Kökur og eftirréttir
Mér finnst voðalega gaman að fá mjög óholla uppskrift sem mér líst vel á og gera hana eins holla og hægt er (fæ eitthvað rosa mikið kikk út úr því). Ég bendi til dæmis á uppskriftina Alvöru gulrótarkaka nema holl í þessu samhengi. Kakan sú er nánast alveg fitulaus, full af vítamínum (gulrætur, rúsínur, hveitiklíð, skyr) og það er ekkert smjör, enginn rjómi, enginn flórsykur og engin olía. Það eru reyndar 2 egg og ávaxtasykur en það er líka eina óhollustan!! Það væri hreinlega vitleysa að búa ekki til gulrótarkökuna og borða oft því hún er svo holl hí hí. Ég nota aldrei rjóma, smjör, hvítan sykur, ger eða hvítt hveiti í bakstur. Ég nota oft sykurlausan barnamat í staðinn fyrir olíur og ég nota alltaf ávaxtasykur eða sætuefni eins og agavesíróp, byggmaltsíróp, hlynsíróp o.s.frv. í bakstur. Ef ég nota olíur nota ég holla fitu eins og ólífuolíu eða kókosfeiti. Munið þó að þar sem ekki er mikil fita í kökunum þá er ekki hægt að geyma þær mjög lengi. Jóhannes hefur reyndar séð til þess að ég þurfi aldrei að hafa áhyggjur af því að þurfa að geyma kökur!
Kökur
Smákökur og konfekt
Kökubrauð
Muffins
Annað
Afmælisdöðluterta
5. mars, 2003

Þetta er einföld og þægileg uppskrift, upplögð fyrir afmælisveisluna. Hægt er að gera hana með nokkurra daga fyrirvara.
Afmælisdöðluterta
Gerir 1 köku
- 125 gr döðlur, soðnar í 2 dl eplasafa í u.þ.b. 10-15 mín
- 1 dl Hipp Organic eða Holle (barnamatur) eplamauk eða bananamauk
- 1 msk kókosfeiti
- 50 gr heslihnetur, malaðar
- 50 gr cashewhnetur, malaðar
- 100 gr möndlur, malaðar (einnig má nota brasilíuhnetur og pecanhnetur á móti)
- 1 tsk vínsteinslyftiduft
- 1 banani, stappaður
- 1 tsk vanilludropar
- 1 tsk kanilduft
- 1/2 tsk Heilsusalt (Herbamare)
- 1 1/2 dl kókosmjöl
Aðferð:
- Setjið döðlurnar í matvinnsluvél með u.þ.b. helmingnum af eplasafanum, gætið þess að deigið verði ekki of blautt og bætið frekar út í ef þarf.
- Setjið deigið í skál.
- Bætið öllu öðru út í (nema barnamatnum) og hrærið aðeins saman.
- Setjið í bökunarform (ég nota bökunarpappír í bökunarformið) og bakið við 180°C í um 20-25 mín.
- Þegar kakan er komin úr ofninum, leyfið henni þá að kólna.
- Smyrjið barnamatnum yfir kökuna og leyfið henni að vera svoleiðis í a.m.k. klukkutíma áður en þið skreytið hana.
- Skreytt með ferskum vel þroskuðum ávöxtum t.d. kíwí, mandarínum, jarðarberjum, hálfum vínberjum o.s.frv. Einnig er gott að setja bananasneiðar ofan á sem og kókosflögur.
- Passið að deigið verði ekki of blautt, því annars endið þið með döðlumús!!
Afrísk sítrónu- og appelsínukaka með birkifræjum
21. ágúst, 2005
Þetta er kannski meira í ætt við kökubrauð heldur en hefðbundna köku þar sem ekkert krem er á henni. Hún passar vel sem létt síðdegiskaka/brauð með kaffi eða tei. Það er gott að bera fram marmelaði (lífrænt framleitt og án viðbætts sykurs) með henni. Í upphaflegu uppskriftinni áttu að vera 325 gr af sykri, 125 gr af smjörlíki og 4 egg þannig að fyrir þá sem vilja djúsí köku þá þarf að breyta innihaldi kökunnar frá minni útgáfu! Þessa köku er best að bera fram sama dag og hún er bökuð því hún verður annars of þurr. Mikilvægt er að nota rétta stærð á formi þ.e. 20 cm.
Upphaflega uppskriftin kemur úr frábærri bók sem ég keypti í Afríku sem heitir Recipes from the African Kitchen eftir Josie Stow og Jan Baldwin.
Afrísk sítrónu- og appelsínukaka með birkifræjum
Gerir eina köku
- 2 msk kókosfeiti eða ólífuolía
- 200 ml krukka sykurlaus barnamatur með ávöxtum t.d. Hipp Organic (áttu að vera 125 gr smjör)
- 100 gr ávaxtasykur
- 3 msk byggmaltsíróp (enska: Barley malt syrup) eða hreint hlynsíróp (enska: maple syrup)(áttu að vera 200 gr af sykri)
- 2 egg og 2 eggjahvítur, hrærð létt saman (áttu að vera 4 egg)
- 300 gr spelti
- 2 tsk vínsteinslyftiduft
- 150 ml undanrenna (gætuð þurft minna)
- 40 gr birkifræ (poppy seeds)
- Börkur af 1 appelsínu, rifinn mjög fínt
- Börkur af 1 sítrónu, rifinn mjög fínt
- 2 tsk vanilludropar eða vanilluduft
Ofan á kökuna
- Börkur af 1 appelsínu, rifinn mjög gróft
- Börkur af 1 sítrónu, rifinn mjög gróft
- 125 ml hreinn appelsínusafi
- 4 msk sítrónusafi
- 75 ml sykurlaus barnamatur með ávöxtum t.d. Hipp Organic (hér átti að nota 125 gr af sykri)
- 1 msk hreint hlynsíróp eða byggmalt síróp
Aðferð:
- Hitið ofninn í 160°C.
- Setjið bökunarpappír innan í 20 cm. hringlaga smelluform.
- Hrærið kókosfeitinni eða ólífuolíunni og ávaxtasykrinum + byggmaltsírópinu saman.
- Hrærið eggjablöndunni saman við.
- Sigtið saman í stóra skál, speltið og lyftiduftið.
- Bætið eggjablöndunni varlega saman við. EKKI hræra mikið.
- Bætið undanrennunni varlega saman við (gætuð þurft minna en kemur fram í uppskriftinni).
- Bætið birkifræjunum ásamt berkinum af sítrónunni og appelsínunni og vanilludropunum varlega saman við.
- Deigið á að vera frekar blautt og ef maður stingur sleif ofan í deigið og tekur sleifina upp aftur, ætti deigið að leka í stórum kekkjum. Það á ekki að vera hægt að hnoða deigið.
- Hellið þessu í formið og bakið í um 40-60 mínútur eða þangað til prjónn sem stungið er í miðjuna kemur hreinn út. Gætið þess samt að ofbaka ekki kökuna. Tékkið á henni eftir um 40 mínútur og lækkið hitann ef hún er að bakast of hratt. Hún verður of þurr ef hún er ofbökuð. Gott er að setja álpappír ofan á hana til að hún bakist jafnar í gegn.
- Á meðan kakan er að bakast þá getið þið undirbúið það sem fer ofan á hana
- Setjið grófa appelsínu- og sítrónubörkinn ofan í pott með sjóðandi vatni í um 1 mínútu, sigtið svo vatnið frá.
- Hrærið saman sítrónu- og appelsínusafanum ásamt barnamatnum og byggmalt sírópinu.
- Þegar kakan er tilbúin í ofninum, takið hana þá út og stingið fullt af götum í hana.
- Smyrjið blöndunni strax ofan á kökuna og skreytið með grófa berkinum.
- Berið fram annað hvort volga eða kalda með sykurlausu appelsínumarmelaði og tei (hægt að nota appelsínu og sítrónusneiðar út í heitt vatn líka).
- Það er upplagt að nota sítrónur og appelsínur sem til falla í þessari uppskrift út í heitt vatn og drekka eins og te. Einnig er hægt að nota sítrónu- og/eða appelsínusneiðar út í kalt vatn. Mjög hressandi og fullt af C vítamínum.
Alvöru gulrótarkaka nema holl
5. mars, 2003

Sumir fá sér gulrótarkökusneið á kaffihúsum af því "eitthvað með gulrótum HLÝTUR að vera hollt, ekki satt"? En nei ónei, gulrótarkökur eru eitt af því óhollasta sem bakað er. Smjör, rjómaostur, flórsykur, sykur o.s.frv., uss uss algjört eitur og maður á ekki að láta þetta ofan í sig. Þessi uppskrift hér að neðan er verulega góð OG hún er holl og fitulítil!! Trúið þið því að það sé til fitulítil gulrótarkaka? Prófið sjálf og þið megið alveg láta mig vita hvernig ykkur fannst!! Upprunaleg uppskrift er frá Deliu Smith en ég er búin að breyta henni smávegis (sleppti olíunni en nota ávaxtamauk í staðinn og nota ekki hreinan hvítan sykur heldur rapadura sykur og agavesíróp). Það eru innan við 5 grömm af fitu í allri uppskriftinni, að kreminu meðtöldu!!!! Athugið að geyma þarf kremið í ísskáp í um 2-3 tíma áður en maður notar það. Kakan er mun einfaldari en listinn hér að neðan gefur til kynna. Ég útskýri yfirleitt meira en minna og það er ástæðan fyrir því að kakan virkar flókin því hún er það alls ekki! Ef þið ætlið að geyma kökuna í meira en 2 daga er gott að setja 1-2 mtsk af kókosfeiti.....hef bara aldrei þurft að geyma hana svo lengi!
Alvöru gulrótarkaka nema holl
Gerir 12 bita cirka
- 120 gr rapadura sykur eða annar hrásykur
- 2 msk agavesíróp
- 2 egg
- 175 ml krukka af Hipp Organic, Organix eða Holle, sykurlausum og lífrænum barnamat t.d. Apple and Blueberry dessert, Peach, Apple, Banana o.fl.
- 225 gr spelti
- 25 gr hveitiklíð (má sleppa og nota meira spelti í staðinn)
- 1 msk vínsteinslyftiduft
- 3 kúfullar teskeiðar af blönduðu kryddi (múskat, kanill, vanilla, vanilludropar t.d.)
- Rifinn börkur af 1 lítilli appelsínu (mikilvægt að nota lífrænt ræktaða)
- 200 gr afhýddar gulrætur og rifnar gróft á rifjárni
- 175 gr rúsínur
Kremið:
- 200 gr skyr. Einnig má nota Kvarg (Kvarg er mjúkur ostur úr léttmjólk)
- 2 msk agavesíróp
- 50 gr döðlur sem eru búnar að liggja í sjóðandi heitu vatni í 20 mínútur
"Sírópið"
- 1 tsk agavesíróp (má sleppa)
- Safi úr 1/2 lítilli appelsínu (eða 2 msk hreinn appelsínusafi)
- 1 tsk sítrónusafi
- 75 ml Hipp Organic, Organix eða Holle barnamatur t.d. Apple and Blueberry dessert en má vera annað t.d. Peach, Apple, Banana o.fl.
Aðferð:
- Í þessa uppskrift þarf bökunarform sem er 25.5 x 15 cm. og 2.5 cm. djúpt. Það er best að nota bökunarpappír í formið.
- Forhitið ofninn í 170°C.
- Byrjið á því að blanda saman rapadura hrásykri, agavesírópi, eggjum og ávaxtamauki (barnamatnum) í skál. Setjið til hliðar (Getið notað bæði handþeytara eða gaffal).
- Blandið því næst speltinu, lyftiduftinu, hveitiklíðinu og blandaða kryddinu í aðra en stærri skál.
- Blandið svo appelsínuberkinum, gulrótunum og rúsínunum út í spelt skálina.
- Blandið nú eggjablöndunni saman við.
- Athugið! Blandið mjög lauslega, alls ekki hræra (rétt að velta deiginu til) og ALLS ekki setja í hrærivél!!
- Hellið svo blöndunni í bökunarformið (með bökunarpappírnum) og bakið í miðjum ofninum í 30-35 mínútur þangað til kakan rís og er þétt viðkomu.
- Á meðan kakan er að verða til, blandið þá kremið með því að setja allt hráefnið í það í matvinnsluvél eða blandara (hellið nánast öllu vatninu af döðlunum) og blandið þangað til kremið er orðið "létt" og döðlurnar orðnar maukaðar. Setjið plastfilmu yfir og geymið í ísskápnum í minnst 1-2 tíma eða þangað til þarf að nota kremið.
- Nú þarf að búa til "sírópið" og til að gera það, skal blanda saman sítrónu- og appelsínusafanum og agavesírópinu í skál.
- Svo þegar kakan er komin út úr ofninum, stingið þá í hana alla með prjóni og setjið strax "sírópið" eins jafnt yfir og hægt er, gott er að setja ríflega því kakan dregur í sig rakann.
- Látið kökuna kólna og á meðan dregur hún "sírópið" í sig.
- Svo þegar kakan er alveg orðin köld, takið hana þá úr forminu og smyrjið kreminu á.
- Ágætt er að leyfa kökunni standa í ísskáp með kreminu á í um klukkustund.
- Dreifið smá kanil yfir kremið ef þið viljið meira kanilbragð.
- Skerið í 12-16 bita.
- Hægt er að setja kökuna í kringlótt form líka en gætið að bökunartímanum (ef formið er minna að ummáli þarf að baka kökuna lengur (því hún er þykkari) o.s.frv.
Appelsínu- og engiferkaka
20. maí, 2007

Þessi kaka er án glúteins og hentar því vel fólki sem þolir það illa eða hefur ofnæmi. Kakan er mjög góð með kaffinu og er frískleg á bragðið. Ekki hafa áhyggjur af því að það sé tofu í kökunni, það finnst ekkert bragð af því! Kakan þarf að bakast í rúman klukkutíma svo gerið ráð fyrir því ef þið eruð að fá fólk í kaffi! Þessi uppskrift kemur úr bók sem ég á sem heitir The gluten-free cookbook.
Appelsínu- og engiferkaka
Gerir 1 köku
- 150 gr tófú (stíft), vatninu hellt af
- 200 gr brasilíuhnetur, heilar
- 100 gr möndlur, heilar
- Hýði af 2 appelsínum
- 325 gr ferskur ananas, afhýddur og saxaður gróft
- 40 gr ferskt engifer, saxað gróft
- 150 gr ávaxtasykur (Upprunaleg uppskrift gaf 250 gr en ég vildi ekki hafa hana of sæta)
- 4 egg
- 2 eggjahvítur
- 1,5 tsk vínsteinslyftiduft
- 125 gr kartöflumjöl
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180°C.
- Klæðið 20 cm. kringlótt smelluform (eða lausbotna form) með bökunarpappír.
- Myljið tofuið í stóra skál.
- Setjið brasilíuhneturnar og möndlurnar í matvinnsluvél og setjið á hæsta hraðann í 20 sekúndur eða þangað til hneturnar fara að líkjast fínum brauðmylsnum.
- Bætið kartöflumjölinu saman við og blandið í 2 sekúndur.
- Bætið appelsínuberkinum saman við og blandið í 5 sekúndur.
- Bætið nú öllu saman við tofuið í stóru skálinni.
- Setjið ananasinn, engiferið og ávaxtasykurinn í matvinnsluvélina (þarf ekki að þrífa hana á milli) og blandið í 10-15 sekúndur eða þangað til allt er orðið svolítið maukað (svona eins og gróft marmelaði).
- Blandið saman við tofuið og hneturnar.
- Blandið saman eggjahvítunum og eggjunum og blandið saman við deigið í skálinni.
- Hellið deiginu í smelluformið og bakið í um 1 klukkustund og 20 mínútur.
- Ekki vera stressuð yfir því að deigið sé eins og súrmjólk (þ.e. blautt) því það mun þéttast í bakstri.
- Til að athuga hvort kakan er tilbúin er gott að stinga prjóni í hana miðja. Ef prjónninn kemur hreinn út er kakan tilbúin. Ef ekki er gott að baka í 10 mínútur í viðbót og prófa svo aftur. Ef þið bakið kökuna lengur er gott að setja álpappír ofan á hana til að hún bakist ekki meira ofan á.
- Kakan lyftist ekki mikið heldur verður hún frekar þétt og blaut og er einstaklega góð með t.d. með þeyttum rjóma eða hollum ís. Sérstaklega ef hún er borin fram heit.
Banana- og hnetukaka með sítrónu-kókoskremi
1. september, 2007

Þessi er óskaplega einföld og það þarf engan bakaraofn og ekkert vesen. Það er þó nauðsynlegt að eiga matvinnsluvél (eða góðan blandara). Þessi er upplögð þegar þið eruð að fá gesti eftir klukkutíma. Það má vel tvöfalda uppskriftina og gera þykkari köku en þessi er frekar þunn. Ekki láta útlitið fæla frá því kremið virkar svolítið eins og gubb....Ég lofa samt að það er ekki þannig á bragðið því kremið er frísklegt og passlega sætt. Sumarleg og fín kaka. Það er um að gera að skreyta hana með t.d. kókosflögum en ég gerði það reyndar ekki fyrir myndina sem ég tók af henni!
Banana- og hnetukaka með sítrónu-kókoskremi
Gerir 1 köku
- 80 gr cashewhnetur
- 80 gr möndlur
- 110 gr döðlur
- 2 msk carobduft (dökkt ef það er til, annars ljóst)
- 1/2 tsk kanilduft
- 1 tsk vanilludropar
- 35 gr kókosflögur (t.d. frá Rapunzel eða Himneskri hollustu)
- 1 tsk ólífuolía
- 3 msk appelsínusafi
- 2 msk sítrónusafi
- 2 stórir, vel þroskaðir bananar.
Aðferð:
- Setjið cashewhnetur, möndlur, carobduft, kanilduft, vanilludropa og appelsínusafa í matvinnsluvélina. Blandið allt vel. Á ekki að vera maukað en á að haldast frekar vel saman þó. Setjið í skál.
- Blandið döðlurnar og bætið saman við hnetublönduna.
- Þrífið matvinnsluvélina og blandið saman ólífuolíu, öðrum banananum, sítrónusafa og kókosflögunum. Setjið í skál og geymið í kæli þangað til nota á kremið.
- Setjið plastfilmu í bökumót (eða bara kringlótt form um 20-24 cm) og þrýstið hnetublöndunni vel ofan í.
- Skerið hinn bananann í sneiðar og raðið ofan á botninn.
- Setjið í frysti í 10 mínútur eða lengur (ekki lengur þó en 30 mínútur ef nota á kökuna strax).
- Takið úr frystinum og hvolfið varlega ofan á kökudisk.
- Smyrjið kreminu ofan á.
- Skreytið með kókosflögum.
- Einnig má skreyta með öðrum ávöxtum eins og rauðum berjum, 1/2 tsk af rifnum sítrónuberki (mikilvægt að nota lífrænt ræktaða sítrónu) eða jafnvel með appelsínusneiðum.
Bláberjaísterta
18. ágúst, 2008

Hafið þið einhvern tímann spáð í hvort að bláber haldi fegurðarsamkeppni? Ég gat ekki annað eftir einn berjamóinn. Ég valdi þátttakendur í keppnina og við Jóhannes dæmdum. Það voru mjög margir keppendur sem áttu skilið að vinna en sigurvegararnir sitja stoltir ofan á bláberjaístertunni á myndinni. Þetta er algjörlega dásamleg ísterta og fullkomin ef maður á nýtínd bláber. Svo er kakan alveg svakalega holl því í henni eru hnetur og auðvitað bláber en hneturnar stuðla að heilbrigðu hjarta og æðakerfi en bláberin eru stútfull af andoxunarefnum og járni. Það eru engar mjólkurvörur og engin egg í uppskriftinni og hentar því þeim sem hafa mjólkur- og/eða eggjaóþol.
Bláberjaísterta
Gerir eina tertu
Botn:
- 1,5 bolli hnetur (ég miða við 250 ml bolla). Ég notaði möndlur og cashewhnetur.
- 1 lúka döðlur
- 3 msk agavesíróp
Ísfylling:
- 2 bollar macadamia hnetur (ég notaði brasilíuhnetur og cashewhnetur).
- 1,5 bolli möndlumjólk (einnig má nota sojamjólk eða undanrennu). Ef mjólkin er ekki sætt (t.d. með eplasafa) þarf að bæta við 2 msk af agavesírópi
- 1 bolli bláber
- 1/2 bolli agavesíróp + 2 msk ef þarf
- 4 msk kókosfeiti
- 1 tsk vanilludropar eða vanilluduft úr heilsubúð
- 1/4 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
Aðferð:
- Leggið döðlur og hnetur/möndlur fyrir botninn í bleyti í nokkra klukkutíma (ef þið hafið tíma…betra fyrir matvinnsluvélina).
- Leggið hnetur fyrir fyllinguna í bleyti í nokkra klukkutíma.
- Hellið vatninu af hnetum og döðlum.
- Setjið döðlur, agavesíróp og hnetur/möndlur í matvinnsluvél og blandið vel (ekki samt þannig að verði að mauki heldur fínkornótt).
- Setjið plastfilmu í botninn á lausbotna kökuformi. Formið þarf að vera um 20cm í þvermál.
- Þrýstið vel niður og jafnið botninn út.
- Setjið möndlumjólk, bláber, agavesíróp, salt, vanilludropa og macadamia hnetur í matvinnsluvél og blandið mjög vel.
- Bætið kókosfeitinni saman við og blandið vel.
- Hellið í ísvél ef þið eigið slíka og frystið í um 30 mínútur.
- Ef þið eigið ekki ísvél, hellið þá ísfyllingunni beint í formið og frystið. Það er ekki nauðsynlegt en er mjög gott fyrir áferðina.
- Fjarlægið plastið undan kökunni þegar þið berið hana fram og setjið hana á disk.
- Látið kökuna standa í ísskáp í nokkra klukkutíma eða þangað til hún er orðin nægilega mjúk til að skera hana.
- Skreytið með bláberjum en einnig er krydduð bláberjasulta algjört sælgæti með.
Bláberjaostakaka
10. maí, 2003

Þessi uppskrift er nánast sú sama og að
"Curd" ostakökunni hérna á síðunni, ég bætti bara bláberjum útí ostablönduna og sleppti pistachiohnetunum. Einnig er hægt að nota Philadelphia light "rjómaostinn" (soft cheese) sem fæst á Íslandi í staðinn fyrir curd.
Bláberjaostakaka
1 kaka fyrir 10-12
- 500 gr curd cheese (hleypiostur/ystingur) 12% fita eða minna. (Hægt að nota Philadelphia "Soft Cheese" í staðinn).
- 250 gr kvarg (fitulaus ostur en einnig má nota hreint skyr)
- 2,5 msk kókosfeiti
- 5 msk hreinn appelsínusafi (eða meira eftir þörfum)
- 200 gr gróft hafrakex eða speltkex (það hollasta, sykurminnsta og fituminnsta sem þið finnið, ætti ekki að fara upp fyrir 15gr af fitu og sykur ætti ekki að vera í efstu sætunum og helst ekki á listanum. Ef hann er, ætti hann að vera raw cane sugar (hrásykur). Hægt er að fá góð spelthafrakex í heilsubúðum.
- 50 gr muesli t.d. með rúsínum og hnetum án viðbætts sykurs (má nota meira kex í staðinn)
- 3 stór egg
- 3 msk agavesíróp
- 100 gr fersk bláber (eða frosin og afþýdd). Einnig er hægt að nota 2 msk af sykurlausu bláberjasultunni frá St. Dalfourd (fæst t.d. í Hagkaupum og þær eru án viðbætts sykurs)
- 2 tsk vanilludropar eða vanilluduft úr heilsubúð
- 200 gr grískt jógúrt með 0% fitu (ef það fæst ekki má sía hreina jógúrt í gegnum grisju eða hreint viskustykki í nokkra tíma). Gott er að setja viskustykki yfir skál og festa með teygju. Hellið jógúrtinu yfir og látið bíða.
- 1 krukka af St. Dalfourd bláberjasultu
Aðferð:
- Forhitið ofninn í 150°C.
- Fyrst byrjið á því að búa til botninn:
- Setjið kexið og muesliið í matvinnsluvél og malið alveg þangað til það er orðið að dufti. Einnig má setja kexið í poka og fara með kökukefli yfir.
- Setjið mulninginn í skál.
- Setjið kókosfeitina og appelsínusafann yfir, nokkra dropa í einu og blandið vel saman.
- Gætið þess að mulningurinn sé "rakur" þ.e. loði smá saman án þess að vera blautur.
- Bætið meiri appelsínusafa við ef þið teljið þurfa.
- Færið nú blönduna í 26cm form (með lausum botni). Ég klæði alltaf formið með bökunarpappír að innan.
- Bakið í 20 mínútur.
- Í annarri skál (eða hrærivél) blandið saman curd ostinum (eða philadelphia ostinum), kvarginu (eða skyrinu), eggjunum, agavesírópinu og vanilludropunum og hrærið með handþeytara þangað til blandan verður flaueliskennd og mjúk.
- Bætið bláberjunum varlega saman við og hrærið þangað til berin hafa dreifst vel en ekki þannig að kakan verði fjólublá. Ef þið notið 2 msk af sultu, hrærið þá á minnsta hraða með handþeytara (eða hrærivél) í svona 2 sekúndur og gætið þess sérstaklega að hræra ekki of mikið.
- Hellið varlega yfir ostakökubotninn, jafnið út.
- Bakið við 150°C í 40-45 mínútur. Það getur verið að þurfi að baka hana skemur (fer eftir ofnum). Potið varlega í miðju kökunnar, ef hún virkar ekki þétt, þá þarf að baka lengur. Hún ætti að vera svolítið mjúk í miðjunni en ekki hlaupkennd. Ef hún er hlaupkennd, bakið hana þá í 10 mínútur í viðbót. Kakan stífnar svo þegar hún kólnar.
- Slökkvið þá á ofninum og leyfið ostakökunni að kólna alveg inn í ofninum, allt að því yfir nótt.
- Setjið ostakökuna, með plasti yfir, inn í ísskáp og leyfið að kólna í a.m.k. 2 tíma.
- Þegar ostakakan er orðin köld, dreifið þá jógúrtinu yfir og leyfið því að standa í ísskáp eins lengi og þið getið, allt að 2 tímum ef það er mögulegt.
- Því næst skal setja afganginn af bláberjamaukinu/eða bláberjasultunni ofan á (varlega svo að jógúrt og sulta blandist ekki saman, ástæðan fyrir því að gott er að láta jógúrtið stífna ofan á kökunni í smá tíma).
- Það er fínt að gera þessa köku daginn áður en á að nota hana því hún verður bara betri ef maður geymir hana í einn dag.
- Einnig er hægt að nota alls kyns önnur ber/sultur en bláber/bláberjasultur t.d. rifsber, hindber, blönduð ber o.fl.
Djúsí kaka með hnetum
23. september, 2004

Afar ljúffeng og holl kaka með öllum hnetunum og þurrkuðu ávöxtunum. Í hnetunum er holl fita og í þurrkuðu ávöxtunum eru bæði vítamín og trefjar og maaður ætti eiginlega að borða kökuna í öll mál! Það er sko ekki hægt að segja það sama um óhollar kökur!!! Kosturinn við þessa líka er sá að ekki þarf að baka kökuna og er því hægt að skella henni á borð t.d. í sumarbústaðnum ef maður er með hneturnar tilbúnar og malaðar. Held að ég geti sagt án efa að þetta sé ein uppáhaldskakan mín.
Athugið að carob/súkkulaði getur innihaldið mjólk svo skoðið innihaldið ef þið hafið mjólkurofnæmi.
Djúsí kaka með hnetum
Gerir 1 köku
- 1 dl cashewhnetur (og 1 dl í viðbót til að setja ofan á kökuna)
- 1 dl þurristaðar heslihnetur (og 1 dl í viðbót til að setja ofan á kökuna).
- 0,5 dl möndlur
- 2 hrískökur (enska: rice cakes)
- 0,5 dl kókosmjöl
- 100 gr þurrkaðar apríkósur, saxaðar frekar smátt. Látið liggja í heitu vatni í 15 mínútur
- 100 gr þurrkaðar döðlur, saxaðar frekar smátt. Látið liggja í heitu vatni í 15 mínútur
- 2 vel þroskaðir og stórir bananar, annar notaður ofan á kökuna, hinn í deigið
- 100 gr carobella, dökkt (fæst í heilsubúðum og mörgum matvöruverslunum). Einnig er hægt að nota dökkt/ljóst súkkulaði með hrásykri
- 1/2 tsk vanilluduft (eða dropar úr heilsubúð)
- Fersk ber og ávextir til að skreyta kökuna með (ég nota yfirleitt hneturnar til að skreyta með)
Aðferð:
- Ristið cashewhneturnar, heslihneturnar og möndlurnar í heitum ofni í um 5 mínútur eða á heitri pönnu þangað til hýðið af heslihnetunum fer að losna. Látið kólna og nuddið hýðið af heslihnetunum af. Takið frá 1 dl af cashewhnetum og heslihnetum og saxið gróft). Setjið söxuðu hneturnar til hliðar.
- Setjið 1 dl cashewhnetur, 1 dl heslihnetur, möndlur, kókosmjöl og hrískökur í matvinnsluvél og malið mjög smátt (þannig að verði næstum því að dufti).
- Setjið í stóra skál.
- Hellið vatninu af apríkósunum og döðlunum, setjið þurrkuðu ávextina út í ásamt einum banana og blandið í 7-10 sekúndur.
- Rétt hitið carobella eða súkkulaðið yfir vatnsbaði og setjið saman við ásamt vanilludropum/dufti.
- Blandið þar til allt er vel límt saman og nánast orðið að mauki.
- Setjið deigið í 25cm, kringlótt form og látið smá stund inn í kæli eða frysti.
- Einnig getið þið mótað kökuna með sleikju beint á disk og þá þurfið þið ekki form.
- Skerið hinn bananann í þunnar sneiðar og raðið ofan á kökuna.
- Dreifið söxuðu hnetunum ofan á.
- Einnig má skreyta með fullt af alls konar ávöxtum og berjum. Mér finnst best að setja banana í sneiðum ofan á kökuna. Einnig er hægt að nota vínber, sæt jarðarber, bláber, mangó, epli, mandarínur og margt fleira.
- Geymið kökuna í ísskáp og takið hana út 30 mínútum áður en á að borða hana til að leyfa henni að jafna sig.
- Deigið á að vera frekar blautt og klesst og kakan á að vera frekar þunn (eða um um 1,5 cm).
Döðlu og bananakaka
5. mars, 2003
Ok ég prófaði bókhveiti í þessa uppskrift og ég sver það, að botninn varð á litinn og bragðið eins og sement, hvorki ég né Jóhannes gátum borðað hann, oj bara. Þannig að nú er ég farin að nota annan botn en í upprunalegu uppskriftinni því kremið sjálft er mjög gott. Kannski hefur bókhveitið sem ég notaði verið skemmt? Varla samt þar sem það átti ekki að renna út fyrr en eftir einhver ár??? Ég veit ekki hvaðan uppskriftin kemur en ef einhver veit...endilega látið mig vita.
Döðlu og bananakaka
Gerir 1 köku
Botn
- 3/4 bolli malaðar hnetur (ég miða við 250 ml bolla)
- 1 1/4 bolli spelti (á að nota bókhveiti en það var vont á bragðið)
- 1 tsk vínsteinslyftiduft
- 1/4 bolli sojamjólk eða sojajógúrt (eða venjuleg mjólk)
- 1/4 bolli kókosfeiti eða ólífuolía
- 1/4 bolli sjóðandi vatn
- 1/4 tsk kardimommudropar eða möndludropar
Aðferð:
- Blandið þurrefnunum saman í skál.
- Hellið heitu vatni yfir og hnoðið deigið og fletjið út.
- Setjið deigið í kringlótt smelluform með bökunarpappír í og forbakið í ofninum við 180°C í um 5 mínútur.
Krem
- 1 bolli döðlur
- 2/3 bolli cashew hnetur, þurrristaðar
- 2 bollar vatn
- 2 msk kartöflumjöl
- 1/2 tsk heilsusalt (Herbamare)
- 1,5 tsk vanilluduft eða vanilludropar
- 1-2 vel þroskaðir bananar
Aðferð
- Setjið allt í matvinnsluvél nema bananana.
- Setjið kremið í pott og látið þykkna við vægan hita í nokkrar mínútur. Látið svo standa og kólna.
- Skerið bananana í sneiðar og setjið á botninn á forbakaðri kökunni.
- Hellið fyllingunni yfir og bakið í ofni við 180°c í 7-10 mín.
- Kremið sjálft mætti alveg nota á aðra kökubotna því það er mjög gott (og dísætt)
Dökk súkkulaðikaka (án súkkulaðis)
20. maí, 2006

Þetta er bara ansi sniðug uppskrift. Málið er að þessi kaka er ekkert ósvipuð franskri, dökkri súkkulaðiköku svona ef miðað er við áferðina en það er ekki neitt súkkulaði, ekkert smjör, ekkert hveiti, enginn sykur og enginn rjómi í kökunni! Aðalinnihaldið er hnetur og carob. Kremið er svo búið til úr tahini (sesammauki) carob og byggmaltsírópi (enska: barleymalt syrup) eða hlynsírópi fyrir þá sem hafa glúteinóþol. Kakan hentar því mjög vel fyrir þá sem eru jurtaætur (enska: vegan) og fyrir þá sem vilja ekki hveiti eða sykur. Kakan er reyndar alls ekki hitaeiningasnauð, þvert á móti hún er þvílík kaloríubomba en aftur á móti kemur að hún er ansi vítamínrík, próteinrík, kalkrík og svo er mikið af hollri fitu úr öllum hnetunum og möndlunum. Gott er að bera kökuna fram með soyarjóma (eða venjulegum rjóma fyrir þá sem það vilja). Gott er að hafa í huga að ekki þarf að baka þessa köku og hún tekur ekki langan tíma í undirbúning þar sem hráefnið fer mest allt í matvinnsluvél! Þetta er sennilega "frægasta uppskriftin" á CafeSigrun því hún hefur fengið umfjöllun a.m.k. 4 sinnum í blöðunum!
Dökk súkkulaðikaka (án súkkulaðis)
Gerir 1 köku
Botninn:
- 1 bolli möndlur (ég miða við 250 ml bolla)
- 1,5 bolli cashewhnetur
- 1,5 bolli döðlur. Láta liggja í sjóðandi heitu vatni í um 15 mínútur. Ekki henda vatninu eftir á, þið þurfið að nota smávegis af vatninu í kremið.
- 1,5 kúfuð msk carob duft (eða gott kakóduft fyrir þá sem það vilja). Fæst í Yggdrasli.
- 1/4 tsk heilsusalt (t.d. Herbamare)
- 1 banani, vel þroskaður
Aðferð:
- Blandið fyrst hneturnar og möndlurnar vel í matvinnsluvél, bætið svo salti og carobi saman við. Geymið í skál.
- Blandið saman döðlur og banana þangað til vel maukað.
- Blandið saman við innihaldið í skálinni (carobið, saltið og hneturnar).
- Kælið í um klukkutíma.
- Hellið kökunni á þann disk eða bakka sem bera á kökuna fram á og mótið kökuna með t.d. sleikju. Það má hafa hana ferkantaða, kringlótta (hjartalaga þess vegna!) en aðalatriðið er að hún verði ekki of þykk (fínt að hafa hana svona 2 cm. á hæð).
Kremið:
- Nokkrar matskeiðar af vatni (af döðlunum)
- 1/2 bolli tahini (sesammauk), hellið olíunni af eins mikið og hægt er
- 4 msk byggmaltsíróp (enska: Barley malt syrup). Athugið að þeir sem eru með glúteinóþol ættu að nota agavesíróp eða hreint hlynsíróp, ekki byggmaltsíróp
- 1,5 msk carob duft (eða gott kakóduft fyrir þá sem það vilja)
- 1 banani, vel þroskaður
- Þetta er svolítið meira en þarf af kreminu en þið getið fryst afganginn og borðað sem ís eða notað í drykk (smoothie).
Aðferð:
- Setjið innihaldið í kremið í matvinnsluvél og blandið vel. Setjið meira af döðluvatninu ef þarf.
- Setjið plastfilmu yfir og geymið í ísskáp í um klukkutíma.
- Smyrjið kreminu yfir kökuna og utan á hana og skreytið með ferskum ávöxtum (t.d. vel þroskuðum bönunum og jarðaberjum), kókos eða jafnvel þurristuðum, söxuðum hnetum eða möndlum.
- Tvöfalda má uppskriftina til að fá þykkari köku. Það er þó gott að hafa í huga að kakan er ansi saðsöm og mikil þannig að mér finnst henta vel að hafa hana í þynnri kantinum.
Einföld gulrótarkaka
5. mars, 2003
Þessi kaka er allra, allra, allra fyrsta kakan sem ég "bakaði" á ævinni og ég var orðin 25 ára!!! Ég fékk uppskriftina meðan ég var í Myndlista-og Handíðaskólanum af einni bekkjarsystur minni, Höddu Fjólu Reykdal. Ég hafði ekki borðað kökur í 10 ár og sá þessa uppskrift, sem var ekki með neinum hvítum sykri. Forvitni mín var vakin! Ég trítlaði einn daginn heim úr Háskólanum nokkrum árum seinna, keypti inn í kökuna og bakaði. Hmmm árangurinn var nú ekkert til að hrópa húrra yfir (því ég ætlaði að baka bestu og hollustu köku í heimi sko) en kannski ekki skrítið þar sem
A) Þetta var fyrsta kakan mín,
B) Eldhúsið á Njálsgötunni var álíka lítið og kústaskápur (án gríns, þá gat bara ein manneskja verið að stússa þar í einu. Bara einn gat vaskað upp, og ég gat staðið í sömu sporunum ef ég þurfti að fara í ísskápinn, kústaskápinn, vaskinn, kryddhilluna og skápana, sem sagt þá teygði ég mig bara og ég er ekki löng!!!),
C) Ofninn á Njálsgötunni var he hemm frekar glataður, var á stanslausu grilli bara og það öðru megin he he. En ég man eftir lyktinni góðu sem kom í íbúðina (hún var ekki stór) og mér var eiginlega sama um kökuna ljótu, lyktin var svo góð. Þetta var svo upphafið og 8 árum seinna (og um 200 matreiðslubókum síðar) fæddist vefur. Reyndar VAR kakan allt í lagi svona miðað við allt nema dáldið grilluð öðru megin!!
Einföld gulrótarkaka
Gerir 1 köku
- 7 dl rifnar gulrætur
- 2,5 dl malaðar hnetur (til dæmis cashewhnetur, möndlur, heslihnetur. Ég nota síður valhnetur þar sem þær innihalda mestu fituna af hnetunum og mér þykir þær heldur ekkert góðar)
- 2,5 dl döðlur
- 2,5 dl vatn
- 1/8 tsk heilsusalt (Herbamare)
- 1 msk kanilduft
- 1/2 msk kardimommudropar eða vanilludropar (mér finnst vanilludroparnir betri en í upphaflegu uppskriftinni voru kardimommudropar)
- 4 dl haframjöl
Aðferð:
- Sjóðið döðlurnar í vatni og salti í um 15-20 mínútur. Hellið vatninu frá og geymið ef skyldi vanta vökva í kökuna. Setjið örsnöggt í matvinnsluvél (bara 3 sekúndur eða svo).
- Blandið öllu saman í skál og setjið í form með bökunarpappír í botninum.
- Bakið í ofni við 200°C í 45-60 mín.
- Skreytið með ferskum ávöxtum (sætum, steinalausum vínberjum, mandarínum, kiwi, mangoi osfrv) og hafið gjarnan soyarjóma með kökunni.
Einföld og fljótleg kaka með carob
5. mars, 2003

Ég er mjög hrifin af kökunum á Grænum kosti (þessi uppskrift er þaðan) því ég borða ekki þessar venjulegu kökur sem eru hlaðnar óhollostu eins og smjöri, hvítum sykri, hvítu hveiti, rjóma osfrv. Oj. Ég hætti að borða kökur þegar ég var 12 ára og ég hafði ekki smakkað neina köku (nema það sem ég bakaði sjálf) fyrr en ég smakkaði svo á Grænum kosti fyrir mörgum árum og nammi namm hvað hún var góð. Svo fékk ég aðra köku frá Grænum kosti í jólaboði hjá Allý, fyrrverandi vinnuveitanda mínum og hún var svo góð að ég lofaði mér því að fara að prófa að búa til "hollar" kökur. Nú sem sagt mörgum árum seinna, er ég búin að prófa að búa til margar kökur, misgóðar auðvitað en allar eiga þær það sameiginlegt að vera ekki með hvítum sykri, rjóma, flórsykri, smjöri eða annarri svoleiðis óhollustu. Þær eru kannski hitaeiningaríkar, en í staðinn fullar af vítamínum úr hnetum og ávöxtum. Allavega það sem ég er að reyna að ropa út úr mér, ef ykkur finnst þessar "kökur" vondar, þá getið þið sko bara bakað ykkar eigin óhollostu :)
Einföld og fljótleg kaka með carob
Ein kaka
- 200 gr ljóst carob-bella (hægt að nota sykurlaust súkkulaði líka)
- 250 gr blandaðar hnetur, t.d. cashew, heslihnetur, möndluflögur
- 100 gr kókosmjöl
- 3 hrískökur
- 1 banani
Aðferð:
- Þurristið hneturnar og myljið þær gróft.
- Þurristið kókosmjölið.
- Myljið hrískökurnar.
- Skerið bananann í sneiðar.
- Bræðið carob-bellað í potti á vægasta hita svo það brenni ekki en einnig er hægt að bræða carobið í vatnsbaði.
- Blandið saman í skál og setjið í form.
- Þrýstið vel ofan á deigið í forminu.
- Kælið í a.m.k. eina klukkustund.
- Skreytið með ferskum ávöxtum.
- Það er örugglega hægt að nota þessa uppskrift til að búa til konfekt líka því botninn verður frekar harður. Það væri hægt að setja blönduna í formkökuform og skera svo í litla bita.
- Gott er að nota soyarjóma.
Epla- og valhnetubaka
19. desember, 2007

Þessi er alveg svakalega holl því hún inniheldur holla fitu (omega 3 fitusýrur) úr valhnetunum sem og prótein og annað gott fyrir okkur. Talið er neysla á valhnetum minnki líkur á hjartasjúkdómum sem og fleiri sjúkdómum svo við ættum eiginlega öll að borða svona eins og lúku á hverjum degi (nema ekki þeir sem eru með hnetuofnæmi...það væri ekki svo sniðugt). Bökuna má bera fram kalda en einnig má hita hana í ofni áður en hún er borin fram. Uppskriftin er glúteinlaus og hentar þeim sem eru jurtaætur (þ.e. ef notað er hlynsíróp í stað hunangs).
Epla- og valhnetubaka
Gerir eina köku
- 2,5 bollar valhnetur (ég miða við 250 ml bolla)
- 1,5 bolli döðlur
- 2-3 epli, meðalstór (græn eða ljósrauð)
- Safi af 1 sítrónu í 2 bollum af vatni
- 1/2 tsk kanill
- 1/4 tsk negull
- 2 msk hunang (acacia) eða hreint hlynsíróp
- 1/2 bolli hreinn eplasafi
- 1/4 bolli rúsínur (má nota döðlur)
Aðferð:
- Blandið valhnetunum og 1,5 bolla af döðlum saman í matvinnsluvélinni. Blandið í um 40 sekúndur eða þangað til allt er orðið grófhakkað án þess að verða að mauki.
- Þrýstið botninum í 20cm kringlótt form (gott að setja bökunarpappír undir). Þrýstið bæði botn og kanta. Kælið í ísskáp í um klukkutíma.
- Skerið kjarnann úr eplinu og sneiðið frekar þunnt.
- Hellið sítrónuvatninu yfir og geymið í smá stund.
- Sigtið sítrónuvatnið vel frá eplunum.
- Setjið eplasneiðarnar á stóra pönnu ásamt kanil, negul, rúsínum, hunangi og eplasafa.
- Hitið vel í um 15-20 mínútur eða þangað til eplin verða frekar mjúk.
- Takið eplasneiðarnar og rúsínurnar af pönnunni með götóttum spaða þannig að vökvinn leki af.
- Látið vökvann malla á pönnunni í um 5 mínútur við frekar háan hita.
- Kælið.
- Dreifið eplasneiðunum jafnt yfir botninn. Hellið eða penslið vökvanum af pönnunni yfir eplin.
- Dreifið aðeins meiri kanil yfir ef þið viljið.
- Það má stinga bökunni í ofninn og hita í um 20 mínútur. Það er gott að bera fram bökuna með hollum ís eða þeyttum rjóma fyrir þá sem borða slíkt.
Eplabaka
16. mars, 2003
Þetta er ekki svona "alvöru eplabakaka" heldur svona holl eplaböku "útgáfa" en stendur engu að síður vel fyrir sínu. Það er ekki eitt gramm af smjöri í henni þannig að það er óhætt að borða hana með næstum hreina samvisku :)
Eplabaka
Gerir eina köku
- 4 sæt, græn epli
- 1 kúfull tsk kanill
- 1 tsk vanilludropar eða vanilluduft
- 3 egg (meðalstór)
- 90 gr ávaxtasykur
- 75 gr kókosmjöl
- 1 tsk vínsteinslyftiduft
- 2 msk spelti (eða maísmjöl fyir þá sem eru með glúteinóþol)
Aðferð:
- Skerið eplin í litla bita.
- Setjið þau í eldfast mót (kringlótt um 23 cm) (óþarfi að smyrja).
- Stráið kanil yfir.
- Þeytið egg og ávaxtasykur saman.
- Blandið þurrefnunum varlega saman við.
- Hellið deiginu varlega og jafnt yfir eplin.
- Bakið við 175°C í 30 mín.
- Berið fram heita með vanilluís eða þeyttum rjóma.
Eplakaka Sigrúnar Erlings
16. ágúst, 2003
Þessa uppskrift af eplaköku gaf Sigrún Erlings, mágkona mín mér. Hún sagði að allir á heimilinu lofuðu hana í hástert og þar sem hún er holl líka hentaði hún vel mínum búskap og eldhúsi!!! Við Jóhannes prófuðum hana svo hérna í UK og hún var mjög góð. Ég er reyndar búin að taka út hvítan sykur og setja hrásykur, kókosfeiti í stað smjörs og spelti í stað hveitis, en frábær engu að síður.
Eplakaka Sigrúnar Erlings
Ein kaka fyrir 4-6
- 5 bollar grængul eða gul epli, vel þroskuð, skorin smátt í bita (má líka hafa í sneiðum)
Fylling
- 1/5 bolli rapadura sykur frá Rapunzel eða hrásykur
- 2 msk hlynsíróp (enska: maple syrup). Má sleppa og nota meiri ávaxtasykur í staðinn eða agavesíróp
- 2 msk spelti
- 1 msk sítrónusafi
- 1 tsk vanilludropar eða vanilluduft
- 1 tsk kanill
- 1 tsk múskat (enska: nutmeg)
- 1/4 tsk heilsusalt (Herbamare)
- 2 msk kókosfeiti eða ólífuolía
Deig
- 1/2 bolli spelti
- 1/5 bolli rapadura sykur frá Rapunzel eða hrásykur
- 2 msk hlynsíróp (enska: maple syrup). Má sleppa og nota meiri rapadura sykur í staðinn eða agaveisíróp
- 1/2 tsk vínsteinslyftiduft
- 1/4 tsk heilsusalt (Herbamare)
- 2 msk kókosfeiti eða ólífuolía
- 1 msk appelsínu- eða eplasafi
- 2 lítil egg hrærð
Aðferð:
- Blandið efni í fyllinguna saman og setjið í kringlótt eldfast mót (24 cm).
- Fyllingin virkar mjög efnislítil en það þarf bara að dreifa henni vel um botninn í örþunnu lagi, gott að nota mjúka sleit.
- Dreifið eplabitunum eða sneiðunum yfir.
- Blandið saman efni í deigið og dreifið yfir í nokkrum klumpum. Hafið deigið frekar þétt, þ.e. ekki blautt og bætið spelti við þangað til það verður þannig að það geti dropað í stórum klessum af sleif.
- Bakið við 180°C í 25-30 mínútur.
- Það er gott að bera fram þeyttan rjóma eða soyarjóma og fyrir allra mestu sælkerana er gott að bera fram vanilluís. Það slær allavega í gegn hjá Jóhannesi :)
- Í staðinn fyrir vanilluís má hálf-frysta sykurlausa vanillubíómjólk eða vanillujógúrt og bera fram með kökunni. Milljón sinnum hollara.
Fitulítil súkkulaðikaka
5. mars, 2003

Þetta er fín "súkkulaðikaka" (já já ég veit að þetta er ekkert í líkingu við franska súkkulaðiköku en maður þarf þó ekki að hafa samviskubit yfir stífluðum æðum, kílóum o.s.frv. þegar maður borðar þessa :) Fyrir ykkur sem eruð vön að borða dísætar súkkulaðikökur þá er þessi ekki fyrir ykkur :)
Fitulítil súkkulaðikaka
Gerir 1 köku
Kakan:
- 250 ml barnamatur t.d. eplamauk frá Hipp Organic, Organix eða Holle. Einnig má nota peru- eða bananamauk
- 175 gr rapadura hrásykur
- 2 msk agavesíróp
- 2 egg
- 1 eggjahvíta
- 200 gr spelti
- 1 tsk vínsteinslyftiduft
- 4 msk kókosfeiti
- 3 msk gott kakó (lífrænt framleitt)
Súkkulaðikremið:
- 4-5 msk gott kakó (lífrænt framleitt). Fer eftir því hvað kremið á að vera dökkt hversu mikið þið notið
- 1 banani, mjög vel þroskaður
- 1 msk sojamjólk (eða undanrenna)
- 2 msk vanilludropar eða vanilluduft
- 2 msk kartöflumjöl (eða arrowroot/cornflour)
- 1 msk kaffi (má sleppa)
- 4 msk agavesíróp
Aðferð - Kakan:
- Þeytið saman eplamaukið og rapadura sykurinn.
- Bætið við eggjum (létt hrærðum), agavesírópi og kókosfeiti.
- Sigtið saman spelti, lyftiduft og kakó og bætið út í eplamauksblönduna.
- Bætið sojamjólk saman við ef þarf.
- Bakið við 180°C í 35-40 mínútur.
Aðferð - súkkulaðikremið:
- Setjið allt sem fara á í kremið, í matvinnsluvél og blandið í 10 sekúndur. Kælið kremið í klukkustund í ísskáp.
- Dreifið vel yfir kökuna.
- Það væri eflaust gott að búa til muffins úr þessu deigi því það er frekar blautt og létt.
Franska súkkulaðikakan hennar Lísu
30. nóvember, 2008

Lísa Hjalt er mögnuð kona og afar dyggur notandi vefjarins. Hún er þriggja barna móðir í námi og hún hefur samt tíma til að útbúa hollan mat fyrir fjölskylduna og það er enginn slormatur. Hún er ein af þessum íslensku ofurkonum sem virðast geta allt. Lísa sendir mér gjarnan uppskriftir af því sem hún er að útbúa og alltaf er það girnilegt og gott. Hún var svo góð að gefa mér uppskrift af súkkulaðikökunni sinni sem slegið hefur í gegn á heimili hennar. Ég er búin að bíða nokkuð lengi eftir uppskriftinni en hún hefur verið í þróun í smá tíma (og sumir orðnir spenntir á mínu heimili…nefni engin nöfn). Ég frumsýni kökuna hér með. Ég breytti aðeins lítillega uppskriftinni en set alls staðar í hornklofa því sem ég breytti. Eða eins og Lísa segir sjálf:
Það á vera pínulítil frönsk súkkulaðikökustemning yfir þessari. Æðisleg með jarðarberjum, bláberjum eða hindberjum eða með rjóma fyrir þá sem borða svoleiðis! Ég ætla bara að segja ykkur að Jóhannes lagðist næstum því í gólfið af hamingju þegar hann borðaði kökuna…..enda a.l.g.j.ö.r.l.e.g.a. dásamleg. Hafið í huga að það er AFAR mikilvægt að baka kökuna ekki lengur en gefið er upp. Ég baka hana í nákvæmlega 12 mínútur í mínum ofni (athugið að ofnar eru mis kröftugir) en hún á að vera rétt svo þétt í köntunum en afar mjúk í miðjunni (og nánast eins og deig).
Franska súkkulaðikakan hennar Lísu
Gerir 1 köku
- 2 dl hrásykur (ekki nota of grófan) [ég notaði 1,5 dl af rapadura hrásykri og kakan var mjög sæt og fín]
- 2 egg (bara nota aðra eggjarauðuna)
- [4 msk cashewhnetur og 4 msk kókosolía] EÐA 6 msk kókosolía
- 1 1/4 dl spelti
- 4 msk kakó (kaupið endilega lífrænt framleitt og helst fair trade)
- 1 tsk vanilludropar eða vanillusykur úr heilsubúð
- 1/4 tsk salt [ég notaði Himalaya]
- 1 tsk vínsteinslyftiduft
- 10 döðlur, lagðar í bleyti í 30 mínútur
- 1 dl cashewhnetur, lagðar í bleyti í 30 mínútur
- Ögn af muldum valhnetum [ok að sleppa en gefur afar gott bragð]
- 20 gr dökkt (70%), lífrænt framleitt súkkulaði með hrásykri, saxað fínt [má sleppa]
Aðferð:
- Ef þið ætlið að gera cashewhmaukið blandið þá fyrst 4 msk af cashewhnetum í matvinnsluvél. Blandið á fullum hraða í heila mínútu. Bætið 4 msk af olíunni matskeið fyrir matskeið út í. Blandið vel og setjið cashewmaukið svo til hliðar. Ef þið notið ekki cashewmaukið (og notið frekar 6 msk af kókosolíu) sleppið þið þessu stigi.
- Hellið vatninu af döðlunum og cashewhnetunum.
- Setjið döðlurnar og cashewhneturnar í matvinnsluvélina. Vinnið vel.
- Hrærið hrásykur og egg með gaffli, setjið svo cashewhnetumaukið (með kókosolíunni) og vanilludropana saman við og hrærið uns allt blandast vel.
- Blandið þurrefnum saman [sigtið kakóið út í speltið] og setjið svo út í hrásykursblönduna. Hrærið rólega saman með sleif.
- Setjið möluðu döðlurnar og cashewhneturnar út í og hrærið vel.
- Stráið svo ögn af muldum valhnetum út í og saxaða súkkulaðinu.
- Smyrjið hringlaga form (passið að þvermálið sé ekki meira en 23 cm) með kókosolíu [ég nota bökunarpappír] og bakið við 180° C í 12-15 mínútur. Gætið þess að baka EKKI kökuna of lengi.
- Takið kökuna strax úr ofninum og leyfið henni að kólna aðeins.
- Nota má möndlumauk eða heslihnetumauk í staðinn fyrir cashewhnetumauk.
- Hægt er að kaupa alls kyns hnetumauk í heilsubúðum en ódýrara er að búa það til sjálfur. Það má gera með því að mala hneturnar afar fínt í matvinnsluvél og bæta 1 msk af kókosolíu á hver 100 gr sem möluð eru. Maukið geymist í lokaðri krukku í ísskáp í nokkrar vikur.
Frosin jesúterta
12. febrúar, 2006

He he, fyndið nafn í ljósi þess að ég er minnst trúaða manneskja sem fyrir finnst. Ég fann þessa uppskrift á heimasíðu sem var með trúarlegum uppskriftum og í rauninni voru uppskriftirnar þær sem jesú á að hafa borðað ha ha. Hann á greinilega að hafa verið með hráfæði á hreinu. Sko, ég dreg trúverðugleika uppskriftanna dálítið í efa þar sem ég er nokkuð viss um að jesú hafi ekki átt frystikistu he he. En ok, fyrst hann á að hafa getað breytt vatni í vín, þá hlýtur hann að hafa getað fryst vatn? Nei bara pæling sko. En hvað um það, þetta er afar hitaeiningarík kaka (ekki tómar hitaeiningar samt, fullar af vítamínum, próteinum, kalíum og kalki ásamt fleiru). Hún er rosalega massíf en einnig er hún meinholl. Það eru bananar, döðlur, gráfíkjur og möndlur í henni. Ég bætti kókos við en það má sleppa honum. Athugið að það tekur alveg tvo sólahringa að gera uppskriftina þar sem döðlurnar og gráfíkjurnar þurfa að liggja í bleyti í heilan sólarhring og svo þarf að frysta kökuna í annan. Athugið að nota þarf 20 cm form með háum börmum (10-12 cm).
Þessi kaka er upplögð í saumaklúbbinn á heitum sumardegi, eftir létta máltið (því kakan er svo saðsöm)! Það sem er líka sniðugt við hana er að maður getur búið hana til með margra vikna fyrirvara því hún geymist vel í frysti.
Frosin jesúterta
Gerir eina massífa köku
- 450 gr döðlur (lagt í bleyti í sérskál í sólarhring). Ekki þekja alveg döðlurnar, vatnið má ná upp á miðja hrúguna
- 450 gr gráfíkjur (lagt í bleyti í sérskál í sólarhring). Ekki þekja alveg döðlurnar, vatnið má ná upp á miðja hrúguna
- 5-6 mjög vel þroskaðir bananar (mega vera orðnir svartir)
- 350 gr möndluflögur eða heilar möndlur
- 1 dl kókosmjöl (má sleppa)
Aðferð:
- Hellið döðlunum ásamt vatninu í matvinnsluvél og blandið vel saman. Geymið í sér skál.
- Hellið gráfíkjunum ásamt vatninu í matvinnsluvél og blandið vel saman. Geymið í sér skál
- Malið möndlurnar fínt í matvinnsluvél (þangað til þær verða að dufti). Geymið í sér skál.
- Maukið bananana í matvinnsluvél þangað til þeir verða að mauki. Geymið í sér skál.
- Setjið möndluduft sem fyrsta lag í kringlótt 20 cm. form. Pressið létt ofan á svo að botninn verði þéttur.
- Næsta lag á að vera gráfíkjumauk. Setjið svona 2-3 kúfaðar matskeiðar fyrst og dreifið úr þeim varlega svo að möndluduftið farið ekki út um allt. Hér þarf smá lagni.
- Setjið möndluduft og gerið eins og í fyrsta skrefinu.
- Næsta lag á að vera döðlumauk. Setjið svona 2-3 kúfaðar matskeiðar fyrst og dreifið úr þeim varlega svo að möndluduftið farið ekki út um allt. Hér þarf smá lagni líka.
- Næsta lag á að vera bananamauk, má setja frekar mikið af því.
- Bætið kókosmjölinu við hér ef þess er óskað.
- Næst á að koma möndluduft.
- Þetta skal gera koll af kolli þangað til hráefnið er búið. Byrja skal á möndludufti og enda á fíkjumauki eða döðlumauki.
- Frystið í minnst sólarhring.
- Áður en á að bera kökuna fram skal láta hana standa á borði í um 30 mínútur en einnig má setja formið í smá vatnsbað (klæðið formið þá í plastpoka) til að losa um kökuna.
- Skellið henni því næst á disk og skreytið með t.d. möndlum, kókos eða bananasneiðum.
- Þar sem þessi kaka er massíf mætti alveg prófa að helminga uppskriftina og gera hana þar með helmingi minni (þynnri).
- Í staðinn fyrir möndlur má nota heslihnetur.
- Gætið þess að bera ekki kökuna fram eftir þunga máltíð því það á enginn eftir að geta borðað mikið af henni, hún er svo rosalega saðsöm.
- Kakan geymist í frysti í margar vikur (pakkið inn í plast).
Gulrótar – og bananaskonsur
15. október, 2006

Þar sem ég er akkúrat nýkomin frá Skotlandi þá get ég ekki annað en sett inn uppskrift að skonsum. Skotar eru svoddan skonsuþjóð en þessar eru auðvitað miklu hollari en skoskar skonsur he he enda eru Skotar með það mataræði sem talið er hvað allra, allra óhollast hér á Bretlandseyjum. Þessi uppskrift kemur reyndar frá Ástralíu (úr Australian Women’s Weekly seríunni) en ég er reyndar búin að breyta henni aðeins (taka út smjör, púðursykur og hvítt hveiti en svo bætti ég við döðlum, byggmaltsírópi, spelti og kókosfeiti). Þær eru lang bestar nýbakaðar en það má vel frysta þær og hita svo upp í ofninum síðar. Þær verða eins og nýbakaðar.
Gulrótar – og bananaskonsur
Gerir um 10 skonsur
- 380 gr spelti
- 2 msk sléttfullar lyftiduft
- 3 msk byggmaltsíróp (eða hreint hlynsíróp (enska: maple syrup)
- 10 döðlur, fínt saxaðar
- 1/2 tsk cardimommuduft
- 1 msk kókosfeiti eða ólífuolía
- 1/2 bolli stappaðir bananar (ég miða við 250 ml bolla)
- 1/4 bolli pecanhnetur eða valhnetur
- 1/4 bolli fínt saxaðar rúsínur
- 1/3 bolli (um 120 gr) rifnar gulrætur
- 3/4 bolli súrmjólk (gæti þurft meira eða minna) eða AB mjólk. Einnig er hægt að nota soyamjólk eða jógúrt
Aðferð:
- Blandið fyrst saman speltinu, cardimommuduftinu og lyftiduftinu.
- Bætið döðlunum, hnetunum og rúsínunum saman við.
- Blandið gulrótunum saman við.
- Í sér skál skuluð þið blanda saman kókosfeiti eða ólífuolíu, byggmaltsírópi, bönunum og súrmjólk.
- Hellið þessu varlega yfir þurrefnin.
- Blandið öllu vel saman og hnoðið í smá stund þangað til deigið er orðið þétt og mjúkt. Notið spelti ef þarf til að deigið klessist ekki við borðið.
- Stráið spelti á bretti eða borð og hnoðið þangað til að deigið er orðið útflatt og um 2 cm. á hæð (þ.e. á þykkt).
- Notið glas með um 3-4 cm. þvermál til að þrýsta niður á deigið til að búa til skonsur.
- Þegar þið eruð búin að búa til eins margar skonsur og þið getið í fyrsta skiptið, þá skuluð þið hnoða deigið saman aftur og endurtaka leikinn þangað til allt deigið er búið. Gætið þess að deigið sé alltaf eins á þykkt.
- Raðið á bökunarpappír á ofnskúffu.
- Dreifið smá spelti yfir allar skonsurnar (má sleppa).
- Bakið í um 15-20 mínútur á um 200°C (gæti þurft lengri tíma, fer eftir ofnum).
- Skonsurnar eru góðar með smávegis smurosti, sumir borða þær með sultu, aðrir með smjöri en mér finnst þær bestar eintómar með góðu tei!
- Elva vinkona mín notaði kanil í stað kardimommu og það kom vel út að hennar sögn!
Gulrótarkaka með döðlu-aprikósu ostakremi
5. mars, 2003
Mjög góð gulrótarkaka (upprunalega af Grænum kosti) svolítið öðruvísi en maður á að venjast en bragðast engu að síður mjög vel. Sko það áttu að fara 200 gr af rjómaosti í kremið en mér finnst það algjör óþarfi þar sem skyrið er mjög fínt líka, með döðlum og apríkósum (eða kvarg). Munið ég er ekki að gera kökur sem myndu slá í gegn á kaffihúsum eða í saumaklúbbum svo ef þið viljið dísætar, rjómasprengjur einhverjar þá er þetta sko ekki staðurinn :)
Gulrótarkaka með döðlu-aprikósu ostakremi
- 8 dl rifnar gulrætur
- 2,5 dl malaðar hnetur (möndlur og cashewhnetur t.d.)
- 2 dl ristað kókosmjöl
- 2 dl haframjöl
- 1 msk kanill
- 1 tsk malaðar kardimommur
- 500 gr döðlur, smátt skornar
Aðferð:
- Skerið döðlurnar smátt & rífið gulræturnar.
- Blandið öllu saman í skál & kreistið deigið saman með höndunum.
- Setjið í smurt tertuform & bakið í ofni við 200°c í ca 40-45 mín.
Krem
- 200 gr hreint skyr (eða kvarg)
- 2 tsk vanilludropar
- 75 gr döðlur
- 75 gr aprikósur
- 1/4 - 1/2 dl hreinn appelsínusafi
Aðferð:
- Leggið döðlurnar & aprikósurnar í bleyti í sjóðandi vatn í ca 10 mínútur.
- Hellið öllu vatninu af.
- Maukið saman í matvinnsluvél kvargið og þurrkuðu ávextina, setjið smá appelsínusafa ef ykkur finnst kremið vera of stíft.
- Smyrjið á kökuna.
- Í staðinn fyrir krem má skreyta kökuna með fullt af ferskum, sætum ávöxtum
Gulrótarkaka með möndlu- og kókoskremi
20. september, 2006

Kaka sem er best á þriðja degi! Hún er full af kalki, próteinum, hollri fitu og milljón vítamínum. Ef ykkur líkar
marsipanbragð þá er kremið það rétta fyrir ykkur því möndlurnar gefa nokkuð sterkt marsipanbragð. Ef ekki, má alveg setja eitthvað annað krem á kökuna. Fyrir þá sem eru með glútenóþol má skipta út haframjölinu og nota einungis möndlur í botninn. Upplagt er að búa til kökuna deginum áður en á að bera hana fram. Kremið má svo gera samdægurs.
Gulrótarkaka með möndlu- og kókoskremi
Gerir 1 köku
Kakan
- 8 dl rifnar gulrætur, meðalstórar
- 500 gr döðlur (ef þær eru harðar má setja þær aðeins í bleyti). Má líka nota 1/3 af rúsínum.
- 100 gr tófu (smooth eða soft þ.e. mjúkt)
- 2,5 dl malaðar hesli- og cashewhnetur
- 2 dl kókosmjöl
- 1 dl haframjöl
- 1 dl malaðar möndlur
- 1 msk kanill
- 1/2 tsk malað múskat (enska: nutmeg)
- 1 tsk vanilludropar
Kremið
- 1 dl malaðar möndlur
- 1 dl kókosmjöl
- 100 gr tofu (smooth eða soft þ.e. mjúkt)
- 2 msk hreint hlynsíróp (meira eftir smekk þ.e. ef kremið á að vera sætara)
- 1/2 tsk möndludropar
- Blandið öllu innihaldinu í kremið í matvinnsluvél og geymið í kæli, það mun stífna nokkuð
Aðferð:
- Rífið gulræturnar.
- Setjið döðlurnar augnablik í matvinnsluvél (eða saxið þær fínt).
- Blandið öllu saman í stóra skál, kreistið með höndunum.
- Setjið í tertuform (með bökunarpappír).
- Bakið í ofni í um 200°C í 35-40 mínútur.
- Kælið kökuna og smyrjið kreminu ofan á. Það verður nokkuð þykkt kremið.
- Gott er að bera kökuna fram með smá soyarjóma.
Haframjölsterta
5. mars, 2003
Þessi er nú ekki eins klessulega óholl og venjulegar haframjölstertur en engu að síður alveg prýðileg.
Haframjölsterta
Gerir 1 köku
- 2 bollar spelti (ég miða við 250 ml bolla)
- 2 bollar haframjöl
- 2 msk kókosfeiti eða ólífuolía
- 2/3 bolli ávaxtasykur
- 3 krukkur sykurlaust banana- og eplamauk (barnamatur, frá Hipp Organics samtals 350 ml)
- 1 msk vínsteinslyftiduft
- 200 gr döðlur, soðnar í smá appelsínusafa þangað til þær eru orðnar að mauki (setja til hliðar)
- 2 egg
- 1/2 krukka St Dalfourd sulta sykurlaus úr blönduðum berjum
- Allt nema sultan og döðlumaukið sett í eina skál og hrært vel
- Setjið í tvö form og bakið í ca 30 mínútur á 180°C
Súkkulaðikrem
- 4-5 msk sykurlaust bökunarkakó (með háu kakóinnihaldi)
- 1 banani
- 1 msk mjólk
- 2 msk vanilludropar eða vanilluduft
- 2 fullar msk kartöflumjöl (eða cornflour/arrow root)
- 1 tsk kaffi (koffeinlaust)
- Kælið kremið í ísskáp (það stífnar)
Aðferð:
- Setjið fyrst döðlumaukið og svo sykurlausa sultu á milli laganna.
- Setjið kremið á kökuna og á hliðarnar.
- Passið að deigið sjálft verði ekki of þurrt. Ef ykkur finnst kakan of þurr, látið hana þá standa aðeins með sultuna á milli laga og kremið ofan á í nokkra tíma áður en hún er borðuð.
Heilsusvampbotnar Freyju M.
13. nóvember, 2005
Uppskriftin að þessum svampbotnum koma frá notanda vefjarins, konu að nafni Freyja M. Það er frábært að fá uppskrift að hollari svampbotnum því þeir sem maður kaupir út búð eru engu hollari en baðsvampar. Kærar þakkir Freyja M. fyrir uppskriftina.
Heilsusvampbotnar Freyju M.
Gerir 2 botna
- 5 egg (ég nota 5 eggjahvítur, 2 eggjarauður og 3 msk kókosfeiti)
- 3 msk kalt vatn
- 100 gr ávaxtasykur (ég nota rapadura hrásykur)
- Rifið hýði af 1/4 sítrónu (lífræn ræktuð)
- 125 gr spelti, fínmalað
Aðferð:
- Eggin aðskilin og hvíturnar stífþeyttar með 3 msk af köldu vatni.
- Sítrónuhýði og u.þ.b. 2/3 af sykrinum bætt út í og hvíturnar þeyttar áfram þar til þær verða seigar og gljáandi.
- Eggjarauðunum hrært saman við, einni og einni í senn.
- Hveitið sigtað út í og blandað varlega saman við eggjahræruna.
- Kókosfeitin er hrærð afar, afar varlega saman við.
- Deigið sett í bökunarform klætt með bökunarpappír.
- Bakað í um 10-15 mínútur við 180°C.
Hjónabandssæla
23. ágúst, 2009

Þegar ég var yngri hélt ég að kakan héti hjónabands-æla (og hélt alltaf að verið væri að gera grín að hjónabandi með því að gera svona ljóta köku því ekki eru hjónabandssælur nú sérstaklega fallegar). Það var ekki fyrr en löngu seinna að ég skildi að mig hafði vantað eitt s inn í nafnið og kakan hljómaði því aðeins girnilegri fyrir vikið! Þetta er sem sé hollari útgáfa af hjónabandssælu og víst er að þessi kaka er engin æla heldur sæla út í gegn og það með stóru S-i! Ég nota einungis agavesíróp og kókosfeiti og svo nota ég heimatilbúna rabbabara-og döðlusultu. Í botninn set ég svolítið af hnetum svo allt í allt er þessi hjónabandssæla sprengfull af C vítamínum, trefjum, próteinum, flóknum kolvetnum, hollri fitu o.fl. Veit reyndar ekki hvort að þetta sé uppskriftin af sérstakri sælu í hjónabandinu en í staðinn er þetta uppskrift af góðri og hollri köku og betri heilsa hlýtur að leiða til einhvers góðs! Athugið að ég nota heimatilbúna rabbabarasultu en þið getið líka soðið 170 gr rabbabara, 20 ml appelsínusafa og 50 gr döðlur og maukað saman í staðinn.
Hjónabandssæla
Gerir 1 köku
- 200 gr rabbabarasulta
- 100 gr heslihnetur
- 50 gr cashewhnetur eða möndlur
- 50 gr spelti
- 170 gr haframjöl
- 60 ml agavesíróp
- 4 msk kókosfeiti (best að hafa hana svolítið kalda, þ.e. ekki fljótandi)
- 4-5 msk vatn
- 1 tsk matarsódi
- Smá klípa salt (Himalaya eða sjávarsalt)
Aðferð:
- Byrjið á því að þurrrista heslihneturnar og cashewhneturnar á heitri pönnu. Þurrristið í nokkrar mínútur eða þangað til hýðið fer að losna af og hneturnar taka lit.
- Kælið hneturnar og nuddið hýðið af með fingrunum.
- Malið hneturnar í matvinnsluvél í 15-20 sekúndur eða þangað til þær eru orðnar nokkuð fínmalaðar.
- Bætið haframjölinu, speltinu og saltinu saman við og malið í 10 sekúndur. Setjið allt úr matvinnsluvélinni í skál.
- Bætið kókosfeitinni (best að hafa hana aðeins kalda), agavesírópinu og vatninu saman við haframjölsblönduna í skálinni og blandið öllu vel saman þangað til hægt er að klípa deigið saman. Ef það er of þurrt, má bæta nokkrum matskeiðum af vatni út í.
- Klæðið 20,5 cm. smelluform með bökunarpappír og þrýstið 2/3 af deiginu mjög vel ofan í botninn.
- Smyrjið rabbabarasultunni ofan á botninn.
- Dreifið restinni af deiginu í klumpum ofan á sultuna. Þrýstið létt ofan á.
- Bakið við 180°C í 20 mínútur.
- Takið úr ofninum og látið kólna áður en þið skerið kökuna. Athugið að mulningurinn ofan á er svolítið laus svo þið þurfið að vera með beittan hníf til að skera í gegnum (svo allt fari nú ekki út um allt).
- Athugið að kakan mýkist upp á öðrum degi og ef þið viljið hafa hana stökka er gott að henda henni inn í heitan bakaraofn og hita hana í eins og 10-15 mínútur við 180°C. Við það verður hún alveg eins og nýbökuð. Mér finnst hún líka alveg prýðileg í mýkri kantinum en það er smekksatriði auðvitað.
- Hægt er að nota aðrar sultur en rabbabarasultur, ég hef t.d. notað hindberjasultu, sveskjusultu og döðlusultu.
Kryddaðar skonsur með þurrkuðum ávöxtum
27. september, 2003

Þetta voru fyrstu skonsur sem ég bakaði og hef bakað þær milljón sinnum síðan. Sko ég skipti út sýrðum rjóma (sem var með 18% fitu) og notaði "Buttermilk" sem inniheldur bara 0.2 gr. af fitu í 100 grömmum (sem mér finnst svo skrítið því Butter er jú smjör!). Buttermilk er í rauninni súrmjólk. Það eru einungis 2 matskeiðar af ávaxtasykri í uppskriftinni sem þýðir að skonsurnar eru ekki of hitaeiningaríkar heldur. Svo notaði ég 2 matskeiðar af kókosfeiti í staðinn fyrir smjör og þetta var svooo gott. Sneisafullt af vítamínum og hollustu og frábært með bæði smurosti, sultu, osti eða bara hreint með kaffinu. Bestar nýbakaðar. Nammi nammi namm. Þessi uppskrift er annars úr "Australians Women Weekly" seríunni (breytt auðvitað aðeins) sem er svo fín.
Kryddaðar skonsur með þurrkuðum ávöxtum
Gerir 12 skonsur
- 310 ml heitt, sterkt svart te (fínt að nota 2 tepoka og láta liggja í 5 mínútur)
- 130 gr þurrkaðir ávextir, brytjaðir frekar smátt (upplagt að nota þurrkuð epli, apríkósur, döðlur
- 60 gr rúsínur
- 450 gr spelti
- 4 tsk vínsteinslyftiduft
- 1 tsk kanilduft
- 1 tsk blandað krydd (notið t.d. meira kanilduft, engiferduft og malað múskat)
- 2 msk agave síróp
- 2 msk kókosfeiti eða ólífuolía
- 100-125 ml "Buttermilk" en hægt að nota hreina, fitulausa jógúrt, súrmjólk eða AB mjólk.
Aðferð
- Setjið bökunarpappír á frekar stóra bökunarplötu.
- Blandið heitu teinu og ávöxtunum í litla, hitaþolna skál. Setjið lok yfir og leyfið að standa í um 20 mínútur.
- Sigtið þurru hráefnin saman í stóra skál.
- Blandið kókosfeitinni út í og hnoðið aðeins saman.
- Hellið teinu frá ávöxtunum og blandið út í deigið.
- Bætið "Buttermilk" eða jógúrti/súrmjólk/AB mjólk út í til að það verði að mjúku, svolítið klístruðu deigi.
- Setjið deigið á hveitistráð borð og hnoðið þangið til það er orðið mjúkt.
- Þrýstið deiginu niður þangað til það er orðið 2 cm. að þykkt (þarf ekkert að nota kökukefli, skonsurnar mega vera pínu ójafnar).
- Notið glas sem er um 5,5 cm. að vídd og skerið út kringlóttar kökur úr deiginu.
- Setjið yfir á bökunarplötuna.
- Bakið við 200°C í 20-25 mínútur.
- Upplagt er að frysta skonsurnar. Best er að skera þær í tvennt, setja í poka og inn í frysti. Þá getur maður hent einum og einum helmingi í ristavélina þegar manni dettur í hug.
- Hægt er að nota 10% sýrðan rjóma en allur sýrður rjómi á Íslandi (allavega hingað) inniheldur gelatín sem ég nota ekki.
Kúskúskaka með ávöxtum
5. mars, 2003

Þessa köku geri ég oft (hún er af Grænum kosti), hún er fljótleg því það þarf ekki að baka hana, mjög góð og ótrúlegt en satt, alveg dísæt. Ég fékk þó orð í eyra frá mágkonu minni sem fannst hún alls ekki neitt sæt (hún borðar venjulegar kökur) og ég var búin að lofa henni dísætri, hollri köku. Kannski eru mínir bragðlaukar bara orðnir afbrigðilegir? Jóhannesi finnst hún kakan allavega góð, mömmu hans líka og hún klárast alltaf að lokum svo hún getur ekki verið alvond. Það hljómar kannski skringilega að setja kúskús sem er af pastaætt í köku en trúið mér það passar mjög vel í þessa.
Kúskúskaka með ávöxtum
Gerir 1 köku
- 1 bolli smátt saxaðar döðlur (ég miða við 250 ml bolla)
- 1/2 bolli rúsínur
- Heilsusalt á hnífsoddi (einn áttundi úr tesk. ca). Ég nota Herbamare
- 1 tsk vanilluduft eða 1/2 tsk vanilludropar
- 1 tsk kanill
- 1 cm. biti engiferrót, rifinn á rifjárni eða saxað mjög fínt
- Um 3 bollar eplasafi
- 1 bolli kúskús
- 1 stór lófafylli eða meira af möndlum, þurrristuðum á pönnu
- 1 stór lófafylli eða meira af cashew hnetum, þurrristuðum á pönnu
- 50 gr steinalaus, græn vínber skorin í hálft
- 2 vel þroskuð kíwi skorin í sneiðar
Aðferð:
- Setjið allt (nema möndlurnar, cashewhneturnar, vínberin, kíwiin og kúskúsið) í pott og látið sjóða í u.þ.b. 20 min. við vægan hita.
- Skolið kúskúsið og bætið því útí og látið sjóða í um 5 mínútur.
- Hellið í hringlaga smelluform (þarf hvorki að smyrja né setja bökunarpappír), þjappið vel.
- Látið kökuna kólna og stífna í nokkra tíma í kæli.
- Skreytið með kiwisneiðum, vínberjum og þurrristuðum cashewhnetum og möndlum.
- Borðið eina og sér eða með þeyttum rjóma eða sojarjóma eða sojaís.
- Það er hægt að skreyta með alls kyns ferskum ávöxtum eins og jarðarberjum, mangói o.fl.
Límónu- og macadamiukökur
5. janúar, 2009

Macadamiahnetur minna mig alltaf á Afríku og þá sérstaklega Kenya því í hvert skipti sem ég fer þangað kaupi ég hrúgu af macadamiuhnetum enda eru þær ódýrar þar. Macadamiahnetur eru dýrustu hnetur í heimi hvorki meira né minna. Þær eru svooo góðar og yfirleitt er ég að maula macadamiahnetur á meðan ég þvælist um í Afríku. Ég sá svo í fyrsta skipti á ævinni avacadotré í Tanzaníu, lengst upp í Usambarafjöllum í mars 2008. Við vorum búin að keyra á kræklóttum fjallvegi í dágóða stund, komin í 2200 metra hæð og þar komum við í fjallaþorp sem var umlukið hitabeltisgróðri, fjöllum og mistri. Ótrúlegur staður. Það var á þessum slóðum sem ég fann lítið kaffihús, lengst í burtu frá öllu og öllum. Það hét Irente’s Farm Shop og seldi m.a. muesli, sultur og passion fruit (ástaraldin) þykkni. Við röltum um þorpið í smá stund og ég rak þá einmitt augun í avacadotré við vegkantinn og gamla, hrukkótta konu sem var að tína nokkur stykki í skjóðuna sína líklega til að hafa í matinn. Límónur eru svo víða notaðar í Austur-Afríku sérstaklega með alls kyns rauðlauks- og tómatsalötum (Kachumbari). Ég veit reyndar ekki alveg hvers vegna ég er að tala um Afríku því þessi samsetning, þ.e. límónukaka er ekki baun afrísk þó að hráefnið sé það.
Ég fann uppskriftina í bók sem heitir Raw Food Real World og er meiriháttar þ.e. bæði bókin og kökurnar. Ég breytti uppskriftinni bara örlítið. Skeljarnar má undirbúa deginum áður og fyllinguna er hægt að útbúa að morgni ef kökurnar eru bornar fram að kvöldi. Kökurnar henta sérstaklega vel t.d. í matar- eða saumaklúbb að sumri (en við borðum þær reyndar yfir allt árið)! Macadamia hnetur innihalda einómettaðar fitusýrur (meiri en í ólífuolíu) sem eru góðar fyrir hjartað og talið er að neysla á þeim geti lækkað kólesteról í blóði. Þær eru einnig próteinríkar, trefjaríkar og innihalda kalk. Avacado þarf ekki að kynna fyrir neinum en þau innihalda andoxunarrík E, C og A vítamín. E vítamín hjálpar einnig til við að halda húðinni fallegri og blóðrásinni góðri. Einnig innihalda avacado holla fitu og B5 vítamín sem er mikilvægt til að hjálpa okkur í streituástandi. Gera má eina stóra köku eða nokkrar minni. Athugið að svolítill afgangur verður af kreminu sem upplagt er að nota t.d. í smoothie, frysta í ís eða borða bara beint upp úr skálinni enda svakalega gott.
Límónu- og macadamiukökur
Gerir 4 litlar kökur/1 stóra
Skeljarnar:
- 2 bollar macadamiuhnetur
- 1 bolli kókosmjöl
- 1 msk fínt rifinn börkur af límónu (enska: lime)
- 2 msk límónusafi
- 2 tsk vanilludropar eða duft úr heilsubúð (má sleppa)
- 1/2 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
- 3 msk agavesíróp
- 1 msk kókosfeiti
Fyllingin:
- 5 vel þroskuð avacado, afhýdd
- 1/2 bolli límónusafi
- 1/4 bolli fínt rifinn börkur af límónu (börkur af 4-5 límónum)
- 2 msk kókosfeiti
- 1/2 bolli agavesíróp
- 2 tsk vanilludropar eða duft úr heilsubúð (má sleppa)
- 1/2 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
- 1 límóna í þunnum sneiðum til að skreyta með (má sleppa)
Aðferð:
- Best er að byrja á skeljunum.
- Setjið macadamiuhnetur, kókosmjöl, límónubörk, límónusafa, vanilludropa, salt og agavesíróp í matvinnsluvélina.
- Malið í 5-10 sekúndur eða þangað til hneturnar hafa molnað vel en eru ekki orðnar að mauki (verða of olíukenndar ef maukaðar of mikið).
- Setjið kókosfeitina út í og malið í 2-3 sekúndur.
- Klæðið 4 lítil bökuform (10cm í þvermál) eða eitt stórt form að innan með plastfilmu.
- Skiptið deiginu í 4 hluta og setjið í bökuformin.
- Botn og hliðar ættu að vera um það bil jöfn að þykkt.
- Setjið í ísskáp og geymið á meðan þið búið til fyllinguna.
- Til að gera fyllinguna skuluð þið setja avacado, límónubörk, agavesíróp, vanilludropa og salt í matvinnsluvélina.
- Látið vélina ganga þangað til avacadoið er orðið kekkjalaust og allt hefur blandast vel saman.
- Hellið helmingnum af límónusafanum út í og blandið áfram. Hellið restinni út í ef þið teljið þurfa. Maukið má ekki vera of blautt þannig að það renni t.d. af skeið.
- Bætið kókosfeitinni saman við og maukið vel.
- Setjið plastfilmu yfir og geymið í ísskáp í um 30 mínútur.
- Takið skeljarnar og fyllinguna úr ísskápnum.
- Fjarlægið plastið og setjið skeljarnar á fallega diska eða einn stóran disk.
- Fyllið skeljarnar með avacadomaukinu.
- Skreytið með límónusneiðum.
- Setjið plastfilmu yfir kökurnar þannig að hylji alveg og geymið í ísskáp ef ekki á að borða þær strax.
- Hægt er að gera skeljarnar 1-2 dögum áður en bökurnar eru útbúnar.
- Best er að gera avacadofyllinguna samdægurs svo hún haldi þessum fallega græna lit sínum.
Möndlu- og furuhnetukaka með kremi úr sætum kartöflum
16. nóvember, 2006

Ég átti afganga af sætum kartöflum og vissi af þessari uppskrift frá hinni frægu hráfæðiskonu Nomi Shannon (úr bókinni The Raw Gourmet). Ég bakaði botninn í ofni en það átti að láta hana hitna í
sólinni í heilan dag, (aha, einmitt ekki alveg að gera sig heima á Íslandi eða í London að hausti til he he). Hún myndi annað hvort rigna í kaf eða fjúka! Kakan er því ekki
raw (hrá) en er engu að síður holl og góð, mjög kalk- og próteinrík og inniheldur einnig A, E og C vítamín, ásamt mikið af trefjum! Kökuna sjálfa má gera með margra daga fyrirvara og geyma í plastfilmu í ísskáp. Skreyta má kökuna rétt áður en hún er borin fram. Þessi er fín um jólin því hægt er að búa botninn til með góðum fyrirvara.
Möndlu- og furuhnetukaka með kremi úr sætum kartöflum
Gerir 1 köku
Botn:
- 1 1/4 bolli möndlur, lagt í bleyti í um 30 mínútur
- 1 bolli döðlur, saxaðar gróft
- 1/2 tsk vanilludropar
- 1/2 tsk kanill
- 2 tsk kornmjöl (enska: cornflour) til að þykkja
Aðferð:
- Hellið vatni af möndlunum.
- Setjið möndlurnar í matvinnsluvél og blandið vel.
- Bætið döðlunum, vanilludropunum, kanil og kornmjöli saman við og blandið þangað til allt er orðið vel maukað.
- Klæðið kringlótt bökunarform með bökunarpappír.
- Setjið í lítið tertuform með lausum botni.
- Bakið í 25 mínútur við 180°C.
- Takið úr ofninum og kælið.
- Hvolfið botninum varlega á stóran kökudisk.
Kremið
- Á meðan kakan er að bakast er best að útbúa kremið.
- 200 gr sætar kartöflur, saxaðar gróft
- 3/4 bolli döðlur, saxaðar gróft, lagðar í bleyti í 20 mínútur
- 1/4 bolli rúsínur, lagðar í bleyti í 20 mínútur
- 1/2 bolli furuhnetur, lagðar í bleyti í 5-10 mínútur
- 1/2 tsk kanill
- 1/2 tsk vanilludropar
- 1/2 tsk negull (enska: clove)
- 2 msk kornmjöl
- 1 granatepli (enska: pommegranate) til að skreyta með
Aðferð:
- Setjð furuhnetur í matvinnsluvél og blandið vel (vatnið á ekki að fara með).
- Hellið vatninu af döðlunum og rúsínunum og bætið saman við hneturnar.
- Blandið kornmjölinu, kanil, vanilludropum og negul saman við og blandið áfram í nokkrar mínútur.
- Blandið mjög vel, lengur frekar en styttra þar sem kremið á að vera alveg mjúkt.
- Hellið þessu í stóra skál.
- Blandið núna sætu kartöflurnar alveg í mauk og setjið svo í skálina.
- Blandið vel saman.
- Hellið þessu yfir botninn. Kremið á að vera nokkuð þykkt.
- Skreytið með granateplafræjum, rifsberjum, hindberjum eða einhverjum öðrum fallegum berjum.
- Hægt er að búa til böku (enska: pie) og láta botninn ná upp á hliðarnar. Það er svolítið flott. Þá þarf maður að nota minna bökunarform eða búa til helmingi meira magn af botninum.
- Nota má aðrar hnetur en furuhnetur, til dæmis pecanhnetur
Ostakaka með grísku jógúrti og pistachiohnetum
1. mars, 2003
Sko þessi ostakaka hét "curd ostakaka" en "curd" er enska fyrir ostahlaup eða ysting og mér fannst bara ekki hægt að nefna kökuna "ystings- eða hlauposts ostaköku", hljómar ekki beint girnilegt. Þrátt fyrir misheppnað nafn þá er þetta frábær OG "holl" ostakaka (þær eru nú ekki mjög hollar þessar venjulegu því ég setti t.d. kvarg og curd í staðinn fyrir rjómaost, sykurlaust ávaxtamauk í staðinn fyrir hunang og fitulaust, grískt jógúrt í staðinn fyrir venjulegt og að lokum er ekkert smjör í kökunni, bara 2 mtsk af kókosfeiti og 4 mtsk af appelsínusafa í staðinn!!! Upphafleg uppskrift kemur frá Deliu Smith, (hún er ein af þessum gömlu, vinsælu sjónvarspkokkum í Bretlandi og mér finnst hún frábær). Loksins, ostakaka næstum því án samviskubits!! En ok ég viðurkenni að ég hef ekki samanburð þar sem ég borða ekki venjulegar ostakökur (fyrir utan þessa uppskrift hér sem ég smakkaði upphaflega hjá Elvu vinkonu (hún var með holla útgáfu af henni líka) en ég ætla alveg að trúa því að þessi sé góð og viðbrögð þeirra sem hafa borðað hana hafa líka stutt það að hún sé gómsæt (sérstaklega skemmtilegt að nefna að Jóhannes sem borðar ekki ost né ostakökur elskar þessa og er samt ostakökuleg:) Það er hægt að nota Philadelphia Light "rjómaostinn" (soft cheese) sem fæst á Íslandi í staðinn fyrir curd.
Ostakaka með grísku jógúrti og pistachiohnetum
Ein kaka fyrir 10-12
- 500 gr curd cheese (hlaupostur eða ystingur) 12% fita eða minna. (Hægt að nota Philadelphia Light "Soft Cheese" 15% í staðinn)
- 250 gr kvarg (fitulaus ostur). Einnig má nota skyr
- 50 gr ósaltaðar pistachiohnetur, gróft saxaðar
- 2 msk kókosfeiti
- 4 msk hreinn appelsínusafi
- 175 gr gróft hafrakex eða speltkex (það hollasta, sykurminnsta og fituminnsta sem þið finnið, ætti ekki að fara upp fyrir 15gr af fitu og sykur ætti ekki að vera í efstu sætunum og ef svo er, ætti það að vera hrásykur). Hægt er að fá ágæt og holl speltkex í heilsubúðum
- 25 gr muesli (eitthvað gott muesli með rúsínum og hnetum) án viðbætts sykurs
- 3 stór egg
- 3 msk agavesíróp
- 2 tsk vanilludropar eða vanilluduft úr heilsubúð
- 200 gr grískt jógúrt með 0% fitu (ef það fæst ekki má sía hreina jógúrt í gegnum grisju eða hreint viskustykki í nokkra tíma). Gott er að setja viskustykki yfir skál og festa með teygju. Hellið jógúrtinu yfir og látið bíða
- 125 ml krukka af Hipp Organic eða Holle, sykurlausum barnamat með banana- og ferskju bragði. Upphafleg uppskrift gaf hunang
- 25 gr ósaltaðar pistachiohnetur, gróft saxaðar
Aðferð:
- Hitið ofninn í 150°C
- Fyrst byrjið á því að búa til botninn:
- Setjið kexið og muesliið í matvinnsluvél og malið alveg þangað til það er orðið að dufti. Einnig má setja kexið í poka og fara með kökukefli yfir.
- Setjið mulninginn í skál, ásamt pistachiohnetunum.
- Setjið kókosfeitina og appelsínusafann yfir og blandið vel saman.
- Færið nú blönduna í 26cm form (með lausum botni). Ég nota alltaf bökunarpappír í formið.
- Bakið í 20 mínútur.
- Í annari skál, blandið saman curd ostinum (eða philadelphia ostinum), kvarginu (eða skyrinu), eggjunum, agavesírópinu og vanilludropunum og hrærið með handþeytara þangað til blandan verður flaueliskennd og mjúk.
- Hellið varlega yfir ostakökubotninn, ofan á mulninginn, jafnið út.
- Bakið við 150°C í 40-45 mínútur. Það getur verið að þurfi að baka hana skemur (fer eftir ofnum). Potið varlega í miðju kökunnar, ef hún virkar ekki þétt, þá þarf að baka lengur. Hún ætti að vera svolítið mjúk í miðjunni en ekki hlaupkennd. Ef hún er hlaupkennd, bakið hana þá í 10 mínútur í viðbót. Kakan stífnar svo þegar hún kólnar.
- Slökkvið á ofninum og leyfið ostakökunni að kólna alveg inn í ofninum, allt að því yfir nótt.
- Setjið ostakökuna, með plasti yfir, inn í ísskáp og leyfið að kólna í a.m.k. 2 tíma.
- Þegar ostakakan er orðin köld, dreifið þá jógúrtinu yfir, því næst banana- og ferskjumaukinu og svo pistachiohnetunum.
- Ef þið viljið, þá er hægt að setja fullt af ferskum ávöxtum ofan á í staðinn fyrir ávaxtamaukið.
- Það er sjálfsagt að nota annað ávaxtamauk en banana-og ferkju.
- Það er fínt að gera kökuna daginn áður en á að borða hana því hún er bara betri daginn eftir.
Pecankaka með súkkulaði,- og cashewmauksfyllingu
2. nóvember, 2008

Þessi er dásamlega holl og góð. Í pecanhnetum og cashewhnetum er holl fita sem hjálpar til við að halda hjartanu heilbrigðu. Það er enginn hrásykur né annar sykur í kökunni fyrir utan agavesírópið en samt er hún sæt og góð. Fyllingin er loftkennd, næstum því eins og súkkulaðimús og ég get lofað ykkur því að bros færist á varir þeirra sem smakka hana! Ég bjó svona köku til um daginn og gestirnir fóru langleiðina með að klára hana í einni svipan. Þetta er svona kaka sem maður sker af smá sneið í viðbót eftir að hafa klárað bitann sem var á diskinum, og svo aðra, og aðra sneið. Hægt er að útbúa þessa köku í lítil form og bera fram sem litlar kökur eða auðvitað sem eina stóra. Athugið að kakan er ekki bökuð. Nauðsynlegt er að eiga matvinnsluvél eða góðan blandara til að búa hana til. Kakan er umtalsvert léttari en margar aðrar kökur því í henni er cashewhnetumauk í staðinn fyrir smjör eins og svo oft er notað. Einnig er maukið fituminna en kókosfeiti svo það sparast hellingur af fitu og hitaeiningum þar (en engar áhyggjur nóg eftir í kökunni he he). Ég notaði heimatilbúið cashewhnetumauk en hægt er að kaupa það í heilsubúðum. Það er svívirðilega dýrt svo ég mæli með að búa það til sjálf. Athugið að kakan þarf að stífna í ísskápnum í nokkra klukkutíma áður en hún er borðuð. Kakan hentar vel þeim sem hafa mjólkur-, eða glúteinóþol. Uppskriftin virkar flókin en er það í raun ekki. Ég mæli samt með því að þið séuð búin að gera cashewhnetumaukið með smá fyrirvara því það sparar tíma.
Pecankaka með súkkulaði,- og cashewmauksfyllingu
Gerir 1 köku
Botn:
- 100 gr pecanhnetur
- 50 gr möndlur
- 90 gr döðlur, saxaðar gróft (leggið í bleyti í 20 mínútur)
Fylling:
- 100 gr cashewhnetur
- 1 stór, vel þroskaður banani
- 30 gr kakó (lífrænt framleitt)
- 4 msk agavesíróp
- 50- 60 ml sojamjólk (einnig má nota möndlumjólk, hrísmjólk, haframjólk eða undanrennu)
- 1 tsk vanilludropar eða duft úr heilsubúð
- Smá klípa salt salt (Himalaya eða sjávarsalt)
- 1,5 msk kókosolía + 1 tsk kókosolía
Aðferð:
- Setjið pecanhneturnar og möndlurnar í matvinnsluvél og malið í um 20 sekúndur eða þangað til grófmalað (má ekki vera of fínmalað á þessu stigi), skiljið eftir í vélinni.
- Hellið vatninu af döðlunum (ekki notað) og setjið í matvinnsluvélina.
- Blandið þannig að deigið verði grófkornótt og límist vel saman (ekki of maukað en samt þannig að klessist vel saman og haldist þannig ef þið klípið deigið með höndunum).
- Klæðið 21 cm. lausbotna kökuform með bökunarpappír eða plastfilmu.
- Þrýstið blöndunni ofan í botninn og upp á hliðarnar (svona 2 cm. upp á hliðina, botninn þarf ekki að vera mjög þykkur). Geymið í ísskápnum.
- Setjið cashewhneturnar í matvinnsluvél og maukið alveg þangað til hneturnar fara að mynda kekki, gæti tekið nokkrar mínútur.
- Bætið 1 tsk af kókosolíu saman við í dropatali á meðan vélin vinnur.
- Setjið bananann í matvinnsluvélina ásamt sojamjólkinni (byrjið með 50 ml) og blandið vel.
- Bætið vanilludropum, salti, agavesírópi og kakói út í og látið vélina vinna í nokkrar sekúndur.
- Bætið 1,5 msk af kókosolíu saman við (nokkra dropa í einu) og maukið vel. Athugið að súkkulaðiblandan verður mjög fljótandi en á eftir að stífna í ísskápnum.
- Takið formið með botninum úr ísskápnum.
- Hellið blöndunni út í og jafnið vel út.
- Geymið í ísskáp í 2-3 tíma.
- Fjarlægið formið.
- Best er að færa kökuna á disk þannig að þið notið lausan botn úr kökuformi til að smeygja undir kökuna og renna henni yfir á diskinn. Passið að hún beyglist ekki.
- Berið kökuna fram kalda (verður annars of mjúk).
- Kökuna má skreyta með hnetum (t.d. pecanhnetum), berjum, ávöxtum, kókosflögum, kakónibbum o.fl.
- Nota má valhnetur í staðinn fyrir pecanhnetur.
- Gera má kökuna í nokkur minni form.
- Í staðinn fyrir 100 gr cashewhnetur getið þið notað sama magn af cashewhnetumauki (cashew butter) ef þið komist í slíkt.
- Ef þið eigið kakónibbur (cacao nibs) er gaman að skreyta kökuna með þeim og þær gefa líka skemmtilega áferð.
Skonsur með grænu tei og rúsínum
7. febrúar, 2007

Á ferð okkur um Japan áramótin 2006-7 sáum við á fjölmörgum stöðum að verið var að selja skonsur hvers konar og oft voru þær grænleitar og var þá notað grænt te í uppskriftina. Sumar voru alveg eiturgrænar (líklega bætt í þær litarefnum) en aðrar voru mosagrænar, mun eðlilegri á litinn. Þessar skonsur er einfalt að búa til og þær innihalda engan hvítan sykur og aðeins 2 matskeiðar af kókosfeiti. Afar góðar sunnudagsskonsur. Grænt te eins og flestir vita inniheldur mikið af andoxunarefnum og er því afar hollt. Það er þó ekki koffeinlaust eins og margir halda.
Skonsur með grænu tei og rúsínum
Gerir um 20 skonsur
- 300 ml heitt, grænt te (fínt að nota 2 tepoka eða samsvarandi af telaufum og láta liggja í 5 mínútur)
- 200 gr rúsínur
- 460 gr spelti
- 1,5 msk lyftiduft
- 2 msk agavesíróp
- 2 msk kókosfeiti
- 100 ml hrein, fitulaus jógúrt, súrmjólk eða AB mjólk
Aðferð:
- Setjið bökunarpappír á frekar stóra bökunarplötu.
- Blandið heitu teinu og rúsínunum í litla, hitaþolna skál. Setjið lok yfir og leyfið að standa í um 20 mínútur.
- Sigtið þurru hráefnin saman í stóra skál.
- Blandið kókosfeitinni saman við og hrærið vel saman
- Hellið vatninu frá rúsínunum og blandið saman við deigið.
- Blandið jógúrtinni saman við svo úr verði mjúkt, svolítið klístrað deig.
- Setjið deigið á hveitistráð borð og hnoðið þangið til það er orðið mjúkt.
- Þrýstið deiginu niður þangað til það er orðið 2 cm. að þykkt (þarf ekkert að nota kökukefli, skonsurnar mega vera pínu ójafnar).
- Notið glas sem er um 5,5 cm. að vídd og skerið út kringlóttar kökur úr deiginu.
- Setjið yfir á bökunarplötuna.
- Bakið við 200°C í 20-25 mínútur.
- Einnig má skella nokkrum söxuðum döðlum í uppskriftina á móti rúsínunum.
Súkkulaðiávaxtakakan hennar Nigellu
30. nóvember, 2008

Þessa uppskrift sendi Lísa Hjalt. mér (þessi sem á frönsku súkkulaðikökuna hér á vefnum). Upprunalega er uppskriftin frá Nigellu Lawson en ég er búin að gera hana hollari. T.d. sleppti ég 175 grömmum af smjöri, 175 gr af sykri, 125 ml af líkjör (sem er eiginlega bara sykur) o.fl. Kakan varð merkilega góð þrátt fyrir niðurskurðinn. Hún er líka afburða holl því sveskjur innihalda trefjar og alveg fáránlegt magn af andoxunarefnum, meira en helmingi meira en t.d. bláber, möndlur og cashewhnetur innihalda prótein og holla fitu og margt fleira hollt má finna í kökunni. Ég vona að Nigella verði ekki reið þó ég sé búin að breyta kökunni svona mikið en hún heitir Chocolate Fruitcake ef þið viljið finna hana á matarvef BBC. Ég bætti líka aðeins við í uppskriftina t.d. heslihnetum og söxuðu súkkulaði svona fyrir áferðina en kakan er ansi massíf. Hún er þétt og þung, næstum eins og stífur búðingur og hentar vel þeim sem finnst enskar jólakökur góðar. Ef ykkur finnst þær almennt ekki góðar þá er þessi kaka ekki fyrir ykkur! Athugið að skreyta átti kökuna með gulli sem má borða en þið getið rétt ímyndað ykkur hvað mér finnst um svoleiðis óþverra ha ha.
Súkkulaðiávaxtakakan hennar Nigellu
Gerir eina massífa köku
- 400 gr sveskjur, saxaðar gróft
- 250 gr rúsínur
- 125 gr döðlur, saxaðar gróft
- 5 msk kókosolía
- 100 ml agavesíróp
- 125 ml sterkt kaffi (ef þið drekkið það ekki notið þá 1 msk í viðbót af kakói og 125 ml af vatni)
- 2 appelsínur, safi (200 ml) og börkur (rifinn á rifjárni)
- 1/2 tsk kanill
- 1/2 tsk engifer
- 1/2 tsk múskat eða negull
- 2 msk kakó, lífrænt framleitt
- 125 ml barnamatur (ávaxtamauk) án sykurs. Gott að nota t.d. epla- ferskju- bláberja eða aprikósumauk
- 2 egg
- 150 gr spelti
- 50 gr cashewhnetur
- 50 gr möndlur (eða cashewhnetur)
- 1/2 tsk vínsteinslyftiduft
- 100 gr heslihnetur, saxaðar gróft
- 50 gr dökkt, lífrænt framleitt súkkulaði með hrásykri, saxað gróft (má sleppa)
Aðferð:
- Hitið ofninn í 150°C.
- Klæðið 20cm kökuform (með lausum botni) með bökunarpappír.
- Blandið möndlur og cashewhnetur í matvinnsluvél þangað til allt er orðið nánast að mauki eða a.m.k. mjög fínmalað.
- Setjið sveskjurnar, döðlurnar, appelsínusafann, appelsínubörkinn, barnamatinn, hnetu- og möndlumaukið, kaffið og agavesírópið í stóran pott.
- Hitið þangað til fer að sjóða og látið malla í 10 mínútur.
- Takið af hitanum og látið standa í 30 mínútur.
- Setjið spelti, krydd, kakó, vínsteinslyftiduft í stóra skál og hrærið vel saman.
- Hellið ávaxtablöndunni út í skálina með speltinu.
- Blandið öllu vel saman án þess að hræra mjög mikið.
- Bætið eggjunum og kókosolíunni saman við og hrærið aðeins áfram.
- Bætið saxaða súkkulaðinu og söxuðu heslihnetunum saman við.
- Hrærið þangað til allt hefur blandast vel saman (8-10 hreyfingar ættu að vera nóg, óþarfi að hræra of mikið).
- Hellið deiginu í formið með bökunarpappírnum.
- Bakið í 1,5 klukkutíma.
- Kakan ætti að vera svolítið klístruð en stíf efst og ekki blaut. Ef kakan er mjög mjúk í miðju, bakið þá í 15 mínútur í viðbót og aðrar 15 ef nauðsyn krefur. Kakan ætti alls ekki að verða hörð í miðjunni heldur þvert á móti aðeins of lítið bökuð án þess að vera alveg mjúk eða hrá.
- Kælið kökuna.
- Takið kökuna úr mótinu eftir að hún er tilbúin.
- Ef ekki á að bera kökuna fram strax má frysta hana.
- Kakan er góð með smá slettu af þeyttum rjóma.
- Nota má sítrónubörk á móti appelsínuberkinum.
- Nota má valhnetur í staðinn fyrir heslihnetur.
- Nota má kúrenur í staðinn fyrir döðlur.
- Nota má meira af döðlum á móti sveskjunum.
Súkkulaðirúlluterta
5. mars, 2003
Sko ég á bók sem heitir "Fitusnautt of freistandi" sem er auðvitað gott og blessað og margar góðar uppskriftir í bókinni. EEENNNNN höfundurinn tönnlast á því að megi ekki nota fitu í hinu og þessu, spara fituna hér og þar, nota ekki smjör, nota ekkert nema olíuúða osfrv, sem sagt hatrömm barátta gegn fitu SEM ER Í FÍNU LAGI og ég er alveg sammála, óholl og of mikil fita er ónauðsynleg í mörgu ENNNNNNNNN það sem konan notar af SYKRI er lygilegt, hún talar ekkert um hvað sykur er óhollur, hvaða afleiðingar hann getur haft á heilsufar fólks, holdafar, tennur, almenna heilsu o.s.frv. Hún er alveg blind á þann hluta hollustunnar sem sé. Svo ég hætti nú að kvarta, þá er uppskrift úr bókinni hennar, en ég er búin að breyta henni aðeins og nota ávaxtasykur í staðinn fyrir venjulegan hvítan sykur. Uppskriftin er svolítið flókin en útkoman er alveg þess virði. Kastaníumaukið er mjög gott með ostinum. Í fyrsta skipti sem ég gerði kökuna setti ég óvart 1 dl (í staðinn fyrir 1 ml) af vínsteinsdufti og jesús minn, þvílíkt ógeð, rammt og ógeðslegt. Við borðuðum bara kremið í það skiptið :(
Súkkulaðirúlluterta
Gerir 1 köku
- Kakan
- 110 gr ávaxtasykur
- 60 gr gott kakóduft, án sykurs, einnig má nota carob
- 9 eggjahvítur, stofuheitar
- 1 ml vínsteinsduft (enska: cream of tartar)
- 1,5 tsk vanilluduft (eða vanilludropar)
- 1,5 tsk dökkt romm (má nota kardimommudropa eða meiri vanilludropa í staðinn)
- Ávaxtasykur í sigti
Kremið
- 15 gr dökkt súkkulaði án viðbætts sykurs. Einnig má nota carob
- 3 msk ávaxtasykur
- 1 msk gott kakóduft, án sykurs, einnig má nota carob
- 125 gr kastaníumauk
- 100 gr ricotta ostur (eins fitulítinn og þið finnið)
- 1 tsk vanilludropar eða vanilluduft
Aðferð - Kremið:
- Bræðið súkkulaðið í hitaþolinni skál yfir potti með sjóðandi vatni og látið það síðan kólna dálítið.
- Blandið saman ávaxtasykri og kakódufti.
- Setjið allt hitt í matvinnsluvél eða blandara og bætið síðan kakóblöndunni við og látið vélina ganga þar til allt er vel blandað.
- Setjið kremið í skál, breiðið plastþynnu ofan á og geymið í kæli þar til á að nota það.
Aðferð - Kakan:
- Setjið bökunarpappír innan í rúlllutertumót, um 32,5 x 28 cm, eða litla ofnskúffu.
- Sigtið saman kakóduftið og 7 msk af ávaxtasykri. Setjið til hliðar.
- Þeytið saman eggjahvíturnar og vínsteinsduftið þar til freyðir. Þeytið duglega áfram og bætið afganginum af ávaxtasykrinum við, litlu í einu, þar til blandan er stíf.
- Blandið kakóblöndunni varlega saman við eggjahvíturnar.
- Bætið varlega við vanillu og dökku rommi eða kardimommudropum.
- Setjið blönduna í mótið.
- Bakið í 20-30 mínútur eða þar til tannstöngull sem stunginn er í kökuna miðja kemur hreinn út.
- Kælið kökuna í mótinu á grind.
- Breiðið hreina þurrku á borðið.
- Setjið ofan á hana örk af bökunarpappír og stráið ávaxtasykri jafnt á hann.
- Hvolfið kökunni á pappírinn þegar hún er orðin vel köld. Dragið af henni bökunarpappírinn.
- Smyrjið kastaníukremi með súkkulaði á kökuna og geymið ef til vill 3-4 matskeiðar til að skreyta með.
- Byrjið á langhliðinni og vefjið kökuna saman. Hafið þurrkuna til hjálpar. Vefjið kökuna í plastþynnu og geymið í kæli.
- Þegar skreyta á kökuna er kremið sem eftir er sett í sprautupoka með meðalstórum stút.
- Sprautið því í rósir eða skeljamynstur eftir kökunni endilangri.
- Skreytið með fáeinum súkkulaðiþynnum (súkkulaðiskafningi) og stráið kannski ávaxtasykri ofan á.
- Tilbrigði: Setjið sykurlausa súkkulaðibráð á kökuna og berið hana fram með hindberjasósu.
Sultukaka með carobkremi
15. október, 2006

Holl og góð kaka, sniðug ef maður þarf að útbúa köku með góðum fyrirvara því hún geymist í margar vikur, innpökkuð í ísskáp og verður bara betri þannig. Best er að útbúa kökuna fyrst og setja kremið á, stuttu áður en kakan er borin fram því kremið stífnar á nokkrum dögum og er betra frekar þunnt og lint. Einnig má frysta kökuna.
Sultukaka með carobkremi
Gerir eina köku
- 1/4 dl möndluflögur
- 1/4 dl kókosmjöl
- 2 dl cashewhnetur
- 1 bolli puffed rice (fæst í flestum heilsubúðum)
- 15-20 gráfíkjur, snúið litla stubbinn á endanum af, saxið gróft
- 8-10 döðlur, saxaðar gróft
- 2 dl rúsínur
- 2-4 msk hreinn appelsínusafi
- 1-2 msk hreint hlynsíróp (enska: maple syrup)
- 3 msk carobduft (má nota kakóduft, notið þá lífrænt framleitt og gott kakó)
- 285 gr sulta án sykurs (t.d. frá Himneskri hollustu eða St.Dalfourd, mér finnst Raspberry mjög gott)
Carobkrem:
- 1,5 dl carobduft
- 1 vel þroskaður banani, stappaður
- 1/2 dl hlynsíróp (enska: maple syrup), bætið við ef þarf meira. Hægt er að nota agavesíróp en það stífnar ekki eins vel og hlynsírópið
Aðferð:
- Malið möndlur og hnetur og kókos og puffed rice í matvinnsluvél.
- Bætið carobdufti saman við og malið aðeins áfram.
- Setjið í stóra skál.
- Maukið döðlur, gráfíkjur og rúsínur með smá appelsínusafa þangað til allt er orðið að mauki.
- Blandið öllu vel saman, jafnvel í hrærivél (gott að vera í þunnum plasthönskum ef þið notið hendurnar).
- Áferðin á deiginu á að vera nokkuð þétt, alls ekki blaut en allt á samt að festast vel saman.
- Skiptið hráefninu í tvot hluta.
- Þrýstið helmingnum í þunnt (um 1cm) lag í litlu kökuformi með lausum botni. Þrýstið MJÖG vel. Gott að láta kólna aðeins í ísskáp.
- Losið varlega yfir á stóran kökudisk.
- Dreifið sultunni í þykku lagi yfir kökubotninn.
- Takið til annað kökuform (eða þrífið hitt á milli). Þrýstið deiginu vel ofan í botn formsins.
- Takið varlega úr forminu og leggið ofan á sultuna.
- Blandið öllu sem fara á í kremið vel saman.
- Kremið ætti að vera frekar þunnt og leka pínulítið með hliðunum.
- Ef kremið er mjög lint má láta það stífna aðeins í ísskáp.
- Einnig má nota sólblómafræ, möndlur, heslihnetur og sesamfræ með cashewhnetunum.
- Nota má agavesíróp í staðinn fyrir hlynsírópið.
- Frysta má kökuna og bera hálf frosna fram, mjög góð þannig líka.
Ástralskt hermannakex (ANZAC)
30. nóvember, 2005

Þessi uppskrift kemur frá einum notanda vefjarins sem heitir Sólborg Hafsteinsdóttir. Hún sendi mér upphaflegu uppskriftina sem henni þótti óholl og bað mig um að kíkja á hana varðandi það hvort væri hægt að gera hana eitthvað hollari. Mér leist vel á uppskriftina og ákvað að prófa. Ég veit auðvitað ekki hvort þetta sé eitthvað sambærilegt við kexið sem Sólborg fékk í Ástralíu en það var alveg ofsalega gott. Kókos- og haframjöl ásamt sykurlausu hlynsírópi er mjög góð blanda. Svona til skemmtunar þá fylgdi saga þessum kökum og hún er svona:
"Já sagan í kringum ANZAC-kökurnar er nú bara sú að við fjölskyldan fórum til Ástralíu í sumar í heimsókn til tengdafjölskydu minnar og dvöldum hjá þeim í 2 mánuði. Á þessum tíma fórum við í 10 daga ferðalag frá Brisbane (þar sem við dvöldum) og niður til Canberra og á einum viðkomustaðnum sem við gistum á hjá frændfólki tengdapabba hafði þetta gómsæta kex verið bakað og borið okkur gestunum. Ég varð svo hrifin af þessu kexi að ég fékk uppskriftina hjá þeim. Þetta kex er þjóðarkex Ástrala ef svo má segja, því allir þekkja það og kunna að baka. Nafn kexsins er dregið af
Australia and New Zealand Army Corpse (ANZAC). Kexið var víst bakað og notað sem fjáröflun fyrir hermenn sem voru að snúa aftur heim úr heimstyrjöldinni fyrri".
Aðalbreytingin á uppskriftinni er sú er að ég notaði aðeins 4 mtsk af kókosfeiti í allri uppskriftinni (ekki 125 ml af smjöri) og barnamat (enginn viðbættur
sykur og lífrænt framleiddur) að auki, ég notaði 3/4 bolla af kókosmjöli, ekki 1 bolla og svo notaði ég ávaxtasykur og sykurlaust hlynsíróp (til að fá gljáann eins og af púðursykri). Ég sleppti sesamfræjunum, einfaldlega af því mér fannst þær alveg nógu girnilegar eins og þær voru :)
Ástralskt hermannakex (ANZAC)
Gerir um 12 bita
Endanleg útgáfa af uppskriftinni varð sem sagt þessi:
- 1 bolli spelti
- 1 bolli haframjöl (stórir hafrar eða tröllahafrar)
- 3/4 bolli kókosmjöl
- 1/2 bolli hreint hlynsíróp (enska: maple syrup)
- 1/2 bolli ávaxtasykur
- 5 msk kókosfeiti eða ólífuolía
- 125 ml sykurlaus, lífrænn framleiddur barnamatur (ferskju- og banana
er fínn t.d. frá Organix eða Hipp Organic)
- 1 tsk vínsteinslyftiduft
- 1 msk sesamfræ (má sleppa)
Aðferð:
- Blandið saman þurru hráefnin.
- Blandið saman sykurlausa hlynsírópinu og kókosfeitinni/ólífuolíunni ásamt barnamatnum.
- Blandið þessu saman við þurra hráefnið
- Setjið í form sem er ferkantað, um 22-25cm. Pressið þangað til úr verður
þunnt lag.
- Bakið við 180°C í 20-30 mínútur eða þangað til kakan er orðin brún og falleg
og hörð að utan.
- Kælið kökuna á vírgrind í um 10 mínútur og skerið í bita svo úr verði kexstærðir.
- Til að fá kexið þykkara og mýkra að innan er hægt að hafa deigið þykkara í bökunarforminu (var voða gott svoleiðis, notaði frekar lítið form). Til að fá kexið harðara ætti deigið að vera þynnra (stærra bökunarform).
Ávaxtakonfekt
28. nóvember, 2009

Lísa Hjalt vinkona mín gaukaði þessari uppskrift sem hún rakst á í dönsku blaði. Uppskriftin er einföld og ódýr (engar hnetur) og nokkuð fljótleg. Í uppskriftina átti að fara vanillusykur en ég sleppti honum. Ég notaði 2 mtsk af agavesírópi í staðinn. Einnig átti að fara kókosolía (2-3 mtsk) í uppskriftina en ég sleppti henni. Ég bætti við uppskriftina dökku, lífrænt framleiddu súkkulaði með hrásykri. Ég velti kúlunum ekki upp úr neinu því þær voru góðar einar sér en hægt er að velta þeim upp úr kakói eða kókosmjöli. Ef þið sleppið súkkulaðinu, er gott að nota kókosolíuna í staðinn. Mínar kúlur eru 12 grömm að þyngd hver en gera má stærri og færri kúlur eða fleiri og minni. Aprikósur eru fullar af A vítamínum sem skiptir miklu máli fyrir sjónina okkar. Einnig innihalda aprikósur sem og kakó andoxunarefni og stuðla þannig að vörnum líkamans gegn myndun krabbameinsfruma. Svo eru aprikósur, ásamt döðlunum mjög trefjaríkar. Munið að kaupa ekki appelsínugular, þurrkaðar aprikósur því þær er búið að meðhöndla með efnum (sulfur dioxide) sem margir hafa ofnæmi fyrir. Lífrænt ræktaðar aprikósur innihalda ekki þetta efni. Kúlurnar geymast í margar vikur ef þær eru settar í lokað plastílát. Athugið að einnig er gott að dýfa kúlunum í bráðið súkkulaði...algjört nammi.
Ávaxtakonfekt
Gerir 40-45 kúlur
- 100 gr þurrkaðar aprikósur (kaupið þessar brúnu, lífrænt ræktuðu ef þið getið)
- 100 gr döðlur
- 100 gr kókosmjöl
- 25 gr kakó
- 70 gr dökkt, lífrænt framleitt súkkulaði með hrásykri, saxað smátt
- 2 msk agavesíróp
- 2 msk kókosolía (má sleppa ef notað er súkkulaði)
- Smá kakó eða kókosmjöl til að velta kúlunum upp úr
Aðferð:
- Leggið döðlur og aprikósur í bleyti í 30 mínútur.
- Hellið vatninu af (ekki notað) og setjið döðlurnar og aprikósurnar í matvinnsluvél.
- Látið vélina vinna í upp undir mínútu þannig að allt blandist vel saman.
- Setjið agavesírópið, kakóið, kókosmjölið og saxaða súkkulaðið út í. Blandið í nokkrar sekúndur.
- Bætið kókosfeitinni út í hér ef hún er notuð og blandið í nokkrar sekúndur.
- Hnoðið blönduna aðeins saman með höndunum.
- Látið standa í ísskáp í 30 mínútur.
- Mótið kúlur sem eru 12 grömm að þyngd hver (mega vera stærri eða minni) en mér finnst þetta fín stærð.
- Einnig má sleppa því að setja súkkulaðið inn í kúlurnar og bræða frekar súkkulaði til að dýfa konfektinu ofan í. Þá er best að bræða súkkulaðið yfir vatnsbaði. Best er að hita vatn í potti (bara botnfylli) á vægum hita. Setjið skál ofan í sem situr á brúnum pottsins og brjótið súkkulaðið ofan í. Fylgist með því og hrærið öðru hvoru. Gætið þess að það ofhitni ekki og að ekki fari vatn ofan í súkkulaðiskálina.
- Nota á carob í stað súkkulaðis.
- Nota má fíkjur í staðinn fyrir aprikósur.
Banana- og döðlusmákökur
5. mars, 2003

Þessa uppskrift fann ég eftir eitthvert rápið á vefnum. Þessar smákökur eru afskaplega hollar og ekki fyrir þá sem eru sykurtennur!!! Kökurnar eru frekar mjúkar.
Banana- og döðlusmákökur
Gerir um 30 smákökur
- 3 bananar þroskaðir, maukaðir
- 1 bolli mjög smátt saxaðar döðlur
- 2 bollar haframjöl
- 4 msk kókosfeiti
- 1/2 bolli saxaðar valhnetur (má sleppa)
- 30 gr rúsínur
- 2 msk rapadura sykur frá Rapunzel (fæst í heilsubúðum)
- 1/2 tsk heilsusalt (Herbamare)
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180°C.
- Blandið saman bönunum, döðlum og kókosfeiti.
- Bætið haframjöli, hnetum, salti, rúsínum og rapadura út í og blandið lítillega.
- Látið standa í 15 mínútur.
- Setjið með teskeið á bökunarpappír, og ýtið ofan á.
- Bakið í um 25 mínútur eða þangað til þær eru tilbúnar.
- Þær urðu svolítið mjúkar hjá mér (notaði ekki nema 1 msk af kókosfeiti þannig að þið skuluð prófa meiri kókosfeiti ef þið viljið fá kökurnar stökkari.
Banana-, hafra- og súkkulaðikökur
30. nóvember, 2008

Mér var bent á þessa uppskrift af Guðrúnu Björgu, notanda CafeSigrun sem búsett er í Frakklandi. Hún eins og ég er aðdáandi vefsíðunnar
Chocolate and Zucchini og Guðrún benti mér á þessa uppskrift þaðan. Ilmurinn sem kemur þegar maður bakar þesssar!!! Maður minn. Það er enginn hvítur sykur í uppskriftinni (og ekki einu sinni agavesíróp). Ég breytti aðeins örlítið uppskriftinni, notaði cashewhnetumauk í stað möndlumauks, notaði 50 gr af döðlum og minnkaði súkkulaðið um 20 gr. Einnig bætti ég við smá kókosolíu. Þessar kökur eru próteinríkar, kalkríkar, innihalda holla fitu, flókin kolvetni og þær má borða jafnt í morgunmat sem með kaffinu! Þær eru lang bestar þegar þær eru nýkomnar út úr ofninum en mýkjast aðeins upp við geymslu.
Banana-, hafra- og súkkulaðikökur
Gerir um 35 kökur
- 2 bollar hafrar (ég miða við 250 ml bolla)
- 2/3 bolli möndlur, malaðar fínt
- 1/3 bolli kókosmjöl
- 1/2 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
- 100 gr dökkt, lífrænt framleitt súkkulaði með hrásykri, saxað gróft
- 50 gr döðlur, saxaðar gróft
- 4 bananar, vel þroskaðir (um 400 gr án hýðis)
- 60 gr cashewhnetur eða möndlur
- 1,5 msk kókosolía
- 1/2 tsk vanilludropar eða vanilluduft úr heilsubúð
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180°C.
- Malið 2/3 bolla af möndlum eins fínt og þið getið áður en þær verða olíukenndar eða kekkjóttar. Ættu að líta út eins og gróft mjöl.
- Setjið í skál.
- Bætið kókosmjöli, söxuðu döðlunum, höfrum og salti út í skálina.
- Setjið cashewhneturnar í matvinnsluvélina og maukið alveg í spað (þangað til cashewhneturnar eru orðnar kekkjóttar og olíukenndar). Gætið tekið alveg rúmlega mínútu.
- Setjið bananana, vanilludropana og 1 msk af kókosolíu í matvinnsluvélina (með cashewhnetumaukinu) og látið vélina ganga í 15-20 sekúndur eða þangað til allt hefur blandast vel saman.
- Bætið 1/2 matskeið af kókosolíu út í og látið vélina ganga á meðan.
- Hellið bananablöndunni út í skálina með haframjölsblöndunni.
- Blandið öllu vel saman og hrærið deigið létt.
- Deigið ætti að verða frekar blautt þannig að það dropi í stórum kekkjum af skeið en ekki þannig að það myndi renna strax af. Deigið ætti að vera of blautt til að hægt væri að hnoða það.
- Blandið súkkulaðinu saman við og hrærið varlega.
- Setjið bökunarpappír á bökunarplötu.
- Setjið 1 kúfulla matskeið af deigi á plötuna.
- Reynið að móta flatar, kringlóttar kökur sem eru um 5cm í þvermál. Gott er að nota bakið á teskeið eða fingurna til þess að móta kökurnar.
- Bakið í 20-25 mínútur.
- Kökurnar ættu að verða dökkar á brúnunum þegar þær eru tilbúnar.
- Látið kökurnar kólna og geymið þær í lokuðu plastíláti.
Banana-og carobbitakökur
25. nóvember, 2007

Þessar eru einfaldar og nokkuð hollar þar sem sesammauk (stundum kallað sesamsmjör) er helmingi fituminna en t.d. venjulegt smjör og hefur þann kost að vera bæði járnríkt og kalkríkt sem og koparríkt. Undrafræið sesam inniheldur einnig mikið af magnesíum. Koparinn gegnir miklu hlutverki hjá þeim sem hafa liðagigt en það hefur bólgueyðandi áhrif. Magnesíum hefur góð áhrif á þá sem hafa asthma, lækkar blóðþrýsting og margt fleira. Ég nota dökkt tahini (þá eru sesamfræin með hýðið utan á sér) en það gefur okkur 88 milligrömm af kalki á hverja teskeið á móti 37 milligrömmum ef sesamfræin eru án hýðisins. Svo ofan á allt þetta innhalda sesamfræ zinc en það er mikilvægt fyrir beinin okkar og hefur áhrif á beinþéttni. Svo eru smákökurnar bara ógurlega góðar....
Banana-og carobbitakökur
Gerir um 30 stykki
- 160 ml hlynsíróp, hreint
- 160 ml tahini (sesammauk), dökkt
- 320 ml haframjöl (má mala þannig að áferðin á kökunum verði fínni)
- 100 gr carobplata, söxuð þannig að hver moli sé í 4 pörtum
- 1 vel þroskaður, stór banani
Aðferð:
- Blandið saman banana, hlynsírópi og tahini í matvinnsluvél.
- Blandið haframjölinu út í.
- Blandið saxaða carobinu saman við.
- Raðið á bökunarplötu með bökunarpappír undir. Um 1 kúfuð matskeið fyrir hverja köku. Dreifið ágætlega úr þannig að kakan verði flöt.
- Bakið við 180°C í um 15-20 mínútur.
- Takið úr ofninum (ekki láta freistast....mjög heitt..skrifa af mikilli reynslu hér) og látið kólna.
- Hægt er að nota gott, sykurlaust súkkulaði í staðinn fyrir carob.
- Nota má döðlur í stað carobs eða súkkulaðis.
Carob-döðlubitakökur
25. nóvember, 2007

Það tók mig smá tíma að smíða þessa glúteinlausu uppskrift, annað hvort var deigið allt of lint, allt of þurrt eða bara vont. Ég held að ég hafi loksins náð góðri niðurstöðu...hún var að a.m.k. það góð að enginn sem borðaði kökurnar fattaði að þær voru án glúteins og þær gjörsamlega hurfu af bökunarplötunni. Athugið að myndin sýnir mjög dökkar kökur og þær eru EKKI brenndar, ég notaði mjög dökkt carobduft!
Carob-döðlubitakökur
Gerir 20 stykki
- 25 gr carobduft (ljóst eða dökkt)
- 25 gr kartöflumjöl
- 50 gr hrísmjöl (enska: rice flour)
- 25 gr kjúklingabaunamjöl (enska: chick pea flour/gram flour)
- 25 gr malaðar möndlur
- 60 gr saxaðar döðlur
- 60 gr demerara sykur (eða ávaxtasykur)
- 60 gr kókosfeiti
- 1 stórt egg
Aðferð:
- Sigtið saman allt þurra hráefnið.
- Hrærið eggið aðeins og bætið kókosfeitinni saman við.
- Blandið öllu saman og hnoðið í stóra kúlu.
- Setjið matskeið af deigi á pökunarplötu (með bökunarpappír undir).
- Ýtið létt ofan á hverja köku með gaffli (dýfið í vatn áður).
- Bakið í 12-15 mínútur við 180°C.
- Gott er að setja hnetur og carobsúkkulaði út í.
Carobbitakökur
5. mars, 2003

Ef þið eruð bara fyrir dísætar smákökur þá eru þessar ekki fyrir ykkur. Hins vegar ef þið viljið hollar smákökur, og ekki hroðalega sætar þá er þessi uppskrift upplögð!!! Þessar eru æðislegar með óáfenga og holla
jólaglögginu.
Carobbitakökur
Gerir um 36 kökur
- 14 döðlur, saxaðar
- 2/3 bolli hreinn ávaxtasafi t.d. appelsínusafi eða eplasafi (ég miða við 250 ml bolla)
- 1,5 bolli spelti
- 60 gr rapadura hrásykur
- 1 tsk vínsteinslyftiduft
- 1/2 bolli brytjaðir carob bitar (án viðbætts sykurs), má líka nota dökkt súkkulaði (með hrásykri)
- 1/4 bolli brytjaðar hnetur (valhnetur eða hakkaðar möndlur, má líka nota aðrar hnetur eins og brazilíuhnetur eða heslihnetur)
- 4 msk kókosfeiti
- 1 egg
- 1 tsk vanilludropar eða vanilluduft
Aðferð:
- Sjóðið döðlur í safanum þangað til blandan er orðin mjúk og þykk. Látið kólna.
- Sigtið saman spelti og vínsteinslyftiduft.
- Bætið carobinu og hnetunum út í hveitið.
- Hrærið vel saman egginu, rapadura hrásykrinum, kókosfeitinni og vanillunni (ekki þeyta samt).
- Blandið döðlumaukinu saman við eggið og vanilluna og hrærið vel.
- Blandið öllu við þurru hráefnin.
- Rúllið í litlar kúlur eða notið skeið.
- Setjið ofan á bökunarpappír og ýtið létt ofan á með gaffli.
- Bakið við 180°C í 15-20 mínútur þangað til kökurnar eru orðnar gullbrúnar, passið að baka ekki of lengi.
- Svona "hollar" smákökur verða aldrei eins harðar og stökkar og þær óhollu því ég nota ekki smjör, prófið að setja aðeins meiri kókosfeiti ef þið viljið fá þær stökkari.
- Kökurnar eiga að vera mjúkar þegar þær koma út úr ofninum en þær harðna aðeins við að kólna.
- Kökurnar verða mjúkar eftir nokkra daga og þá er frábært að henda þeim í ristavél í nokkrar mínútur, þær verða eins og nýbakaðar, heitar og ilmandi!
Carobhrískökur
21. janúar, 2006

Þetta er einstaklega fljótlegt og upplagt að gera þegar mann langar í eitthvað sætt en ekki neitt allt of óhollt. Best er að kaupa dökkt carob í heilsubúð og hrískökur (enska: rice cakes) fást nánast í öllum búðum. Tekur 10 mínútur að búa til!
Carobhrískökur
6 - 8 stykki
- 100 gr Carobella (dökkt eða ljóst). Er í plötum og plastumbúðum svona svipað og súkkulaði. Einnig má nota dökkt, gott lífrænt framleitt súkkulaði
- 6-8 hrískökur
Aðferð:
- Bræðið carobið í potti á MJÖG vægum hita (minnsta, minnsta mögulega hita), má alls ekki brenna við í pottinum (þá verður það ónýtt). Um leið og hellan volgnar getið þið slökkt undir henni. fylgist vel með carobinu.
- Dýfið hrískökunum lárétt ofan í, setjið meira á með skeið ef þið viljið hafa carobið þykkara.
- Látið kólna.
- Hægt er að nota sykurlaust súkkulaði líka. Kaupið þá gott, dökkt, lífrænt framleitt, hreint súkkulaði. Green & Blacks er gott súkkulaði og í það er notaður hrásykur sem er skárri en hvítur, venjulegur sykur. Rapunzel er einnig gott merki.
Döðlu- og appelsínusmákökur
24. nóvember, 2006

Þessi uppskrift kemur upprunalega úr bók sem ég á og heitir Vegan Cooking (matreiðsla fyrir jurtaætur). Það er margt sniðugt í henni eins og þessi smákökuuppskrift. Það átti reyndar að vera 150 grömm af púðursykri og 150 grömm af jurtafeiti (jurtasmjöri). Mér fannst það alger óþarfi og breytti því uppskriftinni aðeins. Það eru einungis 2 matskeiðar af kókosfeiti og ég notaði 100 grömm af ávaxtasykri og 4 matskeiðar af hlynsírópi. Einnig mætti nota hrásykur. Ég skipti líka hveiti út fyrir spelti og bætti við undanrennunni til að fá meira vökvamagn. Athugið að best er að frysta mikið magn í einu og hita svo upp til að fá stökkar kökur, þær linast pínulítið upp eftir 1 dag eða svo. Það er æðislegt að baka þessar í kringum jólin því eldhúsið fyllist af appelsínu- og kanillykt, mmmmmmm. Athugið að uppskriftin henta jurtaætum (en passið þá að appelsínan sé ekki vaxborin með bývaxi).
Döðlu- og appelsínusmákökur
Gerir um 25 kökur
- 120 gr rapadura sykur t.d. frá Rapunzel (fæst í heilsubúðum). Nota má hrásykur í staðinn
- 4 msk hreint hlynsíróp (enska: maple syrup)
- 4 msk kókosfeiti
- 1 tsk kanill (má sleppa en er rosa fínt fyrir jólasmákökur)
- 1 appelsína, lífrænt ræktuð, börkurinn rifinn fínt
- 150 gr spelti
- 75 gr malað haframjöl (malið í 5 sekúndur í matvinnsluvél)
- 2 tsk vínsteinslyftiduft (enska: baking powder)
- 85 gr þurrkaðar döðlur, saxaðar
- 100 ml undanrenna
Aðferð:
- Blandið saman rapadura, hlynsírópinu og kókosfeitinni saman við.
- Bætið appelsínuberkinum saman við.
- Bætið speltinu, lyftiduftinu, bökunarsódanum, kanil og haframjöli saman og hrærið varlega.
- Bætið döðlunum saman við.
- Hellið undanrennunni út í, mjög varlega og aðeins því magni sem þið þurfið, deigið má ekki vera of blautt. Prófið að sejta smá á skeið, það má ekki vera það blautt að það leki af ef þið snúið skeiðinni á hvolf.
- Setjið bökunarpappír á tvær bökunarplötur.
- Setjið um eina matskeið af deigi fyrir hverja köku, hafið gott pláss á milli þeirra.
- Hitið við 180°C í um 20-25 mínútur. Eftir 10 mínútur skuluð þið færa efri plötuna niður fyrir og öfugt, til að fá jafnan bakstur.
- Leyfið kökunum að kólna í opnum ofninum.
- Hægt er að nota rúsínur og/eða apríkósur í stað þess að nota döðlur
- Til að vera alveg spari má setja saxað carob eða sykurlaust súkkulaði (um 40 gr) í uppskriftina.
Grískar möndlukökur
8. janúar, 2006

Þetta eru svokallaðar grískar möndlukökur. Mér finnst þær nú svipaðar og kransakökur svona í minningunni (tugir ára síðan ég smakkaði kransaköku). Þó að þessar kökur séu frekar hitaeiningaríkar eru þær próteinríkar (möndlur og eggjahvítur) og möndlurnar innihalda helling af kalki fyrir beinin okkar. Upplagðar kökur með kaffinu. Eins eru þetta fínar kökur fyrir þá sem hafa hveiti eða glúteinóþol þar sem þær innihalda ekkert hveiti, spelti eða annað slíkt.
Grískar möndlukökur
Gerir 25 kökur
- 375 gr malaðar möndlur (í matvinnsluvél eða kaupið í heilsubúð)
- 150 gr rapadura hrásykur
- 1 tsk möndludropar úr heilsubúð
- 3 eggjahvítur
- 80 gr möndluflögur
Aðferð:
- Þeytið eggjahvíturnar og bætið sykrinum út í smátt og smátt þangað til eggin eru orðin stífþeytt og glansandi og toppar myndast.
- Bætið möndludropunum út í og hrærið í 2 sekúndur.
- Veltið (ekki hræra) möluðu möndlunum út í og reynið eins og þið getið að "merja" ekki loftið úr eggjunum.
- Mótið um 5-7 cm. lengjur og setjið á bökunarplötu með bökunarpappír.
- Dreifið möndluflögunum yfir.
- Bakið við 180°C í um 15-20 mínútur eða þangað til bitarnir eru orðnir gullbrúnir.
- Ekki opna ofninn fyrr en eftir um 15 mínútur.
Gullnar piparkökur
25. nóvember, 2007

Maður minn...lyktin sem kemur þegar maður bakar þessar. Namm. Vildi að ég gæti pakkað henni í krukku og átt að eilífu. Sérlega hollar, jólalegar og góðar piparkökur og mjög fljótlegar.
Gullnar piparkökur
Gerir um 30 piparkökur
- 4 msk kókosfeiti
- 115 gr agavesíróp
- 4 msk hrár muscovado eða rapadura sykur (fæst í heilsubúðum og flestum stærri verslunum
- 185 gr spelti
- 1 tsk vínsteinslyftiduft
- 3 tsk kanill
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200°C.
- Setjið agavesíróp, muscovado sykurinn og kókosfeiti í pott. Hitið varlega og hrærið vel þangað til allt blandast saman.
- Kælið í smástund.
- Setjið í stóra skál og blandið speltinu, vínsteinslyftiduftinu og kanilnum saman við.
- Hrærið saman.
- Klæðið plötuna með bökunarpappír.
- Rúllið um 1 tsk af deigi í kúlu og leggið á plötuna.
- Gerið um 30 kúlur. Gætið þess að um 2cm bil sé í næstu köku.
- Fletjið aðeins út með gaffli (gott að dýfa í spelti áður en þið ýtið ofan á kökuna).
- Bakið í um 10 mínútur eða þangað til kökurnar eru orðnar gullnar eða þangað til góða lyktin er alveg að fara með ykkur!
Gulrótarkökur
1. ágúst, 2004

Þetta eru fínar gulrótarkökur svona með kaffinu eða bara sem jólasmákökur. Hafið í huga að svona kökur geymast aldrei mjög lengi þar sem t.d. gulræturnar eru mjúkar. Þessar eru því bestar glænýjar úr ofninum og svo má frysta restina af deiginu og gera seinna.
Gulrótarkökur
Gerir 25 stykki
- 3 3/4 dl malað haframjöl (setjið smástund í matvinnsluvél)
- 2 1/2 dl rifnar gulrætur
- 1 1/4 dl rúsínur
- 4 msk spelti
- 4 msk kókosfeiti eða ólífuolía
- 5 msk hreint hlynsíróp (enska: maple syrup)
- 5 msk rapadura sykur frá Rapunzel (fæst í heilsubúðum) eða hrásykur
- 1/2 tsk vínsteinslyftiduft
- 1/2 tsk heilsusalt (Herbamare)
- 1/2 tsk múskat (enska: nutmeg)
- 1/2 tsk kanill
- 1 stk egg
Aðferð:
- Hrærið vel saman kókosfeiti eða ólífuolíu, ávaxtasykri, hlynsírópi og eggi.
- Því næst er öllum þurrefnunum blandað saman við og loks gulrótum, haframjöli og rúsínum.
- Setjið deigið með matskeið á bökunarplötu (með bökunarpappír) og bakið við 160°C í 20 -25 mínútur.
- Hægt er að bæta 1 dl af söxuðum hnetum saman við ef maður vill t.d. cashew, hesli eða brasilíuhnetum.
Hafrakex
25. nóvember, 2007

Það er ekki endilega auðvelt að finna uppskriftir að hollu hafrakexi og ég var búin að leita lengi. Flest hafrakex sem maður finnur í búðum er óhollt nema maður finni eitthvað gott í heilsubúðunum. Ég fann uppskrift loksins í Australian Women’s Weekly seríunni sem ég er svo hrifin af. Ég reyndar breytti uppskriftinni aðeins og gerði hana hollari. Ég notaði spelti, kókosfeiti og agave í stað smjörs, hveitis og síróps. Einnig notaði ég soyamjólk í stað mjólkur. Hafrakexið er frekar sætt og það má minnka agavesírópið aðeins til að geta notað kexið t.d. með osti (sumum finnst kannski allt í lagi að nota sætt kex í svoleiðis en mér finnst það ekki gott). Ég er svo ánægð með hafrakexið mitt, ég horfði stolt á það þegar ég var búin að baka kexið og fannst ég vera heimsins klárasti bakari. Þær runnu líka ljúflega niður í gesti. Hafrakexið er próteinríkt og sniðugt á milli mála þegar mann langar í eitthvað sætt en jafnframt hollt.
Hafrakex
Gerir um 30-35 kexkökur
- 270 gr haframjöl
- 160 gr spelti
- 65 gr hrár muscovado sykur (fæst í heilsubúðum og flestum stærri verslunum)
- 5 msk kókosfeiti
- 60 ml agavesíróp
- 80 ml soyamjólk eða undanrenna
Aðferð:
- Malið haframjölið mjög fínt í matvinnsluvél
- Setjið speltið og haframjölið í stóra skál ásamt muscovado sykrinum.
- Setjið kókosfeitina saman við. Hrærið vel.
- Hitið agavesíróp og soyamjólk við vægan hita í litlum potti.
- Hellið mjólkurblöndunni saman við deigið.
- Hnoðið lauslega.
- Notið nokkra dropa af mjólk í viðbót ef þarf.
- Fletjið deigið með kökukefli (best er að nota bökunarpappír undir og ofan á. Fletjið þangað til deigið er 3mm að þykkt.
- Notið glas með skörpum kanti til að búa til kökur (meðalstórt vatnsglas er best).
- Setjið á bökunarpappír og hafið 2cm bil í næstu köku.
- Stingið hverja köku nokkrum sinnum með gaffli.
- Bakið við 180°C í um 12-15 mínútur eða þangað til kexið er orðið gullbrúnt.
- Kælið.
- Hafrakexið geymist í um 5 daga í lokuð íláti. Ef þið ætlið að geyma lengur er best að frysta deigið og útbúa kökur þegar deigið er þiðið.
- Það væri hægt að gera kexið minna sætt og setja t.d. parmesanost og svartan pipar í uppskriftina.
Hálfmánar
30. júní, 2003
Ég held að þessi uppskrift sé upprunalega af Grænum Kosti því ég sá svipaða uppskrift í bókinni hennar Sollu. Uppskriftin er allavega góð eins og allt frá henni. Prófið ykkur áfram með fyllingu en gætið þess að hún sé ekki of blaut því þá lekur fyllingin út um allt í bakstrinum.
Hálfmánar
Gerir um 25 stykki
- 440 gr spelti
- 90 gr rapadura sykur frá Rapunzel eða hrásykur
- 1 tsk vanilludropar
- 2 tsk vínsteinslyftiduft
- 1 tsk heilsusalt (Herbamare)
- 4 msk kókosfeiti
- 1 1/2 d vökvi (vatn, mjólk eða soyamjólk) (athugið vel að deigið verði ekki of blautt, þ.e. þannig að sé hægt að hnoða það og fletja vel út)
- 1/2 tsk kanilduft (má sleppa)
Aðferð:
- Þurrefnum hrært vel saman.
- Kókosfeitinni eða ólífuolíunni hrært saman við.
- Blandið vel öllu saman þannig að hægt sé að hnoða deigið. Bætið vökva við eftir þörfum.
- Fletjið smá klump af deiginu í einu.
- Gerið "kökur" með glasi (leggja á hvolf ofan á deigið og þrýsta niður svo myndist hringur).
- Setjið fyllingu á miðja kökuna og lokið með gafli.
- Bakað við 180-200 °C í 12 mínútur.
Fylling:
- 100 gr döðlur
- 1 msk vanilluduft eða vanilludropar
- 1 þroskaður banani
Aðferð:
- Setjið döðlurnar í vatn og látið liggja í 30 mínútur.
- Hellið vatninu af döðlunum. Setjið bananana saman við og hrærið vel í blandara.
- Bætið vanilludropum eða vanilludufti saman við.
- Gætið þess að fyllingin verði ekki of blaut.
- Það má einnig nota sykurlausar sultur í fyllingu, t.d. rabbarbarasultu.
- Þessi uppskrift hentar líka prýðilega í skonsur. Mótið deigið í þríhyrninga, og hafið um 1 cm. þykkar. Sleppið sultunni. Bakið við örlítið lengri tíma og hærri hita og berið fram heitar með sykurlausri bláberjasultu eða annari sultu sem ykkur finnst góð (það eru góðar sulturnar frá St. Dalfour, Himneskri hollustu og Whole Earth.
Heslihnetusmákökur með sultutoppi
28. nóvember, 2009

Þessar eru nokkuð fljótlegar og auðveldar í undirbúningi. Ekki sakar að fá smá hjálp frá litlum fingrum til að útbúa holu í hverja smáköku þar sem sultan fer ofan í. Ég nota hindberjasultu en nota má hvaða sultu sem er eins og t.d., bláberja-, aprikósu-, jarðarberja-, eða blandaða sultu. Hún á að sjálfsögðu að vera án viðbætts sykurs og án allra aukaefna. Ég læt kökurnar sjálfar vera ókryddaðar en það er allt í lagi að setja t.d. kanil út í deigið ef maður er með t.d. bláberjasultu. Vanilla er líka afskaplega ljúffeng viðbót í deigið. Ég verð að viðurkenna að ég veit ekki alveg hvað kökurnar geymast lengi því þær klárast alltaf á mettíma. Athugið þó að sultan mun mýkja upp smákökurnar eftir svolítinn tíma svo þær eru bestar tiltölulega nýjar. Athugið einnig að ef þið komist í heslihnetumjöl (hazelnut flour) þurfið þið ekki að rista og mala hneturnar en ég hef ekki séð það á Íslandi svo ég læt leiðbeiningar fylgja með miðað við að þið finnið ekki slíkt mjöl.
Heslihnetusmákökur með sultutoppi
Gerir 24 smákökur
- 120 gr spelti
- 50 gr Rapadura (eða annar hrásykur)
- 50 gr heslihnetur (eða heslihnetumjöl)
- 5 msk kókosolía
- 3-4 msk sulta (t.d. hindberjasulta)
- 2 msk agavesíróp
- Nokkrar matskeiðar vatn (ef þarf)
Aðferð:
- Byrjið á því að rista hneturnar á mjög heitri pönnu (án olíu) í um 10 mínútur þangað til hýðið fer að losna af.
- Nuddið hýðinu af og setjið hneturnar í matvinnsluvél eða blandara.
- Blandið í 20 sekúndur eða þangað til mjög fínt malaðar (eins og gróft mjöl).
- Í stóra skál skuluð þið blanda saman spelti, heslihnetumjöl og hrásykur.
- Í annarri skál skuluð þið blanda saman kókosolíu og agavesíróp.
- Hellið kókosolíu/agavesírópi út í stóru skálina og hrærið mjög vel.
- Ef deigið er þurrt/molnar of mikið bætið þá nokkrum matskeið af vatni út í deigið þangað til hægt er að hnoða það vel saman.
- Mótið deigið í kúlur (um 1 tsk af deigi fyrir hverja kúlu).
- Setjið bökunarpappír á bökunarplötu.
- Setjið deigið á bökunarpappírinn og þrýstið með flötum lófa ofan á hverja svo úr verði flöt smákaka.
- Þrýstið með þumalfingri (eða vísifingri) ofan í hverja köku svo hola myndist.
- Bakið við 180°C í 12-15 mínútur.
- Takið kökurnar úr ofninum og kælið í 5 mínútur.
- Ef holurnar hverfa (gerist stundum) skuluð þið ýta aftur ofan í þær núna (á meðan þær eru mjúkar). Ýtið frekar fast svo að holan haldi sér.
- Þegar kökurnar eru orðnar kaldar skuluð þið setja smá slettu (1/2 tsk) af sultu ofan á hverja köku, ofan í holuna.
- Nota má möndlur í staðinn fyrir heslihnetur og er þá gott að setja 1/2 tsk af möndludropum í deigið.
- Nota má alls kyns sultur (nema mér finnst rabarbarasulta ekki passa sérlega vel við).
- Rapadura hrásykur fæst í heilsubúðum en nota má annan hrásykur.
Hlynsíróps- og sesamsmjörssmákökur
25. nóvember, 2006

Þó þið prófið bara eina smákökuupskrift um jólin þá myndi ég prófa þessa. Smákökurnar eru syndsamlega góðar, algerlega ávanabindandi. Þær eru líka hollar þó það sé nokkuð mikil fita í þeim en sesamssmjörið er fullt af járni, próteinum og kalki ásamt fleiru sniðugu. Þó það sé mikil fita í sesamssmjörinu þá er það næstum helmingi minni fita en t.d. í smjöri! Það besta er að það tekur bara um 10 mínútur að búa uppskriftina til! Þessar kökur haldast harðar ef maður geymir þær í lokuðu íláti.
Hlynsíróps- og sesamsmjörssmákökur
Gerir um 30 smákökur
- 1/2 bolli hreint hlynsíróp (enska: maple syrup). Ég miða við 250 ml bolla.
- 1/2 bolli Tahini (sesamsmjör)
- 1 1/2 bolli haframjöl
- 1/3 bolli sólblómafræ
- 1/3 bolli rúsínur
Aðferð:
- Hrærið saman hlynsírópi og tahini í skál og hrærið þangað til það er orðið vel blandað saman.
- Malið helminginn af haframjölinu í matvinnsluvél eða blandara.
- Bætið öllu saman við hlynsírópið og tahiniið og hrærið vel.
- Setjið 1 kúfaða teskeið af deiginu á bökunarplötu með bökunarpappír.
- Bakið við 180°C í um 15-18 mínútur eða þangað til kökurnar eru orðnar gullnar.
- Kælið.
- Hægt er að setja saxaðar pecanhnetur í staðinn fyrir sólblómafræin.
- Gott er að bæta við 1 tsk af kanil í deigið til að fá meira jólabragð.
- Ef ykkur finnst kökurnar of sætar má setja 1/2 bolla af möndludufti eða möluðum möndlum út í deigið.
Hlynsíróps- og vanillusmákökur
28. nóvember, 2009

Þessar smákökur eru mjög jólalegar og góðar og það er nokkuð afgerandi vanillubragð af þeim sem mér finnst einstaklega gott. Ég nota líka heila vanillustöng en þið getið minnkað magnið ef ykkur finnst það betra eða notað einungis vanilludropa. Ég átti nefnilega enn þá vanillustangir frá því ég var á Zanzibar forðum dögum...betri vanillu fær maður ekki. Þið getið þó auðvitað notað hvaða vanillustangir sem er. Ég nota hlynsíróp (enska: maple syrup) í kökurnar en það passar sérlega vel við vanillubragðið. Þessar á ég eftir að baka oft fyrir jólin í framtíðinni. Athugið að nota einungis hreint, lífrænt hlynsíróp (ekki með gervibragði eða litarefnum eða neinu slíku).
Hlynsíróps- og vanillusmákökur
Gerir um 25-30 smákökur
- 130 gr spelti
- 60 ml hlynsíróp
- 1 eggjahvíta
- 1 vanillustöng
- 4 msk kókosolía
- 2 msk rapadura hrásykur (eða annar hrásykur)
- 1/2 tsk vanilludropar úr heilsubúð (má sleppa)
- 1/4 tsk bökunarsódi
- 1/8 tsk kanill
- 1/4 tsk engifer
- 1/8 tsk múskat (enska: nutmeg)
- Smá klípa salt (Himalaya eða sjávarsalt)
Aðferð:
- Sigtið saman í stóra skál; spelti, bökunarsóda, kanil, engifer, múskat og salt. Hrærið vel.
- Í aðra skál skuluð þið blanda saman, eggjahvítu, kókosolíu, hlynsírópi, vanilludropum og hrásykrinum. Hrærið vel saman.
- Skerið vanillustöngina eftir endilöngu og skafið fræin (með oddi á litlum hníf) ofan í hlynsírópsblönduna.
- Hellið hlynsírópsblöndunni ofan í stóru skálina.
- Hnoðið deigið vel og geymið í ísskápnum í klukkutíma. Ef deigið er mjög klístrað má dreifa spelti utan um deigið svo það festist ekki við.
- Skiptið deiginu í nokkra búta og fletjið hvern bút út með kökukefli eða stórri glerflösku.
- Skerið út kökur sem eru um 5.5 cm. í þvermál.
- Setjið bökunarpappír á bökunarplötu.
- Dreifið kökunum á bökunarpappírinn.
- Bakið við 180°C í um 10-12 mínútur.
- Gott er að saxa eina lúku af valhnetum afar smátt og setja í deigið.
Hnetusmjörskökur
19. desember, 2007

Nú hugsið þið örugglega..... las ég rétt? Hnetusmjörskökur? Jú þið lásuð rétt. Ég hef notað hnetusmjör í mörg ár og margir hvá við. Hef ekki notað það á hverjum degi auðvitað og ekki í miklu magni því þá hefði ég endað eins og Elvis Prestley..eða verri en ég nota það reglulega í drykki (smoothies), á sólblómabrauð, í bakstur o.fl. Þið getið breytt nafninu í Hnetukökur ef samviskan er mjög slæm! Ef við skoðum dæmið aðeins og spáum í fitumagnið...þá inniheldur smjör helmingi meiri fitu en hnetusmjör svo maður er að spara hellings fitu og hitaeiningar með því að nota hnetusmjör í stað venjulegs smjörs (fyrst maður er að borða smákökur á annað borð). Ég nota að sjálfsögðu lífrænt framleitt hnetusmjör, án aukaefna, bragðefna, sykurs eða viðbættrar fitu. Málið er að jarðhnetur eru sérlega hollar í litlu magni. Þær innihalda einómettaðar fitusýrir sem stuðla að heilbrigðu hjarta. Jarðhnetur innihalda einnig mangan sem er snefilefni, B3, fólinsýru og eru að auki auðvitað próteinríkar. Rúsínan í pylsuendanum er að jarðhnetur innihalda líka mikið af andoxunarefnum (meira en epli, rauðrófur og gulrætur)! Þessar smákökur eru líklega þær kökur á vefnum mínum sem innihalda stystu innihaldslýsinguna eða aðeins þrjú hráefni! Ég notaði milligróft hnetusmjör en það má nota gróft á móti fínu eða einungis fínt (fínmalaðar hnetur). Jarðhnetur eru skyldar baunum frekar en hnetum og þar er nafnið komið Pea-nuts. Þær byrja að vaxa sem blóm en verða svo þungar að þær enda ofan í jörðinni og klára vöxtinn þar. Já og var ég búin að segja ykkur að þessar kökur eru algjört sælgæti og afar bragðmildar svo það má t.d. krydda með kanil ef sá gállinn er á ykkur!
Hnetusmjörskökur
Gerir um 30 smákökur
- 1 bolli lífrænt framleitt hnetusmjör án sykurs eða viðbættrar fitu. Þið ráðið grófleikanum en ágætt er að fara milliveginn
- 2/3 bolli rapadura hrásykur (fæst í heilsubúðum og heilsudeildum stærri verslana).
- 1 egg
Aðferð:
- Hrærið allt vel saman með gaffli eða handþeytara.
- Hnoðið smávegis (kreista saman deigið svo ekki verði mikið af lofti í því).
- Mótið litlar kúlur og setjið þær á bökunarplötu með bökunarpappír undir.
- Ýtið létt ofan á hverja kúlu með gaffli.
- Bakið í 10-12 mínútur við 200°C eða þangað til kökurnar eru farnar að taka lit.
- Kökurnar eru MJÖG linar þegar þær koma beint úr ofninum en þéttast og harðna þegar þær kólna og verða stökkar.
Ítalskar súkkulaði-möndlusmákökur
5. mars, 2003

Ég fékk þessa uppskrift úr ítölsku matreiðslubókinni hennar Elvu vinkonu sem ég var einu sinni með í láni (sko bókina...ekki Elvu). Þetta eru æðislegar smákökur, frábærar með espressoinu!!! Það má sleppa kakóduftinu eða nota carob í staðinn.
Ítalskar súkkulaði-möndlusmákökur
Gerir um 24 smákökur
- 150 gr möndluflögur (og smá til viðbótar til skreytingar). Einnig má nota möndluduft (malaðar möndlur)
- 70 gr rapadura sykur t.d. frá Rapunzel.
- 2 msk hreint, lífrænt framleitt kakó
- 2 stórar eggjahvítur
- 1 tsk möndludropar úr heilsubúð (má sleppa)
Aðferð:
- Þurristið möndlurnar á pönnu þangað til þær eru orðnar gullnar.
- Hitið ofninn í 160°C.
- Setjið ristuðu möndlurnar (þegar þær eru orðnar kaldar) og 40 gr af sykrinum í matvinnsluvél. Malið fínt en má samt ekki verða kekkjótt eða olíukennt.
- Setjið í skál og blandið kakói saman við og 2 msk af sykri.
- Hrærið og setjið til hliðar.
- Stífþeytið eggin.
- Bætið afganginum af sykrinum úti í og þeytið bara matskeið í einu
- Bætið möndludropunum saman við.
- Setjið möndlu/kakó blönduna varlega út í stífþeyttu eggjahvíturnar og hrærið varlega með sleikju þangað til það blandast saman.
- Setjið í rjómasprautupoka með 1 cm. gati.
- Búið til um 24 stykki með 2,5 cm. bili.
- Setjið 1-2 möndluflögur ofan á hverja köku ef þið viljið.
- Bakið í um 15-17 mínútur eða þangað til þær virðast stökkar og brúnar.
- Færið á vírgrind og kælið.
- Berið fram með góðu kaffi.
Jólakonfekt
24. nóvember, 2006

Hollt og gott jólakonfekt, fullt af próteinum, trefjum, C vítamínum og fleiru. Maður þarf ekki að hafa samviskubit yfir þessum í kringum jólin. Svo hollt að maður getur meira að segja fengið sér mola með morgunkaffinu.
Jólakonfekt
Gerir um 40 konfektmola
- Tæpur 1 bolli (2 dl) cashewhnetur. Ég miða við 250 ml bolla
- 1/4 bolli möndlur
- 1/2 bolli kókosmjöl
- 15-20 gráfíkjur (um 250 gr), snúið litla stubbinn á endanum af, saxið gróft
- 8-10 döðlur, saxið gróft
- 1/2 bolli rúsínur
- 1 bolli puffed rice (sprengd hrísgrjón) eða hrískökur
- 3-5 msk hreinn appelsínusafi
- 4 msk agavesíróp
- 3 msk kakó
- 100 gr dökkt súkkulaði, lífrænt framleitt með hrásykri
Aðferð:
- Malið möndlur, hrískökur hnetur og kókos í matvinnsluvél.
- Bætið kakói út í og malið aðeins áfram.
- Setjið í stóra skál.
- Maukið döðlur, gráfíkjur og rúsínur með smá appelsínusafa þangað til allt er orðið að mauki.
- Blandið öllu vel saman, jafnvel í hrærivél (gott að vera í þunnum plasthönskum ef þið notið hendurnar).
- Áferðin á deiginu á að vera nokkuð þétt, alls ekki blaut en allt á samt að festast vel saman.
- Gott er að láta blönduna bíða aðeins í kæli, betra er að móta konfektið þannig.
- Mótið litlar kúlur (álíka stórar og vínber).
- Gott er að slétta botninn á hverri kúlu, það stendur betur á diskinum þannig.
- Bræðið súkkulaðið í potti yfir lægsta hita (eða yfir vatnsbaði). Fylgist vel með því og gætið þess að ekkert vatn fari út í pottinn. Um leið og súkkulaðið er farið að bráðna slökkvið þá undir hitanum.
- Notið kokteilpinna eða tannstöngla til að dýfa kúlunum ofan í carobið (dýfa toppnum ofan í). Veltið upp úr kókosmjöli eða einhverju öðru ef þið viljið.
- Látið súkkulaðið storkna í ísskápnum.
- Hægt er að frysta molana en þeir geymast í margar vikur í lokuð íláti í ísskáp.
- Gott er að setja rifinn börk af einni appelsínu í hluta deigsins.
- Til tilbreytingar er gott að setja 1/2 tsk engifer og 1/2 tsk kanil í hluta deigsins
- Hægt er að velta konfektinu upp úr kókosmjöli, sesamfræjum, möluðum möndlum, carobdufti o.s.frv.
- Einnig má nota þurrkaðar aprikósur á móti döðlunum í uppskriftina.
- Nota má carob í stað súkkulaðis.
- Nota má hreint hlynsíróp í stað agevesíróps.
- Til að bræða súkkulaði í vatnsbaði er best að vera með lítinn pott, hálffylla hann af vatni og setja skál ofan í vatnið (eða þannig að liggi á brúnum pottsins). Súkkulaði má aldrei komast í snertingu við vatnið, ekki einu sinni einn dropa, þá skemmist það.
Konfekt
5. mars, 2003

Þessi uppskrift af konfekti er blanda úr nokkrum uppskriftum því eitt skiptið ætlaði ég að búa til hollt konfekt og var með 2 uppskriftir fyrir framan mig en ruglaðist aðeins. Útkoman er alveg hreint ágæt.
Konfekt
Gerir um 30 konfektbita
- 1 banani, vel þroskaður
- 1 dl haframjöl
- 1 dl kókosmjöl
- 1/4 dl carobduft (eða gott kakóduft með háu kakóinnihaldi)
- 25 gr döðlur, sem búnar eru að liggja í bleyti í u.þ.b. 1 klst
- 25 gr gráfíkjur, sem búnar eru að liggja í bleyti í u.þ.b. 1 klst
- 1 tsk vanilluduft eða vanilludropar
- 50 gr saxað, dökkt gæðasúkkulaði (með ávaxtasykri eða hrásykri) eða carob
- 1 tsk kanill
- Kókosmjöl til að velta konfektinu upp úr, eða malaðar möndlur
Aðferð:
- Setjið allt í matvinnsluvél.
- Kælið blönduna í nokkra tíma.
- Mótið litlar kúlur og veltið upp úr kókosmjöli, carobdufti eða kakódufti eða möndlum.
- Geymist best í frysti en einnig í 1-2 vikur, innpakkað í plast í ísskáp.
- Blandan getur verið blaut eða þurr allt eftir því t.d. hvort bananinn er stór eða ekki. Ef ykkur finnst blandan blaut skuluð þið setja hana inn í ísskáp og eftir klukkutíma skoðið þá hvort hún er enn þá of blaut til að móta úr henni kúlur. Ef hún er of blaut, bætið þá aðeins meira af haframjöli við ásamt aðeins meira af carobi og kókosmjöli. Setjið svo aftur inn í ísskápinn. Það er langbest að velta konfektinu upp úr einhverju t.d. kókosmjöli eða muldum möndlum.
Kryddaðar hafra-, súkkulaði,- og rúsínukökur
30. nóvember, 2008

Ilmurinn sem kemur í eldhúsið þegar maður bakar þessar er ekki bara lokkandi heldur er eins og maður hafi labbað um allt með jólasprey (æi svona úðabrúsa með jólalykt eins og hægt er að kaupa…eða var hægt)...þvílíkur og annar eins ilmur. Ég bakaði þessar einu sinni rétt áður en Jóhannes kom heim og svipurinn á honum þegar hann opnaði dyrnar var eins og á jólaljósi...þvílík hamingja (auðvelt að gleðja karlmenn). Kökurnar eru bara nokkuð hollar því í þeim er holl fita, flókin kolvetni, járn, kalk, vítamín o.fl. Súkkulaði er svo sem aldrei hollustuvara (nema það allra dekksta) en er í góðu lagi í smá skömmtum...sem smákökur eru einmitt nema maður borði mörg kíló í einu.
Kryddaðar hafra-, súkkulaði,- og rúsínukökur
Gerir um 30 smákökur
- 3/4 bolli spelti (ég miða við 250 ml bolla)
- 1 bolli haframjöl, malað fínt
- 1 tsk kanill
- 1 tsk múskat (enska: nutmeg)
- 1/2 tsk engifer
- 1/2 tsk negull (enska: cloves)
- 1 tsk vínsteinslyftiduft
- 4 msk kókosfeiti
- 1/3 bolli rapadura hrásykur
- 2-4 msk sojamjólk (má einnig nota möndlumjólk, haframjólk, hrísmjólk eða undanrennu)
- 1/2 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
- 1 egg
- 1/4 bolli sesamfræ
- 1/3 bolli saxað gott, súkkulaði (lífrænt framleitt með hrásykri). Einnig má nota carob.
- 1/2 bolli saxaðar heslihnetur (einnig má nota valhnetur, pecanhnetur, Brasilíuhnetur o.fl.)
- 1/3 bolli rúsínur (einnig má nota saxaðar döðlur)
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180°C.
- Malið haframjölið í matvinnsluvél eða blandara þangað til það er orðið eins og hveiti (að fínleika).
- Setjið í stóra skál; spelti, vínsteinslyftiduft, kanil, múskat, engifer, negul og salt.
- Hrærið vel (gott er að sigta þurru hráefnin saman).
- Í aðra stóra skál skuluð þið hræra saman eggið, kókosfeitina og rapadura sykurinn.
- Hrærið mjög vel.
- Blandið öllu varlega saman með sleif.
- Blandið hnetum, sesamfræjum, rúsínum og súkkulaði út í deigið og hrærið varlega.
- Blandið mjólk út í ef þarf en annars má sleppa henni.
- Setjið bökunarpappír á bökunarplötu.
- Rúllið saman jafnar kúlur úr deiginu ( u.þ.b. 1 kúfaða matskeið). Hafið smá bil á milli þeirra.
- Þrýstið létt ofan á hverja köku með flötum lófanum
- Bakið í um 15-20 mínútur (ef þið bakið lengur verða þær stökkar en annars verða þær mjúkar í miðjunni).
- Geymið í lokuðu plastíláti.
Möndlukúlur frá Miðausturlöndum
24. nóvember, 2006

Þetta konfekt myndi seint teljast léttur matur. Eftir kvöldmat, með kaffinu er maður eiginlega saddur eftir hálfa svona kúlu. Þetta er þó voða hollt konfekt því að sesamfræ (tahini er gert úr sesamfræjum) eru ótrúlega kalk- og próteinrík og innihalda einnig mikið af trefjum og járni ásamt magnesíum (sem á að hjálpa til við að lækka blóðþrýsting), zinci (sem er gott fyrir karlmenn) ásamt öðrum vítamínum. Möndlur eru líka mjög kalk- og próteinríkar. Upplagt konfekt eftir ræktina eða eftir léttan kvöldmat. Konfekt þarf nefnilega ekki bara að vera með kaffinu... maður getur alveg borðað hollt konfekt í morgunmat eða tekið með sér í nestisboxið!
Upprunalegt heiti konfektsins er
Halvah og á rætur sínar að rekja 3000 árum ”fyrir krist” og er því eitt elsta
sælgæti heims. Orðið halvah þýðir í bókstaflegri merkingu
sætt kjöt. Ef þið eruð jurtaætur (enska: vegan) getið þið sleppt hunanginu og notað ljóst agave síróp í staðinn.
Möndlukúlur frá Miðausturlöndum
Gerir 10 kúlur
- 1,5 bolli möndlur
- 0,5 bolli tahini (sesammauk)
- 3 msk acacia hunang (eða ljóst agave síróp). Acaciu hunang límir deigið betur saman en agavesírópið
- 1 tsk vanilludropar eða vanilluduft
- 1 msk carobduft
Aðferð:
- Setjið möndlurnar í matvinnsluvél og blandið þangað til þær eru orðnar fínmalaðar, blandið ekki þannig að verði að mauki en samt nóg til að þær haldist saman.
- Bætið tahini, hunangi eða agavesírópi og vanillu út í. Blandið vel.
- Takið helminginn af blöndunni og setjið í skál.
- Bætið carobduftinu saman við blönduna í matvinnsluvélinni og blandið vel.
- Þrýstið ljósu blöndunni mjög fast ofan á disk þannig að hún verði um 0,5 cm. á þykkt (þ.e. hæð) og gerið hana eins þétta og ferkantaða og þið getið.
- Gerið eins við carobblönduna nema á öðrum diski.
- Leggið carobblönduna ofan á þá ljósu og þrýstið vel þannig að úr verði tvílit blanda, um 1 cm. á þykkt (hæð).
- Kælið í klukkutíma eða meira.
- Skerið í litla bita og rúllið saman þannig að annar helmingurinn verði ljós en hinn dökkur. Blandan mun molna en þá er um að gera að beita smá lagni við að koma helmingunum saman...(spurning um að bjóða upp á gestaþraut í næsta boði og bjóða verðlaun fyrir flottasta molann he he). Galdurinn er að þrýsta helmingunum nógu fast saman.
- Hægt er að velta bitunum upp úr kókosmjöli, sesamfræjum, möndludufti eða jafnvel carobdufti.
- Það má auðvitað sleppa carobinu og hafa kúlurnar bara ljósar.
- Gott er að leggja kúlurnar á eldhúspappír og geyma þannig, pappírinn dregur í sig fituna.
Möndlukökur- með súkkulaðikremi
30. nóvember, 2008

Möndlur eru mjög kalk- og próteinríkar og macadamiahnetur innihalda holla einómettaða fitu, trefjar og einnig innihalda þær kalk og prótein. Sem sagt afar hollar smákökur og gaman að bjóða upp á öðruvísi og óbakaðar kökur með kaffinu. Nota má möndlur í allan botninn í stað macadamiahneta en þá verður hann aðeins þurrari. Ef þið viljið ekki súkkulaði má nota t.d. bláber í kremið í staðinn. Kremið stífnar í kælinum.
Möndlukökur- með súkkulaðikremi
Gerir 12-15 stykki
Botn:
- 50 gr möndlur
- 50 gr macadamiahnetur
- 2 msk agavesíróp
- 1 tsk kókosfeiti
Botn – Aðferð:
- Malið möndlur, macadamiahnetur og agavesíróp í matvinnsluvél þangað til allt hefur
- blandast vel saman og er orðið fínkornótt.
- Bætið kókosfeitinni út í og maukið í nokkrar sekúndur.
- Mótið kúlur úr deiginu og setjið á disk.
- Fletjið kúlurnar aðeins út.
- Setjið plastfilmu yfir bitana og geymið í ísskápnum.
Krem:
- 100 gr cashewhnetur
- 1 banani
- 1/4 bolli kakó (lífrænt framleitt)
- 4 msk agavesíróp
- 1/8 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
- 2 msk kókosfeiti
Krem – Aðferð:
- Maukið cashewhnetur í matvinnsluvél á fullum krafti í 10-15 sekúndur eða þangað til þær eru orðnar að algjöru mauki eða fínkornóttar.
- Sigtið kakó út í cashewhnetumaukið.
- Bætið salti, agavesírópi og banana út í.
- Maukið í nokkrar sekúndur þangað til allt er orðið vel blandað saman.
- Bætið kókosfeitinni út í og blandið í nokkrar sekúndur.
- Leyfið kreminu að stífna í klukkutíma í ísskápnum.
- Setjið kremið í sprautupoka og sprautið kremi á hverja köku, frekar þykkt þannig að fallegir toppar myndist.
- Ef þið eigið ekki sprautupoka getið þið sett kremið á með teskeið.
- Geymið kökurnar í lokuðu íláti í ísskáp.
- Nota má bláber í staðinn fyrir kakó í kremið (auðvitað ekki alveg eins en er mjög skemmtilegt tilbreyting).
Orkuhnullungar
26. apríl, 2009

Þessum hnullungum svipar mikið til þeirra kaka sem fást stundum innpakkaðar í plasti á kaffihúsum. Kannist þið ekki við þær? Þessi útgáfa er svolítið hollari því ég nota rapadura sykur (ekki púðursykur eða hvítan sykur) og einnig nota ég bara 4 mtsk af kókosfeiti en ekki 1/2 tonn af smjöri. Þetta eru sannkallaðir orkuhnullungar því þeir innihalda holla fitu, flókin kolvetni og prótein..frábær blanda ef maður t.d. í gönguferð eða er að reyna að klóra sér fram úr skólabókunum. Einnig finnst mér orkuhnullungarnir mjög góðir þegar liðið er á daginn og mig vantar svolítið orkubúst sem dugar mér lengi. Þessir eru einnig afar fínir bara með kaffinu....þó maður sé ekki að gera neitt nema bara að blaðra! Athugið að stærð hnullunganna fer eftir smekk, þið getið haft þá stærri ef þið viljið. Upplagt er að gera minni og fleiri ef maður vill útbúa þessa hnullunga sem jólasmákökur en þá þarf maður að baka í aðeins skemmri tíma.
Orkuhnullungar
Gerir 16 kökur
- 3/4 bolli spelti (ég miða við 250 ml bolla)
- 1 bolli haframjöl, malað fínt
- 1 tsk kanill
- 1/2 tsk múskat (enska: nutmeg)
- 1/2 tsk engifer
- 1/2 tsk negull (enska: cloves)
- 1 tsk vínsteinslyftiduft
- 4 msk kókosfeiti
- 1/3 bolli rapadura hrásykur
- 2-4 msk sojamjólk (má einnig nota möndlumjólk, haframjólk, hrísmjólk eða undanrennu)
- 1/2 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
- 1 egg
- 1/4 bolli sesamfræ
- 1/3 bolli saxað gott, súkkulaði (lífrænt framleitt með hrásykri). Einnig má nota carob
- 1/2 bolli saxaðar heslihnetur (einnig má nota valhnetur, pecanhnetur, Brasilíuhnetur o.fl.)
- 1/3 bolli rúsínur (einnig má nota saxaðar döðlur)
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180°C.
- Malið haframjölið í matvinnsluvél eða blandara þangað til það er orðið eins og hveiti (að fínleika).
- Setjið í stóra skál; spelti, vínsteinslyftiduft, kanil, múskat, engifer, negul og salt.
- Hrærið vel (gott er að sigta þurru hráefnin saman).
- Í aðra stóra skál skuluð þið hræra saman eggið, kókosfeitina og rapadura sykurinn. Hrærið mjög vel.
- Blandið öllu varlega saman með sleif.
- Blandið hnetum, sesamfræjum, rúsínum og súkkulaði út í deigið og hrærið varlega.
- Blandið mjólk út í ef þarf en annars má sleppa henni.
- Setjið bökunarpappír á bökunarplötu.
- Rúllið saman jafnar kúlur úr deiginu ( u.þ.b. 2 kúfaðar matskeiðar). Hafið smá bil á milli þeirra.
- Þrýstið létt ofan á hverja köku með flötum lófanum
- Bakið í um 15-20 mínútur (ef þið bakið lengur verða þær stökkar en annars verða þær mjúkar í miðjunni).
- Geymið í lokuðu plastíláti.
Piparkökudropar
2. nóvember, 2003

Mig langaði svo að baka hollar piparkökur því ég elska lyktina sem kemur þegar þær eru að bakast. Ég var búin að reyna margt og var alveg komin að því að gefast upp, kökurnar annað hvort eins og kex eða bragðlausar svo loksins kom það. Þessar piparkökur eru hollar og fínar, innihalda undanrennu, sesamsmjör, rapadura hrásykur, hlynsíróp og minna en 1 gr af fitu á hverja köku. Tahini (sesamsmjör) er um helmingi fituminna en venjulegt smjör eða önnur olía og stútfull af hollustu eins og járni, kalki, trefjum, B1 vítamíni, fosfór, kopar, magnesíum o.fl. Sem sagt piparkökur án samviskubits :) Svona næstum því allavega.
Piparkökudropar
Gerir um 50 kökur
- 2 bollar (um 300 gr) spelti (ég miða við 250 ml bolla)
- 1 tsk vínsteinslyftiduft
- 1/2 bolli Tahini (sesamsmjör)
- 2 msk kókosfeiti
- 1/2 bolli hreint hlynsíróp (enska: maple syrup)
- 100 gr rapadura hrásykur
- 1 tsk vanilludropar eða vanilluduft
- 2,5 tsk kanill
- 1,5 tsk negull (enska: clove)
- 1,5 tsk engifer
- 1/4 tsk múskat (enska: nutmeg)
- 1/2 bolli undanrenna
Aðferð:
- Blandið saman spelti, lyftidufti, kanil, negul, engifer og múskat í stóra skál.
- Blandið saman hlynsírópi, tahini, kókosfeiti, rapadura sykri og vanilludropum í annarri skál. Hrærið vel þannig að allt blandist vel saman.
- Setjið hlynsírópsblönduna út í speltblönduna og hrærið vel.
- Bætið undanrennunni út í smátt og smátt, eins og þið þurfið, það á að vera hægt að hnoða deigið svo það má ekki vera mjög blautt.
- Hnoðið deigið í höndunum (eða hrærivél með hnoðara). Bætið aðeins meira spelti saman við ef þarf.
- Rúllið í 6 langar pylsur og skerið í 1 cm. bita.
- Raðið á bökunarplötu með bökunarpappír.
- Bakið í um 20-25 mínútur við 180°C.
- Athugið að kökurnar eru mjúkar þegar þær koma út úr ofninum en verða harðar þegar þær kólna.
Piparkökur
28. nóvember, 2009

Búa má til piparkökukarla (og konur) og alls kyns fleiri skemmtilegar fígúrur úr þessu deigi. Einnig myndi þetta deig henta vel fyrir piparkökuhús. Piparkökurnar eru ekki mjög mikið kryddaðar svo þær henta vel fyrir t.d. börn. Ef þið viljið meira kryddbragð, setjið þá 1 tsk af negul og jafnvel smá klípu af múskati út í. Ég nota líka aðeins meiri kókosolíu hér en venjulega en annars er ómögulegt að fá piparkökurnar til að liggja flatar... Segja má að piparkökukarlarnir séu með uppreisn ef ekki er næg fitan í þeim!!!
Piparkökur
Gerir um 40 piparkökur
- 6 msk kókosolía
- 115 ml agavesíróp
- 4 msk Rapadura hrásykur (eða annar hrásykur)
- 185 gr spelti
- 1 tsk bökunarsódi
- 3 tsk kanill
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180°C.
- Blandið bökunarsódanum, kanilnum og speltinu saman í skál.
- Blandið saman hrásykrinum, agavesírópinu og kókosfeitinni í lítilli skál og hellið saman við speltblönduna.
- Hrærið öllu vel saman.
- Hnoðið deigið í smá stund til að allt blandist vel saman.
- Kælið deigið í 30 mínútur í ísskápnum.
- Skiptið deiginu í nokkra búta.
- Fletjið deigið út með kökukefli eða stórri flösku. Deigið ætti að vera um 1 millimetri að þykkt.
- Ef deigið festist við borð eða kökukefli er ágætt að dreifa smá spelti yfir borðið, deigið og kökukeflið.
- Skerið út deigið með t.d. kökuskurðarmótum (stjörnur, jólatré, piparkökukarlar og konur, hjörtu o.fl.).
- Klæðið bökunarplötu með bökunarpappír.
- Bakið í um 10 mínútur eða þangað til kökurnar eru orðnar gullnar. Þær eru ekki grjótharðar á þessum tímapunkti en munu kólna og harðna.
Rúsínuhafrakökur
5. mars, 2003

Þetta eru alveg ferlega góðar smákökur og það kemur góð lykt í húsið þegar maður bakar þær. Nota má döðlur í staðinn fyrir rúsínur.
Rúsínuhafrakökur
Gerir um 40 kökur
- 1,5 bollar haframjöl
- 1 bollar spelti
- 1 bolli Rapadura hrásykur
- 1,5 bolli saxaðar rúsínur (eða döðlur)
- 150 ml Hipp Organic, Organix eða Holle barnamatur (t.d. epla eða ferskju)
- 3 egg
- 4 msk kókosolía
- 3-4 msk appelsínusafi (hreinn) ef þarf
- 1/2 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
- 2 tsk vínsteinslyftiduft
Aðferð:
- Blandið saman spelti, haframjöli, salti og vínsteinslyftidufti í stóra skál.
- Hrærið saman barnamatnum (ávaxtamaukinu, kókosolíu og rapadura hrásykri) í aðra skál.
- Blandið öllu saman.
- Ef deigið er þurrt, bleytið þá aðeins í því með appelsínusafa.
- Kælið deigið í smá stund.
- Búið til kúlur, og setjið á bökunarplötu með bökunarpappír undir. Þrýstið létt ofan á hverja kúlu með gaffli.
- Bakið í um 20 mínútur við 200°C eða þangað til kökurnar eru orðnar gullbrúnar.
Sesamtoppar
27. febrúar, 2006

Þessir eru hættulega góðir, svo góðir að mann langar ekkert að hætta að borða þá. Þeir eru auðvitað hollir þ.e. mikið af hnetum og fræjum og þess háttar en þeir eru hitaeiningaríkir líka svo maður ætti nú ekki að raða þeim í sig endilega (þó að sé erfitt að gera annað!). Upplagðir með kaffinu, sem orkumikið nesti á í lautarferðina eða bara til að fá sér oft, oft, oft. Ég notaði hreint hlynsíróp en hægt er að nota t.d. hunang í staðinn
Sesamtoppar
Gerir um 25-30 bita
- 1 dl hreint hlynsíróp (enska: maple syrup).
- 1 bolli sesamfræ
- 1 bolli sólblómafræ
- 1/2 bolli kúrenur eða litlar rúsínur
- 1/2 bolli pecanhnetur saxaðar
- 1/2 bolli möndlur (möndluskífur)
- 1/4 bolli graskersfræ (má sleppa)
- 1/2 bolli kókosmjöl
- 1/2 bolli carob, saxað (fæst í Heilsuhúsinu, Yggrasli, Heilsudeild Hagkaups)
Aðferð:
- Blandið þurru hráefnin saman og bætið svo hlynsírópinu varlega saman.
- Setjið bökunarpappír á bökunarplötu.
- Blandan verður mjög laus svo það sem þarf að gera er að gera hrúgur af sesamblöndunni með teskeið. Þær munu ekki haldast vel saman. Ímyndið ykkur bara að þið séuð að búa til litlar íslenskar vörður :)
- Hrúgið um 1 msk (í haug) fyrir hvern sesambita.
- Hitið ofninn í 80°C og bakið í 20 mínútur.
- Lækkið hitann á ofninum í 50°C og bakið áfram í 20 mínútur.
- Takið bitana úr ofninum, látið þá kólna í ofninum 10 mínútur.
- Af því að bitarnir eru enn þá mjúkir er gott að móta þá betur á þessu stigi þ.e. ýtið brúnunum betur saman með fingrunum (þ.e. svo þeir haldist betur saman og verði að fallegri hrúgum).
- Ef þeir eru mjög lausir og mjúkir eftir að hafa kólnað í 20 mínútur skuluð þið baka í 10 mínútur í viðbót.
- Hægt er að skipta út sumu innihaldinu hérna að ofan og nota eitthvað annað í staðinn.
- Til dæmis mætti nota sykurlaust súkkulaði, döðlur, svört sesamfræ, valhnetur, cashewhnetur, fíkjur, aprikósur, heslihnetur,
- Það er ekkert mál að búa til flapjack úr þessari uppskrift. Notið lítið (um 25cm á kant), ferkantað form og þrýstið blöndunni ofan í. Bakið um 10 mínútur lengur en sesamtoppana. Takið úr forminu, látið kólna í 10 mínútur og skerið varlega í bita. Látið kólna alveg.
Súkkulaði,- pistachio,- og hafrabitar
30. nóvember, 2008

Uppskrift þessi kemur upprunalega úr
The Australian Women’s Weekly seríunni sem ég held mikið upp á. Réttara sagt nota ég bækurnar stundum til að fá hugmyndir en enda á að breyta uppskriftunum svolítið því þær geta verið nokkuð óhollar. Sem dæmi í þessari uppskrift áttu að fara 90 gr af smjöri…Það eru næstum því 100 grömm af fitu og næstum því 1000 hitaeiningar. Hmmm. Ég notaði döðlur og rúsínur sem uppfyllingu. Það er alveg næg fita í súkkulaði og hnetum án þess að maður þurfi að bæta meiru við. Að mínu mati a.m.k. Þessir bitar eru stórgóðir og henta vel með kaffinu eða í kaffiboðið því þá má gera með góðum fyrirvara. Þeir eru einnig frekar hollir svona miðað við allt og allt því þeir innihalda holla fitu og prótein úr hnetunum, kolvetni og prótein úr haframjölinu og andoxunarefni úr rúsínum. Rúsínir innihalda nefnilega efnið
Phenol sem er andoxunarefni og líka steinefnið
Boron sem er mikilvægt fyrir heilbrigð bein! Þessir bitar eru frábærir í nestið sem og í gönguferðina.
Súkkulaði,- pistachio,- og hafrabitar
Gerir 25 bita
- 170 gr dökkt lífrænt framleitt súkkulaði með hrásykri (t.d. frá Rapunzel) eða carob
- 170 gr haframjöl
- 75 gr pistachio hnetur (ósaltaðar)
- 20 gr kókosmjöl
- 90 gr döðlur, leggið þær í bleyti í 20 mínútur
- 20 gr rúsínur
Aðferð:
- Ég legg pistachiohnetur alltaf í bleyti og fjarlægi hýðið sem er utan á þeim. Það geri ég einungis fyrir fallegri lit á hnetunum en það má alveg sleppa því.
- Hellið vatninu af döðlunum og maukið þær í matvinnsluvél.
- Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði. Setjið smá vatn í lítinn pott, setjið hitaþolna skál yfir pottinn (þannig að skálin fari ekki ofan í vatnið) setjið súkkulaðið ofan í skálina og bræðið yfir vægum hita.
- Setjið döðlumaukið og rúsínur í stóra skál.
- Hellið brædda súkkulaðinu yfir.
- Hrærið kókosmjöl, hnetur og haframjöl út í.
- Hrærið mjög vel eða þangað til allt hefur blandast vel saman.
- Setjið plastfilmu í bökunarform sem er 20x20cm.
- Þrýstið blöndunni ofan í formið þannig að það sé jafn hátt alls staðar (engar holur).
- Kælið.
- Skerið í bita og berið fram kalt.
- Nota má aprikósur í staðinn fyrir rúsínur.
Súkkulaði- og kókosnammi
10. júní, 2008

Þetta er einfalt og þægilegt og upplagt til að eiga í ísskápnum þegar gesti ber að garði. Nota má döðlur í stað rúsína en einnig má nota saxaðar aprikósur, þurrkuð epli og margt fleira.
Súkkulaði- og kókosnammi
Gerir um 35-40 stykki
- 150 gr gott, dökkt súkkulaði án hvíts sykurs (t.d. frá Rapunzel). Nota má mjólkursúkkulaði, dökkt súkkulaði eða allt eftir því hvað ykkur finnst gott
- 0,5 bolli rúsínur (einnig má nota saxaðar döðlur, aprikósur, fíkjur o.s.frv.)
- 0,5 bolli sólblómafræ (einnig má nota önnur fræ t.d. graskersfræ)
- 1 bolli kókosflögur (bætið við ef þarf)
Aðferð:
- Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði (hitið vatn í litlum potti á lægsta hita. Setjið skál ofan í vatnið og brjótið súkkulaðið þar ofan í. Vatnið má aldrei komast í snertingu við súkkulaðið).
- Látið kólna aðeins.
- Setjið í stærri skál og blandið öllu öðru saman við.
- Búið til litlar hrúgur með teskeið.
- Setjið í ísskáp og kælið í um 30 mínútur.
Súkkulaði- og möndlubitar (fudge)
30. nóvember, 2008

Ég veit ekki hvað
fudge er á íslensku svo ég lét orðið bara í sviga fyrir aftan nafn uppskriftarinnar. Fudge er svona eiginlega klesst kaka eða þétt svo þið verðið bara að ímynda ykkur hvernig áferðin er ef þið hafið aldrei smakkað svoleiðis. Þessir bitar eru alveg upplagðir t.d. í afmæli í staðinn fyrir smjör-rjóma-sykur óhollustuna sem er oft borin fram í svona hefðbundnum súkkulaðikökum. Þessir bitar eru ekki léttir svo sem en þeir eru ekki með neinni viðbættri fitu eða sykri eins og margar óhollar kökur eru. Maður fær sér bara lítinn mola með kaffinu og þá þarf maður ekki að hafa neitt samviskubit. Uppskriftin er sérlega einföld og fljótleg.
Súkkulaði- og möndlubitar (fudge)
Gerir 12-14 bita
- 100 gr dökkt, lífrænt framleitt súkkulaði með hrásykri (eða carob)
- 20-25 döðlur (gott að láta þær liggja í bleyti í 30 mínútur)
- 1 lúka rúsínur (um 1/4 bolli)
- 2 lúkur möndlur, saxaðar smátt (um 1/2 bolli)
Aðferð:
- Hellið vatninu af döðlunum og maukið þær vel í matvinnsluvél.
- Setjið til hliðar.
- Setjið söxuðu möndlurnar í skál ásamt rúsínunum.
- Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði. Setjið smá vatn í lítinn pott, setjið hitaþolna skál yfir (þannig að skálin fari ekki ofan í vatnið) og bræðið yfir vægum hita.
- Blandið döðlumaukinu út í bráðið súkkulaðið, hrærið vel. Það er allt í lagi þó að
- blandan sé kekkjótt.
- Hellið strax út í skálina með möndlunum og rúsínunum.
- Hrærið vel.
- Setjið plastfilmu eða bökunarpappír í botninn á lágu, breiðu plastboxi (um 15x20cm).
- Ýtið ofan á blönduna með matskeið og passið að hvergi séu göt.
- Kælið í um klukkutíma.
- Skerið í litla bita.
- Berið fram kalt og geymið í ísskáp.
- Nota má heslihnetur eða Brasilíuhnetur í staðinn fyrir möndlur og einnig má nota aprikósur í staðinn fyrir rúsínur.
Súkkulaðibitakökurnar hennar Lísu Hjalt
28. nóvember, 2009

Lísu Hjalt eru flestir farnir að þekkja sem nota þennan vef en hún á m.a. uppskriftina af Frönsku súkkulaðikökunni hennar Lísu Hjalt sem er svo hrikalega góð. Hún hefur hér gert aldeilis frábærar súkkulaðibitakökur sem eru þannig að þeir sem borða þær hlaupa beint í ísskáp og fá sér mjólk með (vísbending um góðar súkkulaðibitakökur). Þetta eru nefnilega alvöru súkkulaðibitakökur en án allrar óhollustunnar. Þær eru svo sem ekki magrar en t.d. í staðinn fyrir 200 grömm af súkkulaði, 100 grömm af smjöri og eitthvað álíka af hvítum sykri þá notum við Lísa döðlur, agave, rapadura hrásykur, hnetur, kókosolíu og fleira góðgæti í okkar uppskriftir. Ég nota 50 grömm af heslihnetum á móti speltinu í kökurnar en nota má spelti í staðinn. Aldeilis frábærar kökur!
Súkkulaðibitakökurnar hennar Lísu Hjalt
Gerir um 35-40 kökur
- 10 döðlur
- 1 egg
- 75 gr Rapadura hrásykur (eða annar hrásykur)
- 2 msk agavesíróp
- 2 msk hnetusmjör (lífrænt framleitt, án sykurs)
- 4 msk kókosolía
- 4 msk kakó
- 50 gr heslihnetur
- 50 gr spelti
- 1 tsk bökunarsódi
- 1/2 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
- 1 tsk vanilludropar eða vanilluduft (úr heilsubúð)
- 40 gr pecanhnetur, saxaðar
- 50 gr dökkt, saxað, lífrænt framleitt súkkulaði með hrásykri (t.d. frá Green & Black’s eða Rapunzel)
Aðferð:
- Leggið döðlurnar í bleyti í 30 mínútur.
- Þurrristið heslihneturnar í 5-10 mínútur á heitri pönnu. Nuddið hýðið af.
- Malið heslihneturnar í matvinnsluvél þangað til þær eru fínmalaðar.
- Blandið saman í stóra skál: heslihnetum, kakói, spelti, bökunarsóda og salti.
- Hrærið saman í skál: egg, hrásykur, vanilludropa, kókosolíu og hnetusmjör.
- Hellið vatninu af döðlunum og setjið döðlurnar í matvinnsluvélina ásamt agavesírópinu. Maukið vel.
- Hellið hrásykursblöndunni út í speltblönduna.
- Bætið döðlumaukinu út í deigið og hrærið aðeins.
- Bætið saxaða súkkulaðinu og pecanhnetunum saman við og hrærið aðeins (ekki of mikið, bara rétt velta deiginu við).
- Setjið bökunarpappír á bökunarplötu.
- Setjið 1 kúfaða teskeið af deigi í einu á plötuna.
- Bakið við 170° í 7-10 mínútur.
- Nota má sesamfræ í deigið.
- Nota má valhnetur í staðinn fyrir pecanhnetur.
- Nota má mjólkursúkkulaði í staðinn fyrir dökkt súkkulaði.
Sveskju- og cashewkonfekt
30. nóvember, 2008

Mjög einfalt konfekt sem er líka afar hollt. Það er mikið af A vítamíni í sveskjum (sem breytist í Beta-Carotine í líkamanum) og þær eru einnig trefjaríkar. Bæði plómur og þurrkaðar plómur (sveskjur) hafa efni sem kallast
neochlorogenic og
chlorogenic acid (phenols). Þessi efni eru rík af andoxunarefnum. Sveskjur hjálpa líka til við að lækka blóðþrýsting og koma á jafnvægi í blóðsykri. Einnig hjálpa sveskjur til við upptöku járns. Þetta er því sannkallað hollustukonfekt vegna þess að cashewhnetur eru líka bráðhollar (innihalda einómettaðar fitusýrur sem eru góðar fyrir hjartað)! Myndin sýnir konfekt sem ég rúllaði í kakói en mér finnst líka afskaplega gott að dreypa konfektinu í dökkt súkkulaði.
Sveskju- og cashewkonfekt
Gerir 30-40 konfektmola
- 1 1/2 bolli döðlur (ég miða við 250 ml bolla)
- 1/2 bolli sveskjur
- 60 gr cashewnetur (eða 6 msk cashewhnetumauk (enska: Cashew Butter). Einnig má nota möndlumauk. Fæst í flestum heilsubúðum og heilsudeildum matvöruverslana)
- 1 tsk kókosfeiti
- 6 msk gott, lífrænt framleitt kakó eða carob
- 6 msk agavesíróp eða hreint hlynsíróp (enska: maple syrup)
- 1/2 bolli fínt saxaðar heslihnetur eða möndlur
- 30-40 gr dökkt, lífrænt framleitt súkkulaði með hrásykri
Aðferð:
- Leggið döðlur og sveskjur í bleyti í um 30 mínútur.
- Setjið cashewhnetur í matvinnsluvél og maukið í alveg heila mínútu eða þangað til það er orðið kekkjótt og olíukennt. Bætið kókosfeitinni í dropum út í og látið vélina ganga í nokkrar sekúndar. Setjið til hliðar.
- Hellið vatninu af döðlunum og sveskjunum og maukið í matvinnsluvél ásamt cashewhnetumaukinu. Maukið þangað til allt hefur blandast vel saman.
- Bætið agavesírópi og kakói út í og blandið áfram þangað til allt hefur maukast vel.
- Blandið heslihnetunum saman við.
- Ef deigið er of þurrt má setja nokkra dropa af appelsínusafa eða vatni út í.
- Kælið í um 2 klukkustundir í kæli (eða yfir nótt).
- Mótið kúlur úr deiginu.
- Deigið er nóg fyrir 40 litlar kúlur (12 grömm).
- Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði. Best er að hita vatn í potti (bara botnfylli) á vægum hita. Setjið skál ofan í sem situr á brúnum pottsins og brjótið súkkulaðið ofan í.
- Fylgist með því og hrærið öðru hvoru.
- Dýfið konfektinu ofan í og látið súkkulaðið storkna.
- Geymið í ísskáp.
- Til tilbreytingar má velta konfektmolunum upp úr kakói, fínmöluðu kókosmjöli, möndlumjöli o.s.frv.
Sörur
30. nóvember, 2008

Þið eruð örugglega að hugsa að ég hljóti að vera búin að tapa söguþræðinum…að setja uppskrift að Sörum á hollustuvef??? Áður en þið slökkvið á tölvunni ykkar kíkið þá á uppskriftina..hún er nefnilega ekkert svo óholl eftir að hafa gengið í gegnum CafeSigrun umbreytingu! Þessar Sörur eru próteinríkar, kalkríkar, með hollri fitu og bara ansi sniðug viðbót við jólabaksturinn. Ég nota ekki eggjarauður eins og á að gera, ekki flórsykur, ekki hvítan sykur, ekki smjör og almennt ekki neitt sem gæti stíflað æðar eða komið manni á spítala he he. Kannski ættu þessar kökur bara að heita CafeSigrunur...Ég ætla að taka loforð af ykkur að bjóða ekki ömmu gömlu og afa upp á þessar Sörur sem "alvöru" því þau munu sennilega fussa um ókomin ár. Við Jóhannes vorum hins vegar alsæl með Sörurnar okkar. Mér hefði ekki dottið í hug að baka þær nema af því Lísa Hjalt, (sú sem á frönsku súkkulaðikökuna hér á vefnum) skoraði á mig. Þar sem ég á erfitt með áskoranir lagðist ég í tilraunir og ég þurfti að gera nokkrar slíkar, misheppnaðar til að þetta gengi upp. Athugið að þar sem ég nota ekki flórsykur verða botnarnir mun flatari en á hefðbundnum Sörum þar sem þungi rapadura sykursins kremur loftið aðeins. Það kemur þó ekki að sök bragðsins vegna (uuu held ég). Athugið að kremið þarf að gera a.m.k. 3 klukkustundum áður en þið gerið Sörurnar en megið gera það sólarhring áður.Þessar kökur eru tímafrekar og svolítið flóknar í framkvæmd (þess vegna hittast oft margir saman og gera Sörur fyrir jólin!).
Sörur
Gerir um 25 stykki
Botn:
- 100 gr möndlur (hollari með hýðinu á)
- 100 gr rapadura hrásykur, malaður á hæsta styrk í matvinnsluvél í 1 mínútu
- 2 eggjahvítur
Krem:
- 100 gr cashewhnetur
- 1 banani
- 1/4 bolli kakóduft (lífrænt framleitt)
- 4 msk agavesíróp
- 1/8 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
- 2 msk kókosfeiti
- 100 gr dökkt, súkkulaði með hrásykri, lífrænt framleitt
Botn – Aðferð:
- Hitið ofninn í 160°C.
- Malið möndlur eins fínt og hægt er án þess að þær fari að verða olíukenndar eða kekkjóttar.
- Bætið rapadura sykrinum út í og malið aðeins áfram.
- Stífþeytið eggjahvíturnar. Mikilvægt er að skálin sé tandurhrein og án allrar fitu.
- Einnig er mikilvægt að ekkert af rauðunni fari með ofan í skálina. Notið handþeytara eða hrærivélina til að þeyta eggjahvíturnar. Þær ættu að verða háglansandi, hvítar og stífar þannig að toppar fara að myndast. Passið að þeyta ekki of mikið því þá kremjið þið loftið úr þeim.
- Setjið nokkrar matskeiðar af möndlu/rapadura blöndunni ofan í eggjahvíturnar og veltið varlega til (ekki hræra af krafti).
- Endurtakið með alla möndlu/rapadurablönduna þangað til allt hefur blandast vel saman en er samt loftkennt.
- Setjið bökunarpappír á bökunarplötuna.
- Setjið kúfulla teskeið af deiginu í einu á bökunarplötuna með 2cm bili á milli.
- Reynið að láta deigið ekki dreifast alveg flatt út. Ef það gerist er ekki nægilegt loft í deiginu. Kökurnar bragðast jafn vel en líta ekki eins vel út.
- Bakið í u.þ.b. 15-20 mínútur eða þangað til kökurnar eru orðnar gullnar og aðeins harðar í endana.
- Leyfið kökunum að kólna alveg í ofninum og þær ættu að verða alveg harðar inn að miðju.
Krem – Aðferð:
- Maukið cashewhnetur í matvinnsluvél á fullum krafti í 10-15 sekúndur eða þangað til þær eru orðnar að algjöru mauki eða fínkornóttar.
- Sigtið kakó út í cashewhnetumaukið.
- Bætið salti, agavesírópi og banana út í.
- Maukið í nokkrar sekúndur þangað til allt er orðið vel blandað saman.
- Bætið kókosfeitinni út í og blandið í nokkrar sekúndur.
- Látið kremið í plastbox og leyfið að stífna helst í sólarhring en að minnsta kosti í 3 tíma.
- Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði. Best er að hita vatn í potti (bara botnfylli) á vægum hita. Setjið skál ofan í sem situr á brúnum pottsins og brjótið súkkulaðið ofan í skálina.
- Fylgist með því og hrærið öðru hvoru.
Samsetning:
- Takið hverja Söru og smyrjið ofan á flatari hliðina með kremi. Leggið á disk.
- Dýfið hverri Söru á hvolf (þannig að kremið snúi niður) ofan í brædda súkkulaðið. Látið
- kólna í ísskápnum.
- Sörurnar má frysta.
- Athugið að svona Sörur geymast ekki eins lengi og hinar hefðbundnu Sörur með smjör-flórsykurskremi en ættu að geymast vel í tvær vikur eða svo.
Valhnetu- og hunangsnammi
25. nóvember, 2007

Jóhannesi fannst þessar rosalega góðar en mér fannst þær síðri, kannski af því að ég er ekki svo mikið fyrir hunang. Þeir sem eru jurtaætur (enska: vegan) myndu skipta hunanginu út fyrir eitthvað annað því hunang er jú dýraafurð! Þetta nammi er hollt og gott og gaman að eiga í kælinum fyrir gesti. Skipta má út valhnetum fyrir pecanhnetur.
Valhnetu- og hunangsnammi
Gerir 10-12 stykki
- 1/2 bolli saxaðar valhnetur
- 1/2 bolli kókosmjöl
- 2 kúfaðar msk carobduft
- 1/4 bolli acacia hunang (fæst t.d. í Yggdrasli)
- 1/4 bolli sesamfræ eða kókosmjöl (gæti þurft meira)
Aðferð:
- Blandið öllu nema sesamfræjunum saman og mótið kúlur í höndunum (gott að nota plasthanska).
- Veltið upp úr sesamfræjum eða kókosmjöli.
- Kælið.
Valhnetu- og rúsínukökur
28. nóvember, 2009

Þessar kökur eru svo hollar að þær virka eins og vítamíntöflur. Þær eru óbakaðar og því nýtast ensímin og vítamínin til fulls. Hollusta valhneta er ótvíræð og holla fitan stuðlar að heilbrigðu hjarta en þær innihalda m.a. omega-3 fitusýrur, E vítamín, B vítamín, magnesium, andoxunarefni, prótein og trefjar. Valhnetur eru taldar geta lækkað vonda kólesterólið í blóðinu. Rúsínurnar gefa okkur fína orku sem líkaminn dundar við að vinna úr yfir langan tíma. Ég sleppi stundum kakóinu og nota kanil í staðinn, sérstaklega fyrir jólin. Nota má pecanhnetur í staðinn fyrir valhnetur. Athugið að fjöldi kakanna fer eftir því hvernig kökumót þið notið. Ég nota frekar lítil mót og fæ um 15-20 kökur.
Valhnetu- og rúsínukökur
Gerir 15-20 kökur
- 60 gr rúsínur
- 40 gr valhnetur
- 30 gr kakó
- 1 msk kakónibbur (má sleppa)
- 1 tsk agavesíróp
Aðferð:
- Setjið valhneturnar og rúsínurnar í matvinnsluvél og malið í um 20 sekúndur eða þangað til allt blandast vel saman og er fínkornótt.
- Bætið kakónibbunum, kakóiinu og agavesírópinu út í og blandið áfram í nokkrar sekúndur. Skafið hliðar matvinnsluvélarinnar og blandið áfram í nokkrar sekúndur.
- Bætið 1 tsk af agavesírópi út í ef blandan er of þurr.
- Hnoðið deigið vel saman með höndunum og geymið í ísskáp í um 20 mínútur.
- Setjið plastfilmu á borð (eða bökunarpappír)
- Fletjið deigið út með höndunum eða kökukefli svo það verði um 1/2 cm. að þykkt og skerið út kökur með smákökumóti.
- Geymið í ísskáp eða frysti og berið fram kalt.
- Nota má carob í staðinn fyrir kakó.
- Nota má pecanhnetur í staðinn fyrir valhnetur.
- Sleppa má kakóinu og nota 30 gr kókosmjöl og 1 tsk kanil í staðinn.
- Nota má hlynsíróp í staðinn fyrir agavesíróp.
- Kakónibbur fást í heilsubúðum, nota má 85% dökkt súkkulaði í staðinn.
Banana- og engiferbrauð
5. mars, 2003
Bananar og engifer hljómar skringilega en útkoman er frábær!!!! Þetta er sko alveg ekta brauð til að búa til á sunnudagsmorgni því lyktin verður svo góð í húsinu og maður er allan daginn í banana-og engiferskýi :)
Banana- og engiferbrauð
Gerir 1 brauð
- 275 gr spelti
- 2 tsk vínsteinslyftiduft
- 4 tsk engiferduft
- 2 tsk blandað krydd (t.d. kanill, múskat, muldar cardimommur)
- 90 gr ávaxtasykur
- 1 stór krukka (175ml) Hipp Organic banana og mango eða eitthvað annað mauk með bönunum í
- 1-1,5 dl appelsínusafi (meira ef þarf)
- 1 msk vanilludropar
- 2 egg
- 3 vel þroskaðir bananar
- 115 gr rúsínur
Aðferð:
- Forhitið ofninn í 180°C.
- Klæðið brauðform með bökunarpappír.
- Sigtið saman speltið, bökunarsóda, sykurinn og kryddið í stóra skál.
- Í annari skál blandið barnamatnum, appelsínusafanum, vanilludropunum og eggjum í.
- Hrærið vel.
- Stappið bananana.
- Bætið rúsínunum út í deigið.
- Setjið bananana saman við deigið, það á að vera frekar blautt.
- Setjið deigið í formið og bakið í 45-50 mín (gæti þurft meira ef deigið er stórt um sig).
- Leyfið brauðinu að kólna í 5 mín í forminu og færið það svo á vírgrind til að kæla alveg.
- Skerið í sneiðar og berið fram.
- Þetta deig gæti verið gott í muffinsa líka.
Bananabrauð
5. mars, 2003

Þetta er afskaplega einföld og fljótleg uppskrift. Athugið að vera með vel þroskaða banana, helst þannig að þeir séu orðnir svartir. Ég man ekki alveg hvaðan þessi uppskrift er, hún gæti verið blanda úr mörgum. Ég man bara að það átti að vera 100 gr af smjöri en ég skipti því nú út strax fyrir 1 aukabanana og 1 krukku af bananamauki.
Bananabrauð
Gerir 1 brauð
- 1 egg
- 90 gr rapadura hrásykur (eða annar hrásykur)
- 2 msk byggmaltsíróp (enska: marley malt syrup) eða agavesíróp
- 1 lítil krukka Hipp Organic eða Holle bananamauk (má vera banana-og eitthvað annað mauk)
- 4 þroskaðir bananar eða 5 (ef notaðir eru 5 má sleppa bananamaukinu)
- 1 msk kókosolía
- 200 gr spelti
- 25 gr haframjöl
- 25 gr haframjöl til að strá yfir
- 2 tsk vínsteinslyftiduft
- 0.5 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
Aðferð:
- Þeytið eggið lauslega og bætið hrásykrinum saman við í smáum skömmtum.
- Merjið bananana með gaffli og hrærið saman við eggið ásamt bananamaukinu úr krukkunni ef notað, kókosolíunni og sírópinu.
- Sigtið saman spelti, 25 gr af haframjöli, lyftiduft og salt og hrærið varlega saman við bananablönduna með sleif.
- Klæðið aflangt form (1.5 lítra), með bökunarpappír.
- Hellið deiginu í formið.
- Dreifið afganginum af haframjölinu jafnt yfir kökuna.
- Bakið í 180°C í 40-45 mínútur.
- Mér finnst rosa gott að setja um 1 tsk af kanil í uppskriftina...sérstaklega fyrir jólin!
- Bananarnir mega vera orðnir alveg svartir í þessa uppskriftir (þ.e. ofþroskaðir).
Biscotti með möndlum
26. september, 2004

Þetta er nokkuð holl útgáfa af ítalska biscotti kexinu. Eina fitan í þessari uppskrift kemur úr möndlunum en það er holl fita svo við skulum ekkert fá svo mikið samviskubit. Það er líka mikið af kalki í þessu kexi þar sem möndlur eru mjög kalkríkar. Reyndar er egg í þessari uppskrift en í staðinn fyrir 2 egg þá er bara eitt. Þessu kexi er upplagt að dýfa í kaffi eða te eða jafnvel bara mjólk. Uppskriftina að þessu fína biscotti fékk ég á kaffisíðu (sem er reyndar óvirk) en þar var gaur að nafni Jimmy Oneschuk sem bauð upp á þessa uppskrift. Hann er heilsufrík, hjólreiðakappi og kaffimaður mikill. Jóhannes benti mér á þessa uppskrift og ég ákvað að prófa hana. Við mikinn fögnuð.
Biscotti með möndlum
Gerir 10-12 sneiðar
- 240 gr spelti (gott að nota fínmalað og grófmalað í bland)
- 2 tsk vínsteinslyftiduft
- 110 gr hrásykur (eins fínmalaður og hægt er)
- 1 egg
- 75 gr möndlur, gróft saxaðar
- 1 tsk vanilludropar eða vanilluduft/sykur úr heilsubúð
- Kalt vatn
Aðferð:
- Blandið saman speltinu og lyftiduftinu.
- Blandið svo saman eggi, vanilludropum og sykri ásamt smávegis af vatni til að leysa upp sykurinn.
- Bætið eggjablöndunni saman við speltið og hrærið þangað til eggið hefur blandast vel speltinu. Hér þarf að bæta við smávegis af köldu vatni (matskeið í einu) til að blandan verði nægilega blaut. Hún má samt ekki vera klístruð heldur þarf að vera þannig að hægt sé að hnoða án þess að hún klessist við allt.
- Saxið möndlurnar gróft, bætið þeim saman við og hrærið vel.
- Setjið bökunarpappír á bökunarplötu og fletjið deigið út þannig að þið fáið u.þ.b. 12 cm. breiðan og 22 cm. langan hleif sem er um 1-1.5 cm. á hæð.
- Bakið hleifinn við 160°C í um 30-40 mínútur eða þangað til hleifurinn er orðið nógu harður til að hægt sé að skera hann.
- Takið úr ofninum, kælið í 5 mínútur og skerið hleifinn á ská í þunnar sneiðar (1 cm) með grófum brauðhníf. Skerið varlega til að möndlurnar brotni ekki úr deiginu.
- Dreifið á bökunarpappírinn og setjið aftur inn í ofn og bakið í 10-15 mínútur. Snúið þá sneiðunum við og slökkvið á ofninum og leyfið biscotti kökunum að kólna inni í ofninum (ef þið eruð ekki með blástursofn er gott að opna ofninn).
- Gætið þess að biscottiið brenni ekki á þessum tímapunkti og takið út ef þeir eru orðnir mjög dökkir.
- Það er líka hægt að setja eins og 2 msk kakó til að fá svona "súkkulaði biscotti" og auðvitað má líka setja nokkra bita af gæðasúkkulaði líka (t.d. frá Rapunzel með hrásykri), helst með 70% eða hærra kakóhlutfalli.
- Ég hef oft notað eingöngu grófmalað spelti sem er allt í lagi.
Biscotti með pistachiohnetum
28. október, 2005

Þetta er svipuð uppskrift og að Biscotti með möndlum hér á vefnum en hér nota ég pistachiohnetur.
Biscotti með pistachiohnetum
Gerir um 12 sneiðar
- 110 gr spelti (grófmalað)
- 130 gr spelti (fínmalað)
- 1,5 tsk vínsteinslyftiduft
- 110 gr Rapadura hrásykur (eða annar hrásykur)
- 1 egg
- 75 gr pistachiohnetur (ósaltaðar)
- 1 tsk vanilludropar eða vanilluduft úr heilsubúð
- 1 tsk möndludropar úr heilsubúð
- kalt vatn
Aðferð:
- Blandið saman speltinu og lyftiduftinu.
- Blandið svo saman eggi, vanilludropum og hrásykri ásamt smávegis af vatni til að leysa upp sykurinn.
- Bætið eggjablöndunni saman við hveitiblönduna og hrærið þangað til eggið hefur blandast vel speltinu. Hér þarf að bæta við smávegis af köldu vatni (matskeið í einu) til að blandan verði nægilega blaut. Hún má samt ekki vera klístruð heldur þarf að vera þannig að hægt sé að hnoða án þess að hún klessist við allt.
- Bætið pistachiohnetunum saman við og hrærið vel.
- Setjið á bökunarpappír og fletjið út þannig að þið fáið u.þ.b. 12 cm. breiðan og 22 cm. langan hleif sem er um 1 - 1,5 cm. á hæð.
- Bakið í um 30-40 mínútur við 160°C eða þangað til hleifurinn er orðið nógu harður til að hægt sé að skera hann.
- Takið úr ofninum, kælið í 5 mínútur og skerið í þunnar sneiðar (1 cm) með grófum brauðhníf). Skerið varlega.
- Dreifið á bökunarpappírinn og setjið aftur inn í ofn og bakið í 10-15 mínútur. Snúið þá sneiðunum við og slökkvið á ofninum og leyfið biscotti kökunum að kólna inni í ofninum. Ef kökurnar eru orðnar dökkar skuluð þið taka þær út en ef ekki má láta þær kólna inni. Ef þið eruð ekki með blástursofn skuluð þið opna ofnhurðina.
- Í staðinn fyrir fínmalað spelti má nota grófmalað eingöngu. Ég hef yfirleitt alltaf notað grófmalað eingöngu með góðum árangri.
Döðlubrauð
6. apríl, 2003

Ég man ekki hvar ég fann þessa uppskrift, einhvers staðar á vefnum örugglega. Ég reyndar breytti aðeins innihaldinu, setti ólífuolíu í stað smjörs, ávaxtasykur í stað hvíts sykurs og spelti í stað hvíts hveitis. Voða fínt svona kökubrauð með sunnudagskaffinu!
Döðlubrauð
Gerir 1 brauð
- 220 gr döðlur, grófsaxaðar
- 110 gr rapadura hrásykur
- 2 msk agavesíróp eða hreint hlynsíróp (enska: maple syrup)
- 350 gr spelti
- 1/2 dl hveitiklíð
- 2 stk egg
- 2 tsk vínsteinslyftiduft
- 1 tsk kókosolía
- 1 tsk vanilludropar (úr heilsubúð)
- 1 tsk lífrænt framleitt kakó(má sleppa)
Aðferð:
- Grófsaxið döðlurnar, setjið í skál og hellið um 300 ml sjóðandi heitu vatninu yfir. Látið standa í 20 mínútur.
- Sigtið saman spelti, hrásykur, kakó, hveitiklíð og vínsteinslyftiduft.
- Í annari skál, hrærið eggið lauslega og bætið vanilludropum, agavesírópinu og kókosolíu saman við.
- Blandið öllu saman (döðlunum og vatninu líka, eins mikið og þarf).
- Ef deigið er allt of þurrt þá má bæta smávegis af vatni við.
- Bakið við 180°C í 40-45 mínútur.
- Berið fram með léttum smurosti, léttum rjómaosti eða jafnvel þeyttum rjóma/jurtarjóma.
- Deigið á ekki að vera of blautt en heldur ekki of þurrt. Það á t.d. ekki að vera það þurrt að maður geti hnoðað það en heldur ekki of blautt þannig að það dropi af sleifinni. Það á að vera svona mitt á milli bara!
Döðlukaka með karobkeim
18. maí, 2003
Ég veit ekki alveg hvaðan þessi uppskrift kemur sem skiptir kannski ekki öllu máli því þetta er fín kaka/brauð, upplögð í sunnudagskaffið.
Döðlukaka með karobkeim
Gerir 1 köku/brauð
- 225 gr þurrkaðar döðlur
- 100 gr brytjaðar valhnetur eða pecanhnetur
- 125 gr spelti
- 1 125 ml krukka af Hipp Organic eða Organix barnamat (t.d. "Banana & Peach dessert")
- 50 gr carob duft (fæst í Heilsuhúsinu)
- 2 stk egg
- 2 stk þroskaðir bananar
- 1 tsk vanilludropar
Aðferð:
- Saxið döðlurnar frekar smátt.
- Brytjið hneturnar frekar smátt.
- Sigtið saman spelti og karobduftið.
- Blandið eggjunum og vanilludropunum saman.
- Stappið bananana og blandið þeim saman við eggjablönduna.
- Blandið öllum hráefnunum saman í skál og hrærið.
- Hellið deiginu í tvö sandkökuform og bakið neðst í ofni við 200°C í u.þ.b. 30 mín.
- Lækkið ofnhitann niður í 185°C og bakið áfram í 20-30 mín. í viðbót, eða þar til kakan losnar frá börmum formsins.
- Gott er að setja sykurlausa sultu eða bananamauk á milli.
Einfalt bananabrauð
11. október, 2004
Mjög einfalt að búa til, upplagt þegar maður á nokkra ofþroskaða banana! Ég nota einn aukabanana í staðinn fyrir 25 ml af kókosfeiti eða ólífuolíu en það má alveg breyta því.
Einfalt bananabrauð
Gerir 1 brauð
- 1,5 dl spelti
- 1 tsk vínsteinslyftiduft
- 1/2 tsk heilsusalt (Herbamare)
- 1/2 bolli ávaxtasykur
- 2 msk hreint hlynsíróp (enska: maple syrup)
- 2 egg, lauslega hrærð saman
- 2 msk kókosfeiti eða ólífuolía
- 4 mjög þroskaðir bananar (mega alveg vera svartir), stappaðir
Aðferð:
- Hitið ofninn í 170°C.
- Setjið bökunarpappír í brauðform.
- Hrærið saman spelti, lyftidufti, salti og ávaxtasykri.
- Í sér skál, blandið saman eggin, kókosfeitinni eða ólífuolíunni, hlynsírópi og stöppuðu bönununum.
- Blandið blautu hráefnunum út í þurru hráefnin.
- Bakið í um 70 mínútur.
- Látið kólna og berið fram volgt með kaffinu eða mjólkinni.
- Það má alveg bæta 50gr af söxuðum valhnetum saman við.
Engiferbrauð
5. mars, 2003
Þessi uppskrift kom svo sannarlega á óvart, brauðið var verulega gott!!! Ég fann þessa uppskrift (þ.e. upprunalegu útgáfuna af henni) á wegweb.com sem er grænmetissætusíða sem ég nota mikið.
Engiferbrauð
Gerir 1 brauð
- 225 gr spelti
- 1/4 tsk heilsusalt (Herbamare)
- 2 tsk engiferduft
- 1 tsk kanilduft
- 1 tsk malað múskat (enska: nutmeg)
- 2 tsk vínsteinslyftiduft
- 100 gr ávaxtasykur
- 1 stór krukka (175 ml) Hipp Organic, t.d. apple and blueberry dessert eða pudding (eru án viðbætts sykurs og eru lífrænt framleiddar)
- 1 egg
- 3 msk hreint jógúrt
- 2 msk rifið, ferskt engifer
Aðferð:
- Hitið ofninn í 160°c.
- Blandið hveitinu, saltinu, kryddunum og lyftiduftinu í skál.
- Þeytið eggið saman við jógúrtið í annarri skál.
- Setjið eplamaukið saman við blautu blönduna.
- Setjið saman við þurru hráefnin.
- Blandið ferska engiferinu við (ef það er notað).
- Setjið í jólakökuform með bökunarpappír.
- Bakið í 50-60 mínútur.
- Berið fram með smurosti og jafnvel sykurlausri sultu.
Epla-og apríkósubrauð
7. júní, 2004
Þetta kökubrauð er fínt eftir matinn eða bara með kaffinu á góðum sunnudegi.
Epla-og apríkósubrauð
Gerir 1 brauð
- 1 stór krukka af ávaxtamauki fyrir börn án viðbætts sykurs t.d. epla eða bananamauk frá Hipp Organic
- 80 gr ávaxtasykur
- 2 egg, hrærð lauslega
- 60 gr þurrkaðar aprikósur, saxaðar milligróft
- 2 epli, skræld og rifin gróft á rifjárni
- 2 msk mjólk
- 225 gr spelti
- 2 tsk vínsteinslyftiduft
- 1 tsk blandað krydd, malað t.d. engifer, kanill, múskat
- 1 tsk kanill
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180°C.
- Setjið bökunarpappír í jólakökuform.
- Hrærið saman eggin, sykurinn og barnamatinn. Á að vera "létt og lofkennt".
- Haldið til haga einni matskeið af aprikósunum.
- Bætið restinni af aprikósunum ásamt eplunum og mjólkinni.
- Í annarri skál, sigtið saman speltið, lyftiduftið og kryddin.
- Blandið þessu varlega saman við blauta innihaldið.
- Setjið í jólakökuform (brauðform) sem búið er að klæða með bökunarpappír og dreifið aprikósubitunum yfir.
- Bakið í um 55-60 mínútur eða þangað til kakan hefur risið og prjónn sem stungið er í kökuna kemur hreinn út.
- Gott að bera fram með sykurlausri sultu, smurosti o.fl.
Gulrótar- og bananakaka
8. janúar, 2006

Þetta er svona kökubrauð og er fín með t.d. tei eða kaffi. Hún er frekar "þurr" og ástæðan fyrir því er sú að í upprunalegu uppskriftinni áttu að vera 250 ml af olíu. Ég notaði 3 mtsk af kókosfeiti. Þessi kaka er full af vítamínum því í henni eru jú bananar, gulrætur og pecanhnetur.
Gulrótar- og bananakaka
Gerir eina köku
- 480 gr rifnar gulrætur
- 500 gr ofþroskaðir, stappaðir bananar (mega vera orðnir svartir) (2-4 bananar, fer eftir stærð)
- 260 gr spelti
- 2 tsk vínsteinslyftiduft
- 1 tsk blandað krydd t.d. múskatduft (enska: nutmeg), negulduft (enska: clove), engiferduft)
- 1/2 tsk kanilduft
- 170 gr ávaxtasykur
- 1/2 dl hreint hlynsíróp (enska: maple syrup)
- 90 gr grófsaxaðar pecanhnetur
- 3 egg, hrærð örlítið
- 3 msk kókosfeiti eða ólífuolía
- 2 tsk hreinn appelsínusafi
Aðferð:
- Forhitið ofninn í 150°C.
- Blandið saman spelti, lyftidufti, kryddi og sykri í stóra skál.
- Blandið öllu öðru innihaldi saman við þ.e. bönunum, gulrótum, eggjum, sírópi og kókosfeiti eða ólífuolíu.
- Hellið í 24 cm. smelluform (setjið bökunarpappír fyrst í formið).
- Bakið í um klukkutíma eða þangað til kakan hefur lyft sér aðeins og er orðin gullin.
- Ef þið stingið prjón í miðju kökuna þá ætti hann að koma frekar hreinn út (ekki mikið af deigklessum á honum a.m.k.).
- Til að kakan þorni ekki um of er gott að stinga göt í kökuna og láta appelsínusafa af teskeið leka í götin. Þetta þarf að gera um leið og kakan kemur úr ofninum en einnig er gott að gera þetta af og til í svona 2 daga (ef kakan er ekki búin á þeim tíma). Þannig helst hún ágætlega blaut.
Haframjöls- og bananabrauð
5. mars, 2003
Þessi uppskrift kemur af uppskriftir.is og var víst búin til af einhverri vaxtaræktarkonu (útskýrir kannski allar eggjahvíturnar!!). Mjög gott og próteinríkt brauð, fínt fyrir þá sem eru að byggja upp vöðva.
Haframjöls- og bananabrauð
Gerir 1 brauð
- 9 dl haframjöl, meira eða minna eftir þörfum og smekk
- 12 stk eggjahvítur
- 3 stk bananar, mikið þroskaðir
- 2 msk kanill
- 2 tsk vanilludropar eða vanilluduft (meira eða minna eftir smekk)
Aðferð:
- Maukið bananana og hrærið þeim saman við eggjahvíturnar.
- Kryddið með kanil og vanilludropum.
- Hrærið haframjölinu saman við þar til komið er deig.
- Sníðið bökunarpappír innan í jólakökuform, hellið deiginu í.
- Bakið við 150°c í u.þ.b. 90 mín.
Jólakaka með ensku ívafi
7. nóvember, 2006

Bretar elska puddingana sína (puddings). Pudding er í raun samheiti yfir alls kyns eftirrétti og getur verið hvað sem er, allt frá súkkulaðiköku yfir í ís. Pudding er sem sagt ekki eins og hjá Bandaríkjamönnum þ.e. búðingur. Upprunalegt pudding er þó meira í ætt við enska jólaköku, svona hálfkúlulaga kaka með þurrkuðum ávöxtum, hvítu sykurkremi og jafnvel heitu vanillugumsi yfir. Þetta gera Bretar gjarnan fyrir jólin. Mig langaði alveg ofsalega mikið til að búa til holla, enska jólaköku en ég hef hreinlega ekki lagt í það enn þá. Svo var ég á ferð í bókabúð hérna í London og rakst á litla bók frá Australia Women’s Weekly klúbbnum (sem er frábær). Í henni voru uppskriftir meðal annars að puddings fyrir jólin og var ein uppskriftin í hollari kantinum. Ég breytti henni aðeins þó því ég vil ekki kaupa sykraða ávexti né með litum eða aukaefnum (svo það eiginlega útilokar grænu og rauðu kirsuberin (kokteilberin) sem eru yfirleitt í jólakökunum) og ég þurfti því aðeins að leggja höfuðið í bleyti. Í þessari köku er enginn viðbættur sykur og aðeins tvær teskeiðar af kókosfitu eða ólífuolíu! Kakan geymist vel í um viku (en ekki marga mánuði eins og óhollar kökur) svo það er best að gera nokkrar kökur og eiga í frystinum til að hita þær upp þegar maður vill. Kakan er ótrúlega djúsí og góð þó holl sé!
Jólakaka með ensku ívafi
Gerir 1 kökubrauð
- 300 gr rúsínur (ljósar og dökkar)
- 290 ml apríkósusulta (hrein, án viðbætts sykurs og aukaefna)
- 250 gr aprikósur, saxaðar í grófa bita
- 1 tsk agavesíróp eða hunang
- 250 gr soðið og maukað grasker (hægt að nota butternut squash líka). Um 400 gramma grasker þarf fyrir uppskriftina).
- 1 tsk salt (til að sjóða graskerið upp úr)
- 120 gr þurrkaður ananas (án sykurs eða aukaefna), saxaður í grófa bita. Einnig má nota ferskan ananas eða úr dós (án sykurs) en þá þarf að sigta allan vökva mjög vel frá
- 280 gr spelti
- 80 gr döðlur, saxaðar í grófa bita
- Börkur af einni lífrænt ræktaðri appelsínu
- Börkur af 1/2 lífrænt ræktaðri sítrónu
- 1 tsk kókosfeiti eða ólífuolía
- 3 tsk kanill
- 2 tsk negull (enska: clove)
- 1 tsk múskat (enska: nutmeg)
- 1 tsk vínsteinslyftiduft
- 3-4 matskeiðar af hreinum appelsínusafa.
Aðferð:
- Sjóðið graskerið í söltu vatni. Látið rétt fljóta yfir graskerið og sjóðið í um 20 mínútur eða þangað til það er orðið meyrt. Kælið og maukið í matvinnsluvél.
- Í annan pott skuluð þið setja alla ávextina og börkinn ásamt agavesírópi eða hunangi, kókosfeiti eða ólífuolíu og aprikósusultunni og sjóða í 3 mínútur. Kælið.
- Blandið saman speltinu, kryddinu og vínsteinslyftiduftinu í stórri skál.
- Bætið graskersmaukinu varlega saman við.
- Bætið nú ávaxtablöndunni saman við og blandið öllu saman með sleif.
- Setjið bökunarpappír í stórt brauðform (14 cm. á breidd og 21 cm. á lengd) og hellið blöndunni ofan í (má líka setja í 2 minni form en baka þá í aðeins skemmri tíma).
- Bakið í 60 mínútur við 180°C. Ef toppurinn er orðinn mjög dökkur eftir 30-40 mínútur má breiða álpappír yfir kökuna, eða lækka hitann og færa kökuna neðar. Eftir 60 mínútur skuluð þið skoða kökuna og pota prjóni eða hnífi í miðjuna og ef hnífurinn kemur út með deigi á (þó það sé bara smávegis) skuluð þið baka hana í aðrar 15 mínútur. Ef þið stingið í ávöxt þá verður hnífurinn blautur eftir hann en það er ekki eins og þegar deigið er ekki nægilega bakað, þá koma meira eins og klessur á hnífinn.
- Tékkið á kökunni eftir 15 mínútur og bakið lengur ef þörf er á. Það er misjafnt eftir ofnum hvað kökurnar þurfa.
- Þegar kakan er komin úr ofninum, stingið þá strax mörg göt í hana og hellið nokkrum matskeiðum af appelsínusafa yfir kökuna.
- Pakkið kökunni, í forminu inn í álpappír og látið kólna alveg, jafnvel yfir nótt.
- Gott er að gera nokkrar kökur, skera þær svo í tvennt, pakka inn í bökunarpappír og plastpoka og geyma í frysti. Þá er hægt að taka út smá skammt í einu fyrir ykkur eða gestina.
- Nota má appelsínumarmelaði/sultu í staðinn fyrir aprikósusultuna þá má sleppa appelsínuberki í uppskriftina. Ég hef meira að segja notað rabbabarasultu á móti appelsínumarmelaði og kakan heppnaðist bara vel.
- Einnig má nota 75 gr þurrkuð epli eða mangó (án sykurs eða aukaefna) á móti þurrkaða ananasinum.
- Ef þið eruð að sjóða frosið grasker er ágætt að kreista bitana eftir að þeir hafa soðið til að losa aukavatn.
Kryddað graskerskökubrauð
7. nóvember, 2006

Þetta kökubrauð er upplagt að gera þegar maður á smá afgang af graskeri því maður þarf bara einn bolla af graskeri í uppskriftina. Kryddað og sætt brauð sem passar vel í sunnudagskaffinu.
Grasker er mjög hollt, fullt af Beta-Carotine sem er andoxunarefni sem hjálpar okkur að sporna t.d. gegn krabbameini. Brauðið er best sama dag og maður bakar það en einnig má frysta brauðið og hita upp við annað tækifæri.
Kryddað graskerskökubrauð
Gerir 1 kökubrauð
- 1,5 bolli spelti
- 1/2 tsk heilsusalt (Herbamare)
- 2/3 bolli ávaxtasykur
- 2 tsk vínsteinslyftiduft
- 1 bolli saxað grasker
- 1 msk kókosfeiti eða ólífuolía
- 2 egg, lauslega hrærð
- 1 msk agave síróp
- 1/2 tsk múskat (enska: nutmeg)
- 1 tsk kanill
- 1/2 tsk allspice (má sleppa)
- 1/2 tsk negull (enska: cloves)
- 1/2 bolli saxaðar hnetur t.d. valhnetur eða pecanhnetur (má sleppa)
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180°C
- Maukið graskerið í matvinnsluvél.
- Blandið saman spelti, heilsusalti, ávaxtasykri og lyftidufti.
- Í annarri skál skuluð þið blanda saman maukaða graskerinu, kókosfeitinni eða ólífuolíunni, eggjunum, agavesírópinu og kryddunum.
- Blandið þessu saman við speltblönduna og hrærið mjög varlega (bara svo að allt blandist saman).
- Blandið hnetunum saman við ef þið notið þær.
- Hellið út í brauðform sem búið er að klæða með bökunarpappír.
- Bakið í um 60 mínútur eða þangað til hnífur sem stungið er í miðju kökunnar kemur út hreinn.
- Þegar kökubrauðið er tilbúið skuluð þið taka það úr forminu og kæla.
- Ef kakan er ekki tilbúin eftir 60 mínútur en er orðin dökk að ofan getið þið sett álpappír á toppinn og bakað lengur.
Kryddbrauð
5. mars, 2003

Mmmmmmm þessi uppskrift er rosalega góð og brauðið er æðislegt alveg glænýtt úr ofninum og pínu klesst. Múskatið gefur sterkt og kryddað bragð. Lyktin er svo góð þegar maður bakar þetta brauð að mann langar helst að loka lyktina í dós til að geta þefað af henni hvenær sem er. Ef þið eruð að búa til kryddbrauðið fyrir börn er gott að minnka kryddmagnið (fer eftir því hvað þau eru hrifin af kryddi).
Kryddbrauð
Gerir 1 brauð
- 3 msk gott, dökkt kakó (án viðbætts sykurs). Einnig má nota carob
- 3 dl spelti
- 1,5-2 dl rapadura hrásykur (2 dl ef þið viljið svolítið sætt brauð)
- 3 dl grófmalað haframjöl (malað í 30 sekúndur í matvinnsluvél)
- 2-3 dl sojamjólk (byrja með 2 dl og bætið við ef þarf). Einnig má nota hrísmjólk, haframjólk, möndlumjólk eða undanrennu
- 2,5 tsk vínsteinslyftiduft
- 1 tsk engifer
- 1 tsk negull (enska: clove) (má sleppa, og nota þá 1 tsk af kanil í viðbót)
- 2 tsk kanill
- 1/2 tsk múskat (enska: nutmeg)
Aðferð:
- Blandið öllum þurrefnunum saman.
- Blandið mjólkinni út í, deigið á að vera nokkuð blautt en án þess þó að vera alveg rennandi af sleif. Það ætti að dropa af í stórum kekkjum.
- Setjið bökunarpappír í brauðform og bakið við 180°C í um 40 mínútur (stingið með prjón í miðjuna til að tékka á því hvort hún sé nokkuð of blaut). Má samt vera pínu blaut og klesst.
Möndlu- kókoskaka með bláberjabotni
18. ágúst, 2008

Þessi kaka er án glúteins og er mjög einföld í smíðum. Ég fann uppskriftina á vef konu sem heitir Jeena og ég held mikið upp á. Upplögð kaka með kaffinu og hún er góð fyrir þau tilefni sem bera þarf á borð köku sem allir geta borðað, líka þeir sem eru með glúteinóþol. Það er ekki ónýtt að nota fersk, íslensk bláber í botninn.
Möndlu- kókoskaka með bláberjabotni
Gerir 1 köku
Kakan:
- 2 msk kókosfeiti
- 6 msk agavesíróp
- 4 msk malaðar möndlur (möndlumjöl)
- 2 tsk vanilludropar eða vanilluduft úr heilsubúð
- 2 tsk rifinn börkur af appelsínu og sítrónu (má sleppa)
- 2 bollar kókosmjöl (ég miða við 250 ml bolla)
- 2 msk hrísmjöl (enska: rice flour)
- 2 egg
- 1/2 tsk vínsteinslyftiduft
Bláberjabotninn:
- 2 lúkur möndlur, saxaðar gróft
- 4 msk heimatilbúin bláberjasulta (eða t.d. frá St. Dalfour)
- 6 tsk agavesíróp
- 3 msk hrísmjöl
- Nokkrir dropar möndludropar (úr heilsubúð)
Aðferð:
- Blandið saman kókosfeiti, möndlumjöli og agavesírópi í skál. Hrærið vel.
- Bætið kókosmjölinu og vanilludropunum saman við. Hrærið vel.
- Bætið egginu við ásamt hrísmjöli og vínsteinslyftiduftinu.
- Setjið skálina til hliðar.
- Í annarri skál skuluð þið blanda saman söxuðu möndlunum, bláberjasultunni og agavesírópinu.
- Bætið hrísmjölinu og möndludropunum saman við ásamt appelsínu/sítrónuberkinum.
- Klæðið lítið brauðform með bökunarpappír.
- Dreifið vel úr bláberjablöndunni í botninum á forminu.
- Dreifið innihaldinu úr hinni skálinni yfir bláberjabotninn.
- Bakið við 180-200°C í um 25 mínútur.
- Gott er að setja 30 gr af söxuðu, dökku súkkulaði, lífrænt framleiddu með hrásykri (t.d. frá Rapunzel) út í deigið.
- Ef þið fáið ekki möndlumjöl í heilsubúð getið þið malað 6-8 möndlur mjög fínt (án þess þó að þær verði að olíukenndu mauki).
Pistachiobrauð með appelsínukeim
15. janúar, 2006

Það er nú kannski ekki rétt nafn á þessari uppskrift þ.e. pistachiobrauð. Þetta er frekar eins og örþunnar biscottisneiðar. Alveg sama er, þetta er brilliant með kaffinu, eins og besta konfekt. Þetta er líka hollt því það eru einungis eggjahvítur notaðar og engin olía. Hver sneið er því aðeins með um 1 gr af fitu og um 20 hitaeiningar sem getur nú varla talist rosalegt he he. Uppskriftin kemur úr lítilli bók sem ég á frá
Australians Women’s Weekly en ég er búin að breyta uppskriftinni aðeins og gera hana hollari. Gefið ykkur alveg sólarhring til að gera þessa uppskrift því maður þarf að baka brauðið tvisvar og það þarf að kólna vel í millitíðinni. Ekki láta það stoppa ykkur samt, uppskriftin er þess virði að gera hana, loforð :) Brauðið átti að verða aðeins meira lyft (aðeins hærra), á myndinni líkist það meira biscotti. Passið bara að deigið dreifist ekki of mikið því þá verða sneiðarnar of lágar (þ.e. ekki nægilega háar).
Pistachiobrauð með appelsínukeim
Gerir 25 stykki
- 3 eggjahvítur
- 55 gr ávaxtasykur
- 1/4 tsk engiferduft (í upprunalegu uppskriftinni var kardimommuduft en mér finnst engiferið betra)
- 1 tsk mjög fínt rifinn appelsínubörkur. Mikilvægt að nota lífrænt ræktaða ávexti ef maður er að nota börkinn af þeim
- 110 gr spelti
- 110 gr pistachiohnetur, ósaltaðar og ekki í skel
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180°C.
- Þeytið eggjahvíturnar í lítilli skál með handþeytara þangað til mjúkir toppar myndast.
- Bætið sykrinum smátt og smátt út í og hrærið allan tímann (sykurinn á að bráðna í millitíðinni).
- Hrærið varlega speltinu, hnetunum, engiferduftinu og appelsínuberkinum saman.
- Dreifið deiginu í eins konar hleif á bökunarpappír (ekki of þunnan).
- Bakið í 30 mínútur eða þangað til hleifurinn er orðinn brúnn og fallegur.
- Kælið og vefjið inn í álpappír og látið standa yfir nótt.
Daginn eftir:
- Hitið ofninn í 150°C.
- Skerið brauðið með mjög grófum hnífi í 3mm sneiðar.
- Raðið sneiðunum á bökunarpappír og bakið í um 15 mínútur eða þangað til sneiðarnar. eru alveg þurrar og harðar.
- Færið á vírgrind til að kæla.
Súkkulaði biscotti með möndlum og þurrkuðum kirsuberjum
30. janúar, 2006

Eins og með flest biscotti þá er þessi uppskrift nokkuð fitulítil þar sem það er engin fita önnur en í 2 eggjarauðum og kakóduftinu en einnig er afar holl fita í möndlunum (svo ekki sé talað um allt kalkið). Ekkert smjör og engin olía á ferðinni hér. Ég verð nú að viðurkenna að ég fann ekkert sérstaklega mikið bragð af kirsuberjunum en það skipti engu máli því biscottiið var gott. Athugið að ég minnkaði sykurinn um 100 gr (átti að vera 60 gr af púðursykri og 250 gr af sykri) þannig að ef ykkur finnst þessi uppskrift ekki nógu sæt þá er það ástæðan. Einnig notaði ég 2 eggjahvítur og 2 egg í stað 3ja eggja því eggjarauður eru ekki mjög hollar.
Súkkulaði biscotti með möndlum og þurrkuðum kirsuberjum
Gerir um 15 stykki
- 280 gr spelti
- 220 gr ávaxtasykur
- 90 gr þurrkuð kirsuber, söxuð gróft (án viðbætts sykurs)
- 140 gr möndlur, saxaðar gróft (ég nota þær með hýðinu því það er mun hollara en ef maður afhýðir þær)
- 45 gr bökunarkakó (eins fitulítið og til er)
- 2 tsk vínsteinslyftiduft
- 1 tsk vanilludropar eða vanilluduft
- 1/2 tsk möndludropar, hreint
- 2 egg
- 2 eggjahvítur
- Smávegis af vatni
Aðferð:
- Hrærið saman spelti, ávaxtasykur, bökunarkakó og lyftidufti.
- Blandið söxuðu kirsuberjunum og möndlunum út í þurru hráefnin. Hrærið vel.
- Blandið saman eggjum, eggjahvítum, möndludropum og vanilludropum í sér skál og blandið því næst saman við þurru hráefnin.
- Blandið vel saman án þess að hræra allt of mikið. Bætið við smávegis af köldu vatni ef deigið er of þurrt.
- Deigið á að vera klístrað og blautt og gott er að nota plasthanska til að móta það. Það þarf ekki að hnoða deigið en gætið þess samt að loftgöt séu ekki í því.
- Hitið ofninn í 150°C (blástursofn). Skiptið deiginu í tvennt og setjið á plötu með bökunarpappír, deigið ætti að vera um 6 cm. á breidd, 30 cm. á lengdina og um 2,5 cm. á hæðina, gætið þess að láta ekki hlutana tvo snertast.
- Bakið í um 30 mínútur í miðjum ofni.
- Takið úr ofninum, látið kólna í um 30 mínútur og skerið því næst á ská um 1,2 cm. sneiðar.
- Raðið sneiðunum á bökunarpappírinn og gætið þess að þær snertist ekki.
- Bakið í um 15 mínútur.
- Hér er gott að taka litlu sneiðarnar út (endana) því annars brenna þær.
- Takið úr ofninum og bakið í um 15 mínútur
- Slökkvið á ofninum og opnið hann og leyfið biscottiinu að kólna inn í ofninum.
- Geymið í loftþéttu boxi, geymist alveg upp undir 3 vikur.
Valhnetu- og graskersbrauð
25. nóvember, 2007

Þessi uppskrift kemur reyndar aðeins breytt, úr bók sem heitir Farmer’s Market Cookbook (Uppskriftabók bændamarkaðarins). Þetta brauð er ekki sætt en aðeins sætur keimur af því svo það hentar vel t.d. fyrir hummus eða smurost. Graskersfræ eru ótrúlega holl og þau innihalda mikið Zinc sem er sérlega hollt fyrir karlmenn og beinin þeirra (já karlmenn fá líka beinþynningu) sem og blöðruhálskirtil. Hnetur innihalda omega 3 fitusýrur sem eru nauðsynlegar fyrir okkur og gera hjartanu í okkur gott (minnkar líkur á hjartaáfalli). Einnig innihalda valhnetur töluvert af andoxunarefnum. Brauðið er létt og fínt og það kemur ægilega góð lykt þegar maður bakar það! Það er upplagt að baka brauðið í nóvember-desember því þá nær maður í síðustu graskerin og desember er árstíð valhnetanna. Bætið aðeins meira af múskati við deigið til að fá meiri jólalykt af því og ef þið viljið fá það sætara þá þurfið þið að bæta við meira af agave en minnka þá graskerið um 25 grömm.
Valhnetu- og graskersbrauð
Gerir 1 brauð
- 500 gr grasker eðe butternut squash (þyngdin miðast við keypt grasker þ.e. áður en það er verkað)
- 75 gr agavesíróp
- 1 tsk múskat
- 1 tsk kanill
- 2 msk kókosfeiti
- 2 eggjahvítur
- 1 egg
- 400 gr spelti
- 2 tsk vínsteinslyftiduft
- 1/2 tsk heilsusalt (Herbamare)
- 75 gr valhnetur eða pecanhnetur, saxaðar
- 2 msk graskersfræ (má sleppa)
Aðferð:
- Afhýðið og fræhreinsið graskerið og skerið það í grófa bita.
- Setjið graskerið í pott og látið sjóða í um 15-20 mínútur þangað til það er orðið mjúkt.
- Hellið vatninu af og látið kólna. Setjið í matvinnsluvél og maukið vel.
- Setjið 275 gr af graskersmaukinu í stóra skál. Ef er afgangur af maukinu má frysta það og nota síðar.
- Bætið eggjunum, agavesírópinu og kókosfeitinni saman við. Hrærið vel.
- Í annarri skál skuluð þið blanda saman speltinu, vínsteinslyftiduftinu og kryddinu.
- Hellið graskersblöndunni varlega út í ásamt hnetunum.
- Hrærið mjög varlega, rétt til að blanda öllu saman.
- Klæðið brauðform með bökunarpappír.
- Hellið deiginu í formið og bakið í um 45-60 mínútur við 180°C. Takið brauðið út eftir 45 mínútur og athugið hvort það er orðið tilbúið (stingið hníf í miðjuna og ef blaðið er allt í deigi þarf að baka brauðið lengur).
- Berið fram með smurosti, sultu, hummus eða einhverju öðru góðu.
Amerískir bláberja- og pecanhnetumuffins
5. mars, 2003

Þessi muffinsar eru ÆÐI, nammi nammi namm, pecanhneturnar verða svo góðar þegar þær bakast svona með í deiginu. Upprunaleg uppskrift kemur frá Deliu Smith, en ég breytti uppskriftinni aðeins til að gera hana hollari
Amerískir bláberja- og pecanhnetumuffins
Gerir 12 stykki
- 300 gr bláber, frosin eða fersk. Ef notuð eru frosin skal taka þau út úr frystinum rétt áður en þau eru sett í deigið og losuð sundur með t.d. hnífi. Ekki láta frosin ber þiðna of mikið því annars verður deigið fjólublátt og óspennandi
- 100 gr pecan hnetur, smátt saxaðar. Nota má valhnetur í staðinn
- 300 gr spelti
- 2 tsk vínsteinslyftiduft
- 1/2 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
- 2 egg
- 120 gr rapadura hrásykur
- 2 msk agavesíróp
- 50-75ml sojamjólk (minna ef notuð eru frosin bláber), einnig má nota undanrennu, hrísmjólk, haframjólk eða möndlumjólk. Ekki víst að þurfi allan vökvann svo geymið alveg þangað til síðast
- 250 ml Hipp Organic, Holle eða annar barnamatur t.d pear eða blueberry and apple dessert (án viðbætts sykurs)
- 1 msk kókosfeiti
- 2 tsk vanilludropar eða vanilluduft
Ofaná til skreytingar:
- 50 gr pecan hnetur, smátt saxaðar
- 1 msk (eða meira) af rapadura sykri, pínulitlu dreift á hvern muffins
Aðferð:
- Sníðið bökunarpappír (klippið út hring að stærð við undirskál) fyrir hverja möffinsholu. Sjá athugasemdir hér fyrir neðan. Einnig má nota siliconform og þá þarf ekki að nota bökunarpappír.
- Forhitið ofninn í 200°C.
- Byrjið á því að sigta saman speltið, lyftidufið og saltið í stóra skál.
- Í aðra skál skal blandað saman eggi, hrásykrinum, agavesírópinu, 50 ml af sojamjólkinni, vanilludropunum og bláberja/eplamaukinu.
- Setjið nú þurru hráefnin saman við eggjablönduna og veltið aðeins með stórri sleif, mjög varlega þannig að ekki sé hrært of mikið. Ekki vera hissa þó blandan sé ferlega ljót, hún á að vera þannig til að muffinsarnir verið léttir. Ef deigið er mjög þurrt má bæta aðeins meira af sojamjólk við.
- Blandið nú bláberjunum og pecanhnetunum í blönduna, og hrærið sem allra minnst, bara rétt að velta þeim við.
- Setjið nú blöndu af deiginu í hverja holu í forminu.
- Fyllið ekki hverja holu meira en 2/3 upp að rönd.
- Dreifið afgangnum af söxuðu pecanhnetunum og smá af hrásykri á hvern muffins.
- Bakið í 30 mínútur eða þangað til muffinsarnir hafa risið vel og eru gullbrúnir.
- Kælið í 5 mínútur.
- Ef maður notar ekki olíu eða smjör í deigið þá getur maður hvorki notað venjuleg pappírsform, né muffinsbökunarplötuna. Það fást sem sé ekki muffinspappírsform sem maður getur sett í án þess að þurfa að nota smjör eða olíu í deigið. Ég er búin að leita út um allt. Ég hef í staðinn sniðið hringi (strika með penna utan um undirskál) úr bökunarpappír og sett í hvert muffinspláss og svo deigið þar ofan í. Það er hægt að nota möffinspappírinn svo um 6 sinnum. Einnig má nota siliconform og þá þarf ekki bökunarpappír.
Ananas- og gulrótarmuffins
1. júlí, 2007

Nammi namm. Þessir eru sumarlegir og góðir með fullt af vítamínum, trefjum og annarri hollustu. Upplagðir til að taka með í lautarferðina eða í nestið í sumarbústaðinn!
Ananas- og gulrótarmuffins
Gerir 12 stykki
- 200 gr gulrætur, rifnar fínt
- 120 gr ferskur ananas (um 4 sneiðar), saxaður í litla bita (langbest er að nota ferskan en einnig má nota í dós. Gætið þess bara að kaupa í eigin safa...ekki sírópi)
- 225 gr spelti
- 2 tsk vínsteinslyftiduft
- 1/2 tsk heilsusalt (Herbamare)
- 2 tsk kanilduft
- 1 egg
- 1 eggjahvíta
- 110 gr ávaxtasykur
- 120 ml soyamjólk eða vatn. Gæti þurft meira eða minna
- 1 msk kókosfeiti eða ólífuolía
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200 °C.
- Rífið gulrætur og saxið ananasinn. Geymið.
- Í stærri skál skuluð þið sigta saman spelti, vínsteinslyftiduft, salt og kanilduft.
- Í annarri skál skuluð þið blanda saman eggjunum, sykrinum, soyamjólkinni, gulrótum, ananas og kókosfeitinni. Hrærið vel.
- Hellið blauta hráefninu saman við það þurra og blandið saman varlega. EKKI hræra heldur veltið deiginu með trésleif þangað til allt blandast saman. Alls ekki nota hrærivél. Mikilvægt er að hræra sem minnst til að deigið verði létt í bakstri (þess vegna er líka gott að sigta það).
- Setjið í möffinsform (siliconform eða venjulegt form með heimatilbúnum möffinsformum, sjá athugasemdir fyrir neðan).
- Bakið í 20-25 mínútur.
- Gott er að bæta við rúsínum, kókos, valhnetum, pecahnetum eða appelsínuberki í uppskriftina.
- Ef maður notar ekki olíu eða smjör í deigið þá getur maður hvorki notað venjuleg pappírsform, né muffinsbökunarplötuna. Það fást sem sé ekki muffinspappírsform sem maður getur sett í án þess að þurfa að nota smjör eða olíu í deigið. Ég er búin að leita út um allt. Ég hef í staðinn sniðið hringi (strika með penna utan um undirskál) úr bökunarpappír og sett í hvert muffinspláss og svo deigið þar ofan í. Það er hægt að nota möffinspappírinn svo um 6 sinnum. Einnig má nota siliconform og þá þarf ekki bökunarpappír.
Appelsínu-morgunverðarmuffins
5. mars, 2003
Þessi uppskrift er líka upprunalega frá Nigellu Lawson (úr "How to be a Domestic Goddess"). Það er upplagt að baka þessa uppskrift þegar maður er með gesti, og hafa muffinsana í morgunmat ásamt lífrænt framleiddri sultu án viðbætts sykurs og smurosti, mmmmmmmm.
Appelsínu-morgunverðarmuffins
Gerir rúmlega 10 muffinsa
- 250 gr spelti
- 25 gr möndluduft (ground almonds)
- 1 msk vínsteinslyftiduft
- 50 gr ávaxtasykur
- Rifinn börkur af 1 appelsínu
- 100 ml hreinn appelsínusafi
- 100 ml undanrenna
- 1 egg
- 1 stappaður banani
- 1 msk kókosfeiti eða ólífuolía
- Muffinsbökunarform fyrir 12 muffinsa
Aðferð:
- Forhitið ofninn í 200°C.
- Þurrefnum blandað saman, ásamt rifna appelsínuberkinum.
- Blandið saman appelsínusafanum og mjólkinni og hrærið eggið saman við ásamt banananum og kókosfeitinni eða ólífuolíunni.
- Blandið saman við þurrefnin og hrærið í með gafli og hrærið bara smá, ekki of mikið því deigið á að vera mjög gróft og kekkjótt og rétt svo blandað saman.
- Ef notað er muffinsbökunarplata, setjið þá bökunarpappír í hvert form (sjá athugasemdir fyrir neðan) eða notið siliconform
- Setjið deig í 2/3 af hverju muffins formi.
- Bakið í 20-25 mínútur.
- Kælið í 5 mínútur og færið svo yfir á vírgrind til að kæla í aðrar 5-10 mín.
- Berið fram með smurosti, ostsneiðum og sykurlausri sultu t.d. bláberja- eða jarðarberjasultu og já auðvitað sykurlausu marmelaði!!!
- Ef maður notar ekki olíu eða smjör í deigið þá getur maður hvorki notað venjuleg pappírsform, né muffinsbökunarplötuna. Það fást sem sé ekki muffinspappírsform sem maður getur sett í án þess að þurfa að nota smjör eða olíu í deigið. Ég er búin að leita út um allt. Ég hef í staðinn sniðið hringi (strika með penna utan um undirskál) úr bökunarpappír og sett í hvert muffinspláss og svo deigið þar ofan í. Það er hægt að nota möffinspappírinn svo um 6 sinnum. Einnig er hægt að nota siliconform og þá þarf ekki bökunarpappír.
Bananamuffins
5. mars, 2003

Muffinsgerðin á þessu heimili er nú alveg sérkapituli. Jóhannes er svoddan muffinskarl að ég held að núna eigi ég 6 bækur bara um muffins (átti ekki 1 áður en við fluttum til London) því með stærra eldhúsi er meira pláss til tilrauna. Það er svo einfalt að búa til muffins, bara passa að hræra deigið ekki of mikið svo muffinsarnir verði ekki of harðir og þungir. Ég nota aldrei smjör og ekki mikla fitu í muffinsuppskrift (yfirleitt óþarfi), það er undir ykkur komið hvort þið viljið gera þær óhollari eða ekki, þetta er mín útgáfa allavega :)
Upprunaleg uppskrift er frá Nigellu Lawson "How to be a Domestic Goddess" en hún fékk svo uppskriftina úr "The Joy of Muffins" (sem bæði ég og Nigella eigum :) Ég er búin að breyta uppskriftinni aðeins enda erum við Nigella afar ólíkar hvað varðar stefnu í heilsumálum he he.
Bananamuffins
Gerir 12 muffinsa
- 250 gr spelti
- 100 gr rapadura sykur
- 1 msk byggmalt síróp (enska: barlay malt syrup). Má nota agavesíróp í staðinn
- 50 gr haframjöl
- 5 litlir, vel þroskaðir bananar eða 4 stórir
- 1 egg
- 3 eggjahvítur (notið aðeins 2 ef eggin eru stór)
- 2 kúfullar tsk vínsteinslyftiduft
- 1 tsk kanill (má vera meira)
- smá heilsusalt (Herbamere)
- muffinsform fyrir 12 muffins. Bökunarpappír í hverri "holu" (sjá athugasemd fyrir neðan) eða siliconform.
Aðferð:
- Forhitið ofn í 190°C.
- Þurrefnum blandað saman mjög vel, best að nota sigti.
- Stappið bananana og bætið eggjunum ásamt byggmaltsírópinu út í.
- Blandið saman við speltið og hrærið smá, ALLS ekki of mikið því deigið á að vera gróft og kekkjótt til að það haldist létt.
- Ef notað er muffins bökunarplata, setjið þá sérsniðinn bökunarpappír inn í, sjá athugasemdir hérna að neðan).
- Setjið deig í hverja muffinsholu og fyllið 2/3 upp að brún.
- Bakið í um 25 mínútur.
- Kælið í 5 mínútur á borði og færið svo yfir á vírgrind til að kæla í aðrar 5-10 mín.
- Fjarlægið pappírinn varlega af muffinsunum (ef notaður).
- Það er guðdómlegt að setja 1 lúku af söxuðum pecanhnetum út í deigið alveg í lokin.
- Ef maður notar ekki olíu eða smjör í deigið þá getur maður hvorki notað venjuleg pappírsform, né muffinsbökunarplötuna. Það fást sem sé ekki muffinspappírsform sem maður getur sett í án þess að þurfa að nota smjör eða olíu í deigið. Ég er búin að leita út um allt. Ég hef í staðinn sniðið hringi (strika með penna utan um undirskál) úr bökunarpappír og sett í hvert muffinspláss og svo deigið þar ofan í. Það er hægt að nota möffinspappírinn svo um 6 sinnum. Einnig má nota siliconform og þá þarf ekki bökunarpappír.
Bláberja- og valhnetumuffins
5. mars, 2003

Þessa uppskrift fann ég í Living etc (húsablað) sem ég var áskrifandi að hérna í UK (einn kosturinn við að búa hér er að maður getur verið áskrifandi að fullt af blöðum fyrir lítinn pening. Það er ekkert æðislegra heldur en þegar tímarit koma inn um lúguna, alveg jól 3var í mánuði hjá mér sko). Ég held að ég verði að setja þessa muffinsa í efsta sætið hjá mér, mér finnst þeir rosalega góðir (ég breytti uppskriftinni samt aðeins úr Living etc því hún var svolítið óholl þar). Að geta notað fersk, íslensk bláber er auðvitað bara það besta í heimi. Bláber eru eitt það hollasta sem maður getur borðað vegna andoxunarefna (og innihalda líka C vítamín og járn) og valhnetur ekki síður hollar (t.d. fyrir hjartað). Athugið að uppskriftin er frekar stór (16 stykki).
Bláberja- og valhnetumuffins
Gerir 14-16 muffins
- 370 gr spelti
- 3 tsk vínsteinslyftiduft
- 20 gr hveitiklíð (minna ef muffinsarnir eru fyrir börn)
- 1 tsk kanill
- 1/2 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
- 100 gr rapadura hrásykur eða annar hrásykur
- 30 ml agavesíróp
- 3 eggjahvítur
- 250 ml Hipp Organics eða Holle barnamatur, t.d. apple and blueberry dessert eða pudding (sykurlaus og lífrænt framleiddur)
- 60 gr valhnetur, saxaðar gróft
- 200 gr fersk eða frosin bláber
- 1 dl undanrenna eða mjólk (notið aðeins 0.5 dl af mjólk ef eru frosin bláber í uppskriftinni annars 1 dl). Þið gætuð þurft meiri mjólk. Einnig má nota sojamjólk, haframjólk eða hrísmjólk
Aðferð:
- Klæðið möffinsformið með bökunarpappír (sjá athugasemdir hér fyrir neðan) eða notið siliconform.
- Forhitið ofninn í 180°C
- Blandið speltinu, lyftidufti, saltinu, sykrinum, og kanilnum saman og hrærið vel.
- Hrærið saman eggjahvítunum, bláberjamaukinu, mjólkinni, agavesírópinu, og valhnetunum og bætið saman við. Bætið meiri mjólk við ef þarf.
- Blandið saman en ekki hræra of mikið, bara rétt velta deiginu við.
- Blandið bláberjunum varlega saman við, hrærið eins lítið og hægt er.
- Setjið deig í hverja muffinsholu og fyllið 2/3 upp að brún.
- Bakið í miðjum ofninum í 30-35 mínútur.
- Kælið í 5 mínútur og færið svo yfir á vírgrind til að kæla í aðrar 5-10 mínútur.
- Gætið þess að bláberin þiðni ekki áður en þau eru sett í deigið. Hrærið eins lítið og hægt er því annars verður deigið öskrandi fjólublátt og ógirnilegt!
- Ef maður notar ekki olíu eða smjör í deigið þá getur maður hvorki notað venjuleg pappírsform, né muffinsbökunarplötuna. Það fást sem sé ekki muffinspappírsform sem maður getur sett í án þess að þurfa að nota smjör eða olíu í deigið. Ég er búin að leita út um allt. Ég hef í staðinn sniðið hringi (strika með penna utan um undirskál) úr bökunarpappír og sett í hvert muffinspláss og svo deigið þar ofan í. Það er hægt að nota möffinspappírinn svo um 6 sinnum. Einnig má nota siliconform og þá þarf ekki bökunarpappír.
Epla- og hveitiklíðsmuffins
5. mars, 2003

Þessi uppskrift var aftan á hveitiklíðspakka sem ég keypti einhvern tímann. Mjög holl og góð, og upplagt að nota epli sem eru farin að láta aðeins á sjá
Epla- og hveitiklíðsmuffins
Gerir 12 muffins
- 2 miðlungsstór sæt epli (t.d. jonagold eða gulgræn), skræld og skorin í litla bita
- 3/4 bolli hreinn eplasafi (ég miða við 250 ml bolla)
- 1,5 msk vanilludropar eða vanilluduft
- 2 bollar spelti (300 gr)
- 1/4 bolli ávaxtasykur
- 2 msk byggmaltsíróp (enska: barley malt syrup)
- 2,5 tsk vínsteinslyftiduft
- 1/4 tsk heilsusalt (Herbamare)
- 2 tsk (eða meira eftir smekk) kanilduft
- 1/2 tsk malað múskat (enska: nutmeg)
- 2/3 bolli hveitiklíð
- 1 lítil krukka (125 ml) eplamauk (t.d. frá Hipp organic), lífrænt framleitt (og án viðbætts sykurs)
- 2 eggjahvítur
- 1/3 bolli rúsínur
- Smávegis af haframjöli til að setja ofan á hverja muffins (má sleppa)
Aðferð:
- Undirbúið möffinsbökunarformið (sjá athugasemdir hér fyrir neðan) eða notið siliconform.
- Forhitið ofn í 200°C.
- Setjið eplabitana og rúsínur í skál og hellið eplasafa og vanilludropum saman við. Látið liggja í bleyti í 15 mín. Má líka alveg sleppa því að liggja í bleyti, er samt rosa gott.
- Þurrefnum blandað saman, spelti, lyftidufti, múskati, kanil, og hveitiklíð ásamt ávaxtasykri.
- Blandið eplamauki og eggjahvítum útí skálina með eplabitunum og hrærið varlega.
- Blandað saman við þurrefnin og hrærið í með gafli og hrærið bara smá, ekki of mikið því deigið á að vera mjög gróft og kekkjótt til að það verði létt.
- Setjið bökunarpappírshring í hverja muffins holu ef ekki er notað siliconform.
- Fyllið hverja muffinsholu 2/3 upp að brún.
- Bakið í 15-20 mínútur.
- Kælið í 5 mínútur og færið svo yfir á vírgrind til að kæla í aðrar 5-10 mín.
- Ef maður notar ekki olíu eða smjör í deigið þá getur maður hvorki notað venjuleg pappírsform, né muffinsbökunarplötuna. Það fást sem sé ekki muffinspappírsform sem maður getur sett í án þess að þurfa að nota smjör eða olíu í deigið. Ég er búin að leita út um allt. Ég hef í staðinn sniðið hringi (strika með penna utan um undirskál) úr bökunarpappír og sett í hvert muffinspláss og svo deigið þar ofan í. Það er hægt að nota möffinspappírinn svo um 6 sinnum. Einnig má nota siliconform og þá þarf ekki bökunarpappír.
Graskers- og bananamuffins
25. nóvember, 2007

Ég átti smá afgang af graskeri úr annarri uppskrift og hugsaði með mér að ég vildi nú endilega nota það (ég hendi aldrei mat). Mér varð hugsað til þess hversu langt er liðið að jólum nú í nóvember og fannst fullkomið að búa til ilmandi graskers, kanil og bananamuffinsa. Þeir eru bara nokkuð góðir og að sjálfsögðu hollir. Ef mann langar að bjóða fólki upp á eitthvað annað en jólakökur og smákökur þá eru þessir upplagðir. Ég er alveg að sjá fyrir mér á Þorláksmessumorgun...að baka þessa með góðu kaffi.
Graskers- og bananamuffins
Gerir 10-12 stykki
- 400 gr grasker eðe butternut squash (þyngdin miðast við keypt grasker þ.e. áður en það er verkað)
- 100 gr ávaxtasykur
- 2 tsk múskat
- 1 tsk kanill
- 2 msk kókosfeiti
- 1 msk byggmaltsíróp (enska: barley malt syrup) eða hrísgrjónasíróp (enska: brown rice syrup). Fæst t.d. í Yggdrasli
- 1 egg
- 1 stór, vel þroskaður banani
- 200 gr spelti
- 2 tsk vínsteinslyftiduft
- 1/2 tsk heilsusalt (Herbamare)
- 75 gr valhnetur eða pecanhnetur, saxaðar
Aðferð:
- Afhýðið og fræhreinsið graskerið og skerið það í grófa bita.
- Setjið graskerið í pott og látið sjóða í um 15-20 mínútur þangað til það er orðið mjúkt.
- Hellið vatninu af og látið kólna. Setjið í matvinnsluvél og maukið vel.
- Setjið 180 gr af graskersmaukinu í stóra skál. Ef er afgangur af maukinu má frysta það og nota síðar.
- Maukið banana í matvinnsluvél eða stappið hann mjög vel.
- Bætið egginu, agavesírópinu og kókosfeitinni saman við banana og graskerið. Hrærið vel.
- Í annarri skál skuluð þið blanda saman speltinu, vínsteinslyftiduftinu og kryddinu.
- Hellið graskersblöndunni varlega út í.
- Blandið hnetunum saman við og rærið mjög varlega, rétt til að blanda öllu saman.
- Ef maður notar ekki olíu eða smjör í deigið þá getur maður hvorki notað venjuleg pappírsform, né muffinsbökunarplötuna. Það fást sem sé ekki muffinspappírsform sem maður getur sett í án þess að þurfa að nota smjör eða olíu í deigið. Ég er búin að leita út um allt. Ég hef í staðinn sniðið hringi (strika með penna utan um undirskál) úr bökunarpappír og sett í hvert muffinspláss og svo deigið þar ofan í. Það er hægt að nota möffinspappírinn svo um 6 sinnum. Einnig má nota siliconform og þá þarf ekki bökunarpappír.
Gulrótarmuffins
5. mars, 2003

Þetta er sama uppskriftin og í
"alvöru gulrótarkökunni". Jóhannesi finnst gulrótarkakan svo góð og af því hann er svo mikill muffinskarl þá datt honum í hug að gæti verið gott að búa til muffins úr sama deigi. Það reyndist rétt því muffinsarnir eru frábærir úr þessu deigi (finnst okkur allavega).
Gulrótarmuffins
Gerir 10-12 muffins
- 100 gr rapadura sykur
- 2 stór egg, í stofuhita
- 190 ml krukka af Hipp Organic eða Holle sykurlausum barnamat t.d. Apple and Blueberry dessert
- 200 gr spelti
- 1 msk vínsteinslyftiduft
- 25 gr hveitiklíð
- 3 tsk kúfullar af blönduðu kryddi (t.d. múskat (enska: nutmeg), kanill, negull, vanilla)
- Rifinn börkur af 1 appelsínu
- 200 gr afhýddar gulræddur og rifnar gróft á rifjárni
- 175 gr rúsínur
Aðferð:
- Forhitið ofninn í 170°C.
- Byrjið á því að þeyta létt saman rapadura sykurinn, eggin og ávaxtamaukið (barnamatinn) í skál.
- Blandið því næst speltinu,vínsteinslyftiduftinu og blandaða kryddinu í skálina.
- Hrærið allt saman og blandið svo appelsínuberkinum, gulrótunum og rúsínunum út í.
- Hrærið eggjablöndunni varlega saman við og EKKI hræra of mikið bara rétt svo þannig að deigið blandist saman (um það bil 10 hreyfingar er nóg).
- Setjið muffins bökunarpappír í hverja holu (sjá athugasemdir hér fyrir neðan) eða notið siliconform.
- Setjið deig 2/3 upp á brún í hverja muffins holu.
- Bakið í miðjum ofninum í 35-40 mínútur.
- Kælið í 5 mínútur og færið svo yfir á vírgrind til að kæla í aðrar 5-10 mín.
- Ef maður notar ekki olíu eða smjör í deigið þá getur maður hvorki notað venjuleg pappírsform, né muffinsbökunarplötuna. Það fást sem sé ekki muffinspappírsform sem maður getur sett í án þess að þurfa að nota smjör eða olíu í deigið. Ég er búin að leita út um allt. Ég hef í staðinn sniðið hringi (strika með penna utan um undirskál) úr bökunarpappír og sett í hvert muffinspláss og svo deigið þar ofan í. Það er hægt að nota möffinspappírinn svo um 6 sinnum. Einnig má nota siliconform og þá þarf ekki bökunarpappír.
Hawaii ananasmuffins
18. maí, 2003

Þessi uppskrift er upprunalega úr bók sem ég pantaði af Amazon. Nigella Lawson (sjónvarpskokkur) mælti með henni og ég sá ekki eftir að kaupa hana. Hún var mjög ódýr (engar myndir reyndar, bara einföld gormabók) en stútfull af fínum uppskriftum.
Hawaii ananasmuffins
Gerir 10-12 muffins
- 2 egg (eða 1 egg + 1 eggjahvíta og 1 msk kókosfeiti)
- 1 msk kókosfeiti
- 170 ml hreinn ananassafi eða appelsínusafi
- 1 msk hreint hlynsíróp (enska: maple syrup) eða agavesíróp
- 125 ml krukka Hipp Organic, Holle eða Organix barnamatur (sykurlaust ávaxtamauk t.d. "banana & peach dessert")
- 350 gr spelti
- 1 msk hveitikím (enska: Wheat germ, má sleppa)
- 1/2 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
- 2 tsk vínsteinslyftiduft
- 100 gr rapadura hrásykur
- 30 gr kókosmjöl
- 160 gr ferskur, vel þroskaður ananas. Saxið í smáa bita (svona eins og helming af litlum sykurmola). Einnig má nota anansbita eða kurl í dós (í eigin safa) en það er samt mun betra að nota ferskan.
- 1 msk rapadura sykur (ofan á)
- 2 msk kókosmjöl (ofan á)
- 1 msk rifinn börkur af appelsínu til að setja ofan á (má sleppa)
Aðferð:
- Forhitið ofninn í 180°C.
- Hrærið saman egg, ávaxtamauk, hlynsíróp, rapadura sykur og ananassafa.
- Í annari skál, sigtið saman spelti, lyftiduft og salt.
- Hrærið varlega saman, bara í nokkrar sekúndur.
- Bætið ananaskurlinu og kókosnum saman við, varlega, hrærið með stórri sleif eins lítið og hægt er (bara nokkra snúninga).
- Setjið bökunarpappír ofan í hverja muffinsholu (sjá athugasemdir fyrir neðan, einnig er hægt að nota siliconform og þá þarf ekki bökunarpappír).
- Setjið deigið í hverja holu, um 2/3 upp að brún.
- Dreifið 1 msk af rapadura yfir muffinsana ásamt 2 msk af kókos og rifna appelsínuberkinum (ef hann er notaður).
- Bakið í um 30-35 mínútur.
- Látið kólna í smá stund.
- Kókosmjölið var ekki í upphaflegu uppskriftinni og það má alveg sleppa því (enda er kókosmjöl frekar óhollt) en það gefur samt gott bragð og passar vel við ananasinn.
- Ein leið til að athuga hvort ananas er þroskaður er að lyfta honum upp. Hann á að virka þungur miðað við stærð. Hann á líka að gefa aðeins eftir þegar maður ýtir í börkinn og botninn á honum á að lykta aðeins af ananas (þungur, sætur ilmur). Að lokum er hægt að kippa einu blaði úr blaðakrónunni efst. Ef blaðið losnar auðveldlega frá er ananasinn þroskaður)
- Ef maður notar ekki mikla fitu í deigið þá getur maður hvorki notað venjuleg pappírsform, né muffinsbökunarplötuna. Það fást sem sé ekki muffinspappírsform sem maður getur sett í án þess að þurfa að nota smjör eða olíu í deigið. Ég er búin að leita út um allt. Ég hef í staðinn sniðið hringi (strika með penna utan um undirskál) úr bökunarpappír og sett í hvert muffinspláss og svo deigið þar ofan í. Það er hægt að nota möffinspappírinn svo um 6 sinnum. Einnig má nota siliconform og þá þarf ekki bökunarpappír.
Kryddaðir appelsínu-og gulrótar muffins
8. mars, 2003
Ég fékk þessa uppskrift úr einni muffins bók sem ég á ("Muffins; Fast and Fantastic"). Ég tók út 90 ml af olíu eða smjöri og setti 125 ml af ávaxtamauki í staðinn (Hipp Organic barnamat).
Kryddaðir appelsínu-og gulrótar muffins
Gerir 10-12 muffins
- 280 gr spelti
- 2,5 tsk vínsteinslyftiduft
- 1/2 tsk heilsusalt (Herbamere)
- 1/2 tsk kanill
- 1/4 tsk múskat (enska: nutmeg)
- 1/4 tsk negull (enska: clove)
- 2 meðalstór egg
- 90 gr ávaxtasykur
- Börkur af 1 appelsínu (fínt rifinn og gætið þess að rífa ekki í þetta hvíta því það er beiskt. Það er sérstaklega mikilvægt að nota lífrænt ræktaða ávexti þegar maður notar börkinn)
- 180 ml hreinn appelsínusafi
- 110 gr gulrætur, rifnar fínt
- 125 ml krukka af Hipp Organic barnamat (t.d. eplamauk, aprikókusumauk) án viðbætts sykurs
- 85 gr rúsínur
- 50 gr pecan- eða valhnetur, saxaðar til að setja ofan á
- 1 msk kókosfeiti eða ólífuolía
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200 °C
- Sigtið saman í stóra skál, speltið, lyftiduft, bökunarsódann, salt og krydd.
- Í annari skál, hrærið eggin með gafli og bætið sykrinum, appelsínuberkinum og kókosfeitinni eða ólífuolíunni saman við.
- Bætið appelsínusafanum, gulrótinni og barnamatnum út í.
- Hellið blautu blöndunni út í þurru blönduna og hrærið varlega, bara rétt þannig að það blandist saman.
- Setjið rúsínurnar út í, við síðustu hræruna. Ekki hafa áhyggjur af því ef deigið er ljótt og kekkjótt, það á að vera þannig (betra að hafa það svolítið blautt).
- Setjið bökunarpappír í hverja holu á muffinsbökunarplötunni.
- Setjið deig í hverja holu, 2/3 upp að rönd.
- Setjið smávegis af söxuðu hnetunum á hvern muffins.
- Bakið í 25 mínútur.
- Kælið í nokkrar mínútur.
- Ef maður notar ekki olíu eða smjör í deigið þá getur maður hvorki notað venjuleg pappírsform, né muffinsbökunarplötuna. Það fást sem sé ekki muffinspappírsform sem maður getur sett í án þess að þurfa að nota smjör eða olíu í deigið. Ég er búin að leita út um allt. Ég hef í staðinn sniðið hringi (strika með penna utan um undirskál) úr bökunarpappír og sett í hvert muffinspláss og svo deigið þar ofan í. Það er hægt að nota möffinspappírinn svo um 6 sinnum. Einnig má nota siliconform og þá þarf ekki bökunarpappír.
Kryddaðir muesli muffins
3. apríl, 2003
Þetta er uppskrift sem ég henti saman einn sunnudagsmorguninn. Ég hugsaði nefnilega einn morguninn þegar ég var að borða morgunmatinn; fyrst maður notar haframjöl og þurrkaða ávexti í muffins, þá hlýtur maður að geta notað muesli líka ekki satt?? Jú það reyndist alveg vera rétt og þeir urðu bara mjög fínir. Það eina sem maður á að passa er að nota ekki muesli með sykri (þ.e. ef maður borðar ekki sykur) heldur bara hreint muesli með 45% af þurrkuðum ávöxtum.
Kryddaðir muesli muffins
Gerir c.a. 10 muffins
- 250 gr spelti
- 70 gr sykurlaust muesli með þurrkuðum ávöxtum (hægt að nota haframjöl og saxaða, þurrkaða ávexti í staðinn)
- 2 tsk vínsteinslyftiduft
- 1 tsk kanill
- 1 tsk vanilludropar
- 1/2 tsk múskat (enska: nutmeg)
- 80 gr ávaxtasykur
- 1/2 tsk engiferduft
- 1 egg
- 225 ml hrein jógúrt + 2 tsk vanilludropar eða vanilluduft
- 75 gr rúsínur
- 125 ml krukka ávaxtamauk (Hipp Organic barnamatur með t.d. blönduðum ávöxtum eða aprikósum eða eplum, bönunum án viðbætts sykurs)
- 1 dl undanrenna (ef þarf)
Aðferð:
- Sníðið hring úr bökunarpappír með t.d. undirskál. Einn hring fyrir hverja möffinsholu.
- Sigtið saman spelti, lyftiduft, kanil, múskat, engifer og sykur í stóra skál.
- Í annari skál hrærið eggið aðeins.
- Blandið vanilludropum, ávaxtamauki og jógúrti saman við.
- Blandið nú blautu hráefnunum varlega saman við þurru hráefnin og gætið þess að hræra ekki of mikið, deigið á að vera kekkjótt.
- Hellið smá undanrennu saman við ef deigið er of þurrt.
- Blandið rúsínunum saman við varlega með stórri sleikju. Ekki hræra.
- Setjið deig í hverja holu um 2/3 upp að brún.
- Bakið við 200°c í 20-25 mínútur.
- Ef maður notar ekki olíu eða smjör í deigið þá getur maður hvorki notað venjuleg pappírsform, né muffinsbökunarplötuna. Það fást sem sé ekki muffinspappírsform sem maður getur sett í án þess að þurfa að nota smjör eða olíu í deigið. Ég er búin að leita út um allt. Ég hef í staðinn sniðið hringi (strika með penna utan um undirskál) úr bökunarpappír og sett í hvert muffinspláss og svo deigið þar ofan í. Það er hægt að nota möffinspappírinn svo um 6 sinnum. Einnig má nota siliconform og þá þarf ekki bökunarpappír.
Mangó- og bananamuffins með pecanhnetum
13. apríl, 2008

Það er eitthvað undursamlegt við mangó, banana og pecanhnetur. Mango er gríðarlega mikið notað í Afríku og bananar einnig. Við Jóhannes vorum einu sinni á hóteli á Zanzibar í Tanzaníu sem hét Zanzibar Coffee House. Hótelið var æðislegt og var kaffibrennsla á fyrstu hæð Jóhannesi til mikillar gleði. Hvert herbergi hét eftir kaffilögunaraðferð eins og Espresso, Macchiato, Cappuchino o.s.frv. Herbergin voru dásamlega falleg og við vöknuðum upp á morgnana við óminn úr moskunum í kring. Morgunmatinn borðuðum við uppi á þaki hótelsins og þar var í boði heimatilbúið hnetumuesli, ferskir ávextir, ferskur djús, vöfflur og ég veit ekki hvað. Á jarðhæðinni er besta kaffihús Zanzibar og þar var hægt að fá mango muffins. Ég smakkaði þá reyndar ekki en ég gat spurt afgreiðslustúlkuna svona gróflega hvað var í uppskriftinni. Ef þið eigið leið um Stone Town, Zanzibar þá megið þið ekki missa af þessum frábæra stað. Uppskriftin varð svolítið stór þannig að ég fékk 16 mjög stóra muffinsa en það má minnka uppskriftina og fá færri og minni. Það er fínt að frysta muffinsa tvo saman í poka og grípa svo með sér í nesti.
Mangó- og bananamuffins með pecanhnetum
Gerir 14-16
- 200 gr spelti
- 90 gr rapadura sykur
- 1 msk byggmaltsíróp (eða agavesíróp)
- 1 msk vínsteinslyftiduft
- 1 tsk kanill
- 1/2 tsk heilsusalt (Herbamare)
- 1 egg og 1 eggjahvíta, hrærið lauslega saman
- 2 bananar, vel þroskaðir
- 1 msk kókosfeiti
- 1 msk límónusafi
- 275 gr mangó, vel þroskað (þyngd reiknuð eftir að það er afhýtt)
- 50 gr rúsínur eða saxaðar döðlur
- 40 gr saxaðar pecanhnetur eða valhnetur
Aðferð:
- Blandið saman speltinu, saltinu, vínsteinslyftiduftinu og kanilnum í stóra skál.
- Stappið bananana.
- Afhýðið mangoið og skerið 275 gr af kjötinu í mjög litla bita.
- Í annarri skál skuluð þið blanda saman eggjunum, kókosfeitinni, agavesírópinu, límónusafanum og rapadura sykrinum.
- Bætið bönununum saman við eggjablönduna.
- Hellið eggjablöndunni út í stóru skálina og blandið varlega saman (bara velta deiginu til og ALLS ekki hræra).
- Bætið mangoinu, rúsínunum og hnetunum saman við, mjög varlega án þess að hræra.
- Bakið við 200°C í um 20-25 mínútur.
- Ef maður notar ekki mikla olíu eða smjör í deigið þá getur maður hvorki notað venjuleg pappírsform, né muffinsbökunarplötuna. Það er best að nota siliconform og strjúka pappír með smávegis olíu innan í formin. Ef þið eigið ekki silioconform má sníða hringi (strika með penna utan um undirskál) úr bökunarpappír og sett í hvert muffinspláss og svo deigið þar ofan í. Það er hægt að nota muffinspappírinn svo um 6 sinnum.
Orkumuffins
18. apríl, 2003
Þessi uppskrift er dálítið tímafrek þannig að gefið ykkur góðan tíma ef þið ætlið að fara að baka hana. Hún er reyndar alveg þess virði og það er fátt betra en að gæða sér á nýbökuðum muffins og kaffi (koffeinlausu að sjálfsögðu) og appelsínusafa :) Þessir muffins eru mjög hollir og stútfullir af vítamínum (úr hnetunum, ávöxtunum, speltinu, mjólkinni o.s.frv.) en engu að síður eru þeir hitaeiningaríkir því það er kókosmjöl (sem er reyndar ekkert hollt) og hnetur og rúsínur í þeim. Allt er gott í hófi svo sem. Þessir muffinsar eru alveg stórfínir sem morgunmatur því þeir eru svo saðsamir og orkumiklir.
Orkumuffins
Gerir c.a. 12 muffins
- 100 gr ávaxtasykur
- 2 msk byggmaltsíróp (enska: Barlay malt syrup) eða 20 gr til viðbótar af ávaxtasykri. Einnig má nota hunang
- 350 gr spelti
- 1 msk kanill
- 2 tsk vínsteinslyftiduft
- 1/2 tsk heilsusalt (Herbamare)
- 30 gr kókosmjöl (má sleppa)
- 50 gr rúsínur
- 2 stórar gulrætur, rifnar
- 1 epli, skrælt og rifið
- 150 gr ananaskurl í eigin safa
- 50 gr pecanhnetur eða valhnetur, brytjaðar gróft
- 150 ml léttmjólk (eða soyamjólk)
- 1 msk vanilludropar eða vanilluduft
- 1 stór krukka (190-220ml) "Apple, strawberry and blueberry compote" eða "Apple and Apricot" mauk frá Hipp Organic (sykurlaus barnamatur). Má nota önnur mauk líka t.d. banana.
- 2 egg
Aðferð:
- Forhitið ofninn í 190°C.
- Sníðið bökunarpappír (gerið hring með undirskál), einn hring fyrir hverja möffinsholu. Sjá athugasemdir hér fyrir neðan. Einnig má nota siliconform og þá þarf ekki bökunarpappír.
- Sigtið saman spelti, sykri, lyftidufti, salti og kanil í stóra skál.
- Bætið rúsínum, kókosmjöl, rifnu gulrótunum, rifna eplinu, ananaskurlinu og hnetunum samanvið og hrærið vel.
- Í annari skál létthrærið eggið, og bætið vanilludropunum, ávaxtamaukinu og mjólkinni saman við.
- Blandið blautu hráefnin saman við þurru hráefnin mjög varlega. Hrærið laust (eiginlega bara að velta deiginu, ekki hræra).
- Setjið bökunarpappír (hringinn) í hverja möffinsholu
- Setjið deig í hvert muffinsform a.m.k. 2/3 upp að rönd
- Bakið í 30-35 mínútur.
- Ef ykkur finnst deigið vera of þurrt, bætið þá aðeins af soyamjólk eða undanrennu saman við.
- Ef maður notar ekki olíu eða smjör í deigið þá getur maður hvorki notað venjuleg pappírsform, né muffinsbökunarplötuna. Það fást sem sé ekki muffinspappírsform sem maður getur sett í án þess að þurfa að nota smjör eða olíu í deigið. Ég er búin að leita út um allt. Ég hef í staðinn sniðið hringi (strika með penna utan um undirskál) úr bökunarpappír og sett í hvert muffinspláss og svo deigið þar ofan í. Það er hægt að nota möffinspappírinn svo um 6 sinnum. Einnig má nota siliconform og þá þarf ekki bökunarpappír.
Peru- og engifermuffins
17. febrúar, 2008

Þessi uppskrift kemur nokkuð breytt úr nýjustu bókinni hennar Nigellu Lawson, Nigella Express. Við getum varla verið ólíkari hvað varðar matargerð..erum alveg á öndverðum meiði hvað hollustuna varðar en ég ber ómælda virðingu fyrir ástríðu hennar á mat og hráefni. Hún skrifar einnig skemmtilegar sögur með uppskriftinum og myndirnar í bókunum hennar eru fallegar svo henni fyrirgefst margt. Ég breytti aðeins uppskriftinni hennar og notaði helmingi minni sykur (notaði rapadura) en átti að gera og notaði aðeins 2 mtsk af kókosfeiti í stað 125 ml af smjöri og 1 egg og eina eggjahvítu í stað 2 eggja. Muffinsarnir urðu samt djúsí og góðir, meira að segja á 3ja degi. Ég notaði einnig soyamjólk í stað venjulegrar mjólkur. Það nefnilega þarf ekki alltaf alla þessa fitu og allan þennan sykur...þetta er oft bara ávani. Ég ákvað að setja þessa uppskrift inn núna í upphafi árs því þetta eru næstum því detoxmuffinsar...svona með perunum og engiferinu sem eru svo hreinsandi!
Peru- og engifermuffins
Gerir 12 muffins
- 250 gr spelti
- 2 tsk vínsteinslyftiduft
- 100 gr rapadura hrásykur eða ávaxtasykur
- 1 msk agavesíróp eða acacia hunang
- 100 ml sýrður rjómi (5%) án gelatíns (t.d. frá Mjólku)
- 2 msk kókosfeiti
- 1 egg
- 1 eggjahvíta
- 50 ml soyamjólk (einnig má nota hrísmjólk, haframjólk, möndlumjólk eða léttmjólk)
- 300 gr perur, vel þroskaðar, saxaðar í 5 mm bita
- 1 tsk ferskt engifer, rifið á rifjárni eða saxað mjög, mjög fínt
Aðferð:
- Sigtið saman spelti og vínsteinslyftiduft og bætið svo sykrinum út í.
- Hrærið saman agavesírópi, sýrða rjómanum, kókosfeiti, eggjum og soyamjólk.
- Bætið perunum varlega saman við ásamt engiferinu.
- Hrærið afar varlega (rétt veltið deiginu við).
- Bakið við 200°C í 20 mínútur.
- Mér finnst gott að bæta smá kanil saman við en það er smekksatriði.
- Ef maður notar ekki olíu eða smjör í deigið þá getur maður hvorki notað venjuleg pappírsform, né muffinsbökunarplötuna. Það fást sem sé ekki muffinspappírsform sem maður getur sett í án þess að þurfa að nota smjör eða olíu í deigið. Ég er búin að leita út um allt. Ég hef í staðinn sniðið hringi (strika með penna utan um undirskál) úr bökunarpappír og sett í hvert muffinspláss og svo deigið þar ofan í. Það er hægt að nota muffinspappírinn svo um 6 sinnum. Einnig má nota siliconform og þá þarf ekki bökunarpappír
Pistachio og súkkulaðibitamuffins
20. maí, 2007

Þessi uppskrift er glúteinlaus og er úr bókinni Gluten -Free French Desserts and Baked Goods eftir Valérie Cupillard. Möffinsarnir urðu merkilega góðir og eru þeir fyrstu glúteinlausu sem ég baka. Þeir sem smökkuðu möffinsana (Auðun og Jóhannes) voru sammála um að þeir væru fínir meira að segja miðað við venjulega möffinsa. Kannski voru þeir bara svona svangir, ég veit það ekki sko. Það átti upphaflega að vera 150 ml af smjöri og 6 egg í uppskriftinni en ég gerði hana léttari með 6 eggjahvítum á móti 2 eggjum og 6 matskeiðum af kókosfeiti. Það er alveg langtum nóg fita. Svo átti að vera helmingi meiri sykur en ég minnkaði hann líka. Afskaplega fínir möffinsar með kaffinu. Möffinsarnir á myndinni eru svolítið dökkir en ástæðan er sú að ofninn sem ég bakaði þá í, er 50 ára gamall (og stórhættulegur) svo það er enginn blástur þar nema ég opni ofninn og blási sjálf he he. Það var einn í upphafi sem var ljósari en hinir en ég borðaði óvart möffinsann sem ég ætlaði að nota á myndinni svo þið afsakið það.
Pistachio og súkkulaðibitamuffins
Gerir 12 stykki
- 160gr hrísmjöl (enska: rice flour)
- 40gr kartöflumjöl (enska: potato flour)
- 120gr ávaxtasykur
- 2 egg
- 6 eggjahvítur
- 6 msk kókosfeiti eða ólífuolía
- 4 msk saxað súkkulaði (án sykurs) eða carob
- 40 pistachio hnetur, ósaltaðar, saxaðar gróft
- 2 epli eða perur, saxaðar fínt
- 1/2 tsk heilsusalt (Herbamare)
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180°C.
- Blandið saman hrísmjölinu, súkkulaðinu, saltinu og hnetunum í stóra skál.
- Blandið eggjunum og kókosfeitinni eða ólífuolíunni og ávaxtasykrinum saman í lítilli skál.
- Blandið öllu varlega saman.
- Ef notuð er muffins bökunarplata, setjið þá sérsniðinn bökunarpappír inn í, sjá athugasemdir hérna að neðan). Einnig má nota siliconform.
- Setjið deig í hverja muffinsholu og fyllið 2/3 upp að brún.
- Bakið í um 35-40 mínútur.
- Fjarlægið pappírinn varlega af muffinsunum (ef notaður).
Ef maður notar ekki olíu eða smjör í deigið þá getur maður hvorki notað venjuleg pappírsform, né muffinsbökunarplötuna. Það fást sem sé ekki muffinspappírsform sem maður getur sett í án þess að þurfa að nota smjör eða olíu í deigið. Ég er búin að leita út um allt. Ég hef í staðinn sniðið hringi (strika með penna utan um undirskál) úr bökunarpappír og sett í hvert muffinspláss og svo deigið þar ofan í. Það er hægt að nota möffinspappírinn svo um 6 sinnum. Einnig má nota siliconform og þá þarf ekki bökunarpappír. Ef maður notar ekki olíu eða smjör í deigið þá getur maður hvorki notað venjuleg pappírsform, né muffinsbökunarplötuna. Það fást sem sé ekki muffinspappírsform sem maður getur sett í án þess að þurfa að nota smjör eða olíu í deigið. Ég er búin að leita út um allt. Ég hef í staðinn sniðið hringi (strika með penna utan um undirskál) úr bökunarpappír og sett í hvert muffinspláss og svo deigið þar ofan í. Það er hægt að nota möffinspappírinn svo um 6 sinnum. Einnig má nota siliconform og þá þarf ekki bökunarpappír.
Pistachio- og döðlumuffins
10. júní, 2008

Ég veit ekki hvers vegna mér datt í hug pistachio muffinsar þegar ég var við miðbaug Uganda mars 2008. Kannski af því að á kaffihúsinu á miðbaug fást þeir stærstu muffinsar sem ég hef á minni ævi séð. Þeir hljóta að hafa verið bakaðir í blómapottum. Ég man að ég horfði á muffinsana (sem voru ljósbrúnir að lit) og horfði svo út á veginn þar sem hrörlegu trukkarnir voru að keyra fram hjá í rykinu og sá þar einn vörubíl fullan af grænum Matoke bönunum en Ugandabúar nota þá gríðarlega mikið. Ég lagði saman tvo og tvo og fékk skrýtna útkomu…mig langaði að búa til pistachiomuffinsa þegar ég kæmi heim…sem ég og gerði!
Pistachio- og döðlumuffins
Gerir 12 stóra muffinsa
- 300 gr spelti
- 100 gr haframjöl
- 100 gr rapadura sykur (einnig má nota ávaxtasykur)
- 60 gr saxaðar pistachio hnetur (án salts)
- 2 tsk vínsteinslyftiduft
- 0,5 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
- 1 stór krukka (195 ml) barnamatur (t.d. eplamauk eða bananamauk) frá Holle eða Hipp Organic (eða öðru því sem er lífrænt framleitt og án sykurs eða aukaefna)
- 2 msk kókosfeiti
- 150 ml sojamjólk (einnig má nota hrísmjólk, möndlumjólk, haframjólk eða undanrennu)
- 1 egg
- 1 eggjahvíta
- 90 gr döðlur, saxaðar fínt
Aðferð
- Blandið saman speltinu, haframjölinu, vínsteinslyftiduftinu og saltinu í stóra skál.
- Hrærið vel saman.
- Hrærið egginu og eggjahvítunni saman við rapadura sykurinn.
- Í annarri skál skuluð þið blanda saman sojamjólkinni, barnamatnum, kókosfeitinni og eggjunum. Blandið saman við sykurinn og eggin.
- Hellið varlega út í speltið og hrærið afar lítið, rétt bara til að allt haldist saman, það mega gjarnan vera kekkir. Gott er að miða við 8-10 hreyfingar með sleifinni!
- Bætið döðlunum og pistachio hnetunum saman við og hrærið varlega, svona 2-3 hreyfingar eða þangað til allt hefur náð að haldast saman en alveg án þess að hræra.
- Bakið við 200°C í 25-30 mínútur.
- Bæta má rifnum appelsínuberki við deigið sem og smá kanil til að fá kryddaðra bragð.
- Ef maður notar ekki olíu eða smjör í deigið þá getur maður hvorki notað venjuleg pappírsform, né muffinsbökunarplötuna. Það fást sem sé ekki muffinspappírsform sem maður getur sett í án þess að þurfa að nota smjör eða olíu í deigið. Ég er búin að leita út um allt. Ég hef í staðinn sniðið hringi (strika með penna utan um undirskál) úr bökunarpappír og sett í hvert muffinspláss og svo deigið þar ofan í. Það er hægt að nota möffinspappírinn svo um 6 sinnum. Einnig má nota siliconform og þá þarf ekki bökunarpappír. Þá er best að setja smá kókosfeiti í eldhúspappír og strjúka formin að innan.
Rabarbaramuffins
23. ágúst, 2009

Ég var að fikta aðeins í eldhúsinu og mundi eftir rabarbarasultu sem ég átti í ísskápnum. Mér fannst upplagt að prófa sultuna í muffinsa og það tókst svona prýðilega. Ef þið viljið nota heilan rabarbara í staðinn skiptið þið út sultunni fyrir 200 gr af söxuðum rabarbara og 60 gr rapadura sykur en haldið öllu öðru innihaldi óbreyttu.
Rabarbaramuffins
Gerir 10-12 muffinsa
- 250 gr rabarbarasulta
- 60 ml agavesíróp
- 2 msk kókosfeiti
- 1 egg
- 1 eggjahvíta
- 180 gr spelti
- 1 tsk vínsteinslyftiduft
- 1 tsk kanill
- 150 ml sojamjólk (einnig má nota möndlumjólk, undanrennu, haframjólk eða hrísmjólk)
Aðferð:
- Blandið saman spelti, vínsteinslyftidufti og kanil í stóra skál.
- Hrærið egg og eggjahvítu ásamt agavesírópi og kókosfeiti í aðra skál.
- Bætið rabarbarasultunni út í eggjablönduna.
- Blandið öllu varlega saman.
- Hellið mjólkinni út í (50 ml í einu). Það er ekki víst að þið þurfið alla mjólkina.
- Rétt blandið deiginu saman og alls ekki hræra mikið. Það á að vera kekkjótt.
- Ef maður notar ekki mikla olíu eða smjör í deigið þá getur maður hvorki notað venjuleg pappírsform, né muffinsbökunarplötu. Það er best að nota siliconform og strjúka eldhúspappír með smávegis olíu innan í formin. Ef þið eigið ekki silioconform má sníða hringi (strika með penna utan um undirskál) úr bökunarpappír og setja í hvert muffinspláss og svo deigið þar ofan í. Það er hægt að nota muffinspappírinn svo um 6 sinnum.
- Bakið við 190°C í um 25-30 mínútur.
- Gott er að setja appelsínubörk og meiri kanil út í deigið fyrir kryddaðra bragð.
Súkkulaðimuffins
5. mars, 2003

Hollt og gott, einfalt og þægilegt!!!!
Súkkulaðimuffins
Gerir 8-10 stóra muffinsa
- 125 gr spelti
- 100 gr rapadura sykur eða annar hrásykur
- 25 gr gott, lífrænt kakó eða carobduft
- 2 tsk vínsteinslyftiduft
- 70 gr dökkt súkkulaði með hrásykri (eða carob), saxað fínt
- 1 egg
- 1/2 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
- 2 dl hrein sojajógúrt (eða venjuleg jógúrt)
- 2 msk agavesíróp
- 1-2 dl undanrenna
- 1 msk kókosfeiti
- 1 tsk vanilludropar úr heilsubúð
Aðferð:
- Sigtið saman speltið, sykurinn, kakóduftið, lyftiduftið og saltið.
- Í annari skál, blandið saman jógúrtinu, undanrennunni, vanilludropunum, agavesírópinu og egginu.
- Blandið þurru hráefnunum varlega saman við blautu hráefnin, hrærið sem minnst.
- Látið deigið í hverja holu klæddri bökunarpappír (sjá athugasemd hér fyrir neðan). Eða notið siliconform, þá þarf ekki bökunarpappír.
- Ekki fylla holurnar meira en 2/3 upp að rönd.
- Bakið við 180°C í um 20-25 mínútur.
- Ef maður notar ekki olíu eða smjör í deigið þá getur maður hvorki notað venjuleg pappírsform, né muffinsbökunarplötuna. Það fást sem sé ekki muffinspappírsform sem maður getur sett í án þess að þurfa að nota smjör eða olíu í deigið. Ég er búin að leita út um allt. Ég hef í staðinn sniðið hringi (strika með penna utan um undirskál) úr bökunarpappír og sett í hvert muffinspláss og svo deigið þar ofan í. Það er hægt að nota möffinspappírinn svo um 6 sinnum. Einnig má nota siliconform og þá þarf ekki bökunarpappír.
Sveitamuffins með eplum og hveitiklíð
5. mars, 2003

Æ mér fannst þessi uppskrift eitthvað svo sveitalega þannig að ég skírði hana bara sveitamuffins. Þessi uppskrift var aftan á einhverju blaði úr einhverjum stórmarkaði (oft góðar uppskriftir ef maður nennir að skoða og breyta þeim aðeins og gera þær hollari). Stórgóðir muffins og meinhollir líka, fullir af trefjum og vítamínum.
Sveitamuffins með eplum og hveitiklíð
Gerir 10-12 muffins
- 350 gr spelti
- 100 gr hveitiklíð
- 3 tsk vínsteinslyftiduft
- 2 tsk kanill
- 1/4 tsk heilsusalt (Herbamare)
- 100 gr rúsínur
- 2 epli, skræld, og bútuð niður í mjög litla bita (1/2 cm. x 1/2 cm)
- 3 egg meðalstór
- 1 tsk vanilludropar eða vanilluduft
- 80 gr ávaxtasykur
- 125 ml krukka Hipp Organics barnamatur, t.d. apple and blueberry dessert eða pudding (án viðbætts sykurs)
- 125 ml undanrenna eða fjörmjólk
Aðferð:
- Forhitið ofninn í 200°C.
- Blandið saman hveitiklíðinu, hveitinu, lyftiduftinu, kanil og salti.
- Bætið svo rúsínum og eplum saman við, ekki hræra of mikið, bara 1-2var sinnum.
- Þeytið saman eggin, vanilludropana, ávaxtasykurinn og eplamaukið og mjólkina.
- Blandið þessu saman við þurru hráefnin en hrærið EKKI mikið, rétt svo að þetta tolli saman bara.
- Setjið í silikon muffinsform eða klippa út bökunarpappír í hverja holu í muffinsforminu (sjá athugasemdir hér fyrir neðan), og fyllið 2/3 upp að brún.
- Bakið í 22-25 mínútur eða þangað til muffinsarnir eru orðnir gullbrúnir.
- Ef maður notar ekki olíu eða smjör í deigið þá getur maður hvorki notað venjuleg pappírsform, né muffinsbökunarplötuna. Það fást sem sé ekki muffinspappírsform sem maður getur sett í án þess að þurfa að nota smjör eða olíu í deigið. Ég er búin að leita út um allt. Ég hef í staðinn sniðið hringi (strika með penna utan um undirskál) úr bökunarpappír og sett í hvert muffinspláss og svo deigið þar ofan í. Það er hægt að nota möffinspappírinn svo um 6 sinnum. Einnig má nota siliconform og þá þarf ekki bökunarpappír.
Avacado- og carobbúðingur
25. nóvember, 2007

Ekki alveg Royal búðingurinn!!! Þessi hentar vel fyrir þá sem vilja gera vel við sig en vilja ekki óhollustuna sem fylgir venjulegum búðingum. Í þessum eftirrétti er holl fita úr avacadoinu, bananinn eplasafinn gefa sætt bragð og svo er carobið mótvægi við sæta bragðið. Mér fannst þetta svakalega góður búðingur þar sem engin aukaefni, litarefni, bragðefni, hleypiefni gelatín eða annað furðulegt innihald er að finna í honum. Hann er fínn fyrir krakka líka. Athugið að á myndinni er búðingurinn dökkur en carob sem fæst hér á Íslandi er aðeins ljósara en það sem fæst í London. Það skiptir ekki máli upp á bragðið að gera, bara útlitslegt atriði. Ég skreytti búðinginn með kókosmjöli en það má skreyta með hverju sem er t.d. söxuðum heslihnetum, jarðarberjum eða smá slettu af rjóma.
Avacado- og carobbúðingur
Fyrir 3-4
- 3/4 bolli döðlur
- 1 bolli hreinn eplasafi (má vera annar hreinn ávaxtasafi)
- 1 lítið, vel þroskað avacado
- 2-3 msk carobduft
- 1 lítill, vel þroskaður banani
- 2 msk agavesíróp
Aðferð:
- Látið döðlurnar liggja í ávaxtasafanum í klukkutíma eða meira.
- Setjið döðlurnar, safann og allt hitt í matvinnsluvél og blandið vel.
- Kælið.
- Skreytið með kókosmjöli, kókosflögum, bananasneiðum, söxuðum hnetum, rjóma o.s.frv.
Avacadoís
22. mars, 2006

Þessi ís er ofsalega hollur og góður. Svo er hann ljómandi fallegur á litinn svona fagurgrænn!! Það er ekki alltaf sem ísinn kemst alla leið í frystinn því blandan sjálf er svo fáránlega góð.
Avacadoís
Gerir um 500 ml
- 4 mjög vel þroskaðir bananar
- 2 avacado, miðlungsstór, vel þroskuð
- 1 dl agavesíróp
- 2 tsk vanilludropar eða vanilluduft
Aðferð:
- Saxið bananana og avacadoin gróft og maukið í matvinnsluvél.
- Bætið agavesírópinu út í ásamt vanilludropunum eða duftinu.
- Ef notuð er ísvél: Setjið í ísvél og frystið svo í frystinum.
- Ef ekki er notuð ísvél: Frystið í lágu plastboxi í frystinum.
- Takið út á um hálftíma fresti og brjótið ískristallana ef þeir myndast. Endurtakið þangað til erfitt er orðið að hræra í blöndunni.
- Látið standa í ísskáp í um 30 mínútur áður en ísinn er borinn fram.
- Það er frábært að búa til kaldan smoothie (mjólkurþeyting) úr ísnum. Látið um 1 bolla af ísnum þiðna pínulítið á borði og setjið í blandara. Bætið eins og 1 bolla af sojamjólk/möndlumjólk/undanrennu saman við og bragðbætið með t.d. vanilludropum eða meira af agavesírópi.
Ávaxta- og cashewhnetuís
15. október, 2006

Ekkert nema vítamín og hollusta. Uppskriftin kemur úr bók sem heitir einfaldlega RAW eftir strák að nafni Juliano. Hann er mjög sérstakur og borðar einungis hráfæði. Mjög sniðugt svo sem en hentar illa fyrir okkur á Íslandi þar sem t.d. ein uppskriftin felst í því að útbúa pizzubotna og þeir eiga að bakast í sólinni í um 8 klukkutíma. Við Íslendingar náum varla 8 tímum af sól yfir allt sumarið heima he he. Það eru samt margar sniðugar uppskriftir í bókinni og þetta er skemmtileg pæling (ekki elda neitt upp fyrir 50°C til að drepa ekki ensímin í matnum o.s.frv.). Hentar vel fyrir þá sem eru með mjólkuróþol því það eru engar mjólkurafurðir í ísnum. Hentar einnig þeim sem eru jurtaætur (enska: vegan).
Ávaxta- og cashewhnetuís
Fyrir 3-4
- 1 bolli cashewhnetur
- 2 bollar hreinn ávaxtasafi t.d. appelsínusafi
- 2 bollar mjúkar döðlur (ef harðar má leggja þær í bleyti með helmingnum af ávaxtasafanum í nokkra klukkutíma)
- 1 bolli frosið mango (í litlum bitum)
- 1 bolli vel þroskaður, frosinn banani (í litlum bitum)
Aðferð:
- Blandið fyrst cashewhnetunum í matvinnsluvél. Setjið í stóra skál.
- Blandið saman döðlunum og appelsínusafanum.
- Bætið saman við cashewhneturnar.
- Blandið frosnu mangoinu og frosna banananum í matvinnsluvélinni.
- Blandið öllu saman í stórri skál.
- Ef þið eigið ísvél, setjið þá blönduna í ísvél og setjið svo í plastbox í frysti þegar hún er orðin tilbúin.
- Fyrir þá sem eiga ekki ísvél þá þarf að setja blönduna í stórt plastbox og hræra í blöndunni á um klukkutíma fresti í nokkra klukkutíma eða þangað til erfitt er orðið að hræra meira.
- Látið ísinn þiðna í um 30 mínútur áður en hann er borinn fram.
Ávaxtasalat frá Afríku
4. ágúst, 2008

Á öllum hótelum sem ég hef komið á í Austur Afríku (og þau eru mörg) er borið fram einhvers konar ávaxtasalat í bland við kökur og pönnukökur og fleira góðgæti fyrir svanga ferðamenn. Ég fer að sjálfsögðu alltaf beinustu leið í ávaxtaskálina enda lítið fyrir mig að hafa á hinum svæðunum. Það gerir þó ekkert til því ávaxtasalötin eru alltaf góð. Reyndar veiði ég alltaf papaya ávöxtinn úr því mér finnst hann aaaaaalgjör viðbjóður og ég nota því mango í staðinn í mitt salat. Mango er þó mikið notað í Afríku svo ég er ekkert að svindla. Eina svindlið í mínu salati er að ég nota vínber en vínber eru sjaldséðir gestir á þessum slóðum. Ástaraldin er ómissandi í þetta salat en það er einmitt afríski punkturinn yfir i-ið. Það er fátt betra en að enda viðburðarríkan og heitan í Afríku á ávaxtasalati og tebolla (sumir reyndar kjósa kökusneið og koníak!). Það er bara ein regla sem ég hef með svona salöt. Hún er: ALDREI, ALDREI skilja eftir steina í melónum eða vínberjum. Það er fátt leiðinlegra en að bíta í gómsætt salat til þess eins að skyrpa út úr sér bragðvondum steinum. Steinar úr ástaraldinum sleppa fyrir horn því þá á að borða. Þetta salat er pakkfullt af vítamínum og trefjum og er sérlega sumarlegt.
Ávaxtasalat frá Afríku
Fyrir 3-4 sem meðlæti
- 1/4 ananas, vel þroskaður
- 1 mango, vel þroskað. Nota má papaya ef þið viljið í staðinn
- 3 ástaraldin (enska: passion fruit), veljið þunga ávexti
- 1 banani, ágætlega þroskaður
- 1/4 vatnsmelóna, vel þroskuð
- 1 lúka græn, steinalaus vínber (bara upp á litinn, má sleppa)
Aðferð:
- Gott er að miða við að hafa alla bitana jafn stóra eða álíka og sykurmola að stærð.
- Skerið ananasinn í bita og setjið í skál.
- Skerið vatnsmelónuna í bita, fræhreinsið og setjið í skál.
- Skerið mangoið í bita (sneiðið meðfram steininum með löngum hnífi, afhýðið og notið svo bara það sem þið getið skorið í jafna bita. Afganginn má frysta og nota síðar). Setjið í skál.
- Skerið vínberin í helminga, fræhreinsið ef þarf og setjið í skál.
- Skerið banana í sneiðar og setjið í skál.
- Blandið öllu saman í stóra skál. Til að merja ekki ávextina er gott að hella svolitlu úr skálunum ofan í stóru skálina, þannig þarf maður ekki að hræra mikið.
- Skerið ástaraldinin í helminga og skafið allt úr þeim yfir salatið.
- Setjið plast yfir skálina ef ekki á að bera salatið fram strax.
- Ef salatið er ekki nægilega sætt (t.d. ef ananasinn er ekki nægilega vel þroskaður) má setja eins og 50 ml af hreinum appelsínusafa yfir salatið.
- Til að velja þroskaðan ananas: ef þið potið í botninn á honum ætti hann að gefa aðeins eftir, lyktin af botninum ætti að vera sæt og þung ananaslykt og þið ættuð að geta plokkað blað úr krónunni auðveldlega.
- Til að velja þroskaða melónu: prófið að ýta á endana á melónunni, þeir ættu að gefa aðeins eftir. Melónan á að virka mjög þung miðað við stærð ef þið haldið á henni og ef þið bankið í hana ættuð þið að finna smá hreyfingu í kjötinu og hún ætti að titra örlítið(ekki gott að útskýra ha ha).
- Til að velja þroskað ástaraldin: ávöxturinn á að virka þungur eða álíka eins og tómatur. Hýðið má ekki að vera mjög krumpað og ávöxturinn ætti alls ekki að vera loftkenndur eða léttur.
Bakaðir bananar
19. apríl, 2003
Þetta er eftirréttur sem má gera annað hvort heima eða bara úti á grillinu, á ferðalaginu, upp í sumarbústað eða hvar sem er. Það er upplagt að nota heitt grillið fyrir þennan eftirrétt og ef þið eigið gamla banana, og smá sykurlaust, gott súkkulaði þá eruð þið í góðum málum.
Bakaðir bananar
Fyrir 2
- 2 stórir vel þroskaðir bananar
- 40-50 gr sykurlaust, dökkt súkkulaði. Einnig má nota dökka carob bita
- 1 dl hrein jógúrt eða ab mjólk
- 2 msk agavesíróp
- 1 tsk vanilludropar eða vanilluduft
Aðferð:
- Setjið hvern banana í álpappír (þannig að það sé álpappír utan um þá en ekki ofan á).
- Ristið endilangt eftir banananum djúpan skurð.
- Skerið súkkulaðið í bita og raðið ofan í skurðinn.
- Hitið í ofni (gott að láta í eldfast mót svo sé auðvelt að færa til) í um 30 mínútur á 200°C eða þangað til súkkulaðið er bráðnað.
- Hrærið saman jógúrtinu, agavesírópinu og vanilludropunum eða duftinu.
- Hellið jógúrtblöndunni ofan á bananana.
- Það er einnig gott að bera þessa banana fram með soyarjóma. Sumum finnst líka gott að hafa vanilluís með.
Bananaklattar
6. nóvember, 2009

Þessir klattar eru glúteinlausir og mjög góðir þegar maður á svarta og slappa banana (sem eru orðnir ofþroskaðir). Þessir kláttar eru upplagðir á sunnudagsmorgni, með kaffinu. Mér finnst þeir bestir með sultu eða smá slettu af hlynsírópi. Athugið að ef þið eigið til glúteinlaust hveiti þá getið þið notað það í staðinn fyrir að búa til ykkar eigið.
Bananaklattar
Gerir 20-25 klatta
- 450 gr bananar, mjög vel þroskaðir
- 120 gr hrísmjöl
- 40 gr kartöflumjöl
- 30 gr sojamjöl
- 30 gr bókhveiti
- (einnig getið þið notað 220 gr af glúteinlausu hveiti)
- 1 kúfuð tsk vínsteinslyftiduft
- 2 msk kókosolía
- 1 eggjahvíta
- 1 egg
- 4 msk agavesíróp (eða 2 ef þið viljið minna sæta klatta)
- 1/2 tsk kanill (meira eftir smekk)
- 300 ml sojamjólk (einnig má nota möndlumjólk, hrísmjólk eða haframjólk)
Aðferð:
- Í stóra skál skuluð þið sigta saman hrísmjöl, kartöflumjöl, sojamjöl, bókhveiti, lyftiduft og kanil.
- Í lítilli skál skuluð þið blanda saman agavesírópinu, egginu, eggjahvítunni, kókosolíunni og 200 ml af sojamjólkinni.
- Skerið bananana í sneiðar (um 1cm að þykkt).
- Hellið blautu hráefnunum yfir í skálina með þurru hráefnunum og hrærið vel þangað til allt er kekkjalaust.
- Bætið afgangnum af sojamjólkinni (100 ml) saman við ef þarf. Deigið á að vera eins og vöffludeig að þykkt (eða eins og t.d. súrmjólk).
- Bætið bananasneiðunum saman við. Hrærið varlega.
- Hitið pönnu í meðalhita.
- Setjið nokkra dropa af kókosolíu í eldhúsþurrku og strjúkið pönnuna að innan.
- Hitið 2-3 klatta í einu (fer eftir stærð pönnunnar). Hitið í 5-6 mínútur á hvorri hlið eða þangað til klattarnir verða gullbrúnir.
- Berið fram strax, með sultu, osti, hlynsírópi eða agavesírópi.
- Hægt er að frysta klattana en þeir þurfa að kólna fyrst.
- Gott er að setja klattana í brauðrist til að hita þá upp aftur.
Bláberja, jarðarberja- og rabarbaraíspinnar
23. ágúst, 2009

Þessir íspinnar eru súperhollir og eru eiginlega C vítamín-, járn,- og andoxunarbomba. Svo er þeir ljómandi fallegur því það er alltaf gaman að borða tvílita íspinna, sérstaklega ef þeir eru hollir! Hafrarjómi (t.d. frá Oatly) fæst í flestum stærri matvöruverslunum og heilsubúðum. Hann inniheldur glútein svo ef þið hafið ofnæmi fyrir því getið þið t.d. notað sojarjóma eða kókosmjólk).
Bláberja, jarðarberja- og rabarbaraíspinnar
Gerir 6 íspinna
Jarðarberja- og rabbabarahlutinn:
- 50 gr rabarbari
- 50 gr jarðarber (fersk eða frosin)
- 50 ml hafrarjómi (einnig má nota sojarjóma)
- 40 ml agavesíróp
Bláberjahlutinn
- 100 gr bláber (fersk eða frosin)
- 50 ml hafrarjómi
- 40 ml agavesíróp
Fyrir jarðarberja- og rabarahlutann:
- Skolið rabarbarann og skerið í grófar sneiðar. Setjið svo rabarbarann í matvinnsluvélina.
- Bætið jarðarberjunum út í ásamt 40 ml af agavesírópinu.
- Blandið á fullum krafti í eina mínútu eða þangað til allt er vel maukað.
- Gott er að skafa hliðar matvinnsluvélarinnar nokkrum sinnum og blanda áfram.
- Bætið 50 ml af hafrarjómanum út í og blandið í 30 sekúndur. Setjið í ílát og geymið í ísskápnum.
Fyrir bláberjahlutann:
- Setjið bláberin í matvinnsluvélina ásamt 40 ml af agavesírópinu.
- Blandið á fullum krafti í tvær mínútur eða þangað til allt er vel maukað.
- Gott er að skafa hliðar matvinnsluvélarinnar nokkrum sinnum og blanda áfram.
- Bætið 50 ml af hafrarjómanum út í og blandið í 30 sekúndur. Setjið í skál og geymið í frystinum.
- Hrærið í jarðarberjablöndunni og bláberjablöndunni öðru hvoru í um 2-3 tíma til að brjóta upp ískristallana.
- Hellið jarðarberjablöndunni í íspinnabox (fyllið helminginn af boxinu).
- Setjið íspinnaboxið í frystinn og frystið í nokkra klukkutíma.
- Hellið bláberjablöndunni ofan á og setjið aftur í frystinn.
Bláberja- og bananaís
23. ágúst, 2009

Bláber og banani….namm. Þessi ís er mjólkurlaus og eggjalaus og hentar því vel fólki með þess konar óþol..hann er líka góður þó maður hafi ekkert óþol og er sérlega hollur. Hann er próteinríkur, pakkfullur af andoxunarefnum, inniheldur holla fitu en er samt sætur. Svo er ísinn alveg dæmalaust fjólublár og fallegur. Leggið cashewhneturnar í bleyti í sólarhring áður en þið búið ísinn til.
Bláberja- og bananaís
Gerir 1 lítra
- 1,5 dl cashewhnetur, lagðar í bleyti í sólarhring
- 300 ml sojamjólk eða haframjólk
- 3 msk kókosfeiti
- 15 döðlur, saxaðar gróft
- 1 vel þroskaður banani
- 200 gr bláber (fersk eða frosin)
- 6 msk agavesíróp
- 1 tsk sítrónusafi
Aðferð:
- Sjóðið bláberin í agavesírópi og sítrónusafa í nokkrar mínútur. Kælið vel.
- Hellið vatninu af cashewhnetunum og blandið í 2 mínútur eða meira í matvinnsluvél eða þangað til alveg maukaðar.
- Bætið 100 ml af mjólkinni út í og blandið áfram þangað til blandan líkist þykkri mjólk.
- Skafið hliðar matvinnsluvélarinnar og maukið áfram í 30 sekúndur.
- Bætið döðlunum út í og maukið áfram.
- Skafið hliðar matvinnsluvélarinnar og maukið áfram í 30 sekúndur.
- Blandið afgangnum af mjólkinni og kókosfeitinni saman við.
- Setjið bananann út í og maukið vel.
- Hellið helmingnum af bláberjamaukinu út í og blandið í nokkrar sekúndur.
- Færið yfir í ísvél og látið vélina vinna í 20 mínútur.
- Setjið afganginn af bláberjamaukinu út í og látið vélina vinna í nokkrar mínútur.
- Hellið í plastílát og frystið.
- Ef ekki er notuð ísvél má frysta ísinn í plastboxi og hræra í ísnum á um 30 mínútna fresti í um 3-4 tíma. Setjið seinni bláberjaskammtinn út í ísinn eftir um 2 tíma og hrærið vel.
- Áður en ísinn er borðaður þarf að láta hann þiðna aðeins í ísskápnum í um 30 mínútur-45 mínútur.
Bláberja- og súkkulaðiís
30. nóvember, 2008

Ohhh ég slefa við tilhugsunina. Bláber og súkkulaði…nammi namm. Þessi ís ætti eiginlega að heita andoxunarís með cashewhnetum. Ísinn er bæði hollur og bragðgóður og stútfullur af eins og áður sagði, andoxunarefnum sem og járni, hollri fitu úr pecan- og cashewhnetunum og svo er hann svo dæmalaust mjúkur og góður líka. Þessi er ekta fyrir haustið í bláberjauppskerunni, svona ef er ekki byrjað að snjóa en er auðvitað frábær vetur, sumar, vor, og haust (og jól líka). Athugið að úr uppskriftinni fást um 8-10 stykki af litlum ístertum (um 400 gr í heildina)
Bláberja- og súkkulaðiís
Gerir um 8-10 stykki
- 1 bolli cashewhnetur
- 2,5 msk kókosfeiti
- 1 banani
- 100 gr bláber
- 1/2 bolli sojamjólk (einnig má nota möndlumjólk, haframjólk, hrísmjólk eða undanrennu)
- 5 msk agavesíróp
- 1/4 bolli kakóduft (lífrænt framleitt)
Aðferð:
- Setjið cashewhnetur í matvinnsluvél og malið í um 1 mínútu á fullum krafti.
- Bætið 1 msk af kókosfeiti út í og látið vélina ganga þangað til hneturnar eru orðnar kekkjóttar og olíukenndar.
- Bætið agavesírópinu. sojamjólkinni og banananum út í matvinnsluvélina og maukið vel.
- Bætið afgangnum af kókosfeitinni út í og látið vélina ganga í nokkrar sekúndur.
- Skiptið blöndunni í tvennt og setjið annan helminginn í skál.
- Setjið bláberin út í afganginn af blöndunni sem er í matvinnsluvélinni, blandið mjög vel.
- Setjið bláberjablönduna í skál.
- Setjið hinn helminginn af cashewblöndunni í matvinnsluvélina ásamt kakóinu, blandið mjög vel.
- Notið lítil form úr silikoni eða einhver önnur góð form. Fjöldi formanna fer eftir stærð þeirra. Ég notaði t.d. 10 form sem voru breiðari en muffinsform en lægri.
- Hellið súkkulaðiblöndunni í botninn á formunum, dreifið vel yfir botninn.
- Frystið eða kælið í 30 mínútur.
- Hellið bláberjablöndunni út í eða notið sprautupoka til að sprauta fyllingunni ofan á
- súkkulaðibotninn.
- Setjið í frysti.
- Einnig má setja blönduna alla í eitt form þ.e. súkkulaði á botninn og bláberjablönduna ofan á.
- Nota má önnur ber en bláber.
Cashewís
8. maí, 2006

Þetta er uppskrift sem ég held að komi frá Sólveigu á Grænum Kosti. Þetta er ægilega góður ís og hentar vel fyrir þá sem eru með mjólkuróþol eða vilja engar dýraafurðir/jurtaætur (enska: vegan). Hann er troðfullur af próteinum og vítamínum og það besta er að það er enginn sykur í ísnum. Hann er ekki léttur þ.e. cashewhnetur og sojarjómi er hvoru tveggja fitandi en þessi fita er ekki óholl þ.e. það er tiltölulega lítið af mettaðri fitu og hækkar þar af leiðandi ekki slæma kólesterólið í blóðinu.
Cashewís
Fyrir 3-4
- 1,5 dl cashewhnetur
- 2,5 dl sojamjólk
- 2,5 dl sojarjómi (gott að nota úr sprautubrúsa, ísinn verður léttari. Má líka þeyta sojarjómann).
- 15 döðlur, saxaðar gróft
- 2 vel þroskaðir bananar
- 1 tsk vanilludropar eða vanilluduft (í upphaflegri uppskrift var vanilluduft)
Aðferð:
- Malið cashewhneturnar mjög fínt í matvinnsluvél.
- Bætið döðlunum saman við.
- Blandið sojamjólkinni og sojarjómanum saman við.
- Blandið bönunum út í.
- Færið yfir í ísvél í 40 mínútur og svo inn í frysti. Áður en ísinn er borðaður þarf að láta hann þiðna aðeins í ísskápnum í um klukkutíma.
- Ef ekki er notuð ísvél má frysta ísinn í plastboxi og hræra í ísnum á um 30 mínútna fresti í um 3-4 tíma.
Döðlu- og appelsínubitar
26. apríl, 2009

Valhnetur eru algjörar galdrahnetur, stútfullar af omega 3 fitusýrum sem eru svo góðar til að sporna gegn hjartasjúkdómum og of háum blóðþrýstingi og af því að líkaminn framleiðir ekki þessar mikilvægu fitusýrur er nauðsynlegt fyrir okkur að hjálpa honum aðeins með því að borða t.d. lúku af valhnetum öðru hvoru. Valhnetur hafa einnig þótt hjálpa einstaklingum með exem og önnur húðvandamál sem og fólki með asthma. Valhnetur innihalda einnig
ellagic acid sem hjálpa til við að sporna gegn krabbameini en einnig styðja þær við ónæmiskerfið. Þær eru líka dæmalaust góðar bakaðar. Döðlur innihalda svo sykur sem leysist hægt upp í blóðinu, svo þessir bitar eru upplagðir seinni partinn í vinnunni eða skólanum (þegar mann langar í eitthvað sætt) en einnig eru bitarnir fínir í gönguna og útileguna. Haframjölið sér svo til þess að við verðum ekki of svöng allt of fljótt. Bitarnir eru fullkomin blanda af hollri fitu, flóknum kolvetnum, sætleika og próteinum. Uppskriftin kemur örlítið breytt úr gamalli bók sem ég á sem heitir
Gómsætt og gott (ég notaði kókosfeiti í stað smjörs, spelti í stað hveitis og agavesíróp í stað hunangs. Ég notaði einnig appelsínusafa á móti kókosfeitinni).
Döðlu- og appelsínubitar
Gerir 9 bita
- 175 gr döðlur, saxaðar smátt
- Hýðið af 2 appelsínum, rifið á rifjárni
- 1 sæt appelsína, afhýdd, steinar fjarlægðir og appelsínan söxuð smátt
- 3 msk kókosfeiti
- 75 gr spelti
- 100 gr haframjöl
- 4 msk agavesíróp (einnig má nota acacia hunang)
- 25 gr saxaðar valhnetur (einnig má nota pecanhnetur)
- 1 msk sesamfræ
- 3 msk appelsínusafi
Aðferð:
- Rífið appelsínuhýðið á rifjárni. Gætið þess að rífa aðeins hýðið (ekki þetta hvíta undir því það er svo rammt).
- Skrælið appelsínuna, fjarlægið alla steina og saxið eins smátt og hægt er. Fjarlægið eins mikið af þessu hvíta utan af appelsínunni og hægt er.
- Blandið söxuðu döðlunum, appelsínuberkinum og söxuðu appelsínunum saman í eina stóra skál.
- Hrærið saman í annari skál kókosfeiti (verður að vera mjúk), haframjölinu, speltinu, agavesírópinu, hnetunum og sesamfræjunum. Bætið appelsínusafanum hér ef ykkur þykir þurfa.
- Það er ágætt að blandan sé svolítið blaut (án þess samt að hún leki af sleif).
- Setjið bökunarpappír í form sem er 18cm x 18 cm. að stærð.
- Setjið helminginn af haframjölsblöndunni ofan í formið og þrýstið mjög fast ofan á. Gætið þess að hvergi sé gat og að allt tolli vel saman.
- Setjið döðlu- og appelsínublöndun ofan á og þrýstið vel.
- Setjið afganginn af haframjölsblöndunni ofan á. Ef hún er þurr, bætið þá 1-2 msk af appelsínusafa við. Blandan þarf að dreifast ágætlega og því er gott að hafa hana svolítið blauta (þannig að dropi af sleif í stórum kekkjum en leki ekki).
- Þrýstið vel ofan á haframjölsblönduna.
- Bakið við 190°C í um 30-35 mínútur.
- Kælið og skerið í 9 bita.
Döðlu- súkkulaðiís
5. mars, 2003
Ég var hér áður fyrr ekki mikið fyrir að búa til ís, því aðaluppistaðan er yfirleitt sykur og rjómi. Ég prófaði þó þessa uppskrift og hún er bara nokkuð góð og svolítið sparileg, ekta fyrir jólin.
Döðlu- súkkulaðiís
Fyrir 3-4
- 175 gr döðlur lagðar í bleyti yfir nótt
- 400 ml vatn
- 150 ml magur rjómi (matreiðslurjómi) eða sojarjómi
- 150 ml mjólk
- 2 tsk vanilludropar
- 3 msk kókosfeiti
- 25 gr carob eða gott kakóduft
Aðferð:
- Döðlurnar (og vatnið) sett í matvinnsluvél og hakkað þangað til mjúkt.
- Blandið carobi/kakói, vanilludropum, kókosmjólk og rjóma/mjólk saman við.
- Færið yfir í ísvél ef þið eigið svoleiðis.
- Ef þið eigið ekki ísvél, frystið þá í klukkutíma og hrærið í með gaffli til að brjóta upp ískristallana.
- Frystið í annan klukkutíma og hrærið aftur.
- Endurtakið nokkrum sinnum þangað til ísinn er alveg frosinn.
- Látið ísinn standa í ísskáp í 40 mín áður en hann er borinn fram.
- Það er gott að setja 1 dl kaffi út í til tilbreytingar.
- Einnig er gott að setja saxað carob eða dökkt, gott lífrænt framleitt súkkulaði út í.
Döðlumús
5. mars, 2003
Bragðgóð og sykurlaus mús en mjög sæt engu að síður. Fín sem eftirréttur og má bera fram í ísskál með smávegis af rjóma (eða sojarjóma) eða niðurskornum bönunum.
Döðlumús
Fyrir 2
- 125 gr, döðlur (soðnar í vatni í u.þ.b. 10-15 mínútur
- 125 ml krukka barnamatur (t.d. Hipp Organic eða Organix) eplamauk, bláberjamauk eða ferskjumauk
- 100 gr heslihnetur, malaðar fínt
- 100 gr möndlur, þurristaðar og malaðar fínt
- 1 vel þroskaður banani, stappaður
- 1 tsk vanilludropar
- 1 tsk kanill
- 1/8 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
- 1 1/2 dl kókosmjöl
Aðferð:
- Setjið allt í matvinnsluvél og blandið vel og lengi þangað til músin er orðin létt og loftkennd.
- Berið fram strax í desertskálum með ferskum ávöxtum og ef til vill soyarjóma.
Eftirréttur úr sojajógúrti
18. júní, 2006

Prótein, vítamín og flókin kolvetni, engar mettaðar fitusýrur til að stífla æðarnar. Uppskriftin að hinum fullkomna eftirrétti? Já líklega. Þessi eftirréttur er einfaldur og mjög hollur. Hann hentar þeim sem hafa mjólkuróþol og einnig þeim sem eru jurtaætur (enska: vegan) þ.e. ef ekki er notað hunang í mueslið.
Eftirréttur úr sojajógúrti
Fyrir 2-3
- 300 ml hreint sojajógúrt (ég nota Alpro)
- 1 dl jarðarberjasulta (100% ávextir) frá St. Dalfour. Einnig eru sulturnar frá Himneskri hollustu góðar
- 2 msk hreint hlynsíróp (enska: maple syrup)
- 4 msk muesli eða granóla. Ég nota eigið muesli en einnig má kaupa muesli eða granóla út í búð. Ekki kaupa sykurbætt (þá er skömminni skárra að kaupa hunangsristað).
Aðferð:
- Takið til 2 glær glös með frekar breiðum botni (til dæmis eins og koníaksglas).
- Hrærið soyajógúrtið og hlynsírópið vel.
- Skiptið sultunni á milli glasanna tveggja, passið að dreifist vel um botninn og þeki hann allan. Bætið við meira ef þarf.
- Hellið soyajógúrtinu varlega ofan á.
- Dreifið mueslinu varlega ofan á (einnig má setja það á botninn).
- Berið fram kalt en geymið þó ekki í ísskáp lengi því þá verður mueslið lint.
- Það er hægt að nota alls konar sultur í þennan eftirrétt t.d. úr bláberjum, blönduðum berjum, brómberjum, rifsberjum, ávöxtum eins og apríkósum, eplum o.s.frv. Einnig má sjóða eigin ávexti í smá eplasafa t.d. döðlur eða epli og mauka svo vel í matvinnsluvél.
- Hægt er að nota ab mjólk eða jógúrt en bætið þá 1 msk af hlynsírópi við til viðbótar.
- Blanda má sultunni saman við jógúrtið í stað þess að setja hana í botninn.
Flap Jack (orkubiti)
11. janúar, 2004

Þetta er uppskrift sem ég fann í Gestgjafanum, í "Gómsætt án sykurs" efnisflokknum. Ég breytti henni smávegis þ.e. setti spelti í staðinn fyrir hveiti, agavesíróp og appelsínusafa í stað hunangs, kókosfeiti í stað ólífuolíu o.s.frv. Það er voða gott að hafa svona uppskrift við hendina ef maður er t.d. að fara í ferðalag og þarf "orkubúst" fljótt, nú eða í nesti í skólann eða vinnuna. Þetta er sem sagt mjög hollt og gott en myndi seint teljast næringarsnautt. Það eru sem sagt margar hitaeiningar í muesli með rúsínum og hnetum, haframjöli o.s.frv. en allt nauðsynlegar og hollar hitaeiningar, uppfullar af vítamínum, próteinum og flóknum kolvetnum. Neytið sem sagt sparlega en njótið :) Það er upplagt að búa til helling og frysta. Þær eru bestar nýbakaðar en einnig má rista eina og eina eða hita í ofni.
Flap Jack (orkubiti)
Gerir 14 stykki
- 1 bolli (250 ml) muesli eða granola (sykurlaust) með hnetum og rúsínum, döðlum og aprikósum. Ef ekki er notað muesli má nota meira haframjöl og saxa til viðbótar 6 þurrkaðar apríkósur og 6 þurrkaðar döðlur ásamt 50 gr af söxuðum heslihnetum og 10 gr af þurrkuðum eplum).
- 6 þurrkaðar döðlur, saxaðar smátt
- 6 þurrkaðar aprikósur, saxaðar smátt (ég nota ósúlfúríseraðar, og þær eru dökkbrúnar að lit)
- 1 bolli haframjöl
- 1/2 bolli spelti
- 50 gr hakkaðar, ristaðar heslihnetur (hneturnar má rista í 200°C heitum ofni í um 5 mínútur. Nuddið hýðið af. Einnig má rista þær á pönnu)
- 1/2 bolli rúsínur
- 1 egg
- 2 msk kókosfeiti eða ólífuolía
- 1/2 tsk kanill
- 3 msk hreint hlynsíróp (enska: maple síróp. Upprunaleg uppskrift gaf hunang
- 5 tsk ávaxtasykur
- 2 msk appelsínusafi eða meira eftir þörfum, deigið má vera ágætlega blautt.
Aðferð:
- Hitið ofninn í 170°C.
- Setjið bökunarpappír í botninn á eldföstu, ferköntuðu formi, u.þ.b. 20 cm. á kant.
- Látið muesli, haframjöl, spelti, hnetur, ávaxtasykur, döðlur, apríkósur og rúsínur saman í skál.
- Hrærið saman eggi, hlynsírópi eða hunangi, kókosfeiti eða ólífuolíu, appelsínusafa og kanil.
- Blandið eggjahrærunni vandlega saman við muesliblönduna og þrýstið blöndunni þétt ofan í formið. Ef blandan er of þurr, bætið þá smávegis í viðbót af appelsínusafa.
- Bakið í um 25-30 mín. Kælið í um 10 mínútur og skerið í bita (um 3 x 3 cm) með beittum hnífi.
- Setjið í plastbox.
- Hægt er að frysta og geyma í allt að 3 mánuði.
- Hægt er að skipta hnetum út fyrir t.d. sesamfræjum, sólblómafræjum, graskersfræjum o.s.frv.
- Það er rosa gott að taka eina og eina út úr frysti og skella í brauðristina eða bakaraofninn. Þær verða eins og nýbakaðar.
Frosnir bananar með súkkulaði og ídýfu
4. ágúst, 2008

Hafið þið séð þættina Arrested Development? Fyrir ykkur sem hafa ekki séð þessa snilldarþætti þá er mikið fjallað um "The Frosen Bananastand" sem er sölubás sem selur frosna banana og ídýfur. Mig langar ALLTAF í svoleiðis þegar ég horfi á þættina og ákvað með sjálfri mér að ég ætlaði að prófa hvort ég gæti ekki útbúið svona girnilega, frosna banana. Ég sem sagt frysti banana og dýfði honum ofan í bráðið súkkulaði (notaði reyndar carob). Þetta var snilldargott…kannski ekki fallegasti eftirmatur í heimi en hann hvarf MJÖG hratt ofan í gesti.
Frosnir bananar með súkkulaði og ídýfu
Fyrir 2-3
- 1-2 bananar (mátulega þroskaðir þ.e. ekki orðnir blettóttir og heldur ekki grænir)
- 100 gr gott, lífrænt framleitt, dökkt súkkulaði eða carob
- Ídýfa (t.d. kókosmjöl, saxaðar heslihnetur, möndluflögur o.fl.)
Aðferð:
- Afhýðið bananana og pakkið í plastfilmu.
- Frystið bananana í 1 klukkutíma (þannig að þeir verði svolítið harður en ekki eins og gler).
- Bræðið súkkulaði eða carob yfir vatnsbaði (setjið í skál, setjið skálina ofan í lítinn pott með vatni ofan í og hitið þangað til súkkulaðið bráðnar). Gætið þess að ekki komist vatn í súkkulaðið (ekki einu sinni einn dropi).
- Takið skálina úr vatnsbaðinu og setjið fyrir framan ykkur á borðið.
- Setjið ídýfuna í skálar og setjið fyrir framan ykkur á borðið.
- Takið bananana úr frystinum og skerið hvern banana í 4-5 bita (mega vera færri og stærri bitar, eftir smekk).
- Haldið í endann á hverjum bita og dýfið ofan í súkkulaðið. Notið skeið til að dreifa vel upp eftir öllum bitanum.
- Dýfið bitanum ofan í það sem þið viljið (þ.e. kókosmjöl, heslihnetur o.s.frv.).
- Setjið bananabitann á disk.
- Endurtakið með hina bitana.
- Geymið í kæli ef ekki á að bera fram strax.
- Geymist í 1-2 sólarhringa.
- Áður en þið berið bitana fram er gott að skera endann af bitanum af (þann enda sem sést í bananann því hann verður orðinn brúnn).
Grillað mangó
20. október, 2007

Þetta er með einföldustu eftirréttum sem til er en engu að síður er hann góður og hollur. Mangó er mikið notað í Afríku og ekki síst í Kenya þar sem maður getur týnt það beint af trjánum. Grillað mangó er frábært með hollum ís eða smávegis af þeyttum rjóma fyrir þá sem það vilja! Bragðgóður, einfaldur og hollur eftirréttur, alveg eins og ég vil hafa það! Kanilbörkinn á myndinni keypti ég í kryddskógi á Zanzibar.
Grillað mangó
Fyrir 2
- 1 vel þroskað, stórt mangó
- 1 tsk agavesíróp eða hreint hlynsíróp
- 1/2 tsk kanill
Aðferð:
- Að skera út mango: Mangósteinn er flatur og mjór og því þarf að skera meðfram honum til að eftirrétturinn verði sem flottastur. Skoðið mangóið aðeins og finnið út hvor hliðin er flatari. Þegar þið hafið áttað ykkur á því skuluð þið taka beittan, langan hníf og skera aðra "kinnina" af. Þið farið eins nálægt steininum og hægt er. Ágætt er að hafa í huga að steinninn er svona 1-2cm að breidd þar sem hann er breiðastur.
- Endurtakið hinu megin og skerið hina "kinnina af".
- Nú ættuð þið að vera með 2 "kinnar" og miðjuna úr mangóinu sem inniheldur steininn. Þið getið skorið utan af steininum og borðað kjötið því það er ekki notað í eftirréttinn.
- Það er pínulítið vandaverk svona í fyrsta skipti að skera mangoið rétt en æfingin skapar meistarann.
- Haldið á annarri "kinninni" þannig að kúpta hliðin snúi í lófann og mangokjötið upp.
- Takið lítinn (ekki of beittan) hníf og skerið tengingsmynstur í kjötið. Skerið þannig að þið snertið hýðið en farið ekki í gegnum það. Ímyndið ykkur að þið séuð að skera taflborð út í mangóið. Hver kubbur ætti að vera svona 1cm x 1cm. Ekki hafa áhyggjur af því þó þetta verði ekki fullkomið í fyrsta skipti.
- Það sem þið eigið núna að gera, er að gera mangóið "úthverft" þ.e. snúa því út þannig að mangoið verði í svona flottum boga. Þetta verður rosa flott ef þetta tekst og þetta getur orðið næsta partýtrikk hjá ykkur! Mangoið mun nú líta út eins og appelsínugulur broddgöltur með grófa brodda (svona hér um bil).
- Endurtakið með hina hliðina og munið að skera ekki í gegnum hýðið!
- Penslið agavesírópinu jafnt yfir mangóið.
- Dreifið kanilnum jafnt yfir.
- Bakið efst í ofninum á hæsta hita í um 10-15 mínútur eða þangað til mangóið er orðið nokkuð dökkt efst.
- Berið fram á diskum og berið fram með beittum hnífum (til að hægt sé að skera mangokjötið af).
Heit bláberja- og vanillusósa
23. ágúst, 2009

Dásemdarsósa sem er jafn góð út á hollan ís og hún er góð í alls kyns drykki (smoothie), yfir kökur og bara ein og sér upp úr pottinum. Bláber eru full af andoxunarefnum og járni ásamt trefjum og þessi djúpi, blái litur er einmitt það sem gerir þau svona holl en í honum leynast andoxunarefnin. Nota má frosin bláber í sósuna og sósuna má einnig frysta og hita upp síðar.
Heit bláberja- og vanillusósa
Gerir um 250 ml af sósu
- 200 gr bláber, fersk eða frosin
- 5 msk agavesíróp
- 1 vanillustöng
- 1 tsk sítrónusafi
- 50 ml eplasafi eða annar hreinn ávaxtasafi
Aðferð:
- Setjið bláber, agavesíróp, sítrónusafa og eplasafa í lítinn pott.
- Látið suðuna koma upp og leyfið þessu öllu að malla í nokkrar mínútur.
- Skerið vanillustöngina eftir endilöngu og skafið vanillufræin úr stönginni með oddinum á litlum hnífi. Leyfið stönglinum að sjóða með bláberjunum.
- Merjið berin aðeins með litlum gaffli og hrærið vel.
- Látið sósuna malla í 10 mínútur.
- Fjarlægið vanillustöngina.
- Berið sósuna fram heita með t.d. heitum bökum og kökum, ís o.fl.
- Hægt er að nota sósuna í alls kyns drykki.
- Sósan geymist í meira en viku í ísskápnum.
- Sósuna má frysta og hita upp síðar.
Heitur ávaxtaeftirréttur með hnetum
13. mars, 2006

Fékk þessa uppskrift hjá Smára bróður og Önnu Kristínu konunni hans. Rosa hollur og góður eftirréttur, fullur af vítamínum og andoxunarefnum ásamt hollri fitu úr hnetunum, æðislegur með heimatilbúnum ís, vanillubíómjólk eða rjóma. Upplagt að stinga í ofninn þegar maður er að borða matinn því hann verður tilbúinn á rúmum hálftíma!!!
Heitur ávaxtaeftirréttur með hnetum
Fyrir 4-5
- 1 pera, vel þroskuð, skorin í þunnar sneiðar
- 2 epli, sæt t.d. jonagold skorin í þunnar sneiðar
- 1 apríkósa, vel þroskuð, skorin í þunnar sneiðar (ég notaði mangó, rosa gott líka)
- 1/4 ferskur ananas, skorinn í bita
- 100-150 gr frosin bláber (má líka nota fleiri ber t.d. hindber)
- 1 dl haframjöl
- 1 lófi blandaðar ósaltar hnetur t.d. möndlur, pecan, heslihnetur eða cashew. Saxað gróft
- 1,5 dl hreinn trönuberjasafi (fæst t.d. Í Heilsuhúsinu og Yggdrasli)
- 2 matskeiðar agave síróp. Má vera meira fyrir sætara bragð
Aðferð:
- Haframjölinu stráð á botninn á eldföstu móti.
- Ávaxtasneiðunum raðað ofan í í lögum t.d. epli fyrst, perur svo, mangó, ananas o.s.frv.
- Hnetunum stráð yfir.
- Bláberjum raðað ofan á.
- Gott að dreifa 2 msk af haframjöli efst líka en þarf ekki.
- Blandið saman agavesírópinu og trönuberjasafanum og hellið yfir.
- Bakið í 30 mínútur við 180-200°C.
- Berið fram heitt með heimatilbúnum ís, vanillubíómjólk, eða soyarjóma svona spari :)
- Setja má fleira í þennan rétt eins og til dæmis rúsínur, döðlur, fíkjur o.fl.
- Má alveg hita upp daginn eftir ef er afgangur.
Jarðarberja- og banana íspinnar
20. júní, 2009

Þetta eru aldeilis frábærlega hollir íspinnar. Þegar ég dreg þessa úr frystinum brosa bæði krakkar og fullorðnir út að eyrum og sleikja út um. Það er alltaf gaman að borða íspinna og þessir eru líka svo einstaklega léttir og fitusnauðir, fullkomnir sem góðgæti án samviskubits. Jarðarber eru súperholl, innihalda mikið af C vítamíni sem og andoxunarefnum og eru líka góð fyrir augnheilsu okkar. Einnig eru jarðarber talin hafa vörn gegn gigt. Athugið að ef ég nota frosin jarðarber finnst mér betra að sjóða þau með agavesírópi (þannig að úr verði mauk) en ef þið eigið fersk og sæt jarðarber, þarf alls ekki að sjóða þau (þau eru líka mun hollari svoleiðis). Þið getið líka látið frosnu berin þiðna alveg áður en þið blandið þeim við annað hráefni.
Jarðarberja- og banana íspinnar
Gerir um 6 íspinna
- 250 gr jarðarber, fersk eða frosin
- 1 banani, vel þroskaður
- 100 ml sojamjólk (einnig má nota hrísmjólk, haframjólk, möndlumjólk eða léttmjólk)
- 1 msk kókosolía
- 2-3 msk agavesíróp
Aðferð:
- Setjið jarðarberin í pott ásamt agavesírópinu og kókosolíunni. Látið suðuna koma upp og leyfið jarðarberjunum að malla í um 15-20 mínútur.
- Kælið vel.
- Setjið jarðarberin í blandara eða matvinnsluvél ásamt sojamjólkinni og banananum.
- Maukið í um 30 sekúndur á fullum krafti.
- Smakkið til með meira agavesírópi ef þarf.
- Hellið ísblöndunni í íspinnaform. Sláið formunum niður í borð nokkrum sinnum til að loftbólurnar fari úr.
- Ef jarðarberin eru ekki soðin, má setja allt saman í matvinnsluvélina/blandarann og mauka á fullum krafti í 1 mínútu.
Jógúrtís með ananas og kiwi
15. janúar, 2006

Þetta er dálítið suðrænn ís þar sem í honum er meðal annar sananas og kiwi. Enginn samt sem segir að maður geti ekki borðað hann í frostinu heima á Íslandi :) Hann er léttur og fínn og upplagður fyrir fólk sem vill hollan og ferskan ís. Hann tekur smá tíma eins og allur ís sem ég geri því ég á ekki ísvél :(
Jógúrtís með ananas og kiwi
Gerir 1 lítra
- 200 gr ananskurl í eigin safa
- 1 vel þroskað kiwi í bitum
- 120 gr hreinn ananassafi
- 70 gr agavesíróp
- 125 gr matreiðslurjómi eða 10% sýrður rjómi frá Mjólku (hann er án gelatíns). Einnig má nota kókosmjólk
- 125 gr hrein, fitulaus jógúrt
Aðferð:
- Sigtið ananasinn og hellið safanum í skál.
- Geymið kurlið.
- Hrærið saman agavesíróp, jógúrt, matreiðslurjóma og ananassafa.
- Hellið blöndunni í grunnt plast eða járnílát og frystið í um 4 klukkutíma eða þar til blandan er orðin að þykku mauki.
- Hrærið ananaskurlinu og kiwiinu saman við.
- Frystið í um klukkutíma.
- Setjið blönduna í matvinnsluvél (eða notið töfrasprota) og maukið þangað til allt er orðið vel blandað (þetta er gert til að brjóta ískristallana).
- Endurtakið aftur eftir um klukkutíma og frystið. Endurtakið nokkrum sinnum.
- Ef þið eigið ísvél getið þið sett blönduna beint í ísvélina og svo í frysti.
- Látið ísinn standa á borði í um 20 mínútur eða þangað til hann er orðinn nógu þiðinn til að hægt sé að skafa úr boxinu.
Litlar ávaxtabökur með carob- og cashewkremi
17. febrúar, 2008

Það er fátt sem toppar þennan eftirrétt í hollustu. Hann inniheldur holla fitu, trefjar, prótein, vítamín og fleira gott fyrir okkur. Þennan eftirrétt má gera með góðum fyrirvara og jafnvel frysta. Eftirrétturinn er glúteinlaus og hentar líka fyrir þá sem eru jurtaætur (vegan). Botnarnir eru ekki bakaðir og það má útbúa þá vel á undan og taka með sér fyllinguna og kremið og setja saman annars staðar (upplagt í sumarbústaðinn og útileguna til dæmis). Uppskriftin virkar flókin því hún er í þremur bútum en hún er ofureinföld. Athugið að þið getið sett hvaða fyllingu sem er í botninn. Einnig má baka botnana ef þið viljið hafa þá heita.
Litlar ávaxtabökur með carob- og cashewkremi
Gerir 6 ávaxtabökur
Botn:
- 100 gr möndlur, lagðar í bleyti í nokkra klukkutíma (gott að nota sjóðandi heitt vatn)
- 100 gr döðlur, lagðar í bleyti í nokkra klukkutíma
- 1 msk cashnewhnetumauk (fæst í krukkum í heilsubúðum og heitir cashew butter). Einnig má nota möndlusmjör
- 1 tsk vanilluduft eða dropar
- 3/4 tsk kanilduft
Fylling:
- 50 gr döðlur
- 50 gr aprikósur
- 40 gr þurrkuð epli
- 25 gr rúsínur
- 3 msk cashewhnetumauk eða möndlusmjör
- 2 msk hreint hlynsíróp eða agavesíróp
Krem:
- 1 vel þroskaður banani
- 1 msk carobduft
- 2 tsk hreint hlynsíróp eða agavesíróp
- 2 msk cashewhnetumauk eða möndlusmjör
Aðferð:
- Hellið vatninu af möndlunum og döðlunum og maukið í matvinnsluvél ásamt cashewhnetumauki, vanilludufti og kanil. Deigið ætti að vera vel maukað en ekki samt of blautt.
- Þrýstið deiginu í kanta á muffinsbökunarplötu. Gott er að nota silikonform en annars þarf að nota muffins pappírsform.
- Frystið í 1-2 klukkutíma.
- Setjið allt sem á að fara í fyllinguna í matvinnsluvél og blandið í smá stund eða þangað til allt er orðið vel hakkað en alls ekki maukað. Geymið í skál.
- Setjið allt sem á að fara í kremið í matvinnsluvél og maukið vel.
- Takið muffinsbökunarplötuna úr frysti og losið botnana varlega úr.
- Setjið fyllinguna ofan í hverja böku með teskeið.
- Setjið bökurnar á litla diska og hellið kremi yfir (gott að nota sprautupoka).
- Skreytið með söxuðum hnetum eða kókos (má sleppa).
Lummur með bláberjum
1. september, 2007

Ekta góð lummuuppskrift en auðvitað holl. Það er ekkert betra en að nota fersk, nýtýnd bláber úr berjamó! Upplagt er að nota kaldan hafragraut ef þið eigið hann til. Þetta er fitulítil og próteinrík uppskrift og full af andoxunarefnum (úr bláberjunum).
Lummur með bláberjum
Gerir 8-10 lummur
- 3/4 bolli haframjöl (ég miða við 250 ml bolla)
- 1 bolli vatn (gæti þurft meira)
- 1 tsk vínsteinslyftiduft
- 1/2 bolli spelti
- 1/2 tsk heilsusalt (Herbamare)
- 1/2 tsk kanill
- 1 egg, hrært lauslega
- 3 msk agavesíróp
- 1 msk kókosfeiti eða ólífuolía
- 3/4 bolli undanrenna (notið helminginn fyrst og bætið við ef þarf)
- 1 bolli fersk bláber
Aðferð:
- Sjóðið vatn og haframjöl saman í um 7-10 mínútur þangað til úr verður þykkur grautur.
- Bætið við meira vatni ef þarf.
- Blandið saman spelti, vínsteinslyftidufti, kanil og salti.
- Hrærið saman í sér skál eggi, agavesírópi, kókosfeiti eða ólífuolíu, og undanrennu.
- Blandið þessu tvennu saman og hellið hafragrautnum saman við.
- Hitið pönnukökupönnu vel (á hæsta hita).
- Setjið smá kókosfeiti í þurrku og dreifið yfir pönnuna.
- Hellið einni ausu af deigi út á pönnuna.
- Dreifið 1 msk af bláberjum ofan á blautt deigið og ýtið ofan á hvert bláber, mjög varlega svo það fari aðeins inn í deigið.
- Hitið vel og snúið við með pönnukökuspaða.
- Berið fram heitt og með hreinu hlynsírópi (enska: maple syrup), agavesírópi eða einhverju öðru sem ykkur finnst gott að hafa með.
Mangó- og kókosís
15. janúar, 2006

Þessi ís er afar bragðgóður enda mjög skemmtilegt bragð sem kemur þegar maður blandar mangó og kókos saman. Það verður voða suðrænt og seiðandi bragð. Það má líka sleppa kókosnum fyrir þá sem fíla hann ekki. Einnig má nota banana í staðinn fyrir mangó. Upprunaleg uppskrift kemur úr lítill bók sem ég á en þeirri uppskrift var bæði gelatín (matarlím m.a. unnið úr beinamjöli dýra og ég nota það alls ekki) og feitasti rjómi sem um getur svo uppskriftin er dálítið mikið breytt.
Mangó- og kókosís
Gerir rúmlega 1 lítra
- 1 stórt (eða 2 lítil), mjög vel þroskað mangó, saxað gróft
- 1/2 dl kókosmjöl
- 60 gr agavesíróp
- 1 msk hlynsíróp (enska: maple syrup). Má sleppa og nota aðeins meiri agavesíróp í staðinn.
- 200 ml matreiðslurjómi (15%) eða sojarjómi. Einnig má nota kókosmjólk)
- 150 ml undanrenna
Aðferð:
- Blandið öllu vel saman í blandara eða matvinnsluvél.
- Ef notuð er ísvél setjið blönduna þá í ísvél í um 40 mínútur og svo inn í frysti. Ísinn er bestur eftir um klukkutíma.
- Ef ekki er notuð ísvél, hellið þá blöndunni úr matvinnsluvélinni í kalt plastbox og frystið í klukkutíma.
- Takið út úr frysti og hrærið með töfrasprota eða setjið í matvinnsluvél þangað til allt er orðið vel maukað.
- Frystið í um klukkutíma og endurtakið þá og frystið aftur.
- Nota má meira kókosmjöl og jafnvel kókosmjólk fyrir þá sem eru hrifnir af kókosbragðinu.
Páskaegg
28. mars, 2009

Ég hef stundum gert páskaegg úr súkkulaði í gegnum tíðina. Ég er samt mjög mikill klaufi þegar kemur að páskaeggjagerð og ég held að það sem mér finnist mest pirrandi er að ná skeljunum úr mótinu án þess að þær fari í spað. Ég skil ekki hvers vegna mót úr sílikoni eru ekki fáanleg, það væri 100 sinnum þægilegra að eiga við. Að búa til sitt eigið egg er ekkert endilega sérstaklega ódýrt, nema maður geri lítil egg og noti ódýrt hráefni (sem lífrænt súkkulaði er ekki). Mitt mót er álíka og avocado að stærð og maður þarf nánast 200 gr af súkkulaði til að vel sé með botni, samskeytum og öllu. Fyrir ódýrasta súkkulaðið (lífrænt framleitt með hrásykri t.d. frá Green & Black’s) þá eru það samt tæpar 600 krónur (og þá ekki reiknað það sem fer inn í eggið). Ef maður gerir 2 egg er það fljótt að koma í verði. Það er samt skemmtilegt að búa til egg og maður ætti ekki að sleppa því þó það kosti eitthvað pínulítið meira...það er þess virði. Það sem mér finnst skemmtilegast að gera er að útbúa nokkur lítil egg, ásamt heimatilbúnu konfekti og setja saman í körfu. Það er líka fallegra finnst mér því stærri páskaegg geta verið svolítið klunnaleg (en það er kannski bara af því ég er klaufi). Annað sem ég á alltaf í erfiðleikum með, er að láta súkkulaðið storkna þannig að hægt sé að nota það í skreytingar. Það tekur óratíma svo maður þarf að gefa sér góðan tíma. Þetta á a.m.k. við Green & Black’s og Rapunzel súkkulaðið. Gott er að bræða það tvisvar, það er auðveldara í meðhöndlun þannig. Það er um að gera að prófa og búa til sitt eigið páskaegg, alltaf gaman að föndra! Athugið að plastmótin fyrir páskaegg fást t.d. í Pipar og salt, Klapparstíg. Athugið einnig að páskaeggin verða mött fljótlega eftir að þau koma úr mótinu. Þið getið notað dökkt eða ljóst súkkulaði, allt eftir smekk og þá getið þið stýrt því þannig að það henti t.d. þeim sem hafa mjólkuróþol. Athugið að páskaeggjagerðin virkar hroðalega flókin en hún virkar flóknari en hún er því ég er búin að brjóta undirbúninginn niður í mörg stig til að hún verði sem auðveldust fyrir ykkur, skref fyrir skref.
Páskaegg
Fyrir 1-2
- 200 gr dökkt (eða ljóst), lífrænt framleitt súkkulaði með hrásykri (t.d. Rapunzel eða Green & Black’s)
- Heimatilbúið konfekt, þurrkaðir ávextir eða annað gotterí t.d. keypt í heilsubúð
- 1 eða 2 páskaeggjamót (skeljar álíka stórar og avacado eða minni) og botn (það má sleppa botninum)
Skeljarnar:
- Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði. (Setjið svolítið vatn í lítinn pott. Setjið skál ofan á pott þannig að skálin sitji á brúnunum. Setjið súkkulaðið ofan í skálina og bræðið yfir vægum hita). Gætið þess að ofhita ekki súkkulaðið og það má alls ekki fara dropi af vatni ofan í skálina. Gott er að bræða súkkulaðið tvisvar sinnum (láta storkna alveg og bræða aftur).
- Látið súkkulaðið storkna aðeins.
- Hellið nokkrum matskeiðum ofan í annað plastmótið, látið súkkulaðið renna vel um mótið. Einnig getið þið penslað súkkulaðinu.
- Látið storkna (getið sett í ísskápinn í nokkrar mínútur).
- Endurtakið tvisvar í viðbót.
- Setjið að lokum eina góða rönd af súkkulaði meðfram brúninni (mesta hættan á broti).
- Setjið í ísskáp í nokkrar mínútur.
- Endurtakið með hitt plastmótið. Ef þið eruð einungis að nota eitt, þurfið þið að láta súkkulaðið storkna vel áður en þið notið mótið aftur. Gætið þess að enginn raki, fingraför eða ryk sé í mótinu.
Botninn:
- Hellið súkkulaði í botninn. Látið það storkna.
Að ná súkkulaðinu úr plastmótunum:
- Nú skuluð þið taka mótin tvö og leggja þau á hvolf ofan á disk. Leggið höndina yfir kúpta hlutann þannig að hlýja handarinnar hiti súkkulaðið eilítið. Losið mótið varlega frá (gott er að nota plasthanska eða servíettur til að káma ekki út eggið) og gætið þess að brjóta ekki skeljarnar. Þetta hefur reynst svolítið erfitt stundum og þá er bara að sýna þolinmæði.
- Ef eggið brotnar, má bræða súkkulaðið og byrja aftur.
- Endurtakið með hina skelina sem og botninn.
Fyllingin:
- Hafið til konfekt, þurrkaða ávexti eða annað gotterí sem þið viljið setja í eggið. Það er hægt að fá alls kyns sælgæti í heilsubúðum sem hentar svona skrítnu fólki eins og t.d. mér. Einnig er gaman að skrifa skemmtilegan og persónulegan málshátt og setja inn í eggið.
Hliðarnar (ekki skreyttar með sprautupoka):
- Ef ekki á að skreyta hliðarnar með súkkulaði úr sprautupoka: Setjið konfekt eða annað gotterí í aðra skelina. Penslið súkkulaði á brún skeljarinnar. Leggið hina skelina ofan á. Látið storkna. Penslið svolitlu (nánast storknuðu) súkkulaði ofan á botninn og leggið eggið ofan á. Haldið við í smá stund.
Hliðarnar (skreyttar með sprautupoka)
- Ef skreyta á hliðarnar með súkkulaði úr sprautupoka: Setjið konfektið í aðra skelina.
- Setjið nokkra dropa af súkkulaði á brúnir annarrar skeljarinnar. Leggið hina skelina varlega ofan á. Þær ættu að festast aðeins saman.
- Leggið allt til hliðar á meðan afgangurinn af súkkulaðinu storknar. Það þarf að vera þannig að hægt sé að draga skeið í gegnum súkkulaðið og það haldi enn þá lagi sínu án þess að vera stíft.
- Setjið súkkulaði í sprautupoka og sprautið aðra hlið páskaeggsins. Látið storkna.
- Sprautið hina hlið páskaeggsins og látið storkna.
- Sprautið smá klessu ofan á botn páskaeggsins og leggið eggið ofan á. Haldið við í smástund á meðan það stífnar.
Skreyting ofan á:
- Ef þið viljið setja unga á toppinn (eða strump eða eitthvað annað smádót), setjið þá smá klessu af súkkulaði á toppinn og látið skrautið ofan á. Einnig má skreyta eggið með fallegum borða. Ef þið gerið nokkur lítil egg má raða þeim í fallega körfu, ásamt öðru gotteríi og skreyta svo með borða, páskaliljum eða öðru páskalegu dóti.
- Gott er að bræða súkkulaðið tvisvar, það er auðveldara í meðhöndlun þannig.
- Plastmótin fyrir páskaegg fást t.d. í Pipar og salt, Klapparstíg.
- Páskaeggin verða mött fljótlega eftir að þau koma úr mótinu.
- Gott er að nota hanska eða servíettu til að meðhöndla súkkulaðið svo ekki komi fingraför.
- Þið getið notað dökkt eða ljóst súkkulaði, allt eftir smekk og þá getið þið stýrt því þannig að það henti t.d. þeim sem hafa mjólkuróþol.
Pecanhnetu- og cashewmaukskökur
5. janúar, 2009

Ferlega góðar og öðruvísi kökur sem gaman er að bjóða upp á t.d. í matar- eða saumaklúbbinum. Þær eru afar saðsamar enda fullar af hollustu. Ef þið fáið kakónibbur (cocoa nibs) bætið þið aldeilis við hollustuna því þær eru pakkfullar af andoxunarefnum enda bara muldar kakóbaunir og ekkert annað. Í pecanhnetum og cashewhnetum er holl fita sem hjálpa til við að halda hjartanu heilbrigðu. Nauðsynlegt er að eiga matvinnsluvél eða góðan blandara til að búa kökurnar til. Ég notaði heimatilbúið cashewhnetumauk en hægt er að kaupa það í heilsubúðum. Það er hræðilega dýrt svo ég mæli með að búa það til sjálf enda ekkert mál. Athugið að kökurnar þurfa að stífna í ísskápnum í nokkra klukkutíma áður en þær eru borðaðar. Kökurnar henta vel þeim sem hafa mjólkur-, eða glúteinóþol. Gaman er að skreyta kökurnar með söxuðum jarðarberjum, bláberjum eða öðrum berjum og ávöxtum.
Pecanhnetu- og cashewmaukskökur
Gerir 8-10 kökur
Skeljar:
- 1 bolli pecanhnetur
- 1/2 bolli fínt malaðar möndlur
- 1/2 bolli döðlur (lagðar í bleyti í 20 mínútur)
Fylling:
- 100 gr cashewhnetur eða samsvarandi magn af cashewhnetumauki
- 1 banani
- 4 msk agavesíróp
- 2 msk kókosfeiti
- 3 msk kakónibbur (cocoa nibs), má sleppa
Aðferð:
- Setjið cashewhneturnar í matvinnsluvélina og maukið vel og lengi þ.e. látið matvinnsluvélina ganga í a.m.k. 1 mínútu.
- Setjið cashewhnetumaukið til hliðar.
- Hellið vatninu af döðlunum og setjið pecanhnetur, möndlur og döðlur í matvinnsluvélina.
- Blandið þannig að deigið verði grófkornótt og límist vel saman (ekki of maukað en samt þannig að klessist vel saman og haldist þannig).
- Notið lítil form úr silikoni eða klæðið muffinsform að innan með plastfilmu.
- Þrýstið blöndunni ofan í botninn og alveg upp á hliðarnar. Skelin verður að vera ágætlega þykk til að halda fyllingunni. Geymið í ísskápnum.
- Setjið bananann og cashewhnetumaukið í matvinnsluvélina og maukið vel.
- Bætið öllu öðru út í nema kókosfeitinni og látið vélina ganga í nokkrar sekúndur.
- Bætið kókosfeitinni saman við og maukið vel.
- Setjið í skál með plastfilmu yfir og geymið í ísskápnum í a.m.k. 2-3 klukkustundir.
- Takið skeljarnar úr ísskápnum.
- Fjarlægið formin.
- Hellið blöndunni út í eða notið sprautupoka til að sprauta fyllingunni í skeljarnar.
- Geymið í ísskáp í um klukkustund.
- Dreifið kakónibbunum yfir hverja og eina.
- Berið kökurnar fram kaldar.
- Nota má valhnetur í staðinn fyrir pecanhnetur.
- Nota má peru í staðinn fyrir banana
Pönnsur (pönnukökur)
18. apríl, 2004

Hér er fín uppskrift af speltpönnukökum. Pönnukökur með St.Dalfour sultu og smá slettu af rjóma er eitt það besta sem ég fæ. Ég borða aldrei rjóma (finnst hann ekki góður) nema slettu öðru hvoru á pönnukökur. Nammi namm. Uppskriftin er blanda úr mörgum, er búin að prófa margar og þessi er finnst mér sú sem heppnast alltaf best. Pönnukökubakstur er ekki endilega auðveldur í fyrstu skiptin svo það er gott að hafa eftirfarandi í huga:
Best er að vera með alvöru pönnukökupönnu. Hana má ekki þvo með sápu og helst ekki með vatni heldur. Nóg er að strjúka af henni með þurrku. Hellan þarf að vera nógu stór til að ná alveg út að brúnum pönnnunar til að jafn hiti náist. Hellan þarf að vera á réttum hita þ.e. mjög heit fyrst og lækkið svo niður í meðal hita áður en þið farið að baka pönnukökurnar. Það tekur smá tíma að stilla hitann af því pannan má ekki vera of heit né köld. Ef pönnukökurnar verða dökkar og harðar og mikið af götum myndast í deiginu er hellan of heit, ef þær eru lengi að bakast er pannan of köld. Svo er bara að æfa sig! Það er gott að æfa sig nokkrum sinnum áður en þið fáið gesti í pönnsukaffi, þannig er minna stress þegar stóra stundin rennur upp! Hafið í huga að bestu pönnsubakararnir eru ömmur (eða afar) sem hafa bakað pönnsur í 40 ár svo það gildir hér eins og í mörgu að æfingin skapar meistarann. Ég var orðin ágætlega fær eftir að hafa bakað pönnsur öðru hvoru í 7 ár (en samt ekki eins flink og amma mín eða amma Jóhannesar...næ þeim eflaust aldrei).
Pönnsur (pönnukökur)
Fyrir 3-4
- 300 gr fínmalað spelti (pönnsur úr spelti verða alltaf aðeins þykkari en þær sem eru úr hveiti því það er öðruvísi glúteinsamsetning í spelti en hveiti þ.e. "minni teygja" í speltinu). Best er að nota fínmalað spelti en einnig nota má grófmalað spelti.
- 1 msk vínsteinslyfiduft
- 2 egg
- 1 tsk vanilludropar eða vanilluduft úr heilsubúð
- 5,5 dl sojamjólk eða léttmjólk
- 1 msk kókosolía
- 1/2 dl koffeinlaust kaffi (má vera með koffeini fyrir þá sem vilja). Má sleppa og nota vatn í staðinn
Aðferð:
- Sigtið þurrefnin saman.
- Hrærið eggið, vanilludropa og mjólk saman ásamt kaffinu ef það er notað.
- Hellið eggjablöndunni hægt út í speltblönduna og hrærið allan tímann. Notið sósupískara til að hræra alla kekki út.
- Bætið kókosolíunni saman við og hrærið vel, deigið á að vera eins kekkjalaust og hægt er.
- Deigið á að vera mjög þunnt þannig að ef þið stingið skeið ofan í ætti deigið að leka umsvifalaust af bakhliðinni (og alls ekki að þekja hana).
- Hitið pönnuna í hæsta hita og lækkið svo niður í miðlungshita. Stundum þarf að hækka aðeins hitann og lækka aftur á meðan er verið að baka.
- Setjið nokkra dropa af deigi á pönnuna, ef þeir bakast samstundis, er pannan tilbúin.
- Berið nokkra dropa af kókosolíu með eldhúsþurrku á pönnuna, örþunnt. Einnig má nota olíuúða.
- Setjið u.þ.b. eina ausu af deigi á pönnuna og látið deigið þekja alla pönnuna. Gerið þetta hratt svo að þið getið látið afganginn af deiginu leka aftur niður í deigskálina. Annars verður pönnukakan of þykk. Hún á að vera eins þunn og hægt er.
- Þurrkið deigafgang af pönnukökupönnunni með ausunni (fjarlægið köggulinn því annars verður deigið kekkjótt.
- Ef pönnukakan verður öll í litlum holum er pannan of heit, lækkið hitann aðeins.
- Endurtakið með afganginn af pönnukökunum, ef deigið er of þykkt má bæta meira kaffi eða mjólk út í.
- Berið fram með smá rjóma (sojarjóma ef þið viljið), bláberjasultu, döðlusultu, rabarbarasultu eða öðrum sultum, hreinu hlynsírópi, agavesírópi og öllu því sem ykkur langar að hafa með!
- Gott er að nota þessa pönnukökuuppskrift í Crépes líka (pönnukökur með mat innan í) en best þá að sleppa vanilludropunum og kaffinu.
Rabarbara- og jarðarberjaís
20. júní, 2009

Elva vinkona mín gaukar gjarnan að mér rabarbara yfir sumartímann. Það er alltaf gaman að fá rabarbarasendingu því þá er eiginlega vertíð í eldhúsinu mínu. Ég fer í rabarbaraham og geri allt með rabarbara. Það er líka allt í lagi því hann er svo hollur og góður. Þessi ís er afar hollur því hann inniheldur ekki neina mettaða fitu og engar mjólkurvörur. Ísinn inniheldur einómettaðar fitusýrur úr cashewhnetunum og rabbabarinn er líka afskaplega hollur, inniheldur m.a. A og C vítamín og er mjög trefjaríkur. Rabarbari á að minnka hættu á myndun krabbameinsfruma og á að vera góður við bólgum í liðum, ofnæmum og til að lækka háan blóðþrýsting. Jarðarber eru líka ofurholl, innihalda alveg heilan helling af C vítamíni (100 grömm innihalda ráðlagðan dagsskamt). Þau innihalda líka kröftug andoxunarefni og geta því einnig spornað gegn myndun krabbameinsfruma eins og rabarbarinn. Einnig hafa jarðarber þótt vera góð til að viðhalda heilbrigðum augum og góðri sjón sem og eiga þau að vera vörn við gigt. Athugið að börn geta verið með ofnæmi fyrir jarðarberjasteinum svo ekki er ráðlagt að gefa mjög ungum börnum jarðarber (nema þið séuð viss um að þau hafi ekki ofnæmi). Þessi ís er fallega bleikur á litinn og það er gaman að bera hann fram á sumarkvöldi eftir góðan mat. Hægt er að gera þennan ís án ísvélar. Athugið að leggja þarf cashewhneturnar í bleyti í sólarhring áður en ísinn er búinn til svo gefið ykkur góðan tíma.
Rabarbara- og jarðarberjaís
Gerir rúmlega 500 ml af ís
- 100 gr cashewhnetur, sem búnar eru að liggja í bleyti í sólarhring
- 150 gr rabarbari
- 150 gr jarðarber (fersk eða frosin)
- 100 ml vatn
- 100 ml agavesíróp (meira eftir smekk)
Aðferð:
- Hellið vatninu af cashewhnetunum og setjið hneturnar í matvinnsluvél. Blandið í 2 mínútur eða þangað til hneturnar eru orðnar mjög vel maukaðar. Gott er að skafa hliðar matvinnsluvélarinnar nokkrum sinnum og blanda áfram. Afar mikilvægt er að mauka hneturnar eins vel og hægt er.
- Hellið 100 ml af vatni út í ásamt helmingnum af agavesírópinu (50 ml). Blandið í eina mínútu eða lengur eða þangað til blandan er eins og þykk mjólk að áferð.
- Setjið í skál og geymið í ísskápnum í klukkutíma.
- Skolið rabarbarann og skerið í grófar sneiðar.
- Setjið rabarbarann í matvinnsluvélina.
- Bætið jarðarberjunum út í ásamt afganginum af agavesírópinu.
- Blandið á fullum krafti í eina mínútu eða þangað til allt er vel maukað. Bætið meira agavesírópi út í ef þið viljið sætari ís.
- Setjið í skál og geymið í ísskápnum í klukkutíma.
- Ef þið eigið ísvél, setjið þá cashewblönduna í ísvélina í um 30 mínútur. Bætið þá jarðarberjablöndunni saman við og látið vélina ganga í nokkrar sekúndur (til að fá fallegt mynstur í ísinn).
- Fyrir þá sem eiga ekki ísvél þá þarf að setja cashewblönduna í stórt plastbox og hræra í blöndunni á um klukkutíma fresti í nokkra klukkutíma eða þangað til erfitt er orðið að hræra meira. Þegar cashewblandan er nánast alveg frosin, bætið þá jarðarberjablöndunni út í og hrærið nokkrum sinnum.
- Setjið í frystinn og frystið í nokkra klukkutíma eða lengur.
- Það er frábært að gera íshristing (sjeik) úr þessum ís.
- Nota má rifsber í staðinn fyrir jarðarber en þá þarf meira af agavesírópi.
- Nota má macadamiahnetur í staðinn fyrir cashewhnetur.
- Nota má hreint hlynsíróp (enska: maple syrup) í staðinn fyrir agavesírópið.
- Ef þið eigið cashewhnetumauk getið þið notað það (sama magn) í staðinn fyrir að mauka hneturnar sjálf.
Rabarbara- og jarðarberjaíshristingur (sjeik)
20. júní, 2009

Nammi nammi. Það er fátt betra en hristingur (sjeik) á heitum sumardegi og þá er ég auðvitað að meina hollur hristingur. Sá hristingur sem þið getið keypt í ísbúðum og þess háttar (eða skyndibitastöðum) er hlaðinn sykri og fitu og maður ætti að forðast í lengstu lög að láta slíkt ofan í sig. Oft innihalda þeir fleiri hitaeiningar, sykur og fitu en nokkuð annað á matseðlinum. Þessi rabarbara- og jarðarberjahristingur er aftur á móti afar hollur og góður og inniheldur einómettaðar fitusýrur, trefjar, C vítamín og andoxunarefni. Athugið að leggja þarf cashewhneturnar í bleyti í sólarhring áður en hristingurinn er búinn til svo gefið ykkur góðan tíma. Það þarf 250 gr af ísnum fyrir hristinginn svo ef þið eigið hann til er nóg að bæta bara mjólkinni út í.
Rabarbara- og jarðarberjaíshristingur (sjeik)
Fyrir 2
- 50 gr cashewhnetur, sem búnar eru að liggja í bleyti í sólarhring
- 50 gr rabarbari
- 50 gr jarðarber (fersk eða frosin)
- 50 ml vatn
- 50 ml agavesíróp
- 50-100 ml sojamjólk (einnig má nota haframjólk, hrísmjólk, undanrennu eða möndlumjólk)
Aðferð:
- Hellið vatninu af cashewhnetunum og setjið í matvinnsluvél. Blandið í 2 mínútur eða þangað til hneturnar eru orðnar vel maukaðar. Gott er að skafa hliðar matvinnsluvélarinnar nokkrum sinnum og blanda áfram.
- Hellið 100 ml af vatni út í ásamt helmingnum af agavesírópinu. Blandið í eina mínútu eða lengur eða þangað til blandan er eins og þykk mjólk að áferð. Mikilvægt er að hneturnar maukist vel.
- Setjið í skál og geymið í ísskápnum í klukkutíma.
- Skolið rabarbarann og skerið í grófar sneiðar.
- Setjið rabarbarann í matvinnsluvélina.
- Bætið jarðarberjunum út í ásamt afganginum af agavesírópinu.
- Blandið á fullum krafti í eina mínútu eða þangað til allt er vel maukað. Setjið í skál og geymið í ísskápnum í klukkutíma.
- Ef þið eigið ísvél, setjið þá cashewblönduna í ísvélina í um 30 mínútur. Bætið þá jarðarberjablöndunni saman við og látið vélina ganga í um eina mínútu.
- Fyrir þá sem eiga ekki ísvél þá þarf að setja cashewblönduna í stórt plastbox og hræra í blöndunni á um klukkutíma fresti í nokkra klukkutíma eða þangað til erfitt er orðið að hræra meira. Þegar cashewblandan er nánast alveg frosin, bætið þá jarðarberjablöndunni út í og hrærið nokkrum sinnum.
- Setjið í frystinn og frystið í nokkra klukkutíma.
- Setjið ísinn í blandara ásamt mjólkinni (byrjið með 50 ml og bætið svo meira út í eftir því hvað þið viljið hafa hristinginn þykkan).
- Berið fram ískalt, gjarnan með röri.
Rabarbaragrautur
18. ágúst, 2008

Það er hægt að gera margar útgáfur af rabarbaragraut og til dæmis er gaman að sjóða bláber með og ég hef líka prófað appelsínubörk. Það tíðkaðist hér áður fyrr að setja rauðan matarlit út í rabarbaragraut…það myndi mér aldrei detta til hugar og þess vegna er grauturinn minn svolítið brúnn. Það má sjóða nokkur jarðarber með grautnum til að fá hann aðeins rauðari. Rabarbari hefur verið notaður í lækningarskyni í Kína síðan sautján hundruð og súrkál (og meira að segja lengur)... Rabarbari á að minnka hættu á að fá krabbamein en einnig hefur hann verið notaður t.d. við bólgum í liðum, ofnæmum og til að lækka háan blóðþrýsting. Rabarbari inniheldur A og C vítamín og er mjög trefjaríkur.
Rabarbaragrautur
Fyrir 2-3
- 350 gr rabarbari, þveginn og saxaður gróft
- 100 gr döðlur, saxaðar gróft
- 4-5 jarðarber (má sleppa)
- 1/4 bolli agavesíróp
- 1/2 tsk kanill
- 1/4 tsk negull (enska: cloves)
- 1 cm. bútur engifer, afhýtt og saxað mjög fínt
Aðferð:
- Setjið allt í pott og látið sjóða í um 15-20 mínútur.
- Hrærið grautinn með gaffli nokkrum sinnum kröftuglega.
- Blandið með töfrasprota ef þið viljið mjög fína áferð. Mér finnst gott að hafa hana svolítið grófa.
- Berið grautinn fram heitan með meiri kanil og sojamjólk (einnig má nota undanrennu, möndlumjólk, haframjólk eða hrísmjólk).
Rabarbarasulta
18. ágúst, 2008

Mér hefur eiginlega alltaf þótt rabarbarasulta vond. Þangað til ég gerði mína eigin (svona er ég nú óþolandi he he). Elva vinkona mín kom færandi hendi með 500 kg af rabarbara (eða svona 5 kg) og ég varð að búa til eitthvað úr honum. Ég útbjó þessa fínu rabarbarasultu og er núna búin að sjóða ofan í krukkur til vetrarins svona eins og gömlu konurnar í sveitinni. Vissuð þið að rabarbari eru skyldur bókhveiti? Rabarbari er líka stundum kallaður “bökuplantan” því fyrst og fremst er hann notaður í bökur (a.m.k. erlendis því hér er hann meira notaður í sultur..og ætti því kannski að endurnefnast “sultuplantan”). Rabarbari inniheldur A og C vítamín og er mjög trefjaríkur. Rabarbari á að minnka hættu á krabbameini en hann hefur verið notaður í lækningaskyni í Kína síðan í eldgamla daga t.d. við bólgum í liðum, ofnæmum og til að minnka háan blóðþrýsting. Rabarbaralauf eru sögð baneitruð (innihalda efnið oxelate) og ætti ekki að borða þau.
Rabarbarasulta
Gerir um 400 ml
- 350 gr rabarbari, þveginn og saxaður gróft
- 100 gr döðlur, saxaðar gróft
- 1/4 bolli agavesíróp
- 1/2 tsk kanill
- 1 tsk sítrónusafi
Aðferð:
- Setjið allt í pott og látið sjóða í um 15-20 mínútur.
- Gott er að hræra kröftuglega í sultunni með gaffli af og til.
- Setjið í sótthreinsaðar krukkur (sjóðið krukkur og lok í 10 mínútur).
Rúsínuklattar
7. nóvember, 2006

Þetta eru nú eiginlega þykkar pönnsur með rúsínum og jógúrti/súrmjólk. Hér má líka nota kaldan hafragraut í deigið. Hollt og gott, upplagt með sultu eða hlynsírópi og smá soyarjóma (eða venjulegum). Fínasti árdegisverður (brunch) á sunnudegi.
Rúsínuklattar
Gerir um 10-12 klatta
- 300 gr spelti
- 2 tsk vínsteinslyfiduft
- 2 egg
- 1 tsk vanilludropar
- 3 dl súrmólk eða jógúrt
- 1-2 dl léttmjólk
- 1 tsk kókosfeiti eða ólífuolía
- 1/2 dl koffeinlaust kaffi (má vera með koffeini fyrir þá sem vilja)
- 2 dl rúsínur
- Pönnukökupanna
Aðferð:
- Sigtið þurrefnin saman og blandið við blautu hráefnin. Bætið rúsínunum saman við og hrærið.
- Deigið á að vera nokkuð þykkt þannig að það dropi í kekkjum af sleif. Á ekki að dropa eins og ef um pönnukökudeig væri að ræða heldur á deigið að vera mun þykkara en samt alls ekki svo þykkt að hægt væri að hnoða það.
- Hitið pönnukökupönnuna í hæsta og lækkið svo niður í miðlungshita (pannan má ekki vera of heit og ekki of köld).
- Berið kókosfeiti eða ólífuolíu með þurrku á pönnuna, örþunnt. Má einnig nota olíuúða.
- Setjið u.þ.b. 3/4 úr ausu af deigi á pönnuna og dreifið aðeins með skeið þannig að klattinn verði ekki of þykkur. Klárið deigið, ef það er of þykkt má bæta meira kaffi eða mjólk út í.
- Berið fram með sojarjóma (eða þeyttum, venjulegum rjóma ef þið kjósið það), hlynsírópi eða agavesírópi, ávaxtasykri, sykurlausri St.Dalfour sultu eða sultu frá Himneskri hollustu o.s.frv.
Sólskinskúla
30. janúar, 2006

Við kaupum okkur oft svona sólskinskúlur í heilsubúðum hér í London. Þetta eru í raun bara sólblómafræ, rúsínur, hrískökur og byggmaltsíróp blandað saman í kúlu og látið harðna. Ég ákvað að búa til mína eigin og keypti til þess Barleymalt síróp (unnið úr byggi) og það heppnaðist alveg ljómandi vel. Þetta er allavega sniðugt nasl til að taka með sér t.d. í bíltúrinn eða í ferðalagið, fínt fyrir krakka að búa til og svo gæti verið skemmtilegt að gera svona kúlur og skreyta með t.d. litríkum borða og gefa sem gjöf. Aðalkosturinn samt er að kúlan gefur frábæra samsetningu af hollri fitu, vítamínum, próteinum, flóknum kolvetnum og er mjög góður kostur t.d. sem miðdegissnarl. Athugið að búa til kúlurnar minnst sólarhring áður en á að borða þær.
Sólskinskúla
Gerir 4 kúlur
- 2 dl sólblómafræ
- 2 dl ljósar rúsínur (enska: sultanas)
- 6 hrískökur (enska: Rice cakes)
- 6-8 msk lífrænt framleitt byggmaltsíróp (enska: Barleymalt Syrup) blandað saman við 3 msk af vatni. Þeir sem hafa glúteinóþol mega ekki borða byggafurðir og ættu því að nota hrísgrjónasíróp í staðinn (enska: brown rice syrup). Getur þurft að hræra vel, blandast hægt saman
Aðferð:
- Öllu blandað saman, hrískökurnar muldar (ekki alveg í mjöl samt) og sírópinu hellt varlega yfir í mjórri bunu, hrært oft í á meðan.
- Best er að setja plastfilmu ofan í t.d. morgunmatsskál og skófla svona 5-6 kúfullum matskeiðum ofan í.
- Takið plastið upp og mótið kúlu í höndunum og lokið plastfilmunni mjög þétt utan um kúluna (látið harðna í plastinu).
- Kúlurnar eru bestar á 3ja degi en geymast í viku áður en þær fara að þorna of mikið.
- Hver kúla á að vera eins og meðalstór appelsína að stærð eða um 70-90 grömm eftir smekk.
- Hægt er að nota t.d. sesamfræ, hörfræ og alls kyns fræ í kúluna.
Súkkulaði- og bananamús
20. júní, 2009

Sérlega sniðug súkkulaðimús með hollri fitu úr cashewhnetum sem er afar góð fyrir hjarta og æðar. Kakó inniheldur líka andoxunarefni og kakónibbur eru eitt það hollasta sem maður fær. Í þessarri mús er hvorki rjómi, egg, hvítur sykur, matarlím né nokkuð annað sem getur stíflað æðar eða farið illa með líkamann. Það er best að borða músina við stofuhita því hún stífnar upp í kælinum. Athugið að bananarnir verða aðeins brúnir við að geymast svo best er að gera þennan eftirrétt samdægurs (eða undirbúa allt nema bananana fyrirfram). Gefið ykkur alveg 3 tíma áður en bera á músina fram því blandan þarf að stífna á milli laga. Gott er að leggja cashewhneturnar í bleyti í sólarhring áður en þið maukið þær (og hella svo vatninu af).
Súkkulaði- og bananamús
Fyrir 2
- 100 gr cashewhnetur
- 1 stór, vel þroskaður banani
- 30 gr kakóduft (lífrænt framleitt)
- 4 msk agavesíróp
- 1/8 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
- 1/4 bolli sojamjólk (einnig má nota möndlumjólk, haframjólk, hrísmjólk eða undanrennu)
- 2 msk kókosfeiti
- 1/2 tsk vanilludropar eða vanilluduft úr heilsubúð
- 1 msk kakó
- 1 msk kakónibbur (má sleppa en gefur skemmtilega áferð)
- Setjið cashewhneturnar í matvinnsluvél og maukið alveg þangað til hneturnar fara að mynda kekki, gæti tekið nokkrar mínútur. Skafið hliðar matvinnsluvélarinnar og haldið áfram í 1 mínútu. Mikilvægt er að hneturnar séu mjög vel maukaðar.
- Bætið 1 tsk af kókosfeiti saman við í dropatali á meðan vélin vinnur. Setjið maukið til hliðar.
- Setjið bananann, saltið, agavesírópið, vanilludropana og sojamjólkina út í matvinnsluvélina og blandið vel.
- Bætið afgangnum af kókosfeitinni saman við og maukið vel (í nokkrar sekúndur).
- Skiptið blöndunni þannig að hún sé 60/40 og geymið ljósa hlutann (og hafið hann minni þ.e. 40 á móti 60) í ísskáp með plasti yfir.
- Bætið kakóinu út í blönduna sem eftir er í matvinnsluvélinni (sem er 60 á móti 40 þ.e. stærri hluti en sá ljósi) og blandið vel.
- Hellið helmingnum af kakóblöndunni í tvö 100 ml glös (t.d. kokteilglös). Geymið afganginn af kakóblöndunni á borðinu.
- Látið kakóblönduna í glösunum stífna í ísskápnum í klukkutíma.
- Takið glösin úr ísskápnum og hellið helmingnum af bananablöndunni yfir kakóblönduna í glösunum.
- Látið stífna í glösunum í klukkutíma.
- Endið á afgangnum af súkkulaðiblöndunnni sem er nú við stofuhita. Hellið yfir bananablönduna.
- Dustið með kakói yfir súkkulaðiblönduna.
- Skreytið með kakónibbum.
- Setjið plastfilmu yfir glösin og geymið í ísskápnum.
- Áður en bera á músina fram er best að láta hana standa í stofuhita í 30 mínútur.
- Kakónibbur fást í flestum heilsubúðum. Einnig má saxa mjög dökkt súkkulaði og dreifa yfir músina.
- Gott er að leggja cashewhneturnar í bleyti í sólarhring áður en þið maukið þær.
- Ef þið eigið til cashewhnetumauk getið þið notað það (sama magn) í staðinn fyrir að mauka sjálf hneturnar.
Súkkulaðibitaís
1. janúar, 2005

Ég var lengi búin að vera að prófa mig áfram með ís sem væri hollur, fituskertur og án eggja. Ég held að það hafi tekist hér. Þessi uppskrift er einföld og má nýta hana sem grunnuppskrift í alls kyns ís. Hann inniheldur mun minni fitu en venjulegur ís þar sem ég nota matreiðslurjóma (15%) og ég notaði undanrennu í staðinn fyrir fitumeiri mjólk eða meiri rjóma. Einnig má nefna að það eru engin egg í uppskriftinni og því tilvalinn fyrir þá sem hafa eggjaóþol. Það þarf heldur ekki að þeyta rjómann. Eina vesenið við þennan ís er að maður þarf að hræra í ísnum á um 30 mínútna fresti í 2-3 tíma eða svo til að brjóta ískristallana svo hann krefst viðveru. Ef hins vegar þið eigið ísvél þá þurfið þið ekkert að spá í að hræra. Þetta var jólaísinn okkar 2004 og hann fór vel niður í grísku/áströlsku gestina okkar frá London :) Myndina hér fyrir ofan tók Jón Örvar Gestsson af ísnum sem hann bjó til. Athugið að í hans útgáfu var 1 dl af kókosmjöli sem var víst rosa gott. Fyrir þá sem hafa mjólkuróþol má nota soyarjóma og soyamjólk í stað mjólkur og venjulega rjómans.
Súkkulaðibitaís
Fyrir 4-5
- 2 bananar, vel þroskaðir, smátt saxaðir
- 1 msk sítrónusafi
- 1 tsk vanilludropar
- 90 ml agavesíróp
- 200 ml matreiðslurjómi (15%), hafrarjómi eða sojarjómi. Athugið að það þarf ekki að þeyta rjómann
- 150 ml köld undanrenna, haframjólk eða möndlumjólk
- 50 gr dökkt og gott súkkulaði með hrásykri, fínt saxað (má líka nota t.d. carob eða jafnvel döðlur, þurrkaðan ananas, fíkjur eða hvað sem er í staðinn). Mér finnst ágætt að setja súkklaðið nokkrar sekúndur í matvinnsluvél til að það verði mjög fínt saxað.
Aðferð:
- Blandið saman bönunum, sítrónusafa, vanilludropum, agavesíróp, rjóma og mjólk. Hrærið í nokkrar mínútur.
- Færið blönduna í ískalt plastbox eða járnbox og setjið í frysti í um 30 mínútur.
- Takið ísinn út og hrærið í honum með gaffli til að brjóta ískristallana. Frystið aftur í 30 mínútur.
- Endurtakið nokkrum sinnum þ.e. hræra og frysta á um hálftíma fresti þangað til blandan er farin að þykkna og erfiðara er orðið að hræra. Blandið þá saxaða súkkulaðinu og/eða hnetunum ef notað.
- Setjið í frysti og hrærið þangað til erfitt er orðið að hræra í blöndunni.
- Ef þið eigið ísvél getið þið sett ísinn beint í ísvélina og svo beint í frysti.
- Gott er að taka ísinn út um 15-20 mínútur áður en á að borða hann til að mýkja hann aðeins.
- Ekki þarf að þeyta rjómann í þessari uppskrift.
- Hægt er að nota carob í stað súkkulaðisins.
- Einnig má nota hlynsíróp (enska: maple syrup) í stað agavesírópsins.
Súkkulaðikrem á köku
24. janúar, 2006

Fínt krem á flestar kökur. Til að fá minna súkkulaðibragð skal nota minna af súkkulaðidufti (eðlilega hí hí). Einnig má nota carob í stað súkkulaðis.
Súkkulaðikrem á köku
Á eina kringlótta köku
- 4-5 msk gott, dökkt kakóduft (án sykurs) eða carobduft
- 2 bananar, mjög vel þroskaðir, stappaðir
- 2 tsk vanilludropar eða vanilluduft
- 2 msk kartöflumjöl
- 1 msk kaffi (ég nota koffeinlaust). Má sleppa
- 2-3 tsk agavesíróp
Aðferð:
- Blandið öllu saman í matvinnsluvél og kælið.
- Smyrjið á kökuna þegar kremið er búið að stífna aðeins.
Súkkulaðimús (með tofu)
30. janúar, 2006

Já það er magnað að þessi mús sé holl. Enginn rjómi, ekkert smjör og lítill sykur. Hún er mjög próteinrík því það eru eggjahvítur í henni en einnig er tofu sem gerir hana kremaða og flotta. Músin hentar einnig vel fyrir fólk með mjólkuróþol þar sem engar mjólkurafurðir eru í henni. Ég notaði dökkt súkkulaði (75% kakó), án sykurs (bittersweet). Hægt er að nota ljóst súkkulaði líka en dökkt gefur sterkara bragð og er mun hollara þar sem í kakóbaununum eru holl andoxunarefni. Athugið að það eru hráar eggjahvítur í uppskriftinni. Gera þarf uppskriftina um 4 tímum áður en á að bera hana fram en ekki er gott þó að láta hana standa lengur en það í ísskáp þar sem eggjahvíturnar eða tofuið fer að leka smávegis og sitja eftir í botninum. Uppskriftin kemur úr bók sem heitir Healthful Cooking sem Jóhannes keypti handa mér.
Súkkulaðimús (með tofu)
- 4 eggjahvítur við stofuhita
- 4 msk ávaxtasykur
- 125 gr dökkt, sykurlaust súkkulaði (má nota líka dökkt súkkulaði með appelsínubragði)saxað gróft
- 125 gr tofu, mjúkt (soft eða smooth, ekki harða gerðin) við stofuhita
- 1 tsk appelsínusafi
Aðferð:
- Bræðið súkkulaðið við vægan hita í potti (má ALLS ekki hitna of mikið, bara rétt til að það bráðni) eða hitið yfir vatnsbaði.
- Látið súkkulaðið kólna við stofuhita, má ekki vera of heitt því þá verður músin grófkorna þegar hún blandast við tofuið.
- Hrærið tofuið í matvinnsluvél þangað til það er orðið vel blandað saman, 1-2 mínútur.
- Blandið líkjörnum ef hann er notaður saman við.
- Þeytið eggjahvíturnar í um 2 mínútur á meðalhraða þangað til þær verða loftkenndar og hvítar. Aukið hraðann og stífþeytið í um 2-3 mínútur eða þangað til mjúkir toppar hafa myndast.
- Bætið einni matskeið af sykri út í í einu. Bætið einni matskeið, hrærið í 10 sekúndur og svo koll af kolli.
- Þegar allur sykurinn hefur blandast saman við, hrærið þá í um 2-3 mínútur eða þangað til eggjahvíturnar eru orðnar glansandi og stífar.
- Blandið 1/3 af eggjahvítunum út í súkkulaðiblönduna með gúmmísleif, hrærið afar varlega.
- Blandið þessu því næst út í restina af eggjahvítunum og hrærið varlega þangað til allt er orðið blandað saman.
- Setjið plastfilmu yfir og setjið inn í ísskáp í um 3 tíma áður en á að borða músina.
- Ef einhver vökvi er á botninum eftir 3 tíma, hellið honum þá varlega frá.
- Til að breyta til mætti nota dökkt súkkulaði, sykurlaust með appelsínubragði og dreifa smá appelsínuberki yfir músina.
- Hægt er að nota hvítt súkkulaði en það er ekki næstum því eins hollt og það dökka.
Tiramisu
22. mars, 2003
Ég er nú hrædd um að Ítalir myndu gráta yfir þessari "hollu" útgáfu af tiramisu, og sennilega ekki af gleði!! En mér er sama um það, ég ákvað að búa til "hollari" útgáfu af tiramisu. Ég hef "hollari" í gæsalöppum því þessi eftirréttur getur seint talist hollur, reyndar fullt af próteinum og góður fyrir þá sem eru í líkamsrækt. En kannski er ágætt að ég hafi aldrei prufað "venjulegt, óhollt" tiramisu, því þá hef ég engan samanburð!! Heppilegt!! Jóhannes var reyndar voða ánægður með þessa uppskrift og ég set hana hérna fyrir þá sem vilja, en fyrir hina sem eru meira fyrir óhollt, þá myndi ég ekki einu sinni prófa :) Þetta er annars blanda úr a.m.k. 4 uppskriftum af tiramisu sem ég fann víðs vegar á netinu og í bókum. Það má alveg gera þessa uppskrift með góðum fyrivara (t.d. um morgun ef þið eruð með matarboð um kvöld). Ég fékk uppskrift að heilsusvampbotnum frá notanda að nafni Freyja M. og nota ég hana í staðinn fyrir Lady Fingers kexið sem átti að nota í kökuna. Kann ég henni bestu þakkir fyrir.
Tiramisu
Fyrir 3-4
Fyrst byrjar maður á "Ladyfingers" kexinu.
"Ladyfingers"
- 5 egg
- 3 msk kalt vatn
- 100 gr ávaxtasykur.
- Rifið hýði af 1/4 sítrónu (lífræn ræktuð)
- 125 gr spelti (fínmalað)
Aðferð:
- Eggin aðskilin og hvíturnar stífþeyttar með 3 msk af köldu vatni.
- Sítrónuhýði og u.þ.b. 2/3 af sykrinum bætt út í og hvíturnar þeyttar áfram þar til þær verða seigar og gljáandi.
- Eggjarauðunum hrært saman við, einni og einni í senn.
- Hveitið sigtað út í og blandað varlega saman við eggjahræruna.
- Deigið sett í sprautupoka og sprautað í röndum á bökunarplötu klæddu bökunarpappír. Gætið þess að ræmurnar séu ekki of klesstar.
- Bakað í um 10-15 mínútur við 180°C og skerið í mjóa búta.
Tiramisu
- 250 gr fitusnauður Ricotta ostur eða Kvarg (prófið Philadelphia Soft Cheese 15% ef ekki fæst Kvarg)
- 100 gr Kvarg (eða annar fitulaus mjúkur ostur)
- 2 tsk vanilludropar
- 4 msk dökkt romm (má sleppa en notið þá kardimommudropa og meiri vanilludropa í staðinn)
- 3 eggjahvítur, léttþeyttar (þannig að komi mjúkir toppar)
- 5 msk ávaxtasykur
- 200 ml sterkt kaffi t.d. espresso (ég nota koffeinlaust)
- 4-5 msk gott, dökkt kakóduft (með háu kakóinnihaldi)
Aðferð
- Þeytið eggjahvíturnar létt og bætið 1 tsk af vanilludropum og 1 msk af ávaxtasykri saman við varlega.
- Í annari skál, hrærið vel í handþeytara 1 tsk af vanilludropum og 2 msk af ávaxtasykri saman við ricottaostinn og kvargið.
- Blandið þessu varlega saman við eggjablönduna og setjið til hliðar.
- Blandið saman kaffinu, romminu og 2 msk af ávaxtasykri í grunnri skál.
- Dýfið hverri "Ladyfingers" köku í kaffiblönduna og athugið að þær drekka mjög hratt í sig vökva svo verið snögg að kippa þeim upp úr (ekki sleppa þeim ofan í).
- Setjið eitt lag af kexi í botninn á stórri skál (1,5 lítra skál cirka).
- Smyrjið smá af ostablöndunni yfir kexið þannig að þekji vel.
- Setjið kakóduft í tesíu og hristið vel af kakóinu yfir þannig að þekji alveg ljósa kremið.
- Endurtakið með kex, ostablöndu og kakó alveg þangað til allt er búið ( u.þ.b. 3 lög af hverju) og endið með ostakremi og kakói efst.
- Kælið í um 1 klukkustund eða meira (fínt að borða daginn eftir líka).
- Berið fram í háum skálum ásamt nýlöguðu kaffi.
- Það er hægt að gera tiramisu í sérskálar, frekar en í einni stórri. Brjótið þá bara kexið samkvæmt því í háar desert skálar eða litlar sætar skálar og gerið allt eins og í uppskriftinni, þ.e. kex, ostakrem, kakóduft. Fallegast er að nota glærar skálar.
Vanillubiomjólkurís
22. janúar, 2006
Vanillubíómjólkin sykurlausa sem við Íslendingar eigum er mjög sniðug og ótal margt hægt að gera úr henni. Hún er frekar þykk og hefur svipaða áferð og óþeyttur rjómi. Til dæmis er hægt að skera niður ávexti og nota biomjólkina sem sósu ofan á. Nota hana sem rjóma
ofan á heita eplaböku og einnig er hægt að gera úr henni ís eins og ég gerði hér. Ísinn er frekar harður (allavega ef maður á ekki ísvél :( því það er lítil fita í honum (fyrir utan carobið/súkkulaðið). Vanillubíómjólk er EINA afurðin á CafeSigrun sem inniheldur sætuefni. Það er nefnilega ekki til hrein vanillubíómjólk, því miður. Þó ég sé alfarið á móti sætuefnum þá sleppur þessi uppskrift í gegn hjá mér (svona spari). Ef ég mun deyja úr einhverju get ég alveg eins drepist af því að borða þennan vanillubíómjólkurís einu sinni á ári eða svo. Ísinn er án eggja svo hann hentar vel þeim sem hafa eggjaóþol.
Vanillubiomjólkurís
Gerir um 1 lítra
- 500 ml vanillubíómjólk
- 2 vel þroskaðir, stórir bananar
- 1 tsk sítrónusafi
- 1 tsk vanilludropar
- 50 gr carob eða gott, dökkt súkkulaði með hrásykri, (má sleppa og nota saxaðar gráfíkjur eða döðlur í staðinn)
- 2 msk agavesíróp
Aðferð:
- Blandið saman bönunum, sítrónusafa, vanilludropum, agavesírópi, og biomjólk. Hrærið í nokkrar mínútur.
- Færið blönduna í ískalt plastbox, eða járnbox og setjið í frysti í um 30 mínútur.
- Takið ísinn út og hrærið í honum með gaffli til að brjóta ískristallana. Frystið aftur í 30 mínútur.
- Endurtakið nokkrum sinnum þ.e. hræra og frysta á um hálftíma fresti þangað til blandan er farin að þykkna og erfiðara er orðið að hræra.
- Blandið saxaða carobinu/súkkulaðinu saman við og hrærið vel.
- Setjið í frysti og hrærið þangað til erfitt er orðið að hræra í blöndunni.
- Gott er að taka ísinn út um 15-20 mínútur áður en á að borða hann til að mýkja hann aðeins.
Vanilluís
30. nóvember, 2008

Þetta er ansi holl útgáfa af jóla-vanilluís. Það er enginn rjómi, engin egg og ekkert slíkt í ísnum. Ég notaði kókosfeiti og agavesíróp og möndlumjólk og döðlurnar gefa líka sætt bragð. Vanillubragðið er nokkuð áberandi en mér finnst það mjög gott. Þið getið notað 1 vanillustöng ef þið eruð ekki eins hrifin og ég af vanillubragðinu. Hægt er að bæta dökku, góðu súkkulaði út í, söxuðu smátt en einnig má setja myntu, kakó/carob, hnetur, ber o.fl. út í ísinn. Það er ekki oft sem maður getur sagt að ísinn sem maður er að borða sé trefjaríkur, próteinríkur, kalkríkur og með hollri fitu! Ég notaði vanillustangir sem ég keypti í kryddskóginum á Zanzibar en þið þurfið ekki að fara svo langt sem betur fer því vanillustangir fást bæði í heilsubúðum og öðrum búðum. Ég mæli samt með því að þið farið einhvern tímann til Zanzibar enda dásamleg eyja! Möndlumjólk má kaupa í flestum verslunum.
Vanilluís
Fyrir 5-6
- 5 bollar möndlumjólk (ég miða við 250 ml bolla). Þeir sem vilja geta notað léttmjólk
- 2 stk vanillustangir
- 1 bolli döðlur
- 1/2 bolli agavesíróp
- 4 msk kókosfeiti
Aðferð:
- Setjið döðlurnar ásamt 1 bolla af möndlumjólk í blandara. Blandið af fullum krafti í um 30 sekúndur.
- Bætið agavesírópi og kókosfeiti saman við.
- Skerið vanillustangir í tvennt og skafið úr stöngunum ofan í blandarann.
- Blandið í 5 sekúndur.
- Hellið í stóra skál.
- Bætið afgangnum af mjólkinni saman við og hrærið vel.
- Ef þið eigið ísvél, setjið þá blönduna í ísvél og setjið svo í plastbox í frysti þegar hún er orðin tilbúin.
- Fyrir þá sem eiga ekki ísvél þá þarf að setja blönduna í stórt plastbox og hræra í blöndunni á um klukkutíma fresti í nokkra klukkutíma eða þangað til erfitt er orðið að hræra meira.
Vanillumús
28. nóvember, 2009

Þetta er reyndar meiri bananamús en vanillumús því bananabragðið er nokkuð sterkt. Þetta er mús sem okkur Jóhannesi finnst ferlega góð og við gerum hana stundum þegar okkur langar í eftirmat sem er ekki of þungur í maga en er samt stútfullur af vítamínum, próteinum og hollri fitu. Svo er þetta reglulega góð blanda fyrir ís líka! Það er mjög gott að hálf frysta blönduna og setja svo í matvinnsluvél eða blandara, bæta smá mjólk við til viðbótar og drekka sem hristing (sjeik)! Mikilvægt er að eiga góðan blandara eða góða matvinnsluvél til að mauka hneturnar sem best.
Vanillumús
Fyrir 2
- 100 gr cashewhnetur
- 1 stór, vel þroskaður banani
- 4 msk agavesíróp
- 1/8 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
- 1/4 bolli sojamjólk (einnig má nota möndlumjólk, haframjólk, hrísmjólk eða undanrennu)
- 2 msk kókosolía
- 2 vanillustangir
Aðferð:
- Setjið cashewhneturnar í matvinnsluvél og maukið alveg þangað til hneturnar fara að mynda kekki, gæti tekið nokkrar mínútur.
- Bætið 1 tsk af kókosolíu saman við í dropatali á meðan vélin gengur. Setjið til hliðar.
- Setjið bananann, saltið, agavesírópið, vanilludropana og sojamjólkina út í matvinnsluvélina og blandið vel.
- Bætið afgangnum af kókosolíunni saman við og maukið vel (í nokkrar sekúndur).
- Skerið vanillustöngina í tvennt langsum og skafið úr henni ofan í matvinnsluvélina. Skafið hliðar matvinnsluvélarinnar og blandið í 10 sekúndur.
- Setjið blönduna í skál og látið stífna í ísskápnum í um klukkutíma.
- Dreifið smávegis kakói yfir ef þið viljið og berið fram kalt.
Vatnsdeigsbollur (glúteinlausar) með cashewrjóma og jarðarberjasósu
15. febrúar, 2009

Ég get sagt ykkur það...að ég fór næstum því með heilt eggjabú í tilraunir á þessum bollum. Ég keypti eggjabakka eftir eggjabakka og þær mistókust ALLTAF...nema að lokum, small þetta saman hjá mér, loksins! Það var reglulega gott vatnsdeigsbollubragð af þessum og með cashewrjóma og jarðarberjasultu, hið mesta sælgæti! Það er ekki til að maður finni "glúteinlaust bragð" og ég var ferlega ánægð með sjálfa mig. Jóhannes kaus meira að segja þessar frekar en þær hefðbundnu. Ég fékk sem sagt fyrirspurn um glúteinlausar vatnsdeigsbollur og lagðist því í smá tilraunir. Þetta var útkoman. Þið getið að sjálfsögðu notað hvaða fyllingu sem þið viljð en ég hef hér notað cashewrjóma og heimatilbúna jarðarberjasultu. Svo eru nokkrar tillögur til viðbótar hérna fyrir neðan. Bollurnar eru bestar á þeim degi sem þær eru bakaðar og verða frekar harðar daginn eftir. Athugið að afar mikilvægt er að sigta mjölið út í vatnið.
Vatnsdeigsbollur (glúteinlausar) með cashewrjóma og jarðarberjasósu
Gerir 10-12 litlar bollur
- 20 gr fínmalað maísmjöl (enska: corn flour)
- 25 gr fínmalað hrísmjöl (enska: rice flour
- 100 gr kartöflumjöl (enska: potato flour)
- 1 stórt egg
- 100 ml vatn
- 2 msk agavesíróp
- 4 msk kókosolía
Vatnsdeigsbollur-Aðferð:
- Hitið vatnið, agavesírópið og olíuna í potti þangað til fer að sjóða.
- Takið pottinn af hitanum. Sigtið eina matskeið í einu af mjöli í einu út í pottinn.
- Hrærið hverja matskeið af mjöli með trésleif þangað til deigið líkist helst þykkum graut. Deigið ætti að losna frá pottinum og vera kekkjalaust og slétt og flaueliskennt.
- Látið deigið kólna alveg.
- Hrærið eggið lauslega og bætið varlega út í deigið. Athugið að ekki er víst að þið þurfið allt eggið. Ekki setja of mikið því annars verður deigið of blautt. Best er að nota hrærivél eða handþeytara.
- Hrærið þangað til deigið er orðið nógu stíft til að þið getið snúið skeið á hvolf með deigi í án þess að dropi niður.
- Ef deigið er of blautt, setjið þá meira kartöflumjöl og hrærið betur þangað til deigið er orðið nokkuð stíft.
- Hitið ofninn í 170°C.
- Setjið bökunarpappír á bökunarplötu og búið til um 10-12 bollur (stærð fer eftir smekk).
- Notið skeið til að setja deigið á pappírinn, gott er að nota skeið á móti til að skafa innan úr.
- Bakið í 20 mínútur (ekki opna ofninn á meðan).
Jarðarberjasósa:
- 100 gr jarðarber (fersk eða frosin)
- 2 msk vatn
- 2 msk agavesíróp
Jarðarberjasósa-Aðferð:
- Setjið jarðarberin, vatnið og agavesírópið í pottinn og látið malla í 30 mínútur við vægan hita. Takið úr pottinum, setjið í skál og hrærið með gaffli svo að jarðarberin leysist vel í sundur. Geymið í ísskáp með plastfilmu yfir.
Cashewrjómi: (Tvöfaldið uppskriftina ef þið viljið cashew-súkkulaðimauk)
- 100 gr cashewhnetur
- 2 msk vatn
- 2 msk agavesíróp
Cashewrjómi-Aðferð:
- Setjið cashewhneturnar í matvinnsluvél og malið þangað til þær verða að mauki. Þið gætuð þurft að mala hneturnar í alveg 3 mínútur.
- Skafið hliðar vélarinnar að innan með spaða og bætið smá slettu af vatni við. Maukið þangað til hneturnar verða aðeins mjólkurlitaðar (í um 1 mínútu).
- Bætið öllu vatninu út í á meðan vélin gengur og maukið vel. Þið gætuð þurft að skafa innan úr hliðum vélarinnar og halda svo áfram.
- Bætið agavesírópinu saman við og maukið í nokkrar mínútur. Nú ætti blandan að vera orðin eins og þykkur grautur.
Cashew-súkkulaðimauk:
- Gerið 100 gr af cashewrjómanum og setjið 1-2 msk af kakói út í. Látið vélina ganga í nokkrar sekúndur.
Súkkulaðihjúpur:
- 50 gr dökkt, lífrænt framleitt súkkulaði með hrásykri
- Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði. (Setjið svolítið vatn í lítinn pott. Setjið skál ofan á pott þannig að skálin sitji á brúnunum. Setjið súkkulaðið ofan í skálina og bræðið yfir vægum hita).
- Dýfið toppum vatnsdeigsbollanna ofan í súkkulaðið og látið storkna.
- Bollurnar eru bestar samdægurs.
Vatnsdeigsbollur með cashewrjóma og jarðarberjasósu
15. febrúar, 2009

Ég hélt alltaf að vatnsdeigsbollur væru mjög óhollar....en í raun eru þær eins og pönnukökur með hlutfallslega aðeins meira af eggjum. Sjálfsagt hægt að finna margt hollara en ef maður notar spelti og kókosolíu er þetta ekki svo slæmt og svo er það líka þetta með að borða allt í hófi ha ha. Ég hef reyndar aldrei verið mikil bolludagskona því þegar ég var yngri og fékk bollur, skóf ég rjómann og sultuna úr og borðaði en henti bollunum sjálfum (eða gaf hestunum mínum), mörgum til mikillar skelfingar. Það var ekki fyrr en núna að óskir komu á heimilinu (og frá notendum vefjarins) um að ég gerði holla útgáfu af þessum sígildu vatnsdeigsbollum. Það má gera margar útgáfur af bollum og til dæmis prófaði ég bollur með cashew-súkkulaðikremi, cashewrjóma og jarðarberjasultu og prófaði líka að bræða súkkulaði ofan á. Þið getið að sjálfsögðu notað hvaða fyllingu sem þið viljð en ég hef hér notað cashewrjóma og heimatilbúna jarðarberjasultu. Ég gerði þúsund tilraunir af þessum bollum (sem mistókust flestar) og mér fannst lang best að nota fínmalað spelti, gróft spelti var bara ekki að gera sig. Athugið að það er afar mikilvægt að sigta speltið ofan í vatnið. Bollurnar eru bestar samdægurs. Hér fyrir neðan eru hugmyndir að nokkrum samsetningum sem þið getið fiktað með en einnig getið þið notað einhverja góða lífræna sultu og venjulegan rjóma, hafrarjóma eða sojarjóma.
Vatnsdeigsbollur með cashewrjóma og jarðarberjasósu
Gerir um 10 bollur
- 100 ml vatn
- 140 gr fínmalað spelti
- 3 msk kókosolía
- 1 egg (meðalstórt)
- 2 msk agavesíróp
- 1/4 tsk salt
Aðferð:
- Hitið vatnið, agavesírópið og olíuna í potti þangað til fer að sjóða.
Takið pottinn af hitanum, og sigtið speltið, eina matskeið í einu, út í. Hrærið út hverja skeið af spelti með trésleif þangað til allt verður 100% kekkjalaust.
- Deigið ætti nú að losna frá pottinum í stórum klessum og vera kekkjalaust, mjúkt og teygjanlegt.
- Látið deigið kólna alveg (gott að stinga pottinum í ísskáp í 10 mínútur).
- Hrærið eggið lauslega og bætið því varlega út í deigið, matskeið fyrir matskeið. Ekki er víst að þið þurfið allt eggið ef það er risastórt. Best er að nota hrærivél eða handþeytara en þið getið líka notað trésleif til að hræra allt saman. Deigið gæti orðið mjög kekkjótt fyrst og skrítið en haldið bara áfram að hræra.
- Ef deigið er of blautt, setjið þá 1-2 msk af spelti til viðbótar og hrærið þangað til deigið er orðið nógu stíft til að þið getið snúið skeið á hvolf með deigi í án þess að dropi hratt niður. Deigið verður að halda aðeins lögun sinni svo þið endið ekki með vatnsdeigsflatkökur!
- Hitið ofninn í 180°C (án blásturs).
- Setjið bökunarpappír á bökunarplötu og búið til um 10-12 bollur (verða frekar litlar).
- Setjið deigið á pappírinn með skeið (gott að nota aðra skeið á móti til að skafa úr eða ísskúluskeið).
- Bakið í 20-25 mínútur (ekki opna ofninn fyrstu 20 mínúturnar).
Jarðarberjasósa:
- 100 gr jarðarber (fersk eða frosin)
- 2 msk vatn
- 2 msk agavesíróp
Aðferð-Jarðarberjasósa:
- Setjið jarðarberin, vatnið og agavesírópið í pottinn og látið malla í 30 mínútur við vægan hita. Takið úr pottinum, setjið í skál og hrærið með gaffli svo að jarðarberin leysist vel í sundur. Geymið í ísskáp með plastfilmu yfir.
Cashewrjómi: (tvöfaldið uppskriftina ef þið viljið cashew-súkkulaðimauk, sjá hér að neðan)
- 100 gr cashewhnetur
- 2 msk vatn
- 2 msk agavesíróp
Aðferð-Cashewrjómi:
- Setjið cashewhneturnar í matvinnsluvél og malið þangað til þær verða að mauki. Þið gætuð þurft að mala hneturnar í alveg 3 mínútur.
- Skafið hliðar vélarinnar að innan með spaða og bætið smá slettu af vatni við. Maukið þangað til hneturnar verða aðeins mjólkurlitaðar (í um 1 mínútu).
- Bætið öllu vatninu út í á meðan vélin gengur og maukið vel. Þið gætuð þurft að skafa innan úr hliðum vélarinnar og halda svo áfram.
- Bætið agavesírópinu saman við og maukið í nokkrar mínútur. Nú ætti blandan að vera orðin eins og þykkur grautur.
Cashew-súkkulaðimauk:
- Notið 100 gr af cashewrjómanum og setjið 1-2 msk af kakói út í. Látið vélina ganga í nokkrar sekúndur.
Súkkulaðihjúpur:
- 50 gr dökkt, lífrænt framleitt súkkulaði með hrásykri
- Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði. (Setjið svolítið vatn í lítinn pott. Setjið skál ofan á pott þannig að skálin sitji á brúnunum. Setjið súkkulaðið ofan í skálina og bræðið yfir vægum hita).
- Dýfið toppum vatnsdeigsbollanna ofan í súkkulaðið og látið storkna.
- Geymið í plastpoka. Bollurnar verða svolítið harðar daginn eftir svo best er að borða þær samdægurs.
Vöfflur
1. september, 2007

Það er ekki mikið hægt að segja um vöfflur nema að þær eru rosalega góðar, (ég held að öllum finnist þær góðar) og þær einhvern veginn passa alltaf. Það er löngu kominn tími á að ég setji inn uppskrift af hollum vöfflum og afgreiði ég það hér með. Þessi uppskrift er létt og fín og það er um 60% minna af fitu en í hefðbundinni uppskrift en hún smakkast samt alveg jafn vel. Það þarf nefnilega ekki að nota svona mikla aukafitu vegna þess að í eggjarauðum er fita. Ef þið eruð að passa blóðfituna er betra að nota minna af eggjum og meira af annarri fitu t.d. kókosfitu eða þeirri sem hentar best. Ég get lofað ykkur því að hinir mestu sælkerar taka ekki eftir því þó það vanti um 1 desilítra af smjöri (sem gera um 1000 hitaeiningar!)
Vöfflur
Gerir um 20 vöfflur
- 200 gr spelti
- 2 msk kókosfeiti
- 2 msk agavesíróp
- 3 egg
- 1 tsk vínsteinslyftiduft
- Vanilludropar eða vanilluduft úr heilsubúð
- Sojamjólk (allt að 200 ml, stundum þarf meira, stundum minna). Einnig má nota hrísmjólk, haframjólk, möndlumjólk eða undanrennu
Aðferð:
- Sigtið saman spelti og vínsteinslyftiduft. Hrærið saman egg, kókosfeiti, agave, vanilludropa og smávegis af sojamjólk (100 ml eða svo en bætið við eftir þörfum, allt að helmingi meira til viðbótar).
- Hrærið varlega saman við speltið og notið sósupískara.
- Þykktin á að vera svona eins og í mjög þykkri súpu en ekki eins og á t.d. graut. Það er best að prófa sig áfram með þykktina á deiginu.
- Best er að baka eina í einu fyrir hvern og einn því þær eru svo miklu betri nýbakaðar heldur en kaldar. Það má einnig frysta vöfflur og setja þær kaldar í brauðrist! Þær verða hér um bil eins og nýbakaðar!