Forsíða CafeSigrun.com
Fara beint í leiðarkerfi vefjarins
Í dag er 30. júlí, 2010
 

Brauð

Hér má finna uppskriftir af alls kyns brauði eins og indverskum flatkökum, grófum brauðbollum, gulrótarbrauði og fleiri. Allar uppskriftirnar eru gerlausar, innihalda ekki hvítt hveiti og ekki sykur (nema ávaxtasykur eða sætuefni eins og agavesíróp eða hunang). Ég nota yfirleitt spelti en hægt er að nota til dæmis heilhveiti til helminga við spelti ef þið viljið drýgja það eða prófa ykkur áfram í bakstrinum.





Brauð með kryddjurtum og vorlauk

6. nóvember, 2009

Einfalt og gott brauð - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þetta er auðvelt brauð að búa til og svolítið öðruvísi með skemmtilegri áferð af sojamjölinu. Nota má spelti í staðinn eða það sem ykkur dettur í hug en í þetta brauð passar mjög vel að nota sojamjöl. Hægt er að kaupa slíkt mjöl í heilsubúðum og heilsudeildum stærri verslana. Þið getið notað hvaða fersku krydd sem þið eigið til t.d. timian, steinselju, basil, rosemarin o.fl. Ég notaði steinselju, timian og basil. Ef þið eigið ekki fersk krydd getið þið bjargað ykkur með þurrkuð. Einnig er gott að nota ferkst krydd sem er orðið slappt. Ég notaði sojamjólk og sítrónusafa en ef þið notið súrmjólk, jógúrt eða AB mjólk í staðinn fyrir sojamjólk getið þið sleppt sítrónusafanum. Brauðið er ekki létt þ.e. það er svolítið þétt í sér en það er bara gaman.
 
Brauð með kryddjurtum og vorlauk
Gerir 1 brauð

  • 100 gr sojamjöl
  • 125 gr spelti
  • 200 ml sojamjólk (einnig má nota haframjólk, hrísmjólk, möndlumjólk, undanrennu, súrmjólk, AB mjólk eða jógúrt)
  • 2 msk sojamjólk (til að pensla yfir brauðið. Einnig má nota hrísmjólk, möndlumjólk, haframjólk eða undanrennu)
  • 2 tsk sítrónusafi (má sleppa ef þið notið súrmjólk, AB mjólk eða jógúrt)
  • 2 tsk vínsteinslyftiduft
  • 3 vorlaukar, saxaðir (allt notað nema ljósi, breiði endinn neðst)
  • 3 msk ferskar kryddjurtir, saxaðar smátt (ef þið notað þurrkuð krydd skuluð þið nota aðeins minna magn)
  • 1/4 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
  • 1 msk kókosolía
  • 4-5 sólþurrkaðir tómatar (ekki í olíu), saxaðir smátt

    Aðferð:
  • Blandið saman sojamjólk og sítrónusafa í skál. Látið standa í nokkrar mínútur eða þangað til mjólkin fer að hlaupa í litla kekki.
  • Blandið saman sojamjöli, spelti, vínsteinslyftidufti og salti í aðra stærri skál.
  • Ef þið kaupið sólþurrkaða tómata í olíu, þerrið hana þá af með eldhúspappír)
  • Blandið saman kryddjurtunum, sólþurrkuðu tómötunum og vorlauknum út í skálina með sojamjölinu.
  • Setjið sojamjólkina og sítrónusafann út í skálina með sojamjölinu.
  • Bætið kókosolíunni út í.
  • Hnoðið deigið lauslega (svo að séu ekki stórar sprungur í því).
  • Mótið hleif úr deiginu.
  • Setjið hleifinn á bökunarplötu sem búið er að klæða með bökunarpappír.
  • Skerið grunnar raufar á ská í hleifinn með beittum hnífi.
  • Penslið sojamjólk yfir hleifinn.
  • Bakið við 220°C í 20-25 mínútur.

  • Gott er að bera fram brauðið með t.d. hummus eða góðum smurosti.
  • Athugið að brauðið verður frekar þétt í sér.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Brauð með sólblóma- og sesamfræjum

5. mars, 2003

Brauð með sólblóma- og sesamfræjum - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessi uppskrift var að mig minnir aftan á speltpakkanum sem við keyptum í fyrsta skipti. Það var ekkert auðvelt að fá spelti hérna í London fyrst eftir að við fluttum árið 2001 og við fórum alltaf inn í Soho í hjarta London, í uppáhaldsheilsubúðina okkar, Fresh and Wild og keyptum Doves Organic Spelt. Þessi búð, er snilld, og hana sækir allt fræga fólkið til að sinna sínum dyntum og sérþörfum, allt frá Madonnu til Mr.Bean!!!! Madonna vill nefnilega einhverjar ákveðnar vörur, frá ákveðnum lífrænum ræktanda, sem er gróðursett bara þegar tunglið situr á einhverjum ákveðnum stað og bara tekið upp þegar það er búið að færast ákveðið mikið. Ég er nú ekki alveg svona sérvitur, þó sérvitur sé. Ég væri það kannski ef ég ætti svona marga peninga, he he
 
Brauð með sólblóma- og sesamfræjum
Gerir 1 brauð

  • 7 1/2 dl spelti
  • 2-3 dl ósæt soyamjólk (eða undanrenna). Getur verið að þurfi meiri/minni vökva en prófið ykkur áfram með 0,5 dl í einu.
  • 1 dl sólblómafræ (má setja hvað sem er, t.d. haframjöl, hörfræ, hnetur)
  • 1/4 dl sesamfræ
  • 2 msk vínsteinslyftiduft (það var venjulegt lyftiduft í upphaflegu uppskriftinni)
  • 1/2 dl hveitiklíð
  • 1 tsk heilsusalt (Herbamare)

    Aðferð:
  • Blandið þurrefnunum saman í skál.
  • Hrærið soyamjólkinni saman við smátt og smátt. Setjið deigið í formkökuform sem er búið að klæða með bökunarpappír. Deigið á að vera frekar blautt en ekki þannig að dropi af sleif.
  • Bakið við 190-200°C í 50-60 mín (Þar til brauðið losnar frá mótinu.)
  • Ef þið viljið harða skorpu allan hringinn þá er gott að taka brauðið úr forminu síðustu 10 mínúturnar og setja á hvolf í ofninn.
  • Brauðið er tilbúið þegar þið stingið prjóni inn í miðju brauðsins og hann kemur hreinn út.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Brauð með sætum kartöflum, kornmjöli og hirsi

7. nóvember, 2006

Brauð með sætum kartöflum, kornmjöli og hirsi - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Ég bjó til þetta brauð úr afgöngum sem ég átti úr sætum kartöflum. Þetta er hollt og gott brauð en verður svolítið þurrt á öðrum degi svo það er upplagt til að rista í brauðrist daginn eftir.
 
Brauð með sætum kartöflum, kornmjöli og hirsi
Gerir 1 brauð

  • 375 gr spelti
  • 70 gr sætar kartöflur, soðnar eða bakaðar (þangað til þær verða mjúkar) og stappaðar. Hýðið má vera á.
  • 100 gr kornmjöl (enska: polenta)
  • 20 gr hirsi
  • 20 gr sesamfræ
  • 2 tsk vínsteinslyftiduft
  • 1 tsk heilsusalt (Herbamare)
  • 2-3 dl jógúrt, mjólk, soyamjólk eða ab mjólk
  • 1 msk kókosfeiti

    Aðferð:
  • Blandað saman kornmjöli, hirsi, sesamfræjum og lyftidufti, salti og spelti.
  • Blandið sætu kartöflunum saman við, hrærið vel.
  • Bætið vökvanum saman við ásamt kókosfeitinni, smátt og smátt, þangað til deigið er blautt án þess að það leki af sleif í klessum.
  • Setjið í brauðform sem búið er að klæða með bökunarpappír.
  • Bakið í um hálftíma við 180°C.

  • Nota má sólblómafræ, graskersfræ, sinnepsfræ og margt fleira í stað sesamfræjanna.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Brauð með öllu mögulegu í

5. mars, 2003

Þetta er fyrsta brauðið sem ég bakaði úr spelti og það var bara mjög gott. Ég hef örugglega fengið þessa uppskrift af Grænum kosti því hún er mjög svipuð einni þaðan. Spelti er mun hollara og næringarríkara en venjulegt hveiti og margir sem eru með hveitióþol, þola vel að borða spelti. Það er miklu dýrara en venjulegt hveiti en alveg þess virði því það fer mun betur í maga. Svo er líka hægt að blanda heilhveiti og spelti til helminga til að drýgja það. Spelti fæst í flestum heilsubúðum.
 
Brauð með öllu mögulegu í
Gerir 1 brauð

  • 5 dl spelt
  • 1 dl sólblóma + sesamfræ eða sojamjöl eða kókosmjöl + gulrætur
  • 3 tsk vínsteinslyftiduft (í upprunalegu uppskriftinni var venjulegt lyftiduft)
  • 1/2 - 1 tsk heilsusalt (Herbamare)- í upprunalegu uppskriftinni var sjávarsalt
  • 2 dl ab-mjólk eða sojamjólk
  • 2 dl soðið vatn (gætuð þurft minna)

    Aðferð:
  • Blandið þurrefnum saman í skál
  • Hellið vökvanum varlega út í 0,5 dl í einu og blandað varlega saman
  • Setjið í form sem er klætt með bökunarpappír
  • Bakið í ca 25 - 30 mín við 200°C

  • (Til að fá harða skorpu allan hringinn er gott að taka brauðið úr forminu síðustu 15 mín, snúa við og leggja á bökunarpappírinn)
  • Það er hægt að setja ýmislegt útí eins og sólþurrkaða tómata eða ólífur eða gulrætur eða hvítlauk og kryddjurtir
  • Gætið þess að deigið sé ekki of blautt, það er ágætt að miða við að deigið festist ekki við skálina ef þið hnoðið það létt
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Bruschetta (snittubrauð með tómötum, hvítlauk og ólífuolíu)

8. maí, 2006

Bruschetta með tómötum, hvítlauk og ólífuolíu - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þetta er svoooo, svoooo, svoooo gott og ekki versnar það með vel þroskuðu avacado söxuðu ofan á tómatana. Namm. Ítalir myndu sennilega fórna höndum yfir þessari útgáfu af bruschetta (brúsketta), með heimabökuðu speltsnittubrauði en mér er alveg sama he he. Fyrir þá sem vilja vera voða ítalskir þarf að kaupa venjulegt snittubrauð en þetta dugar allavega vel fyrir mig. Það sem er svo frábært við bruschetta er að það er einfalt, yfirþyrmandi hollt (tómatar, extra virgin ólífuolía, hvítlaukur) og svo hressandi. Það er sko ekkert skrýtið að Ítalir lifi svona lengi! Bruschetta er upplagt sem létt snarl eða forréttur en við borðum það reyndar oft sem léttan kvöldmat líka....bara nógu mikið af því..enda erfitt að hætta!
 
Bruschetta (snittubrauð með tómötum, hvítlauk og ólífuolíu)
Fyrir 5-6 sem forréttur

  • Snittubrauð (um 8-10 sneiðar, og 1,5 cm. þykkar)
  • 4 vel þroskaðir plómutómatar (eða tómatar on the vine, saxaðir frekar fínt
  • 2-3 stór hvítlauksrif skorin í tvennt
  • Góð ólífuolía (extra virgin)
  • Sjávarsalt eða Himalaya salt
  • Svartur, grófur pipar

    Aðferð:
  • Sneiðið snittubrauðið.
  • Ristið í brauðrist.
  • Nuddið hvítlauknum aðeins í brauðið (má ekki vera of sterkt hvítlauksbragð).
  • Raðið tómötum ofan á sneiðarnar í hrúgu.
  • Dreypið nokkrum dropum af ólífuolíu á hverja sneið (ofan á tómatana).
  • Saltið og piprið eftir smekk.

  • Það er algjörlega æðislegt að saxa vel þroskað avacado ofan á líka.
  • Hægt er að saxa ferskt basil og dreifa ofan á en einnig er gott að setja þunna mozarella sneið undir tómatana.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Chapati (indverskar flatkökur)

26. maí, 2003

 - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þetta brauð ætti með réttu að heita "heimsins einfaldasta brauð". Það hentar vel með indverskum mat því það er hlutlaust í bragði (minnir helst á ristað pítubrauð en er samt gerlaust) og gott að nota til að dýfa í sterkar sósur og svoleiðis.
 
Chapati (indverskar flatkökur)
Gerir c.a. 10 chapati brauð

  • 250 gr spelti
  • 1 tsk heilsusalt (Herbamere)
  • Um 200 ml vatn (meira eða minna eftir þörfum)
  • Smá kókosfeiti eða ólífuolía í þurrku til að strjúka yfir pönnuna
  • Járnpanna (t.d. pönnukökupanna sem má brenna við á)

    Aðferð:
  • Blandið saman speltinu og saltinu í skál
  • Gerið holu í miðjuna og hellið vatninu í
  • Hnoðið deigið í um 10 mínútur eða þangað til það er hætt að festast við skálina
  • Setjið viskustykki yfir skálina og leyfið deiginu að standa í kæliskáp í um 30 mínútur
  • Hnoðið deigið aftur mjög vel og skiptið því í 12 litla bita
  • Fletjið hvern bita út í kringlótta "köku" ( u.þ.b. eins og undirskál að stærð) og passið að hafa nóg af hveiti bæði undir deiginu og ofan á því (þegar þið rúllið með kökukeflinu)
  • Hitið pönnuna vel og setjið smá ólífuolíu á pönnuna (ég set smá ólífuolíu á þurrkubút og strýk henni yfir pönnuna)
  • Leggið hverja köku ofan á pönnuna og hitið þangað til koma "blöðrur" í deigið
  • Snúið við og notið fiskispaða til að þrýsta kökunni niður á pönnuna.

  • Kökurnar mega alveg vera svolítið brenndar, það gefur þeim bara meira bragð og karakter.
  • Það má gjarnan setja krydd eins og coriander, basil o.fl. í brauðið.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Góðar brauðbollur með öllum mat

5. mars, 2003

Góðar brauðbollur sem passa með öllum mat - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Ég nota ekki ger, en ef þið viljið prófa þessa uppskrift með geri, þá er hægt að finna upprunalegu uppskriftina í "Af bestu lyst II". Ég nota kókosfeiti í stað ólífuolíunnar og notaði spelti í stað hveitis og vínsteinslyftiduft í stað lyftidufts. Einnig notaði ég agavesíróp í stað sykurs.
 
Góðar brauðbollur með öllum mat
Gerir 12 bollur

  • 500 ml kalt vatn (líka rosa gott að nota jógúrt, súrmjólk eða AB mjólk)
  • 1 msk kókosfeiti
  • 1/2 dl sólþurrkaðir tómatar án olíu (ef þeir eru með olíu má þerra þá með eldhúspappír)
  • 1 msk heilsusalt (Herbamere)
  • 2 tsk agavesíróp (má sleppa)
  • 700 gr spelti
  • 2 msk vínsteinslyftiduft
  • 1/2 dl grænar ólífur

    Aðferð:
  • Saxið ólífur og sólþurrkaða tómata smátt.
  • Sigtið saman spelti, salt og lyftiduft og blandið saman við ólífurnar og tómatana.
  • Hrærið saman agavesírópi og kókosfeiti
  • Bætið vatninu eða því sem þið notið saman við.
  • Hnoðið vel þangað til deigið er orðið mjúkt.
  • Skiptið deiginu í 12 stykki, það má vera svolítið óreglulegt.
  • Bakið við 225°c í 15-20 mínútur.

  • Í staðinn fyrir sólþurrkaða tómata og ólífur má nota t.d. rúsínur, furuhnetur (pine nuts), ristuð sesamfræ, sinnepsfræ, graskersfræ og margt fleira
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Grjónaklattar

5. janúar, 2009

Saðsamir, ódýrir og auðveldir grjónaklattar - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessir klattar eru komnir frá konu að nafni Sigga Rúna en var send mér af Lísu sem á uppskriftina að Frönsku súkkulaðikökunni hér á vefnum. Ég fékk að birta uppskriftina enda alveg stórgóð og auðveld og mjög 2009 þ.e. ódýr, sannkallaðir Kreppuklattar!! Þetta er einstaklega góð aðferð við að drýgja grautarafganga t.d. af hafragraut eða grjónagraut. Ef nota á uppskriftina sem brauð setur maður aðeins 1 tsk af agavesírópi og sleppir vanilludropum en annars fylgir maður uppskriftinni hér fyrir neðan. Þessi uppskrift virðist laða að sér bæði tví- og ferfætlinga því einu sinni þegar Lísa var að baka klattana kom þar aðvífandi hundahópur (tík með hvolpa) og hreinlega lagðist á gluggana. Uppskriftin laðar gjarnan að sér tvífætlinga í formi svangra gesta líka sem og eiginmanna hef ég tekið eftir. Við Lísa breyttum aðeins uppskriftinni (tókum út smjör, notum 1 eggjahvítu en ekki rauðuna) og ég nota sojamjólk í stað undanrennu. Hugmyndina á þó Sigga Rúna og ég þakka henni fyrir að fá að birta uppskriftina og Lísu fyrir að senda mér uppskriftina. Tillögurnar hér að neðan eru okkar Lísu en ég efast ekki um að Sigga Rúna hafi hugsað um svipaðar samasetningar.
 
Grjónaklattar
Gerir 6-8 klatta

  • 150 gr spelti
  • 150 gr soðin hýðishrísgjrón (eða bygggrjón). Einnig má nota afgang af grjónagraut eða hafragraut og þá má nota minna af sojamjólk
  • 50 ml sojamjólk (einnig má nota möndlumjólk, haframjólk, hrísmjólk eða undanrennu). Má nota minna ef notaður er tilbúinn hafragrautur eða grjónagrautur
  • 2 msk kókosfeiti
  • 1 eggjahvíta
  • 100-150 ml sojamjólk (einnig má nota möndlumjólk, haframjólk, hrísmjólk eða undanrennu)
  • 1 tsk vanilludropar eða vanilluduft úr heilsubúð
  • 2 msk agavesíróp
  • 1/2 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)

    Aðferð:
  • Setjið soðnu hrísgrjónin og 50 ml af sojamjólk í matvinnsluvél og blandið vel. Setjið til hliðar.
  • Setjið spelti og salt í skál.
  • Blandið saman eggjahvítu, agavesírópi og kókosfeiti í litla skál. Hrærið vel og hellið út í grautinn.
  • Hellið grautnum út í speltið og hrærið saman.
  • Blandið mjólkinni saman við, smátt og smátt þannig að deigið líkist að lokum grófu vöffludeigi. Deigið ætti að vera það fljótandi að það leki hratt af sleif.
  • Hitið pönnu í meðalhita.
  • Hellið tæplega einni ausu af deigi á pönnuna. Hitið í nokkrar mínútur.
  • Snúið við með flötum, breiðum spaða og hitið í nokkrar mínútur.
  • Einnig má hita klattana á flötu samlokugrilli.

  • Til að nota klattana sem “brauð” má sleppa agavesírópinu (eða nota 1 tsk eingöngu).
  • Klattarnir henta vel með osti, sultu, hnetusmjöri o.fl.
  • Til að gera klattana meira kryddaða má sleppa agavesírópinu og setja ferskar eða þurrkaðar kryddjurtir út í deigið.
  • Einnig er gott að setja t.d. 100 gr af ýmsu fínt söxuðu hráefni t.d. rauðlauk, papriku, sveppi o.fl.
  • Gott er að setja 1 tsk af kanil í deigið ef nota á klattana undir sætt meðlæti.
  • Til að gera klattana alveg svakalega djúsí er gott að setja 50 grömm af söxuðum döðlum út í deigið. Einnig má nota rúsínur.
  • Gott er að setja 50 gr af söxuðum möndlum eða heslihnetum í deigið (og ekki verra að hafa saxaðar döðlur líka).
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Gróft, fjölkornabrauð

5. mars, 2003

Gróft og hollt brauð - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Ég setti alltaf 1 dl af hörfræjum í þessa uppskrift en fékk svo hroðalega í magann af þeim að ég er farin að setja mun minna. Maður getur alveg fiktað með innihaldið í þessu brauði því uppskriftin er svo einföld og sveigjanleg. Sérlega próteinríkt, trefjaríkt og vítamínríkt brauð. Sannkallað hollustubrauð.
 
Gróft, fjölkornabrauð
Gerir 1 brauð

  • 1/8 dl hörfræ
  • 1/2 dl sesamfræ
  • 1/2 dl sólblómafræ
    (ath má skipta sesamfræjunum út fyrir t.d. haframjöl, birkifræ, hveitiklíð eða eitthvað annað)
  • 600 gr spelti
  • 2 msk vínsteinslyftiduft
  • 2 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
  • 1/2 lítri jógúrt/létt súrmjólk eða létt AB-mjólk (eða undanrenna) (má líka nota sojamjólk, haframjólk eða möndlumjólk og þá er gott að setja 1 msk af sítrónusafa með)
  • 1-2 dl vatn

    Aðferð:
  • Hrærið öll þurrefnin saman. Bætið vökvanum út í, deigið á að vera frekar blautt/klístrað.
  • Setjið bökunarpappír í brauðform.
  • Hellið deiginu í brauðformið.
  • Bakið í 175°c heitum ofni í 1 klst (ef eru gerðar bollur þarf minni tíma, eða um 30 mínútur). Gott er að athuga brauðið eftir um 45 mínútur (stinga prjóni inn í brauðið, ef hann kemur hreinn út er brauðið tilbúið).

  • Brauðið hentar vel til frystingar og það er líka mjög gott að búa til brauðbollur úr þessu deigi
  • Til að fá harða skorpu allan hringinn, takið þá brauðið úr forminu og leggið það á hvolf á bökunarplötuna síðustu 10-15 mínúturnar
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Grunnuppskrift að brauði

5. mars, 2003

Gróft og gott brauð við öll tækifæri - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Það er hægt að nota allt mögulegt í þetta brauð, hnetur, haframjöl, ólífur og krydd og bara hvað sem til er í skápnum. Mjög einfalt og tekur stuttan tíma að búa til.
 
Grunnuppskrift að brauði
Gerir 1 brauð

  • 5 1/2 dl spelti
  • 4 dl ab - mjólk eða súrmjólk (minna ef ykkur finnst deigið verða of blautt, setjið einn desilítra í einu). Einnig má nota sojamjólk, haframjólk, möndlumjólk eða hrísmjólk og þá er gott að setja 1 tsk af sítrónusafa saman við.
  • 1,5 dl haframjöl, sólblómafræ, hörfræ, hirsi, sesamfræ eða það sem ykkur dettur í hug að setja í brauðið
  • 1,5 msk vínsteinslyftiduft
  • 1 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
  • 1 tsk agavesíróp

    Aðferð:
  • Blandið þurrefnunum saman í skál.
  • Hrærið ab-mjólkinni eða súrmjólkinni saman við.
  • Setjið deigið í brauðform sem er búið að klæða með bökunarpappír.
  • Bakið við 180-190°C í 40 - 50 mínútur.

  • (Til að fá harða skorpu allan hringinn er gott að taka brauðið úr forminu síðustu 15 mín, snúa við og leggja á bökunarpappírinn)
  • Gætið þess að deigið sé ekki of blautt. Ágætt er að miða við að deigið festist ekki við skálina þegar það er hnoðað létt
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Gulrótarbrauð

5. mars, 2003

Mjög seðjandi og hollt brauð, rosa gott alveg sjóðandi heitt úr ofninum með smá osti.
 
Gulrótarbrauð
Gerir 2 brauð

  • 1-2 dl sjóðandi heitt vatn
  • 2 msk vínsteinslyftiduft
  • 4 dl smátt rifnar gulrætur
  • 2 dl kotasæla
  • 1 tsk heilsusalt (Herbamere)
  • 1 msk kókosfeiti eða ólífuolía
  • 6 dl spelti

    Aðferð:
  • Blandið þurrefnunum saman í stóra skál
  • Bætið kotasælunni, gulrótunum og kósosfeitinni eða ólífuolíunni við ásamt vatninu
  • Búið til 2 aflöng brauð, setjið í form eða bara beint á plötuna
  • Bakið í 40-50 mínútur við 225°C

  • Það er gott að bera fram þetta brauð með kotasælu, osti, pestó og allskonar áleggi.
  • Til að fá harða skorpu allan hringinn, takið þá brauðið úr forminu og leggið það á hvolf á bökunarplötuna síðustu 10-15 mínúturnar
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Gulrótarbrauð með sólþurrkuðum tómötum og hirsi

22. janúar, 2006

Svolítið gult og gróft en rosa gott - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þetta er orkumikið brauð og tilvalið á köldum vetrardegi þegar mann langar að kúra sig inni með te, brauð og ost. Brauðið er mjög gott að því að það eru mörg nauðsynleg vítamín í því (sólblómafræ, gulrætur, hirsi, hveitiklíð, spelti, jógúrt) og ætti að hjálpa okkur að brosa í skammdeginu. Að minnsta kosti að láta okkur líða heilsusamlega. Turmericduftið gefur fallegan, gulan lit.
 
Gulrótarbrauð með sólþurrkuðum tómötum og hirsi
Gerir 1 brauð

  • 6 dl spelti
  • 1 dl hveitiklíð
  • 1/2 krukka sólþurrkaðir tómatar, olíunni hellt af, tómatarnir þerraðir og tómatarnir saxaðir
  • 2 dl rifnar gulrætur
  • 1 dl sólblómafræ
  • 1 dl hirsi (enska: millet. Lítur út svipað og kúskús en eru aðeins stærri kúlur en í kúskús. Inniheldur ekki glútein)
  • 2 msk vínsteinslyftiduft
  • 2 dl hreint jógúrt
  • 1 dl sjóðandi vatn eða meira eftir þörfum
  • 1 kúfull tsk af turmericdufti
  • 1 tsk heilsusalt (Herbamare)
  • 1 msk ávaxtasykur

    Aðferð:
  • Blandið saman þurru hráefnunum ásamt turmericinu, ávaxtasykrinum og saltinu
  • Blandið saman við gulrótum og sólblómafræjunum
  • Blandið jógúrtinu út í ásamt heita vatninu (sjáið til hvað þarf mikið af heita vatninu. Deigið má ekki verða allt of blautt)
  • Bakið við 180°C í rúman klukkutíma
  • Takið brauðið úr forminu, snúið því við og bakið í 15 mínútur í viðbót til að fá harða skorpu allan hringinn.

  • Hægt er að nota t.d. graskersfræ, sinnepsfræ, sesamfræ og margt fleira í brauðið í staðinn fyrir sólblómafræin og gulræturnar
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Heilsubrauð Önnu Stínu

1. mars, 2005

Mjög gott og próteinríkt brauð eftir uppskrift Önnu Stínu mágkonu en hún var að fikta sig áfram í eldhúsinu.
 
Heilsubrauð Önnu Stínu
  • 200gr haframjöl
  • 100 gr blönduð fræ (t.d. sólblómafræ, hörfræ, sesamfræ o.s.frv.)
  • 2 msk undanrennuduft eða skyr
  • 100 gr hreint hafrakex (frá Nairns, fæst í Heilsuhúsinu). Athugið að í upprunalegu uppskriftinni var cheerios. Einnig má nota 100 gr af hreinum höfrum ásamt 1 msk af kókosfeiti eða ólífuolíu og 1 tsk af ávaxtasykri
  • 1,5 tsk vínsteinslyftiduft
  • 2,5 dl létt AB mjólk (eða hrein jógúrt/súrmjólk)
  • 130 gr barnamatur frá Hipp Organic eða Organix án viðbætts sykurs t.d. með blönduðum ávöxtum
  • Ef blandan er of bragðdauf má bæta smávegis af ávaxtasykri í uppskriftina

    Aðferð:
  • Hafrakexið eða cheeriosið er maukað í matvinnsluvél.
  • Öllu blandað saman í stóra skál og hrært saman.
  • Deigið á að verða eins og þykkur hafragrautur.
  • Þessu er svo smurt á 25 x 25 cm. bökunarplötu (smjörpappír undir), u.þ.b. 1 cm. lag.
  • Bakað í 40-45 mín á 180°C.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Jógúrt/Kvarg (skyr) bollur

28. mars, 2003

Ég átti til smá af kvargi og næstum hálfan lítra af jógúrti og ég vissi ekkert hvað ég átti að gera við það og tímdi ekki að henda því. Ég ákvað að prófa þetta bara í brauðbollur og það kom bara nokkuð vel út. Kvargið er nokkuð "beiskt" eða "rammt" svo það þarf að setja a.m.k. 1 mtsk af ávaxtasykri eða byggmaltsírópi til að vinna á móti bragðinu. Hægt er að nota skyr í stað kvargs. Ekki vera hrædd við að prófa!!
 
Jógúrt/Kvarg (skyr) bollur
Gerir 12-15 bollur

  • 400 ml hreint jógúrt
  • 100 ml kvarg (eða skyr)
  • 1/2 dl haframjöl
  • 1 dl þurristaðar "rúgflögur" (þ.e. lítur út svipað og haframjöl en
    er ekki mjöl), heitir Rye Flakes á ensku. Má sleppa eða nota meira haframjöl
  • 1/2 dl sólblómafræ
  • 550 gr spelti
  • 50 gr hveitiklíð (má nota meira spelti í staðinn)
  • 2 msk vínsteinslyftiduft
  • 2 tsk heilsusalt (Herbamare)
  • 1 msk ávaxtasykur eða byggmaltsíróp (enska: barley malt syrup) eða hrísgrjónasíróp (enska: brown rice syrup)
  • 1-2 dl vatn
  • 1-2 dl undanrenna (eftir þörfum, deigið á að vera frekar blautt)

    Aðferð
  • Hitið ofninn í 180°C.
  • Hrærið öll þurrefnin saman (sigtið lyftiduftið, speltið og hveitið).
  • Þurristið rúgflögurnar á pönnu þangað til þær eru orðnar vel brúnar.
  • Bætið vökvanum út í, deigið á að vera frekar blautt.
  • Búið til bollur úr deiginu.
  • Bakið í 30 mínútur á bökunarpappír.

  • Það má setja hvað sem er í þetta brauð, prófið t.d. gulrætur, sesamfræ, hörfræ, haframjöl, birkifræ osfrv.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Kókosbrauðbollur

30. október, 2005

Kókosbrauðbollur - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þetta er það brauð sem ég baka sennilega hvað oftast og geri þá yfirleitt brauðbollur frekar en brauð. Mér finnst það svo létt og fínt og alveg ofsalega bragðgott. Ekki vera smeyk við kókosmjölið það er alls ekki yfirþyrmandi bragð, aðeins keimur af því og brauðið smakkast vel með alls kyns áleggi.
 
Kókosbrauðbollur
Gerir 8-10 brauðbollur

  • 200 gr spelti
  • 50 gr sólblómafræ
  • 30 gr kókosmjöl
  • 4 tsk vínsteinslyftiduft
  • 1/2 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
  • 200-300 ml ab mjólk (einnig má nota sojamjólk + 1 tsk sítrónusafa)
  • 75 ml kókosmjólk (má sleppa)
  • 1 tsk agavesíróp (má sleppa ef notuð er sojamjólk sem búið er að sæta)
  • 1 msk kókosolía (má sleppa ef notuð er kókosmjólk)

    Aðferð:
  • Blandið þurrefnum saman í skál.
  • Hellið vökvanum út í (byrjið með helminginn af því sem gefið er upp og bætið meira út ef þarf) og blandað varlega saman.
  • Gætið þess að deigið sé frekar blautt (en ekki of blautt samt), það er ágætt að miða við að deigið festist ekki við skálina ef þið hnoðið það létt.
  • Mótið bollur í höndunum og setjið á bökunarplötu sem er klædd með bökunarpappír.
  • Bakið í um 20-25 mínútur við 180°C.

  • Það er hægt að setja ýmislegt útí eins og sólþurrkaða tómata eða ólífur eða hvítlauk, rifnar gulrætur og kryddjurtir.
  • Gott er að dreifa sesamfræjum yfir bollurnar áður en þær eru bakaðar en einnig má setja 30 gr sesamfræ, hörfræ, sólblómafræ o.fl. í deigið.
  • Nota má súrmjólk í staðinn fyrir ab mjólk.
  • Gott er að nota ískúluskeið til að móta bollur og setja á bökunarplötuna.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Kókosbrauðbollur með pistachio- og heslihnetum

14. febrúar, 2006

Kókosbrauðbollur með hnetum - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þetta er rosa fín uppskrift sem við Jónsi vinur minn bjuggum til á Skóló eitt kvöldið(þ.e. á Skólavörðustíg en þar var ég alltaf í viku í hverjum mánuði í 2 ár meðan ég bjó í London og flaug heim mánaðarlega). Við áttum hnetur, kókos, spelti og eitthvað meira og við þurftum að búa til eitthvað úr því. Sko.. nýbakaðar bollur með osti innan í (sem bráðna við hitann af bollunum þegar þær eru nýkomnar út úr ofninum) NAAAAAMMMMMM. Uppskriftin sjálf er sáraeinföld.
 
Kókosbrauðbollur með pistachio- og heslihnetum
Gerir um 10 bollur

  • 5 dl spelti
  • 2 msk vínsteinslyftiduft
  • 1 dl sesamfræ
  • 1 dl pistachiohnetur án hýðis og ekki saltaðar, saxaðar gróft
  • 1 dl heslihnetur, saxaðar gróft (oft hægt að kaupa tilbúnar, saxaðar í pokum). Ef þið notið heilar hnetur með hýði, þurristið þá hneturnar á heitri pönnu þangað til hýðið fer að losna. Hýðið má ekki vera á því annars verður brauðið svolítið beisk
  • 1 dl kókosmjöl
  • 1 dl kókosmjólk (hrein þ.e. ekki með neinum bragð- eða aukaefnum)
  • 1 msk heilsusalt (Herbamare)
  • 1 dl soðið vatn
  • 2 dl ab mjólk eða hrein jógúrt

    Aðferð:
  • Blandið saman speltinu, lyftiduftinu, kókosmjölinu, sesamfræjunum, saltinu og söxuðu hnetunum.
  • Blandið jógúrtinu, kókosmjólkinni og soðna vatninu út í.
  • Deigið á ekki að vera það blautt að það leki í klessum af skeið en á heldur ekki að vera það þurrt að hægt sé að hnoða það.
  • Mótið bollur í höndunum og setjið á bökunarpappír.
  • Bakið í um 25 mínútur við 180-200°C.

  • Hægt er að nota cashewhnetur, Brasilíuhnetur eða heilar, saxaðar möndlur í staðinn fyrir heslihnetur.
  • Einnig má setja sólblómafræ, hörfræ, svört sesamfræ, birkifræ og ýmislegt annað í stað sesamfræjanna.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Kornbrauð (Polenta) með fræjum

22. mars, 2006

Polentu-kornbrauð - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þessi uppskrift kemur frá Delia Smith. Mig langaði að prófa eitthvað annað en venjulegt spelti í brauð og ákvað að prófa kornmjöl (Polenta) sem er unnið í maís. Brauðið varð svona líka prýðilegt, ofsalega létt og gott og frábært ristað alveg 2 dögum seinna. Ég notaði spelti í staðinn fyrir hveiti. Svo breytti ég aðeins fræjunum, setti t.d. sinnepsfræ og hirsifræ í staðinn fyrir graskersfræ en það má líka alveg setja sesamfræ eða hörfræ í staðinn. Brauðið gæti hentað vel fyrir þá sem eru með hveitióþol þar sem kornmjöl er unnið úr maís og svo er spelti á móti.
 
Kornbrauð (Polenta) með fræjum
Gerir 1 brauð

  • 150 gr kornmjöl (polenta/cornmeal - er gult á litinn)
  • 175 gr spelti
  • 25 gr gul sinnepsfræ (mustard seeds)
  • 25 gr sólblómafræ
  • 25 gr Hirsifræ (enska: Millet) (má sleppa)
  • 25 gr birkifræ (geymið 1 teskeið til að setja yfir brauðið)
  • 1 kúfuð skeið heilsusalt (Herbamere)
  • 2 tsk vínsteinslyftiduft (upprunaleg uppskrift gaf bökunarsóda)
  • 25 gr haframjöl
  • 1 tsk agavesíróp
  • 1 stórt egg
  • 300 ml súrmjólk

    Aðferð:
  • Hitið ofninn í 190°C.
  • Setjið bökunarpappír í brauðform.
  • Sigtið saman spelti, salt og lyftiduft í stóra skál.
  • Bætið við kornmjölinu, fræjunum, haframjölinu og agavesírópinu og hrærið vel.
  • Hrærið nú egginu og súrmjólkinni saman og blandið saman við speltið og allt hitt í skálinni.
  • Hrærið saman þangað til deigið verður mjúkt (ekki of þurrt en ekki samt of mjúkt þannig að það leki af sleif). Bætið við vökva ef það þarf.
  • Hellið deiginu í brauðformið og dreifið birkifræjunum yfir.
  • Bakið brauðið í miðjum ofni í um 45-55 mínútur.
  • Eftir um 45 mínútur stingið þá prjón í gegnum mitt brauðið og ef prjónninn kemur hreinn út, þá er brauðið tilbúið.
  • Takið brauðið úr forminu, og setjið á bökunarplötu, á hvolf og bakið í 5 mínútur í viðbót til að fá harða skorpu allan hringinn.
  • Takið úr ofninum og látið kólna á vírgrind.

  • Gott er að bera fram með túnfisksalati, rækjusalati, smurosti og auðvitað osti!
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Ólífubrauðbollur með pestó og parmesan

3. mars, 2006

Ólífubrauðbollur með pestó og parmesan - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Ég bjó til þessar bollur því mig langaði í bollur til að bera fram með
tómatsúpunni frá Zansibar. Þessar bollur passa rosa vel við tómatsúpuna en það væri líka mjög gott að rista þær og setja ost á milli. Hægt er að nota rautt pestó og grænar ólífur í staðinn fyrir grænt pestó og svartar ólífur.
 
Ólífubrauðbollur með pestó og parmesan
Gerir um 10 bollur

  • 5 dl spelti
  • 2 tsk vínsteinslyftiduft
  • 10 svartar ólífur sneiddar (má nota grænar í staðinn)
  • 1/2 dl safi af ólífunum (má sleppa)
  • 1 dl sólblómafræ (má nota sesamfræ)
  • 1 dl hirsi (kornið sem lítur út eins og kúskús)
  • 2 msk grænt pestó (má nota rautt líka)
  • 1 msk parmesan ostur, ferskur (ef þið eruð jurtaætur getið þið slept parmesan ostinum eða notað jurtaútgáfu)
  • 1 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
  • 2 tsk agavesíróp
  • 1 dl undanrenna (einnig má nota sojamjólk, hrísmjólk, möndlumjólk eða haframjólk)
  • 1 dl sjóðandi heitt vatn

    Aðferð:
  • Blandið þurru hráefnunum saman.
  • Bætið undanrennu við (má nota soyamjólk, jógúrt eða súrmjólk líka) ásamt vatni saman við og hrærið varlega.
  • Bætið meiri vökva við ef þarf.
  • Mótið bollur (álíka stórar og litla tennisbolta) og setjið á plötu með bökunarpappír.
  • Bakið við 200°C í um 20-25 mínútur.

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Snittubrauð

8. maí, 2006

Þó ekki sé það mjög franskt þá er það snittubrauð engu að síður - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Einfalt og fljótlegt. Þó að snittubrauðið sé ekki eins létt og loftkennt og út úr búð þá er það mun hollara!
 
Snittubrauð
Gerir eitt langt brauð

  • 5 dl spelti
  • 1 dl hveitiklíð (má sleppa og nota meira spelti í staðinn)
  • 1 tsk Himalaya eða sjávarsalt
  • 1 msk agavesíróp
  • 2 msk vínsteinslyftiduft
  • 1-2 dl sojamjólk eða hrein jógúrt, súrmjólk eða AB mjólk
  • 1/2-1 dl sjóðandi heitt vatn

    Aðferð:
  • Blandið þurrefnunum varlega saman.
  • Bætið vökvanum smátt og smátt út í þangað til hægt er að hnoða deigið. Misjafnt er hversu mikinn vökva þarf og gætið þess að deigið verði ekki of blautt, það á sem sagt að vera hægt að hnoða það (en þó ekki mikið).
  • Hnoðið og búið til eina lengju (eða tvær styttri) úr brauðinu (álíka þykka og venjulegt snittubrauð). Gætið þess að séu ekki sprungur í deiginu.
  • Hitið í um 30 mínútur við 180°C.
  • Látið kólna í 10 mínútur og skerið svo í sneiðar og berið fram.


  • Upplagt með súpum, pottréttum, baunakássum og mörgu öðru.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Sveitabrauð

5. mars, 2003

Traustvekjandi og bragðgott brauð - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Þetta er svolítið sveitalegt brauð og er alveg æðislegt beint úr ofninum, nýbakað. Það er eitthvað traustvekjandi við að borða heitt nýbakað brauð úr ofninum. Þetta brauð passar líka vel með súpum og pottréttum. Það hentar vel þeim sem hafa mjólkuróþol því það má nota sojamjólk, haframjólk, hrísmjólk eða möndlumjólk!
 
Sveitabrauð
Gerir 1 brauð

  • 6 dl spelti
  • 2 dl hveitiklíð
  • 2 tsk agavesíróp
  • 1/4 dl hörfræ
  • 1/2 - 1 dl sólblómafræ
  • 1 1/2 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
  • 2 msk vínsteinslyftiduft
  • 300-400 ml sojamjólk (gæti þurft minna eða meira)

    Aðferð:
  • Blandið spelti, hveitklíð, höfræjum, sólblómafræjum, salti og vínsteinslyftidufti saman í skál.
  • Hellið sojamjólk saman við smátt og smátt þar til deigið helst saman en er þétt. Gætið þess að deigið sé ekki of blautt. Það á að vera hægt að hnoða það létt án þess að það klístrist við hendurnar.
  • Sejið bökunarpappír í brauðform og hellið deiginu ofan í.
  • Bakið við 180° þar til brauðið verður fallega brúnt eða í um 45-50 mínútur.


  • Athugið að síðustu 10 mínúturnar, er gott að taka brauðið úr forminu og setja það á hvolf inn í ofninn því þá kemur hörð skorpa á botninn líka).
  • Tékkið á brauðinu eftir 40 mínútur með því að stinga prjóni inn í brauðið. Ef hann kemur hreinn út er brauðið tilbúið.
Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp




Tortilla kökur (vefjur)

20. júní, 2009

Hollar og góðar vefjur - Smelltu á myndina til að sjá stærri mynd, opnast í nýjum glugga Ég hef lengi átt þessa uppskrift en ekki birt hana fyrr en nú því ég er alltaf aðeins að breyta henni. Hún er núna orðin fín að mér finnst. Ég er þó ekki sérstaklega klár í að gera tortilla kökur þunnar og flottar en það skiptir engu því þær eru bragðgóðar. Svo eru þær afskaplega fljótlegar svona þegar maður er búinn að fletja þær út. Þær verða tilbúnar á nokkrum mínútum eftir það. Spelti passar afar vel í uppskriftina en ég hef líka notað rúgmjöl. Ég nota alltaf gróft spelti en það má gjarnan nota fínt líka ef ykkur finnst það betra. Ég hef líka notað ljós hörfræ í staðinn fyrir sesamfræ (eða með) og það er líka gott. Þá mala ég hörfræin aðeins fyrst í blandara. Ég hætti að kaupa tortilla kökur úr búð fyrir langa löngu síðan því þær eru frekar óspennandi og þar fyrir utan rándýrar og með fullt af alls kyns aukaefnum og sykri. Ekki minn tebolli eins og Bretarnir myndu segja. Hægt er að frysta bakaðar tortilla kökur og eiga í frystinum. Það flýtir mikið fyrir manni og bara um að gera að baka nógu mikið þegar maður hefur loksins tíma til! Tortilla kökurnar eru frábærar með t.d. hummus, alls kyns niðurskornu grænmeti, pottréttum o.fl. og þær eru líka frábærar í nestið, í garðveisluna og útileguna. Það er kannski svolítið mikið af kókosolíu í uppskriftinni en mér gengur illa að fletja þær út annars og magnið er heldur ekki svo mikið miðað við 3 bolla af spelti. Ég næ 10 tortilla kökum úr uppskriftinni en ef þið getið flatt kökurnar þynnra út, náið þið auðvitað fleirum.
 
Tortilla kökur (vefjur)
Gerir 10 tortilla kökur

  • 3 bollar spelti (gott að nota rúgmjöl í bland)
  • 2 tsk vínsteinslyftiduft
  • 1 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
  • 1 tsk agavesíróp
  • 5 msk kókosfeiti
  • 1 1/4 bolli heitt vatn
  • 1 tsk sesamfræ (eða hörfræ)

    Aðferð:
  • Blandið saman spelti, salti, lyftidufti og sesamfræjum í skál.
  • Bætið agavesírópinu og kókosfeitinni saman við og hnoðið létt.
  • Bætið vatninu við smám saman og hnoðið þangað til deigið er orðið mjúkt og teygjanlegt og ekki of klístrað (ætti ekki að klístrast við fingurna).
  • Leyfið deiginu að jafna sig í 10-15 mínútur undir plasti eða röku viskustykki.
  • Skiptið deiginu í 10 kúlur og geymið undir röku viskustykki.
  • Fletjið tortilla kökurnar út frekar þunnt með kökukefli (eða stórri flösku), eins þunnt og þið treystið ykkur til og deigið þolir. Setja þarf svolítið spelti á borðið á meðan þið eruð að fletja út því annars klístrast deigið svolítið við borðið.
  • Setjið 20cm disk að þvermáli á hvolf ofan á deigið og skerið út hring (má sleppa og hafa óreglulega í laginu).
  • Raðið hverri tortilla köku á disk en gætið þess að teygja ekki á kökunum þegar þið lyftið þeim.
  • Hitið stóra pönnu í næstum því hæsta hitastig.
  • Hitið kökurnar þangað til þær taka aðeins lit (í nokkrar mínútur á hvorri hlið), þær ættu ekki að brenna eða verða harðar en mega fá nokkra "brunabletti". Oft bólgna kökurnar út við að hitna en það er allt í lagi, þær falla saman aftur.
  • Berið fram strax eða geymið þær volgar í plastpoka eða undir röku viskustykki.
  • Geymið óbakaðar vefjur í plastpoka í ísskápnum (í lagi að geyma í einn dag). Einnig má raða bökuðum (köldum) tortilla kökum ofan á hverja aðra með bökunarpappír eða plastfilmu á milli og frysta).

Prenta þessa uppskrift     -     Senda þessa uppskrift



Aftur upp