Forsíða CafeSigrun.com
Fara beint í leiðarkerfi vefjarins
Í dag er 11. mars, 2010

Um CafeSigrun

Bara svona rétt til að útskýra þá er þessi vefur aðallega ætlaður fyrir mig, til að hafa yfirlit yfir uppskriftirnar mínar (svo þær séu ekki út um allt) en hverjum sem er, er frjálst að nota þær, prenta út og senda öðrum. Það eina sem ég bið um er að þið vitnið í réttan höfund uppskrifta og skal gera það með tengli t.d. Birt á vef Cafesigrun, www.cafesigrun.com. Ég verð rosalega reið ef ég sé uppskriftirnar mínar á öðrum vefjum, ef ekki er vitnað í þær (en jafn glöð ef fólk vitnar í þær). Nöfnum uppskriftanna má ekki breyta. Einnig bið ég ykkur að geta þess hvar þið breytið uppskriftunum ef þið breytið þeim.  Sama á við um ljósmyndirnar, þær má nota ef höfundar er getið (ég tek allar myndirnar á vefnum mínum sjálf). Ég legg gríðarlega vinnu í vefinn minn (allt í frítíma) og er skapi  næst að loka vefnum ef fólk eignar sér mína vinnu.

Kveikjan að vefnum var sú að að ég var alltaf að týna uppskriftunum mínum sem ég var að skrifa á snepla hér og þar en önnur ástæða var sú að í rauninni var enginn svona vefur til og ég ákvað því bara að búa hann til (með hjálp Jóhannesar mannsins míns sem forritar allt fyrir CafeSigrun vefinn). Það var árið 2003. Vefurinn er án auglýsinga því ég er óháð öllum og öllu, er bara kona út í bæ sem eyðir flestum sínum frístundum í að búa til hollan mat. Call me crazy :)

Ég vona að þið hafið gagn og gaman af uppskriftunum!! Ef ég hef (óvart) eignað mér einhverja uppskrift á síðunni, endilega sparkið í mig og sendið mér línu því ég vil auðvitað setja réttan uppruna uppskrifta alls staðar (þar sem það á við). Þær uppskriftar sem eru frá Sólveigu (Grænum Kosti) eru birtar með góðfúslegu leyfi hennar.

Svona að gamni þá tókum ég og Jóhannes allar myndirnar sem sjást í hausnum efst á síðunni. Flestar myndirnar eru teknar í London, margar í Afríku og  sumar í Japan.

Ykkar
Sigrún