Forsíða CafeSigrun.com
Fara beint í leiðarkerfi vefjarins
Í dag er 3. september, 2010
 

Grænmetisréttir

Ég er eins og áður hefur komið fram 99% grænmetisæta sem útskýrir fjölda grænmetisréttanna sem er hægt að finna á síðunni. Mér finnst grænmeti einfaldlega gott, það er hollt og fer vel í magann. Mér finnst svona buff og borgarar svo góður matur og ég tala nú ekki um hnetusteik spari! Ég nota mikið tófu, kjúklingabaunir, kartöflur og linsubaunir ásamt lauk, sólþurrkuðum tómötum og kryddi og úr þessu má búa til fínustu borgara (eða Tófú-klatta eins og pabbi minn kallar svona buff. Hann var ekki alveg viss um hvað hann ætti að kalla þetta þegar hann var að útskýra matinn sem hann fékk hjá dóttur sinni fyrir vinnufélögunum en komst að þessari niðurstöðu. Hann er sem sagt ekki mikill grænmetismaður en fannst þetta samt gott (svo sagði hann að minnsta kosti en hann hefði reyndar aldrei sagt neitt ljótt um matinn svo það er eiginlega ekkert að marka)). Sumar uppskriftirnar krefjast meiri tíma en aðrar og þá er upplagt að búa þær til um helgar og búa þá til fullt af mat og frysta. Njótið vel!





Bygg- og cashewhnetuborgarar

26. apríl, 2009

Hollir, próteinríkir og góðir borgarar - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Góðir grænmetis- og hnetuborgarar sem henta vel sem sparilegur matur (með sósu og salati) og sem hversdagsmatur líka (ef maður t.d. á þá í frystinum). Það er lang best að gera nokkuð mikið magn í einu þegar maður hefur nógan tíma og frysta (nema maður hafi nógan tíma í miðri viku ... sem fáir hafa). Ég var að hugsa þegar ég útbjó þessa uppskrift að hún er eiginlega vonlaus fyrir þá sem hafa einhvers konar óþol eða ofnæmi því það eru hnetur, glútein, fræ, laukur og egg í uppskriftinni. Ég var að hugsa um að bæta smá mjólk út í hana líka til að hafa hana 100% "óþolandi" (lélegur brandari). En engar áhyggjur, ef þið hafið ofnæmi/óþol má finna aðra borgara hér á vefnum sem henta betur. Fyrir þá sem hafa ekkert ofnæmi/óþol eru borgararnir dæmalaust góðir. Uppskriftin hentar líka vel í hnetusteik.
 
Bygg- og cashewhnetuborgarar
Gerir 16 borgara

  • 480 gr kjúklingabaunir (vatnið ekki reiknað með)
  • 1 bolli bygg, ósoðið (ég miða við 250 ml bolla)
  • 1 laukur, saxaður smátt
  • 1 tsk kókosolía
  • 125 gr ristaðar cashewhnetur
  • 1 egg
  • 60 gr tahini (sesammauk)
  • 1 tsk cumin
  • 1 tsk turmeric
  • 1/2 tsk karrí
  • 2 msk tamarísósa
  • 1 msk sítrónusafi
  • 1 gerlaus grænmetisteningur (skorinn í nokkra bita)
  • 1 lítil gulrót
  • 40 gr speltbrauðrasp (ég nota líka stundum spelt hrökkbrauð)
  • Nokkrar msk vatn (ef þarf)

    Aðferð:
  • Sjóðið byggið samkvæmt leiðbeiningum á pakka. Setjið til hliðar.
  • Steikið laukinn á pönnu í 1 tsk kókosolíu. Notið vatn ef þið þurfið að bæta við vökva.
  • Þurrristið cashewhneturnar á pönnu.
  • Malið cashewhneturnar í matvinnsluvél þangað til þær eru næstum því orðnar að mauki (eða mjög fínmalaðar).
  • Bætið hrökkbrauðinu saman við ef þið notið það og malið í nokkrar sekúndur.
  • Rífið gulrótina.
  • Setjið kjúklingabaunir, eggið, tahini, cumin, turmeric, karrí, tamarísósu, sítrónusafa og grænmetistening (1 bút í einu) út í matvinnsluvélina (með cashewhnetunum enn þá í).
  • Maukið vel (mér finnst gott að hafa áferðina frekar fína en þið ráðið hvort hún er grófari).
  • Setjið nokkrar matskeiðar af vatni út í ef þarf.
  • Setjið í stóra skál og bætið byggi, gulrótum, lauk og brauðraspi út í.
  • Kælið í 30 mínútur í ísskáp.
  • Mótið borgara með höndunum.
  • Setjið bökunarpappír á bökunarplötu.
  • Hitið ofninn í 180°C.
  • Bakið í 30-40 mínútur og snúið einu sinni.
  • Berið fram með léttri sinnepssósu og salati og jafnvel meira af soðnu byggi.

  • Nota má hýðishrísgrjón í staðinn fyrir bygg.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Appelsínu- og ólífusalat frá Morocco

10. júní, 2008

Appelsínu- og ólífusalat frá Morocco - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þetta salat er frískandi og sumarlegt og alveg frábært til að bera fram sem öðruvísi salat hvort sem þið berið fram hefðbundið grænt salat líka eða ekki. Stundum er gaman að breyta til, sérstaklega á sumrin! Uppskriftin er úr frábærri bók sem ég hef átt í mörg ár og heitir North African Cooking.
 
Appelsínu- og ólífusalat frá Morocco
Fyrir 2 sem meðlæti

  • 1 appelsína
  • 1/4 rauðlaukur
  • 6-8 svartar ólífur, steinalausar
  • Smá klípa cayenne pipar
  • 1 msk ólífuolía
  • 1/2 tsk agavesíróp
  • Fersk corianderlauf til skreytingar (má sleppa)

    Aðferð:
  • Skrælið appelsínuna og hreinsið allt hvíta hýðið utan af henni sem og himnuna sem umlykur appelsínuna. Best er að skera appelsínuna á bakka með börmum því þið þurfið að nota safann sem kemur af appelsínunni.
  • Skerið rauðlaukinn í örþunnar sneiðar og aðskiljið hringina í sneiðunum.
  • Raðið appelsínusneiðunum á disk.
  • Dreifið laukhringjunum yfir sneiðarnar.
  • Dreifið ólífunum yfir sneiðarnar.
  • Í litla skál skuluð þið blanda saman ólífuolíunni, cayenne piparnum og agavesírópinu.
  • Hrærið vel og blandið appelsínusafanum saman við.
  • Hellið yfir salatið.
  • Látið standa við stofuhita í um klukkutíma til að bragðið nái að “taka sig”.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Asparssúpa

30. nóvember, 2008

Afskaplega fljótleg og bragðgóð asparssúpa - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Fyrir mér er asparssúpa jólasúpa. Heima hjá mér var alltaf elduð asparssúpa og hún var bara höfð bláspari þ.e. á jólunum. Hún var þykk og góð og ég hlakkaði alltaf mest til að borða hana því mér þótti kjöt ekki gott. Þessi súpa er aðeins hollari en venjulegar asparssúpur því ég nota kókosfeiti í stað smjörs og minna magn af fitu en venjulega er notað í súpur (1 mtsk í stað 3 mtsk) til að búa til svokallaða “smjörbollu”. Það eru góðar fréttir fyrir Jóhannes því eins og hann segir þá “á hann inni” og getur borðað fleiri smákökur he he. Það er enginn rjómi í súpunni en hún er samt hnausþykk, rjómakennd og fín, sérstaklega ef þið notið nýmjólk. Auðvelt er að gera súpuna glúteinlausa en þá notið þið hrísmjöl í stað speltisins. Vissuð þið að í aspars er mjög mikið af K vítamíni sem og fólinsýrum. Einnig er C og A vítamín, trefjar og fleira gott fyrir okkur. Aspars er því ekki einungis sniðugur fyrir ófrískar konur (þ.e. fyrir heilbrigðan vöxt fóstra) sem eiga að taka inn fólinsýrur heldur stuðla vítamínin í asparsinum að heilbrigðu hjarta, sterkara ónæmiskerfi, góðri sjón og einnig er aspars vatnslosandi og hefur góð áhrif á bólgur (samt ekki ef þið borðið svo á ykkur gat af söltu jólasteikinni!).
 
Asparssúpa
Fyrir 2

  • 1 msk kókosfeiti
  • 3 msk spelti (má nota hrísmjöl ef þið hafið glúteinóþol)
  • 2,5 dl mjólk
  • 1 dl undanrenna (ekki víst að þurfi), má líka nota meira af mjólk
  • 1 gerlaus grænmetisteningur úr heilsubúð
  • 2 x 400 gr dósir grænn aspars (önnur dósin má vera bútar þ.e. óþarfi er að nota löngu stönglana sem eru dýrari til að mauka). Þessi 400 gr reiknast með safanum og hann er notaður í súpuna
  • Smá klípa svartur pipar

    Aðferð:
  • Hellið safa af annarri dósinni og setjið til hliðar.
  • Maukið í matvinnsluvél asparsinn úr þeirri dós sem þið voruð að hella af. Setjið maukið til hliðar.
  • Hrærið saman kókosfeiti og spelti þangað til það líkist deigi. Gott er að hræra í djúpri skál.
  • Bætið helmingnum af mjólkinni út í skálina, smá slettu í einu og hrærið þangað til deigið verður nánast fljótandi.
  • Setjið speltblönduna í pott.
  • Bætið smátt og smátt afgangnum af mjólkinni saman við þangað til öll mjólkin er komin í pottinn. Hrærið allan tímann.
  • Bætið grænmetisteningi út í og hrærið hann vel út.
  • Bætið maukaða asparsinum út í og hrærið vel.
  • Bætið undanrennu út í súpuna ef þið viljið hafa hana þynnri.
  • Rétt áður en súpan er borin fram skuluð þið bæta asparsinum og vökvanum úr hinni dósinni út í súpuna.
  • Hitið en hrærið ekki mikið (svo asparsinn verði ekki að mauki).
  • Kryddið með svörtum pipar.


Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Austur-Afrísk grænmetissúpa með hnetum og sætum kartöflum

13. ágúst, 2005

Afríska súpan góða - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessi er rosa fín og matarmikil. Held að það sé ekki til fullkomnari haustsúpa, svei mér þá. Súpan er einstaklega holl því hún inniheldur tómata, engifer, sætar kartöflur, hnetur og margt fleira hollt og gott. Þar sem ég er nýkomin frá Afríku þegar þetta er skrifað þá langar mig helst að elda bara afrískan mat. Maturinn sem við fengum í Kenya var afar góður og bragðmikill án þess að vera of sterkur eða kryddaður. Hann er ekkert ósvipaður indverskum mat að sumu leyti þ.e. miðað við notkun á sumum kryddum eins og kanil, cumin, kartöflum, spínati og fleiru. Það þægilega við súpuna er að maður getur skorið grænmetið mjög gróft því það fer allt saman í matvinnsluvél!
 
Austur-Afrísk grænmetissúpa með hnetum og sætum kartöflum
Fyrir 4

  • 1 msk kókosfeiti eða ólífuolía
  • 1 meðalstór laukur, saxaður gróft
  • 2 hvítlauksgeirar, saxaðir gróft
  • smá bútur af engifer (um 2 gr), saxaður frekar smátt
  • 1 msk cuminduft (ekki kúmen)
  • 1 msk corianderduft
  • 1 tsk kanilduft
  • 1 tsk negulduft
  • 250 gr tómatar, saxaðir gróft
  • 450 gr sætar kartöflur, saxaðar gróft
  • 1 stór gulrót, söxuð gróft
  • 750 ml vatn
  • 1 msk heilsusalt (Herbamere)
  • 1/2 stór gerlaus grænmetisteningur t.d. frá Rapunzel
  • 20 gr kashew hnetur, þurrristaðar á pönnu (má nota jarðhnetur líka)
  • 1 tsk cayenne pipar (má sleppa)
  • 1 msk hnetusmjör (hreint og auðvitað án viðbætts sykurs)
  • Nokkur lauf af coriander til skreytinga (má sleppa)

    Aðferð:
  • Hitið kókosfeitina eða olíuna á stórri pönnu á meðalhita.
  • Hitið laukinn í um 10 mínútur eða þangað til hann er orðinn mjúkur.
  • Bætið hvítlauk, engiferi, cumin, coriander, kanil og negul saman við.
  • Bætið tómötunum, sætu kartöflunum og gulrótinni saman við. Hitið í um 5 mínútur.
  • Hellið 750 ml af vatni út í. Saltið og bætið grænmetisteningnum út í.
  • Látið suðuna koma upp og leyfið þessu að malla í um 30 mínútur eða þangað til grænmetið er orðið mjúkt.
  • Takið súpuna af hellunni og látið kólna í nokkrar mínútur.
  • Hellið súpunni í matvinnsluvél ásamt þurrristuðu hnetunum og hnetusmjörinu og blandið þangað til allt er orðið vel saxað (eiga ekki að sjást neinir grænmetisbitar. Súpan verður svona sinnepsgul á litinn).
  • Færið þessa blöndu nú í pott og hitið vel.
  • Dreifið nokkrum corianderlaufum yfir súpuna áður en hún er borin fram.
  • Berið fram með nýbökuðu, grófu brauði.

  • Súpan er enn þá betri daginn eftir.
  • Ef þið viljið hafa súpuna grófari, má mauka grænmetið minna.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Austurlenskar fimm krydda grænmetiseggjanúðlur

28. febrúar, 2003

Fimm krydda grænmetisnúðlur - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga "Fimm-krydda" hljómar kannski flókið, en er í raun hægt að kaupa í öllum búðum og heitir þá yfirleitt "five spice" eða "chinese five spice". Þýðingin er hræðileg hjá mér, ég veit, tillögur eru vel þegnar :) Þetta er fínn svona "taka til í ísskápnum" réttur því það er hægt að setja fullt af mismunandi grænmeti í réttinn
 
Austurlenskar fimm krydda grænmetiseggjanúðlur
Fyrir 3-4

  • 225 gr eggjanúðlur.
  • 1 msk kókosfeiti eða ólífuolía
  • 1 msk sesamolía
  • 2 gulrætur
  • 1 sellerísproti
  • 1 lítill haus af fennel
  • 2 kúrbítar (enska: courgette), skornir í hálft og sneiddir (í litla hálfmána)
  • 1 rauður chilli, saxaður smátt
  • 2,5 cm. biti af engiferrót, afhýddur og skorinn mjög smátt
  • 3 vorlaukar smátt skornir
  • 1 hvítlauksgeiri marinn
  • 1 1/2 tsk kínverskt krydd (Chinese Five-spice powder)
  • 1/2 tsk kanilduft
  • 50 ml heitt vatn

    Aðferð:
  • Sjóðið núðlurnar samkvæmt leiðbeiningum, skolið með köldu vatni og setjið til hliðar.
  • Skerið gulræturnar og selleríið í julienne þ.e. í örmjóar ræmur, eins og tannstöngla.
  • Skerið fennelhausinn í tvennt, takið út harða kjarnann og skerið svo í julienne. (örmjóa tannstöngla
  • Hitið wok pönnu þangað til hún er orðin brennandi heit.
  • Hitið kókosfeitina eða ólífuolíuna á wok pönnunni þangað til olían er orðin mjög heit.
  • Bætið öllu grænmetinu við, ásamt chilli og steikið í 7-8 mínútur.
  • Bætið engiferinu og hvítlauknum saman við og steikið í 2 mínútur. Ef vantar vökva, bætið þá smá vatni við.
  • Bætið öllu kryddinu við og steikið í 1 mínútu.
  • Bætið við vorlauknum og steikið í 1 mínútu.
  • Hellið heita vatninu yfir og sjóðið í 1 mínútu.
  • Bætið núðlunum við og hrærið vel.
  • Hellið sesamolíunni yfir.

  • Hægt er að hafa sveppi, bambussprota, baunaspírur, frosnar, grænar baunir eða “water chestnuts” í staðinn fyrir ofantalið grænmeti.
  • Ef vantar meiri olíu við steikingu skal nota vatn í staðinn, óþarfi er að nota meiri olíu.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Avacado- og melónusalat með sítrónugrass-jógúrtsósu

4. ágúst, 2008

Lítríkt og hollt salat - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Algjört dásemdarsalat yfir sumarið. Cantaloupe melónur eru pakkfullar af Beta Carotene (sem umbreytist í A vítamín í líkamanum) og C vítamínum og eru sérlega góðar fyrir heilsu augnanna. Einnig eru þær stútfullar af andoxunarefnum og sporna gegn krabbameini og hjálpa einnig til við að minnka líkur á heilablóðfalli og hjartaáföllum, pakkfullar af trefjum, potassium, fólinsýru og niacin (B3 vítamín). Einnig stuðla A vítamín að heilbrigðri lungnastarfsemi. Cantaloupe melónur hafa verið borðaðar síðan á tímum Grikkja og Rómverja! Melónurnar eru ekki það eina holla í þessu salati því kirsuberjatómatar eru líka pakkfullir af C vítamínum og innihalda efnið lycopene og ef lycopene efnið væri mennskjur væri það eins konar hermenn gegn krabbameini því lycopene spornar gegn fjölda tegunda krabbameins. Avacado inniheldur svo einómettaðar fitusýrur (oleic acid) sem hjálpar til við að minnka blóðfitu, potassium sem hjálpar til við að stýra blóðþrýstingi, trefjar, fólinsýru og margt fleira gott. Allt í allt er þetta frábæra salat algjört vítamínbúst! Vá þetta var eins og þakkarræða á Óskarsverðlaunahátíð!!
 
Avacado- og melónusalat með sítrónugrass-jógúrtsósu
Fyrir 4 sem meðlæti

  • 2 avacado (lárperur), vel þroskuð
  • 1 cantaloupe melóna, vel þroskuð (þessar sem eru eins og klæddar neti að utan og eru grænar að innan)
  • 200 gr kirsuberjatómatar
  • 1 haus Lambhagasalat eða svipað salat

    Sítrónugrass-jógúrtsósa:
  • 1 stilkur sítrónugras, ystu blöð fjarlægð
  • 200 ml hreinn eplasafi
  • 1 msk sítrónusafi
  • 125 ml hrein sojajógúrt. Einnig má nota venjulega jógúrt eða AB mjólk
  • Smá klípa turmeric
  • 1/2 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
  • 1/4 tsk svartur pipar

    Aðferð:
  • Afhýðið melónuna og saxið í grófa en jafna ferninga. Setjið til hliðar
  • Sneiðið kirsuberjatómatana í helminga. Setjið til hliðar.
  • Saxið sítrónugrasið gróft.
  • Setjið eplasafa, sítrónusafa og sítrónugrasið í lítinn pott, látið sjóða í um 5 mínútur.
  • Látið kólna.
  • Blandið saman jógúrtinu, turmerici, salti og pipar.
  • Fjarlægið sítrónugrasið úr pottinum og hellið vökvanum út í jógúrtið. Hrærið vel.
  • Skolið salatblöðin og raðið á mjög stóran disk eða bakka.
  • Afhýðið avacadoin og saxið í grófa en jafna ferninga.
  • Dreifið melónubitunum yfir salatblöðin.
  • Dreifið avacadoinu yfir melónubitana.
  • Dreifið kirsuberjatómötunum yfir avacadobitana.
  • Hellið jógúrtsósunni yfir eða berið fram í sér skál.
  • Berið fram strax (því avacadoið verður fljótt blettótt).


  • Ef þið eruð rosa mikið að flýta ykkur má gera fína salatsósu með smá agavesírópi og AB mjólk. Kryddið eftir smekk.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Avacado-, ananas- og rauðlaukssalat

5. janúar, 2009

Salat undir afrískum áhrifum - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þetta salat er frísklegt og gott meðlæti með t.d. grillmat. Það minnir mikið á Afríku en er þó ekki afrískt. Avacado, ananas og rauðlaukur er mikið notað hráefni þarna suður frá enda passar þetta allt vel saman. Salatið er líka mjög hollt enda er avacado fullt af K vítamíni og einómettuðum fitusýrum (oleic acid) sem þýðir að það hefur góð áhrif á hjartað í okkur og getur hjálpað til við að lækka blóðþrýsting. Einnig er avacado fullt af trefjum og fólinsýrum sem er B vítamín nauðsynlegt konum sem eru ófrískar (á fyrstu mánuðum) því það stuðlar að heilbrigðum þroska fóstra. Ananas er góður fyrir meltinguna því fyrir utan að vera trefjaríkur inniheldur hann meltingarensímið Bromelain sem er gott fyrir meltinguna. Hann inniheldur líka Thiamin og C vítamín ásamt steinefninu Manganese sem hefur andoxunareiginleika. Laukur á svo að hjálpa til við að sporna gegn krabbameini, inniheldur C vítamín og hefur andoxunareiginleika. Svo er salatið ljómandi frísklegt og fallegt á litinn…..og hefur því jákvæð áhrif á andlega heilsu (a.m.k. mína)!
 
Avacado-, ananas- og rauðlaukssalat
Fyrir 3-4 sem meðlæti

  • 1/4 ananas, skorinn í bita (skerið hýði af og fjarlægið miðjuna)
  • 1/2 rauðlaukur (1 ef hann er lítill), saxið smátt
  • 1 vel þroskað avacado, saxað í bita
  • 1/2 tsk tabasco sósa
  • 3-5 fersk basilblöð, klippt í ræmur (má sleppa en gefur gott bragð)
  • Salt (Himalaya eða sjávarsalt)
  • Pipar

    Aðferð:
  • Setjið saxaða laukinn í vatn ásamt smá klípu af salti og geymið í 30 mínútur. Mér finnst gott að hafa hann ekki of bragðsterkan en ef þið viljið hafa hann sterkari, skuluð þið ekki setja hann í vatn.
  • Hellið vatninu af.
  • Blandið öllu saman.
  • Kryddið með salti og pipar.
  • Klippið basilblöð yfir salatið.


Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Bakaður byggréttur með spínati, hvítlauk og sveppum

2. nóvember, 2008

Heitur og góður grænmetisréttur - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Í þennan rétt má nota ýmislegt grænmeti eins og papriku, sellerí og fleira en einnig er hann góður eins og hann er. Skemmtilegast er að baka matinn í nokkrum, litlum eldföstum mótum og bera þannig fram fyrir matargesti en það má líka demba þessu í stórt, eldfast mót. Það er eitthvað við bráðinn ost og grjón/bygg..finnst það alveg ferlega góð blanda. Ég borða lítið af mjólkurvörum en ostur slæðist stundum inn í svona ofnrétti. Rétturinn er léttur í maga en samt vel seðjandi því bygggið gefur góða fyllingu. Hægt er að kaupa úrvals íslenskt, lífrænt ræktað bygg. Athugið að ef þið hafið glúteinóþol má nota hýðishrísgrjón í staðinn.
 
Bakaður byggréttur með spínati, hvítlauk og sveppum
Fyrir 2-3

    Fylling:
  • 2 dl soðin bygggrjón (sjóðið 0,5 bolla á móti 2 bollum af vatni í 30 mínútur)
  • 150 gr ferskir shitaki sveppir (eða aðrir bragðmiklir sveppir). Sneiddir fínt (ég nota stöngulinn líka)
  • 1 rauðlaukur, saxaður fínt
  • 100 gr ferskt eða frosið spínat. Ef frosið, látið þiðna og kreistið vatnið úr því
  • 100 gr rifinn, magur ostur
  • 1/2 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)

    Hvítlaukssósa:
  • 2 msk eða meira af sýrðum rjóma án gelatíns frá Mjólku (5%).
  • 1 hvítlauksgeiri, marinn + 1 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt) eða 1 tsk hvítlaukssalt (frá Pottagöldrum)
  • 3 msk eða meira af AB-mjólk

    Aðferð:
  • Sjóðið bygggið.
  • Steikið sveppina upp úr vatni og saltið.
  • Bætið spínatinu saman við og steikið þangað til allur vökvi er nánast farinn úr spínatinu. Setjið til hliðar.
  • Steikið rauðlaukinn í nokkrar mínútur.
  • Bætið lauknum við spínatið og sveppina.
  • Blandið nú grjónunum og ostinum saman við.
  • Blandið hvítlaukssósunni saman við og hrærið vel í öllu.
  • Setjið í nokkur lítil eldföst mót eða eitt stærra og bakið í um 20 mínútur við 180°C.
  • Berið fram salati og meira af hvítlaukssósu.

  • Í staðinn fyrir bygg má nota hýðishrísgrjón.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Bauna- og spínatsúpa

13. janúar, 2008

Bauna- og spínatsúpa. Mengandi en góð. - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessi súpa ætti eiginlega að heita prumpusúpa....baunir og spínat eru nokkuð góð ávísun á loftgang fram eftir degi en í staðinn hefur súpan það með sér að vera einstaklega holl. Þeir sem eru vanir að borða baunir og spínat finna lítið fyrir auknum vindstigum en þeir sem eru óvanir ættu að fara varlega í prumpusúpuna...byrja smátt og auka svo við sig baunamagnið. Bakteríurnar í maganum eru viðkvæmar og það má ekki koma þeim svona á óvart. En áfram með hollustuna....spínatið er járnríkt og fullt af andoxunarefnum. Rauðar linsubaunir eru sérlega ríkar af fólinsýru, eitthvað sem ég er ekki viss um að margar konur (eða karlar) vita. Fólinsýra er sérlega mikilvæg ófrískum konum en þær stuðla að heilbrigðum þroska fósturs. Linsubaunir eru einnig sérlega trefjaríkar, próteinríkar og ríkar af B-vítamínum. Linsubaunir geta einnig lækkað vonda kólesterólið í blóðinu. Linsubaunir innihalda einnig mikið af magnesíum sem er mikilvægt fyrir hjartað okkar. Svo fyrir utan allt þetta er súpan hræódýr og saðsöm en engu að síður fitusnauð og létt! Neytið í vel loftræstu herbergi og alls ekki á fyrsta stefnumóti!
 
Bauna- og spínatsúpa
Fyrir 4

  • 1 stór laukur, saxaður gróft
  • 1 hvítlauksgeiri, saxaður fínt
  • 1 tsk cumin (ekki kúmen)
  • 1/2 tsk tumeric
  • 1/2 tsk coriander
  • 300 gr rauðar linsubaunir
  • 1,1 lítri grænmetissoð (3-4 teningar + vatnið)
  • 125 gr ferskt spínat, stönglarnir skornir af og blöðin sneidd í ræmur
  • 1 tsk kókosfeiti eða ólífuolía og vatn ef þarf

    Aðferð:
  • Hitið olíuna í stórum potti.
  • Steikið laukinn og hvítlaukinn þangað til laukurinn fer að mýkjast. Bætið við vatni ef þarf.
  • Bætið kryddunum við og hitið þangað til allt fer að ilma eða í nokkrar mínútur.
  • Bætið baununum við ásamt vatninu og grænmetissoðinu.
  • Látið malla í um 20-30 mínútur í opnum potti þangað til baunirnar fara að mýkjast vel.
  • Kælið súpuna og blandið svo í matvinnsluvél eða með töfrasprota þangað til hún er orðin vel blönduð og mjúk.
  • Setjið súpuna aftur í pottinn og bætið spínatinu saman við.
  • Hitið að suðumarki.
  • Berið fram með góðu, nýbökuðu brauði.
  • Súpan er enn þá betri daginn eftir. Til að geyma súpuna er best að setja hana í lokað plastílát eftir að hún er orðin köld og geyma svo í ísskápnum. Svo er hægt að setja í pott og hita upp daginn eftir. Ef súpan er mjög þykk má setja 1/2-1 glas af vatni eða svo til að þynna hana.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Baunaréttur frá Rwanda

13. apríl, 2008

Baunarétturinn frá Rwanda. Diskinn keypti ég á markaði í Kigali höfuðborg Rwanda - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þegar ég var í Rwanda febrúar 2008 hitti ég stúlku að nafni Nadine í bænum Ruhengeri sem er við rætur Virunga fjallanna. Ég spurði hana hvað Rwandabúar borðuðu helst og hún svaraði: Baunir, grænmeti, kartöflur og maís hvers dags en kjöt spari. Hún nefndi pintóbaunir, kartöflur, sellerí og fleira úr uppskrift frá mömmu sinni og uppskrift þessi varð til úr þeim upplýsingum. Baunir eru mikið notaðar í Rwanda og ekki síst vegna þess að kjöt er frekar lítið borðað enda kannski ekki á færi allra að kaupa kjöt upp á hvern dag. Þessi baunaréttur er ekki svo ósvipaður Kitheri, baunaréttinum góða frá Kenya, báðir eru þeir mildir og bragðgóðir án þess að láta mikið yfir sér. Fínasti grænmetisréttur svona þegar maður á ekki of mikið í ísskápnum. Í þennan rétt má bæta við meira grænmeti eins og gulrótum, papriku, grænum baunum o.fl. svona eftir því hvað maður á. Rétturinn er bestur ef hann fær að malla í svolítinn tíma og hann er betri daginn eftir. Nauðsynlegt er að leggja pintóbaunir í bleyti að morgni til að geta búið til þennan rétt að kvöldi.
 
Baunaréttur frá Rwanda
Fyrir 2-3

  • 1 bolli pintóbaunir, lagðar í bleyti (3 bolla af vatni) í 8 tíma
  • 1 stór kartafla, skorin í bita (svipaða og sykurmola að stærð). Rwandabúar nota cassava en kartöflur eru einnig notaðar
  • 3 sellerístilkar, sneiddir
  • 1 laukur, skorinn í þunnar sneiðar
  • 1 tsk kókosolía
  • 1 gerlaus grænmetisteningur (einnig má nota salt og annað krydd í staðinn)

    Aðferð
  • Hellið vatninu af baununum og setjið baunir í pott ásamt vatni þannig að rétt fljóti yfir.
  • Látið sjóða í um 30 mínútur eða þangað til baunirnar eru orðnar meyrar en ekki mjúkar.
  • Bætið selleríi, kartöflum og grænmetisteningi út í og látið malla í um 15 mínútur eða þangað til kartöflurnar eru orðnar nokkuð mjúkar en ekki alveg að mauki.
  • Á meðan skuluð þið hita kókosolíu á stórri pönnu og steikja laukinn í 5 mínútur eða þangað til hann verður gylltur og fer að ilma, bætið við vatni ef þarf meiri vökva.
  • Hellið öllu úr pottinum á pönnuna.
  • Látið malla í 20 mínútur eða þangað til allt fer að blandast vel saman og verða svolítið maukkennt (rétturinn er bestur svoleiðis).
  • Berið fram með t.d. chapati eða brauðbollum.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Blaðlauks- og kartöflumaukssúpa

28. febrúar, 2003

Þessi er einföld, bragðgóð og ódýr, alveg upplögð í lok mánaðarins þegar buddan er farin að léttast. Mig minnir að þessi hafi upphaflega komið úr Nýkaupsbókinni frábæru hans Sigga Hall en ég er aðeins búin að breyta henni.
 
Blaðlauks- og kartöflumaukssúpa
Fyrir 4

  • 1 tsk kókosfeiti eða ólífuolía
  • 1 blaðlaukur, grófskorinn (nema skilja smá bút af miðhlutanum eftir)
  • 4-6 kartöflur, litlar, afhýddar og skornar í grófa bita
  • 1 hvítlauksrif
  • 1 laukur grófskorinn
  • 2 stórir gerlausir grænmetisteningar t.d. frá Rapunzel (það var kjúklingakraftsteningur í upprunalegu uppskriftinni) og 1 lítri af vatni.
  • 5-6 lárviðarlauf
  • smá timian (má sleppa)
  • salt og pipar

    Aðferð:
  • Hitið kókosfeitina eða ólífuolíuna.
  • Hitið blaðlaukinn, laukinn og kartöflurnar í potti í smástund þangað til mjúkt.
  • Lárviðarlaufinu bætt útí sem og soðinu.
  • Látið malla við vægan hita í 20 mínútur eða þangað til kartöflurnar eru orðnar mjúkar.
  • Þetta er svo maukað í matvinnsluvél eða með töfrasprota.
  • 10 mínútum áður en súpan er borin fram, skerið þá niður restina af blaðlauknum í fínar sneiðar og setjið timian líka yfir súpuna.
  • Saltið og piprið.

  • Fín með nýbökuðu brauði eða grófu snittubrauði
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Blómkáls og kartöflusúpa

1. september, 2007

Blómkáls- og kartöflusúpa, fínasta uppskerusúpa - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessi er fullkominn að hausti þegar maður getur notað fínu nýju kartöflurnar og ef maður býr svo vel að eiga blómkál úr garðinum þá er það sko ekki verra. Súpan er mild og fín, afar mögur þannig að hún hentar vel fólki sem vill létta máltíð en seðjandi. Mér finnst rosalega gott að setja smávegis af rifnum osti og jafnvel rifnum parmesan út í til að fá meira bragð en það er allt eftir smekk hvers og eins auðvitað. Ég veit fátt betra á köldum haustdegi en að borða súpu úr fersku, nýuppteknu grænmeti. Þessi uppskrift kemur upprunalega úr litlum ítölskum bæklingi en ég er aðeins búin að breyta henni þó og gera hana hollari.
 
Blómkáls og kartöflusúpa
Fyrir 2-3

  • 1/2 stór blómkálshaus
  • 1/2 stór kartafla, skorin í teninga
  • 375 ml léttmjólk (eða nýmjólk fyrir þá sem vilja)
  • 500 ml grænmetissoð (500 ml soðið vatn + 1-2 grænmetisteningar t.d. frá Rapunzel)
  • Nokkrir vorlaukar
  • 1 msk kókosfeiti eða ólífuolía
  • 13 gr spelti (kartöflumjöl fyrir þá sem hafa glúteinóþol)
  • 20 gr rifinn, magur ostur
    Lítill bútur ferskur parmesan (má sleppa), rifinn á rifjárni
  • Heilsusalt (Herbamare)
  • Pipar

    Aðferð:
  • Brjótið blómkálið í litla jafn stóra sprota.
    Setjið blómkálið í stóran pott ásamt mjólkinni, kartöfluteningunum, grænmetissoðinu og hvíta partinum af vorlauknum (sá græni er notaður ofan á súpuna).
  • Sjóðið allt í 20 mínútur eða þangað til grænmetið er orðið mjög mjúkt.
  • Síið vökvann í stóra skál og geymið grænmetið í annarri skál.
  • Hitið kókosfeitina í stóra pottinum og bætið speltinu saman við. Hrærið allan tímann og mjög hratt í 1 mínútu eða svo (þangað til að úr verður smá grautur).
  • Bætið vökvanum (sem var síaður frá) hægt saman við, smátt og smátt í einu þangað til allt blandast vel saman.
  • Látið suðuna koma upp og látið malla í 2-3 mínútur.
  • Bætið grænmetinu saman við og smakkið til með salti og pipar.
  • Notið nú töfrasprota til að mauka súpuna eða setjið í nokkrum skömmtum í matvinnsluvél eða blandara. Blandið þangað til súpan er orðin silkimjúk (þið getið geymt nokkra bita af blómkálinu til að hafa grófari áferð ef þess er óskað).
  • Bætið rifna ostinum saman við og hrærið þangað til hann bráðnar.
  • Bætið parmesan ostinum út á.
  • Saxið græna hlutann af vorlauknum og dreifið yfir.
  • Berið fram strax.
  • Gott er að hafa nýbakað brauð með súpunni.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Blómkálssúpa

18. ágúst, 2008

Blómkálssúpa - lætur lítið yfir sér en er bragðgóð og létt - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Uppskrift þessi er afar einföld og um leið létt og ódýr….og eiginlega það ódýr að kalla mætti súpuna Kreppusúpu he he. Hún er fín með haustinu þegar blómkálið og kartöflurnar láta sjá sig en buddurnar aftur á móti fara að léttast (sérstaklega hjá námsmönnunum).
 
Blómkálssúpa
Fyrir 3-4

  • 1 blómkálshaus (um 600 gr fyrir snyrtingu)
  • 2 lárviðarlauf
  • 1 msk kókosfeiti
  • 1 laukur, afhýddur og saxaður gróft
  • 2 sellerístilkar, saxaðir gróft (má sleppa)
  • 1 stór blaðlaukur, snyrtur og saxaður gróft
  • 110 gr kartöflur, skrældar og saxaðar gróft
  • 2 gerlausir grænmetisteningar
  • 1,5 lítrar af vatni
  • Svartur pipar
  • Salt (Himalaya eða sjávarsalt)

    Aðferð:
  • Hitið kókosfeiti í stórum potti.
  • Steikið lauk, sellerí og blaðlauk og bætið vatni við ef þarf.
  • Snyrtið blómkálið og brjótið í sprota.
  • Setjið 1,5 lítra af vatni í pott ásamt lárviðarlaufum og grænmetisteningum.
  • Setjið kartöflur og blómkál út í pottinn og sjóðið í 7-10 mínútur.
  • Látið malla þangað til allt grænmeti er orðið mjúkt.
  • Kælið súpuna og blandið hana í smá skömmtum í blandara eða matvinnsluvél.
  • Mér finnst mikilvægt að blanda súpuna afar, afar vel sérstaklega þegar ég nota sellerí. Áferðin á að vera mjúk en ekki gróf með þráðum úr selleríinu. Ef þið viljið hafa súpuna grófari er það auðvitað í góðu lagi.

  • Gott er að blanda út í súpuna um 200 ml af kókosmjólk og minnka þá vatnsmagnið sem því nemur.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Broccoli- og blómkálsréttur í ofni

1. mars, 2003

Ég fékk þessa uppskrift af Netinu fyrir hundrað árum. Þetta er bara svona fínn grænmetisréttur í miðri viku, engin flottheit, ekkert flókið, bara hollt og gott. Er allt í lagi líka sem meðlæti.
 
Broccoli- og blómkálsréttur í ofni
Fyrir 2

  • 175 gr blómkál
  • 175 gr broccoli
  • 1/2 bolli hrein jógúrt
  • 1 bolli magur ostur (11%) rifinn
  • 1 tsk sterkt sinnep
  • 2 msk brauðrasp (t.d. úr speltbrauði eða heilhveitbrauði)
  • Heilsusalt (Herbamare)
  • Svartur pipar

    Aðferð:
  • Skerið blómkál og broccolí í bita og sjóðið í söltu vatni í 8-10 mínútur. Gott er að láta grænmetið í sigti, skola með köldu vatni og láta vatnið renna af.
  • Setjið jógúrt, rifinn ost og sinnep í skál og hræra saman.
  • Kryddið með salti og pipar og setjið þetta svo yfir grænmetið.
  • Setjið brauðrasp yfir sósuna.
  • Setjið í eldfast mót inn í ofn og bakið í 10-15 mínútur við 200°C.

  • Það er gott að bera fram tamarisósu og ferskt salat með þessum rétti.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Brokkolí- og blaðlaukssúpan frá 4 Market Place kaffihúsinu, London

13. janúar, 2008

Súpan frá 4 Market Place - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Maria og Pete vinafólk okkar reka kaffihúsið 4 Market Place í miðborg London (rétt hjá þar sem við bjuggum). Þau eru grískir ástralir og Maria var að vinna í þrjú ár með Jóhannesi í Disney forðum daga. Í hvert skipti sem við förum til London, heimsækjum við Mariu og fáum kaffi, te og eitthvað frábært að borða. Síðast þegar við fórum þangað (í desember) fékk ég yndislega brokkolí- og blaðlaukssúpu. Súpan var frábær eins og allt sem ég hef smakkað, bæði vel fyllt, samt létt, bragðmikil en ekki of, alveg fullkomin. Svo er hún líka ódýr og saðsöm og hentar vel fyrir krakka (skírið hana bara "risaeðlusúpu"). Ég hætti ekki að suða fyrr en aumingja Maria náði að snúa upp á handlegginn á kokkinum Gile Jaegy til að gefa mér uppskrift. Ég mæli með þessum stað fyrir svanga Íslendinga sem vilja góðan mat á frábæru verði (Jóhannes fær tár í augun af gleði þegar hann fær samloku hjá Mariu). Munið bara að skila kveðju til Mariu frá mér og Jóhannesi! Læt þýðinguna fylgja með á ensku:

Maria and Pete are dear friends of ours who own and run a cafe called 4 Market Place in central London (very close to where we used to live). They are Greek Australians and Maria used to work with Johannes at Disney for three years. Each time we visit London we visit Maria and have some coffee, tea and something amazing for lunch. The last time I went there (this December) I had a fantastic broccoli and leek soup. It was creamy yet light, full of flavour although not overwhelming, just perfect. It also suits kids very well since it is mild (just rename it "dinasour soup" and don’t tell them it is vegetables!) I didn’t stop pestering poor Maria until she got the recipe from the chef Gile Jaegy. I strongly recommend this place for hungry visitors who want amazing food for good value (Jóhannes almos cries with delight over his club). Just make sure you say hi to Maria from me and Johannes.

 
Brokkolí- og blaðlaukssúpan frá 4 Market Place kaffihúsinu, London
Fyrir 4

  • 1 stór blaðlaukur (eða 2 litlir)
  • 1 stór kartafla (eða 2 litlar)
  • 1-2 lítrar grænmetissoð (gerlaus grænmetiskraftur frá t.d. Rapunzel
  • 1 lítill laukur
  • 1 haus brokkolí
  • Heilsusalt (Herbamare)
  • Svartur pipar

    Aðferð:
  • Hitið laukinn og blaðlaukinn á pönnu þangað til allt er orðið mjúkt.
  • Bætið öllu nema salti og pipar saman við.
  • Látið suðuna koma upp.
  • Látið malla í 20 mínútur.
  • Látið kólna aðeins og setjið svo súpuna í smá skömmtum í matvinnsluvél eða blandara.
  • Sigtið.
  • Saltið og piprið eftir smekk.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Burritos

1. mars, 2003

Grænmetisburritos - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Ef Jóhannes fær að ráða hvað eigi að vera í matinn (hann fær stundum að ráða) þá segir hann án undantekningar "bara Borritos!!" :) Honum finnst þessi réttur sem sagt verulega góður og svipurinn á honum þegar hann borðar hann er alveg þess virði. Þetta er voða einfalt og gott svo sem og ég geri alltaf tvöfaldan skammt svo ég geti haft hann í matinn daginn eftir líka (þá er best að gera allt tilbúið og geyma vefjurnar sem þið ætlið ekki ða nota í kæli, óhitaðar).
 
Burritos
Fyrir 3-4 (8 vefjur)

  • 250 gr maísbaunir, ósykraðar (gott að nota frosnar)
  • 1 rauð eða græn paprika skorin í fína strimla
  • 2 tómatar skornir í sneiðar
  • 8 tortilla speltpönnukökur
  • 1 dós baunamauk (refried beans)
  • 6 sveppir sneiddir (eða lítil dós niðursoðnir) og steiktir upp úr vatni og miklum pipar
  • salat – icebergblöð
  • 200 gr rifinn, magur ostur
  • 1 krukka salsasósa (holl, ekki með neinum aukaefnum eða sykri, bara grænmeti)
  • 1 dós guacamole, fituskert (eða heimatilbúin)
  • 1 dós hrein jógúrt

    Aðferð:
  • Setja 2 kúfullar matskeiðar af baunamauki á hverja pönnuköku, 1 msk af gulum baunum, 3 strimla af papriku, 1 msk af sveppum ásamt osti og loks setja nokkur salatblöð ofan á.
  • Pakka kökunum saman varlega þannig að sé örugglega lokað og leggið á hvolf í eldfast mót (þannig að samskeytin séu undir kökunni). Þetta er smá dúllerí en þetta helst alveg lokað ef pakkað vel.
  • Hita í ofni við 180°c í 15-20 mínútur.

  • Borið fram með salsasósu, guacamole og jógúrti sem er allt sett í sína hverja skálina þannig að hver og einn geti sett á sitt borritos sjálfur.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Chilli con elote (chillipottréttur með maísbaunum)

4. mars, 2003

Þessa uppskrift fann ég á Netinu einhvern tímann, mjög góður pottréttur og auðveldur.
 
Chilli con elote (chillipottréttur með maísbaunum)
Fyrir 5-6

  • 1 tsk kókosfeiti eða ólífuolía (og vatn til viðbótar ef þarf)
  • 1 rauðlaukur, smátt skorinn
  • 1 hvítlauksrif, saxað þunnt
  • 1 græn paprika, skorin í strimla
  • 2 bollar grænmetissoð
  • 4 msk tómatmauk (purée)
  • 1 bolli maískorn (ferskt, frosið eða úr dós, ósykurbætt)
  • 4 bollar nýrnabaunir, rauðar
  • 1 kúrbítur, skorinn í sneiðar
  • Nokkrar soðnar greinar af spergilkáli (broccolíi)
  • 1/2 tsk chilliduft
  • 1/4 tsk cummin duft
  • 1 tsk oregano
  • Grænmetiskraftur (1 teningur eða svo og nokkrar matskeiðar af vatni)
  • heilsusalt (Herbamare) eftir smekk

    Aðferð:
  • Hitið kókosfeitina eða ólífuolíuna og léttsteikjið lauk og hvítlauk.
  • Bætið paprikunni út í og látið krauma í 2-3 mínútur.
  • Setjið grænmetissoðið, tómatmauk og maískornin saman við ásamt 2 bollum af nýrnabaununum og kryddinu.
  • Stappið afganginn af nýrnabaununum og bætið þeim út í ásamt kúrbítssneiðunum og spergilkálinu.
  • Hrærið á meðan þar til allt er orðið vel heitt og berið fram með grænu salati og nýbökuðu speltbrauði.
  • Gott er að láta malla við lágan hita í um klukkutíma en þarf ekki.

  • Gott er að láta malla við lágan hita í um klukkutíma en þarf ekki.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Chilli non carne (chillipottréttur með soyakjöti)

4. mars, 2003

Þessi réttur lætur ekki mikið yfir sér, en er mjög góður og einfaldur.
 
Chilli non carne (chillipottréttur með soyakjöti)
Fyrir 4

  • 1 tsk kókosfeiti eða ólífuolía
  • 1 bolli soyakjöt (látið liggja í sjóðandi heitu vatni og 1 grænmetisteningi)
  • 2 tsk malað cumin (ekki kúmen)
  • 1 tsk chilliduft, milt eða notið meira ef þið viljið sterkara bragð
  • Oregano á hnífsoddi
  • Salt, pipar og ávaxtasykur á hnífsodii
  • 1/2 tsk hvítlauksduft (t.d. frá Pottagöldrum) eða 1 hvítlauksgeiri, saxaður fínt
  • 1 laukur
  • 2 msk spelti
  • 460 gr niðursoðnir tómatar
  • 460 gr niðursoðnar nýrnabaunir
  • 1 avacado skorið í teninga

    Aðferð:
  • Hitið kókosfeiti eða ólífuolíu (notið vatn ef þarf meiri vökva) og léttsteikið laukinn.
  • Látið soyakjötið út í.
  • Blandið saman cumen, chillidufti, oregano, salti, pipar, ávaxtasykri, hvítlauksdufti og spelti og hellið því yfir soyakjötið.
  • Sjóðið við meðalhita í 5 mínútur og hrærið í oft á meðan.
  • Bætið tómötunum og safanum af þeim í pottinn.
  • Látið krauma í 25-30 mínútur.

  • Berið fram með avacadobitunum, og soðnum hrísgrjónum.
  • Það er mjög gott að nota sveppi líka (saxa og steikja nokkra ferska).
  • Ef þið viljið búa til meiri mat úr þessu, þá mætti bera fram "hollar" nachosflögur (þær eru aldrei hollar en "hollara" afbrigði er til í Yggdrasli).
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Crepes með grænmeti og bygggrjónum

15. mars, 2006

Franskar pönnukökur með grænmeti  og bygggrjónum innan í. - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessi réttur er rosa góður. Hver man ekki eftir pönnukökunum á Cafe París eða á Nýja Kökuhúsinu!! Þessar eru ekkert ósvipaðar nema það er ekkert smjörbragð af grjónunum og sinnepssósan er mjög fitulítil. Ég nota magran ost líka. Þegar ég geri venjulegar pönnsur geri ég aðeins fleiri en ég þarf og nota svo í þennan rétt (sleppi þá vanilludropunum og kaffinu). Þegar grjónablandan er svo tilbúin set ég blönduna í hverja pönnuköku og baka aðeins inn í ofni. Pönnsurnar verða aðeins stökkar en mér finnst það bara ekkert verra.
 
Crepes með grænmeti og bygggrjónum
Gerir 8 crepes

    Pönnukökur
  • 1 bolli spelti
  • 1 msk vínsteinslyftiduft
  • 1 egg
  • 1 bolli undanrenna
  • 1 msk kókosfeiti

    Aðferð:
  • Blandið öllu saman og hitið pönnu (á um það bil næst hæsta hitastigi) og setjið smá kókosfeiti á pönnuna. Það gæti þurft að lækka á hitanum.
  • Bakið 6-8 frekar þykkar pönnukökur (setja eina ausu á pönnuna snögglega, þekjið pönnuna og hella restinni af deiginu aftur ofan í skálina með deiginu í, á að taka um 7 sekúndur í allt).

    Fylling
  • 2 dl hýðishrísgrjón eða bygggrjón (enska: Pearl Barley)
  • 100 gr sveppir, saxaðir frekar fínt
  • 7 vorlaukar, eða einn stór blaðlaukur
  • 2 hvítlauksrif, marin
  • 1/2 tsk karrí
  • 1 rauð eða gul paprika í bitum
  • 1/2 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt) og smá pipar
  • 100 gr rifinn, magur ostur
  • 2 msk tamarisósa

    Sinnepssósa
  • 4 msk sætt sinnep (það er samt enginn viðbættur sykur)
  • 1 tsk sinnepsfræ, svört en má líka nota ljós með (enska: mustard seeds)
  • 2 tsk agavesíróp
  • 3 msk eða meira af majonesi. Einnig má nota 5% sýrðan rjóma frá Mjólku (hann er án gelatíns). Hægt er að kaupa létt-majones (6% fita) í flestum búðum en það inniheldur yfirleitt sykur og viðbætt efni
  • 4 msk eða meira af AB-mjólk eða hreinu, fitulausu jógúrti

    Aðferð:
  • Sjóðið hrísgrjónin eða bygggrjónin.
  • Steikið laukinn og hvítlaukinn úr smá kókosfeiti og vatni ef þarf.
  • Steikið sveppina upp úr tamarisósu og vatni, bætið paprikunni saman við.
  • Í stórri skál, blandið saman grjónunum, sveppunum og bætið ostinum, paprikunni, sinnepsblöndunni, lauknum og kryddinu. Búið til meiri sinnepssósu ef ykkur finnst þessi ekki nóg (á að vera frekar mikið af henni, blandan má vera frekar blaut).
  • Setjið 3-5 msk af hrísgrjónafyllingunni (eftir því hvað þið viljið mikið) á hverja pönnuköku, rúllið þeim upp í böggla eða rúllið þeim upp eins og þykkum pönnukökum og leggið á bökunarpappír.
  • Bakið í 15-20 mínútur við 180°C.

  • Mjög gott að útbúa deginum áður, henda í ísskápinn og hita daginn eftir.
  • Líka upplagt í nestið ef þið getið hitað pönnukökurnar upp.
  • Fylltar pönnukökur má gjarnan frysta og hita svo upp í ofni.
  • Gott er að eiga frosnar pönnukökur til að nota í þennan rétt því tímafrekt getur verið að baka pönnsur.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Dhal (baunasúpa) með graskeri og kókosmjólk

2. nóvember, 2008

Ilmandi, indversk súpa - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Haldið ekki að gasið á eldavélinni hafið klárast akkúrat þegar ég var að búa til þennan rétt (þegar 20 mínútur voru eftir af eldunartímanum), ég endaði á því að þurfa að setja súpuna í eldfast mót og hita hana svoleiðis. Sem var ekki auðvelt því ég gerði helling af súpu og ofninn var því fullur af eldföstum mótum með baunasúpu í. Það kom reyndar ekki að sök því súpan varð alveg ferlega góð, hún er með mildu, sætu kryddbragði eins og margir indverskir réttir og er létt en um leið saðsöm því í henni er kókosmjólk. Grasker innihalda C vítamín og fleira gott fyrir okkur svona yfir vetrartímann. Linsubaunir eru trefja, járn- og próteinríkar, innihalda fólinsýrur og magnesíum og eiga að stuðla að heilbrigðu hjarta. Grasker eru komin á kreik í nóvember svo það er upplagt að gera þessa súpu þegar grasker eru í búðinni og slydda á rúðunni (rímaði næstum því.....).
 
Dhal (baunasúpa) með graskeri og kókosmjólk
Fyrir 3-4

  • 1 msk kókosfeiti og vatn til viðbótar ef þarf meiri vökva
  • 1 hvítlauksgeiri, saxaður mjög smátt
  • Smá bútur (um 1cm) ferskt engifer, afhýtt og saxað smátt
  • 1 rauður chillipipar, fræhreinsaður og saxaður smátt
  • 1 kanilstöng
  • 2 negulnaglar (enska: cloves)
  • 2 laukar, saxaðir smátt
  • 2 sellerístilkar, saxaðir smátt
  • 1 msk tómatmauk (puree)
  • 200 gr brúnar linsubaunir (enska: lentils), skolaðar vel
  • 1 lítri vatn
  • 500 gr grasker eða vetrargrasker (þau eru minni og krumpuð). Þyngdin miðast við graskerið áður en það er verkað.
  • 400 gr kókosmjólk, lífrænt framleidd úr heilsubúð
  • 1/2 tsk múskat
  • 1/2 tsk agavesíróp
  • 1 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt) eða 1 gerlaus grænmetisteningur

    Aðferð:
  • Hitið kókosfeitina í stórum potti.
  • Hitið laukinn í 5 mínútur eða þangað til hann er orðinn mjúkur. Bætið vatni við ef þarf meiri vökva.
  • Bætið kanilstönginni, negulnöglunum, hvítlauknum, engiferinu, chillipiparnum og selleríinu út í. Hitið í nokkrar mínútur.
  • Bætið tómatmaukinu út í ásamt baununum.
  • Hellið vatninu út á og látið suðuna koma upp.
  • Látið bullsjóða í 10 mínútur og fjarlægið froðu ef hún myndast.
  • Kryddið með salti eða setjið grænmetisteninginn út í hér ef þið notið hann.
  • Lækkið hitann og látið malla við vægan hita í um klukkutíma eða þangað til baunirnar verða mjúkar.
  • Á meðan skuluð þið afhýða graskerið, fræhreinsa það og saxa í grófa bita.
  • Setjið í meðalstóran pott ásamt múskati og agavesírópi.
  • Hellið kókosmjólkinni út á og látið sjóða við vægan hita í um 30-40 mínútur eða þangað til graskerið er orðið mjög mjúkt.
  • Maukið graskerið með töfrasprota.
  • Fjarlægið negulnaglana og kanilstöngina úr baunasúpunni.
  • Maukið súpuna í 2-3 sekúndur með töfrasprota (verður þykkari þannig).
  • Blandið graskersmaukinu og baunasúpunni saman og hitið í smástund (líka gaman að setja baunasúpuna í skál og graskersmaukið ofan á og bera þannig fram).
  • Berið fram með chapati brauði eða glúteinlausu brauði.

  • Nota má butternut grasker (squash) í staðinn fyrir venjulegt, stórt grasker.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Egg Fu Yung með hýðishrísgrjónum

28. febrúar, 2003

Þetta er uppskrift sem ég fann í einni af matreiðslubókunum mínum. Þetta er svona ekta kínverskur réttur (nema vantar olíuna sem er oft á austurlensku stöðunum og er því meinhollur), mildur og fer vel í maga.
 
Egg Fu Yung með hýðishrísgrjónum
Fyrir 4

  • 175 gr hýðishrísgrjón eða bygggrjón (enska: pearl barley). Þeir sem hafa glúteinóþol ættu ekki að borða bygg en mega borða hýðishrísgrjón
  • 2 þurrkaðir kínverskir sveppir (eða 2 stórir venjulegir, opnir í þunnum sneiðum)
  • 4 eggjahvítur, hrærðar lauslega
  • 1 blaðlaukur, lítill, skorinn í tvennt og svo í þunnar sneiðar. Nota skal miðjuna þ.e. hvíta hlutann og græna hlutann nema ekki blöðin
  • 1/4 paprika, skorin í bita
  • 60 gr mambussprotar, hver sneið sneidd í tvennt
  • 60 gr water chestnuts (má sleppa)
  • 125 gr ferskar baunaspírur
  • 2 msk tamarísósa
  • 1 tsk kókosfeiti eða ólífuolía
  • 1 msk sesamolía (má sleppa en gefur gott bragð)
  • Heilsusalt (Herbamare) og pipar

    Aðferð:
  • Sjóðið grjónin.
  • Hrærið eggin með smá salti, hitið kókosfeiti eða ólífuolíu á pönnu og setjið eggin út á.
  • Hrærið stöðugt þangað til þau eru orðin “hrærð”.
  • Bætið tamarísósunni saman við og hrærið áfram.
  • Hitið sveppina, blaðlaukinn og paprikuna í tvær mínútur.
  • Bætið mambussprotunum, water cestnuts og baunaspírunum við og hitið í mínútu.
  • Látið vatnið renna af grjónunum og bætið við á pönnuna ásamt því sem eftir er.
  • Blandið vel, þangað til grjónin eru orðin heit.
  • Kryddið með salti og pipar.
  • Blandið eggjunum saman við.

  • Ég nota bara eggjahvítur í þennan rétt, heilsunnar vegna en upphafleg uppskrift innihélt 2 egg (rauður og hvítur).
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Eggaldin- og tómataofnréttur frá Kenya

20. október, 2007

Afrískur og heimilislegur ofnréttur - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Eggaldin og tómatar eru mikið notað hráefni í Kenya. Þetta er svona ekta heimilismatur og vel seðjandi með góðu brauði. Þó hann sé seðjandi þá er hann léttur og fínn líka því í honum er hreint jógúrt og magur ostur. Í réttinum átti að vera geitaostur (geitaafurðir eru mjög ríkjandi í Kenya eins og víða í Afríku) en ég myndi frekar borða uppþvottalög frekar en nokkuð sem inniheldur geitaafurð því mér finnst bragðið af öllu því sem kemur úr geitum alger viðurstyggð. Þessi réttur er ekki ólíkur grænmetislasagne að uppbyggingu en án pastasins.
 
Eggaldin- og tómataofnréttur frá Kenya
Fyrir 6

  • 2 stór eggaldin, sneidd
  • 1 tsk kókosfeiti eða ólífuolía
  • 2 laukar, sneiddir
  • 2 hvítlauksgeirar, saxaðir
  • 1 kg tómatar, saxaðir gróft (eða úr dós, lífrænt ræktaðir)
  • 1 msk tómatmauk
  • 1 msk basil
  • 1 msk agavesíróp
  • Heilsusalt (Herbamare) og pipar

    Ofan á:
  • 500 ml hreint jógúrt
  • 25 gr rifinn, ferskur parmesan
  • 100 gr rifinn, magur ostur
  • 25 gr kotasæla (eða geitaostur fyrir þá sem vilja)
  • 25 gr brauðmylsna (úr grófu speltbrauði)

    Aðferð:
  • Hitið olíuna í stórum potti. Notið vatn ef meiri vökva þarf.
  • Hitið eggaldinsneiðarnar þangað til þær eru orðnar gullbrúnar á báðum hliðum. Takið úr pottinum og geymið.
  • Steikið laukinn og hvítlaukinn þangað til hvoru tveggja er orðið gullbrúnt.
  • Bætið tómötum, kryddi, tómatmauki, agavesírópi og salti út í. Bætið salt og pipar við eftir smekk.
  • Látið suðuna koma upp, lækkið á hitanum og leyfið þessu að malla í um 20 mínútur eða þangað til vökvinn af tómötunum fer að gufa upp.
  • Takið af hellunni og leyfið aðeins að kólna.
  • Blandið jógúrt, parmesan, kotasælu, 50 gr af rifna ostinum og brauðmylsnu saman.
  • Skiptið eggaldinsneiðunum í þrjá skammta.
  • Setjið fyrsta skammt af eggaldinsneiðunum í stórt (um 30 cm. að lengd), eldfast mót.
  • Setjið tómatablönduna ofan á, smyrjið vel yfir allt.
  • Bætið ostablöndunni saman við.
  • Endurtakið og endið á eggaldisneiðum efst.
  • Setjið afganginn af rifna ostinum yfir og smávegis af meira parmesan ef þið viljið.
  • Bakið við 180°C í um 30 mínútur.
  • Athugið að það getur komið svolítill vökvi af tómötunum þegar þeir byrja að bakast en það er alveg eðlilegt.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Eggjadropa og maískornasúpa

28. febrúar, 2003

Eggjadropasúpa - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessi súpa er voðalega einföld og þægileg, upplögð svona í miðri viku. Ég veit aldrei hvað ég á að hafa með súpunni (væri örugglega best að hafa "prawn-crackers" en ég myndi frekar borða málningu heldur en að borða það ógeð, hvoru tveggja stíflar æðarnar sennilega jafnmikið). En allavega, þessi súpa er holl, próteinrík og góð og upplögð í forrétt ef þið eruð með austurlenska veislu á borðum. Hún er líka mjög ódýr og heppileg ef buddan er ekki þung.
 
Eggjadropa og maískornasúpa
Fyrir 2-3

  • 250 gr maískorn (án viðbætts sykurs)
  • 2 eggjahvítur
  • 1 tsk sesamolía (má sleppa)
  • 1,5 stórir gerlausir grænmetisteningar frá Rapunzel
  • 6 dl sjóðandi vatn
  • 2 msk maísmjöl (þ.e. sósujafnari. Má líka nota arrowroot)
  • 1 msk tamarisósa (eða soyasósa) til að bragðbæta ef þarf
  • 1 tsk agavesíróp

    Aðferð:
  • Hrærið eggjahvítuna vel.
  • Blandið maísmjöl saman við 1-2 msk af vatni hrærið mjög vel þangað til kekkirnir eru horfnir.
  • Hellið sjóðandi vatni yfir grænmetisteningana (í potti).
  • Hleypið suðunni upp og blanda maískornunum saman við.
  • Setjið agavesírópið út í.
  • Látið malla (ekki sjóða) í 15 mínútur, ekki með lokinu á.
  • Blandið eggjahvítunum saman við maísmjölsblönduna og hrærið vel.
  • Hellið eggjahvítu/maísmjölsblöndunni út í, í lítilli, en stöðugri bunu og hrærið í súpunni allan tímann (án þess að sjóði í súpunni). Eggjadroparnir þykkna og verða að mjóum, hvítum ræmum. Gætið þess að ekki sjóði í súpunni.
  • Setjið sesamolíuna útí.
  • Smakkið til með tamarisósunni, ekki víst að þurfi.

  • Það er líka hægt að setja rifinn kjúkling út í, bætið bara aðeins af soði við svo súpan verði ekki alltof þykk. Ef kjúklingur er notaður, má nota kjúklingakraft í stað grænmetiskrafts.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Einfaldur grænmetisréttur í ofni

2. nóvember, 2008

Einfaldur og hollur grænmetisréttur í ofni - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessi réttur er bæði einfaldur, hollur og nokkuð ódýr (alltaf góð blanda). Hann er einmitt fullkominn þegar maður á smá grænmeti í ísskápnum, nokkur egg, ost í frystinum (eða ísskápnum) og afgangspasta. Rétturinn er einnig prótein-, kalk- og trefjaríkur en samt fitusnauður (ef maður notar magran ost). Upplagður námsmannamatur í miðri viku nú eða fyrir fjölskylduna…þetta er nefnilega svona réttur sem öllum finnst góður, líka börnunum!
 
Einfaldur grænmetisréttur í ofni
Fyrir 2-3

  • 85 gr pastarör eða skrúfur úr spelti
  • 1 blaðlaukur, skorinn í þunnar sneiðar (miðjan notuð þ.e. hvíti endinn og blöðin ekki notuð)
  • 85 gr frosnar, grænar baunir
  • 85 gr frosin maískorn (má nota úr dós)
  • 1 rauð paprika, fræhreinsuð og skorin í sneiðar eða bita
  • 1 egg
  • 2 eggjahvítur
  • 20 ml sojamjólk (einnig má nota hrísmjólk, möndlumjólk eða undanrennu)
  • 60 gr magur ostur (einnig má nota sojaost)
  • 2 msk parmesan ostur (má sleppa)
  • 1 gerlaus grænmetisteningur
  • Svartur pipar eftir smekk
  • Smá klípa steinselja
  • Smá klípa salt (Himalaya eða sjávarsalt)
  • 1/2 tsk kókosfeiti

    Aðferð:
  • Hitið ofninn í 180°C.
  • Smyrjið eldfast mót (sem tekur rúmlega 1 lítra) með kókosfeiti (dýfið eldhúspappír ofan í kókosfeiti og nuddið eldfasta mótið að innan).
  • Setjið grænmetisteninginn í pott með sjóðandi vatni og leysið hann upp.
  • Sjóðið paprikuna, maískorn, maísbaunir og blaðlauk í 5 mínútur.
  • Bætið pastanu út í pottinn með grænmetinu og sjóðið í 5-7 mínútur eða þangað til næstum því tilbúið.
  • Sigtið vökvann frá (þurfið ekki að nota hann meira). Setjið pastablönduna í stóra skál.
  • Hrærið saman undanrennu, eggi og eggjahvítunum, helmingnum af ostinum í lítilli skál.
  • Kryddið eftir smekk.
  • Hellið eggjablöndunni út í pastablönduna og blandið vel saman.
  • Hellið blöndunni allri í eldfasta mótið.
  • Dreifið afganginum af ostinum yfir réttinn.
  • Hitið í 20 mínútur.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Einfalt hrísgrjónasalat

1. mars, 2003

Æ mig vantaði einhvern tímann meðlæti með einhverju sem ég var að elda og ég átti bara þetta í ísskápnum. Voða einfalt bara.
 
Einfalt hrísgrjónasalat
Meðlæti fyrir 3-4

  • 2 bollar hýðishrísgrjón eða bygggrjón (enska: pearl barley). Þeir sem hafa glúteinóþol ættu ekki að borða bygg en mega borða hýðishrísgrjón
  • Sólþurrkaðir tómatar (olían þerruð af með eldhúsþurrku) skornir mjög smátt
  • 2 sveppir saxaðar mjög smátt
  • 2 msk möndlur, þurristaðar og svo muldar
  • 1 tsk turmeric duft,
  • 1/2 tsk heilsusalt (Herbamare) og smá pipar
  • 2 msk vatn

    Aðferð
  • Sjóðið grjónin.
  • Sólþurrkuðu tómatarnir og sveppirnir steiktir upp úr vatni og salti og turmerici.
  • Þessu er svo blandað saman við grjónin og borið fram.

  • Gott með allskyns fiskréttum, kjúklingaréttum og salötum.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Einfalt salat með tahini salatsósu (dressingu)

20. júní, 2009

Einfalt, sumarlegt og litríkt salat - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Ég er alltaf að reyna að búa til einföld salöt sem geta gengið með öllum mat. Mér finnst alltaf best að blanda saman mismunandi salatblöðum (t.d. eikarlauf, klettasalat o.fl.), svolitlu af sætu (t.d. mango, epli, jarðarber, vínber) og svo hráu grænmeti (t.d. gulrótum, paprikum, gúrkum tómötum). Svo finnst mér öðru hvoru gott að setja út í salöt t.d. fetaost og ólífur. Hnetur set ég gjarnan út í til að fá skemmtilega áferð og gott bragð. Fetaost nota ég reyndar sjaldan og þegar ég nota hann, er það hreinn fetaostur án kryddolíu (sem er oft bölvuð draslolía). Svo eins og með flest salöt þá má skipta út, breyta og bæta. Salatsósan er afar ljúffeng og fljótgerð og hentar vel bæði með salötum, inn í vefjur, ofan á grænmetisborgara, með grillmat o.fl.
 
Einfalt salat með tahini salatsósu (dressingu)
Fyrir 4 sem meðlæti

    Salatið:
  • 200 gr blandað salat (t.d. Lambhagasalat, eikarlauf o.fl.)
  • 1 rauð paprika
  • 1/4 mango, vel þroskað
  • 1/4 gúrka
  • 1/2 avocado, vel þroskað (má sleppa)
  • 2 msk hreinn fetaostur (ekki í olíu)
  • 10-15 svartar ólífur
  • Ein lúka pecanhnetur

    Tahini salatsósan:
  • 2 msk tahini (sesammauk)
  • 50 ml hreinn appelsínusafi
  • 1 msk tamarisósa
  • 1 tsk tabasco sósa (eða piparsósa (hot pepper sauce))
  • 1 tsk hrísgrjónaedik (eða annað edik sem ykkur finnst gott)

    Aðferð:
  • Byrjið á því að undirbúa salatsósuna.
  • Blandið saman tahini, appelsínusafa, tamarisósu, tabasco sósu (setjið nokkra dropa fyrst og bætið svo við meiru ef þið þolið) og hrísgrjónaedik í litla skál. Hrærið mjög vel með skeið. Það þarf ekki að nota blandara en þið getið notað hann ef þið viljið.
  • Geymið við stofuhita þangað til á að bera salatsósuna fram (hún stífnar annars í kæli).
  • Hægt er að útbúa salatsósuna með nokkurra daga fyrirvara og taka svo sósuna út nokkrum klukkustundum áður en á að nota hana.
  • Skolið salatblöðin og setjið á stóran disk eða í skál.
  • Skerið paprikuna í tvennt, fræhreinsið og skerið í frekar þunnar og litlar sneiðar.
  • Skerið gúrkuna í þunnar sneiðar og svo aftur í helminga.
  • Afhýðið mangoið og skerið í litla bita (álíka stóra og sykurmola).
  • Afhýðið avocadoið og skerið í bita.
  • Myljið pecanhneturnar með fingrunum eða saxið frekar fínt.
  • Blandið öllu sem á að fara í salatið vel saman.
  • Berið salatsósuna fram sér.

  • Nota má grænar ólífur í staðinn fyrir svartar.
  • Nota má annan lit af paprikum í staðinn fyrir rauðar.
  • Einnig má nota rifnar gulrætur, melónur, kirsuberjatómata o.fl. í salatið.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Ferskur aspars með appelsínu-sesamdressingu

2. mars, 2003

Þetta er nú eiginlega forréttur, mjög spes á bragðið og hentar ekki með öllu. Ég hafði smjörbaunasalat í aðalrétt og það var allt í lagi með. Þessi uppskrift er upprunalega komin frá Waitrose, búðinni okkar góðu sem við verslum í hérna í London en ég breytti henni þó aðeins. Best er að kaupa aspars á vormánuðum því þá er hann "in season".
 
Ferskur aspars með appelsínu-sesamdressingu
Fyrir 2

  • 500 gr ferskur aspars
  • 1 msk sesamfræ
  • 2 msk hrísgrjónaedik
  • 2 tsk Dijon sinnep
  • 1 tsk tamarisósa
  • 1 tsk rifin, fersk engiferrót
  • 1 tsk rifinn appelsínubörkur
  • 1 hvítlauksrif pressað
  • 1/4 tsk agave síróp
  • 1 msk sesamolía
  • 1 msk ólífuolía

    Aðferð:
  • Skerið u.þ.b. 5 cm. bita af endanum af hverjum aspars og skafið síðan neðri hlutann með kartöfluflysjara.
  • Sjóðið asparsinn í léttsöltu vatni í u.þ.b. 5 mínútur.
  • Hellið vatninu varlega af og skolið asparsinn undir rennandi, köldu vatni.
  • Þerrið asparsstönglana og geymið í kæli í 30 mínútur eða lengur.
  • Léttbrúnið sesamfræin á þurri pönnu og kælið.
  • Þeytið saman edikið, sinnepið, sojasósuna, engiferrótina, appelsínubörkinn, hvítlaukinn og agavesírópið.
  • Bætið olíunum smátt og smátt saman við og þeytið vel á meðan svo allt blandist vel.
  • Bragðbætið með salti og pipar eftir smekk og geymið dressinguna í kæli fram að framreiðslu.
  • Leggið nokkra asparsstöngla á forréttardiska (má hafa salatblöð með) dreypið dressingunni yfir og stráið sesamfræjum svo yfir.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Franskar kartöflur

2. nóvember, 2008

Hollar og góðar franskar kartöflur - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Bíðið við….franskar kartöflur á vef CafeSigrun… er það ekki prentvilla? Er konan orðin klikkuð???? Áður en þið sendið mér, áhyggjufull fyrirspurn um hvort ég sé orðin galin þá skuluð þið skoða innihaldslýsinguna á þessari uppskrift…. Það eru þrjú atriði á listanum, kartöflur, olíuúði og salt…, ekkert annað. Frönskurnar eru því bráðhollar og afar, afar langt frá því sem finna má á skyndibitastöðum. Hugmyndin er byggð á frönskunum hennar Lísu Hjalt sem er dyggur notandi CafeSigrun en hún fékk hugmyndina frá vinkonu sinni. Ég notaði kókosolíu/vatnsúða en Lísa útbýr frönskurnar þannig að hún penslar bökunarpappír með olíu og lætur pappírinn liggja undir kartöflunum í 2 tíma. Við það drekka kartöflurnar í sig olíuna á löngum tíma. Svo saltar hún og bakar. Hvor aðferðin sem þið notið skiptir ekki öllu máli en ég get lofað ykkur hollum og góðum frönskum kartöflum.
 
Franskar kartöflur
Fyrir 4-5 sem meðlæti

  • 6 kartöflur
  • 1 tsk kókosolía og vatn (blandað saman í úðabrúsa eða í skál til að pensla)
  • Salt (Himalaya eða Maldon)

    Aðferð:
  • Skerið kartöflurnar fyrst í sneiðar (svona 5 mm þykkar).
  • Skerið kartöflurnar því næst í strimla.
  • Setjið bökunarpappír á bökunarplötu.
  • Setjið kartöflurnar á bökunarpappír og úðið eða penslið kókosolíu/vatni yfir.
  • Saltið og veltið kartöflunum aðeins til.
  • Bakið við 200°C í um 20-25 mínútur.
  • Berið fram strax.

  • Mér finnst gott að hafa kartöflurnar stökkar en þið getið haft þær mýkri með því að baka þær aðeins styttra eða við lægri hita.
  • Gott er að krydda kartöflurnar með kartöflukryddi frá Pottagöldrum.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Fyllt eggaldin

4. maí, 2004

Þetta er mjög fínn réttur til að búa til í miðri viku því hann er fljótlegur en saðsamur.
 
Fyllt eggaldin
Fyrir 3-4

  • 225 gr speltpasta. Einnig hægt að nota heilhveitipasta
  • 2 stór eggaldin eða 3 minni
  • 1 stór laukur
  • 2 hvítlauksgeirar, kramdir
  • 400 gr saxaðir, ferskir tómatar (eða í dós)
  • 2 tsk oregano, þurrkað
  • Heilsusalt (Herbamare) og pipar
  • 55 gr mozarella ostur (magur ef hann er til) skorinn í þunnar sneiðar
  • 25 gr parmesan ostur, helst ferskur
  • 5 msk brauðmylsnur, spelti eða heilhveiti
  • 1 msk kókosfeiti eða ólífuolía

    Aðferð:
  • Sjóðið pastað í 8-10 mínútur eða þangað til það er næstum tilbúið, sigtið, kælið með köldu vatni og setjið til hliðar.
  • Skerið eggaldin í helminga (lárétt), hreinsið innan úr þeim með beittum hnífi, án þess þó að skemma hýðið.
  • Skafið kjötið úr og saxið.
  • Steikið laukinn úr kókosfeiti eða ólífuolíu í um 5 mínútur eða þangað til hann er orðinn mjúkur.
  • Bætið hvítlauknum við og hitið í 1 mínútu, bætið saxaða aldinkjötinu út í.
  • Bætið tómötunum og oregano kryddinu við og smakkið til með salti og pipar.
  • Látið suðuna koma upp og leyfið þessu að malla í um 10 mínutur eða þangað til blandan fer að þykkna.
  • Bætið pastanu út í og hrærið vel.
  • Raðið eggaldinskeljunum á bökunarpappír.
  • Setjið helminginn af pastablöndunni í hverja skel.
  • Raðið mozarella sneiðunum ofan á.
  • Setjið afganginn af pastablöndunni ofan á.
  • Blandið saman brauðmylsnunni og parmesan ostinum og dreifið yfir.
  • Bakið í ofni við 200°C í 25-30 mín eða þangað til eggaldinkjötið er orðið mjúkt og osturinn bráðinn.

  • Athugið að það er einnig hægt að nota magran brauðost (11%) í staðinn fyrir mozarella.
  • Parmesan ostinn má einnig minnka, notið þá meira af brauðosti í staðinn.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Fylltar paprikur

26. september, 2004

Fylltar paprikur - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessa uppskrift smakkaði ég fyrst á námskeiði hjá Sólveigu á Grænum kosti. Þetta er mjög saðsamur matur en hollur og góður þar sem í honum eru t.d. hnetur, tófú, grænmeti o.fl. Uppskriftin birtist nánast eins og ég fékk hana en ég breytti bara smá. Ég reyndi þó að taka fram hvar ég breytti henni svo að upprunalega uppskriftin komi fram líka.
 
Fylltar paprikur
Fyrir 3-4

  • 4 rauðar eða appelsínugular paprikur (bara talað um rauðar paprikur í uppskriftinni en mér finnst fínt að nota gular og appelsínugular paprikur líka)
  • 150 gr sólþurrkaðir tómatar (ég nota tómata án olíu)
  • 150 gr þistilhjörtu (ég nota sama magn af kjúklingabaunum...þistilhjörtu eru of dýr!)
  • 150 gr möndlur eða hnetur t.d. cashew eða heslihnetur
  • 150 gr magur ostur (eða soja-mosarella ostur)
  • 10-20 gr parmesan (ég nota venjulegan en má nota soja parmesan)
  • 150 gr tófú, hellið vatninu af og kreistið aðeins með eldhúsþurrku
  • 1/2 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt) og smá klípa svartur pipar
  • 1 hnefi ferskt, grænt krydd t.d. kóríander, basil, graslaukur, timian (ég notaði þurrkað basil og það var allt í lagi líka)

    Aðferð:
  • Skerið paprikurnar í tvennt og hreinsið fræin og himnurnar úr.
  • Saxið tómatana smátt og leggið í bleyti í 20 mínútur. Hellið vatninu af.
  • Setjið hneturnar í matvinnsluvél og látið vélina vinna í 10-15 sekúndur.
  • Setjið allt í matvinnsluvélina nema ostinn og paprikurnar og maukið vel.
  • Blandið helmingnum af ostinum saman við fyllinguna og blandið áfram í nokkrar sekúndur.
  • Fyllið paprikurnar (gott að nota matskeið).
  • Dreifið afganginum af ostinum ásamt parmesan ostinum yfir paprikurnar.
  • Bakað við 200°C í 20-25 mínútur eða þangað til paprikurnar eru aðeins farnar að mýkjast og osturinn að bráðna.
  • Skreytið með fersku grænu kryddi.

  • Gott er að bera fram með þessu hýðishrísgrjón eða bygg og salat (hægt að nota alls konar salöt).

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Fylltar pönnukökur með hvítlaukssósu, shiitaki sveppum og spínati

6. nóvember, 2009

Flókið í undirbúningi já, en alveg þess virði! - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þetta hráefni átti ég til í ísskápnum og ég hafði fryst pönnukökur nokkrum vikum áður. Ég afþýddi bara pönnukökurnar og útbjó þennan fína rétt. Það er nefnilega um að gera að frysta nokkrar pönnukökur til að eiga í svona framkvæmdir. Maður nennir ómögulega að baka þær bara til að útbúa mat inn í þær og ef maður á þær í frysti er maður enga stund að henda í fína máltíð. Mér finnst svona pönnukökur með fyllingu ferlega góðar og það er reglulega gaman að bera þær fram t.d. í matarboði. Athugið að pönnukökurnar verða frekar stökkar þegar bakaðar því þær eru ekki stútfullar af fitu. Athugið einnig að ef þið eruð að baka pönnukökur er gott að taka frá þessar fyrstu, þykku og ljótu sem maður bakar og frysta þær í svona crepes (fylltar pönnukökur).
 
Fylltar pönnukökur með hvítlaukssósu, shiitaki sveppum og spínati
Fyrir 3-4

    Pönnukökur:
  • 1 bolli spelti
  • 1 msk vínsteinslyftiduft
  • 1 egg
  • 1 bolli sojamjólk (einnig má nota haframjólk, möndlumjólk, hrísmjólk eða undanrennu)
  • 1 msk kókosolía og smá til viðbótar á pönnuna

    Aðferð:
  • Blandið spelti og vínsteinslyftidufti saman.
  • Blandið eggi og sojamjólk saman við og bætið út í speltið.
  • Bætið kókosolíu út í og hrærið vel þangað til kekkjalaust.
  • Hitið pönnu (um það bil næst hæsta hitastigið) og setjið smávegis af kókósolíu á pönnuna.
  • Bakið 6-8 frekar þykkar pönnukökur.

    Fylling:
  • 2 dl soðið bygg (sjóðið 1/2 bolla á móti 3 bollum af vatni í 20-30 mínútur)
  • 150 gr ferskir shiitaki sveppir (eða aðrir bragðmiklir sveppir). Sneiddir smátt (ég nota stöngulinn líka)
  • 1 rauðlaukur, saxaður smátt
  • 100 gr ferskt eða frosið spínat. Ef frosið, látið þiðna og kreistið vatnið úr því
  • 100 gr rifinn, magur ostur
  • 0,5 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)

    Hvítlaukssósa:
  • 2 msk eða meira af sýrðum rjóma án gelatíns frá Mjólku (5%). Einnig má nota létt-majones en það er þó með aukaefnum sem eru ekki sniðug fyrir mann
  • 1 hvítlauksgeiri marinn + 1 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt) eða 1 tsk hvítlaukssalt
  • 3 msk eða meira af AB-mjólk

    Aðferð:
  • Sjóðið byggið.
  • Steikið sveppina upp úr vatni og saltið aðeins.
  • Bætið spínatinu saman við og steikið þangað til allur vökvi er nánast farinn úr spínatinu. Setjið til hliðar.
  • Steikið rauðlaukinn í nokkrar mínútur.
  • Bætið lauknum saman við spínatið og sveppina.
  • Blandið nú grjónunum og ostinum saman við.
  • Blandið hvítlaukssósunni saman við og hrærið vel í öllu.
  • Setjið 3 msk af byggfyllingunni á hverja pönnuköku, rúllið þeim upp í böggla og leggið í smurt eldfast mót (nuddið smá kókosolíu með eldhúspappír í mótið) og bakið í 12-15 mínútur við 180°C.
  • Berið fram með meira af hvítlaukssósu og soðnu byggi og jafnvel góðu salati.
  • Nota má hýðishrísgrjón í staðinn fyrir bygg.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Graskers- og kókossúpa frá Zanzibar

20. október, 2007

Ég notaði saffran í súpna og hún er því frekar gul. Skálin er keypt á antikmarkaði á Zanzibar - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessi súpa kemur úr bók sem heitir Zanzibar Kitchen. Það er fátt sem lýsir matnum á Zansibar jafn vel og þessi súpa. Kókosmjólkin er gríðarlega mikið notuð sem og öll kryddin sem í súpuna fara en þau eru einkennandi fyrir Zanzibar. Það er ólýsanlegt að ganga um í kryddskógunum á Zanzibar í þessum mikla hita sem þar er og finna ilminn af öllu kryddinu í kringum mann. Það er allt annar heimur og eitthvað sem ég mæli með fyrir allt mataráhugafólk. Maður hefur ekki upplifað kryddin fyrr en maður hefur farið í Spice Tour! Í uppskriftina áttu að fara 125ml af rjóma en mér finnst það óþarfi því kókosmjólkin er nokkuð feit. Súpan er fín fyrir alla fjölskylduna því þrátt fyrir að í henni sé tabasco, þá er hún ótrúlega mild. Súpan er upplögð í október/nóvember þegar graskerin eru á kreiki. Gott er að kaupa grasker og sjóða það til að geyma til seinni tíma.
 
Graskers- og kókossúpa frá Zanzibar
Fyrir 4

  • 2 tsk kókosfeiti eða ólífuolía. Bætið við vatni ef þarf
  • 50 gr laukur, saxaður gróft
  • 200 gr soðið grasker (afhýðið, fræhreinsið, skerið í búta og sjóðið í söltu vatni í um 15 mínútur)
  • 650 ml grænmetissoð (vatnið + 2 gerlausir grænmetisteningar t.d. frá Rapunzel)
  • 375 ml undanrenna eða léttmjólk
  • 1/8 tsk negull
  • 1 tsk ferskt, rifið engifer (má nota þurrkað engifer en þá þarf bara 1/2 tsk)
  • 1 tsk sítrónusafi
  • 1/2 tsk kanill
  • Smá sletta af Tabasco sósu (eða sterkri piparsósu). Má nota malaða papriku í staðinn, til að fá mildari súpu
  • 1/2 tsk heilsusalt (Herbamare) ef þarf
  • 250 ml kókosmjólk, lífrænt framleidd
  • Smá klípa saffran. Má sleppa en gefur fallegan lit

    Aðferð:
  • Hitið kókosfeitina í stórum potti og steikið laukinn þangað til hann verður mjúkur.
  • Bætið graskerinu við ásamt mjólkinni, grænmetissoðinu, kryddinu, tabasco sósunni, saltinu og sítrónusafanum.
  • Látið malla í 15 mínútur.
  • Bætið kókosmjólkinni við og hitið í eina mínútu án þess að sjóði.
  • Bætið saffrani við.
  • Kælið súpuna aðeins og setjið svo í smáskömmtum í matvinnsluvél. Einnig má nota töfrasprota.
  • Blandið vel, sumir vilja þó grófari áferð og skal þá blanda súpuna minna.
  • Hitið súpuna upp að suðu.

  • Berið súpuna fram sjóðandi heita með nýbökuðu brauði.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Graskerssúpa með grilluðum maískornum

7. nóvember, 2006

Graskerssúpa með grilluðum maískornum - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessi uppskrift kemur nánast beint upp úr Delia Smith grænmetisbókinni minni (Delia’s Vegetarian Collection) sem er frábær. Mæli alveg með henni. Ég steikti reyndar ekki upp úr smjöri og ég notaði léttmjólk í stað nýmjólkur. Mín súpa varð ljósari en súpan hennar Deliu (svona fyrir utan að vera örugglega photoshopuð þ.e. breytt í tölvu) þá grunar mig að graskerið sem ég notaði hafi ekki verið alveg fullkomlega ferskt (var sko að prófa grasker í fyrsta skipti með þessari súpu) svo súpan á líklega að verða aðeins appelsínugulari. Súpan sjálf er prýðisgóð og þetta er frekar stór uppskrift sem dugar manni í marga daga. Ódýr en seðjandi matur og fullkomið að búa til brauðbollur með til að dýfa í súpuna á köldum haustdegi. Grasker er mjög hollt að sjálfsögðu, fullt af Beta-Carotine sem er andoxunarefni sem hjálpar okkur að sporna t.d. gegn krabbameini. Svo getur maður ristað graskersfræin og notað þau í brauð eða ofan á salat, ekki amalegt það enda eru þau svo holl að maður ætti að borða þau á hverjum einasta degi. Þau innihalda m.a. prótein, kalíum, zinc, járn og hollar fitusýrur. Zinc er sérstaklega gott fyrir karlmenn! Ef þið fáið stórt grasker getið þið saxað það og og fryst til að nota afganginn í kryddað graskersbrauð eða meiri súpu.
 
Graskerssúpa með grilluðum maískornum
Fyrir 3-4 sem aðalréttur

  • 700 gr grasker, afhýtt, fræhreinsað og saxað í 2,5cm bita
  • 570 gr maískorn, frosin (eða fersk). Athugið að aðeins helmingurinn er notaður fyrst.
  • 1 tsk kókosfeiti eða ólífuolía
  • 1 laukur, saxaður
  • 275 ml léttmjólk
  • 725 ml grænmetissoð (vatn + 2 gerlausir grænmetisteningar t.d. frá Rapunzel)
  • Heilsusalt (Herbamare)
  • Svartur pipar
  • Smávegis tamarisósa (fyrir maískornin)

    Aðferð:
  • Hitið kókosfeiti eða ólífuolíu í potti og steikið laukinn í um 8 mínútur eða þangað til hann er orðinn mjúkur.
  • Bætið saxaða graskerinu út í ásamt helmingnum af maískornunum.
  • Hrærið vel og saltið og piprið.
  • Lækkið hitann og leyfið grænmetinu að svitna aðeins eða í um 10 mínútur.
  • Bætið mjólkinni út í ásamt grænmetiskraftinum og látið malla með lokið ofan á (ekki samt loka alveg því mjólkin getur auðveldlega soðið upp úr. Fylgist því vel með pottinum og ekki fara frá honum).
  • Á meðan þetta er að malla skuluð þið stilla ofninn á hæsta hitastig (um 250°C).
  • Setjið bökunarpappír á bökunarplötu og dreifið afgangnum af maískornunum á bökunarpappírinn. Dreifið vel.
  • Setjið bökunarplötuna í um 3 cm. fjarlægð frá mesta hitanum (yfirleitt efst uppi í ofninum).
  • Hitið í um 8 -10 mínútur. Hrærið aðeins í þeim eftir um 4 mínútur.
  • Þegar maískornin eru orðin gullbrún má taka þau úr ofninum.
  • Skvettið strax smávegis af tamarísósu yfir (um 1 msk eða svo) og nuddið maískornunum aðeins upp úr sósunni. Einnig má salta þau ef ykkur þykir það þægilegra. Slökkvið á ofninum og setjið baunirnar aftur inn í hann. Leyfið þessu að standa í nokkrar mínútur.
  • Þegar súpan er tilbúin skuluð þið nota töfrasprota eða matvinnsluvél til að blanda súpuna. Þið ráðið hvort hún er alveg maukuð eða með smá bitum í.
  • Berið fram í skálum og dreifið bökuðu maískornunum yfir. Ekki gleyma þeim, því þau eru æði!!!!

  • Til að grilla graskersfræ (til að nota seinna) skuluð þið hreinsa graskerskjötið af fræjunum, dreifa þeim á bökunarplötu og baka við um 150°C í um 45-50 mínútur. Hrærið í þeim eftir um 20 mínútur. Gott er að dreifa smá tamarísósu yfir fræin um leið og þau koma úr ofninum, nudda þeim aðeins í sósuna og leyfa þeim að kólna svoleiðis. Fullkomið í salatið eða sem hollt snakk! Ef þið saltið ekki graskersfræin getið þið notað þau út á morgunmat eða t.d. í brauð (nú eða yfir salat!)
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Grillaðir kartöflubátar með guacamole og salsa

1. september, 2007

Hollir kartöflubátar með salsa og guacamole. Litríkt og hollt. - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Það er voðalega freistandi fyrir marga að leggjast í snakkát um helgar..fá sér tortillaflögur með quacamole og salsa! Það er svo sem skiljanlegt að fólk vilji gera vel við sig öðru hvoru en málið er að við erum ekki að hugsa vel um okkur þegar við kaupum quacamole, salsa og kartöfluflögur út í búð... Það er mikið af fitu, sykri, aukaefnum, bragðefnum, bindiefnum o.fl. í þessarri samsetningu (svona yfirleitt) og afleiðingin er oft líkamleg vanlíðan (eftir á) og andleg (fyrir suma!). Þetta er holl útgáfa af slíkum mat, með heimatilbúnu guacamole og salsa. Það eru engin aukaefni, enginn hvítur sykur og ekkert rugl.... Þetta er alveg svakalega léttur matur og sérlega hollur. Eins og þið sjáið hérna fyrir neðan er matseldin ekki flókin og innihaldslýsingin ekki löng bara kartöflur, smá olía og salt!
 
Grillaðir kartöflubátar með guacamole og salsa
Fyrir 2 sem forréttur

  • 2 x 150 gr kartöflur (helst bökunarkartöflur)
  • 1 tsk kókosfeiti eða ólífuolía blandað saman við 1 tsk vatn
  • 1 tsk heilsusalt (Herbamare)

    Aðferð:
  • Bakið kartöflurnar á bökunarpappír (án þess að skera þær neitt, bara eins og þær koma úr jörðinni) í 45-60 mínútur við 180°C-200°C.
  • Takið kartöflurnar út, skerið þær mjög varlega í báta. Gætið þess að þær eru MJÖG heitar.
  • Hreinsið allt nema um 5 millimetra af kartöflukjötinu innan úr.
  • Leggið bátana (hýðismegin) niður.
  • Penslið bátana með olíunni.
  • Saltið.
  • Bakið í 20 mínútur til viðbótar eða þangað til kartöfluhýðin eru farin að dökkna mikið á endunum (og næstum því brenna).
  • Berið fram með guacamole og salsa.

  • Gott er að krydda með alls konar kryddi t.d. Töfrakryddinu eða Best á allt frá Pottagöldrum.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Grilluð grænmetissamloka

12. október, 2005

Grilluð grænmetissamloka - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessi er nú einföld en engu að síður bragðgóð og með alveg hellings grænmeti. Fínt að nota afgangana úr ísskápnum í vikulok í eina svona grillaða.
 
Grilluð grænmetissamloka
3-4 samlokur

  • 4 spelt Ciabatta eða gróf langlokubrauð. Best er að kaupa gerlaus en þau eru oft þykk svo ef þið þolið ger þá eru þannig brauð betri.
  • Blandið saman 2 msk af grænu pestói um 5 msk af majonesi. Einnig má nota 10% sýrðan rjóma (án gelatíns) og AB mjólk. Hægt er að kaupa létt-majones (6% fita) en það er yfirleitt með sykri og viðbættum efnum
  • 1 lítill kúrbítur, skorinn í grófa strimla og grillaður í ofni í smástund eða á grillinu þangað til hann fer að mýkjast
  • Grillaðar paprikur í krukkum eða búnar til heima (skerið í 4 parta langsum, setjið á eldfast mót og látið undir hæsta hita í ofni í um 20 mínútur eða þangað til skinnið fer að bólgna og verða svart. Látið í plastpoka í 5 mínútur og hreinsið skinnið af. Ef keyptar eru paprikur, gæti þess þá að það sé ekki viðbættur sykur.
  • 1 sveppadós eða nokkrir niðurskornir sveppir
  • 4 sólþurrkaðir tómatar, olían þerruð af og skornir í fínar ræmur
  • 4 kirsuberjatómatar, skornir í helminga
  • 100 gr létt-mozarella ostur (ef ekki til léttur, notið þá minna af mozarella og meira af 11% osti. Einnig er hægt að kaupa léttan Soya-Mozarella (í grænu pokunum).
  • 11% ostur
  • Pipar
  • Heilsusalt (Herbamare)

    Aðferð:
  • Grillið kúrbítinn.
  • Grillið paprikur ef þarf.
  • Skerið brauðin í tvennt og hreinsið megnið af mjúka brauðinu innan úr.
  • Smyrjið pestómaukinu innan í.
  • Raðið 2 helmingum af kirsuberjatómötum á hvern botn, nokkrum strimlum af kúrbít, 1 sólþurrkaðuðum tómati í ræmum, nokkrum sveppasneiðum, paprikuræmum, osti og mozarella-osti.
  • Saltið og piprið að vild.
  • Hitið í góðu samlokugrilli (helst með þungu loki) þangað til osturinn fer að bráðna og brauðið er tilbúið.

  • Það er að sjálfsögðu hægt að nota alls kyns grænmeti í stað þessa sem er talið hér að ofan t.d. eggaldin, ferskar paprikur, chillipipar, maískorn svo dæmi sé nefnt.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Grænmeti í grænu karrímauki og kókossósu

23. ágúst, 2009

Upplögð súpa með haustinu - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Bragðgóð, ódýr og góð máltíð, mitt á milli súpu og grænmetis með sósu. Maður getur notað alls kyns grænmeti sem maður á ísskápnum (upplagt með haustinu þegar við erum að pota upp okkar eigin grænmeti) og svo getur maður notað núðlur til að drýgja matinn eða soðið hýðishrísgrjón/bygg með. Ég kaupi alltaf lífrænt framleitt grænt karrímauk úr heilsudeildum matvörubúða (eða úr heilsubúð). Maður getur gert sitt eigið sjálfur en svona getur maður sparað sér tíma. Þessi lífrænt framleiddu eru líka bara ansi bragðgóð. Athugið að karrímauk getur innihaldið rækjumauk og ef þið eruð jurtaætur (vegan) mynduð þið þurfa að velja karrímauk án rækjumauks. Athugið að magn karrímauks í uppskriftinni fer eftir styrkleika þess, prófið ykkur bara áfram.
 
Grænmeti í grænu karrímauki og kókossósu
Fyrir 2-3

  • 1 sæt kartafla, afhýdd og söxuð í meðalstóra bita
  • 1 laukur, saxaður frekar smátt
  • 1/2 rauð paprika, sneidd í grófa strimla
  • 4 portabello sveppir, saxaðir í meðalstóra bita
  • 6 þurrkuð kaffir lime blöð (má sleppa)
  • 400 ml kókosmjólk
  • 250 ml vatn
  • 1 gerlaus grænmetisteningur
  • 2-5 msk grænt karrímauk. Magn fer eftir styrkleika karrísins sem og smekk ykkar
  • 2 tsk agavesíróp
  • 1 tsk kókosfeiti
  • 2 msk límónusafi
  • Rifinn börkur af einni límónu

    Aðferð:
  • Hitið kókosfeitina í stórum potti.
  • Bætið lauknum saman við ásamt karrímaukinu. Byrjið á 2 msk því sum karrímauk eru mjög sterk.
  • Bætið vatninu ásamt grænmetisteningnum út í.
  • Bætið sveppunum og paprikunni við og hitið í 5 mínútur eða þangað til grænmetið fer að linast.
  • Hrærið vel í þessu til að grænmetisteningurinn leysist upp.
  • Hellið kókosmjólkinni út í og lækkið hitann. Látið malla í 5 mínútur.
  • Bætið lime blöðunum út í ásamt sætu kartöflunni, látið malla í 10 mínútur eða þangað til kartöflubitarnir eru orðnir mjúkir.
  • Bætið agavesírópinu, límónusafanum og berkinum út í.
  • Smakkið til með meira karrímauki.
  • Hitið vel og berið fram.
  • Berið fram með hýðishrísgrjónum eða byggi.

  • Einnig er gott að sjóða t.d. hrísgrjóna- eða sobanúðlur (úr bókhveiti) og setja út í.
  • Setjið þær þá út í allra síðast, rétt áður en maturinn er borinn fram.
  • Í staðinn fyrir portabello sveppi má nota aðra stóra sveppi.
  • Í staðinn fyrir sveppi má nota eggaldin (enska: eggplant).
  • Ef afgangur er af kókosmjólkinni má frysta hana í ísmolabox og nota síðar, t.d. í svona súpur.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Grænmetis Pilau

28. febrúar, 2003

Klassískur indverskur réttur, mjög bragðgóður. Ég smakkaði svona Pilau fyrst á uppáhalds indverska veitingastaðnum okkar í London, sem heitir Jaflong og er í South-Harrow þar sem við bjuggum einu sinni (meirihluti Indverjar sem búa þar sem útskýrir góða matinn). Þessi réttur er nú ekki eins góður og á Jaflong, en er smá tilraun í áttina kannski og auðvitað hollari!
 
Grænmetis Pilau
Fyrir 2-3

  • 225 gr hýðishrísgrjón eða bygggrjón (enska: pearl barley)
  • 1 msk kókosfeiti eða ólífuolía
  • 2 msk cumin fræ (líka kölluð Jeerah)
  • 4 græn kardimommufræ, heil
  • 4 negulnaglar
  • 2 lárviðarlauf
  • 1 laukur smátt saxaður
  • 1 gulrót, söxuð í smáa bita
  • 50 gr afþýddar grænar baunir
  • 50 gr maískorn
  • 25 gr cashew hnetur, þurrsteiktar á pönnu
  • 475 ml vatn
  • Heilsusalt (Herbamare)
  • 1/4 tsk cuminduft (t.d. frá Rajah sem fæst t.d. í Hagkaup í dósunum með plastlokinu)

    Aðferð:
  • Skolið grjónin vel þangað til vatnið af þeim er orðið tært.
  • Leggið grjónin í bleyti í 30 mín.
  • Hitið kókosfeitina eða ólífuolíuna á stórri pönnu og steikið cumin fræin þangað til þau fara að ilma.
  • Bætið lárviðarlaufunum, kardimommufræjunum og negulnum við og steikið í 2 mínútur. Ef pannan er orðin þurr, bætið þá vatni á hana.
  • Bætið lauknum við og steikið í 5 mínútur þangað til hann er orðinn ljósbrúnn.
  • Bætið gulrótunum saman við og hitið í 3-4 mínútur.
  • Látið vatnið renna af grjónunum og setjið á pönnuna ásamt grænu baununum, maískornunum og cashew hnetunum, Steikið í 4-5 mínútur.
  • Bætið vatninu við, cuminduftinu og saltinu, látið suðuna koma upp, setjið lok á. pönnuna og látið krauma í 15 mínútur við lágan hita þangað til allt vatn er gufað upp.
  • Slökkvið á hitanum, látið standa í 10 mínútur með lokinu á áður en rétturinn er borinn fram.

  • Berið fram með mango chutney, jógúrtsósu, myntusósu og jafnvel naanbrauði
  • Þessi réttur er mjög góður kaldur líka þannig að það er upplagt að taka afganginn með í vinnuna eða skólann!!
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Grænmetisbaka

13. september, 2004

Þetta er fínindis baka, hægt að nota alls kyns grænmeti. Svo er líka þægilegt að búa til böku og hita afganginn upp bara næsta dag. Fyrir kjötæturnar er hægt að setja 200 gr af reyktri kalkúna- eða kjúklingaskinku saman við grænmetið.
 
Grænmetisbaka
Gerir eina böku

    Botn
  • 1 dl haframjöl
  • 2 dl spelti
  • 2 msk kókosfeiti eða ólífuolía
  • 100 gr hreint skyr
  • 2 msk kalt vatn

    Grænmeti
  • 1-2 gulrætur, sneiddar í þunnar sneiðar
  • 1/2 kúrbítur (zucchini), skorinn í grófa bita
  • 5-7 sveppir, sneiddir
  • 1/2 eggaldin, skorið í smáar sneiðar
  • 1/2 blaðlaukur, sneiddur í þunnar sneiðar

  • Einnig má skipta einhverju af ofantöldu grænmeti út og hafa rauða eða appelsínugula papriku, tómata, blómkál, lauk og spergilkál o.fl í staðinn.
  • Steikið grænmetið upp úr vatni og kryddið með smá pipar og heilsusalti (Herbamare).

    Sósa
  • 2 egg
  • 2 1/2 msk mjólk
  • 4 dl rifinn, magur ostur (11%), 2 dl í sósuna, 2 dl yfir bökuna

    Aðferð:
  • Blandið saman haframjöli og hveiti, kókosfeiti eða ólífuolíu og skyri.
  • Hrærið vel og hnoðið aðeins.
  • Geymið deigið í ísskáp í að minnsta kosti 30-40 mínútur.
  • Fletjið deigið út í mót, smyrjið með smá kókosfeiti eða ólífuolíu og raðið grænmetinu á.
  • Þeytið lauslega saman eggjum og mjólk.
  • Blandið 2 dl af osti saman við.
  • Dreifið afganginum af ostinum yfir bökuna og setjið inn í ofn.
  • Hellið sósu yfir og bakið í 30 mínútur við 200°C

  • Gott er að hafa sósu með t.d. úr AB mjólk. Einfalt er að búa hana til. Blandið saman 2 dl AB mjólk, salti, pipar, hvítlauksrifi eða hvítlauksdufti, paprikudufti og kannski einhverju öðru góðu kryddi (t.d. Krakkakryddi frá t.d. Pottagöldrum).

  • Berið fram með soðnum bygggrjónum (enska: pearl barley) eða hýðishrísgrjónum og fersku salati.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Grænmetisbaka með hnetu- og fræbotni

17. febrúar, 2008

Grænmetisbakan góða, glúteinlaus og ofur holl - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessi er upplögð fyrir þá sem eru með glúteinóþol því í bökunni er ekki þessi hefðbundni hveitibotn. Hins vegar skyldu þeir sem hafa fordóma gegn glúteinleysi ekki stoppa hér því bakan er hin besta. Hún er pakkfull af vítamínum og próteinum og hollri fitu og meðal annars er mikið af omega 3 fitusýrum. Alveg upplögð til að sporna gegn hjartasjúkdómum. Með því að bæta t.d. agavesírópi í botninn mætti útbúa berjaböku eða eitthvað annað sniðugt því botninn er þéttur og góður. Bakan virkar kannski flókin en er það alls ekki, það er meira dútl við hana heldur en að maður þurfi að vera einhver snillingur í eldhúsinu til að búa hana til. Bökuna er þó best að gera t.d. á laugardagskvöldi nema ef maður er búinn að skera allt og undirbúa áður. Það má að sjálfsögðu nota hefðbundinn speltbotn í bökuna ef maður kýs það frekar.
 
Grænmetisbaka með hnetu- og fræbotni
Fyrir 4-6

    Botn
  • 3/4 bolli sólblómafræ
  • 3/4 bolli valhnetur (eða pecanhnetur
  • 2 msk sesamfræ
  • 2 msk hörfræ (lögð í bleyti í 10 mínútur í 1/4 bolla af vatni)
  • Smá heilsusalt (Herbamare)

    Fylling
  • 4 bollar saxað savoy kál eða spínat (savoy kál fæst t.d. í hagkaupum). Ef savoy kál er notað þarf að sjóða það í nokkrar mínútur til að fá sætara bragð.
  • 2 bollar niðursneiddir, ferskir sveppir
  • 1 lítill laukur, saxaður fínt
  • 3 meðalstórir hvítlauksgeirar, maukaðir
  • 1 tsk ítölsk kryddblanda t.d. frá Pottagöldrum
  • 1 tsk chilliduft (má sleppa)
  • 1/2 gerlaus grænmetiskraftur t.d. frá Rapunzel (ekkert vatn, aðeins krafturinn)
  • 1 lítill tómatur, saxaður, fræin hreinsuð úr
  • 140 gr mjúkt tofu
  • 5 eggjahvítur
  • 1/8 tsk turmeric
  • Heilsusalt (Herbamare) og svartur pipar
  • 1 tsk kókosfeiti og vatn ef þarf meiri vökva
  • 1 bolli rifinn, magur ostur

    Aðferð:
  • Forhitið ofninn í 180°C.
  • Blandið saman salti, valhnetum, sesamfræjum og sólblómafræjum í matvinnsluvél. Blandið þangað til allt er orðið fínmalað.
  • Bætið hörfræjunum, ásamt vatninu saman við og malið áfram eða þangað til blandan verður eins og deig.
  • Klæðið 22 cm. bökuform með bökunarpappír.
  • Pressið deigið ofan í formið, vel utan í alla kanta og jafnt upp kantana svo að botninn verði alls staðar jafnþykkur.
  • Bakið í 20 mínútur.
  • Á meðan botninn er í ofninum skuluð þið steikja hvítlaukinn og laukinn í smá kókosfeiti á stórri pönnu. Steikið þangað til laukurinn fer að linast.
  • Bætið grænmetiskraftinum út í og hrærið vel.
  • Bætið sveppunum saman við og steikið þá þangað til þeir eru orðnir mjúkir. Bætið vatni við ef þarf meiri vökva.
  • Bætið söxuðu tómötunum út í.
  • Bætið savoy kálinu (hellið vatninu af) eða spínatinu saman við grænmetið á pönnunni.
  • Blandið saman eggjahvítum, tofu, 1/2 bolla af rifnum osti og kryddi í matvinnsluvél og malið í nokkrar sekúndur. Saltið og piprið að smekk.
  • Takið botninn út.
  • Setjið grænmetið ofan á botninn.
  • Hellið svo tofublöndunniyfir grænmetið. Gott er að ýta með gaffli ofan í grænmetið svo tofublandan smjúgi vel ofan í öll göt. Þannig verður bakan þéttari.
  • Dreifið afgangnum af ostinum yfir.
  • Bakið í 25 mínútur eða þangað til osturinn er farinn að bráðna vel.
  • Látið bökuna kólna og fjarlægið svo bökunarpappírinn varlega.

  • Bökuna má frysta og það er upplagt að skera hana í sneiðar, frysta og hita svo upp eða taka með kalda í nesti því hún er nánast jafn góð köld.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Grænmetisborgarar án lauks

12. október, 2003

Mig vantaði uppskrift að einhverju sem var ekki of sterkt, ekki með lauk eða hvítlauk, eða tómötum því við vorum að fá mömmu og pabba mat og hvorugt borðar sterkan mat og mamma borðar ekki ofangreint grænmeti. Ég gróf upp þessa uppskrift sem ég átti sem var með lauk og hvítlauk en tók það út og setti kjúklingabaunir og kartöflur í staðinn. Svo bætti ég við karrí og cumindufti og osti og útkoman var bara fínir grænmetisborgarar. Athugið að auðvitað má setja hvítlauk og lauk saman við ef þess er óskað.
 
Grænmetisborgarar án lauks
Gerir 20 borgara

  • 500 gr gulrætur
  • 1/2 dl grænar, frosnar baunir
  • 250 gr kjúklingabaunir í dós, sigtið vökvann vel frá
  • 2 stórar kartöflur, soðnar í mauk
  • 3 egg
  • 50 gr rifnn, magur ostur (11%)
  • 1 dl spelti
  • 1 tsk karríduft
  • 1 tsk heilsusalt (Herbamare)
  • 1 tsk pipar
  • 1/2 tsk chillipipar
  • 2 tsk karríduft
  • 1/2 tsk cumin duft

    Aðferð:
  • Gulræturnar rifnar fínt.
  • Sjóðið kartöflurnar í mauk.
  • Öllu blandað vel saman og meira spelti bætt við ef þetta er of blautt.
  • Búið til frekar lítil og ekki of þykk buff í höndunum, þau eru svolítið laus í sér en það er allt í lagi.
  • Setjið buffin í ofn og hitið við 200°c í svona 20-25 mínútur svo að þau verði örugglega bökuð í gegn (út af eggjunum).
  • Það er gott að bera fram, tamarisósu (eða soyasósu), brún grjón og salat með þessum grænmetisborgurum.

  • Það má setja allskyns grænmeti í þennan borgara, gular baunir, lauk auðvitað og svo tófú eða hrísgrjón t.d. í stað kartaflna.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Gulrótar- og kókossúpa frá Zanzibar

17. febrúar, 2008

Ein af uppáhaldssúpunum mínum þó ég segi sjálf frá - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Ég hef lengi leitað að uppskrift að gulrótar- og kókossúpu og er hér búin að búa til eina sem er blanda úr nokkrum uppskriftum. Það skemmtilega við súpuna er að hún minnir mig mjög mikið á frábæra súpu sem ég fékk á veitingastaðnum Archipelago á Zanzibar september 2007. Súpuna borðaði ég við sólsetur uppi á svölum veitingastaðarins og ég horfði út á Indlandshaf. Á svoleiðis stundum verður lífið ekki mikið betra. Ég elska gulrótarsúpur og þessi uppskrift er svo ég segi bara sjálf frá, frábær, mér fannst ég alveg finna lyktina af sjónum og heyra í sjómönnunum gera að aflanum fyrir kvöldið en aflinn er seldur á Forodhani matarmarkaðnum þar sem aldeilis er líf og fjör á kvöldin við gasluktir og kryddlykt. Fyrir gulrótarsúpur finnst mér aðalmálið vera að það sé gott jafnvægi á milli lauks, hvítlauks og gulróta því súpan má ekki vera of sæt. Þessi súpa er stútfull af A, C og K vítamínum sem og trefjum og er frábær yfir vetrartímann.
 
Gulrótar- og kókossúpa frá Zanzibar
Fyrir 4

  • 2 tsk kókosfeiti og vatn til viðbótar ef þarf
  • 1 stór laukur saxaður
  • 2 msk ferskt engifer, saxað
  • 4 meðalstórir hvítlauksgeirar, saxaðir
  • 1 tsk karrí
  • 2 gerlausir grænmetisteningar
  • 750 ml vatn (sumir vilja minna vatn til að fá þykkari súpu)
  • 300 gr gulrætur (þær allra bestu fáanlegu), skornar í grófa bita
  • 150 gr sætar kartöflur, skornar í grófa bita
  • 150 ml kókosmjólk, lífrænt framleidd í dós. Gott er að nota frosna kókosmjólk ef þið eigið afgang í frystinum (mér finnst gott að frysta afganga í klakabox)
  • 1 tsk heilsusalt (Herbamare) ef þarf
  • Hvítur pipar, ef þarf
  • Smá klípa saffran (má sleppa en gefur fallegan lit)

    Aðferð:
  • Hitið kókosfeitina í súpupotti og steikið laukinn þangað til hann fer að linast.
  • Bætið hvítlauknum og engiferinu út í og steikið áfram.
  • Bætið karrí út í og hrærið vel.
  • Bætið helmingnum af vatninu út í og svo gulrótunum og sætu kartöflunum. Steikið þangað til grænmetið fer að mýkjast.
  • Bætið afganginum af vatninu og grænmetisteningunum út í og hrærið vel.
  • Látið malla í 15 mínútur eða þangað til grænmetið er orðið mjúkt.
  • Bætið kókosmjólkinni út í. Látið ekki sjóða heldur hitið upp að suðu.
  • Bætið saffrani út í ásamt salti og pipar eins og þarf.
  • Maukið súpuna með töfrasprota eða í matvinnsluvél. Kælið súpuna aðeins ef þið setjið hana í matvinnsluvél og aldrei blanda meira en 1/2 af skálinni í einu.
  • Berið fram með nýbökuðu brauði.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Gulrótarbuff úr hráum gulrótum

3. mars, 2003

Mmm alveg ferlega góð uppskrift (frá Deliu Smith, bresku matreiðslukonunni sem er í miklu uppáhaldi hjá mér). Það var reyndar ekkert gaman að rífa hálft kíló af gulrótum með litla rifjárninu okkar úr Ikea (svona dúkkurifjárn) en það var alveg þess virði, útkoman verður rosalega góð get ég lofað ykkur, ég er reyndar búin að kaupa nýtt rifjárn núna!!!
 
Gulrótarbuff úr hráum gulrótum
Fyrir 2-3

  • 500 gr gulrætur
  • 1/2 dl grænar, frosnar baunir (enska: peas)
  • 1-2 hvítlauksgeirar
  • 2 vorlaukar (eða 1/2 blaðlaukur)
  • 3 egg
  • Smá appelsínusafi, hreinn
  • 1/2 dl spelti
  • 1 dl brauðmylsna (best að setja 1-2 brauðsneiðar (spelti eða heilhveiti) í matvinnsluvél. Athugið að í bakarísbrauðum er oft sykur og alltaf ger nema keypt sé gerlaust brauð).
  • 1/2 tsk karríduft
  • 1/2 tsk heilsusalt (Herbamare)
  • 1 tsk pipar
  • 1/4 tsk chillipipar

    Aðferð:
  • Gulræturnar rifnar fínt og hvítlaukurinn pressaður.
  • Vorlaukarnir saxaðir smátt.
  • Öllu blandað vel saman og meira spelti bætt við ef þetta er of blautt. Gott er að kæla deigið í ísskáp í klukkutíma eða meira, buffin verða auðveldari í meðhöndlun.
  • Búið til buff í höndunum, þau eru svolítið laus í sér en það er allt í lagi.
  • Setjið buffin í ofn (á bökunarplötu með bökunarpappír) og hitið við 180°c í svona 15-20 mínútur svo að þau verði örugglega bökuð í gegn (út af eggjunum).
  • Það er gott að bera fram léttsinnepssósu, brún grjón og salat með buffunum.

  • Það má nota svolítinn appelsínusafa í staðinn fyrir eitt eða tvö af eggjunum og svo er voða gott að blanda nokkrum cashewhnetum eða furuhnetum saman við.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Gulrótarbuff úr soðnum gulrótum

3. mars, 2003

Þessi uppskrift er líka frá Deliu Smith og ekkert síðri en hin "gulrótarbuffsuppskriftin".
 
Gulrótarbuff úr soðnum gulrótum
Fyrir 2-3

  • 2 dl soðnar og stappaðar gulrætur
  • 3 dl soðnar og stappaðar kartöflur
  • 1 msk kókosfeiti eða ólífuolía
  • 4 msk nýrifinn parmesan ostur
  • 2 msk rasp (meira ef þarf). Best að nota speltbrauð (2ja daga gamalt er upplagt) og setja í smástund í matvinnsluvél. Athugið að speltbrauð í bakaríum er yfirleitt með geri sem og sykri svo best er að kaupa gerlaust speltbrauð.
  • 1 tsk ítalskt krydd (t.d. frá Pottagöldrum)
  • Heilsusalt (Herbamare), pipar
  • 2-3 msk söxuð steinselja (má sleppa)
  • Nokkrar matskeiðar spelti

    Aðferð:
  • Öllu nema speltinu blandað saman og búin til 8 buff sem er svo velt upp úr spelti.
  • Áður en buffin eru mótuð er gott að geyma deigið í ísskáp í um klukkutíma til að auðveldara verði að móta buffin.
  • Bökuð í ofni í um 30-40 mínútur við 200°C.

  • Berið fram með létt-sinnepssósu, hýðishrísgrjónum og fersku salati
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Haustsúpa með kartöflum og kjúklingabaunum

23. september, 2004

Þessi súpa er nú aldeilis fín ef þið eigið uppskeru úr matjurtargarðinum að hausti til! Ef þið eruð ekki svo heppin er bara hægt að skreppa í búðina og kaupa gott, lífrænt ræktað grænmeti. Súpan sjálf er holl og góð enda tómatar, kjúklingabaunir, gulrætur og margt fleira í henni. Sem sagt fullt af vítamínum og andoxunarefnum sem gera alla hrausta og spræka.
 
Haustsúpa með kartöflum og kjúklingabaunum
Fyrir 4-5

  • 1 msk kókosfeiti eða ólífuolía
  • 1 stór laukur, saxaður fínt (eða maukaður í matvinnsluvél)
  • 2 hvítlauksgeirar, saxaðir fínt (eða maukaðir í matvinnsluvél)
  • 1 gulrót sneidd í mjóar sneiðar
  • 350 gr kartöflur, skornar í mjög litla bita
  • 1/2 tsk turmericduft
  • 1/2 tsk garam masala
  • 1/2 tsk karrí, milt
  • 400 gr saxaðir tómatar (helst ferskir og vel þroskaðir)
  • 850 ml vatn
  • 1 - 2 gerlausir grænmetisteningar t.d. frá Rapunzel
  • 1/2 tsk rautt karrímauk (hægt að fá í flestum verslunum, gætið þess bara að sé ekki msg (monosodium glutamate, E-600 efni eða sykur í innihaldinu. Þeir sem hafa glúteinóþol ættu að athuga innihaldslýsingu því stundum leynist glútein í svona kryddmauki
  • 400 gr kjúklingabaunir í dós
  • 85 gr frosnar, grænar baunir (þessar litlu sætu sem heita peas á ensku)
  • Heilsusalt (Herbamere) og pipar
  • Ferskt koriander, saxað til skrauts (allt í lagi að sleppa því)

    Aðferð:
  • Hitið kókosfeitina eða ólífuolíuna ásamt smá vatni í stórum potti á meðalhita. Bætið lauknum við ásamt hvítlauknum og hitið í 3-4 mínútur. Hrærið öðru hvoru í eða þangað til laukurinn er farinn að mýkjast. Ekki láta hann brúnast.
  • Bætið gulrótum, kartöflum, turmeric, garam masala og karríduftinu saman við laukinn og hvítlaukinn og hitið í nokkrar mínútur.
  • Bætið tómötunum, vatninu, grænmetisteningnum og karrímaukinu saman við ásamt smá salti.
  • Minnkið hitann og setjið lokið yfir. Hitið í 30 mínútur.
  • Bætið kjúklingabaununum og grænu baununum og hitið í um 15 mínútur.
  • Smakkið til súpuna með salti og pipar.
  • Skreytið með söxuðum koriander.

  • Mér finnst mikið betra að mauka laukinn og hvítlaukinn í matvinnsluvélinni því að þá er maður í fyrsta lagi ekki að grenja eins mikið og í öðru lagi sparar það tíma og í þriðja lagi finnst mér bragðið verða betra.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Haustsúpa með sætum kartöflum og eplum

18. ágúst, 2008

Svolítið sæt og öðruvísi súpa - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessi súpa er fín fyrir krakkana því hún er mild og svolítíð sæt. Hún fer einkar vel í maga og er stútfull af C vítamínum. Það er ekkert glútein í súpunni og ekki heldur mjólk. Hún hentar því vel þeim sem hafa glútein- og/eða mjólkuróþol.
 
Haustsúpa með sætum kartöflum og eplum
Fyrir 4-5

  • 1 msk kókosfeiti
  • 3 blaðlaukar, sneiddir fínt
  • 1 stór gulrót, afhýdd og sneidd í þunnar sneiðar
  • 600 gr sætar kartöflur, afhýddar og saxaðar gróft
  • 2 stór, græn epli
  • 1,2 lítrar af vatni
  • 1-2 gerlausir grænmetisteningar
  • Smá klípa múskat (enska: nutmeg)
  • 225 ml eplasafi
  • 225 ml kókosmjólk (eða mjólk, hrísmjólk, möndlumjólk o.s.frv.)
  • Svartur pipar
  • Salt (Himalaya eða sjávarsalt)

    Aðferð:
  • Hitið kókosfeitina í stórum potti.
  • Setjið blaðlaukinn ofan í pottinn og mýkið í 6-8 mínútur. Bætið við vatni ef þarf meiri vökva.
  • Bætið gulrótunum, sætu kartöflunum, eplunum og vatninu út í ásamt grænmetisteningnum.
  • Kryddið með salti, pipar og múskati.
  • Látið suðuna koma upp, minnkið svo hitann og látið malla í um 20 mínútur eða þangað til grænmetið er orðið mjúkt.
  • Kælið súpuna aðeins.
  • Setjið í smá skömmtum í blandara eða matvinnsluvél og maukið eftir smekk. Mér finnst gott að mauka svona súpur svolítið mikið.
  • Setjið súpuna aftur í pottinn og bætið eplasafanum og kókosmjólkinni saman við.
  • Hitið að suðu.
  • Berið fram með grófu brauði eða glúteinlausum brauðvösum.
  • Kryddið eftir smekk.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Heitsúr (hot & sour) súpa

28. febrúar, 2003

Þetta er eiginlega svona núðlusúpa þ.e. bæði súpa og núðluréttur. Upphafleg uppskrift inniheldur ekki eggjanúðlur en það er hrikalega gott að hafa þær með. Þeir sem hafa glúteinóþol ættu að nota hrísgrjónanúðlur í staðinn. Maður getur valið um hvort maður vilji hafa uppskriftina "súpulegri" eða "núðlulegri" með því að hafa meira eða minna soð! Afskaplega seðjandi og góð. Upplögð súpa til að drýgja það sem er til í niðursuðudósunum og ég tala nú ekki um ef þið eigið smá kjúkling. Svo er mjög fínt að gera stóra uppskrift og borða í 2 daga. Mjög góð víst með rifnum kjúklingi líka, gerir hana matarmeiri.
 
Heitsúr (hot & sour) súpa
Fyrir 3-4

  • 4 sveppir, opnir, skornir mjög þunnt
  • 125 gr stíft tofu (firm), skorið í þunna strimla (2cm x 5 mm)
  • 60 gr niðursoðnir mambussprotar, skornir í þrennt, langsum (mér finnst bambussprotar úr dós reyndar viðbjóðslegir en hægt er að nota t.d. baby mais í staðinn)
  • 600-1000 ml vatn (eða meira vatn ef þið viljið meiri vökva á móti núðlunum)
  • 2-3 gerlausir grænmetisteningar t.d. frá Rapunzel
  • 60 gr frosnar, grænar baunir (enska: peas)
  • 1-2 msk dökk tamarisósa
  • 2 msk hvítvíns edik (enska: white wine vinegar)
  • 2 msk maísmjöl (enska: cornflour en einnig má mota arrow root)
  • Heilsusalt (Herbamare) og pipar
  • Smá sesamolía
  • 250 gr eggjanúðlur eða hrísgrjónanúðlur fyrir þá sem hafa glúteinóþol (má sleppa en þá er súpan reyndar ósköp þunn)

    Aðferð:
  • Sjóðið eggjanúðlurnar eða hrísgrjónanúðlurnar ef þær eru notaðar, kælið og leggið til hliðar.
  • Skerið bambussprotana (ef notaðir) og tofuið.
  • Hellið sjóðandi vatni yfir grænmetiskraftinn og látið sjóða.
  • Bætið sveppunum, tofui, mambussprotum (ef notaðir) og baunum eða baby mais út í. Sjóðið í 2 mínútur og hrærið mjög varlega til að brjóta ekki tofouið.
  • Blandið saman tamarisósunni, edikinu og maísmjölinu með 2 msk af vatni
  • Hrærið þessu saman við súpuna.
  • Látið sjóða og kryddið með salti og mikið af pipar. Hitið í 15 mínútur.
  • Bætið eggjanúðlunum saman við og 300 gr af soðnum/grilluðum kjúklingi ef þið viljið.
  • Setjið nokkra dropa af sesemolíu út á hverja skál.
  • Berið fram í kínverskum skálum með kínverskum skeiðum (fæst t.d. í versluninni Salti og Pipar, Skólavörðustíg).

  • Í staðinn fyrir grænar baunir er hægt að nota maísbaunir
  • Það má sleppa tofuinu og nota meira af niðursoðnu grænmeti í staðinn t.d. baby gulrætur, baunaspírur o.s.frv.
  • Hreint tofu á ekki að innihalda glútein en það er samt alltaf góð hugmynd að athuga innihaldslýsingar.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Heslihnetu- og grænmetisborgarar með papriku- og coriandermauki

4. mars, 2003

Heslihnetu-  og grænmetisborgarar, í miklu uppáhaldi hjá mér - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þetta er uppskrift, tekin nánast beint frá Deliu Smith. Hún var "prófuð" á Jóhannesi og mömmu hans, Sigrúnu Sig. þar sem við bjuggum í Harrow (Bretlandi) 2002. Þau lifðu bæði af og kvörtuðu ekki svo mikið svo ég ákvað að setja uppskriftina inn. Það er smá dútl við uppskriftina svo það hentar vel að búa hana til t.d. á laugardagskvöldi.
 
Heslihnetu- og grænmetisborgarar með papriku- og coriandermauki
Fyrir 3-4

    Fyrir borgarana:
  • 75 gr heslihnetur
  • 2 meðalstórar gulrætur, afhýddar og rifnar
  • 2 sellerístönglar, saxaðir smátt (má nota gula papriku í staðinn)
  • 1 meðalstór laukur, saxaður
  • 2 msk fínt saxað hvítkál (má sleppa)
  • 2 msk brauðmylsna (úr gerlausu speltbrauði en má nota gerlaust, heilhveitibrauð)
  • 1 msk saxað, ferskt parsley (steinselja)
  • Nokkrar klípur af cayenne pipar
  • Smá klípa af múskatdufti
  • 1 stórt egg
  • 1 msk tómatpurée
  • 1 msk hrein jógúrt
  • salt og nýmalaður pipar

    Utan um borgarana:
  • 1 stórt egg, lausþeytt (slegið með gaffli)
  • 75 gr brauðmylsna (úr gerlausu speltbrauði en má nota gerlaust, heilhveitibrauð)
  • Til að flýta fyrir má blanda þessu tvennu saman og blanda saman við borgarablönduna.

    Fyrir coriander- og paprikumaukið
  • 1 rauð eða appelsínugul paprika
  • 1 lítill grænn chillipipar
  • 1/2 lítill rauðlaukur
  • 2 msk ferskt coriander
  • 2 msk safi úr lime (límóna)
  • 1 stór tómatur, afhýddur og saxaður (til að afhýða tómat er best að setja hann í sjóðandi heitt vatn í 5 mínútur, setja hann svo í plastpoka, loka fyrir í 5 mínútur og taka svo hýðið af
  • 1/2 tsk agavesíróp (var ekki í upphaflegu uppskriftinni)

    Aðferð:
  • Forhitið ofninn í 200°c
  • Fyrst þarf að búa til borgarana.
  • Byrjið á því að dreifa heslihnetunum á litla bökunarplötu og grillið þá í ofninum í 5-6 mínútur, ekki lengur.
  • Takið hneturnar úr ofninum og kælið. Nuddið hýðinu af.
  • Setjið svo hneturnar í blandara þegar þær eru orðnar kaldar og malið í fínt duft.
  • Setjið heslihnetuduftið í skál með rifna og saxaða grænmetinu, brauðmylsnunum, stenseljunni, cayenne piparnum, múskatduftinu og hrærið vel.
  • Í annari lítilli skál, setjið eggið, tómat puréeið og jógúrtina saman og blandið vel.
  • Bætið svo við í grænmetisblönduna.
  • Kryddið með salti og pipar og hrærið vel að lokum.
  • Búið til 8 borgara (gott að kæla blönduna í klukkutíma áður en klattar eru mótaðir). Þetta er gert svo að borgararnir verði stífir og og brotni ekki við eldun.
  • Dýfið hverjum borgara í egg fyrst, svo í brauðmylsnu og setjið á bökunarplötu með bökunarpappír undir.
  • Bakið í 20 mínútur, snúið þá og bakið í aðrar 20 mínútur (má gjarnan vera aðeins lengur ef maður vill harða skorpu).

  • Á meðan, skuluð þið setja allt hráefnið fyrir coriander- og paprikumaukið (nema agavesírópið) í matvinnsluvél og blandið í nokkrar sekúndur þannig að verði fínt saxað en ekki þannig að það verði að algeru mauki. Kælið. Ef mikil bleyta er í maukinu má sigta það aðeins.
  • Bætið agavesírópinu saman við og kælið.
  • Gott er að búa til maukið deginum áður.



  • Gott að bera fram með salati og létt-sinnepssósu
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Hnetu- og karríborgarar

6. nóvember, 2009

Frábærir borgarar og passa með svo mörgu - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þetta eru aldeilis fínir grænmetisborgarar og eru í ætt við karríhnetusteikina hérna á vefnum. Borgararnir eru mildir en bragðgóðir og henta því allri fjölskyldunni. Þeir henta einnig vel sem uppfylling í t.d. gróft pítubrauð. Borgararnir eru pakkfullir af vítamínum, próteinum, trefjum og hollri fitu. Það er upplagt að gera heilan helling í einu og frysta.
 
Hnetu- og karríborgarar
Gerir 20-25 borgara

  • 1 msk kókosolía og vatn ef þarf
  • 2 meðalstórir laukar, saxaðir fínt
  • 1 rauður chilli, fræhreinsaður og saxaður fínt
  • 6 hvítlauksgeirar, marðir
  • 2 tsk karrí
  • 2 tsk tómatmauk (puree)
  • 1/2 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
  • 5 cm. biti ferskt engifer, afhýtt og rifið á rifjárni
  • 1 lítil kartafla, óhreinindi skrúbbuð af og rifin á rifjárni
  • 2 meðalstórar gulrætur, rifnar á rifjárni
  • 300 gr blómkál (þyngd reiknuð áður en blöðin eru fjarlægð). Brjótið í litla sprota og rífið á rifjárni eða í matvinnsluvél
  • 140 gr blandaðar hnetur, malaðar í matvinnsluvél. Gott er að nota cashew-, hesli- og pecanhnetur. Gott er að rista hneturnar aðeins fyrst á pönnu
  • 25 gr corianderlauf, söxuð gróft. Notið nokkur lauf í að skreyta hnetusteikina. Má nota eitthvað annað krydd í staðinn t.d. basil og steinselju ef ykkur finnst coriander ekki gott.
  • 100 gr speltbrauðrasp (best er að rista nokkrar brauðsneiðar í brauðrist og mylja svo en einnig má setja þær í matvinnsluvél)
  • 1 egg, hrært lauslega (einnig má nota 1 msk af hörfræjum sem hafa legið í 3 msk af vatni í 20 mínútur)

    Aðferð:
  • Hitið kókosolíuna á stórri pönnu. Bætið við vatni ef þarf.
  • Steikið laukinn þangað til hann fer að mýkjast.
  • Bætið chilli, hvítlauk, karrí, tómatmauki, salti og engiferi út í og hitið í nokkrar mínútur.
  • Bætið rifnu kartöflunni, gulrótunum og blómkálinu saman við og hitið í nokkrar mínútur.
  • Setjið allt í stóra skál.
  • Blandið hnetunum, brauðraspinu, egginu og söxuðu corianderlaufunum saman við og hrærið vel.
  • Mótið borgarana í höndunum (svona eins og vatnsglas í ummál). Gott er að hafa þá tæpa 1 cm. eða svo á þykkt.
  • Bakið í 30-40 mínútur við 190°C. Snúið borgurunum eftir 25-30 mínútur og bakið áfram.
  • Berið fram með t.d. jógúrt-hvítlaukssósu (köld) eða sveppasósu (heit).

  • Borgararnir slá alltaf í gegn í nestið daginn eftir og bragðast vel kaldir.
  • Upplagt er að frysta borgarana og geymast þeir þannig í nokkra mánuði ef vel pakkaðir inn í plastpoka eða box. Gott er að setja bökunarpappír á milli borgaranna svo þeir frjósi ekki í einn köggul. Þannig getur maður líka kippt einum og einum úr frystinum í einu og hitað upp.
  • Nota má hrökkbrauð í staðinn fyrir brauð.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Hnetusteik

10. janúar, 2003

Þessi uppskrift kemur úr bók sem ég á sem heitir Green World Cookbook: Recipes from Demuths Restaurant og er uppskriftabók frá samnefndum grænmetisstað í Bath, Englandi. Við fórum á þennan stað og fengum okkur að borða einu sinni og það var alveg meiriháttar. Þegar við vorum búin að borða keypti ég bókina sem var til sölu á staðnum. Mæli alveg með honum og best er að panta borð þar sem er yfirleitt uppbókað. Það má skipta kúrbít út fyrir til dæmis sellerí.
 
Hnetusteik
Gerir 1 hnetusteik

  • 100 gr grænar linsubaunir
  • 2 lárviðarlauf
  • 500 ml grænmetissoð (1-2 teningar frá Rapunzel)
  • 2 msk kókosfeiti eða ólífuolía
  • 1 stór rauðlaukur, saxaður fínt
  • 2 hvítlauksgeirar, saxaðir fínt
  • 1/2 tsk turmeric duft
  • 1/2 tsk chilliduft
  • 1/2 tsk engiferduft
  • 200 gr gulrætur, rifnar á rifjárni
  • 200 gr kúrbítar (enska: courgette), rifnir á rifjárni
  • 100 gr haframjöl
  • 50 gr malaðar cashewhnetur + 25 gr auka fyrir raspið
  • 50 gr malaðar heslihnetur + 25 gr auka fyrir raspið
  • 50 gr sólblómafræ
  • 50 gr graskersfræ
  • 2 msk tamarísósa
  • 1 msk tómatmauk
  • 1 msk steinselja, söxuð
  • Heilsusalt (Herbamare) og svartur pipar


    Aðferð:
  • Hitið ofninn í 180°C
  • Skolið grænu linsubaunirnar og setjið þær í litla pönnu ásamt bay leaf og grænmetissoðinu.
  • Látið suðuna koma upp og leyfið þessu að krauma þangað til baunirnar eru orðnar mjúkar. Fjarlægið lárviðarlaufið.
  • Blandið öllum fræjunum saman á ofnskúffu með bökunarpappír og setjið neðst í ofninn.
  • Hitið í um 10 mínútur, hrærið í fræjunum og hitið í aðrar 10 mínútur (eða þangað til fræin fara að ilma)
  • Steikið laukinn í smá kóksfeiti eða ólífuolíu þangað til hann er orðinn mjúkur. Bætið vatni við ef þarf.
  • Bætið hvítlauknum við, kryddinu og hrærið.
  • Bætið nú gulrótunum og kúrbítnum saman við og hitið í 5 mínútur. Hrærið af og til.
  • Bætið nú við linsubaununum, haframjölinu, tamarísósunni, tómatmaukinu og steinseljunni.
  • Setjið 2/3 af cashew- og heslihnetunum ásamt 2/3 af fræjunum út í.
  • Saltið og piprið.
  • Klæðið brauðform með bökunarpappír, dreifið afgangnum af fræjunum í botninn.
  • Setjið allt saman í formið og þrýstið vel niður.
  • Setjið bökunarpappír yfir formið og bakið í 45 mínútur.
  • Fjarlægið bökunarpappírinn og bakið í 10 mínútur í viðbót.
  • Kælið í 10 mínútur í forminu.
  • Hvolfið á disk og berið fram strax.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Hrísgrjónasalat

16. nóvember, 2003

Þessi réttur er stútfullur af hollustu. Í honum eru paprikur, avacado, hýðishrísgrjón, tómatar og fleira. Það er hægt að borða þennan rétt einan sér, eða hafa hann sem meðlæti með t.d. grænmetisborgurum. Einnig er gott að borða þennan rétt með thailenskum mat þar sem það er límóna, rauðlaukur og coriander í honum sem er mikið notað í thailenskri matargerð
 
Hrísgrjónasalat
Fyrir 4-5 sem meðlæti

  • 200 gr maís korn (best að nota ferskan maísstöngul, sjóða hann og skera svo maísbaunirnar af með beittum hníf. Ef ekki, notið þá niðursoðin eða frosin maískorn)
  • 300 gr (fyrir suðu) hýðishrísgrjón eða bygggrjón (enska: Pearl Barley). Athugið að þeir sem hafa glúteinóþol ættu ekki að borða bygg
  • 1 meðalstór gul paprika, söxuð smátt
  • 1 meðalstór rauð paprika, söxuð smátt
  • 1 meðalstór græn paprika, söxuð smátt
  • 380 gr tómatar, fræhreinsaðir og saxaðir smátt
  • 60 gr radísur, saxaðar smátt
  • 100 gr rauðlaukur, saxaður smátt
  • 250 gr avacado, saxað smátt
  • 80 ml límónusafi eða sítrónusafi
  • 1 tsk ólífuolía
  • 1/4 bolli fínt söxuð corianderlauf

    Aðferð:
  • Ef þið notið ferskan maís, sjóðið hann og skerið af honum maískornin.
  • Blandið saman öllu innihaldinu og látið standa í ísskáp í a.m.k. 1 klukkutíma.
  • Takið réttinn út um 30 mínútur áður en á að borða hann.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Indverskt Pachadi með blómkáli

29. nóvember, 2003

Þessi réttur er hefðbundinn réttur frá Kerala í Suður-Indlandi og í honum er blómkálið látið marinerast í súrmjólk (eða buttermilk) áður en það er eldað. Þetta stendur semsagt í indverskri matreiðslubók sem ég á. Þetta er mjög fínn og léttur réttur í magann og ekkert flókið að búa hann til. Athugið þó að blómkálið þarf að marinerast í 2 tíma áður en það er eldað.
 
Indverskt Pachadi með blómkáli
Fyrir 2

  • 375 gr blómkálssprotar
  • 150 ml súrmjólk (eða buttermilk)
  • 1 tsk heilsusalt
  • 1/2 tsk ólífuolía (+ vatn)
  • 1 stór laukur, sneiddur fínt
  • 2 hvítlauksgeirar, pressaðir
  • 1 msk ferskt engifer, saxað fínt eða rifið á rifjárni
  • 1 tsk gul sinnepsfræ
  • 1 tsk svört sinnepsfræ
  • 1 tsk turmeric
  • 25 kókosmjöl
  • 50-150 ml vatn
  • 2 msk ferskt coriander, saxað
  • Pipar

    Aðferð:
  • Setjið blómkálssprotana í skál ásamt súrmjólkinni, saltinu og smá pipar. Blandið vel saman og geymið inn í ísskáp í 2 tíma, með plastfilmu yfir
  • Hitið ólífuolíuna og vatnið á stórri pönnu og setjið laukinn, hvítlaukinn og engiferið útí. Hitið í um 8 mínútur eða þangað til allt er orðið mjúkt
  • Bætið sinnepsfræjunum út í ásamt turmericinu og kókosmjölinu og hitið í 3 mínútur.
  • Hrærið allan tímann
  • Bætið blómkálinu út í ásamt súrmjólkinni og vatninu (setjið minna en meira af vatni og bætið við ef þarf).
  • Hitið að suðu og minnkið svo hitann og látið malla með lokinu á í 12 mínútur eða þangað til blómkálið er orðið soðið.
  • Takið lokið af, bragðið til og bætið við kryddi ef þarf.
  • Hækkið hitann og bætið corianderlaufunum við
  • Sjóðið í 3-5 mínútur eða þangað til mesti vökvinn hefur gufað upp.

    Berið fram með naanbrauði, raita gúrkusósu (sjá í ’Hitt og þetta’ á síðunni, undir ’Sósur og meðlæti’og hrísgrjónum.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Indverskur réttur með sætum kartöflum og spínati

18. ágúst, 2008

Indverskur og bragðgóður réttur, alls ekki sterkur - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Afar mildur, og bragðgóður réttur sem er upplagður fyrir þá sem eru blóðlitlir því spínatið inniheldur hellings járn og sætar kartöflur og chilli innihalda C vítamín sem hjálpa til við upptöku á járni í líkamanum. Svo er rétturinn líka trefja- og próteinríkur. Það sakar heldur ekki að rétturinn er ódýr þannig að hér er kominn afar sniðugur námsmannakvöldmatur. Um að gera að búa til heilan helling í einu og frysta í nokkrum skömmtum! Þið fáið alveg örugglega hærra á prófunum heldur en ef þið borðið skyndibitamat...ég lofa (í smáa letrinu stendur samt að þið þurfið líka að vera dugleg að læra).
 
Indverskur réttur með sætum kartöflum og spínati
Fyrir 4

  • 500 gr sætar kartöflur, afhýddar og saxaðar gróft (munnbitastærð)
  • 1 tsk kókosfeiti
  • 1 rauðlaukur (má nota venjulegan)
  • 2 hvítlauksrif, pressuð
  • 1 tsk rækjumauk (enska: shrimp paste). Ef þið finnið ekki slíkt skuluð þið nota 1 msk fiskisósu (Nam Plah)
  • 1 tsk turmeric
  • Smá klípa saffranþræðir (má sleppa)
  • 1 rauður chillipipar
  • 350 ml kókosmjólk (lífrænt framleidd)
  • 250 gr spínat, saxað gróft

    Aðferð:
  • Sjóðið sætu kartöflurnar í söltu vatni í um 10 mínútur. Setjið til hliðar.
  • Hitið kókosfeitina á stórri pönnu.
  • Hitið laukinn og hvítlaukinn í nokkrar mínútur.
  • Bætið chillipiparnum við og hitið í 2 mínútur.
  • Setjið turmeric, saffranþræði og rækjumauk eða fiskisósu út á pönnuna og hrærið vel.
  • Hellið kókosmjólkinni yfir og látið malla við lágan hita í nokkrar mínútur.
  • Bætið sætu kartöflunum við og hitið vel.
  • Saltið eftir smekk.
  • Bætið spínatinu út í og hitið í um 2-3 mínútur með lokinu á.

  • Berið fram með chapati brauði eða glúteinlausum brauðvösum. Einnig er gott að bera fram hýðishrísgrjón eða bygggrjón með réttinum.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Kalt hrísgrjónasalat

14. apríl, 2005

Þetta hrísgrjónasalat er fullt af vítamínum og hollustu. Það er bæði hægt að nota salatið sem meðlæti og svo finnst mér voða gott að hafa það í nesti daginn eftir.
 
Kalt hrísgrjónasalat
Fyrir 2

  • 1 bolli hýðishrísgrjón eða bygggrjón (enska: Pearl Barley). Þeir sem hafa glúteinóþol ættu ekki að borða bygg en mega borða hýðishrísgrjón
  • 1 avacado, vel þroskað, saxað gróft (sprautið smávegis af sítrónusafa yfir bitana svo þeir verði ekki brúnir)
  • 4-5 kirsuberjatómatar skornir í helminga
  • 3-4 sólþurrkaðir tómatar, olían þerruð af með eldhúsþurrku, saxaðir smátt
  • 2 msk furunetur, þurrristaðar á pönnu
  • 1 msk sólblómafræ, þurristuð á pönnu
  • 1/2 gul eða appelsínugul paprika, skorin í bita

    Aðferð:
  • Sjóðið grjónin.
  • Blandið öllu varlega saman og berið fram kalt.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Karrýhnetusteik

25. nóvember, 2007

Yndisleg hnetusteik - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessi hnetusteik er hreint út sagt frábær. Hún er mild en bragðgóð og frábær með hollri tómatsósu. Fyrir þá sem þola ekki glútein má nota hrísgrjón í staðinn fyrir brauð. Uppskriftin kemur úr blaði sem heitir Vegetarian (jólaútgáfan). Það voru ekkert spennandi uppskriftir í blaðinu nema þessi eina (að mér fannst) og hún er aldeilis góð. Þessi á pottþétt eftir að vera á jólunum. Það virkar kannski smá maus að gera þessa hnetusteik en eins og með allan sparimat þá tekur hann smá tíma en er vel þess virði. Það góða við hnetusteikur er að maður getur búið þær til með góðum fyrirvara, fryst og svo hitað upp á jólunum. Þær verða meira að segja bara betri við það ótrúlegt en satt. Ef maður er ekki með pláss í frystinum getur maður geymt hnetusteikina í nokkra daga í ísskáp og svo hitað upp á jólunum.
 
Karrýhnetusteik
Fyrir 6

  • 1 msk kókosfeiti og vatn ef þarf
  • 2 meðalstórir laukar, saxaðir fínt
  • 1 grænn chilli, fræhreinsaður og saxaður fínt
  • 6 hvítlauksgeirar, marðir
  • 2 tsk karrý
  • 2 tsk tómatmauk (kaupið án sykurs og lífrænt framleitt, fæst yfirleitt í heilsubúðum)
  • 1/2 tsk heilsusalt (Herbamare)
  • 5 cm. biti af fersku engiferi, afhýtt og rifið á rifjárni
  • 1 lítil kartafla, rifin á rifjárni
  • 2 meðalstórar gulrætur, rifnar á rifjárni
  • 300 gr blómkál (þyngd reiknuð áður en blöðin eru fjarlægð). Brjótið í litla sprota og rífið á rifjárni eða í matvinnsluvél
  • 140 gr blandaðar hnetur, malaðar í matvinnsluvél. Gott er að nota cashew-, hesli- og pecanhnetur. Gott er að rista hneturnar aðeins fyrst á pönnu
  • 25 gr corianderlauf, söxuð gróft. Notið nokkur lauf í að skreyta hnetusteikina
  • 100 gr speltbrauðrasp (best er að rista nokkrar brauðsneiðar í brauðrist og mylja svo en einnig má setja þær í matvinnsluvél)
  • 1 egg, hrært lauslega

    Aðferð:
  • Hitið kókosfeitina á stórri pönnu. Bætið við vatni ef þarf.
  • Steikið laukinn þangað til hann fer að mýkjast.
  • Bætið chilli, hvítlauk, karrý, tómatmauki, salti og engiferi út í og hitið í nokkrar mínútur.
  • Bætið rifnu kartöflunni, gulrótunum og blómkálinu saman við og hitið í nokkrar mínútur.
  • Setjið allt í stóra skál.
  • Blandið hnetunum, brauðraspinu, egginu og söxuðu corianderlaufunum saman við og hrærið vel.
  • Klæðið brauðform (sem tekur 1 kg) að innan með bökunarpappír.
  • Setjið innihaldið í formið og þrýstið vel í kantana svo hvergi sé hola.
  • Klæðið lauslega með álpappír.
  • Hitið í 1 klukkutíma við 190°C.
  • Takið álpappírinn af eftir klukkutíma og bakið í um 15 mínútur.
  • Skreytið með corianderlaufum.
  • Berið fram með t.d. hollri tómatsósu eða sveppasósu.

  • Hnetusteikin er prýðileg í nestið daginn eftir og bragðast vel köld.
  • Upplagt er að frysta hnetusteikina og geymist hún þannig í nokkra mánuði ef vel lokuð í plastpoka.
  • Deigið hentar vel í grænmetisborgara og er þá best að baka borgarana í 30-40 mínútur.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Karrýpottréttur með nýrna- og kjúklingabaunum

4. júlí, 2004

Það sniðuga við pottrétti er að maður getur búið til heilan helling af þeim í einu og annað hvort átt mat í nokkra daga eða fryst það sem er aukalega. Pottréttir eru líka þannig að þeim mun lengur sem þeir fá að malla og liggja í potti þeim mun betri verða þeir (með takmörkunum þó þ.e. mánaðargamlir pottréttir held ég að séu ekkert góðir he he). Þessi er voða fínn og hefðbundinn grænmetispottréttur með baunum og rauðu karrýi. Ég held að upprunaleg uppskrift komi frá Grænum kosti en hún hefur eitthvað breyst frá manni til manns held ég. Þetta er mín útgáfa. Ég veit ekki með upprunan, þessi réttur á að vera frá Afríku en ég veit ekki hvort Borgar bróðir og Elín geta tekið undir það. Ég þarf að muna eftir að spyrja þau við tækifæri. Þau eru nefnilega Afríkusérfræðingar.
 
Karrýpottréttur með nýrna- og kjúklingabaunum
Fyrir 3-4

  • 1-2 msk kókosfeiti eða ólífuolía og smá vatn
  • 1 laukur, skorinn í sneiðar
  • 1 stk rautt chilli, saxað fínt
  • 1 msk rautt karrýmauk (fæst í flestum verslunum í hillunum með austurlenska matnum og í sérvöruverslunum). Kaupið lífrænt framleitt mauk án sykurs, án aukaefna eða bragðefna (engin E- efni o.s.frv.)
  • 2-3 msk tómatkraftur
  • 4 gulrætur, skornar í 2 cm. langa, mjóa strimla
  • 1 blómkál, brotið eða skorið í smáa sprota
  • 1 græn paprika, skorin í litla bita
  • 1 dós kókosmjólk (light coconut milk, kaupið lífrænt framleidda)
  • 1 dós niðursoðnir tómatar (ég nota með basil en það mega líka vera hreinir tómatar)
  • 2 grænmetisteningar (t.d. frá Rapunzel)
  • 1 dós nýrnabaunir
  • 1 dós kjúklingabaunir
  • Smá heilsusalt (Herbamare)

    Aðferð:
  • Hitið kókosfeiti eða ólífuolíu og vatn og hitið laukinn í um 7 mínútur.
  • Bætið chilli, karrýmauki og tómatkrafti út í og steikið í um 3 mínútur.
  • Setjið allt grænmeti í pottinn; papriku, blómkál og gulrætur og blandið vel saman við kryddið.
  • Bætið kókosmjólk og niðursoðnu tómötunum út í ásamt grænmetisteningum og nýrnabaunum
  • Sjóðið í 20-30 mínútur og bragðið síðan til með heilsusalti.

  • Eins og á við um marga pottrétti, því lengur sem rétturinn fær að malla í pottinum því betri verður hann. Passið samt að hann brenni ekki við og bætið nokkrum matskeiðum af vatni út í ef hann á að malla mjög lengi.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Kitheri Afrískur pottréttur

23. október, 2005

Afrískur pottréttur, litríkur og hollur - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þennan pottrétt smakkaði ég fyrst í Afríku. Hann var hrikalega góður en ég gleymdi alltaf að fá uppskriftina að honum. Um daginn var ég svo í mat hjá mágkonu minni Lucy og bróður mínum og hún eldaði þennan rétt. Ég varð ekki lítið glöð að fá uppskriftina og það hjá innfæddri konu því Lucy er jú frá Kenya! Það besta við þennan rétt er að fyrir utan hversu hollur hann er, þá er hann ódýr og saðsamur. Þetta er svona réttur sem má malla í pottinum endalaust og verður bara betri og betri ef hann geymist í pottinum í nokkra daga. Þetta er hinn fullkomni haustpottréttur en ekki of bragðsterkur til að hann sé ekki fínn fyrir krakka líka.
 
Kitheri Afrískur pottréttur
Fyrir 3-4

  • 2 dósir nýrnabaunir (um 500 gr þegar búið er að sigta vatnið frá). Gætið þess að þær séu ekki sykurbættar. Nota má þurrkaðar nýrnabaunir og leggja í bleyti
  • 3-4 meðalstórar kartöflur, soðnar
  • 1 laukur, saxaður fínt
  • 1 msk ólífuolía
  • 2-3 meðalstórar gulrætur, skornar í bita
  • 1 kúrbítur, sneiddur og sneiðarnar skornar í 4 bita
  • 1 rauð paprika, söxuð í grófa teninga
  • 1/2 græn paprika, söxuð í grófa teninga
  • Maísbaunir (350 gr). Helst frosnar en annars í dósum, bara ekki sykurbættar. Ef þið fáið harðar maisbaunir þá eru þær bestar og mest líkt því sem maður fær í Afríku (ódýrar).
  • 1 1/2 stórir grænmetisteningar
  • 1/2 dós af söxuðum tómötum
  • Kryddið með heilsusalti, pipar og svona 1 tsk af karrí
  • Hnefafylli af fersku coriander (mikilvægt, ekki nota þurrkað)

    Aðferð:
  • Sjóðið kartöflurnar þangað til þær eru nánast alveg tilbúnar, skrælið og saxið mjög gróft (skerið hverja kartöflu í svona 3-4 bita).
  • Steikið lauk og kartöflur saman í stórum potti þangað til laukurinn fer að gulna. Bætið smá vatni út í ef þarf (til að þurfa ekki að nota meiri olíu).
  • Bætið paprikum, og gulrótum út í og látið malla þangað til gulræturnar verða mjúkar.
  • Bætið kúrbítnum saman við.
  • Bætið nú söxuðu tómötunum saman við og látið malla í svona 10 mínútur við meðalhita.
  • Bætið maísbaununum og nýrnabaunum saman við ásamt smávegis af vatni og grænmetisteningunum.
  • Rífið ferskt coriander og dreifið yfir.
  • Það sem gerist núna er að grænmetið sýður og pottrétturinn mun virka svolítið "blautur" og óspennandi kannski. Þetta er þó allt í lagi þar sem að nú þarf pottrétturinn að malla í svona 40 mínútur - klukkutíma og þá gufar vatnið upp og þetta mun líta betur út, svona eins og pottréttir eiga að gera!
  • Setjið lokið yfir pottinn og látið krauma á góðum hita í svona 30-40 mínútur.
  • Takið lokið af og látið malla í um 20 mínútur á aðeins lægri hita
  • Berið fram með naan brauði eða ristuðu pítubrauði til að dýfa í.

  • Gerið bara nógu mikið af pottréttinum til að hafa hann daginn eftir, taka hann í vinnuna í nesti (góður kaldur) og jafnvel til að frysta.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Kjúklingabaunabuff með hvítlauksjógúrtsósu

7. júní, 2004

Kjúklingabaunabuff með bygggrjónum og hvítlauksjógúrtsósu - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessi uppskrift kemur upprunalega úr bók sem ég á sem heitir Delia’s Vegeterian Collection og er ein af uppáhalds uppskriftabókunum mínum. Ég er aðeins búin að breyta uppskriftinni með tímanum en meginuppistaðan er sú sama, kjúklingabaunir. Ég prófaði þessi buff í fyrsta skipti í útilegu! Ég var búin að hafa allt til og meira að segja búin að baka þau og svo hituðum við buffin bara á gasi í tjaldinu okkar undir Sólheimajökli. Það var skrýtinn svipur á lömbunum og mæðrum þeirra fyrir utan tjaldið og satt best að segja var ég mjög fegin því að vera ekki að grilla ættingja þeirra, ég hefði örugglega fengið martraðir og samviskubit. Ég borða hvort eð er ekki lambakjöt, finnst það hrikalega vont og JÁ ég er búin að fá allar heimsins útgáfur, lambalundir, læri, heilt, grillað, marinerað, soðið, hitað, steikt o.s.frv. Mér finnst það alltaf jafn vont og fólki finnst það alltaf jafn mikil landráð og reynir alltaf jafn mikið að sannfæra mig um að það SÉ í rauninni gott (þó mér finnist það ekki):) Svona er maður nú skrýtinn.
 
Kjúklingabaunabuff með hvítlauksjógúrtsósu
Fyrir 3-4 (10-12 buff)

  • 450 gr niðursoðnar kjúklingabaunir (athugið að vatnið reiknast ekki með, einungis baunirnar sjálfar)
  • 1 kúfull skeið af coriander fræjum
  • 1 kúfull skeið af cumin fræjum (ekki kúmen heldur cumin)
  • 1 lítill laukur, saxaður gróft
  • 1 græn paprika, söxuð gróft
  • 2 stórir hvítlauksgeirar
  • 2 rauðir, litlir chilli pipar, saxaðir gróft
  • 5 sólþurrkaðir tómatar (olían þerruð af)
  • 50 gr rifinn magur ostur (má sleppa)
  • 1/2 tsk turmeric
  • 1 tsk karrí
  • 1 msk sítrónusafi
  • 10 gr ferskt coriander
  • 100-200 gr AB mjólk eða hrein jógúrt (meira eftir þörfum)
  • 1 stórt egg, hrært lauslega
  • 3 msk spelti
  • 1 msk kókosfeiti eða ólífuolía
  • 1 tsk heilsusalt (Herbamare)
  • 1/2 tsk pipar

    Aðferð:
  • Þurrristið corianderfræin og cuminfræin á pönnu þangað til þau fara að ilma og hoppa til á pönnunni. Malið fræin í kryddkvörn eða malið þau í mortéli.
  • Setjið laukinn, chillipiparinn, paprikuna og hvítlaukinn í matvinnsluvél og malið frekar fínt, ekki samt alveg í mauk.
  • Bætið fræjunum við ásamt karríinu og turmericinu og malið í nokkrar sekúndur. Setjið í stóra skál.
  • Næst skal setja kjúklingabaunirnar í matvinnsluvél, ásamt ferska coriandernum og sólþurrkuðu tómötunum og látið saxast aðeins. Ekki mauka alveg því það á að vera smá til að bíta í.
  • Setjið þetta í stóru skálina og blandið öllu saman.
  • Bætið egginu saman við ásamt kókosfeitinni.
  • Bætið speltinu saman við.
  • Bætið jógúrtinu/AB mjólkinni saman við ásamt sítrónusafanum. Ef deigið er of stíft, setjið þá aðeins meira af jógúrt/AB mjólk, ef það er of lint, bætið þá meira af spelti saman við.
  • Ef ostur er notaður, bætið honum þá út í hér.
  • Kælið í smástund í ísskáp.
  • Mótið í u.þ.b. 12 flöt buff.
  • Hitið við 190°C í um 30-40 mínútur, snúið a.m.k. einu sinni.

    Hvítlauksjógúrtsósa
  • 400 ml hreint jógúrt eða ab mjólk.
  • 1 tsk heilsusalt (Herbamare).
  • 1 tsk hvítlauksduft frá Pottagöldrum eða 1 pressað hvítlauksrif.
  • 1/4-1/2 tsk svartur pipar.
  • Blandið öllu saman og kælið.

  • Upphafleg uppskriftin var þannig að coriander og rauðlaukssalat ásamt jógúrti átti að vera sem meðlæti í stað jógúrtsósunnar.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Kjúklingabaunasúpa

28. febrúar, 2003

Einföld og saðsöm kjúklingabaunasúpa - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Einfalt, bragðgott og ódýrt, svoleiðis á það að vera! Held þetta sé eitthvað Jamie Oliver afbrigði af kjúklingabaunasúpu. Hún er allavega góð og saðsöm og kostar innan við 500-700 krónur fyrir tvo, sem er ekki amalegt fyrir svona hollan og góðan mat. Fullkomin með nýbökuðu, grófu brauði á köldum haustdegi. Hún er EKKI verri ef maður bætir við Shitake sveppum (sjá neðst). Súpan hentar vel fyrir þá sem hafa glúteinóþol því það er ekkert hveiti eða spelti í henni.
 
Kjúklingabaunasúpa
Fyrir 2

  • 2 blaðlaukar, skornir í helming, (á lengdina), skolaðir og saxaðir smátt
  • 1 dós ósaltaðar, niðursoðnar kjúklingabaunir (þyngd u.þ.b. 400 gr með vatninu, hellið vatninu af)
  • 2-3 stórir hvítlauksgeirar
  • 1-2 gerlausir grænmetisteningar t.d. frá Rapunzel
  • 600-800 ml sjóðandi vatn (magn fer eftir því hvað maður vill hafa hana þykka, mér finnst hún betri frekar þunn)
  • 1 stór lúka nýrifinn parmesanostur, ég nota Vegetarian útgáfu en má nota bara venjulegan parmesanost (má sleppa, mér finnst hún líka rosa góð án parmesan )
  • 1 msk kókosfeiti eða ólífuolía
  • Pipar
  • Heilsusalt (Herbamare)

    Aðferð:
  • Blaðlaukurinn er steiktur við lágan hita í kókosfeiti eða ólífuolíu ásamt hvítlauknum og hálfum grænmetisteningi þangað til hann er orðinn mjúkur.
  • Til að losa hýðið af kjúklingabaunum er gott að leggja þær í smástund í vatn og nudda þær varlega með fingrunum. Við það losnar hýðið og flýtur á yfirborðið. Það þarf ekki að gera þetta en er samt mjög gott, súpan verður betri svoleiðis. Ekki hugsa mikið um notaðar augnlinsur meðan þið gerið þetta, maður gæti misst matarlystina ha ha!!
  • Baununum bætt út í og þær hitaðar með í nokkrar mínútur.
  • U.þ.b. 1/3 af grænmitissoðinu (þ.e. teningurinn og 1/3 af vatninu) bætt við og leyft að malla í pottinum í 15 mín.
  • Þetta er maukað í matvinnsluvél eða með töfrasprota, gott að skilja smá eftir til að bíta í þ.e. mauka ekki í klessu.
  • Bætið restinni af vatninu við og leyfið þessu að malla að suðupunkti.
  • Saltið og piprið. Það má alveg setja slatta af pipar.
  • Bætið parmesanostinum við, það má líka alveg bera hann fram í sér skál.

  • Það má vel nota 4-5 vorlauka í stað blaðlauksins. Notið allan vorlaukinn nema hvíta endann, hann á að skera af og saxið svo blöðin fínt.
  • Það er ógurlega gott að nota sveppi í súpuna, helst ferska Shitake sveppi. Saxið 4 sveppi og steikið þá með lauknum.
  • Gott er að bera súpuna fram með nýbökuðu brauði. Einnig má rista spelt- eða heilhveitipítubrauð og brjóta svo í bita til að dýfa ofan í (athugið að pítubrauð inniheldur ger).
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Kókos- og límónusúpa

27. febrúar, 2003

Þessi er svona "öðruvísi" súpa, svolítið krydduð en ansi góð og drjúg. Kókosmjólkin, engiferið og limeið passa vel saman og gefa ferskt bragð.
 
Kókos- og límónusúpa
Fyrir 2-3

  • 1 msk kókosfeiti eða ólífuolía
  • 25 gr ferskt engifer, afhýtt og skorið smátt
  • 400 ml fitusnauð, hrein kókoshnetumjólk (light coconut milk). Gætið þess að það séu engin viðbætt efni í kókosmjólkinni, kaupið endilega lífrænt framleidda.
  • 1/2 lítill, grænn chillipipar, hreinsaður og smátt skorinn, hreinsið fræin og himnuna vel innan úr.
  • 2 hvítlauksgeirar, marðir
  • 1/2 stór laukur, smátt skorinn
  • 2 stilkar af sítrónugrasi (enska: lemon grass), ytri blöð fjarlægð, hitt er smátt skorið
  • 200 ml grænmetiskraftur (vatn + 1 gerlaus grænmetisteningur t.d. frá Rapunzel)
  • 175 gr ferskar baunaspírur
  • 100 gr Bok Choi saxað (líka kallað hakusai, bai cai, pak choi, kínverkst hvítkál. Fæst oft í stærri matvöruverslunum en líka í austurlenska markaðnum hans Nings)
  • Safi af 1/2 sítrónu
  • Safi af 1/2 límóna
  • Búnt af fersku coriander laufum (handfylli)
  • Salt og ferskur pipar

    Aðferð:
  • Hitið kókosfeitina eða ólífuolíuna á stórri pönnu, bætið við engiferi, chilli, hvítlauk, lauk og lemon grass.
  • Hitið varlega í 4-5 mínútur þangað til allt er orðið mjúkt en ekki brúnt og farið að ilma.
  • Bætið við kókosmjólkinni, grænmetiskraftinum, baunaspírum og kínverska hvítkálinu. (bok choi) og hitið varlega í 10 mínútur þangað til grænmetið er orðið meyrt (ennþá aðeins stökkt) en ekki mjúkt.
  • Bætið við sítrónu og límónusafanum og corianderlaufunum.
  • Kryddið og berið fram í djúpum "kína" skálum (fást til dæmis í Salt og Pipar, Klapparstíg).

  • Hægt er að bæta afgangs ýsubitum, lúðubitum, hörpuskel eða rækjum útí súpuna til að gera hana matarmeiri. Einnig má nota kjúkling.
  • Einnig er hægt að bæta meira grænmeti út í eins og fínt skorinni gulri og rauðri papriku, núðlum eða smávegis af soðnum grjónum.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Korma grænmetiréttur með raita gúrkusósu

19. apríl, 2003

Þetta er sama uppskrift og að "Korma kjúklingi með frönskum baunum" hér á síðunni. Ég er semsagt bara búin að skipta út kjúklingi fyrir grænmeti.
 
Korma grænmetiréttur með raita gúrkusósu
Fyrir 3-4

  • 1 tsk kókosfeiti eða ólífuolía + smá vatn
  • 150 gr blómkál, léttsoðið og í litlum sprotum
  • 150 gr spergilkál, léttsoðið og í litlum sprotum
  • 150 gr kartöflur, léttsoðnar og í litlum bitum
  • 150 gr gulrætur, léttsoðnar og í litlum sneiðum
  • 150 gr kúrbítur (zucchini), skorið í litla bita
  • 2 laukar, sneiddir fínt
  • 5 msk corma curry powder (Korma karrí krydd)
  • 300 ml grænmetissoð
  • 2 tsk tomate puree (tómatkraftur)
  • 3 tsk ávaxtasykur eða strásæta
  • 125 gr tómatar, skornir í bita
  • 300 ml léttmjólk eða fitulaus jógúrt
  • 2 msk kornsterkja (corn starch eða arrow root), hrært út í mjólkinni
  • 250 gr "French Beans" (langar og mjóar baunir, sem eru bara eins og stönglar þ.e. ekki með eiginlegum "baunum" innan í og maður getur borðað þær hráar). Snyrtið og skerið í 1 cm. langa bita
  • 30 gr möndluduft
  • 20 gr möndlur, þurristaðar á pönnu

    Aðferð:
  • Hitið kókosfeitina eða ólífuolíuna og vatnið á stórri pönnu.
  • Bætið lauknum við og hitið í u.þ.b. 6 mínútur eða þangað til laukurinn er orðinn mjúkur.
  • Hrærið korma karríinu saman við og hitið í aðrar 2 mínútur.
  • Bætið við kjúklingasoðinu, tómatkraftinum, sykrinum, tómötunum, mjólkinni/jógúrtinu og smávegis af salti.
  • Hrærið vel og látið sjóða í um 10 mínútur.
  • Bætið baununum, kúrbítnum, gulrótunum, kartöflunum, blómkálinu og spergilkálinu saman við og hitið í 20 mínútur.
  • Að síðustu skal bætt við möndluduftinu og látið hitna í nokkrar mínútur.
  • Dreifið þurristuðu möndlunum yfir réttinn.
  • Berið fram með brúnum hrísgrjónum og raita gúrkusósu.

    Raita gúrkusósa
  • 1 meðalstór gúrka
  • 1 tsk cumin fræ (ekki kúmen)
  • 500 ml hreint, fitusnautt jógúrt
  • 1 hvítlauksgeiri, kraminn eða skorinn fínt
  • 2 msk ferskt coriander, saxað
  • Notið cayenne eða paprikuduft til skreytingar

    Aðferð:
  • Flysjið gúrkuna og skerið langsum í 1 cm. lengjur og svo í litla bita.
  • Þurrkið bleytu með þurrku.
  • Ristið cumin fræin í nokkrar sekúndur á heitri pönnu.
  • Hrærið saman cumin, hvítlauk og coriander í skál.
  • Blandið gúrkunni saman við og kryddið með papriku eða cayenne.
  • Kælið áður en þið berið raita sósuna fram.

  • Það má nota alls kyns grænmeti í þennan rétt, um að gera að prófa.
  • Það er gott að bera fram chapati brauð með þessum rétti.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Kúskúsréttur með bökuðu grænmeti

28. febrúar, 2003

Mér finnst couscous gott og sérstaklega ef það er með bökuðu grænmeti eins og tómötum og paprikum. Ég held að þessi uppskrift komi úr "Af bestu lyst II". Léttur réttur og fínn í maga en tekur smátíma að hafa hann til og er því tilvalinn um helgar t.d. á góðum sumardegi þegar hægt er að borða úti (alltaf gott að vera bjartsýnn he he:))
 
Kúskúsréttur með bökuðu grænmeti
Fyrir 2

  • 1/2 msk kókosfeiti eða ólífuolía
  • 3 skalottlaukar (litlir, kringlóttir, oft ljósfjólubláir laukar)
  • 2 hvítlauksrif
  • 2 tómatar
  • 1 gul paprika
  • 1 rauð paprika
  • 1/2 eggaldin
  • 1/2 gulrót
  • 1/2 kúrbítur
  • 1/2 tsk heilsusalt (Herbamare)
  • 1/2 tsk svartur pipar
  • 1/2 tsk óreganó

    Salat:
  • 200 gr kúskús
  • 38 gr svartar ólífur
  • 4 1/2 tsk sítrónusafi
  • 1 msk mynta, fersk (má sleppa, mér finnst mynta í mat vond, mynta á aðeins heima í tannkremi og hálstöflum he he)
  • 1/2 tsk kókosfeiti eða ólífuolía

    Aðferð:
  • Hitið ofninn í 220°c.
  • Skerið skalottulaukinn í 4 báta.
  • Afhýðið tómata og skerið í 4 báta.
  • Fræhreinsið paprikur og skerið í 8 báta.
  • Skerið eggaldin, kúrbít og gulrót í 2 cm. þykkar sneiðar langsum og hverja sneið í þykka strimla.
  • Setjið niðurskorið grænmetið á ofnplötu klædda bökunarpappír.
  • Blandið saman kókosfeiti eða ólífuolíu, mörðum hvítlauk, salti og pipar, og óreganó og hellið yfir grænmetið.
  • Bakið í miðjum ofni við 200°c í 30 mínútur eða þar til grænmetið er orðið mjúkt.
  • Hrærið í grænmetinu 2-3 sinnum meðan grænmetið er í ofninum.
  • Sjóðið kúskús eftir leiðbeiningum á pakkanum.
  • Blandið myntu (ef notuð), sítrónusafa, ólífuolíu og svolitlu af ristuðu grænmetinu saman við.
  • Setjið á fat og dreifið afganginum af grænmetinu í kring.
  • Dreifið ferskri myntu (ef notuð) og ólífum í sneiðum yfir í lokin

  • Ég hef ekki getað vanið mig á að nota ferska myntu í mat, finnst eitthvað vont bragð af henni, svona eins og ég sé að borða hálsbrjótsykur eða tyggjó en sjálfsagt að nota hana ef ykkur finnst hún góð.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Lasagne með soyakjöti

4. mars, 2003

Grænmetislasagne. Nammi namm - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessi uppskrift, er blanda úr 4 uppskriftum að lasagne. Ég fann enga sem ég var alveg nógu ánægð með, sumar voru allt of óhollar, aðrar voru með kjöti, enn aðrar bara með soðnu grænmeti, svo ég prufaði þessa og hún kom okkur bara verulega á óvart!!! Ég er ekki hrifin af pasta sem slíku þ.e. hvítu hveiti, en ég hef stundum fundið spelti lasagne plötur og nota ég þær þá. Spelt pastaplötur fást til dæmis í Yggdrasli (annars má nota heilhveiti lasagneplötur). Já og í staðinn fyrir óholla ostasósu, þá nota ég kotasælu, rifinn, magran ost og egg (2 egg og 1 eggjahvítu). Ég veit að það er ekki eins og "hvíta sósan" í venjulegu lasagne, en svo miklu, miklu hollara fyrir mann!!! Athugið að gott er að láta soyakjötið liggja í marineringu í nokkra klukkutíma, jafnvel yfir nótt.
 
Lasagne með soyakjöti
fyrir 5-6 (tvö eldföst mót)

  • 1 bolli (130 gr) þurrt, óerfðabreytt (GM free) soyakjötshakk (minced) látið liggja í nokkra klukkutíma (jafnvel yfir nótt) í 1 grænmetisteningi (ég nota Rapunzel), 1 tsk blönduðu ítölsku kryddi og 1 tsk pipar og nægu sjóðandi vatni til að það blotni vel í soyakjötinu öllu. Hægt er að kaupa brúnt soyakjöt í London en hef bara séð ljóst á Íslandi. Ef þið eruð á ferðinni í London þá getið þið keypt svoleiðis t.d. í heilsubúðunni Holland & Barret
  • 500 gr lasagneplötur (helst spelti). Ef plöturnar eru alveg þurrar má forsjóða þær í nokkrar mínútur. Ef notaðar eru ferskar þarf ekki að sjóða þær.
  • 150 gr sveppir í sneiðum
  • 1 stór dós af kotasælu (400 gr)
  • 500 ml krukka pastasósa (með tómat, basil, lauk og sveppum. Passið bara að pastasósan sé holl þ.e. ekki fitumikil og ekki með neinum sykri). Hægt er að fá góðar, lífrænt framleiddar pastasósur í flestum heilsubúðum
  • 250 gr frosið spínat, vatnið kreist úr
  • 1 tsk múskat
  • 1 tsk heilsusalt (Herbamare)
  • 2 tsk svartur pipar
  • 1-2 msk ferskur (helst) parmesan ostur
  • 400 gr rifinn, magur mosarella eða rifinn magur cheddar eða gouda ostur (11%)
  • 3 meðalstór egg, (2 heil egg og 1 eggjahvíta)

    "Kjötsósan"
  • Blandið pastasósunni saman við soyakjötið og látið standa í a.m.k. 30 mínútur en ekki verra ef það er yfir nótt.

    "Ostasósan"
  • Blandið eggjunum, 1 bolla af rifnum osti, og kotasælunni saman.

    Aðferð:
  • Forhitið ofninn í 200°C
  • Takið til frekar stórt, ferkantað eldfast mót.
  • Setjið fyrst þunnt lag af kjötsósu, svo lasagneplötur, svo ostasósu, spínat, sveppi, kjötsósu, lasagneplötur, ostasósu, spínat, sveppi og loks fullt af rifnum osti.
  • Að lokum skal krydda með svörtum pipar, múskati og parmesanosti.
  • Hitið í 30-35 mínútur á 190-200°C

  • Það er að sjálfsögðu hægt að búa til sína eigin pastasósu, en það er fljótlegra að kaupa tilbúna og þær eru oft svo ansi ferskar og góðar þessar lífrænt framleiddu með tómat og basil.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Linsubaunabuff

26. júní, 2004

Þessi uppskrift kemur úr uppskriftabókinni Grænn kostur Hagkaupa sem ég held mikið upp á. Það er upplagt að búa til fullt, og frysta. Mér finnst best að elda buffin og eiga bara eftir að hita þau upp. Athugið að í upprunalegu uppskriftinni er buffunum velt upp úr raspi og svo steikt. Ég blanda raspinu bara saman við og baka í ofni en það má auðvitað fara hina leiðina líka.
 
Linsubaunabuff
Gerir um 12-14 buff

  • 2 1/2 dl soðnar grænar linsubaunir eða 1 dl ósoðnar
  • 1/2 kg af kartöflum, soðnar í mauk og kældar, svo skornar eða stappaðar lauslega
  • 1 stk rauður chillipipar, saxaður fínt
  • 1 stk blaðlaukur, skorinn í þunnar sneiðar
  • 1 stk hvítlauksrif, pressað
  • 1 tsk ferskt engifer, saxað eða rifið fínt
  • 2 msk ferskt coriander, saxað
  • Smá sjávarsalt (ég nota reyndar Herbamare) og nýmalaður pipar

    Raspið sem ég blanda bara saman við:
  • 1/2 dl sesamfræ
  • 1/2 dl kókosmjöl
  • 1/2 dl kartöflumjöl
  • 1 tsk karrí

    Aðferð:
  • Blandið saman kartöflum, chilli, blaðlauk, hvítlauk, cporiancer og engifer í matvinnsluvél, ekki mauka alveg saman, skiljið eftir smá til að bíta í.
  • Blandið raspinu saman við ef þið viljið ekki steikja buffin upp úr því.
  • Búið til litlar bollur og fletjið aðeins út svo þau verða flöt og kringlótt og í jafnri stærð.
  • Bakið við 200°C í um 20 mínútur á hvorri hlið eða þangað til buffin eru orðin gullin og girnileg.

  • Berið fram t.d. með kaldri gúrkusósu eða jafnvel einhverju tómatmauki og hýðishrísgrjónum.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Litlar hnetusteikur með tómatsívafi

28. nóvember, 2009

Meiri buff en steikur en gott er það engu að síður! - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessi uppskrift er að grunninum til mjög svipuð og fylltu paprikurnar hér á vefnum en með smá breytingum. Það má útbúa stærri hnetusteik auðvitað en mér finnst gaman að bera fram svona litlar fyrir hvern og einn og skreyta með grjónum, salati, sósu o.fl. Hnetusteikurnar eru frekar mildar á bragðið og henta vel fyrir alla fjölskylduna. Þær eru einnig upplagður jólamatur. Ég ber þær fram með einfaldri tahinisósu en þið getið notað aðrar sósur í staðinn. Ef þið eruð jurtaætur eða með mjólkuróþol getið þið notað sojaost í staðinn fyrir venjulega ostinn.
 
Litlar hnetusteikur með tómatsívafi
Gerir 10-12 litlar hnetusteikur

  • 150 gr kjúklingabaunir (soðnar, eða úr dós)
  • 150 gr möndlur, cashew eða heslihnetur (hlutföll fara eftir smekk)
  • 150 gr rifinn, magur ostur
  • 150 gr tófú, hellið vatninu af og kreistið aðeins með eldhúsþurrku
  • 100 gr sólþurrkaðir tómatar (án olíu)
  • 10 gr parmesan ostur
  • 10 gr sesamfræ (má sleppa)
  • 3 msk holl tómatsósa
  • 2 msk tómatmauk (tomato puree)
  • 1 tsk piparsósa (hot pepper sauce) eða tabasco sósa (nota má chillipipar í staðinn)
  • 1/2 tsk svartur pipar
  • 1/2 tsk timian
  • 1/4 tsk basil

    Aðferð:
  • Ef sólþurrkuðu tómatarnir eru án olíu, skuluð þið saxa þá smátt og leggja í bleyti í 20 mínútur. Ef tómatarnir eru í olíu skuluð þið þerra hana vel af.
  • Hellið vatninu af tómötunum.
  • Rífið magra ostinn og parmesan ostinn.
  • Hellið vatninu af kjúklingabaununum.
  • Setjið hneturnar í matvinnsluvél og látið vélina vinna í 10-15 sekúndur. Ekki mala of lengi því áferðin má gjarnan vera þannig að maður finni fyrir hnetunum.
  • Bætið kjúklingabaunum, tómötum, tófú, ostinum, sesamfræjum og parmesan ostinum út í vélina. Látið hana vinna í nokkrar sekúndur.
  • Bætið tómatsósu, tómatmauki, piparsósu, pipar, timian og basil út í vélina og látið hana vinna í nokkrar sekúndur þangað til allt blandast vel saman. Skafið hliðar vélarinnar og blandið áfram í nokkrar sekúndur. Ef blandan er þurr, skuluð þið bæta við nokkrum dropum af vatni.
  • Saltið og piprið eftir smekk.
  • Mótið buff/litlar hnetusteikur úr blöndunni með 8cm formum (um það bil..mega vera stærri). Ég nota smákökumót (cookie cutter) til að útbúa steikurnar en þið getið notað eitthvað annað.
  • Setjið bökunarpappír á bökunarplötu.
  • Setjið hnetusteikurnar á bökunarpappírinn.
  • Bakið við 180°C í 25-30 mínútur.
  • Berið fram með soðnu byggi, salati og t.d. einfaldri tahini sósu.

    Einföld tahini sósa

    Gerir um 150 ml

  • 4 msk tahini (sesammauk)
  • 100 ml hreinn appelsínusafi
  • 2 msk tamarisósa
  • 2 tsk tabasco sósa (eða piparsósa (hot pepper sauce))
  • 2 tsk hrísgrjónaedik (eða annað edik sem ykkur finnst gott, má líka sleppa)

    Aðferð:
  • Blandið saman tahini, appelsínusafa, tamarisósu, tabasco sósu (setjið nokkra dropa fyrst og bætið svo við meiru ef þið þolið) og hrísgrjónaedik í litla skál. Hrærið mjög vel með skeið. Það þarf ekki endilega að nota blandara en þið getið notað hann ef þið viljið.
  • Geymið við stofuhita þangað til á að bera salatsósuna fram (hún stífnar annars í kæli).


  • Hægt er að útbúa sósuna með nokkurra daga fyrirvara og taka svo sósuna út úr ísskáp nokkrum klukkustundum áður en á að nota hana.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Mango- og engiferssúpa frá Masai Mara

20. maí, 2007

Mango- og engifersúpa frá Kenya - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessa súpu fékk ég hjá stúlku sem heitir Margararet Ngugi en hún er kokkur á Mara Simba Lodge í Masai Mara í Kenya en þar dvaldi ég í nokkra daga í febrúar 2007. Þegar súpan var borin á borð og kynnt ætlaði ég að afþakka því mér fannst hún hljóma ekkert alltof vel en eftir mikinn þrýsting og loforð um gott bragð, ákvað ég að smakka á henni. Eins og alltaf er hollt fyrir mann að láta fordóma lönd og leið og súpan bragðaðist afar vel. Hún var uppbökuð hjá Margaret en ég hef hana aðeins hollari og sleppi smjörbollunni. Hún er því aðeins þynnri hjá mér en það má setja smá matreiðslurjóma ef maður vill út í hana. Skálina og skeiðina keypti ég í Mombasa en dúkurinn sem súpuskálin fína stendur á, kemur úr Masai þorpi í Masai Mara og hann seldi mér höfðinginn sjálfur. Hann þverneitaði að selja mér hann á lægra verði en 2000 kenyska shillinga (um 2000 krónur íslenskar) því hann var að safna sér fyrir belju til að geta keypt fleiri eiginkonur. Höfðinginn þessi notaði filmubox til að stækka gatið í eyranu sínu (mjög sérstakt að sjá mann með filmubox í eyranu þar sem við hin höfum eyrnalokka). Dúkinn (sem er eiginlega teppi) nota Masair meðal annars til að hræða burt fíla og ljón en aðallega fíla því þá eru Masair dauðhræddir við þó þeir hræðist fátt. Anderson Masai sem var bílstjórinn okkar í þessari ferð sagði okkur til dæmis að þegar hann var lítill strákur þá var honum kennt að henda teppinu í jörðina og hlaupa í burtu því fíllinn trampar á teppinu (þar sem lyktin er) en fattar ekki að þú hleypur í burtu. Það þýðir ekkert að klifra upp í tré eða hlaupa undan fílum í árásarham því þeir hlaupa þig uppi eða hrista þig úr trénu. En frá fílum í engifer. Engiferið er afar gott við bílveiki, sjóveiki og almennt við flökurleika og magakvillum, eitthvað sem kokkarnir hafa lært af bílveiku ferðafólkinu! Jæja þetta var alltof langur formáli að uppskrift (og alltof löng kennslustund í fíla-fælufræðum) en vonandi njótið þið súpunnar!
 
Mango- og engiferssúpa frá Masai Mara
Fyrir 4-5

  • 10-20 gr fínt saxað engifer (mér finnst gott að hafa milt engiferbragð en fyrir þá sem vilja sterkara bragð má setja meira en 10 grömm af engiferi)
  • 400 ml mangosafi (hreinn og lífrænt framleiddur, án viðbætts sykurs. Fæst yfirleitt í heilsubúðum)
  • 150 ml undanrenna (var ekki í upphaflegu uppskriftinni)
  • 700 ml grænmetissoð (vatn + 2-3 gerlausir grænmetisteningar)
  • 2 msk spelti (þeir sem hafa glúteinóþol ættu að nota kartöflumjöl)
  • 1 tsk kókosfeiti og smá vatn
  • Smá salt ef þarf (t.d. Himalaya eða sjávarsalt)

    Aðferð:
  • Hitið kókosfeiti í djúpum potti.
  • Brúnið engiferið í um 2 mínútur. Bætið smá vatni saman við ef þarf.
  • Hrærið speltið eða kartöflumjölið út í en gætið þess að það brenni ekki við.
  • Bætið soðinu út í og látið suðuna koma upp.
  • Látið malla í 30 mínútur.
  • Sigtið súpuna í gegnum fíngatað sigti (einnig er hægt að nota töfrasprota en þá verður mjög sterkt engiferbragð af súpunni).
  • Bætið mangosafanum út í.
  • Bætið undanrennunni út í (bætið hægt út í og smakkið súpuna til, ekki víst að þurfi alla undanrennuna).
  • Saltið eftir smekk.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Mexikönsk chillisúpa með soyakjöti

28. febrúar, 2003

Þessi súpa er frekar "hot" og fín á köldum vetrardegi þegar mann vantar hlýju í sig. Þó ekki svo sterk að manni svíði (ég er alger hæna þegar kemur að sterkum mat) heldur svona mátulega sterk.
 
Mexikönsk chillisúpa með soyakjöti
Fyrir 6

  • 1,5-2 bollar þurrkað soyakjöt í bitum ( u.þ.b. 100-150gr) og sjóðandi heitt vatn + 2 grænmetisteningar. Gætið þess að soyakjötið sé Non GM (óerfðabreytt). Þeir sem hafa glúteinóþol ættu að skoða innihaldslýsingu.
  • 7 dl grænmetissoð (1-2 gerlausir grænmetisteningar t.d. frá Rapunzel og vatn)
  • 2 msk saxaður jalapenopipar (fæst niðursoðinn)
  • 1 stór laukur, saxaður
  • 800 gr ferskir, þroskaðir og saxaðir tómatar eða 2 dósir niðursoðnir
  • 1 msk cuminduft
  • 1 tsk chilliduft eða cayennepipar
  • 1 tsk heilsusalt (Herbamere)
  • 1 tsk ávaxtasykur
  • 1 dós nýrnabaunir ( u.þ.b. 200 gr án vökvans)
  • 150 gr rifinn, magur ostur (11-17%)
  • 1 tsk kókosfeiti eða ólífuolía

    Aðferð:
  • Sjóðið nóg vatn til að þekja soyakjötið og látið liggja í grænmetisteningunum og kryddinu (cuminduft, chillipipar, salti, sykri) í nokkra klukkutíma (því lengur því betra).
  • Hitið olíuna aðeins.
  • Setjið jalapenopiparinn og laukinn í pott og látið krauma þar til laukurinn fer að mýkjast (setjið meira vatn ef þarf meiri vökva).
  • Bætið soyakjötinu út í.
  • Bætið tómötunum saman við. Sjóðið í 15 mínútur.
  • Sigtið safann frá baununum og bætið þeim að lokum út í, hrærið varlega á meðan þær hitna.
  • Bætið meira vatni við ef þið viljið hafa súpuna þynnri.
  • Setjið súpuna í skálar og sáldrið rifna ostinum yfir um leið og hún er borin fram.

  • Berið fram með hreinni léttjógúrt eða AB-mjólk. Einnig má nota 10% sýrðan rjóma (yfirleitt er gelatín í sýrðum rjóma svo ég forðast hann).
  • Þeir sem vilja geta keypt Nachosflögur en þær eru yfirleitt mjög óhollar. Í Yggdrasli er samt hægt að fá hollari flögur svo tékkið á því.
  • Einnig má rista spelt pítubrauð og brjóta í nokkra bita til að dýfa í súpuna. Athugið að í pítubrauðum er ger.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Mozzarella salat með tómötum og basil

22. júlí, 2006

Þrílitt salat í ítölsku fánalitunum, rauðum, grænum og hvítum - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þetta salat þekkja eflaust margir sem hafa verið á Ítalíu og er líklega ein af ástæðunum fyrir því að Ítalir lifa svona lengi því það er nefnilega svo óskaplega hollt. Þetta er dásamlega einfalt, bragðgott og upplagt sem forréttur eða sem léttur hádegismatur með hvítlauksbrauði. Mér finnst rosa gott að nota avacado líka.
 
Mozzarella salat með tómötum og basil
Fyrir 2 sem forréttur

  • 3 vel þroskaðir, stórir og fallegir tómatar
  • 150 gr mozzarella ostur, léttur ef hann er til
  • 1 msk extra virgin ólífuolía
  • 10 basilblöð
  • 1/2 vel þroskað avacado (má sleppa)
  • Heilsusalt (Herbamere)
  • Svartur pipar

    Aðferð:
  • Setjið tómatana í skál, hellið sjóðandi vatni yfir þá og liggja í 1-2 mínútur.
  • Fjarlægið skinnið af tómötunum og skerið þá í sneiðar.
  • Skerið mozzarella ostinn í sneiðar.
  • Afhýðið avacadoið og skerið í sneiðar.
  • Setjið tómatsneið á stóran disk og mozzarella ost ofan á. Endurtakið þangað til allt er búið.
  • Dreifið avacado sneiðunum yfir.
  • Dreifið basil blöðunum yfir.
  • Hellið ólífuolíunni yfir.
  • Saltið og piprið.
  • Berið fram strax.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Mulligatawny súpa (indversk grænmetissúpa)

7. febrúar, 2007

Indversk og hlý súpa - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessi súpa er ensk-indversk og koma áhrifin frá tveimur álfum (þ.e. Evrópu og Indlandi). Upphaflega þýðir Mullitgatawny “piprað vatn” (Millagu þýðir pipar og Tahnni þýðir vatn) en ekki láta það rugla ykkur því það er mjög lítill pipar í súpunni og þrátt fyrir að innihalda 2 græna chilli þá er hún alls, alls ekki sterk. Súpurnar eru mismunandi eftir svæðum og sumir setja í hana kjúkling eða hrísgrjón á meðan aðrir setja í hana turmeric og grænmeti eins og í uppskriftinni hér að neðan. Súpan inniheldur kannski skrítna samsetningu eins og epli, kartöflur og kókosmjólk en verið óhrædd við að prófa hana. Hún er mild, mjög seðjandi og hentar vel fyrir krakka þar sem hún er full af grænmeti (sem þau sjá ekki því súpan er maukuð) og er pínulítið sæt. Stundum er sykur settur í súpuna en ég hef notað epli í staðinn sem kemur mjög vel út. Þessi uppskrift kemur upprunalega úr bók sem ég á sem heitir Fast Soup úr Australians Women’s Weekly seríunni. Uppskriftin er nokkuð stór svo hafið það í huga þegar þið búið hana til. Súpan hentar vel fyrir þá sem hafa glúteinóþol. Ef þið borðið kjöt og eigið afganga af því (t.d. lambakjöt) getið þið bætt þeim út í til að gera súpuna matarmeiri.
 
Mulligatawny súpa (indversk grænmetissúpa)
Fyrir 5-6

  • 1 tsk kókosfeiti eða ólífuolía auk vatns
  • 1 meðalstór laukur, saxaður fínt
  • 4 hvítlauksgeirar, marðir
  • 2 cm. stykki (10 gr) ferskt engifer, rifið á rifjárni
  • 2 grænir chilli, fræhreinsaðir og saxaðir fínt
  • 1/4 tsk kanill
  • 2 tsk coriander
  • 1 1/2 tsk cumin (ekki kúmen)
  • 1 tsk turmeric
  • 1/4 svartur pipar
  • 5 þurrkuð karrílauf (enska: curry leaves). Má sleppa
  • 1 meðalstór gulrót, söxuð gróft
  • 1 meðalstórt epli, saxað gróft
  • 1 stór kartafla (um 300 gr), söxuð gróft
  • 200 gr rauðar linsubaunir (enska: red lentils), skolið og látið vatnið renna af
  • 1 lítri grænmetissoð (2 -3 gerlausir grænmetisteningar frá t.d. Rapunzel)
  • 1 msk sítrónusafi
  • 400 ml kókosmjólk (enska: coconut milk. Kaupið lífrænt framleidda og án bragð- og litarefna)
  • 1/2 dl vatn til að þynna súpuna ef þarf
  • 1/4 bolli söxuð corianderlauf (má sleppa)

    Aðferð:
  • Hitið kókosfeitina eða ólífuolíuna í stórum súpupotti.
  • Hitið laukinn þangað til hann er farinn að brúnast. Notið vatn ef þarf meiri vökva.
  • Bætið hvítlauk, engiferi, chilli, kryddum og karrílaufum saman við og hrærið vel.
  • Hitið þangað til allt fer að ilma.
  • Bætið við gulrótinni, eplinu, kartöflunni, baununum og grænmetissoðinu og látið malla með lokinu á í um 15-20 mínútur eða þangað til grænmetið er orðið meyrt.
  • Hendið karrílaufunum ef þau eru notuð.
  • Þykkt og áferð súpunnar er undir ykkur komin. Til að hafa grænmetisbita í súpunni, setjið þá helminginn af súpunni í matvinnsluvél eða blandara og maukið vel. Setjið aftur saman við restina af súpunni. Einnig má nota töfrasprota. Ég notaði töfrasprota í nokkrar mínútur og hún kom vel út svoleiðis. Mér finnst að súpan eigi að vera vel maukuð en það fer auðvitað eftir smekk.
  • Bætið sítrónusafanum við ásamt kókosmjólkinni og hitið vel.
  • Þynnið súpuna með vatni ef ykkur finnst hún mega vera þynnri.
  • Skreytið með corianderlaufum (má sleppa).

  • Súpuna má frysta í litlum skömmtum og hita upp síðar.
  • Það eru til milljón mismunandi uppskriftir af Mulligatawny en þetta er mjög holl útgáfa. Sumir blanda pistachiohnetum, eggaldin, cashewhnetum, sellerí, maískornum og grilluðum tómötum út í súpuna svo það eru margir möguleikar og alveg hægt að leika sér með innihaldið.
  • Gott er að bera súpuna fram með nýbökuðu brauði.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Naglasúpan ódýra

17. febrúar, 2008

Ekki kannski mest spennandi útlitslega en súpan er samt er léttur og hollur kvöldmatur - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þegar maður á lítið í ísskápnum en er svangur hvað gerir maður þá? Jú maður býr til naglasúpu. Uppskrift af naglasúpu er til á öllum heimilum og þetta er mín útgáfa. Ef maður á grænmetiskraft og svolítið grænmeti þá er maður nokkuð góður. Þessi súpa kostar innan við 500 krónur fyrir 2 og maður getur sett helling af öðru grænmeti út í í staðinn fyrir það sem er fyrir. Til dæmis gæti maður sett paprikustrimla, gular maísbaunir, sæta kartöflu, þurrkaða sveppi, hvítkál, kjúklingabaunir og fleira. Einnig er rosa gott að drýgja hana með núðlum, pasta eða hrísgrjónum. Upplagt að nota afganginn frá deginum áður ef maður hefur soðið of mikið. Súpan er afar léttur kvöldmatur en um leið vítamínrík. Ef þið setjið mikið grænmeti í súpuna til viðbótar við það sem er gefið upp, borgar sig að bæta við grænmetisteningi og aðeins meira vatni eftir þörfum.
 
Naglasúpan ódýra
Fyrir 2

  • 1 gulrót
  • 1 sellerístilkur
  • 1 laukur
  • 1 hvítlauksrif
  • 2 gerlausir grænmetisteningar
  • 5-6 sveppir
  • 1/2 tsk karrí
  • 1/2 tsk heilsusalt (Herbamare)
  • 1/4 tsk pipar
  • 1 tsk kókosfeiti
  • Ef þið eigið núðlur, hrísgrjón eða pasta er gott að bæta því við (má sleppa)
  • 600 ml vatn

    Aðferð:
  • Saxið laukinn ágætlega gróft.
  • Saxið hvítlaukinn fínt.
  • Sneiðið gulrótina og selleríið.
  • Sneiðið sveppina.
  • Steikið laukinn og hvítlaukinn í smá kókosfeiti í stórum potti.
  • Bætið gulrótunni og selleríinu út í og steikið þangað til allt er farið að mýkjast vel.
  • Kryddið með karríi.
  • Bætið grænmetisteningunum og vatninu saman við og látið suðuna koma upp.
  • Látið malla í 5 mínútur.
  • Bætið núðlum, pasta, hrísgrjónum eða því sem þið viljið út í.
  • Látið malla áfram eins og þarf.
  • Kryddið með salti og pipar.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




New York salat með grilluðu grænmeti og hnetum

23. nóvember, 2005

Undir áhrifum frá New York, hollt og gott grænmetissalat - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þetta salat er undir beinum áhrifum frá New York. New York er eins og allt sem maður sér í sjónvarpsþáttum og bíómyndum og auðvitað meira en það! Þvílíkt matarhimnarríki. Nefni bara Whole Foods Market. Þar myndi ég glöð dvelja í svona 3 vikur án þess að fara út úr búðinni! Þar var meira að segja hægt að fá íslenskt vatn, fisk og lambakjöt. Fyndið að sjá íslenska fánann í kjötborðinu! Allavega. Þegar ég kom til baka þá langaði mig í eitthvað ferskt og gott salat eins og maður fær á þessum Deli stöðum (smáréttastöðum) og ég bjó til þetta salat. Það sniðuga við salöt er að það má bæta endalaust við þau og skipta út innihaldinu. Svo er það líka æðislega gott innan í vefjur (maís eða speltkökur) og er auðvitað stútfullt af hollustu og vítamínum. Hafið þið prófað að baka maískorn? NAMM.
 
New York salat með grilluðu grænmeti og hnetum
Fyrir 2

  • 2 pokar af blönduðu salati (rauð og/eða græn lauf t.d. eikarlauf, spínat, ruccola, lambhagasalat o.s.frv.)
  • 1 bolli maískorn, frosin
  • 3 paprikur, gul, rauð og appelsínugul
  • 150 gr mjög litlir sveppir (button) ekki niðurskornir. Ef þeir eru stórir má skera þá í helminga
  • 1 lúka ósaltaðar, blandaðar hnetur þurrsteiktar á pönnu, muldar gróft (setjið í plastpoka og lemjið nokkrum sinnum með einhverju þungu)
  • 1 msk af tamarisósu sem fer á hneturnar strax eftir steikingu
  • 15-20 kirsuberjatómatar, skornir í helminga
  • 1 vel þroskað avacado, skorið í grófa teninga
  • 2 msk sesamolía
  • 3 msk tamarisósa
  • 2 msk fiskisósa (Nam Plah). Fiskisósa ætti að fást í austurlensku deildunum í flestum matvöruverslunum


    Aðferð:
  • Skerið paprikurnar langsum í 4-6 sneiðar og setjið á bökunarplötu (bökunarpappír undir) og snúið hýðinu upp.
  • Dreifið sveppum einnig á plötuna.
  • Blandið saman tamarisósu, fiskisósu og sesamolíu og penslið grænmetið á plötunni.
  • Setjið maískornin í skál og smávegis af sósunni út í. Hrærið vel.
  • Dreifið svo maískornunum á aðra plötu.
  • Hitið á hæsta hita undir grilli í um 20-30 mínútur.
  • Fylgist með maískornunum þær mega ekki brenna mikið (mega dökkna þó nokkuð samt) en hitt grænmetið má verða mjög dökkt og jafnvel pínu brunnið. Ef maískornin eru farin að brenna takið þá plötuna úr ofninum eða færið neðar í ofninum.
  • Þurristið hneturnar. Um leið og þær eru orðnar heitar, slettið þá 1 msk af tamarisósu yfir þær.
  • Skolið salat og setjið í stóra skál.
  • Setjið kirsuberjatómatana og avacado út í, breiðið plast yfir skálina.
  • Takið grillaða grænmetið úr ofninum og kælið aðeins. Rífið paprikur í ræmur ef þið viljið hafa þær mjórri og dreifið yfir salatið.
  • Dreifið sveppunum og maískornunum yfir salatið.
  • Dreifið muldu hnetunum yfir salatið.

  • Berið fram með t.d. hollri salatsósu úr ab mjólk eða jógúrt með hvítlauk og kryddi út í og nýju brauði. Svo er upplagt að nota maís- eða speltvefjur (tortilla) með. Athugið þó að yfirleitt er glútein í keyptum vefjum svo lesið vel á innihaldslýsingar.

  • Hægt er að nota annað grillað grænmeti t.d. kúrbít eða eggaldin, tómata o.s.frv. Eins má rífa ferskan parmesan yfir salatið eða nota ristaðar furuhnetur, sólblómafræ, sólþurrkaða tómata, þistilhjörtu, ólífur og svo mætti lengi telja.

  • Fyrir þá sem eru með hnetuofnæmi má nota fitusnauðar kartöfluflögur yfir salatið. Kaupið hollari kartöfluflögur í heilsubúðum.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Ofnbakað rótargrænmeti

18. ágúst, 2008

Litríkt og gómsætt rótargrænmeti - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessi uppskrift er upprunalega frá Deliu Smith sem ég held mikið upp á en ég hef þó gert örlitlar breytingar á henni (og þá er ég að meina uppskriftinni…ekki Deliu). Ég notaði til dæmis kókosfeiti í stað ólífuolíu og notaði minna af henni en átti að gera. Mér finnst bakað grænmeti löðrandi í olíu nefnilega ekki lystugt. Það er upplagt að nota það íslenska rótargrænmeti sem til er á haustin og ég notaði hér t.d. íslenskar rófur en einnig má nota gulrætur, kartöflur, rauðrófur o.fl.

Þyngd grænmetis miðast við að búið sé að skræla og hreinsa það.
 
Ofnbakað rótargrænmeti
Fyrir 3-4 sem meðlæti

  • 6 skallotlaukar, þessir litlu, ljósfjólubláu (enska: shallots)
  • 175 gr butternut grasker, þetta gula sem er eins og stór pera í laginu (enska: butternut squash)
  • 175 gr rófur
  • 175 gr sellerírót
  • 175 gr sætar kartöflur
  • 1 msk ferskt krydd t.d. timian, rósmarín, steinselja o.fl.
  • 1 msk kókosfeiti
  • 1 hvítlauksgeiri, marinn
  • Salt (Himalaya eða sjávarsalt)
  • Svartur pipar

    Aðferð:
  • Hitið ofninn í 220°C.
  • Afhýðið allt grænmeti og saxið í grófa bita (um munnbitsstóra).
  • Blandið saman hvítlauk og kókosfeiti.
  • Setjið bökunarpappír í ofnskúffu (eða bökunarplötu)
  • Setjið saxaða grænmetið í ofnskúffuna.
  • Penslið með kókosfeitinni.
  • Kryddið vel og hristið ofnskúffuna til að allt blandist saman.
  • Hitið í efstu rim ofnsins í um 40 mínútur.

  • Nota má annað rótargrænmeti eins og t.d. rauðlauk, gulrætur, kartöflur, rauðrófur, hnúðkál, næpur o.fl.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Pad Thai núðlur

17. febrúar, 2008

Verulega hollur og seðjandi matur - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessa uppskrift gerði ég fyrst í desember 2005. Ástæðan fyrir því að ég man það svona vel er að ég stóð við eldavélina í London draghölt í umbúðum enda nýbúin í hnéaðgerð. Á þessum tíma var líka að sniglast heima hjá okkur Paul ‘balletsmiður’ (stórskrýtin, fyrrverandi balletdansari en er smiður núna) sem var að laga hurðina að íbúðinni en henni hafði verið rústað í innbroti (öllu dótinu okkar var stolið, 2 nýjum fartölvum, nýrri, rándýrri myndavél með 2 dýrum linsum, ipod o.fl., o.fl.). Þetta voru ekki alveg bestu dagar lífs míns og þess vegna ákvað ég að búa til eitthvað sérlega staðgott og nærandi þegar ég hafði loksins heilsu til. Mér fannst ég alveg eiga það skilið. Paul og Jóhannes smjöttuðu báðir á núðlunum og fannst þær rosa góðar. Ég man að Paul sagði “Wow Johannes…this meal Sigrun made with her fair hands”…eitthvað sem Shakespeare hefði alveg getað misst út úr sér (held ég). Það hafa nú liðið 2,5 ár og ég er fyrst að gera þessa uppskrift aftur núna. Fyrir það fyrsta mæli ég ekki með því að gera pad thai núðlur þegar maður er nýbúinn í hnéaðgerð því uppskriftin tekur langan tíma í undirbúning. Í öðru lagi hefur mig ekki langað að borða núðlurnar síðan því þær minna mig á innbrot, sársauka, uppköst, mígreni og vanlíðan. Ég hlýt að vera komin yfir það þar sem það eina sem ég hugsaði þegar ég var að borða núðlurnar í kvöld var ‘namm’! Ég mæli með því að gera uppskriftina annað hvort þegar þið eigið frídag eða vera búin að skera niður grænmetið deginum áður. Það má nota annað hvort rækjur eða kjúkling fyrir þá sem það vilja en ég hef líka notað bara marinerað tofu. Það er hægt að gera pad thai núðlur mjög óhollar en þetta er hollari útgáfa. Það er misskilningur að maður þurfi mikla fitu til að búa til svona núðlur því einungis 1-2 tsk af kókosfeiti duga alveg á móti vatni. Einnig þarf ekki að nota salthnetur og maður þarf heldur ekki hvítan sykur.
 
Pad Thai núðlur
Fyrir 3-4

  • 200 gr Udon núðlur, Soba núðlur (úr bókhveiti) eða hrísgrjónanúðlur
  • 1 tsk kókosfeiti og vatn til viðbótar ef þarf
  • 1 tsk sesamolía
  • 2 hvítlausgeirar, saxaðir fínt
  • 4 vorlaukar (þessir löngu og mjóu), saxaðir skáhallt í 1cm bita. Ég saxa nánast allt nema bláendana
  • 1 rauður chilli, fræhreinsaður og saxaður fínt
  • 100 gr sveppir, sneiddir í þunnar sneiðar
  • 2 eggjahvítur og 1 heilt egg.
  • 150 gr stíft tofu, skorið í ræmur.
  • 50 gr saxaðar, ristaðar hnetur (má nota heslihnetur eða jarðhnetur, ósaltaðar)
  • 50 gr baunaspírur
  • 500 gr kjúklingur eða 400 gr rækjur fyrir þá sem vilja. (Ég nota einungis hamingjusama kjúklinga en þeir fást því miður ekki á Íslandi).
  • 3 msk agavesíróp eða hreint hlynsíróp
  • 60 ml fiskisósa (nam plah)
  • 2 msk hrísgrjónaedik
  • Tamarísósa

    Aðferð:
  • Sjóðið núðlurnar samkvæmt leiðbeiningum og setjið svo undir rennandi kalt vatn. Setjið til hliðar.
  • Hitið góða wok pönnu þannig að rjúki af henni.
  • Setjið kókosfeitina á pönnuna og bætið við vatni ef þarf.
  • Steikið eggin við mikinn hita og bætið 1 tsk tamarísósu saman við. Steikið þangað til eggin eru orðin stíf aðeins brennd. Bútið niður ef þarf. Setjið til hliðar.
  • Steikið tofuið upp úr tamarísósu og sesamolíu þangað til tofuið er orðið vel brúnt og næstum brennt . Setjið til hliðar.
  • Steikið sveppina vel þangað til þeir verða næstum brenndir og setjið til hliðar.
  • Steikið hvítlaukinn og chillipiparinn ásamt vorlauknum og setjið svo til hliðar.
  • Steikið kjúklinginn ef hann er notaður og setjið til hliðar.
  • Blandið saman í litla skál agavesírópi eða hlynsírópi, fiskisósu, hrísgrjónaediki og smáslettu af tamarísósu. Hrærið vel og setjið til hliðar.
  • Hitið wok pönnuna þangað til að fer að rjúka af henni. Setjið smá vatn á pönnuna.
  • Setjið eggin, sveppina, hvítlaukinn, chillipiparinn, vorlaukinn og kjúklinginn ef hann er notaður, á pönnuna.
  • Bætið tofuinu við og ef rækjur eru notaðar, bætið þeim þá við hér.
  • Bætið baunaspírunum við ásamt hnetunum.
  • Bætið núðlunum saman við og steikið í nokkrar mínútur.
  • Hellið nú fiskisósublöndunni yfir og steikið áfram þangað til allt er við það að brenna (og má brenna smávegis…gefur bara gott bragð..má samt ekki verða að kolamola!).
  • Berið fram strax.


Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Pintóbaunamauk

3. ágúst, 2004

Baunamauk - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessi uppskrift er úr bókinni Grænn Kostur Hagkaupa sem er ein af mínum uppáhaldsbókum og var rétt í þessu að hrynja í sundur, arrrrgggggh þannig að ég er ekki alltof kát með bókina akkúrat núna (eða prentsmiðjuna kannski frekar) og ég verð líklegast að kaupa mér nýja hmmppffh. Ég minnkaði olíumagnið aðeins og notað smávegis af AB mjólk í staðinn.
 
Pintóbaunamauk
Fyrir 5-6 sem meðlæti

  • 3 dl soðnar pintóbaunir (fást í Heilsuhúsinu og Hagkaupum til dæmis)
  • 2 stk hvítlauksrif
  • 1 stk rauður chilipipar
  • 1/2 tsk kanilduft
  • 1/2 tsk cuminduft (ekki kúmen)
  • 5 msk extra virgin ólífuolía
  • 2 msk AB mjólk eða hrein jógúrt
  • Smá sítrónusafi
  • Smá búnt af fersku koriander
  • Smávegis af heilsusalti (ég nota Herbamare) og nýmöluðum pipar

    Aðferð:
  • Afhýðið hvítlaukinn og skerið í bita.
  • Skerið chilipiparinn í litla bita (takið fræin úr).
  • Setjið allt saman í matvinnsluvél og maukið.

  • Eins og kemur fram í bókinni er gott að nota baunakæfuna bæði inn í tortilla pönnukökur og sem álegg ofan á brauð.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Pítu-pizzur

21. apríl, 2003

Pítupizzur - einfaldar og sniðugar - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Ok þetta hljómar kannski pínu skrítið, pítu-pizzur en það sem málið snýst um er sko að nota pítubrauðin sem pizzubotna því það sparar tíma og fyrirhöfn svona þegar maður er að flýta sér. Ég fann þessa uppskrift í grænmetisbók sem Smári og Anna Stína (bróðir minn og konan hans) gáfu mér en þau eru mikið grænmetisfólk (hún er grænmetisæta) og góðir kokkar. Það er auðvitað betra að búa til sína eigin pizzubotna en svona í miðri viku, eftir vinnu þá finnst mér þetta góð lausn. Svo finnst mér líka sniðugt að geta búið til alls konar pizzur með lítilli fyrirhöfn þ.e. maður setur bara það sem maður vill ofan á hverja og eina!! Ef þið viljið búa til ykkar eigin pizzusósu þá er það bara frábært, margir eiga "sína" pizzusósu sem þeir nota alltaf. Ég hef keypt lífrænar pizzusósur sem eru mjög góðar. Upplagt er fyrir krakka að raða ofan á sínar eigin pizzur. Athugið að í pítubrauðum sem maður kaupir út í búð er yfirleitt ger.
 
Pítu-pizzur
Fyrir 2-3

  • 6 speltpítubrauð, sykurlaus (og gerlaus ef þið finnið slíkt). Ef ekki eru til speltpítubrauð, kaupið þá gróf pítubrauð
  • 200 ml pizzasósa, sykurlaus og án bragð-og litarefna (má vera holl pastasósa líka). Kaupið helst lífrænt framleidda sósu
  • 1 rauðlaukur sneiddur fínt og steiktur upp úr vatni
  • 12 sveppir sneiddir fínt og steiktir upp úr vatni
  • 1 lítil dós gulur maís
  • 12 svartar ólífur sneiddar
  • 12 capers eða meira, skornir í helminga
  • 6 kirsuberjatómatar skornir í helminga
  • 1 búnt af basilikublöðum, skorið í ræmur
  • 300 gr létt-mozzarella (má vera meira og má líka blanda mögrum, rifnum osti með)
  • Fullt af svörtum pipar
  • Smá pizzakrydd (frá Pottagöldrum) eða ítalskt krydd
  • Aðrar áleggshugmyndir: Rauðar eða grænar paprikur, ruccola, jalapeno pipar, grænar ólífur

    Aðferð:
  • Skerið niður allt grænmeti sem á að nota, steikið það sem á að steikja.
  • Setjið allt í skálar fyrir framan ykkur svo það sé auðvelt að ná í allt áleggið og raða á.
  • Smyrjið hvert pítubrauð vel með pizzusósu (má vera gott lag af sósu ofan á).
  • Raðið álegginu eftir smekk á hverja pítu. Endið á ostinum
  • Hitið í ofnininum við 180°C í 5-10 mínútur eða þangað til osturinn er bráðnaður.

  • Það eru margir sem eiga sína uppáhaldspizzu og um að gera að setja sitt uppáhaldsálegg ofan á þessar pítu-pizzur.
  • Það er frábært að frysta pizzurnar og ég geri reglulega heilan helling af þeim og hita svo upp eina og eina eða tek í nestið til að hita upp í vinnunni.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Salat í nestið

17. febrúar, 2008

Litríkt salat til að lífga upp á daginn - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Mér finnst þetta salat alveg ferlega fínt í nestið. Það hefur holla fitu úr avacadoinu, trefjar og prótein í kjúklingabaununum og svo allt vítamínið úr ávöxtunum og grænmetinu. Mér finnst líka æðislegt að setja smá tamarisósu yfir salatið.
 
Salat í nestið
Fyrir 1 í nestið

  • 1 appelsínugul paprika, skorin í bita
  • 1/4 dós kjúklingabaunir
  • 1/2 pakki lambhagasalat og eikarlauf (eða annað salat), blöðin rifin gróft
  • Nokkur vínber (steinalaus), skorin í helminga
  • 1/2 vel þroskað avacado, skorið í bita
  • Nokkrir sólþurrkaðir tómatar, olían þerruð af, saxaðir gróft
  • 1 tómatur, saxaður gróft

  • Öllu blandað saman daginn áður, sett í nestisbox og geymt í kæli.

  • Nota má maísbaunir, rifnar gulrætur, nýrnabaunir, eplabita, þurrkaða ávexti o.fl. í salatið. Einnig er gott að nota ristuð sólblómafræ.


Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Sesamnúðlur

17. maí, 2003

Sesamnúðlur, einfaldur og saðsamur réttur - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þetta er núðluréttur sem ég held dálítið upp á. Það eru kannski óvenjuleg hráefni í honum, chilli, sesamfræ og hnetusmjör en þar sem Asíubúar nota stundum hnetusmjör í réttina sína (t.d. satay sósuna sína) þá er þetta kannski ekki svo skrítið eftir allt saman. Allavega er þetta ljúfur og góður réttur og mjög saðsamur.
 
Sesamnúðlur
Fyrir 3-4

  • 250 gr hrísgrjónanúðlur (úr brúnum hrísgrjónum) eða aðrar núðlur.
  • 2-3 msk sesamolía
  • 1 hvítlauksrif, marið eða saxað fínt
  • 1-2 msk mjúkt hnetusmjör (lífrænt framleitt og að sjálfsögðu sykurlaust)
  • 1 lítill grænn eða rauður chillipipar, fræhreinsaður og saxaður mjög fínt. Einnig gott að nota smá slettu tabasco sósu
  • 2 msk ristuð sesamfræ, þurristuð smá stund á pönnu
  • 5 msk tamarisósa
  • 1 msk safi af límónu
  • Smá klípa svartur pipar (má sleppa)
  • 4 msk söxuð corianderlauf

    Aðferð:
  • Til að gera dressinguna, skuluð þið blanda saman sesamolíu, saxaða eða pressaða hvítlauknum og hnetusmjöri í skál. Hrærið vel.
  • Bætið saxaða chillipiparnum, sesamfræjunum og tamariósunni saman við.
  • Því næst skuluð þið blanda límónusafanum út í. Smakkið til með pipar. Ef ykkur finnst dressingin of þykk, setjið þá 1-2 msk af volgu vatni saman við.
  • Hitið núðlurnar samkvæmt leiðbeiningum á pakka (yfirleitt í 4-5 mínútur í sjóðandi vatni) rétt áður en bera á matinn fram.
  • Látið renna af núðlunum og setjið í skál.
  • Hellið dressingunni strax út í núðlurnar, blandið vel saman og dreifið corianderlaufunum yfir.
  • Berið fram heitt.


Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Spaghetti bolognese (með soyakjöti)

4. mars, 2003

Spaghetti bolognese, með spelt spagetti og soyakjöti - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Mér fannst spaghetti og bollur alltaf hrikalega góður matur hérna í gamla daga, en ég er ekki mjög hrifin af kjöti í dag þannig að ég vildi endilega finna uppskrift af spaghetti bolognese, þó væri ekki nema fyrir sósuna því hún er svo góð. Þessi uppskrift sem ég fann á wegweb.com er mjög góð og ég prófaði soyakjöt (soyakjötshakk) og það var bara ferlega fínt.
 
Spaghetti bolognese (með soyakjöti)
Fyrir 2-3

  • Byrjið á því að sjóða vænan skammt af spaghetti (helst spelti eða heilhveiti spaghetti). Ég sýð um 300 gr. Þegar spaghettiið er soðið, kælið það þá aðeins undir rennandi vatni.

    Sósan
    (ath það er hægt að nota tilbúna pastasósu, með tómötum, basil, og hvítlauk. Passið bara að hafa hana holla þ.e. ekki of fitumikla (tómatar og basil eiga ekki að innihalda mikla fitu og er ekki hitaeiningaríkt nema sé búið að bæta miklu af ólífuolíu saman við. Það er alger óþarfi, þannig að varist slíkar sósur). Athugið einnig að í sósunum á ekki að vera sykur. Lífrænt framleiddar sósur eru auðvitað bestar.

    Ef þið viljið búa til ykkar eigin sósu prófið þá þessa:

  • 1 stór laukur
  • 1 hvítlauksgeiri
  • 1 msk kókosfeiti eða ólífuolía
  • 2 kúrbítar/zuccini í bitum
  • 1 sveppadós (eða ferskir sveppir)
  • 1 dós niðursoðnir tómatar
  • 1 msk ávaxtasykur
  • 2 tsk oregano
  • 1 tsk rosemary
  • 1/2 tsk basil
  • 1/2 tsk salt
  • 1/2 tsk steinselja (parsley)
  • 1 tsk svartur pipar
  • smá tómatpúrre til að þykkja

    Kryddlögurinn
  • 1 bolli grófmulið soyaprótein, sem er svo látið liggja í kryddlegi í 30 mínútúr. Kaupið óerfðabreytt (GM free) soyakjöt. Í London er hægt að kaupa brúnt soyakjöt en held það sé ekki til á Íslandi og verður þá að notast við ljóst.
  • 1 msk ólífuolía
  • 1 tsk blandað ítalskt krydd
  • 1 tsk oregano
  • 1 tsk rosemary (má sleppa)
  • 2 tsk svartur pipar
  • 1 stór grænmetisteningur (t.d. frá Rapunzel)
  • Nóg af sjóðandi vatni til að þekja "hakkið" en ekki meira en það samt. Það er best að soyakjötið sé sem þurrast, þ.e. ekki mikið af aukavatni.

    Aðferð ef tilbúin sósa er ekki notuð:
  • Mýkið laukinn og hvítlaukinn í smá kókosfeiti eða ólífuolíu.
  • Steikið sveppina og kúrbítinn líka, bætið við vatni ef þarf auka vökva á pönnuna.
  • Bætið soyakjötinu við og hitið í 10 mínútur.
  • Bætið tómötum, og kryddi við og látið malla í 20-25 mínútur.
  • Bætið pastasósunni saman við.
  • Ef sósan er enn of þunn, bætið þá tómatpúrre við til að þykkja.
  • Setjið smá af spaghetti á diskinn og svo sósuna ofan á eða blandið bara öllu saman í pottinum það er líka allt í lagi.

  • Gott er að bera fram snittubrauð, hvítlauksbrauð eða ristað brauð með.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Spaghetti með sveppum

24. maí, 2006

Spaghetti með sveppum - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þetta er fín og einföld uppskrift og þurrkuðu sveppirnir gefa sterkt og gott sveppabragð.
 
Spaghetti með sveppum
Fyrir 2-3

  • 150 gr þurrt spaghetti (helst spelt en annars heilhveiti)
  • 1 laukur, saxaður
  • 500 gr sveppir, skornir í þunnar sneiðar eða í nokkra bita (má vera hvoru tveggja til að hafa smá fjölbreytni í áferð)
  • 25 gr þurrkaðir sveppir (t.d. blanda af Shitake og Porcini sveppum).
  • Nóg af heitu vatni til að þekja sveppina.
  • Látið þurrkuðu sveppina liggja í bleyti í 30 mínútur (ekki hella vatninu af)
  • 2 hvítlauksgeirar, pressaðir
  • Nokkrar matskeiðar af ferskum, nýrifnum parmesanosti (má sleppa)
  • 1 tsk þurrkuð steinselja (enska: parsley)
  • 1 msk kókosfeiti eða ólífuolía
  • Heilsusalt (Herbamare) og hellingur af svörtum pipar
  • 1 tsk tamarisósa eða soyasósa

    Aðferð:
  • Sjóðið spaghettiið og hafið tilbúið um leið og sveppirnir eru tilbúnir þ.e. þannig að það sé heitt.
  • Steikið laukinn í kókosfeiti eða ólífuolíu og vatninu af þurrkuðu sveppunum. Steikið þangað til laukurinn verður mjúkur.
  • Bætið hvítlauknum út í og látið krauma í 1 mínútu.
  • Bætið þurrkuðu sveppunum saman við ásamt smávegis af vatninu. Gætið þess að steikja þá alveg þannig að þeir steikist í gegn.
  • Bætið hinum sveppunum út í.
  • Kryddið með heilsusalti, svörtum pipar, steinselju og tamarisósu. Það er ágætt að sveppirnir verði frekar saltir þar sem þeir eru það eina sem gefur bragð í réttinum.
  • Setjið spaghetti á diska og hellið sveppablöndunni ofan á. Magn fer eftir smekk.
  • Skreytið með smá steinselju og parmesanosti.
  • Gott er að bera fram snittubrauð með þessum rétti.

  • Einnig má hita spaghettiið með sveppunum eftir að spaghettiið er tilbúið.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Spaghetti ya Mboga (spaghetti með bökuðu grænmeti)

20. október, 2007

Litríkur, afrískur grænmetisréttur - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessi réttur kom mér á óvart verð ég að segja. Ég leyfði tómötunum líka að malla vel og lengi og það borgar sig að vera þolinmóður því þannig verða þeir bestir. Ég ákvað að gera réttinn léttari og bakaði grænmetið í eldföstum mótum í stað þess að steikja það. Ég steikti bara laukinn og hvítlaukinn. Ég nota líka helmingi minna af spaghetti en átti að gera því mér finnst betra að borða meira grænmeti en belgja mig út af spaghetti. Þessi réttur er léttur en þó saðsamur og hentar vel núna með haustinu. Þessi uppskrift kemur (aðeins breytt) úr bók sem heitir Swahili Kitchen og ég held mikið upp á. Þó að rétturinn virki ekki mikið afrískur þá er hann samt borinn á borð á veitingastöðum eins og á Alfajiri sem reyndar blandar saman swahili áhrifum og ítölsku. Ítölsk áhrif og swahili áhrif í sama potti þýðir yfirleitt að þá er maturinn frá norðurströnd Mombasa í Kenya en þar búa margir Ítalir. Ya Mboga á Swahili þýðir "með grænmeti". Rétturinn er fyrir 3-5 en það er vegna þess að ef þið sjóðið meira spaghetti dugar hann fyrir 5 en annars ríflega fyrir 3.
 
Spaghetti ya Mboga (spaghetti með bökuðu grænmeti)
Fyrir 3-5

  • 1 zucchini (kúrbítur), saxað í stóra teninga
  • 1 eggaldin, saxað í stóra teninga
  • 1 rauðlaukur, saxaður fínt
  • 1/2 rauð paprika, sneidd í þunnar sneiðar
  • 1/2 gul paprika, sneidd í þunnar sneiðar
  • Smá sletta tabasco sósa (í uppskriftinni var rauður chilli, saxaður fínt en ég átti ekki chilli og tabasco kom vel út)
  • 1 hvítlauksgeiri, saxaður fínt eða marinn
  • 1 msk capers
  • 12 grænar ólífur, steinhreinsaðar og sneiddar (mér finnst reyndar svartar betri)
  • 1 bolli hollt tómatmauk (enska: tomate paste notið lífrænt framleitt án sykurs)
  • 6 tómatar, saxaðir gróft
  • 250 gr spelt spaghetti (það áttu að vera 500 gr en mér finnst það of mikið. Það er þó smekksatriði og sjóðið helmingi meira ef ykkur finnst spaghetti gott eða eruð að fá marga í mat)
  • 1 tsk heilsusalt (Herbamare)
  • Smá parmesan ostur, ferskur, rifinn til að dreifa yfir áður en maturinn er borinn fram

    Aðferð:
  • Smyrjið eldfast mót með smá kókosfeiti (setjið smá slettu í eldhúsþurrku og strjúkið það að innan).
  • Setjið eggaldin og kúrbít í mótið, saltið aðeins og bakið við hæsta hita í efstu rim ofnsins þangað til grænmetið er alveg að fara að brenna. Það má meira að segja dökkna aðeins.
  • Smyrjið annað eldfast mót og setjið paprikusneiðarnar út í. Bakið í neðri rim og færið svo upp þegar hitt grænmetið er tilbúið og bakið aðeins lengur.
  • Steikið hvítlauk og lauk í smá kókosfeiti (og vatni ef þarf) eða þangað til laukurinn verður mjúkur. Notið frekar stóran pott.
  • Bætið tómötunum út í ásamt ólífum, capers og tabasco sósunni. Hitið þangað til fer að sjóða. Lækkið þá hitann og látið malla í um 20 mínútur eða þangað til vökvinn af tómötunum fer að minnka.
  • Bætið bakaða grænmetinu saman við á pönnuna ásamt tómatmaukinu. Hitið í um 10 mínútur eða þangað til allt er orðið vel blandað saman og eins og "gróf pastasósa".
  • Sjóðið spaghetti á meðan. Setjið vatn í stóran pott, látið suðuna koma upp og sjóðið í um 7 mínútur.
  • Hellið vatninu af spaghettiinu og skiptið á milli diska.
  • Setjið væna slettu af grænmetinu ofan á hverja spaghettihrúgu.
  • Berið fram strax og rífið parmesan yfir ef fólk vill.

  • Mér finnst betra að nota rauðlauk í þennan rétt en það má nota venjulegan líka.
  • Það má nota heilhveiti spaghetti í staðinn fyrir spelt.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Speltpizza með grænmeti, heimalagaðri tómatsósu og Mozarella osti

2. mars, 2003

Pizzur eru alltaf góðar, heimagerðar eru samt bestar því þá veit maður nákvæmlega hvað er sett ofan á þær og inn í þær. Ég þoli ekki pizzur sem fljóta í olíu enda kaupi ég aldrei nokkurn tímann pizzur frá stórum keðjum. Þessi fína uppskrift er úr Nýkaupsbókinni hans Sigga Hall (nema hann notar ger, venjulegt lyftiduft, hveiti o.fl. en ég breytti því). Það er sjálfsagt að nota botninn svo með einhverju öðru áleggi en því sem er hér að neðan. Uppskriftin er nokkuð tímafrek og best að gera hana á laugardagskvöldi eða þegar maður hefur nógan tíma. Maður getur flýtt fyrir sér og keypt holla pizzusósu.
 
Speltpizza með grænmeti, heimalagaðri tómatsósu og Mozarella osti
Fyrir 2-3

    Pizzubotn
  • 1-2 dl vatn (notið fyrst 1 dl og bætið við ef þarf)
  • 1 msk kókosfeiti eða ólífuolía
  • 250 gr spelti
  • 1 msk vínsteinslyftiduft
  • Smá klípa salt (Himalaya eða sjávarsalt)
  • (Ég bæti svo við 1 tsk af pizzakryddi frá Pottagöldrum eða oregano). Einnig er gott að nota ferskar kryddjurtir í botninn

    Aðferð:
  • Blandið saman vatni og kókosfeiti eða ólífuolíu
  • Setjið spelti smátt og smátt út í ásamt salti, vínsteinslyftidufti og kryddi og hnoðið vel saman, eða þar til það er orðið vel samlagað.
  • Deigið á að vera létt og aðeins blautt en má samt ekki klessast
  • Fletjið deigið út þunnt og setjið það annað hvort í sérstakt pizzuform eða á ferkantaða ofnskúffu (með bökunarpappír undir). Líka er ágætt að leggja disk ofan á útflatt deigið og skera utan um, búa jafnvel til nokkrar smærri.
  • Bakið við 150°c í u.þ.b. 15 mínútur eða þangað til brauðið er orðið dekkra og aðeins stökkt. Takið út úr ofninum og geymið þangað allt er orðið tilbúið. Athugið að sumum finnst ekki nauðsynlegt að forbaka botninn en ef þið viljið hafa botninn frekar stökkan og harðan er gott að forbaka.

    Pizzusósa
  • 1 dós flysjaðir tómatar
  • 1 msk tómatpurree
  • 2-4 hvítlauksgeirar
  • 2 msk balsamic edik úr heilsuhúsi
  • 3/4 msk hrásykur
  • Heilsusalt (Herbamare) og pipar
  • ítalskt krydd, t.d. pizzukrydd frá Pottagöldrum

    Álegg
  • 300 gr létt-mozarella skorinn í sneiðar. Ef ekki fæst léttur mozarella má nota mozarella á móti 11% osti í staðinn (minna magn af mozarella og meira af hinum ostinum)
  • 150 gr kirsuberjatómar skornir í tvennt
  • 50 gr sveppir í sneiðum
  • 1 búnt basil, skorið í ræmur
  • svartur pipar

    Aðferð:
  • Fletjið deigið vel út.
  • Látið það sem á að fara í pizzusósuna í skál og merjið í mauk, saltið vel og piprið.
  • Smyrjið jafnt yfir pizzuna. Látið mozarellasneiðarnar og annan ost jafnt yfir, og hálfa kirsurberjatómatana á milli.
  • Dreifið sveppasneiðunum jafnt yfir.
  • Dreifið basilræmunum vel yfir.
  • Bakið í ofni við 220°c í u.þ.b. 15-18 mínutur eða þar til pizzan er orðin gullinbrún og stökk.

  • Leyfið pizzunni að kólna í nokkrar mínútur áður en hún er skorin. Best er að nota sérstakt pizzahjól.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Spínat Pilau (Grjón með spínati)

5. október, 2003

Þennan rétt má bæði hafa sem meðlæti eða borða einan sér með t.d. naan brauði. Bragðgóður og hollur réttur.
 
Spínat Pilau (Grjón með spínati)
Fyrir 4-5 sem meðlæti

  • 1 msk kókosfeiti eða ólífuolía
  • 4 vorlaukar, saxaðir fínt (græni hlutinn)
  • 3 þurrkaðir chilli, kramdir
  • 1/2 tsk coriander fræ
  • 1 hvítlauksgeiri, kraminn eða saxaður
  • 400 gr hýðishrísgrjón eða bygggrjón (enska: pearl barley). Þeir sem hafa glúteinóþol ættu ekki að borða bygg en mega borða hýðishrísgrjón
  • 4 bollar vatn
  • 1 gerlaus grænmetisteningur t.d. frá Rapunzel
  • 500 gr spínat, frosið eða ferskt (ef það er frosið, afþýðið það þá og kreistið allt vatnið í burtu)
  • 1/4 bolli fersk, söxuð basillauf
  • 125 ml hrein jógúrt

    Aðferð:
  • Hitið kókosfeitina eða ólífuolíuna í stórum potti.
  • Hitið laukinn, chilli, fræin og hvítlaukinn og hitið þangað til það fer að ilma.
  • Setjið hrísgrjónins saman við ásamt vatninu og kraftinum.
  • Látið suðuna koma upp og hitið í um 15 mínútur eða þangað til hrísgrjónin eru orðin soðin og vökvinn gufaður upp.
  • Takið af hitanum og hrærið spínatinu, basillaufunum og jógúrtinu saman við.

  • Þessi réttur er líka fínn kaldur.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Spínat/Ricotta Cannelloni (fyllt pastarör)

28. mars, 2003

Ég fann þessa uppskrift á WegWeb.com en breytti henni aðeins. Það áttu að fara 100 gr af parmesanosti en ég setti minna þar sem mér fannst óþarfi að hafa svona mikið af óhollum osti. Mér finnst 30 gr alveg nóg enda er osturinn bragðmikill og ég bætti við smávegis af mögrum, bragðsterkum osti (cheddar) bæði inní og ofan á sósuna.
 
Spínat/Ricotta Cannelloni (fyllt pastarör)
Gerir 10 rör (fyrir 3-4)

    Fyrir sósuna
  • 2 hvítlauksgeirar, marðir eða saxaðir smátt
  • 1 stór laukur, fínsaxaður
  • 800 gr plómutómatar, saxaðir (einnig má nota 2 x 410 gr dósir af niðursoðnum plómutómötum, söxuðum)
  • 2 tsk þurrkuð steinselja (enska: parsley)
  • 1 tsk ávaxtasykur
  • Heilsusalt (Herbamare) og svartur pipar

    Fyrir pastarörin (Cannelloni)
  • 8 ferskar spelt lasagne plötur. Einnig er hægt að nota tilbúin pastarör (canneloni) eða lasagneplötur en þá þarf að sjóða þau í svona 3 mínútur fyrst. Ef þið notið ekki ferskar plötur, sjóðið þær þá með 1 tsk af ólífuolíu því annars er vont að ná þeim í sundur.
  • 1 hvítlauksgeiri, marinn
  • 150 gr frosið, saxað spínat (afþýðið og kreistið vatnið úr)
  • 30 gr rifinn parmesanostur
  • 250 gr Ricotta ostur
  • 100 gr rifinn, magur ostur (11%). Má líka vera rifinn mozzarella ostur.
  • 1 sítróna (börkur + safinn)
  • Heilsusalt (Herbamare) og svartur pipar
  • 1/2 tsk múskat (enska: nutmeg)
  • 2 tsk oregano
  • Hnefafylli af fersku basil, saxað

    Aðferð:

    Sósan
  • Forhitið ofninn í 220°C
  • Byrjið á því að búa til pastasósuna.
  • Hitið eins og 1 tsk af kókosfeiti eða ólífuolíu.
  • Bætið lauknum og hvítlauknum útí og mýkið.
  • Setjið niðursoðnu tómatana saman við og hitið varlega að suðu.
  • Bætið ávaxtasykrinum saman við.
  • Leyfið þessu að malla í 20-30 mínútur eða þangað til sósan þykknar og "minnkar um helming".

    Pastarörin
  • Setjið spínatið í stóra skál ásamt ricotta ostinum. Hrærið vel.
  • Bætið 20 gr af parmesanostinum saman við og 50 gr af rifna ostinum.
  • Bætið safanum og rifna berkinum af sítrónununni saman við.
  • Bætið 3/4 af basil saman við.
  • Kryddið með salti, pipar, múskati og oregano.
  • Blandið vel saman.
  • Skiptið blöndunni í 10 hluta og smyrjið á hverja plötu eða setjið í hvert rör.
  • (Ef notaðar eru plötur, rúllið þá hverri varlega upp og setjið í eldfast mót).
  • Hellið pastasósunni yfir.
  • Rífið smá basil yfir.
  • Setjið 50 gr af rifnum osti yfir sósuna.
  • Að lokum skuluð þið setja 10 gr af parmesanosti yfir allt saman.
  • Hitið í um 30 mínútur eða þangað til osturinn er bráðinn.

  • Berið fram heitt, með grænu fersku salati.
  • Það má alveg nota einhverja holla pastasósu í staðinn fyrir þessa tilbúnu ef þið eruð í tímaþröng. Gætið þess bara að sé ekki sykur í sósunni, né aukaefni (eins og MSG, Monosodium Glutamete, E-600 efni), né mikil fita. Lífrænt framleiddar sósur eru bestar.
  • Setjið meiri parmesanost ef ykkur finnst það gott.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Spínatkartöflur

5. október, 2003

Þetta er mjög hefðbundið indverskt meðlæti sem maður pantar yfirleitt alltaf þegar maður fer á indverskan stað (bara eins og maður pantar grjón líka). Stundum hef ég pantað þennan rétt sem aðalrétt en eini gallinn við svona veitingastaði er að það er allt löðrandi í ghee eða olíu þannig að maður verður fljótt saddur af litlu (og auðvitað óhollt líka) en þetta er ekki svo óholl útgáfa. Ég fann þessa uppskrift upprunalega einhvers staðar á netinu af einhverjum sem kunni litla ensku. Ég vona að þýðingin hafi skilað sér.
 
Spínatkartöflur
Fyrir 2-3 sem meðlæti

  • 250 gr spínat, saxað gróft (má nota frosið en kreistið þá allt vatn úr)
  • 2 miðlungsstórar kartöflur soðnar, brytjaðar gróft
  • 1 lítill chilli pipar, grænn, saxaður smátt (má sleppa)
  • 1/2 tsk sinnepsfræ
  • 1/2 tsk cumin fræ (ekki kúmen)
  • 1 msk kókosfeiti eða ólífuolía
  • Heilsusalt (Herbamare)

    Aðferð:
  • Hitið kókosfeitina eða ólífuolíuna á pönnu.
  • Setjið sinnepsfræin út á pönnuna og hitið í 2 mínútur.
  • Bætið chillipiparnum, og cumin fræjunum og hitið í 1 mínútu.
  • Bætið nú spínatinu og kartöflunum við og hitið í nokkrar mínútur.
  • Bætið smá salti við.
  • Hitið í um 15 mínútur.

  • Ef þið sleppið chillipiparnum en viljið smá sterkt bragð, setjið þá cayennpipar útí réttinn, bara eins og á hnífsoddi, ekki meira.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Spínatrétturinn úr dularfulla húsinu í skóginum í Nairobi

20. október, 2007

Spínatrétturinn úr dularfulla húsinu í skóginum. Borðist helst með undirspili engispretta - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Það er löng saga að segja frá þessum rétti og hvernig ég fékk "uppskrift" að honum. Það atvikaðist þannig að í september 2007 var ég stödd alein í Nairobi. Ég var að taka á móti ferðafólki morguninn eftir frá Íslandi sem voru á leið í safarí. Jóhannes var með annan hóp í Mombasa. Borgar bróðir minn hafði ætlað að redda fyrir mig hótelherbergi en var aðeins of seinn þannig að ég var eiginlega á vergangi sem er ekkert endilega sniðugt í Nairobi. Nú... bróðir minn þekkir marga í Afríku og Stephanie sem vinnur fyrir hann mundi að vinkona hennar býr einmitt í Nairobi, rétt fyrir utan eða í Karen hverfinu sem heitir eftir Karen Blixen og liggur rétt við þjóðgarð Nairobi (þar sem má finna fíla, ljón, nashyrninga og mörg fleiri dýr). Cornelius, innfæddi bílstjórinn minn sem var að rúnta með mig á glænýja, flotta Land Cruiser safaríbílnum hans Borgars fékk það verkefni að keyra mig til þessarrar konu. Ég vissi ekkert hvert ég var að fara (nema til Karen), hvernig húsið væri, hvort konan væri ein, hvort hún væri almennileg eða hvað. Það var farið að rökkva og Cornelius ákvað að stytta sér leið í Nairobi. Hann keyrði langt inn í eitthvað hverfi Nairobi og þar sátum við í umferðarteppu. Það fór að skyggja og Cornelius að ókyrrast aðeins í sætinu. Þarna eru ekki götuljós nema á stöku stað og alls staðar er verið að selja varning á götunni. Þegar líða tók á umferðarteppuna voru einhverjir pörupiltar farnir að horfa inn um bílgluggann og kalla Mzungu eitthvað....Ég veit hvað mzungu þýðir (hvít manneskja) en ég skildi ekki hitt. Ég spurði Cornelius að því en hann sagði bara "þú vilt ekki vita restina". Hann sagði mér að læsa bílhurðunum. Ekkert sérlega róandi svona í miðri Nairobi að vera á glæ, glænýjum rándýrum safaríjeppa þegar skyggja tekur. Það var eftir klukkutíma, í umferðarteppunni sem ég áttaði mig á því að ég hafði ekki séð eina einustu hvíta manneskju allan þennan tíma í teppunni. Það er mjög óvenjulegt í Nairobi þar sem margir stunda viðskipti frá öllum heimshornum.
Nú við losnuðum loksins úr teppunni og keyrðum í kolniðamyrkri eitthvert út í buskann. Ég kannaðist reyndar við mig sums staðar en svo loksins keyrði Cornelius eitthvert út í skóg....Ég treysti bílstjóranum sem betur fer því annars hefði ég orðið sturluð úr hræðslu svona alein. Við keyrum í skóginum eftir kræklóttum stíg og í fjarska heyrum við gelt (eða þess vegna öskur úr flóðhesti svo djúp voru hljóðin). Þegar við komum nær heyrðum við geltið magnast og drottinn minn dýri ég hef aldrei heyrt önnur eins hljóð í hundi. Þetta var það dýpsta gelt sem ég hef heyrt og beinlínis öskraði "risa, risa stór hundur". Ég er ekki hrædd við hunda, síður en svo en ég þorði ekki að hreyfa mig út úr bílnum (hundar í Afríku er yfirleitt ekki gæludýr, þeir eru varðhundar og í orðsins fyllstu merkingu). Þetta reyndist vera blanda af Grate Dane og Rhodesian Ridge Back sem þýðir að hann var huge stór.

Þarna kemur kona á móti okkur sem sussar á hundana og segist vera vinkona Stephanie að nafni Lumman. Hún var sænsk og bauð mig velkomna á heimili sitt. Hún vísaði mér í gestahúsið sem var við hliðina á stóra húsinu og þar var nýbúið að gera upp flotta gistiaðstöðu með dýnu á gólfinu, sturtu en ekkert annað, ekki einu sinni stól. Það hentaði vel því ég var þreytt og þurfti að vakna snemma, Cornelius ætlaði að sækja mig klukkan 4.45. Lumman tók ekki annað í mál en að ég fengi að borða og hún sagði mér að hún ætlaði að sækja mig eftir klukkutíma. Sem hún gerði. Hún dró mig í gegnum kolniðamyrkur (það er verið að gera húsið upp og allt rafmagnslaust) og leiddi mig út á verönd. Þar var búið að dekka borð með kertaljósum, nýbakað brauð ilmaði, ég fann lykt af meiri, dásamlegum mat og ég fann að ég var orðin glorhungruð.

Ég sest til borðs og af því að þögnin var algjör, tunglið var nánast fullt en samt stjörnubjart þá bæði sá ég og heyrði í fullt af dýrum, bæði antilópum, kanínum, bjöllum, engisprettum o.fl., o.fl. Þetta var svo súrrealískt. Eftir smá stund fóru fjölskyldumeðlimirnir að tínast að borðinu. Þar voru þrjár stúlkur á mismunandi aldri, eiginmaðurinn sem er frá austurríki en fæddur í Kenya og svo fjölskylduvinurinn sem gat ekki borið fram r og sagði l í staðinn. Það gat verið hrikalega fyndið en ég gat auðvitað ekki hlegið. Fjölskylda þessi var einstaklega gestrisin og spurði mig í þaula um Ísland, hvað ég væri að gera í Kenya o.s.frv. Það kom upp úr kafinu að yngsta dóttirin 8 ára (sem í skólaferðalögum fer í kamel safarí og gistir í tjaldi í eyðimörkinni...) var með áhuga á íslenskum hestum og fannst mikið til koma að ég vissi allt um íslenska hestinn og væri nýkomin úr viku hestaferð á fjöllum.

Það var margt fleira forvitnilegt sem ég bæði heyrði og þau sögðu mér frá. Til dæmis er aðal atvinna húsfreyjunar að smíða húsgögn úr gömlum (100 ára) dhow skipum (skip sem notuð voru til að sigla með krydd, þræla og ýmsan varning frá Zanzibar og áleiðis). Húsgögnin voru þannig að mig langaði til að kaupa nákvæmlega allt. Ég hugsaði með mér "hér er minn stíll". Nú...elsta dóttirin (eitthvað um 17 ára) er að berjast við hvítblæði og fjölskyldan fór í ár til Austurríkis til að fá bestu meðhöndlun fyrir dótturina. Þau sögðu að lokum að steinsteypan hefði verið að drepa þau öll og þau voru farin að þrá Afríku aftur. Sem ég skil svo að mörgu leyti. Þegar þau voru að segja mér allt um þetta mál kom kisi að mér og straukst við fótinn á mér. Eins og alltaf þegar maður borðar undir beru lofti í myrkrinu í Afríku þá bregður manni..."vertu alveg róleg" sagði Lumman...."þetta er bara kisi....þeir voru tveir....en það var hlébarði sem át hina kisuna fyrir ári síðan hérna í garðinum".

Þetta var fáránlega löng lýsing á uppskrift, sú lengsta sem ég hef skrifað en þetta var svo furðuleg upplifun og ég hugsaði með mér undir stjörnubjörtum himninum...þessu verð ég að deila með ykkur hinum....Húsfreyjan átti ekki uppskrift að réttinum en ég bað hana um innihaldslýsingu og uppskriftin er nokkuð nærri lagi...nema það vantar hlébarða og engisprettuhljóð.
 
Spínatrétturinn úr dularfulla húsinu í skóginum í Nairobi
Fyrir 2 sem aðalréttur

  • 1 tsk kókosfeiti eða ólífuolía
  • 1 poki ferskt eða frosið spínat. Ef frosið afþýðið þá og kreistið vatnið úr
  • 1 hvítlauksgeiri, marinn
  • 1/2 blaðlaukur, saxaður (má sleppa)
  • 1 laukur, saxaður gróft
  • 1 tsk karrí
  • 2 msk kókosmjólk
  • 3/4 stór grænmetisteningur (kraftur) frá Rapunzel

    Aðferð:
  • Steikið allan laukinn úr olíunni og smá vatni ef þarf. Steikið þangað til laukurinn fer að linast.
  • Bætið kryddi og grænmetiskrafti saman við.
  • Bætið spínatinu saman við og hitið vel.
  • Bætið kókosmjólkinni saman við og hitið aðeins meira.
  • Berið fram með heimabökuðu brauði.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Starbucks samloka

4. mars, 2003

Aðeins hollara en á Starbucks og bara ekkert síðra!! - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Við fáum okkur stundum alveg bláspari, samloku (chiabatta) á Starbucks. Þetta er svo sem enginn hollustumatur enda fáum við okkur afskaplega sjaldan mat á kaffihúsum, bæði dýrt og óhollt!! Þessi samloka hérna að neðan er svona hollari útgáfa af Starbucks samlokunni. Athugið að ég nota annað hvort speltpítubrauð eða grófa brauðhleifa en hægt er að nota alls kyns brauð. Þeir sem þola ekki ger þurfa að vara sig á pítubrauðum og keyptum brauðum nema þau séu merkt gerlaus. Ég nota fitusnautt majones og fitusnauðan mozarella eða magran, venjulegan ost.
 
Starbucks samloka
Fyrir 2-3

  • 3 stórir, spelt brauðhleifar, skornir í tvennt (þannig að verði lok og botn). Athugið einnig að það er mjög gott að nota pítubrauð í þessar samlokur.
  • 1/4 krukka grænt pestó t.d. frá Sacla
  • 4 msk majones. Einnig má nota 10% sýrðan rjóma (án gelatíns) og AB mjólk. Hægt er að kaupa létt-majones (6% fita) en það er yfirleitt með sykri og viðbættum efnum
  • Nokkrar svartar ólífur í sneiðum
  • Létt mosarella ostur, 1 stykki skorinn í sneiðar (um 150 gr) eða annar magur ostur
  • 10 sólþurrkaðir tómatar, (olían þerruð af með eldhúspappír), skornir í mjóar sneiðar

    Aðferð:
  • Blandið saman pestóinu og majonesinu.
  • Pestóblöndunni smurt á, allt hitt lagt ofan á .
  • Grillað í nokkrar mínútur á samlokugrilli þangað til osturinn er orðinn bráðinn.

  • Hægt er að nota alls kyns grænmeti og líka t.d. rautt pestó.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Steikt grænmeti

28. febrúar, 2003

Ég fann þessa uppskrift aftan á einhverri krukku. Alls ekki svo slæmur grænmetisréttur, tekur smá stund að hafa hann til en er jafnvel betri daginn eftir svo maður getur búið til stóran skammt og sparað eldamennskuna daginn eftir. Þó að rétturinn sé steiktur þá er hann ekki löðrandi í olíu, bara rétt svo til að gera hann girnilegan.
 
Steikt grænmeti
Fyrir 3-4

  • 1 eggaldin
  • 3 hvítlauksgeirar, marðir
  • 4 vorlaukar, saxaðir
  • 1 lítil, rauð paprika
  • 4 babymais stönglar, skornir í helminga, langsum
  • 80 gr mangetout (nokkurs konar strengjabaunir, ættu að fást í Hagkaupum)
  • 200 gr chinese mustard greens (kínverskt kál), rifið gróft
  • 425 gr kínverskir “straw” sveppir (hægt að nota litla, íslenska sveppi)
  • 125 gr baunaspírur
  • 2 msk hrísgrjónavín (eða hrísgrjónaedik)
  • 2 msk yellow bean sauce í krukku (gætið þess að hún sé án auka- og bragðefna og án sykurs. Engin E-efni ættu að vera í henni. Kaupið helst lífrænt framleidda sósu)
  • 2 msk tamarisósa
  • 1 msk tabasco sósa
  • 1 msk agavesíróp
  • 125 ml vatn
  • 1/2 gerlaus grænmetisteningur
  • 1 msk kornsterkja (corn flour eða arrow root)
  • 2 msk vatn
  • 1 msk kókosfeiti

    Aðferð:
  • Skerið eggaldin í 5 cm. langa sprota (eins og eldspýtur).
  • Hitið kókosfeiti þangað til fer að rjúka af pönnunni.
  • Steikið hvítlaukinn, vorlaukinn og paprikuna á háum hita í 1 mínútu. Bætið við vatni ef þarf meiri vökva.
  • Setjið eggaldinn saman við og hitið þangað til það er orðið mjúkt.
  • Setjið baby maisinn saman við og mangetout og hitið í 1 mínútu.
  • Bætið við mustard greens, sveppunum, baunaspírunum og hitið í hálfa mínútu.
  • Í lítilli skál skuluð þið blanda saman hrísgrjónavíninu, yellow bean sause og tamarisósunni, tabascosósunni og agavesírópinu ásamt vatninu og grænmetisteningnum.
  • Setjið svo á pönnuna.
  • Blandið sterkjunni saman við vatnið þangað til mjúk sósa verður til. Blandið þessu snögglega á pönnuni og hitið í mínútu.
  • Berið fram strax.

  • Það er hægt að skipta út grænmetinu hérna að ofan fyrir eitthvað annað sem til er í ísskápnum eins og t.d. kúrbít, gulrætur, gulan maís o.s.frv.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Steiktar núðlur og grænmeti

28. febrúar, 2003

Bara svona týpískur, austurlenskur núðluréttur. Það er ekkert eitt afgerandi bragð af honum, bara frekar mildur og fínn fyrir þá sem þola til dæmis illa sterkt kryddbragð.
 
Steiktar núðlur og grænmeti
Fyrir 4

  • 1 tsk sesamolía
  • 1 tsk kókosfeitina
  • 1 laukur, skorinn í þunnar sneiðar (ég nota stundum vorlauk)
  • 1 græn paprika, skorin í bita
  • 1 rauð paprika, skorin í bita
  • 150 gr spergilkál (enska: broccoli) skorið í bita
  • 1 1/2 dl baunaspírur
  • 100 gr snjóbaunir
  • 1 tsk rifin engiferrót
  • 2 msk tamarisósa
  • 200 gr udon núðlur eða einhverjar aðrar núðlur
  • 2 tsk kornsterkja (courn flour eða arrow root)
  • 1 dl eplasafi
  • 1 lúka jarðhnetur (án hýðis), steiktar upp úr tamarísósu og saxaðar (má sleppa)

    Aðferð:
  • Hitið wok pönnu þangað til hún er orðin brennandi heit.
  • Setjið kókosfeitina. Bætið við vatni ef þarf meiri vökva.
  • Snöggsteikið allt grænmetið í nokkrar mínútur.
  • Bætið engiferrótinni og tamarisósunni á pönnuna. Bætið vatni á pönnuna ef þarf meiri vökva.
  • Sjóðið núðlurnar samkvæmt leiðbeiningum á pakka, látið renna vel af þeim og blandið þeim saman við grænmetið.
  • Leysið kornsterkju upp í eplasafanum og hellið yfir réttinn.
  • Hrærið á meðan sósan þykknar.
  • Ef þarf meiri vökva til steikingar má nota smávegis af vatni.
  • Bætið sesamolíunni út í.
  • Berið réttinn fram sjóðheitan ásamt tamarisósu.

  • Það má nota alls kyns grænmeti í stað þess sem talið er upp hér að ofan. Til dæmis má nota babymaís, kúrbít (enska: courgette zucchini), waterchestnuts (í dós), gulrætur í strimlum, sveppi o.s.frv.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Sumarlegt salat með appelsínum og vatnsmelónu

4. ágúst, 2008

Sumarlegt og litríkt salat - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þegar maður borðar þetta salat finnur maður eiginlega hollustuna streyma um sig enda er salatið algjör heimsmeistari í hollustu. Svo getur maður skipt út hráefni og bætt við. Til dæmis er upplagt að nota blá vínber, bláber, ristaðar möndluflögur, baunaspírur, rauðkál, döðlur, graslauk, parmesanost, fetaost og eiginlega allt sem ykkur dettur í hug. Salatið er einstaklega litríkt og skemmtilegt og er afar gaman að bera það fram í matarboðum enda lifnar alltaf yfir fólki. Það sem er líka gaman að gera er að undirbúa allt hráefni, setja í margar skálar og leyfa fólki að raða í sitt eigið salat.
 
Sumarlegt salat með appelsínum og vatnsmelónu
Fyrir 4 sem meðlæti

  • 1 haus Lambhagasalat eða svipuð tegund
  • 1 poki eða kassi blandað salat (það sem ykkur finnst best)
  • 1/2 vel sæt appelsína, skræld og söxuð í bita
  • 2 gulrætur, sneiddar í ræmur (eins og tannstöngla), einnig má rífa gulræturnar á rifjárni
  • 1 rauð paprika, söxuð gróft
  • 1/4 vatnsmelóna, fræhreinsuð og söxuð gróft
  • 1 lúka cashewhnetur eða möndluflögur, þurristaðar á pönnu
  • 1 vel þroskað (ekki þó of) avacado. Afhýtt og saxað gróft (undirbúið alveg í lokin)

    Aðferð:
  • Undirbúið allt hráefni og setjið í skálar.
  • Skolið og rífið salatblöðin gróft.
  • Dreifið innihaldinu (nema cashewhnetunum og avacadoinu) í salatið og blandið varlega með fingrunum eða salatskeiðum.
  • Saxið avacado (helst rétt áður en bera á salatið fram)og setjið út í.
  • Dreifið hnetunum yfir.

  • Berið fram með léttri salatsósu
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Svartbauna- og maískornasúpa

6. nóvember, 2009

Auðveld og ódýr súpa - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessi súpa er úr bók sem ég á sem heitir Marie Claire: Kitchen – the ultimate recipe collection og inniheldur helling af góðum uppskriftum. Súpan er mild og létt en um leið trefja- og próteinrík en svartar baunir innihalda óvenju mikið prótein (svona miðað við baunir að minnsta kosti). Svo er súpan líka ódýr og þó hún sé ekki sparilegasta súpa í heimi passar hún vel sem létt máltíð í miðri viku. Ég hafði meira af baunum en átti að vera því mér finnst þær góðar. Ég átti smá afgang af súpunni eitthvert skiptið og bætti speltpasta út í hana áður en ég hitaði hana svo upp í kvöldmat og úr varð reglulega góð máltíð.
 
Svartbauna- og maískornasúpa
Fyrir 2-3

  • 270 gr maískorn (frosin, fersk eða úr dós. Gætið þess að kaupa ekki sykurbætt maískorn)
  • 310 gr svartar baunir (enska: black beans) í dós. Hellið vatninu af
  • 1 tsk kókosolía
  • 1 lítill rauðlaukur, saxaður smátt
  • 1 hvítlauksgeiri, pressaður
  • 1/2 rauður chillipipar, saxaður smátt
  • 1 msk tómatmauk (puree)
  • 1/2 tsk reykt paprika (enska: smoked paprika). Fæst í flestum sælkeraverslunum
  • 500-700 ml vatn
  • 1-2 gerlausir grænmetisteningar

    Aðferð:
  • Hitið kókosolíuna í stórum potti.
  • Steikið lauk, hvítlauk og chillipipar þangað til allt fer að mýkjast vel og ilma. Bætið við vatni ef þarf meiri vökva.
  • Bætið tómatmaukinu, reyktu paprikunni, vatninu og grænmetisteningunum út í. Hrærið vel í 2 mínútúr.
  • Bætið vatninu og maískornunum saman við. Látið suðuna koma upp.
  • Látið malla í 15 mínútur.
  • Bætið svörtu baununum út í og látið malla í 5 mínútur.

  • Í upphaflegu uppskriftinni var smá slettu af sýrðum rjóma bætt út í en mér finnst það ekkert sérstaklega gott. Bætið við sýrðum rjóma ofan á súpuna ef ykkur langar til. Ég nota 5% sýrðan rjóma án gelatíns (frá Mjólku).
  • Það er upplagt að bæta við afgangsgrænmeti úr ísskápnum í súpuna eins og t.d. sellerí, gulrótum, kartöflum o.fl.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Sveppasúpa

28. febrúar, 2003

Sveppasúpan fína - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þetta er bara svona hefðbundin sveppasúpa, ekkert flókin en alveg rosalega góð og einn ódýrasti matur sem fyrir finnst held ég. Ég veit að það eru nokkrir notendur CafeSigrun sem nota þessa súpu á jólunum. Það eru góð meðmæli!
 
Sveppasúpa
Fyrir 4

  • 2 stk litlir laukar, mjög fínt saxaðir
  • 250 gr sveppir, saxaðir
  • 25 stk þurrkaðir sveppir. Má sleppa en súpan verður svo miklu, miklu betri ef maður notar þá
  • 800 ml grænmetissoð (vatn + 1-2 stórir gerlausir grænmetisteningar t.d. frá Rapunzel). Ef ekki eru notaðir þurrkaðir sveppir notið þá 1 lítra af vatni.
  • 1/2 dl (magrasti sem til er) rjómi
  • 1 dl undanrenna eða léttmjólk
  • 2 msk kartöflumjöl (ef þið þolið glútein má nota spelti)
  • 1/4 tsk múskat
  • 1 msk kókosfeiti eða ólífuolía
  • Heilsusalt (Herbamare) og pipar

    Aðferð:
  • Steikið svepppina og laukinn í smá kókosfeiti eða ólífuolíu á lágum hita í 10-15 mín.
  • Stráið kartöflumjölinu yfir og hrærið vel í.
  • Setjið þurrkuðu sveppina ef þeir eru notaðir í skál með 2 dl sjóðandi vatni í 20 mínútur.
  • Bætið soðinu við og sjóðið súpuna á lágum hita í u.þ.b. 20 mínútur.
  • Hellið vatninu og þurrkuðu sveppunum út í súpuna.
  • Bætið að lokum rjóma, mjólk og múskati út í.
  • Bragðið súpuna til með salti og pipar.

  • Það er æðislega gott þurrkaða sveppi í sveppasúpur (t.d. blöndu af Shitake og Porcini sveppum). Súpan fær dýpra og fylltara bragð. Nota þarf nóg af heitu vatni til að þekja sveppina. Látið liggja í bleyti í 30 mínútur (ekki hella vatninu af og notið svo vatnið í súpuna.
  • Við áttum smá súpu í afgang einhvern tímann og ég bætti soðnum hrísgrjónum og frosnum, grænum baunum útí. Það var bara hin prýðilegasta súpa og örugglega allt í lagi að bæta t.d. blómkáli, spergilkáli, gulrótum og fleiru út í. Upplagt til að drýgja grænmetisafgangana í ísskápnum!!
  • Það er einnig mjög gott að nota maisbaunir til helminga við sveppina
  • Berið fram með góðu, grófu brauði.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Sætar bakaðar kartöflur með osti og tómatsalsa

7. nóvember, 2006

Sætar kartöflur með tómatsalsa og rifnum osti - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessi uppskrift er nánast beint upp úr ofsalega góðri bók sem ég á og heitir Gluten-free Cooking. Mæli með henni fyrir þá sem þurfa að passa glútein í mat. Þó ég þurfi þess nú ekki þá finnst mér samt mjög gaman að pæla í alls kyns uppskriftum. Þessi uppskrift hentar sem sagt fyrir þá sem hafa glúteinóþol eða ofnæmi og er góð að auki.
 
Sætar bakaðar kartöflur með osti og tómatsalsa
Fyrir 2

  • 2 sætar kartöflur (hver um 275 grömm)
  • 2 stórir tómatar, saxaðir fínt
  • 1/2 rauðlaukur, saxaður fínt (og látinn liggja í köldu vatni í um klukkutíma. Þarf ekki að útvatna laukinn en mér finnst laukurinn annars of sterkur. Ég nota líka salt til að draga úr bragðinu, um 1 tsk)
  • 1 sellerístilkur, saxaður fínt
  • Lófafylli af ferskum corianderblöðum, söxuðum (má sleppa)
  • 2 msk lime safi
  • 2 tsk ávaxtasykur eða agavesíróp(átti að nota venjulegan sykur en það má sleppa alveg öllum sykri því kartöflurnar eru nógu sætar)
  • 50 gr rifinn, magur ostur (t.d. magur mozarella ostur. Einnig er hægt að nota soyaost en þeir sem hafa glúteinofnæmi þurfa samt að athuga innihaldið).

    Aðferð:
  • Hitið ofninn í 200°C.
  • Stingið mörgum sinnum í kartöflurnar með gafli, allan hringinn og leggið þær svo á bökunarpappír.
  • Bakið kartöflurnar í um 50 mínútur eða þangað til miðjan verður mjúk (stingið með beittum, mjóum hnífi inn í, viðnámið á að vera lítið). Hún má þó ekki vera bökuð í mauk.
  • Hellið vatninu af rauðlauknum ef hann var útvatnaður.
  • Blandið saman tómötum, rauðlauk, sellerí, coriander, lime safa og ávaxtasykri (ef hann er notaður).
  • Takið kartöflurnar úr ofninum (ekki slökkva á honum).
  • Skerið kartöflurnar í tvennt, langsum og notið gaffal til að merja kartöfluna aðeins að innan (gera þær mjúkar, eins og þegar maður maukar venjulega, bakaða kartöflu að innan). Gætið þess að skemma ekki hýðið.
  • Setjið aftur á bökunarplötuna, dreifið ostinum yfir og stingið í ofninn aftur. Bakið í um 10 mínútur eða þangað til osturinn bráðnar.
  • Takið úr ofninum (og slökkvið á honum) og dreifið salsanu yfir.
  • Saltið með Herbamare heilsusalti.
  • Berið fram strax.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Sætar kartöflur í hnetu- og engifersósu

1. september, 2007

Litríkur, afrískur grænmetisréttur - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Sætar kartöflur eru notaðar mikið í vestur Afríku og ásamt hnetum gerir þennan rétt bæði saðsaman og sætkryddaðan. Það er kannski svolítið skrítin innihaldlýsingin...ananassafi, hnetusmjör og hvítkál!!! Trúið mér samt að maturinn er rosa góður. Rétturinn hentar börnum einkar vel þar sem hann er mildur en mátulega kryddaður og fullur af hollu grænmeti. Þess skal þó gætt að börnin hafi ekki ofnæmi fyrir hnetum áður en þau byrja að borða matinn þar sem jarðhnetur eru einn almesti ofnæmisvaldur ungra barna. Þessi réttur er úr bókinni World Food Cafe og heitir eftir samnefndum veitingastað í London. Staðurinn er einn af mínum uppáhaldsstöðum í London og bókin er ein af mínum uppáhalds líka. Ég á eftir að setja inn margar uppskriftir úr þessarri bók á vefinn. Kannski geri ég einhvern tímann svona World Food Cafe Sigrun bók... hver veit! Gerið nóg af þessum mat því hann er rosa góður daginn eftir og helst ef hann fær að malla á vægum hita undir loki í einhvern tíma áður en hann er borinn fram.
 
Sætar kartöflur í hnetu- og engifersósu
Fyrir 4-6

  • 2 tsk kókosfeiti
  • 1 stór laukur, saxaður
  • 4 hvítlauksgeirar, marðir
  • 5 cm. engiferbútur, afhýddur og saxaður fínt
  • 750 gr sætar kartöflur, saxaðar í smáa teninga
  • 450 gr hvítkál, saxað í bita
  • 1 tsk paprika
  • 1 tsk cayennepipar (má sleppa til að hafa réttinn mildari)
  • 400 gr saxaðir plómutómatar (ferskir eða í dós)
  • 300 ml hreinn ananassafi
  • 4 msk mjúkt hnetusmjör (maður á alltaf að kaupa lífrænt framleitt og án sykurs)
  • Pipar
  • Salt (t.d. Himalaya eða sjávarsalt)

    Ofan á
  • 2 gulrætur, afhýddar og rifnar gróft á rifjárni
  • 1 stór rauðrófa, afhýdd og rifin gróft á rifjárni
  • 2 bananar, ágætlega þroskaðir sneiddir
  • Safi af 1 límónu
  • Hnefafylli ferskt coriander, rifið (má sleppa)

    Aðferð:
  • Hitið 1 tsk af kókosfeitinni á stórri pönnu og bætið vatni við ef þarf.
  • Steikið laukinn þangað til hann verður mjúkur.
  • Bætið hvítlauknum og engiferinu saman við og steikið í nokkrar mínútur.
  • Bætið hvítkálinu og sætu kartöflunum saman við og hitið vel.
  • Þegar grænmetið fer að verða mjúkt bætið þá paprikunni og cayennepiparnum (ef notaður) saman við.
  • Hrærið vel saman.
  • Bætið tómötunum og ananassafanum saman við.
  • Setjið lok á pönnuna og látið malla þangað til grænmetið er allt orðið mjúkt.
  • Setjið hnetusmjörið saman við og hrærið allt vel saman.
  • Saltið og piprið eftir smekk.
  • Setjið í fallega skál og setjið bananasneiðarnar ofan á, svo gulræturnar og rauðkálið þar ofan á. Kreistið límónusafann yfir.
  • Skreytið með coriander ef þið viljið.
  • Berið fram með grjónum eða brauði.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Tacos með soyakjöti

21. mars, 2003

Ég notaði soyakjötshakk í þennan rétt og það var mjög gott. Maður þarf bara að vera búinn að láta hakkið liggja í smá mareneringu áður en maður útbýr réttinn (eins og þarf alltaf með soyakjöt). Það er best að láta hann liggja í grænmetiskrafti (t.d. einum teningi) og svo einhverri sterkri mexikanskri sósu (hægt að kaupa tilbúna en gætið þess að sósan sé sykurlaus og fitusnauð og án bragð-og litarefna. Hún ætti að vera lífrænt framleidd.
 
Tacos með soyakjöti
Fyrir 3-4

  • 150 gr af soyakjöts "hakki" (mulið, dökkt soyakjöt og lítur út eins og hakk)
  • 12 Tacoskeljar (þær hollustu sem þið finnið og án MSG eða annarra aukaefna). Kaupið helst lífrænt framleiddar.
  • 200 gr mexikönsk sósa (sjá athugasemdir hér fyrir ofan)
  • 4-6 sveppir sneiddir þunnt
  • 1/4 úr salatshaus, t.d. jöklasalat
  • 1 lítil dós af hreinu, fitulausu jógúrti (má vera fitulaust grískt jógúrt líka)
  • 1 dós af fitusnautt guacamole, helst lífrænt framleitt (hægt að útbúa sitt eigið líka)
  • 1 krukka salsasósa (fitusnauð og sykurlaus, lífrænt framleidd). Það er líka hægt að búa til sína eigin ef þið kunnið góða uppskrift.
  • 100 gr rifinn, magur ostur
  • 1 grænmetisteningur
  • Smávegis af svörtum pipar

    Aðferð:
  • Látið soyakjötið liggja í grænmetissoði, sjóðandi vatni (þannig að soyahakkið nái að draga vel vökva í sig) og mexikönsku sósunni í nokkra tíma.
  • Steikið sveppina upp úr smá vatni og kryddið með pipar.
  • Hreinsið salatið og rífið smátt og setjið í skál.
  • Setjið guacamole, salsasósu og jógúrt í sérskálar.
  • Setjið rifna ostinn í skál.
  • Setjið sveppina í skál.
  • Hitið hakkið á pönnu og kryddið meira með salti og pipar ef ykkur finnst það þurfa.
  • Hitið tacoskeljarnar á hvolfi í ofninum (alls, alls, alls ekki steikja þær því þær innihalda nógu mikla fitu fyrir).
  • Berið allt fram á borð í sér skálum og með sér skeiðum og hver og einn raðar fyrir sig í skeljarnar.
  • Setjið ekki meira en svona 1/3 af hakki því annars kemst ekkert annað fyrir.


  • Það er auðvitað best að búa allar sínar sósur til sjálfur en maður er bara svo oft að flýta sér að það er erfitt viðfangs nema kannski um helgar.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Thailensk laksa súpa (ekki laxa!)

27. júní, 2006

Súpa með 10 þúsund innihaldsatriðum - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Súpan virkar kannski flókin en er það í raun ekki. Það er samt ágætt að útbúa súpuna þegar maður hefur ágætan tíma svona í fyrsta skipti allavega. Maður getur sparað hellings tíma með því að vera búinn að útbúa kryddmaukið deginum áður. Maður byrjar á kryddmaukinu. Svo býr maður til kókossúpugrunninn. Þá bætir maður við til dæmis grænmeti, kjúklingi, krabbakjöti, tofu, núðlum, eða hverju sem maður vill. "Laksa" þýðir 10 þúsund svo það má segja að grunnurinn sé ansi góður fyrst maður getur sett 10 þúsund mismunandi innihald út í og súpan er alltaf jafn góð. Ok hef ekki prófað það en þessi súpa er æðisleg og ekki of sterk, meira svona sætsúr. Fyrir grænmetisætur eða algrænmetisætur (enska: vegan) þarf að sleppa fiskisósunni og rækjumaukinu (nota t.d. Tamari sósu í staðinn eða það sem hentar). Fyrir þá sem vilja kjúklingasúpu má nota kjúklingakraft og ef maður notar fisk, þá er gott að nota fiskikraft auðvitað. Þó ég segi sjálf frá þá er súpan ekki síðri en þær sem maður fær á góðum thailenskum veitingastöðum! Athugið að tamarindmauk er ekki það sama og tamarisósa. Tamarisósa er svipuð soyasósu en tamarindmauk er unnið úr tamarind fræjum af tamarind tré. Súpan hentar vel fyrir þá sem hafa glúteinóþol.
 
Thailensk laksa súpa (ekki laxa!)
Fyrir 5-6

    Kryddmaukið:
  • 3 langir, breiðir stilkar af sítrónugrasi (enska: lemongrass). Takið ytra hýðið utan af og notið aðeins miðjuna. Saxaðir gróft.
  • 4 rauðir chilli, hreinsið öll fræin og veggina innan í ef bragðið á ekki að vera sterkt. Saxaðir gróft.
  • 2 cm. bútur af engiferi, saxað gróft
  • 1 tsk rækjumauk (enska: Shrimp paste) fæst í asískum búðum (prófið til dæmis verslunina Filippseyjar) eða í stærri matvöruverslunum)
  • 3 scallot laukar, afhýddir og saxaðir gróft
  • 3 stór hvítlauksrif, söxuð gróft
  • 1/4 bolli fersk corianderlauf
  • 1 tsk turmeric duft
  • 3 msk rapadura sykur eða annar hrár sykur (mér finnst gott að hafa súpuna nokkuð sæta á móti þessu súra)
  • 1 dl hreint tamarind mauk (fæst í asískum búðum og sumum matvöruverslunum). Ekki það sama og tamarisósa!
  • 1 msk kókosfeiti eða ólífuolía

    Aðferð:
  • Setjið sítrónugras, chilli, engifer, rækjumauk, scallotlaukinn, hvítlaukinn og kókosfeiti eða ólífuolíu í matvinnsluvél og blandið mjög vel.
  • Bætið corianderlaufunum, turmerici, ávaxtasykri og tamarindmaukinu við og maukið vel þangað til blandan er orðin vel blönduð og litrík. Setjið í glerkrukku eða skál (ekki plast, plastið mun litast) og geymið í ísskáp þangað til á að nota maukið.

  • Ef kjúklingur er notaður þarf að steikja hann á þessum tímapunkti, 2 litlar bringur ættu að henta ágætlega. Maður á að sjálfsögðu aðeins að nota "hamingjusamar hænur" (lífrænt framleiddar og fá að vappa um frjálsar og borða hollan mat). Gott að steikja í litlum bitum eða strimlum. Ef fiskur er notaður er hann skorinn í smáa bita og settur til hliðar þangað til í lokin.

    Súpan sjálf:
  • 1 msk kókosfeiti eða ólífuolía
  • Allt kryddmaukið (sem bíður í ísskápnum)
  • 750 ml - 1 lítri vatn ásamt grænmetiskrafti (um 2-3 gerlausir teningar). Ef maður vill súpuna þynnri þá setur maður bara aðeins meira vatn út í hana. Kjúklingakraftur er notaður fyrir kjúklingasúpu og fiskikraftur ef notaður ef er fiskur í súpuna. Þeir sem hafa glúteinóþol ættu að kaupa gerlausa teninga t.d. frá Rapunzel því það getur leynst glútein í gerinu
  • 1/4 bolli ferskur coriander, saxað gróft
  • 1/4 bolli ferskt basil (helst Asian Basil), saxað gróft
  • 100 ml Nam pla (fiskisósa). Má setja meira eftir smekk, ég notaði um 100 ml
  • 1 dós fitusnauð kókosmjólk (light coconut milk. Gætið þess að hún sé hrein og lífræn framleidd, án allra aukaefna)
  • 1 lítill haus spergilkál (brokkolí), skorinn í smáa bita
  • 100 gr sveppir (mjög litlir sveppir, þannig að þurfi ekki að skera þá)
  • 150 gr shitake sveppir, ferskir ef þeir eru til, annars 20 gr þurrkaðir
  • 150 gr hrísgrjónanúðlur (brúnar ef þær eru til)

    Aðferð:
  • Hitið kókosfeitina eða ólífuolíuna á meðalhita.
  • Hrærið kryddmaukinu (úr ísskápnum) og hrærið vel, látið brúnast aðeins en ekki brenna (ætti að koma góð lykt á þessum tímapunkti).
  • Bætið við soðinu (grænmetis, kjúklinga eða fiski, eftir því hvað er notað).
  • Látið suðuna koma upp og lækkið svo hitann.
  • Bætið við fersku kryddjurtunum og fiskisósunni, látið malla í um 5 mínútur.
  • Bætið grænmetinu saman við og látið malla í um 10 mínútur (hér má bæta kjúklingnum eða fiskinum út í fyrir þá sem vilja).
  • Bætið hrísgrjónanúðlunum (ósoðnum) saman við og látið malla í um 10 mínútur eða þangað til núðlurnar eru soðnar. Hrærið varlega til að brjóta þær ekki né mauka.

  • Nota má gulrætur, maís, blómkál, gúrkur, ferskar baunaspirur og margt, margt fleira í staðinn fyrir grænmetið sem er talið hér að ofan enda segir sagan að allt að 10 þúsund innihaldsatriði geti verið í súpunni! Það má líka hafa bara sveppi eða bara spergilkál. Einnig má setja tofu út í súpuna. Nota skal firm tofu og gott er að marinera það í smástund í engiferi, soya og hvítlauk áður en því er bætt út í.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Tófú-og kjúklingabaunabuff

27. febrúar, 2003

Bragðgóð og mild baunabuff - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessi uppskrift er bara býsna góð, tófú og kartöflur er bragðlaust í sjálfu sér, en allt kryddið bætir það upp. Ég hef ekki prófað það, en ég gæti trúað að þessir borgarar væru góðir sem "hamborgarar", þ.e. í brauði með öllu saman.
 
Tófú-og kjúklingabaunabuff
Fyrir 2-3

  • 250 gr tófú, stíft (þ.e. firm)
  • 2 stórar bökunarkartöflur (200 gr), soðnar, afhýddar, kældar og stappaðar
  • 3 msk fínt saxaður graslaukur (má sleppa)
  • 200 gr kjúklingabaunir í dós, helst ósaltaðar
  • 100 gr magur, rifinn ostur
  • 50 gr fínt muldar hnetur t.d. þurrristaðar möndlur eða cashewhnetur
  • 7-10 sólþurrkaðir tómatar (olían þerruð af) skornir í litla bita
  • 1/2 tsk turmeric
  • 1/2 tsk cumin duft (ekki kúmen)
  • Smá cayennepipar
  • 1 tsk heilsusalt t.d. Herbamare (notið aðeins 1/8 tsk af salti ef kjúklingabaunirnar eru með viðbættu salti)
  • 1 tsk hvítlauksduft t.d. frá Pottagöldrum (eða 1 marið hvítlauksrif)

    Aðferð:
  • Öllu hnoðað saman í höndunum í skál.
  • Skiptið deiginu í um 15 hluta og rúllið á milli handanna, myndið litla bolta.
  • Fletjið boltana aðeins út og hafið þá u.þ.b. 1 cm. á þykkt.
  • Setjið borgarana á bökunarplötu (á bökunarpappír).
  • Bakið hvora hlið á 180-200°C í um 20-25 mínútur.

  • Ef þið viljið hafa borgarana stökkari, þá skulið þið baka þá í lengri tíma á hvorri hlið.
  • Gott er að bera fram létt-sinnepssósu með borgurunum eða hvítlauksjógúrtsósu.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Tómatsúpa frá Zanzibar

3. mars, 2006

Afrísk tómatsúpa, holl og góð. - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessi súpa er rosa einföld og æðislega góð (fyrir utan að hún er að springa úr vítamínum og andoxunarefnum!). Upprunaleg uppskrift kemur úr bók sem heitir Swahili Kitchen (sem Jóhannes gaf mér þegar hann kom frá Afríku eftir prílið á Mt. Kenya 2006) en ég bætti hvítlauk og kartöflum í uppskriftina. Tómatarnir og helmingurinn af lauknum eru grillaðir í ofninum og þeir verða algert nammi þannig. Athugið að það tekur um 40-50 mínútur að grilla þá svo gefið ykkur góðan tíma. Súpan hentar vel fyrir þá sem hafa glúteinóþol.
 
Tómatsúpa frá Zanzibar
Fyrir 3-4 sem forréttur

  • 500 gr þroskaðir tómatar
  • 4 meðalstórir laukar, saxaðir fínt
  • 2 stórir hvítlauksgeirar, kramdir
  • 160 gr kartöflur
  • 1,5 kúfuð matskeið af tómatpuree (tómatmauk)
  • 500 ml vatn
  • 1 gerlaus grænmetisteningur t.d. frá Rapunzel. Má vera meira af vatni ef þið viljið hafa tómatsúpuna þynnri en gætuð þurft að bæta grænmetisteningi við
  • 1 msk kókosfeiti
  • 1 tsk þurrkað basil
  • Pipar
  • Salt (Himalaya eða sjávarsalt)
  • 4 soðin egg (má sleppa). Ég nota bara eggjahvítuna en hendi rauðunni eftir suðu.

    Aðferð:
  • Skellið sjóðandi heitu vatni yfir tómatana og látið standa í skál í 1 mínútu.
  • Afhýðið tómatana.
  • Skerið tómatana í báta og setjið í eldfast mót (strjúkið smá kókosfeiti í eldhúspappír yfir eldfasta mótið).
  • Skerið tvo af laukunum fjórum í báta og raðið í eldfasta mótið.
  • Hitið ofarlega í ofninum við 220°C í um 40-50 mínútur eða þangað til brúnirnar á tómötunum og laukunum eru orðnar dökkar og jafnvel svartar.
  • Saxið hina laukana tvo ásamt hvítlauknum og steikið í smá kókosfeiti eða ólífuolíu á potti þangað til þeir verða mjúkir.
  • Skerið kartöflurnar í bita og setjið í pott ásamt smá kókosfeiti og vatni og tómatpuree.
  • Bætið grænmetissoðinu (vatninu og grænmetisteningnum) út í og látið kartöflurnar sjóða í um 20 mínútur.
  • Þegar þetta er orðið tilbúið, látið þá kólna aðeins.
  • Setjið í matvinnsluvél og maukið.
  • Takið nú eldfasta mótið úr ofninum, kælið aðeins og færið líka yfir í matvinnsluvélina
  • Maukið meira ef þið viljið hafa súpuna vel blandaða en minna ef þið viljið hafa bita í henni.
  • Berið fram með nýbökuðu brauði og soðnum eggjum (ég nota bara hvítuna).

  • Súpan sjálf er frábær grunnur fyrir góða grænmetissúpu. Ef þið viljið hafa meira grænmeti í henni (t.d. púrrulauk, gulrætur, sveppi, gular baunir o.s.frv.) léttsteikið þá grænmetið og látið malla í súpunni þangað til grænmetið er orðið meyrt.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Tómatsúpa Höddu

17. febrúar, 2008

Tómatsúpan hennar Höddu Fjólu Reykdal..súpan er næstum eins fallega rauð á litinn og hárið hennar! - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Hadda Fjóla Reykdal hefur áður komið við sögu á CafeSigrun en hún er stúlkan sem hengdi miðann örlagaríka upp á korktöfluna í grafíkdeild Myndlista- og handíðaskólans. Þetta var árið 1998 og ég kunni ekki einu sinni að sjóða pasta. Hadda Fjóla er myndlistarkona og ég þekki fáa sem hafa jafn gott auga fyrir litum og litasamsetningum og hún. Hún getur raðað litum saman á næstum því ljóðrænan hátt. Alveg eins og það er eitthvað óútskýranlega fallegt við fiðluverk Vivaldis...er eitthvað óútskýranlega fallegt við litameðferð Höddu. Ég er spennt fyrir sýningunni hennar sem hún ætlar að vera með í sumar hér á Íslandi en Hadda býr sem sagt í Svíþjóð ásamt manni sínum, Snorra sem er læknir og börnunum þeirra þremur. Ég hef þá kenningu að oft séu myndlistarmenn gæddir meiri náttúrulegum hæfileikum í eldhúsinu en margur annar og ég held að það sé tilkomið vegna þess að myndlistarmenn sem þekkja vel inn á liti og litameðferð hafi næma tilfinningu fyrir hráefni í mat, hvað passar saman og hvað ekki, alveg eins og t.d. hvaða litir passa vel saman í málverki. Kannski er þessi kenning ekki 100% en ég veit að í tilfelli Höddu Fjólu er hún rétt því ég fékk þessa uppskrift að tómatsúpu frá henni og hún er eins og listaverk, full af djúpu bragði, ekki of sterkir tónar, ekki of afgerandi í einu bragði og vekur með manni svipaða tilfinningu og fallegt málverk. Súpan er frábærlega holl, full af andoxunarefnum og C vítamínum og hún verður bara betri á öðrum degi. Með súpunni fylgdi smá innslag frá Höddu og ég læt það fylgja með:

"Þannig var að Lilja dóttir mín 8 ára vildi fá að elda sjálf. Fannst það ægilega mikið sport að fá að elda og velja matinn sjálf og átti ég bara að vera til taks.Valdi hún tómatsúpu, sem er mikið uppáhald hjá krökkunum. Mér leist bara mjög vel á það og fann einfalda uppskrift sem hún myndi ráða við að gera með minni hjálp. Ekki leið langur tími þar til vinkona hennar bankaði uppá og þá skyndilega nennti Lilja ekki að sjá um matseldina og lét mér það eftir. Ég var að mörgu leyti fegin af því þá hugsaði ég með mér "núna get ég laumað fullt af grænmeti í súpuna og svo maukað hana með galdrastafnum og tatatatammmm tómatsúpa börnin góð". Málið er nefnilega að þó krakkarnir mínir séu orðnir ægilega duglegir að borða fullt af mat og mikið krydduðu, þá eru þau ekki mikið fyrir súpur og hvað þá súpur með fullt af grænmeti í. Ég hófst því handa og setti risastóran pott á helluna, tók fram allt girnilegt grænmeti og galdraði fram æðislega góða súpu. Krökkunum mínum fannst súpan aðeins of sterk og viðurkenni ég að hún var pínu "fullorðins" á bragðið. Þegar ég bætti pínu vatni út á disk barnanna fannst þeim hún ekki eins sterk og voru hin ánægðustu með "tómatsúpuna" og uppljóstraði ég aldei innihaldi hennar fyrir þeim."
 
Tómatsúpa Höddu
Fyrir 4

  • 1 laukur
  • 2 gulrætur
  • 2 sellerístilkar
  • 4 kartöflur
  • 3 hvítlauksgeirar
  • 1 dós niðursoðnir tómatar (400 gr)
  • 1 msk tómatmauk (puree)
  • 500-700 ml vatn
  • 2 gerlausir grænmetisteningar frá Rapunzel (Hadda notaði 1 msk fljótandi kjúklingakraft)
  • 1/2 msk paprikuduft
  • 1,5 msk karrí (Hadda notaði sterkt karrí). Notið minna karrí og meira af tómötum ef þið viljið ekki svolítið karríbragð af súpunni
  • 1/2 msk koriander
  • 1/2 msk rósmarin
  • 1/2 tsk saffran
  • 2-3 msk tómatsósa án sykurs eða aukaefna (t.d. frá Himneskri hollustu). (Hadda notaði 2-3 msk sweet chilli sauce)
  • 120 ml undanrenna eða hrísgrjónamjólk. Gott að nota matreiðslurjóma spari. (Hadda notaði 1 peli matreiðslurjóma fitulítinn).
  • 100 gr Philadelphia light rjómaostur
  • Smávegis af heilsusalti (Herbamare) ef þarf
  • Smávegis af svörtum pipar
  • 1 msk kókosfeiti og vatn eftir þörfum

    Aðferð:
  • Skerið laukinn gróft og merjið hvítlaukinn.
  • Steikið laukinn og hvítlaukinn í kókosfeiti þangað til mjúkt og bæti vatni við ef þarf.
  • Skerið allt grænmetið gróft og steikið með lauknum.
  • Tómötum úr dós hellt yfir ásamt vatni og grænmetiskrafti.
  • Látið sjóða í 10-15 mínútur.
  • Maukið með töfrasprota þangað til allt er orðið slétt og mjúkt. Einnig má mauka í matvinnsluvél en maukið þá lítið í einu og kælið súpuna áður.Ef þið viljið hafa grófari áferð, maukið þá minna.
  • Kryddið og smakkið til.
  • Rjóma bætt út í ásamt ostinum.
  • Hér segir Hadda að eigi að láta súpuna "púttra" en ég hef ekki hugmynd um hvað orðið þýðir ha ha.
  • Berið fram með brauði.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Tær og heitsúr sveppasúpa

13. janúar, 2007

Tær og heitsúr sveppasúpa - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessi kemur úr bók sem heitir Veggie Chic eftir Rose Elliot. Súpan er sérlega bragðgóð og þó að ég ætti ekki kaffir lime leaves eða enoki sveppi þá tókst hún rosa vel. Ég notaði chestnut sveppi í staðinn og setti nokkur, söxuð spínatblöð í súpuna (það er eiginlega ekkert sem kemur í staðinn fyrir kaffir lime leaves svo það er betra að sleppa þeim frekar en að nota eitthvað annað). Að lokum setti ég eggjanúðlur út í til að gera hana matarmeiri en það má sleppa þeim og þeir sem hafa glútein- eða eggjaóþol geta notað hrísgrjónanúðlur. Jurtaætur ættu að athuga að í rauðu, thailensku kryddmauki sem maður kaupir gætu verið rækjur. Súpan er nokkuð sterk en þó ekki að mann svíði. Ef ykkur finnst sterkur matur ekki góður, þá er hægt að sleppa chillipiparnum.
 
Tær og heitsúr sveppasúpa
Fyrir 2-3

  • 1 tsk rautt, thailenskt kryddmauk (ekki með sykri eða viðbættum aukaefnum og alls engin E-efni. Þeir sem hafa glúteinóþol ættu að lesa innihaldslýsingu)
  • 125 gr ferskir shitake sveppir (stilkar ekki notaðir), sneiddir þunnt (ef ferskir fást ekki er hægt að kaupa þurrkaða sveppi og bleyta í þeim áður en þeir eru settir í súpuna)
  • 80 gr chestnut sveppir (stilkar ekki notaðir), sneiddir fínt
  • 1 rauður chilipipar, fræhreinsaður og sneiddur fínt
  • Handfylli söxuð spínatblöð (án stilkanna)
  • Safi af 1 sítrónu
  • Safi af 1 límónu
  • 3-4 msk tamarisósa
  • 100-200 gr eggjanúðlur (má sleppa). Þeir sem hafa glúteinóþol ættu að nota hrísgrjóna- eða soba núðlur (úr bókhveiti)

    Soðið:
  • 3 stilkar sítrónugras (enska: lemon grass), marðir með kökukefli
  • 6 kaffir lime leaves (má sleppa)
  • 2 þumalstórir bitar ferskt engifer, afhýtt og sneitt
  • 1,3 lítrar vatn


    Aðferð:
  • Til að útbúa soðið skuluð þið setja sítrónugrasið, engiferið og limesafann í pott ásamt 1,3 lítrum af vatni.
  • Látið sjóða í 10 mínútur.
  • Takið af hitanum og látið standa með lokinu á í um 30 mínútur til að leyfa bragðinu að taka sig. Má alveg standa lengur.
  • Fjarlægið sítrónugrasið og engiferið og hitið súpuna upp aftur.
  • Bætið rauða karrímaukinu saman við ásamt sveppunum, chillipiparnum og tamarisósunni.
  • Rífið spínatið í höndunum ofan í súpuna.
  • Bætið sítrónusafanum og tamarísósunni saman við og látið malla í nokkrar mínútur.
  • Bætið núðlum út í ef þær eru notaðar og látið þær sjóða í nokkrar mínútur, hrærið í pottinum af og til á meðan.
  • Smakkið til með meiri tamarisósu ef þarf.
  • Berið fram strax.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Útilegunúðlur

14. ágúst, 2006

Útilegunúðlur í íslenskri náttúrunni - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessi uppskrift er eiginlega hugmyndin hans Jóhannesar. Við höfðum oft keypt tilbúinn útilegumat sem maður setur vatn út í en eftir að hafa lesið innihaldslýsingar er ég hætt því, ekkert nema hert fita, litarefni og bragðefni. Ekki það sem maður vill borða í íslensku náttúrunni þar sem allt er svo hreint og tært. Það passar eiginlega ekki. Þar sem Jóhannes er svo mikill núðlukarl, datt honum í hug að gott væri að setja núðlur í poka ásamt kryddi sem væri svo hægt að hita upp í potti. Ég lagði aðeins hausinn í bleyti og mér datt í hug að taka með mér hollar pakkasúpur (keypt í Yggdrasli). Það var brilliant því við suðum súpuna, skelltum núðlunum út í og létum malla í um 7 mínútur. Þetta var frábær matur og ótrúlega einfaldur. Rétturinn var eldaður á litlum gas prímusi sem er ætlaður fyrir bakpokaferði (einfaldur og ódýr) svo maður þarf ekki að vera búinn dýrum og stórum græjum. Þennan núðlurétt prófuðum við fyrst á Síldarmannagötum í Hvalfirði, sumarið 2006. Það var svalt veður, við vorum búin að tjalda og ég að krókna úr kulda og ég var ekki lítið ánægð með að fá hlýju í kroppinn.
 
Útilegunúðlur
Fyrir 2-3

  • 300 gr speltnúðlur, hrísgrjónanúðlur eða eggjanúðlur
  • 2 pakkar af hollum pakkasúpum (fást til dæmis í Heilsuhúsinu, Yggdrasli og heilsudeild Hagkaups). Ég notaði sveppasúpu en hægt er að kaupa fleiri bragðtegundir t.d. tómatsúpu. Eiga að vera án aukaefna eða bragðefna. Kaupið helst lífrænt framleiddar súpur.
  • 10 gr þurrkaðir sveppir (má sleppa)
  • Smá salt og pipar (sem má geyma í pínu pons staukum og hafa með)
  • Þið þurfið um 1,5 lítra pott

    Aðferð:
  • Blandið súpunni út í kalt vatn (magn vatns samkvæmt leiðbeiningum) og hrærið. Athugið að sumar súpur þarf að blanda í heitt vatn svo lesið leiðbeiningarnar með súpunni.
  • Látið suðuna koma upp.
  • Þegar suðan er komin upp setjið þá núðlurnar út í og látið malla í um 7 mínútur (fer eftir veðri, ef er rok, reynið þá að búa til skjól fyrir prímusinn).
  • Ef þurrkaðir sveppir eru notaðir, setjið þá út í.
  • Kryddið með salti og pipar.
  • Berið fram og njótið úti í náttúrunni.


  • Fyrir kjötæturnar væri hægt að kaupa skinkubréf og rífa í strimla út í (það eru reyndar óholl efni í tilbúinni skinku í pakka en sumir láta það ekkert stoppa sig he he).
  • Jafnvel væri hægt að kaupa smávegis af fiski (t.d. snyrtri smálúðu eða ýsu) og setja út í en það þyrfti þó að vera á fyrsta degi göngunnar/útilegunnar þar sem fiskurinn myndi ekki geymast lengi í velktum poka.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Útilegupottréttur með kúskús

7. nóvember, 2006

Útilegupottréttur með kúskús - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þennan pottrétt er búið að gera ódauðlegan þar sem mynd af honum birtist í Fréttablaðinu um daginn vegna viðtals um CafeSigrun. Það steig pottréttnum ekkert til höfuðs og ég ákvað því að birta uppskriftina (en bara eftir að hann bað mig um að laga sig í Photoshop!). Að öllu gamni slepptu þá er þetta sniðugur réttur fyrir þá sem eru að hugsa um heilsuna upp á fjöllum og vilja hollan og góðan rétt í stað þess að kaupa tilbúinn (miður hollan) rétt í útilegubúðum. Ég ætla ekki einu sinni að nefna Pot Noodles eða núðlupakkasúpur á nafn (það eru bannyrði á mínu heimili). Ég taldi um 6 E-efni (og fleiri óæskileg efni) utan á einum núðlusúpupakka um daginn.

Allavega, nóg komið af röfli. Hér er einföld og góð uppskrift að pottrétti sem tekur enga stund að elda. Maturinn er líka mun léttari en hefðbundin súpa í pakka til dæmis. Þetta skiptir allt máli þegar maður er í gönguferð. Við borðuðum þennan rétt á göngu í Skotlandi sumarið 2006. Gangan var frábær, við borðuðum kvöldmatinn með útsýni yfir vötn, fjöll og firnindi í glampandi sól. Morguninn eftir var reyndar grenjandi rigning og slagveður af verstu sort og við næstum orðin innilokuð í tjaldinu okkar sem við plöntuðum við litla lækinn (sem nú var orðinn að beljandi stórfljóti) en það er annað mál he he.
 
Útilegupottréttur með kúskús
Fyrir 2-3

  • 2 pakkar af hollri pakkasúpu t.d. með tómatgrunni. Fæst í heilsubúðum eða í heilsudeildum stærri verslana. Það ættu ekki að vera nein skrýtin efni eins og MSG í súpunni og sykur ætti heldur ekki að vera í henni. Kaupið helst lífrænt framleiddar súpur
  • 100-200 gr kúskús (eftir því hvað þið viljið hafa pottréttinn þykkan)
  • Krydd í poka eða litlu íláti t.d. heilsusalt (Herbamare) og pipar og kannski hvítlaukskrydd frá Pottagöldrum

    Aðferð:
  • Sjóðið súpuna samkvæmt leiðbeiningum. Yfirleitt er best að hella súpuduftinu út í pott og hella smávegis af köldu vatni og hræra. Lesið þó leiðbeiningarnar vel.
  • Þegar súpan er farin að malla, hellið þá kúskúsinu út í. Ekki hella öllu í einu því súpan þykknar mikið og gott að hafa hana ekki of þurra, sérstaklega ef er kalt í veðri og maður vill fá hlýju í kroppinn. Bætið meira kúskúsi í eftir um 2 mínútur þegar hitt hefur náð að belgjast út.
  • Kryddið.
  • Njótið úti í náttúrunni.

  • Það má nota margar tegundir af súpum saman í svona pottrétt, t.d. er gott að nota tómatsúpu, sveppasúpu, gulrótarsúpu o.s.frv. saman.
  • Til að gera súpuna matarmeiri er hægt að bæta soyakjöti saman við.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Útilegusúpa með þurrkuðum sveppum og hrísgrjónanúðlum

1. september, 2007

Fínasta útilegumáltíð - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Frábær máltíð sem maður myndi ekki einu sinni vera óánægður með á fínasta veitingahúsi en úti í náttúrunni, uppi á fjalli með fallegt útsýni, við sætan læk í góðu veðri er bara ekkert betra!
 
Útilegusúpa með þurrkuðum sveppum og hrísgrjónanúðlum
Fyrir 2 svanga göngugarpa

  • 2 pakkar sveppasúpa, lífrænt framleidd (úr heilsubúð). Þeir sem hafa glúteinóþol ættu að skoða innihaldslýsingu. Spyrjist fyrir í heilsubúðum um pakkasúpur án glúteins.
  • 1 lítri kalt vatn
  • 5-7 gr þurrkaðir sveppir
  • 100-150 gr hrísgrjónanúðlur
  • Heilsusalt (Herbamare)
  • Pipar

    Aðferð:
  • Áður en lagt er af stað í ferðina skuluð þið blanda saman súpuduftinu, þurrkuðum sveppum og salti/pipar eftir smekk í plastpoka. Hafið hrísgrjónanúðlurnar í sérpoka.
  • Á áningastað skuluð þið blanda saman 1 lítra af köldu vatni við þurrefnin. Hrærið mjög vel.
  • Þegar súpan er alveg að fara að sjóða, skuluð þið setja hrísgrjónanúðlurnar í og láta malla í 5 mínútur eða svo.
  • Berið fram strax.
  • Gott er að grilla gróf pítubrauð eða speltkökur (fyrir þá sem þola ger og/eða glútein). Best er að gera það áður en súpan er elduð. Gætið þess samt að eiga nægilegt gas fyrir súpuna og allt annað sem þið ætlið að elda!

  • Það má endalaust setja meira af góðgæti ofan í súpuna. Gott er að blanda saman þurrkuðum paprikubitum, þurrkuðum maísbaunum o.s.frv. í súpuna. Fyrir kjötæturnar má saxa skinku og taka með sér í ferðalagið. Það má undirbúa súpugrunninn og kjötæturnar geta sett skinkuna út í þegar grænmetisæturnar eru búnar að fá sér á sinn disk
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Vefjur með grænmeti

13. janúar, 2004

Þessi uppskrift kemur úr uppáhaldsbókinni minni þ.e. Grænn Kostur-Hagkaupsbókinni. Hún er frábær og ég mæli með því að allir eigi eintak!
 
Vefjur með grænmeti
Fyrir 3

  • 8 tortillavefjur (helst úr spelti)
  • 250 gr ferskt spínat
  • 150 gr lambhagasalat
  • 1 vel þroskað avacado
  • 4 msk sesamfræ, þurrristuð á pönnu
  • 1/2 gul eða rauð paprika
  • 2 tómatar skornir í sneiðar

  • Aðferð:

  • Skerið allt grænmeti í fínar sneiðar.
  • Skolið lambhagasalatið og spínatið og setjið í skál.
  • Þurristið sesamfræin.
  • Berið allt fram í sérskálum og hver og einn raðar eftir smekk í sína vefju.

  • Það má auðvitað nota alls konar grænmeti í staðinn fyrir það sem er talið hérna upp.
  • Það er gott að setja smá slettu af mildri salsasósu inn í vefjuna.
  • Það er einnig gott að setja 1/2 tsk af tamarisósu inn í vefjurnar.
  • Þetta er mjög sniðugt sem nesti í skóla eða vinnu (brýtur aðeins upp á samlokurútínuna) og svo er þetta sniðugt líka sem partímatur þ.e. niðurskornar vefjur (rúlla þeim þétt upp og skera í mjóar sneiðar og raða á disk).
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Vefjur með spínati og hummus

13. mars, 2006

Vefjur með spínati og hummus - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessi réttur er svo hollur og svo einfaldur að það er hálf asnalegt að borða hann ekki oftar! Það sem er líka æðislegt við hann er að maður getur búið til heilan helling og borðað í 2 daga eða haft með sér í nesti. Nammi namm. Þetta er hinn fullkomni föstudagsmatur.
 
Vefjur með spínati og hummus
Fyrir 3-5

  • 8 maísvefjur (hægt að nota spelt eða hveitivefjur (tortilla) líka)
  • Hummus
  • Ferskt spínat, skolað
  • Lambhagasalat eða Rúkóla (Ruccola)
  • 1,5 (eða ein stór) appelsínugul eða gul eða rauð paprika, sneidd í mjóar ræmur
  • 1 stórt, vel þroskað avacado, skorið í mjóar ræmur
  • 2 tómatar, sneiddir í þunnar sneiðar (hægt að nota kirsuberjatómata líka og skerið þá í helminga)
  • 1 dl furuhnetur (enska: Pine nuts), þurristaðar á pönnu
  • 1 dl sólblómafræ, þurristaðar á pönnu

    Aðferð:
  • Vefjurnar eru hitaðar aðeins á flatri pönnu.
  • Raðið grænmetinu snyrtilega á disk og berið fram ásamt salatinu, furuhnetum, sólblómafræjum og hummusnum. Allt á að vera í sérskálum.
  • Hver og einn raðar í sína vefju það sem hann/hún hefur áhuga á.
  • Einnig má búa til vefjurnar og skera hverja í 3 bita og bera svoleiðis fram.

  • Það er rosa sniðugt að hafa þennan mat með sér t.d. í sumarbústað eða útilegu því það er hægt að undirbúa allt hráefnið vel fyrirfram (nema að hita vefjurnar en það er heldur ekkert nauðsynlegt).
  • Gott er að setja 1/2 tsk af tamarisósu inn í hverja vefju.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Zanzibar baunir með sætum kartöflum í kókossósu

1. júlí, 2007

Afrísk áhrif - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Zanzibar tilheyrir Tanzaníu sem liggur í austurhluta Afríku. Ég hef ekki enn þá komið til Zanzibar þó ég hafi komið oft til austur Afríku en stefni af því í framtíðinni enda ákaflega falleg eyja. Þar eru hefðirnar sterkar í anda Araba og Indverja og áhrif af sætkrydduðum mat frá t.d. í Indlandi eru greinileg hér. Uppskriftin kemur úr bók sem ég á sem heitir World Food Cafe og heitir eftir samnefndum veitingastað í London. Veitingastaðurinn er grænmetisstaður og aldeilis frábær matur þar, einn af okkar uppáhalds stöðum. Hann er staðsettur í Neal’s Yard, Covent Garden fyrir þá sem vilja prófa hann. Athugið þó að hann er lokaður á sunnudögum! Ég mæli með bókinni, hún er full af frábærum uppskriftum og fróðleik um menningu þessa staða sem eigendur World Food Cafe heimsóttu. Þessi réttur er einn af þeim sem verður bara betri daginn eftir og er frábær á þriðja degi í nestið. Um að gera að búa til slatta!
 
Zanzibar baunir með sætum kartöflum í kókossósu
Fyrir 4-6

  • 2 tsk kókosfeiti eða ólífuolía
  • 450 gr sætar kartöflur, skornar í teninga (um 2cm)
  • 1 stór laukur, saxaður fínt
  • 6 hvítlauksgeirar, marðir
  • 5 cm. bútur af engiferi, afhýtt og saxað fínt
  • 6 negulnaglar, malaðir gróft (má líka nota duft en þá um 1/2 tsk)
  • 4 kardimommufræ (má sleppa)
  • 2 tsk turmericduft
  • 6 grænir chilli, skornir eftir endilöngu í 4 hluta og svo þær lengjur í helminga
  • Ein lúka corianderlauf, rifin
  • 400 ml kókosmjólk (light ef þið finnið svoleiðis)
  • 450 gr soðnar augnbaunir (black eyed peas, þessar hvítu með svörtu doppunum). Það þarf ekki að leggja þær í bleyti heldur er nóg að sjóða þær í 50 mínútur.
  • Svartur pipar
  • Heilsusalt (Herbamare)

    Aðferð:
  • Hitið 1 tsk af olíunni á stórri pönnu og bætið við vatni ef þarf.
  • Hitið sætu kartöflurnar þangað til þær eru nánast tilbúnar og mjúkar í gegn (samt ekki alveg í mauk). Setjið til hliðar.
  • Setjið restina af olíunni á pönnuna ásamt vatni ef þarf og steikið laukinn, hvítlaukinn og engiferið þangað til þetta er orðið mjúkt.
  • Bætið öllu kryddinu við ásamt chilli og coriander og hitið í um 3 mínútur.
  • Bætið kókosmjólkinni við, sætu kartöflunum og baununum.
  • Leyfið þessu að malla þangað til kartöflurnar eru orðnar alveg tilbúnar.
  • Berið fram með grjónum og góðu salati.

  • Það má nota nýrnabaunir í staðinn fyrir augnbaunir.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Ævintýragrasker í kókosmjólk

20. október, 2007

Ævintýragraskerið frá Nairobi - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessi réttur fylgdi með spínatréttinum úr dularfulla húsinu í skóginum í Nairobi. Mjög einfaldur réttur sem hentar vel sem meðlæti. Upplagður þegar grasker eru komin á kreik í október og nóvember.
 
Ævintýragrasker í kókosmjólk
Fyrir 4 sem meðlæti

  • 200 gr grasker
  • 50 ml kókosmjólk, létt (enska: Coconut milk, light)
  • 1 tsk heilsusalt (Herbamare)

    Aðferð:
  • Takið börkinn af graskerinu og skerið graskerið í grófa bita (munnbitsstóra).
  • Sjóðið graskerið í vatni og salti þannig að fljóti yfir.
  • Sjóðið í um 15 mínútur eða þangað til graskerið er nokkuð mjúkt þó ekki alveg lint.
  • Hellið vatninu af og setjið aftur í pottinn ásamt kókosmjólkinni. Saltið.
  • Hitið en sjóðið ekki.
  • Berið fram heitt.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp