaxtasykur
- 1 msk hrísgrjónaedik
- 20 gr saxað coriander
- Fínt rifinn börkur og safi af 1 límónu (lime)
Aðferð:
- Sjóðið núðlurnar samkvæmt leiðbeiningum.
- Hrærið saman 3 msk af tamarisósu og 2 msk af sesamolíu ásamt hrísgrjónaedikinu.
- Hellið vatninu af núðlunum eftir suðu og hellið dressingunni yfir, hrærið vel.
- Látið kólna.
- Hærið saman coriander og helminginn af vorlaukunum.
- Setjið engiferið, restina af tamarisósunni og sykurinn í pott og hitið að suðu eða þangað til sykurinn hefur bráðnað.
- Látið sjóða í um 1 mínútu.
- Hrærið saman við, berkinum af límónunni ásamt safa af hálfri límónu.
- Látið kólna í 30 mínútur.
- Bætið við restinni af sesamolíunni og límónusafanum.
- Rétt áður en að steikingu kemur. Hitið þá túnfiskinn á pönnu sem búið er að strjúka yfir með smá ólífuolíu. Eldunartíminn fer eftir því hversu bleikur túnfiskurinn má vera en best er að hafa hann sem hráastan (finnst mér. Þetta er þó algerlega smekksatriði). Ágætt að miða við 3-4 mínútur fyrir meðalsteikingu.
- Skiptið núðlunum á 4 diska og setjið einn túnfiskbita á hvern disk.
- Hellið dressingu yfir hvern bita og skreytið með vorlauknum og smá corianderblöðum.
Fiskibollur
2. nóvember, 2008

Þessar gömlu góðu, íslensku fiskibollur svíkja engan og líklega eru flest íslensk heimili með einhvers konar fiskibollur á boðstólum. Hins vegar svíkja gömlu, góðu fiskibollurnar sem steiktar eru í smjöri, heilsuna. Ég hef aldrei á ævinni steikt mat sem maður getur auðveldlega bakað og smjör hef ég aldrei á ævinni keypt né notað. Það verður kannski ekki sama áferð á bökuðum fiskibollum en steiktur, brasaður matur er fyrir mér ekki mannamatur. Um það eru svo sem skiptar skoðanir he he. Þessi máltíð er ódýr (ef maður kaupir frosinn fisk) og er holl, próteinrík og létt/fitulítil. Það er upplagt að gera svolítið magn í einu, baka og svo frysta nokkrar bollur saman til að borða síðar.
Fiskibollur
Gerir 12-15 bollur
- 450 gr ýsa (einnig má nota þorsk). Ódýrast er að kaupa frosinn fisk
- 1/4 laukur, saxaður gróft
- 1/4 blaðlaukur, saxaður gróft (má nota lauk í staðinn)
- 1 hvítlauksgeiri, saxaður gróft
- 1/2 tsk ferskt engifer, saxað fínt (má sleppa)
- 1 egg
- 1/2 dl sojamjólk (einnig má nota hrísmjólk, haframjólk eða undanrennu)
- 3 msk kartöflumjöl eða spelti
- 1 tsk pipar
- 1 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
- 1 tsk kókosolía
Aðferð:
- Setjið laukinn, hvítlaukinn, engiferið og blaðlaukinn í matvinnsluvélina og blandið í 10 sekúndur.
- Setjið fiskinn og eggið saman við laukinn og maukið ágætlega (þannig að hann losni vel í sundur).
- Bætið speltinu, saltinu og piparnum saman við og blandið í nokkrar sekúndur eða þannig að úr verði eins konar deig.
- Bætið mjólkinni saman við eins og þurfa þykir, deigið ætti ekki að vera of blautt.
- Bætið kókosolíunni saman við.
- Mótið bollur með matskeið (gott að vera í plasthönskum og dýfa skeiðinni í vatn inn á milli).
- Setjið bökunarpappír á bökunarplötu.
- Raðið bollunum á plötuna.
- Bakað í ofni við 180° C í um 15-20 mínútur.
- Snúið við og bakið í 10-15 mínútur.
- Berið fram með góðu salati, byggi eða hýðishrísgrjónum og tamarisósu.
- Bollurnar má geyma í kæli og hita daginn eftir og upplagt er að taka þær með í nestið.
Fiskiréttur frá Goa
21. september, 2004

Þetta er frekar einfaldur indverskur fiskiréttur. Goa er eyja rétt við utan Indland sem að Portúgalar réðu einu sinni yfir. Það skiptir svo sem engu máli, rétturinn er fínn og hollur. Ekki láta hráefnið hræða ykkur en best er að nálgast þau í austurlenskum matvörubúðum. Ef þið finnið ekki curry leaves er best að sleppa þeim (það kemur ekkert annað í staðinn). Ef þið finnið ekki cuminfræ og corianderfræ má nota malaðar útgáfur af fræjunum. Ef þið eruð viðkvæm fyrir chilli, skuluð þið bara nota einn í staðinn fyrir þrjá.
Fiskiréttur frá Goa
Fyrir 4-5
- 35 gr kókosmjöl (gróft), ristað á pönnu
- 2 hvítlauksgeirar, afhýddir og saxaðir gróft
- 3 litlir chilli (rauðir), saxaðir gróft
- 2 tsk corianderfræ
- 2 tsk cumin fræ (ekki kúmen)
- 1/2 tsk malað turmeric
- 1 msk tamarisósa
- 1 msk ferkst engifer, afhýtt og saxað gróft
- 1 laukur saxaður meðalgróft
- 1 laukur saxaður gróft
- 75 ml kalt vatn
- 1 msk kókosfeiti
- 2 meðalstórir tómatar, saxaðir meðalgróft
- 8 curry lauf (fæst í austurlenskum búðum og sumum matvöruverslunum). Ef þau fást ekki má sleppa þeim
- 175 ml grænmetissoð (1 gerlaus teningur frá Rapunzel) eða fiskisoð fyrir þá sem vilja
- 300 ml kókosmjólk (enska: coconut milk)
- 1 kg ýsa (eða þorskur fyrir þá sem borða þorsk) skorin í bita
Aðferð:
- Maukið saman í matvinnsluvél; kókosmjöl, hvítlauk, chilli, coriander- og cuminfræin, turmeric, tamarisósu, engifer og gróft saxaða laukinn ásamt kalda vatninu þangað allt er maukað saman. Gætuð þurft að láta matvinnsluvélina ganga í 1 mínútu.
- Hitið kókosfeitina (ásamt smá vatni ef þarf) á stórri pönnu (eða grunnum potti).
- Hitið smátt saxaða laukinn þangað til hann er orðinn örlítið gulleitur (í um 5 mínútur).
- Bætið kókosblöndunni úr matvinnsluvélinni saman við og hitið þangað til kemur góð lykt eða í nokkrar mínútur. Hrærið reglulega í öllu á pönnunni.
- Bætið tómötunum, curry laufunum, grænmetisteningnum og sjóðandi heita vatninu út á pönnuna.
- Látið malla, ekki með lokinu á í um 10 mínútur þangað til sósan fer að þykkna.
- Bætið kókosmjólkinni út í.
- Bætið fiskinum við og látið malla við vægan hita í um 10 mínútur með lokinu á eða þangað til fiskurinn er orðinn hvítur og laus í sér.
- Berið fram með bygggrjónum, hýðishrísgrjónum, basmati hýðishrísgrjónum, naan brauði, gúrkusósu o.s.frv. Athugið að þeir sem hafa glúteinóþol mega ekki borða bygggrjón eða naan brauð.
Fiskur með kókosflögum og basil
27. febrúar, 2003

Ég hef notað frosinn þorsk í þennan rétt en það er miklu betra að nota ferskan þorsk. Ég er reyndar hætt að borða þorsk (þið getið séð hvers vegna í uppskriftinni: "Þorskfille Provincale") þannig að fersk ýsa er málið. Það er ástæða fyrir því að það er svolítið mikið af "sósu" í uppskriftinni en hún er sú að það er rosa gott að bera fram grjón með fiskinum sem drekka í sig sósuna. Ef engin grjón eru borin fram má minnka undanrennuna niður í 150 ml. Þessi réttur er afar magur og hollur.
Fiskur með kókosflögum og basil
Fyrir 3-4
- 450 gr ýsu (eða þorsk) fille (bein og roðlaus)
- 25 gr spelti
- 1 marinn hvítlauksgeiri
- 2 msk red curry paste (rautt karrímauk í krukkum. Finnið eitthvað hollt, gott kryddmauk, án viðbættra litarefna, bragðefna eða sykurs. Best að kaupa lífrænt framleitt)
- 1 msk fiskisósa (Nam Plah)
- 250 ml undanrenna eða léttmjólk
- 2 msk kókosflögur t.d. frá Himneskri hollustu (eða kókosmjöl)
- 175 gr kirsuberjatómatar skornir í helminga
- 20 fersk basil blöð, skorin í ræmur eða rifin
- Heilsusalt (Herbamare) og pipar
- 1 tsk kókosfeiti eða ólífuolía
Aðferð:
- Skerið fiskinn í meðalstóra bita (ég miða við 4 bita á hvert flak eða svo).
- Setjið speltið í skál og kryddið með salti og pipar.
- Veltið bitunum í speltinu og þekið vel.
- Hitið fiskinn á pönnu með kókosfeitinni eða ólífuolíu (og vatni ef þarf) í 3-4 mínútur.
- Blandið saman hvítlauk, curry paste, fiskisósunni, mjólkinni og kókosnum.
- Hellið blöndunni yfir fiskinn og hitið að suðu.
- Bætið tómötunum við og látið krauma í 5 mínútur (gætið þess að ofhita ekki því þá fara steinarnir að leka út úr tómötunum.
- Dreifið basil blöðunum yfir og hrærið varlega svo að fiskurinn fari ekki í sundur.
- Best er að hafa grjón með og þá helst hýðishrísgrjón eða bygggrjón (enska: Pearl Barley).
Grillað laxaroð
6. nóvember, 2009

Sumir kannski vita að hægt sé að borða laxaroð en aðrir hugsa eflaust með sér að ég sé orðin galin. Ég ætla bara að segja ykkur að eftir að þið smakkið get ég næstum því lofað ykkur að þið eigið eftir að hugsa grátandi til baka í ÖLL þau skipti sem þið hafið hent laxaroði og að þið munið aldrei, aldrei aftur henda því. Grillað laxaroð er bæði svakalega hollt og gott og frábært sem meðlæti t.d. ofan á salöt, sem snakk og auðvitað inn í sushirúllur (en þar nota ég það mest). Ég hef oft, oft, oft beðið um að fá laxaroð með í poka þegar ég kaupi lax og yfirleitt horfir afgreiðslufólk á mig eins og ég sé snar-galin (sem ég er jú pínulítið). Hins vegar hafa þau í Fylgifiskum verið mjög skilningsrík og eru farin að lauma auka laxaroði ofan í pokann þegar ég versla við þau við mikla gleði mína. Ég á sushibók og í henni er uppskrift að steiktu laxaroði en það er óðs manns æði enda er næg fita í roðinu og það verður stökkt og ljúffent eins og snakk með því að grilla það. Ég lærði þessa aðferð af Elínu mágkonu minni sem lærði aðferðina af kanadískum sushisnillingi. Prófið að bera þetta fram sem snakk í næsta matarboði og verið undir það búin að hakan á gestum detti niður þegar þeir smakka þessa dásemd. Ég hef prófað silungaroð líka en finnst laxinn margfalt betri. Aðferðin virkar flókin því lýsingin er löng en það er bara vegna þess að ég hef hana ítarlegra en kannski þarf. Mér finnst algjörlega frábært að geta nýtt afurðina svona vel og þurfa ekki að henda neinu…þetta væri góð viðskiptahugmynd fyrir einhvern áhugasaman! Þetta er uppskrift sem ég ætlaði að taka með mér í gröfina en af því að ég ætla að verða svo langlíf (því ég borða svo hollt) þá fannst mér ómögulegt að bíða í tugi ára með að birta uppskriftina. Hún er sem sagt birt undir miklum þrýstingi þeirra sem hafa fengið að smakka grillað laxaroð hjá mér í gegnum tíðina.
Grillað laxaroð
Fyrir 3-4 sem snakk
- Roð af heilum laxi (getið yfirleitt látið roðfletta fyrir ykkur í búðinni)
- 2 msk tamarisósa (einnig má nota sojasósu)
- 2 msk fiskisósa
- 1 msk sesamolía
- 1 msk sesamfræ (má sleppa)
Aðferð:
- Hitið ofninn í 220°C
- Ef þið hafið ekki látið roðfletta fyrir ykkur skuluð þið roðfletta laxinn (haldið í sporðinn með hreistrið niðri og setjið beittan hníf undir kjötið, skerið að roðinu og togið í roðið í leiðinni og þannig losið þið kjötið frá).
- Leggið roðið (hreistrið niður) á stórt bretti.
- Skafið allt kjöt innan úr með matskeið. Skiljið aðeins eftir af því sem er næst roðinu eftir (ljósfjólublátt að lit) en fjarlægið allt bleika kjötið sem varð eftir).
- Þið þurfið líklega tvö eldföst mót því roðið má ekki krumpast. Notið eldföst mót sem eru ekki spari því þau verða svolítið ljót.
- Hellið nokkrum dropum af sesamolíu í botninn á eldföstu mótunum og dreifið úr með fingrunum (gott að nota einnota hanska).
- Skerið roðið í tvennt og leggið bútana (hreistrið niður) í eldföstu mótin þannig að þau séu ekkert krumpuð.
- Hellið tæpri hálfri matskeið af sesamolíu yfir báða bútana.
- Hellið fiskisósunni yfir roðið.
- Hellið tamarisósunni yfir roðið.
- Dreifið úr þessu öllu með fingrunum og nuddið létt inn í roðið.
- Hellið sesamfræjunum yfir ef þau eru notuð.
- Setjið eldföstu mótin inn í ofn (gott að setja álpappír ofan á þau).
- Galdurinn er að grilla roðið rétt þannig að það verði ekki brennt og ekki of mjúkt.
- Grillið roðið í um 25 mínútur en kíkið á roðið eftir fyrstu 20 mínúturnar og fylgist með því á 5 mínútna fresti eftir það. Stundum þarf meiri tíma og stundum minni.
- Roðið á ekki að vera mjög blautt að ofan og á að virka eins og það sé orðið stíft án þess að það sé brunnið. Mikilvægt er að brenna ekki roðið.
- Þegar roðið er tilbúið á að vera hægt að taka það upp úr eldfasta mótinu og halda því lóðréttu án þess að það sígi niður. Ástæðan fyrir því að það á að vera svona stíft er að þið komið til með að brjóta roðið í bita.
- Slökkvið á ofninum og látið roðið kólna alveg inni í ofninum.
- Brjótið roðið í bita og berið fram í litlum skálum (maður borðar ekki mikið í einu) eða dreifið yfir salat, út á núðlurétti o.s.frv.
- Grillað roð geymist í ísskáp í nokkra daga.
- Nota má sojasósu í stað tamarisósu. Athugið að sojasósa inniheldur hveiti (og því ekki góð fyrir þá sem hafa glúteinóþol).
- Reynið að finna lífrænt framleidda fiskisósu, þær fást stundum í heilsubúðum. Ég hef stundum sleppt því að nota fiskisósuna og nota þá í staðinn 2 msk af tamarisósu til viðbótar sem ég hræri í 1 tsk agavesíróp.
- Frysta má roðið ógrillað (hreint þ.e. beint af laxinum) og grilla það svo síðar.
Humarsúpa
6. nóvember, 2009

Humar er mjög próteinríkur og magur og inniheldur omega 3 fitusýrur. Hann þarf ekki að kosta mann neglur og nýra ef maður kaupir brotna skel og frekar smáan humar. Hann bragðast yfirleitt jafn vel en er ekki nægilega fallegur fyrir t.d. grillveislur en fínn í salöt og súpur. Bestu humarsúpu í heimi gerir tengdó og hún notar engan grínhumar, ó nei. Humarinn sem hún notar er vandræðalega stór og fallegur, maður tímir ekki að borða hann. Ég ætla ekki einu sinni að reyna að keppa við hana í humarsúpugerð he he. Það sem mér finnst sniðugt við humarsúpur er að maður sýður skelina fyrst til að útbúa soð og það finnst mér afskaplega gaman því þannig drýgir maður alla afurðina. Þessi uppskrift er afar holl því hún inniheldur engan rjóma og er meira í líkingu við soð/þunna súpu heldur en þykka rjómasúpu. Það má að sjálfsögðu þykkja hana eftir smekk. Ef þið viljið hitaeiningasnauða, fitulitla en bragðmikla súpu, þá er þessi fyrir ykkur. Athugið að aðferðin virkar mjög flókin en er það alls ekki, ég brýt bara hvert skref vel niður svo þau virka kannski mörg. Mér finnst alveg magnað að hugsa til þess að þegar afi minn heitinn var á sjó (var kokkur á skipi í 60 ár), þá var humrinum hent því hann þótti drasl!!! Við Íslendingar vorum svolítið eftir á hérna áður fyrr. Já og eitt...ég skil ekki alveg...ég skrifa alltaf sumarhúpa í staðinn fyrir humarsúpa...he he.
Humarsúpa
Fyrir 2-3
- 500 gr humar í skel (má vera lítill og brotinn)
- 2-3 gerlausir grænmetisteningar (eða lífrænt framleiddir fiskiteningar ef þið finnið svoleiðis)
- 2 msk fiskisósa (Nam Plah). Má sleppa ef notaðir eru fiskiteningar
- 1 meðalstór gulrót
- 2 hvítlauksrif
- 1 lítri vatn
- 1/2 laukur
- 1 msk og 1 tsk kókosolía
- 1 dl mjólk (einnig má nota hrísmjólk eða sojamjólk. Fyrir þykkari súpu má nota hafrarjóma eða matreiðslurjóma)
- 2 msk maísmjöl (eða arrow root)
- 1 msk tómatmauk (puree)
- 1/2 tsk karrí
- Smá klípa salt (Himalaya eða sjávarsalt)
Aðferð:
- Afþýðið humarinn ef frosinn.
- Klippið í bakið á skelinni með skærum.
- Takið humarinn úr skelinni, skolið og sigtið.
- Hreinsið svörtu línuna úr humrinum (garnirnar…oj) með litlum hníf.
- Setjið humarinn á disk og geymið í ísskápnum. Ef humarinn er mjög stór er gott að skera hann í minni bita (miða við munnbita).
- Skolið skeljarnar, sigtið og setjið í skál.
- Saxið hvítlaukinn, laukinn og gulrótina gróft.
- Setjið 1 tsk kókosolíu og smá vatn í stóran súpupott.
- Setjið skeljarnar út í og hitið í 10 mínútur
- Bætið saxaða hvítlauknum, lauknum og gulrótinni út í og hitið í 2-3 mínútur.
- Bætið 1 lítra af vatni út í ásamt grænmetisteningunum, tómatmaukinu, karríinu og fiskisósunni.
- Setjið lokið yfir pottinn og látið malla við vægan hita í klukkutíma (en gjarnan lengur).
- Hrærið vel saman 1 msk af kókosolíu og maísmjölinu. Bætið mjólkinni smám saman út í.
- Þegar soðið hefur mallað í a.m.k. klukkutíma skuluð þið sigta soðið í stóra skál. Henda má grænmetinu og skeljunum.
- Setjið soðið aftur í pottinn og látið suðuna koma upp.
- Lækkið undir súpunni og hellið mjólkurblöndunni út í.
- Sumum finnst gott að setja smávegis af hafrarjóma (eða matreiðslurjóma) út í súpuna og skal það þá gert hér.
- Saltið súpuna eftir smekk (mér finnst gott að hafa hana svolítið salta).
- 10-15 mínútum áður en bera á súpuna fram skuluð þið bæta humrinum út í. Hann ætti ekki að sjóða heldur aðeins hitna í gegn. Hann stífnar og verður hvítur þegar hann er tilbúinn.
- Berið fram strax.
- Gott er að bera súpuna fram með nýbökuðu brauði.
- Hægt er að útbúa soðið með góðum fyrirvara og frysta. Eins líka ef þið þekkið einhvern sem er að henda humarskel er um að gera að fá að eiga hana, frysta og sjóða síðan niður!
- Til að þykkja súpuna má setja smávegis af hafrarjóma eða matreiðslurjóma út í.
Indverskur fiskiréttur
18. apríl, 2003
Þetta er einn af uppáhalds fiskiréttunum hans Jóhannesar. Ég gæti trúað að væri gott að nota sósuna fyrir kjúkling eða grænmeti líka því hún er mild og bragðgóð.
Indverskur fiskiréttur
Fyrir 2-3
- 500 gr ýsuflök, roðflett og beinhreinsuð
- 2 tsk karrí
- 1 tsk fish masala (má sleppa)
- 1 laukur, saxaður
- 1 hvítlauksgeiri, pressaður eða saxaður (má vera meira)
- 1 tsk ferskt engifer, rifið eða saxað smátt
- 2 lárviðarlauf
- 1 tsk steinselja (nska: parsley)
- 2-3 msk mangomauk (má gjarnan vera svolítið "spicy" þ.e. vel kryddað og sterkt
- 2 tsk maísmjöl (enska: corn flour, einnig má nota arrow root)
- 200 gr fitusnauður rjómaostur (t.d. Philadelphia Light) eða Curd ostur (hleypiostur, ystingur)
- 1-2 dl léttmjólk + meira eftir þörfum og smekk
- 1 tsk heilsusalt (Herbamare)
- 2 tsk nigella fræ (svört fræ sem eru eins og tár í laginu, eru oft í naan brauðum og fást í austurlenskum matvörubúðum)
- Svartur pipar
- 1 tsk kókosfeiti eða ólífuolía
Aðferð:
- Látið karrý, lauk, hvítlauk, engifer og lárviðarlauf krauma í kókosfeiti eða ólífuolíu í u.þ.b. 3 mínútur. Notið vatn til viðbótar ef þarf.
- Takið lárviðarlaufið upp úr.
- Setjið curd ostinn (eða magra rjómaostinn) út í og hrærið í þar til hann bráðnar
- Bætið mjólk, maísmjöl og mango chutney saman við.
- Sjóðið við vægan hita í 2 mínútur.
- Hrærið í allan tímann.
- Kryddið.
- Skerið fiskiflökin í bita.
- Setjið fiskinn út í sósuna og látið sjóða við vægan hita í 4-5 mínútur með lokinu yfir pönnunni.
- Berið fram með chapati brauði og Coriander og papya raita. Athugið að þeir sem hafa glúteinóþol mega ekki borða chapati brauð en það má bera fram glúteinlaust brauð í staðinn.
- Sósan þynnist aðeins eftir að fiskurinn er kominn út í en ef ykkur finnst hún ennþá og þykk, bætið þá smá mjólk út í.
- Berið fram með villihrísgrjónum, eða brúnum hýðishrísgrjónum.
- Það er líka gott að bera fram gróft snittubrauð (glúteinlaust fyrir þá sem hafa glúteinóþol) og salat með þessum rétti.
Kínversk ýsa
27. febrúar, 2003
Hljómar skringilega kannski, kínversk ýsa, en þessi réttur er algjört nammi, algjör dekurýsa og alveg þess virði að prófa hann. Bráðhollur réttur í þokkabót. Mig minnir að upprunalega hafi þessi uppskrift komið úr Nýkaupsbókinni hans Sigga Hall.
Kínversk ýsa
Fyrir 4
- 800 gr ýsuflök, snyrt og roðflett
Kryddlögur
- 1 msk extra virgin ólífuolía
- 1 msk sesamolía
- 3 msk dökk tamarisósa (í upprunalegu uppskriftinni var soyasósa)
- 1 msk hvítvínsedik
- 1 tsk ávaxtasykur (sykur var í upprunalegu uppskriftinni) eða agavesíróp
- 3 cm. engiferrót, flysjuð og söxuð mjög smátt
- 2-3 hvítlauksgeirar, saxaðir
- 4-8 vorlaukar (fer eftir stærð), skornir í 5 cm. bita
- 1 rauð eða gul paprika,skorin í strimla
Aðferð:
- Skerið ýsuna í 12 jafnstóra bita.
- Blandið saman olíunni, tamarisósunni, edikinu og ávaxtasykrinum og látið engiferið, hvítlaukinn, vorlaukinn og paprikustrimlana þar út í.
- Hellið þessu yfir ýsubitana og látið þá liggja í leginum í 1-2 tíma eða meira
- Takið ýsuna upp úr og látið í eldfast fat.
- Takið sem mest af grænmetinu sem er í kryddleginum og látið það með skeið jafnt ofan á ýsubitana og látið fylgja vel með af leginum.
- (kryddið smá með svörtum pipar).
- Látið í 140°C heitan ofn í 10-15 mínútur eða þar til ýsan er tilbúin.
- Berið fram með brúnum hrísgrjónum og tamarisósu.
Kókos- og laxasúpa með hrísgrjónanúðlum
20. maí, 2007

Þessi er frábær þegar maður á afgang af laxi í frystinum. Hún er líka mjög holl því það er holl fita í laxinum sem er okkur nauðsynleg. Ég notaði soba núðlur (úr bókhveiti) en einnig má nota hrísgrjónanúðlur eða venjulegar núðlur fyrir þá sem þola glútein. Uppskriftin kemur úr lítilli bók sem ég á sem heitir einfaldlega Soup. Ákaflega mild og bragðgóð súpa, upplögð á köldu vorkvöldi. Súpan hentar þeim sem hafa glúteinóþol því hrísgrjóna og bókhveitisnúðlur innihalda að öllu jöfnu ekki glútein.
Kókos- og laxasúpa með hrísgrjónanúðlum
Fyrir 3-4
- 2 stilkar sítrónugras (enska: lemon grass)
- 2 hvítlauksgeirar, saxaðir gróft
- 1 stór laukur, saxaður
- 1 tsk turmeric
- 1 tsk paprikuduft (eða chilliduft ef þið viljið sterkari súpu)
- 1 tsk kókosfeiti
- 400 ml létt kókosmjólk (enska: coconut milk light)
- 300 ml sjóðandi vatn + 1 grænmetis eða fiskikraftur frá Rapunzel (ef notaður er grænmetisteningur er gott að bæta við 1/2 tsk af fiskisósu (Nam Plah))
- 225 gr roðhreinsaður lax, í 2,5cm bitum
- 125 gr hrísgrjóna eða soba núðlur (núðlur úr bókhveiti)
- Heilsusalt (Herbamare)
- 200 gr baunaspírur (má sleppa)
- Ferskt coriander til að skreyta með (má sleppa)
- 1 lime í sneiðum til að skreyta með (má sleppa)
Aðferð:
- Fjarlægið ytri blöðin af sítrónugrasinu og saxið neðri helminginn (sem er breiðari en sá efri). Ætti að vera um 2 cm. bútur. Fleygið afgangnum eða notið síðar (geymist vel á þurrum og köldum stað)
- Setjið sítrónugrasið í matvinnsluvél ásamt lauknum, hvítlauknum, turmericinu, paprikuduftinu og blandið vel (þangað til þetta er orðið að mauki með pínulitlum bitum í).
- Hitið kókosfeitina á djúpri pönnu eða grunnum potti. Bætið vatni við ef þarf.
- Setjið maukið á pönnuna og hitið í 5 mínútur eða þangað til allt fer að ilma. Hrærið stöðugt í maukinu.
- Bætið kókosmjólkinni saman við ásamt grænmetissoðinu og látið suðuna koma upp.
- Lækkið á hitanum, setjið lokið á pönnuna og látið malla í 15 mínútur.
- Bætið laxabitunum saman við og saltið eftir smekk.
- Látið malla í um 5 mínútur með lokinu á eða þangað til fiskurinn er tilbúinn.
- Á meðan skuluð þið sjóða núðlurnar samkvæmt leiðbeiningum.
- Sigtið núðlurnar og skolið með köldu vatni.
- Ef baunaspírurnar eru notaðar skal setja þær út í súpuna og láta malla í nokkrar mínútur.
- Skiptið núðlunum á milli diskanna og hellið súpunni yfir með ausu.
- Skreytið með corianderlaufum og berið fram með lime sneiðum.
- Nota má alls kyns núðlur í réttinn, fyrir þá sem þola glútein er gott að nota udon núðlur, flatar núðlur, eggjanúðlur, speltnúðlur o.fl.
- Nota má silung í stað þess að nota lax. Einnig má nota rækjur.
Kræklinga- og kartöflusúpa
20. maí, 2007

Þessi súpa er saðsöm og góð og ódýr í þokkabót, kostar innan við 1000 krónur fyrir fjóra! Það þykir nú ekki mikið nú til dags. Samt sem áður er þetta súpa sem ég yrði glöð að fá á veitingahúsi, svo góð þótti mér hún. Uppskriftin kemur úr bók sem heitir ’Cook’s Library: Potatoes’. Upphaflega átti að vera 300ml af rjóma og 600 ml af venjulegri mjólk en ég er búin að ’létta’ súpuna aðeins með undanrennu og magrari rjóma. Fyrir fylltari súpu getið þið notað meiri rjóma. Mér finnst gott að hafa þessa súpu svolítið í þykkari kantinum og notaði ég því aðeins minni vökva en uppskriftin gaf. Það má þó setja minni eða meiri mjólk allt eftir því hvað manni finnst gott. Súpan er rosa góð með nýbökuðu brauði og það er létt hvítlauks-sjávarbragð af henni. Gott er að eiga smá afgang daginn eftir, þykkja aðeins með sósujafnara (kartöflumjöli eða maismjöli) og nota sem pastasósu. Þó uppskriftin virki flókin er hún það alls ekki, sérstaklega ekki ef maður notar niðursoðinn krækling. Kartöflurnar getur maður líka verið búinn að sjóða áður og þá tekur einungis um 20 mínútur að búa til þennan kvöldmat.
Kræklinga- og kartöflusúpa
Fyrir 3-4
- 1 kg ferskur kræklingur eða 425 gr í dós (með vökva). Geymið vökvann.
- 3 msk spelti (kartöflumjöl fyrir þá sem hafa glúteinóþol)
- 400 ml undanrenna
- 300 ml léttmjólk
- 125 ml kaffirjómi, matreiðslurjómi eða soyarjómi
- 1-2 hvítlauksgeirar, marðir
- 1 stór hnefafylli, steinselja (laufin notuð, stönglunum hent)
- 300 gr kartöflur soðnar (gott að skera í litla bita áður en þær eru soðnar til að flýta fyrir suðu. Má setja með eða án hýðis
- Heilsusalt (Herbamare)
- Svartur pipar
Aðferð:
- Ef ferskur kræklingur er notaður þarf að byrja á því að henda þeim sem hafa brotnar
- skeljar og þeim sem lokast ekki strax um leið og maður bankar í skelina.
- Skolið undir köldu vatni og togið ’hárin’ af. Skrapið hrúðurkarla af með beittum hnífi ef þeir eru til staðar.
- Setjið kræklinginn í stóran pott, lokið vel og sjóðið á háum hita í um 4 mínútur eða þangað til allar skeljarnar opnast. Ef einhverjar opnast ekki, hendið þeim þá.
- Látið kólna og fjarlægið svo úr skelinni. Sigtið soðvatnið ásamt skeljunum í sigti og geymið vatnið.
- Ef notaður er kræklingur í dós skal opna dósina og geyma kræklinginn í dósinni ásamt vökvanum.
- Blandið saman speltinu og nokkrum matskeiðum af mjólk í stóra skál. Hrærið varlega þangað til þykkt deig hefur myndast.
- Bætið smávegis til viðbótar af mjólk og hrærið vel.
- Bætið afgangnum af mjólkinni ásamt rjóma og undanrennu í pott og látið suðuna koma upp.
- Hrærið speltblöndunni (eða kartöflumjölsblöndunni) út í (með sósupísk). Lækkið hitann í miðlungshita og látið krauma í 15 mínútur eða þangað til súpan þykknar aðeins.
- Blandið steinselju út í og hitið í 2-3 mínútur.
- Látið súpuna kólna aðeins og blandið í matvinnsluvél, blandara eða notið töfrasprota í um 5 mínútur.
- Setjið súpuna aftur í pott og bætið kræklingnum saman við ásamt vökvanum (50 ml af soðvatninu ef notaður var ferskur kræklingur).
- Setjið kartöflurnar saman við.
- Saltið og piprið.
- Látið malla í um 5-7 mínútur eða þangað til súpan er orðin vel heit.
- Berið fram með nýbökuðu brauði.
Malasísk kókossúpa með hrísgrjónanúðlum
22. mars, 2006

Þessi er svolítið maus en er alveg rosalega góð. Hægt er að nota tofu eða soyakjötsbita í staðinn fyrir rækjurnar. Setjið tofuið þá út í súpuna alveg í lokin og soyakjötsbitarnir eru meðhöndlaðir alveg eins og rækjurnar. Í upprunalegu uppskriftinni sem ég fann fyrir löngu síðan í einhverri bók (man ekki hvaða) var fersk mynta en ég ég sleppti henni þar sem mér finnst mynta aldrei passa í mat, (finnst ég alltaf vera að borða hálstöflur eða tannkrem). Ég veit ekki alveg hvort þurrkað rækjumauk (enska: dried shrimp paste) fæst á Íslandi en þess virði að athuga það t.d. í versluninni Filippseyjum. Ef ekki, er hægt að nota 1 mtsk af kornsterkju (courn flour eða arrow root) og 2 mtsk af fiskisósu (Nam Plah). Athugið einnig með Tamarindmaukið í betri verslunum og sælkerabúðum
Hægt er að kaupa kryddmaukið sjálft sem notað er í súpunni og heitir það þá “Laksa” (hefur ekkert með fiskategundina lax að gera). Það er auðvitað best að búa til það sjálfur ef maður hefur tíma og geri ég það alltaf!! Þetta er svo sem ekkert léttasti matur í heimi en samt er hann hollur þ.e. með hvítlauknum, gúrkunni, baunaspírunum, chilliinu, hnetunum, fersku kryddi o.fl. Það eina óholla er í raun kókosmjólkin (ég nota fitusnauða) og svo á fólk með of háan blóðþrýsting eða of hátt kólesteról að varast að borða of mikið af rækjum (eða svo hefur mér skilist). Að lokum, þó að séu notaðir 3 chilli í réttinn þá er hann ótrúlega mildur. Passið bara að skafa vel innan úr þeim líka “skilveggina” innan í (ekki bara fræin). Eitt að lokum: Tamarisósa er ekki það sama og Tamarindmauk. Tamarisósa er svört sósa unnin úr sojabaunum, svipað og sojasósa nema án hveitis en Tamarindmauk er unnið úr Tamarindfræjum sem vex á samnefndum trjám. Tréð finnst aðallega í Suður-Asíu, á Indlandi en einnig í Afríku og öðrum heitum stöðum. Tamarind er talið hjálpa ónæmiskerfinu sporna gegn sjúkdómum og sýkingum. Það er alltaf svolítið maus að búa til svona mat en það er hægt að flýta fyrir sér með því að vera búin að búa til kryddmaukið deginum áður til dæmis.
Malasísk kókossúpa með hrísgrjónanúðlum
Fyrir 4
- 24 risarækjur eða sambærilegt magn af tofu og/eða soyakjöti. Einnig má bæta við meiri núðlum og grænmeti (t.d. sveppum) í staðinn. Þeir sem hafa glúteinóþol ættu að skoða innihaldslýsingu vel fyrir soyakjöt. Yfirleitt er ekki glútein í slíkum vörum en betra að vera viss.
- 500 gr ferskur kræklingur (eða um 300 gr dós af kræklingum)
- 110 gr miðlungs þykkar hrísgrjónanúðlur (brúnar). Má nota meira ef maður vill
- 400 ml létt kókosmjólk (light eða reduced fat coconut milk)
- 50 gr ósaltaðar, þurristaðar macadamia hnetur eða jarðhnetur án hýðis (ég nota macadamia og þær eru æðislega góðar)
- 1 msk kókosfeiti eða ólífuolía
- 50 gr gúrka, flysjuð og skorin í ræmur, miðjan er ekki notuð
- 110 gr ferskar baunaspírur
- Safi af 1 límónu
- Lófafylli ferskt basil (einungis laufin), rifin gróft
- Lófafylli af ferskri myntu, einungis laufin, rifin gróft (má sleppa, ég nota aldrei myntu í mat, finnst eins og ég sé að borða hálstöflu)
- Heilsusalt (Herbamare)
- 1 tsk fiskisósa (nam plah)
- 2 msk eða meira af tamarindmauki (fæst yfirleitt í sælkeraverslunun og austurlenskum verslunum)
Fyrir kryddmaukið:
- 3 miðlungsstórir chilli, rauðir, hreinsið fræin úr og saxið gróft
- 1 full tsk af þurrkuðu rækjumauki (enska: dried shrimp paste)
- 1 hvítlaukur, marinn
- 4 skallotlaukar, flysjaðir og saxaðir gróft
- 2 stilkar af sítrónugrasi (enska: lemon grass), hendið ytra hýðinu og saxið aðeins mjóa hlutann
- Smá bútur af fersku engiferi, afhýtt og saxað gróft
- 1 full tsk af turmericdufti
- Fyrst þarf að hafa til kræklinginn. Ef þið notið ferskan krækling í skel þarf að bursta hann undir köldu vatni og toga af “skeggið” sem er stundum á skelinni. Hendið þeim kræklingum sem eru brotnir eða lokast ekki ef maður bankar fast á skelina með hníf.
- Næst skal setja hrísgrjónanúðlurnar í skál og hella sjóðandi vatni yfir. Látið liggja í nokkrar mínútur. Þið þurfið ekki að elda núðlurnar meira, bara að hita þær. Gætið þess að merja ekki núðlurnar þ.e. að reyna að halda þeim heilum. Sigtið núðlurnar í sigti eftir nokkrar mínútur og látið smá kalt vatn renna á þær.
Aðferð:
- Til að búa til kryddmaukið skal setja allt innihaldið, ásamt matskeið af vatni í matvinnsluvél og blanda mjög vel.
- Setjið makadamíuhneturnar eða jarðhneturnar á pönnu og þurristið þær yfir meðalhita.
- Færið á disk og kælið.
- Bætið kókosfeiti eða ólífuolíu á sömu pönnu og þegar olían er orðin heit, bætið þá kryddmaukinu út í og hitið á meðalhita í um 2 mínútur.
- Bætið kókosmjólkinni saman við ásamt fiskisósunni og hrærið. Látið malla í um 10 mínútur
- Á meðan maukið mallar, skerið þá gúrkuna langsum í ræmur og skerið svo hverja ræmu í fjórar ræmur.
- Saxið hneturnar gróft.
- Þegar kókosmaukið á pönnunni er orðið tilbúið, bætið þá núðlunum út í ásamt gúrkunum, 3/4 af baunaspírunum, tamarind maukinu og límónusafanum. Gætið þess vel að hræra ekki of mikið í núðlunum því þær eiga að haldast heilar (má líka bæta þeim út alveg í lokin ef þið viljið vera viss um að merja þær ekki)
- Bragðið til með tamarisósu, má vera frekar salt.
- Látið suðuna koma upp og bætið sjávarréttunum út í og hitið í um 3-5 mínútur.
- Skeljarnar (kræklingurinn) ættu nú að opnast og hendið þeim skeljum sem opnast ekki.
- Bætið nú við helmingnum af kryddjurtunum og bætið restinni saman við söxuðu hneturnar.
- Ausið súpu í djúpar skálar og dreifið restinni af baunaspírunum, hnetunum og kryddjurtunum.
- Berið fram sjóðandi heitt.
- Allt í lagi er að hita réttinn upp daginn eftir og jafnvel borða kaldan. Gætið þess þó að láta súpuna kólna alveg á hellunni (hrærið aðeins í súpunni öðru hvoru meðan hún kólnar), setjið svo í box og inn í ísskáp yfir nóttina. Mikilvægt er að súpan sé orðin alveg köld. Þegar á að hita hana daginn eftir skal gæta þess vel að súpan verði sjóðandi heit, það ætti aldrei að bera svona súpur fram volgar vegna hættu á matareitrun af sjávarréttunum. Aldrei of varlega farið sko! Það er ekki mælt með því að hita súpuna upp aftur (þriðja daginn) en ætti að vera allt í lagi að borða kalda daginn eftir. Viðkvæmt fólk (t.d. ófrískar konur, aldraðir) ættu alltaf að fara varlega í ferska sjávarrétti.
Matarmikil krabbakjöts/núðlusúpa
19. maí, 2003
Þetta er matarmikil, kínverk súpa og holl þar sem það er mikið af grænmeti og nær engin fita. Það er upplagt að gera stóran skammt af súpunni og borða daginn eftir líka því hún verður bara betri með smá geymslu.
Matarmikil krabbakjöts/núðlusúpa
Fyrir 4
- 1 tsk kókosfeiti eða ólífuolía
- 1 tsk "Chinese five-spice powder" (krydd sem ætti að fást í öllum helstu stórmörkuðum). Þeir sem hafa glúteinóþol ættu að skoða innihaldslýsingu.
- 225 gr gulrætur, skornar í mjóa strimla ( u.þ.b. 5 cm. á lengd)
- 170 gr gular baunir (maískorn), frosnar eða ósykraðar úr dós
- 90 gr frosnar, grænar baunir (enska: peas)
- 6 vorlaukar, snyrtir og sneiddir (1 cm. bitar cirka)
- 1 rauður chillipipar, skorinn fínt (fræin hreinsuð vel úr)
- 400 gr krabbakjöt, frosið eða niðursoðið
- 175 gr eggjanúðlur (þeir sem hafa glúteinóþol ættu að nota hrísgrjóna- eða soba núðlur)
- 1,7 lítri af vatni og fiskisoð (2-3 gerlausir fiskiteningar. Ef þeir eru ekki til, notið þá gerlausa grænmetisteninga t.d. frá Rapunzel og 3 msk af fiskisósu (Nam pla) í staðinn)
- 3 msk tamarisósa
- 2 eggjahvítur
- 2 msk maísmjöl(enska: cournflour) eða arrow root
Aðferð:
- Hitið kókosfeitina eða ólífuolíuna í stórum potti.
- Bætið kínverska kryddinu út í ásamt gulrótunum, gulu baununum, grænu baununum, chillipiparnum og vorlauknum.
- Hitið í 5 mínútur og hrærið allan tímann.
- Bætið krabbakjötinu við og hitið í 1 mínútu, dreifið vel úr kjötinu.
- Brjótið núðlurnar aðeins í sundur og bætið þeim út í (þarf ekki að sjóða þær fyrst).
- Hellið fiskisoðinu og vatninu út í ásamt tamarisósunni og látið sjóða í nokkrar mínútur.
- Lækkið hitann og leyfið súpunni að malla í nokkrar mínútur.
- Sláið eggjahvíturnar lauslega (gætið þess að þær freyði ekki) og bætið maísmjölinu útí. Hrærið þangað til það leysist upp.
- Hellið blöndunni varlega út í miðju pottsins, í mjórri en stöðugri bunu og hrærið stöðugt í á meðan.
- Hrærið vel og berið fram í kínverskum skálum, ásamt skeiðum og prjónum (kínverskar skálar fást meðal annars í Salt og Pipar, Klapparstíg).
- Það má alveg fara frjálslega með hlutfall á innihaldi, t.d. má hafa meira af grænmeti í staðinn fyrir krabbakjöt, meira eða minna af núðlum o.s.frv.
- Í upphaflegu uppskriftinni var ekki gert ráð fyrir eggjum en mér finnst það passa vel með svona súpu, gerir hana þykkari og matarmeiri og gefur manni auka prótein og vítamín.
Mexikönsk ýsa
27. febrúar, 2003

Ég man ekki hvaðan þessi uppskrift er en hún er að minnsta kosti bragðgóð, létt og afar holl. Það er hægt að kaupa mjög fínar og hollar sósur í heilsubúðum (sem ekki var hægt hérna fyrir nokkrum árum) svo það er um að gera að notfæra sér það! Gætið þess samt að salsasósur geta verið sterkar svo kaupið
mild en ekki
hot sósu ef þið viljið ekki of sterkan rétt.
Mexikönsk ýsa
Fyrir 2-3
- 400-500 gr ýsuflök, roðflett og beinhreinsuð
- 100 gr magur ostur, rifinn
- 4 dl mexikönsk grænmetissósa (salsa). Gætið þess að ekki sé sykur eða viðbætt efni (t.d. E-600 efni) í sósunni. Sósan ætti ekki að innihalda mikla fitu því uppistaðan ætti að vera grænmeti. Kaupið helst lífrænt framleidda sósu í heilsubúð.
- 1 tómatur skorinn í þunnar sneiðar
- 2 msk fersk steinselja, söxuð
- Heilsusalt (Herbamare) og pipar
Aðferð:
- Skerið ýsuflökin í nokkra stóra bita.
- Leggið ýsubitana ofan í eldfast mót (óþarfi að smyrja).
- Hellið salsasósunni yfir.
- Saltið og piprið eftir smekk.
- Leggið tómatsneiðarnar ofan.
- Dreifið söxuðu steinseljunni yfir.
- Stráið rifna ostinum yfir.
- Hitið í ofni við 200°C í 20 mínútur.
- Berið réttinn fram með brúnum hrísgrjónum og salati eða jafnvel grófu brauði.
- Ef þið viljið að ýsan taki í sig meira bragð af sósunni þá er gott að þekja ýsuna alveg með sósunni og láta hana liggja svoleiðis í nokkra klukkutíma í kæli.
Miðjarðarhafs fiskisúpa
27. febrúar, 2003

Upprunaleg uppskrift er úr bókinni "Af bestu lyst II". Þessi súpa er hrikalega bragðgóð, seðjandi og ótrúlega holl. Frábær vetrarsúpa því manni hitnar alveg í gegn við að borða hana. Ég notaði heilsusalt í stað venjulegs salts og grænmetissoð í staðinn fyrir kjúklingasoð. Einnig bætti ég við fiskisósu. Súpan hentar vel fyrir þá sem hafa glúteinóþol og mjólkuróþol.
Miðjarðarhafs fiskisúpa
Fyrir 2-3
- 250 gr blandaðir sjávarréttir, frosnir
(eða 100 gr beinlaus og roðflettur fiskur og 150 gr hörpuskel og rækjur í bland)
- 1 laukur
- 2 hvítlauksrif
- 100 gr sveppir
- 1 tsk kókosfeiti eða ólífuolía
- 1 tsk heilsusalt (Herbamare)
- 1 tsk svartur pipar
- 1/2 msk karrí duft
- 1/2 tsk turmeric duft
- 200 ml niðursoðnir tómatar
- 300 ml vatn
- 1 gerlaus grænmetisteningur t.d. frá Rapunzel
- 5 lárviðarlauf
- 1/2 lítil dós kræklingur (nota um 75 gr)
- 1/2 búnt steinselja
- 1 tsk fiskisósa (Nam Plah). Má sleppa
Aðferð:
- Saxið lauk og merjið hvítlauksrif.
- Skerið niður sveppi í þunnar sneiðar.
- Steikið lauk, hvítlauk og sveppi í kókosfeiti eða ólífuolíu í 1-2 mín í stórum potti. Bætið við vatni ef þarf meiri vökva.
- Kryddið með salti, pipar, karrí og turmeric
- Setjið tómata, grænmetissoð og lárviðarlauf út í pottinn.
- Látið suðuna koma upp í 3-4 mínútur.
- Setjið frosna hörpudiskinn útí (eða fiskinn í litlum bitum) og sjóðið í 3-4 mínútur
- Bætið kræklingnum út í og hita að suðu.
- Saxið steinselju yfir súpuna (og setjið u.þ.b. 1 msk á hvern disk áður en borið fram).
- Það er meiriháttar að hafa nýbakað, gróft speltbrauð með súpunni.
Ofnbakaður Swahili fiskur með hnetusósu
13. apríl, 2008

Það eru sterk Swahili áhrif í þessum rétti en mikið er um fisk, engifer, hvítlauk, lauk og tómata við strendur Indlandshafs og víðar. Upprunaleg uppskrift er úr uppskriftabæklingi sem ég á, frá ströndinni í Mombasa og heitir höfundur þessarar uppskriftar Minah Jeffah. Hnetusósan hins vegar er úr bók sem ég keypti í Uganda. Hnetusósa er oft notuð í Swahili matargerð svo hún passar vel við þennan rétt. Ég hef breytt uppskriftinni töluvert og nota til dæmis grænmetið niðursneitt en set ekki í blandara eins og uppskriftin tiltók. Eins og þið sjáið kannski á myndinni þá er fiskurinn sem ég notaði ekki hvítur fiskur (ég notaði lax). Ástæðan fyrir því er að þegar ég var að búa til þessa uppskrift og ætlaði að fara að setja steinbítinn í form..var ormur í fiskinum (og þar með eru dagar steinbíts í minni matargerð taldir). Ég er meiriháttar viðkvæm fyrir svoleiðis í mat svo ég notaði frosinn lax sem ég átti í frystinum í staðinn. Sósan getur seint talist létt en hún inniheldur samt holla fitu og er fín með mögrum fiski.
Ofnbakaður Swahili fiskur með hnetusósu
Fyrir 2-3
- 500 gr smálúða eða skötuselur, roðflett og beinhreinsað
- 1 mango, ágætlega vel þroskað, afhýtt og sneitt í mjóar sneiðar
- 1 laukur, skorinn í þunnar sneiðar
- 1 græn paprika skorin í þunnar sneiðar (ég nota rauða, finnst græn vond)
- 3 tómatar í sneiðum
- 4 hvítlauksgeirar, marðir
- 1 tsk ferskt engifer, saxað fínt
- 1/2 tsk svartur pipar
- 1 msk tamarisósa
- 1 tsk heilsusalt (Herbamare)
- 1/2 tsk kókosfeiti
Aðferð
- Setjið smá kókosfeiti í eldhúspappír og strjúkið eldfasta mótið að innan.
- Skerið fiskinn í stóra bita og setjið í eldfasta mótið.
- Blandið saman tamarisósu, hvítlauk og engiferi í skál.
- Hellið tamarisósu, engiferi og hvítlauk yfir fiskinn.
- Leyfið þessu að standa í um 30 mínútur ef tími er til.
- Raðið paprikusneiðum, lauksneiðum og tómatsneiðum ofan á fiskinn.
- Raðið mangosneiðum ofan á.
- Saltið og piprið.
- Hitið ofninn í 200°C og hitið í a.m.k. 20 mínútur.
- Berið fram með hnetusósu.
- Gott er að mýkja laukinn aðeins á pönnu áður en hann er settur á fiskinn, hann verður sætari þannig.
Paella með hýðishrísgrjónum
28. febrúar, 2003
Ég gleymi því ekki þegar við Jóhannes vorum í litlu, spænsku fjallaþorpi sem heitir Mijas. Þetta var síðasta kvöldið okkar í þessarri ferð, veðrið æðislegt (það var um 40 stiga hiti um daginn en það var farið að rökkva sem betur fer). Við vorum staurblönk, áttum ekki krónu, vorum bæði í námi og rétt gátum nurlað saman fyrir einu Paella. Það var hverrar pesetu virði get ég sagt ykkur. Við borðuðum úti, og horfðum upp á Páskakirkjuna (sem er bara opin á páskunum) sem var í fjallshlíðinni skammt frá. Þaðan er hægt að horfa alla leið yfir til Afríku ef skyggnið er gott. Við vorum að hugsa um að fara og veifa Borgari bróður og fjölskyldu sem við vissum að voru í Afríku þá stundina. En nóg um það, hérna er heilsuútgáfa af Paella og kemur úr "Af bestu lyst II en með smá breytingum.
Paella með hýðishrísgrjónum
Fyrir 2
- 1/2 laukur
- 2 hvítlauksrif
- 1 paprika
- 1 msk kókosfeiti eða ólífuolía
- 1/4 grillaður (helst) kjúklingur í bitum, annars steiktur upp úr kókosfeiti og vatni. Skinnið ekki notað. Notið aðeins hamingjusaman (free range) og organic kjúkling
- 2-3 saffran þræðir
- 2,5 dl hýðishrísgrjón
- 4,5 dl gerlaus fiski- eða kjúklingkraftsteningur (ég nota grænmetistening frá Rapunzel)
- 100 gr rækjur
- 1/2 dós kræklingur (35 gr)
- 20 gr svartar ólífur (Kalamari ef þær fást)
- Heilsusalt (Herbamare) og svartur pipar
- 1/4 tsk turmeric
- 1/4 tsk karrí
Aðferð:
- Saxið lauk og merjið hvítlaukinn.
- Fræhreinsið paprikur og skerið í strimla.
- Hitið kókosfeiti og eða ólífuolíu (eða vatn) í djúpri pönnu.
- Bætið lauk og papriku út í og mýkja í nokkrar mínútur.
- Bætið hrísgrjónum saman við ásamt saffrani og blandið vel.
- Hellið kjúklinga- (eða grænmetis)soði yfir og kryddið með salti og pipar, karrí og turmeric.
- Setjið lok á pönnuna og látið malla í 20 mínútur þangað til grjónin eru orðin soðin.
- Bætið kjúklingnum út í.
- Bætið kræklingum, ólífum og rækjum út í og hitið að suðupunkti í 10 mínútur en sjóðið ekki.
- Berið fram með sítrónubátum og góðu brauði.
- Það væri alveg hægt að skipta út sjávarréttunum og setja einungis kjúkling í staðinn.
Pasta með reyktum laxi eða silungi
1. nóvember, 2003

Þetta er æðislega góð uppskrift. Ég notaði reyktan silung úr Slíðdalstjörn í Borgarfirði (vatninu sem foreldrar mínir og fleiri eru með á leigu) og "lífrænt ræktaðri" getur hann varla orðið, þeir borða ekkert nema gróður og flugur og hvergi í kringum þá eru bílar né rafmagn eða annað sem truflar þeirra tilveru! Það má nota bæði reyktan lax og silung í þessa uppskrift.
Pasta með reyktum laxi eða silungi
Fyrir 3-4
- 1 msk kókosfeiti
- 1 laukur, saxaður
- 1 lítil, rauð paprika, söxuð
- 2 hvítlauksrif, söxuð
- 1 dl matreiðslurjómi eða sýrður rjómi (5% án gelatíns frá Mjólku)
- 1 dl mjólk
- 1/2 tsk timian
- 1/2 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
- 1/2 tsk svartur pipar
- 1/4 dl ferskur, rifinn parmesan ostur (má sleppa)
- 450 gr ólitaður reyktur lax eða silungur, saxaður í 1 cm. búta
- 5 dl pastaskrúfur, skeljar eða rör úr spelti
Aðferð:
- Hitið kókosfeitina á djúpri pönnu og mýkið laukinn við meðalhita.
- Bætið paprikunni og hvítlauknum á pönnuna og látið krauma í 2-3 mínútur.
- Hækkið hitann og hellið matreiðslurjómanum eða sýrða rjómanum og mjólkinni yfir grænmetið ásamt kryddinu.
- Látið suðuna koma upp, lækkið hitann og bætið parmesanostinum út í.
- Látið krauma í 5 mínútur við vægan hita eða þar til sósan fer að þykkna.
- Bætið laxinum út í sósuna og hitið í 1-2 mínútur. Þynnið sósuna með mjólk ef hún er of þykk. Ef hún er hins vegar ekki nægilega þykk má þykkja hana aðeins með maísmjöli.
- Látið sósuna malla við vægan hita.
- Á meðan sósan mallar, sjóðið pastaskrúfurnar samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
- Hellið vatninu af og hellið sósunni yfir. Hitið í smástund.
- Berið fram með grófum brauðbollum eða grófu snittubrauði og parmesan osti.
Pasta með reyktum laxi og spínati
12. júlí, 2005
Fyrir ykkur sem ekki veiðið (og reykið) fiskinn sjálf þá er auðvelt að kaupa reyktan fisk í flestum verslunum (bæði silung og lax). Passið bara að kaupa ólitaðan fisk. Bæði lax og silungur innihalda omega 3 fitusýrur sem eru nauðsynlegar fyrir bæði liði og sellurnar í hausnum (svo við töpum þeim nú ekki alveg he he). Spínat inniheldur járn og meira að segja á pipar að koma jafnvægi á blóðsykurinn! Sem sagt alveg ágætlega hollur réttur. Upphaflega var víst smjör og rjómi í upppskriftinni en hægt er að nota matreiðslurjóma og jafnvel sýrðan rjóma (án gelatíns). Ég nota alltaf gróft pasta úr spelti en hægt er að nota pasta úr heilhveit auðvitað.
Já þessa uppskrift fékk ég hjá Borgari bróður mínum og Elínu konunni hans, sem eru bæði snilldarkokkar. Þau fengu uppskriftina á meðan þau bjuggu í Danmörku hjá einhverri hippalegri, danskri konu! Þetta er afar ljúffengur réttur og má borða hann bæði heitan og kaldan (hægt að nota sem kalt pastasalat).
Pasta með reyktum laxi og spínati
Fyrir 3-4
- 100-150 gr frosið spínat (kreistið vatnið úr)
- 1-2 hvítlauksrif, marin eða söxuð mjög fínt
- Um 250-300 gr reyktur lax eða silungur skorinn í frekar smáa bita (svona álíka og stóra sykurmola). Má vera meira en fer eftir smekk
- 1/2 tsk múskat
- 1/2 tsk svartur pipar
- 1 dl kaffirjómi og jafnvel smá 10% sýrður rjómi ef sósan á að vera þykkari. Einnig má nota smá mjólk í staðinn fyrir sýrða rjómann en sósan verður þynnri. Ég nota aðeins sýrðan rjóma án gelatíns.
- 5 dl ósoðnar spelt pastaskeljar eða reimar.
- 1 msk kókosfeiti eða ólífuolía
- 1/2 dl ferskur parmesan ostur, nýrifinn. Hægt að nota úr dós en ekki eins gott. Var ekki í upphaflegu uppskriftinni en er mjög gott með.
Aðferð:
- Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum á pakka og kælið
- Hitið hvítlaukinn í kókosfeitinni eða ólífuolíunni þangað til hann er orðinn mjúkur.
- Bætið spínatinu út í ásamt kryddinu.
- Hitið kaffirjómann og sýrða rjómann ef hann er notaður.
- Bætið parmesanostinum út í og látið malla þangað til sósan fer að þykkna.
- Hellið pastanu út í og hitið vel.
- Berið fram með grófum brauðbollum eða grófu snittubrauði.
- Berið fram með ferskum parmesanosti.
Rækjur í kókossósu
28. febrúar, 2003

Borgar (bróðir) og Elín konan hans eru algjörir snilldarkokkar, það er alltaf gott að borða hjá þeim og maturinn sem þau gera er alltaf spes og öðruvísi því þau hafa viðað að sér miklum fróðleik um matarmenningu mismunandi landa með ferðalögum sínum um allan heim. Ég vildi að þau myndu opna veitingastað svo ég gæti komið á hverjum einasta degi og borðað. Ég veit að ég yrði ekki ein um það!!! Þessi réttur kemur frá Afríku (Kenya) en þau fengu uppskriftina frá afrískum kokki sem útbjó mat fyrir þau við strendur Indlandshafs.
Rækjur í kókossósu
Fyrir 2-3
- 500 gr rækjur eða 450 gr blandaðir sjávarréttir (hægt að nota lúðu líka)
- 125 ml kókosmjólk (coconut milk, kaupið lífrænt framleidda)
- 1 smátt skorinn laukur
- 1 cm. biti af engifer, afhýddur og skorinn mjög smátt
- 1-2 hvítlauksgeirar, marðir
- 2 ferskir tómatar, saxaðir frekar smátt
- 1 1/2 msk tómatkraftur, hreinn
- 1/2 msk karrí
- 1/4 msk turmeric
- 1/2 msk fish masala (má sleppa)
- 1/2 tsk Nam Plah (fiskisósa)
- 1/2 msk sjávarsalt
- 1/2 msk kókosfeiti
Aðferð:
- Steikið laukinn, engifer og hvítlaukinn í kókosfeiti og vatni ef þarf þangað til allt er orðið mjúkt.
- Setjið blönduðu sjávarréttina eða lúðuna útí. Ef þið notið rækjur skuluð þið setja þær út í alveg í lokin.
- Bætið ferska tómatinum og tómatkraftinum út í og hrærið.
- Bætið kryddunum við og saltinu.
- Bætið kókosmjólkinni út í og látið malla við vægan hita í 2-3 mínútur.
- Bætið rækjunum út í hér ef þið notið þær og hitið í nokkrar mínútur.
- Gott er að hafa með þessum mat salat með hnetum og fetaosti, brauð og hýðishrísgrjón.
- Sósan passar einnig vel með núðlum og grænmeti.
Rækjusalat
30. október, 2003

Þetta er létt útgáfa af hefðbundnu rækjusalati og voðalega gott með brauði, kexi, hrökkbrauði o.fl. Ég set basil og karrí saman við salatið og mér finnst það gefa mjög gott bragð.
Rækjusalat
Fyrir 3-4 sem meðlæti
- 2 harðsoðin egg (notið hvítuna úr einu eggi og svo má nota hitt eggið heilt (með rauðunni og hvítunni))
- 1/2 tsk basil
- 1/4 tsk svartur pipar
- 200 gr þiðnar rækjur (um það bil)
- 1/2 tsk karrí
- 3-4 msk majones. Einnig má nota 5% sýrðan rjóma frá Mjólku (hann er án gelatíns). Hægt er að kaupa létt-majones en það er yfirleitt með sykri og viðbættum efnum.
Aðferð:
- Sjóðið eggin og kælið.
- Fjarlægið aðra eggjarauðuna.
- Notið eggjaskera og skerið eggin fyrst langsum og svo þversum (svo það endi í litlum bitum).
- Setjið rækjurnar í skál.
- Setjið egg, majones eða sýrðan rjóma, karrí, basil og svartan pipar í skálina.
- Hrærið öllu vel saman.
- Það má breyta hlutföllum eftir hentisemi, ef þið viljið hafa það þynnra, bætið þá meira majonesi saman við og ef þið viljið hafa það þykkara bætið þá við meira af rækjum og eggjum.
- Salatið er ekki síðra ef það er geymt í sólarhring í ísskápnum svo það er upplagt að búa það til deginum áður en á að nota það.
- Smakkið til með meira karríi og pipar ef þarf.
Sashimi túnfisksalat með miso dressingu
11. júní, 2005
Þetta er voða gott salat, sérstaklega sem forréttur fyrir sushimatarboð. Nauðsynlegt er að nota besta mögulega túnfisk sem hægt er að fá. Best er að kaupa túnfiskinn til dæmis í Fylgifiskum á Suðurlandsbraut (hægt að láta senda í litlu búðina á Skólavörðustíg). Ég á æðislega matreiðslubók um japanskan mat og þessi uppskrift er úr henni. Ég á örugglega eftir að setja fleiri uppskriftir úr henni hér inn.
Sashimi túnfisksalat með miso dressingu
Fyrir 2-3 sem forréttur
Marinering
- 350 gr sashimi túnfiskur (sashimi þýðir bara að hægt er að nota túnfiskinn í sushi og er af bestu gæðum)
- Blandið saman 2 msk hrísgrjónaedik (enska: rice vinegar), 1 msk ávaxtasykri og 1 tsk heilsusalti (Herbamare)
Miso dressing
- 2 msk hvítt miso (mauk sem er hægt að kaupa í túpu í austurlenskum verslunum en líka hægt að kaupa miso súpubréf sem fæst til dæmis í Heilsuhúsinu og nota í staðinn, er samt ekki eins gott). Miso inniheldur yfirleitt ekki glútein en það er alltaf gott að vera viss og lesa innihaldslýsingu
- 1 msk mirin (það er hálfgert síróp, með sykri svo ég nota smávegis demerera sykur eða hrísgrjónasíróp (enska: brown rice syrup) í staðinn).
- 1 msk sake (sake er hrísgrjónavín, má sleppa)
- 1 msk ávaxtasykur
- 2 msk hrísgrjónaedik
- 1 tsk tamarisósa
- 1 tsk japanskt sinnep (ég notaði Dijon og það var líka gott). Sinnep getur innihaldið glútein svo athugið innihaldslýsingu
- 4 vorlaukar, saxaðir fínt (notið græna hlutann eingöngu)
- Ég bætti við 1 msk af sesamolíu og það var rosa gott
Aðferð:
- Skerið túnfiskinn í 2cm bita eða skerið í þunnar sneiðar. Setjið í skál og hellið hrísgrjónaedikinu með ávaxtasykrinum og saltinu yfir.
- Látið liggja í um 15 mínútur í leginum og breiðið yfir skálina með plasti.
- Hellið marineringunni af túnfiskinum og þerrið hann.
- Setjið túnfiskinn í hreina skál og hellið Miso dressingunni (eða miso duftinu) yfir.
- Hrærið saman við túnfiskinn og berið fram í einni skál eða mörgum litlum skálum ásamt prjónum.
Sjávarréttasúpa
8. mars, 2003
Þessi uppskrift er mjög góð, seðjandi en samt létt í maga. Upplögð á köldum vetrardegi þegar maður þarf fullt af vítamínum í kroppinn og er kannski kalt. Hún er ennþá betri á degi tvö, þ.e. þegar maður hitar hana upp daginn eftir. Súpan hentar vel fyrir þá sem hafa glúteinóþol.
Sjávarréttasúpa
Fyrir 4-5
- 1 stór laukur, fínsaxaður
- 1 gulrót, þunnt sneidd
- 1-2 hvítlauksrif, pressuð
- 1 tsk kókosfeiti eða ólífuolía
- 1 tsk oregano
- 1 tsk basil
- 2 tsk sítrónupipar
- 1 tsk svartur pipar
- 1/2 tsk karríduft
- 1/2 tsk fish masala krydd (má sleppa)
- 400 gr niðursoðnir tómatar
- 400 ml dós, humarsúpa (ekki sykurbætt, án aukaefna og helst lífrænt framleidd). Þeir sem hafa glúteinóþol ættu að skoða innihaldslýsingu
- 1/2 lítri vatn
- 2 gerlausir fiskiteningar (líka hægt að nota gerlausa grænmetisteninga t.d. frá Rapunzel og bæta þá 2-3 msk af fiskisósu (Nam pla) út í)
- 150 ml mysa eða óóafengt hvítvín
- 350 gr ýsa, skorin í litla bita
- 400 gr frosnir blandaðir sjávarréttir (sem búið er að þíða)
- 150 ml undanrenna eða léttmjólk
Aðferð:
- Hitið gulrót, hvítlauk og krydd í kókosfeiti eða ólífuolíu.
- Bætið vatni, humarsúpu og tómötunum og mysunni/hvítvíninu saman við.
- Hækkið hitann og leyfið að malla í nokkrar mínútur.
- Bætið fiskinum út í þegar suðan kemur upp og leyfið að sjóða í u.þ.b. 8 mínútur.
- Bætið blönduðu sjávarréttunum út í síðustu 2-4 mínúturnar (gætið þess að ofsjóða ekki).
- Berið fram með nýju, grófu brauði, helst heimabökuðu speltbrauði, það er best.
- Ef þið viljið gera súpuna meira spari, setjið þá 100 ml af matreiðslurjóma og 50 ml af léttmjólk eða undanrennu.
- Ef það verður smá afgangur af súpunni, þá er upplagt að nota hana sem pastasósu daginn eftir!! Þykkið súpuna með 2 tsk af sósujafnara (courn flour eða arrow root) leyst upp í 2 tsk af vatni, sjóðið pasta og blandið saman, þá er kominn líka þessi fíni pastaréttur!!!
Spaghetti með kræklingasósu
28. febrúar, 2003
Ég held að þessi uppskrift hafi komið af uppskriftir.is en er þó ekki viss. Ég er búin að breyta henni aðeins reyndar og notaði til dæmis spelt spaghetti í stað venjulegs o.s.frv. Bragðgóður og afskaplega hollur réttur.
Spaghetti með kræklingasósu
Fyrir 2-3
- 1 laukur, saxaður
- 1/2 blaðlaukur, saxaður
- 1 sellerístilkur, saxaður
- 1-2 hvítlauksrif, pressuð
- 400 gr vel þroskaðir, saxaðir tómatar (eða 1 dós niðursoðnir tómatar)
- 1/4 fínsöxuð steinselja
- 1 dós (250g) niðursoðinn kræklingur
- 1/4 dl kræklingasoð (safinn úr dósinni)
- 1/4 dl þurrt hvítvín
- 1/2 dl hrein jógúrt
- 1 tsk kornsterkja (cornflour eða arrow root) hrært út í smá vatni og sett út í jógúrtið.
- Heilsusalt (Herbamere), oregano og pipar
- Vænn vöndur af speltspaghetti
- 1 tsk kókosfeiti eða ólífuolía
Aðferð:
- Mýkið laukinn, hvítlaukinn og selleríið í kókosfeiti eða ólífuolíu.
- Bætið tómötunum út í og látið krauma í 10 mínútur.
- Látið renna vel af kræklingunum í sigti og bætið 1/2 dl af soðinu út í.
- Hrærið hvítvíninu út í og látið suðuna koma upp.
- Setjið jógúrtið og kryddið út í og hitið varlega.
- Sjóðið spaghettiið (á að vera heitt þegar það er borið fram).
- Setjið steinseljuna og kræklinginn að lokum út í og hrærið varlega.
- Spaghetti sett á diska og kræklingablandan sett ofan á.
- Berið fram með nýbökuðu brauði, dæmis Snittubrauði.
- Berið fram með grófu snittubrauði
Suðrænn fiskiréttur
27. febrúar, 2003
Þetta er voða einföld, holl og góð uppskrift, fín svona í miðri viku þegar tímaleysið er einna mest. Fiskurinn og reyndar rétturinn allur er magur og ekki sakar að hann er líka próteinríkur og fullur af C vítamínum.
Suðrænn fiskiréttur
Fyrir 2
- 1 bolli soðin hýðishrísgrjón eða bygg
- 400 gr fiskur (t.d. ýsa eða þorskur fyrir þá sem borða hann) í bitum
- 6-7 ferskir sveppir, sneiddir fínt
- 1 dós niðursoðinn ananas í bitum, í náttúrulegum safa (eða ferskur). Geymið safann
- 1/2 rauð paprika skorin í sneiðar og svo í helminga
- 100 gr rifinn, magur ostur
- 1/2 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
Sósa
- 8 msk jógúrt ásamt 1 msk af maísmjöli (enska: corn flour en einnig má nota arrow root)
- 3 tsk karrí
- 2 dl ananassafi (eða hluti appelsínusafi)
Aðferð:
- Setjið grjónin í botninn á eldföstu móti (óþarfi að smyrja).
- Raðið sveppum, ananasbitum og papriku ofan á. Saltið.
- Setjið fiskinn ofan á.
- Blandið hráefnunum í sósuna saman og hellið yfir.
- Setjið rifinn ost ofan á.
- Bakið við 175°C í um 25-30 mínútur eða þangað til fiskurinn er orðinn hvítur og svolítið laus í sér og osturinn bráðinn.
- Berið fram með fersku salati og grófu brauði.
Sudusúpa
28. febrúar, 2003
Eins og svo oft áður höfum við fengið frábæran mat hjá Helgu og Þórhalli vinafólki okkar, þau eru snilldarkokkar. Þessi uppskrift kemur frá indverskri kunningjakonu þeirra, Sudu að nafni. Uppskriftin er því alvöru indversk! Súpan hentar vel fyrir þá sem hafa glúteinóþol.
Sudusúpa
Fyrir 2-3
- 1 tsk kókosfeiti eða ólífuolía
- 1 laukur, smátt skorinn
- 1 rauð paprika, smátt skorin
- 1 gul paprika, smátt skorin
- 1-2 gerlausir fiskiteningar ef ekki er hægt að fá þá, er hægt að nota gerlausa grænmetisteninga t.d. frá Rapunzel og bæta 1-2 msk af fiskisósu (Nam pla) út í
- 1 dós af heilum niðursoðnum tómötum + vökvinn
- 1/2 flaska óáfengt hvítvín (425 ml)
- 2 tsk karrí
- 250 ml mjólk (eða 1/2 magur rjómi og 1/2 undanrenna) ásamt smá sósujafnara (maísmjöli eða arrow root leyst upp í 2 tsk af vatni)
- 250 gr rækjur
Aðferð:
- Kókosfeiti sett í pott, og laukur og paprika látin malla saman.
- Tómatarnir settir út í pottinn, látið malla saman.
- Karrý, fiskiteningur og óáfenga hvítvínið látið út í pottinn og látið malla með öllu hinu.
- Bætið mjólkinni eða rjómanum út í. Látið ekki sjóða.
- Látið þetta malla á lágum hita í góðan tíma, allt að 1 klukkutíma eða meira.
- Bætið rækjunum út í rétt áður en súpan er borin fram.
- Þessi súpa er ekki síðri daginn eftir, búin að taka í sig allt kryddbragðið.
- Einnig er hægt að þykkja súpuna (með sósujafnara) ef er afgangur og nota sem sósu út á pasta daginn eftir
Thailensk fiskisúpa
27. febrúar, 2003
Þetta er svona uppskrift sem maður gerir bara um helgar eða þegar maður hefur nægan tíma því hún er dáldið tímafrek. Hún er reyndar alveg vel þess virði í lokin, alveg mátulega krydduð og ofsalega frískleg! Súpan hentar vel þeim sem hafa glúteinóþol.
Thailensk fiskisúpa
Fyrir 2-3
- 35 gr ferskt engifer, afhýtt og saxað mjög smátt
- 1 msk kókosfeiti eða ólífuolía
- 200 ml fitusnauð kókosmjólk (enska: Light coconut milk. Gætið þess að hún sé hrein þ.e. ekki með neinum viðbættum efnum út í)
- 1 gerlaus fiskiteningur. Ef hann er ekki til, má nota gerlausan grænmetistening t.d. frá Rapunzel og bæta 1-2 msk af fiskisósu (Nam pla) út í
- 1/2 msk maísmjöl (enska: corn flour) blandað með 1,5 msk af vatni
- 250 gr hrein, fitulaus jógúrt
- 250 gr alls kyns fiskiafgangar, má vera t.d. lax, þorskur, ýsa, steinbítur, lúða, hörpuskel, rækjur, skorið niður í smáa bita.
- Safinn af 1/2 lime
- 1/2 stilkur sítrónugras (enska: lemon grass), saxaður smátt
- 1/2 rautt chilli, hreinsað og saxað smátt
- 1/2 grænt chilli, saxað smátt
- Heilsusalt (Herbamare) og pipar
- 1/3 dl ferskt coriander, saxað
- Lime sneiðar af einni lime til að skreyta með
Aðferð:
- Hitið lemon grass og chilli á pönnu ásamt engifer í kókosfeitinni eða ólífuolíunni á lágum hita í 8 mínútur eða þangað til lemon grass og engifer hefur brúnast og ilmur stígur upp.
- Bætið kókosmjólkinni og fiskikraftinum saman við, hleypið upp suðu og lækkið svo aftur eftir smá stund.
- Hrærið sósujafnara eða arrow root saman við jógúrtið og bætið við á pönnuna og hitið nálægt suðu.
- Bætið fiskinum við og hitið í 4-5 mínútur.
- Á síðustu mínútunni áður en súpan er borin fram, bragðbætið þá með þá lime safanum, coriander og salti og pipar.
- Berið fram strax.
- Hægt er að bæta meira grænmeti eins og gulrótum, cellery og fleira út í ásamt grjónum og núðlum til að gera súpuna matarmeiri.
- Einnig er hægt að skipta út fiski og setja kjúklingastrimla í staðinn (skipta þá einnig fiskikraftinum og setja kjúklingakraft í staðinn).
- Í staðinn fyrir ferskt chilli er hægt að setja þurrkað chilli eða chilliduft.
Thailensk núðlusúpa með rækjum
3. maí, 2005
Þessi súpa er ægilega góð. Þetta er svolítill svindlmatur og ég kaupi yfirleitt ekki tilbúnar sósur en svona í miðri viku, eftir vinnu þá er maður bara svo oft upptekinn. Allavega þessi er saðsöm og það er hægt að setja endalaust af dóti í hana t.d. meira grænmeti, tofu, kjúkling og fleira. Einnig má sleppa rækjunum alveg og nota t.d. tofu í staðinn. Það er hægt að nota alls kyns grænar karrýsósur. Gætið þess bara að þær séu ekki hlaðnar fitu og sykri (ættu ekki að hafa meiri en 5-10gr af fitu og sykur ætti helst ekki að sjást og alls, alls ekki í efstu sætunum á innihaldslýsingunni). Ef sykur er á listanum ætti hann að vera raw cane sugar (hrásykur). Eins og alltaf þá ættu MSG, (Monosodium Glutamate) og E-600 efni alls ekki að vera í innihaldslýsingu og auðvitað ætti alltaf að reyna að kaupa lífrænt framleiddar/ræktaðar vörur! Athugið einnig að þeir sem eru viðkvæmir fyrir sterkum mat ættu að lesa á innihaldslýsinguna. Þeir sem hafa glúteinóþol ættu að skoða innihaldslýsinguna. Úff þetta voru meiri boðin og bönnin! Mætti halda að maukgreyið væri eitrað! Upprunaleg uppskrift kom frá heimasíðu Waitrose verslunarinnar í Bretlandi.
Thailensk núðlusúpa með rækjum
Fyrri 2-3
- 200 gr Pak Choi (er kínverskt kál, hefur fengist í Hagkaupum)
- 400 ml grænmetissoð (vatn + 1-2 gerlausir grænmetisteningar t.d. frá Rapunzel)
- 50 gr green beans (svona baunalengjur sem má borða heilar), skornar í 1 cm. bita
- 1 rauð paprika, lítil, skorin í mjóar, stuttar ræmur
- 300 ml græn karrísósa (á ensku: green curry sauce). Best er að gera sína eigin sósu sjálfur en stundum er ekki alveg tími! Athugið bara að sósan sé ekki sykurbætt, með lítilli fitu og að ekki sé MSG (Monosodium Glutamate) eða önnur E-600 efni ásamt öðrum aukaefnum. Reynið að kaupa lífrænt framleidda sósu.
- 125 gr eggjanúðlur (eða hrísgrjónanúðlur fyrir þá sem hafa glúteinóþol)
- 100 gr frosnar rækjur, afþýddar, einnig má nota stíft tofu (firm) í strimlum (marinerað í tamarisósu) eða 1 kjúklingabringu í staðinn. Ef notaðar eru kjúklingabringur kaupið þá "hamingjusama kjúklinga" (þ.e. free range og organic)
- 400 ml fitusnauð kókosmjólk (enska: light coconut milk, lífrænt framleidd) fæst í flestum stórmörkuðum
Aðferð
- Skerið hvíta hlutann af Pak Choi kálinum í fínar ræmur og rífið grænu blöðin í búta.
- Setjið grænmetiskraftinn og vatn í pott og látið sjóða.
- Bætið við grænu baununum og paprikunni. Sjóðið í 2 mínútur eða þangað til grænmetið er orðið aðeins lint.
- Bætið grænu karrísósunni saman við ásamt hvítu ræmunum af Pak Choi kálinu en geymið grænu blöðin.
- Bætið kjúklingi saman við hér ef hann er notaður. Hægt að setja hráan kjúkling út í (annað hvort í ræmum eða í stórum bitum) en þarf að passa vel að hann hitni í gegn.
- Hitið þangað til fer að krauma í pottinum og kjúklingurinn er orðinn nánast eldaður í gegn.
- Setjið núðlurnar út í og hrærið.
- Hitið í um 3-4 mínútur eða þangað til núðlurnar eru orðnar mjúkar
- Bætið við rækjunum grænu Pak Choi blöðunum og kókosmjólkinni, (tofuinu og öðru grænmeti ef það er notað) og hitið í nokkrar mínútur.
- Borðið með prjónum í kínaskálum með kínverskum skeiðum. Fyrir þá sem ekki vita þá eru þær aðeins öðruvísi í laginu en venjulegar matskeiðar og oft úr postulíni. Kínaskálar og skeiðar fást t.d. í versluninni Pipar og Salt á Klapparstíg.
- Athugið að ef þið eigið afganga af súpunni þá er líklegt að núðlurnar drekki í sig vökvann af súpunni og því ágætt að bæta við smávegis af grænmetiskrafti og heitu vatni daginn eftir. Svo má líka alveg hafa hana þykkari!
- Þeir sem hafa ofnæmi fyrir eggjum geta t.d. notað hrísgrjónanúðlur í staðinn fyrir eggjanúðlur. Best er að nota brúnar hrísgrjónanúðlur.
Thailenskar fiskikökur með sesamsósu
10. júní, 2008

Fiskur og kökur eru kannski ekki tvö orð sem eiga heima í sömu setningunni en enska heitið yfir þessa gerð matar er engu að síður fish cake svo ég held því yfir á íslensku. Uppskriftin er mjög lík uppskrift Deliu Smith en töluvert hollari þar sem ég steiki ekki kökurnar heldur baka þær í ofni. Mínar eru líka án glúteins (ekkert hveiti). Fiskurinn sem ég notaði (ýsa) er magur og fínn og þess vegna leyfði ég mér að nota creamed coconut sem er þrátt fyrir nafnið bara venjulegt kjöt úr kókoshnetu. Það er þó ekki létt í orðsins fyllstu merkingu en fitan er samt holl fita þ.e. ekki mettuð. Hægt er að fá creamed coconut á flestum stöðum þar sem austurlenskur matur er seldur (fæst t.d. í Hagkaupum). Creamed coconut er selt í pökkum (í laginu eins og spilastokkur) en ef það er ekki til má nota kókosfeiti (nema um 20 gr minna). Þó að innihaldslistinn virki langur þá er uppskriftin frekar einföld því megnið af innihaldinu fer í matvinnsluvél. Einnig má búa kökurnar til með góðum fyrirvara, baka og frysta til seinni tíma.
Thailenskar fiskikökur með sesamsósu
Fyrir 4 (20-24 litlar kökur)
Fiskikökurnar:
- 500 gr hvítur fiskur (t.d. ýsa, steinbítur, þorskur eða lúða). Bein- og roðhreinsið og skerið í stóra búta
- 1 stilkur sítrónugras, saxað gróft (hreinsið ystu blöðin af og saxið breiðasta hlutann (yfirleitt um 10 cm. langur bútur)
- 1 stór hvítlauksgeiri, afhýddur
- 1 cm. ferskt engifer, afhýtt og saxað gróft
- 3 msk ferskur coriander, saxað (má sleppa)
- 2 kaffir lime leaves, þurrkuð, söxuð gróft (má sleppa)
- Rifinn börkur af límónu (safinn er notaður í sósuna)
- 1 meðalstór rauður chillipipar, fræhreinsaður og saxaður gróft
- 1/2 rauð paprika, fræhreinsuð og söxuð gróft
- 50 gr creamed coconut (þjappað kjöt úr kókoshnetu). Notið 30 gr kókosfeiti í staðinn ef creamed coconut er ekki til.
- 1/2 tsk svartur pipar
- 1 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
Sesamsósan:
- 1 tsk sesamfræ, þurristuð á pönnu (hita í nokkrar mínútur við háan hita á pönnu)
- 1 msk sesamolía
- 1 msk límónusafi
- 1 tsk thailensk fiskisósa (nam plah). Fæst í flestum stærri verslunum, í austurlensku deildinni
- 1 msk tamarisósa
- 1 meðalstór rauður chillipipar, fræhreinsaður og saxaður mjög fínt
Aðferð:
- Fiskikökurnar eru útbúnar fyrst. Setjið sítrónugras, hvítlauk, engifer, coriander, kaffir lime leaves, rifna límónubörkinn, chilli og paprikuna í matvinnsluvél. Blandið í um 7-10 sekúndur (má ekki verða að mauki).
- Bætið fiskinum saman við og blandi í um 5-10 sekúndur eða þangað til allt er vel blandað saman.
- Blandið kókoskjötinu (creamed coconut) saman við og blandið í um 2-3 sekúndur.
- Setjið nú allt saman í skál og kryddið með salti og pipar.
- Mótið 20-24 frekar flatar kökur (um 1cm á þykkt og 3 cm. á breidd).
- Setjið bökunarpappír á bökunarplötu.
- Bakið í um 20-25 mínútur við 200°C. Snúa má kökunum við eftir um 10 mínútur.
- Á meðan kökurnar bakast skuluð þið búa til sesamsósuna.
- Setjið þurristuðu sesamfræin ásamt sesamolíunni, chillipiparnum, límónusafanum, fiskisósunni og tamarísósunni í litla skál og hrærið vel.
- Hægt er að frysta fiskikökurnar og hita upp í ofninum (eða á pönnu, ekki ætti að þurfa olíu þar sem kökurnar innihalda fitu úr kókosinum).
- Upplagt er að búa til þennan mat sem forrétt.
Túnfiskréttur í brauði
14. júlí, 2003
Þennan mat smökkuðum við fyrst hjá Smára bróður og Önnu Stínu konunni hans þegar við vorum í sumarfríi á Íslandi 2003. Þetta var frábær matur (enda frábærir kokkar), próteinríkur og magur og svo er líka tilbreyting að borða svona brauðrétt heldur en þann sem maður borðar alltaf í eldföstu móti. Það má gera nánast alla brauðrétti svona og setja þá í brauð og inn í ofn. Tilvalin tilbreyting í saumaklúbbinn. Svo er nú alltaf gott að fá súpu í brauði (hver hefur ekki fengið sér svoleiðis á Svarta Kaffi t.d.???)
Túnfiskréttur í brauði
Fyrir 2-3
- 1 kúlubrauð, gróft (fæst í bakaríum. Reynið að kaupa speltbrauð en heilhveitibrauð ef annað fæst ekki. Athugið að brauðin innihalda ger)
- 3 stk harðsoðin egg (3 eggjahvítur, 1 eggjarauða)
- 1 dós túnfiskur í vatni (kaupið "Dolphin friendly" túnfisk)
- 1/2 stk laukur, skorinn smátt
- 1 blaðlaukur, hvíti hlutinn notaður, brytjaður smátt
- 1/2 stk rauð paprika
- 1/2 stk græn paprika
- 100 gr 11% ostur, rifinn
- 4 msk majones. Einnig má nota 10% sýrðan rjóma (án gelatíns) og AB mjólk. Hægt er að kaupa létt-majones (6% fita) en það er yfirleitt með sykri og viðbættum efnum
- 1 tsk steinselja
- Heilsusalt (Herbamare) og pipar
Aðferð:
- Látið leka vel af túnfiskinum.
- Setjið eggin í gegnum eggjaskera, langsum og þversum svo þau verði að litlum bitum.
- Saxið laukinn og blaðlaukinn fínt.
- Skerið paprikurnar í bita.
- Blandið öllu saman ásamt öðru sem á að fara í réttinn.
- Setjið í brauðið og bakið í 30 mínútur við 200°C.
- Berið fram salat t.d. með fetaosti, vínberjum, appelsínum, iceberg, ólífum, kashewhnetum (mig minnir að þetta hafi verið innihaldið að salatinu sem Anna Stína bjó til með þessum mat).
Túnfisksalat
30. október, 2003

Létt og gott túnfisksalat, passar æðislega vel með brauði og alls kyns kexi. Ég borða sjaldan hráan lauk en mörgum finnst gott að setja rauðlauk í túnfisksalatið. Sumarið 2007 var ég í hestaferð um hálendið og bjó til túnfisksalat með sýrðum rjóma, majonesi, rauðlauk, karrí og pipar ofan í 12 þýska hestamenn. Þeir fríkuðu út. Þeir sleiktu skálina að innan, þeir hrópuðu upp yfir sig af gleði í hvert skipti þegar þeir sáu salatið og ég var drottning drauma þeirra og ég veit ekki hvað (fyrir túnfisksalat? Kommon). Er túnfisksalat ný uppfinning í þýskalandi? Þau fengu öll sem eitt uppskriftina að túnfisksalatinu. Athugið að það er ekki algengt að sjá karrí í túnfisksalati en mér finnst það passa sérlega vel við.
Túnfisksalat
Fyrir 3-4 sem meðlæti
- 2 harðsoðin egg (notið hvítuna úr einu eggi og svo má nota hitt eggið heilt (með rauðunni og hvítunni)
- 1/4 tsk svartur pipar
- 1/4 tsk karrí
- 1 dós túnfiskur í vatni (100-150 gr). Gætið þess að túnfiskurinn sé Dolphin Friendly, ætti að standa utan á dósinni. Þessi frá Euro Shopper er það ótrúlegt en satt.
- 3/4-1 dl majones Einnig má nota 5% sýrðan rjóma frá Mjólku (Hann er án gelatíns). Hægt er að kaupa létt-majones en það inniheldur sykur og viðbætt efni og getur innihaldið glútein
- 1/2 saxaður rauðlaukur (má sleppa)
Aðferð:
- Sjóðið eggin og kælið.
- Fjarlægið aðra eggjarauðuna.
- Notið eggjaskera og skerið eggin fyrst langsum og svo þversum (svo það endi í litlum bitum).
- Hellið vatninu af túnfiskinum og setjið hann í skál.
- Setjið egg, majones eða sýrðan rjóma, karrí og svartan pipar í skálina.
- Afhýðið og saxið laukinn ef hann er notaður og bætið honum út í.
- Hrærið öllu vel saman.
- Það er í góðu lagi að láta salatið standa í ísskáp yfir nótt áður en á að nota það, verður bara betra.
Túnfiskspastaréttur
10. mars, 2003

Ég hafði aldrei þorað að setja túnfisk í pasta, veit ekki afhverju, mér hefur aldrei þótt það girnilegt en svo einu sinni þá fórum við út að borða á Guachos, á Harrow-on-the-Hill (þar sem við bjuggum einu sinni í Bretlandi) og þar smakkaði ég túnfiskpasta og það var algjört æði. Þessi uppskrift hérna fyrir neðan er mín útgáfa (aðeins hollari) af því sem ég borðaði þar og er blanda úr nokkrum uppskriftum sem ég fann hér og þar. Þetta er afar hollur og góður réttur, próteinríkur og inniheldur nauðsynlegar omega fitusýrur.
Túnfiskspastaréttur
Fyrir 2-3
- 400 gr túnfiskur í vatni (Dolphin Friendly). Hellið vatninu af
- 200 gr spelt penne pasta (lítil rör) eða skrúfur
- 400 ml krukka af pastasósu (með tómötum sem aðaluppistöðu, sveppum, lauk og hvítlauk. Aðalatriðið er að hún sé fitusnauð og að sé ekki sykur í henni og að engin skrýtin aukaefni séu í henni eins og MSG (Monosodium Glutamate eða einhver E-600 efni). Kaupið helst lífrænt framleiddar sósur.
- 400 gr tómatar, vel þroskaðir, saxaðir, (má nota 400 gr dós af söxuðum niðursoðnum tómötum)
- 2 msk tómatpurré
- 3 sveppir sneiddir fínt
- 1/2-1 dl svartar ólífur í sneiðum
- 2 hvítlauksgeirar, pressaðir eða saxaðir (má sleppa ef hvítlaukur er í sósunni)
- 1 msk svartur pipar
- 1 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt) (má sleppa ef salt er í túnfiskinum)
- 1 tsk kókosfeiti
Aðferð:
- Byrjið á því að sjóða pastað samkvæmt leiðbeiningum utan á pakka.
- Látið renna af pastanu, kælið undir kaldri bunu í nokkrar sekúndur og geymið.
- Hitið smá kókosfeiti og vatn í stórum potti og hitið sveppina og ólífurnar.
- Kryddið með salti og smá pipar.
- Hellið sósunni saman við og hitið þangað til hún er orðin vel heit.
- Bætið túnfisknum út í og hrærið varlega þannig að séu enn þá bitar í túnfisknum þ.e. passið að sundurtæta ekki túnfiskinn.
- Bætið pastanu saman við og hitið vel.
- Berið fram með ferskum parmesanosti og kannski Ólífubrauði með pestó og parmesan eða Snittubrauði.
- Í einni uppskriftinni sem ég studdist við, voru 500 gr af pasta. Pastað fer ekki það vel í magann minn og ég vildi frekar leyfa pastasósunni að njóta sín meira en ef þið viljið, bætið þá meira pasta við (ég notaði bara 200 gr af pasta en jafnmikið af öllu hinu).
- Að sjálfsögðu er hægt að nota sína eigin pastasósu ef maður hefur nægan tíma. Aðaluppistaðan ætti að vera niðursoðnir tómatar, tómatpurée, laukur, hvítlaukur, basil og sveppir og jafnvel kúrbítur (enska: courgette, zucchini).
Wagamama laxanúðlur
26. apríl, 2009

Margir þekkja Wagamama núðlustaðinn í London. Hann er reglulega fínn. Þeir elda ekki bara góðan mat heldur eru þeir einnig meðvitaðir um náttúru og endurvinnslu, nota t.d. ekki bambus úr skógum í eyðingarhættu, nota ekki msg né önnur aukaefni í mat og nota aðeins kjöt af hamingjusömum dýrum. Ég á bókina Wagamama Ways with Noodles og hún er mjög fín. Ég var að fletta bókinni minni um daginn og átti laxaafganga í frystinum og útbjó þennan rétt. Hann er nánast beint upp úr bókinni en ég bætti við smá slettu af lime og agavesírópi (alltaf gott í svona steikingu). Einnig notaði ég meira af sveppum og notaði ferska en ekki þurrkaða og ég notaði líka meira af laxi. Ég notaði líka grófar speltnúðlur. Þetta er þó allt smekksatriði, sumir vilja t.d. meira af núðlum á móti hinu hráefninu en ég vil hafa það akkúrat öfugt, er ekki það hrifin af því að troða mig út af núðlum. Ég mæli svo með að þið prófið Wagamama ef þið eigið leið hjá London (eða Köben). Okkar uppáhalds Wagamama staður er í Covent Garden, London. Mætið snemma því það er alltaf biðröð!
Wagamama laxanúðlur
Fyrir 2
- 100 gr flatar speltnúðlur (úr grófu spelti ef þið fáið slíkar). Einnig má nota aðrar núðlur
- 10 ferskir shiitake sveppir, saxaðir gróft (sumum finnst betra að fjarlægja stöngulinn en mér finnst hann góður). Einnig má nota þurrkaða sveppi
- 1 tsk kókosfeiti og vatn til viðbótar ef þarf meiri vökva við steikingu
- 1 laukur, saxaður fínt
- 1 gulrót, flysjuð og sneidd í mjóar ræmur, langsum
- 1-2 hvítlauksgeirar, marðir
- 2 cm. bútur ferskt engifer, afhýdd og saxað fínt
- 200 gr lax í bitum (nota má meira eftir smekk)
- 3 tsk tamarisósa (upprunaleg uppskrift var með soyasósu)
- 100 ml grænmetissoð (1/2 gerlaus grænmetisteningur og vatn) (má nota kjúklingasoð)
- 2 tsk kornmjöl (enska: corn flour) eða kartöflumjöl (líka hægt að nota arrow root), leyst upp í 2 msk af vatni
- 1 tsk agavesíróp
- 1 msk límónusafi
- Salt (Himalaya eða sjávarsalt)
- Smá klípa svartur pipar
Aðferð:
- Sjóðið núðlurnar samkvæmt leiðbeiningum. Skolið upp úr köldu vatni þegar þær eru tilbúnar, látið vatnið renna af og setjið til hliðar.
- Hitið kókosfeitina á wok pönnu (ef þið eigið, annars annarri stórri pönnu).
- Steikið hvítlauk, lauk og engifer þangað til allt fer að ilma.
- Bætið laxi, sveppum og gulrótum saman við og steikið í nokkrar mínútur.
- Bætið agavesírópinu og límónusafanum saman við.
- Bætið grænmetissoðinu saman við sem og kornmjölsblöndunni.
- Bætið tamarísósunni saman við.
- Látið suðuna koma upp.
- Bætið núðlunum saman við, losið vel um þær með t.d. gaffli eða töng.
- Látið hitna þangað til laxinn er tilbúinn (ekki láta hann ofhitna samt svo hann verði ekki harður eða þurr).
- Kryddið með salti og pipar.
- Berið fram sjóðandi heitt.
- Einnig má nota rækjur saman við eða skipta laxi út fyrir t.d. kjúkling fyrir þá sem vilja (og geta keypt hamingjusaman kjúkling).
- Þið getið notað hrísgrjónanúðlur eða bókhveitisnúðlur (soba núðlur) ef þið hefið glúteinofnæmi.
Þorskfille Provincale
27. febrúar, 2003
Þessi fína uppskrift er úr Nýkaupsbókinni hans Sigga Hall (að grunninum til að minnsta kosti). Ég hef ekki borðað þorsk síðan sumarið 2003 þegar ég lenti í „incidentinu” í London. Við vorum með matarboð úti í garði í æðislegu veðri. Gestirnir borðuðu matinn með bestu lyst en fannst dáldið skrítið að ég væri með spagetti í matnum, sögðu að sjálfsögðu ekki neitt þar sem þau voru voða kurteis. Þeim fannst líka dáldið skrítið þegar ég henti allt í einu öllum matnum af diskinum mínum aftur fyrir mig, í brjálæðiskasti, beint á plómutréð í garðinum!!! Það var semsagt á þessum tímapunkti sem ég kom auga á spagettiið=ormana í þorskinum, vel eldaða og stinna. Ég er dáldið viðkvæm fyrir svona ógeði í mat, hef mjög lágan ógeðsþröskuld og borða ALDREI þorsk aftur, ever, nokkurn tíma, á ævinni. Það er sem sagt ástæðan fyrir því að rétturinn HEITIR Þorskfille Provincale og að í uppskriftinni minni er ýsa. Andskotans ormar.
Þorskfille Provincale
Fyrir 3-4
- 600 gr ÝSUfille, roðlaust og beinlaust (skorið í 4 skammta)
- 1 tsk kókosfeiti eða ólifuolía og vatn til viðbótar ef þarf
- 1 stk laukur, miðlungstærð, sneiddur
- 1-2 stk hvítlauksrif, söxuð
- 1 stk rauð paprika, sneidd
- 1 stk græn paprika, sneidd
- 350 gr niðursoðnir tómatar, saxaðir
- 2 msk tómatpuree, hreint og helst lífrænt framleitt
- 2 msk ferskt basil eða steinselja, saxað
- 300 ml fiskisoð (hægt að nota fiskikraft og vatn)
- 2 tsk spelt blandað saman við kalt vatn
- 8 stk steinlausar svartar ólifur, skornar í hálft
- Heilsusalt (Herbamare) og nýmalaður svartur pipar
- Má setja, magran, rifinn ost ofan á, mjög gott (notið um 100 gr).
Aðferð:
- Hitið kókosfeitina eða ólífuolíunna á pönnu, steikið laukinn og hvítlaukinn í u.þ.b. 2-3 mínútur, hrærið í stöðugt.
- Setjið paprikurnar, tómatana, ólifurnar, tómatpuree og næstum því allt basil eða steinseljuna og fiskisoðið á pönnuna, blandið þessu vel saman og látið suðuna koma upp.
- Blandið speltjafningnum saman á pönnuna og sjóðið í um 2 mínútur eða þangað til þykknar, hrærið stöðugt í.
- Setjið fiskinn í eldfast mót og látið allt af pönnunni ofan á hann.
- Ef rifinn ostur er notaður, dreifið honum þá yfir.
- Hitið í um 20-30 mínútur við 180°C.
- Berið fram með t.d. hýðishrísgrjónum, salati og grófu brauði.
- Það má að sjálfsögðu nota þorsk frekar en ýsu ef ykkur finnst það betra.