Forsíða CafeSigrun.com
Fara beint í leiðarkerfi vefjarins
Í dag er 14. mars, 2010

Tenglar

Hér hef ég safnað saman alls kyns tenglum um mat og matartengt efni og tenglum sem eru áhugaverðir að öðru leyti. Hér má finna til dæmis heimasíðu Deliu Smith sem er ein af uppáhaldskokkunum mínum, Jamie Oliver sem flestir þekkja og svo WegWeb sem er frábær síða fyrir grænmetisfólk. Já svo er Jóhannes minn með kaffisíðuna sína líka. Ef þið vitið um tengla sem ykkur fyndist sniðugt að bæta við, endilega sendið mér upplýsingar um þá. Athugið að allir tenglarnir hér fyrir neðan opnast í nýjum vafraglugga.

Vefsíður þekktra matreiðslumanna

Delia Smith
Þessi kona er bresk, og hefur skrifað margar matreiðslubækur og gert sjónvarpsþætti í tengslum við bækurnar. Hún er í miklu uppáhaldi hjá mér enda mjög skemmtilegur kokkur. Hún er dálítið spes, orðin 60, á engin börn og er harður stuðningsmaður fótboltaliðs hér í Bretlandi (hún á reyndar eitt fótboltalið) og sækir völlinn mjög stíft. Hvað um það, það er gaman að skoða síðuna hennar því það er af nógu að taka

Jamie Oliver
Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki séð einn einasta Jamie Oliver þátt ennþá (á ekki sjónvarp) en ég hef skoðað bækurnar hans og það hlýtur að vera einhver ástæða fyrir því að hann er dáður og dýrkaður!!! Ég hef gert nokkrar uppskriftir eftir hann (t.d. kjúklingabaunasúpu) og mér fannst hún mjög góð. Mér finnst uppskriftirnar hans mjög skemmtilegar þannig að ég set hann hérna í tenglasafnið mitt.

Nigella Lawson
Þessi er líka bresk og er ekki neitt voðalega í hollustunni sko (hver man ekki eftir djúpsteikta marsinu t.d.???). Uppskriftirnar hennar eru samt bragðgóðar og það má alveg gera þær hollari. Ég er mjög hrifin af "How to be a domestic goddess" bókinni hennar.

Veitingastaðir

Á næstu grösum
Veitingastaðinn Á næstu grösum þekkja allir, fyrsti grænmetisstaður landsins og alltaf jafn góður.

Grænn kostur
Grænan kost þarf nú svo sem vart að kynna fyrir fólki og er minn uppáhalds veitingastaður. Mér finnst alltaf gott að borða á Grænum kosti.


 

Aðrir vefir

Waitrose
Waitrose er nafnið á uppáhaldsbúðinni okkar í London. Waitrose leggur mikið upp úr fersku hráefni, Fair Trade viðskipti, lífrænt ræktuðum mat, og svo Free-Range (þ.e. dýrin fá að ganga frjáls og borða ekki neinar dýraafurðir). Sem sagt hrein snilld að versla þarna, jú reyndar dýrari en aðrar búðir en það skiptir ekki nokkru máli. Þeir gefa út bæklinga með uppskriftum í hverjum mánuði og eru líka með heimasíðu þar sem gefa fullt af uppskriftum.

Heilsuhúsið
Heilsuhúsið þekkja langflestir landsmenn. Vefurinn þeirra hefur uppskriftir og fróðleik og margt fleira.

Espresso
Ég get nú ekki verið þekkt fyrir annað en að birta tengilinn hjá honum Jóhannesi (manninum mínum). Umfjöllunarefni vefjarins er nú ekkert svo ótengt mat því hann fjallar aðallega um espresso. Alls kyns dómar og upplýsingar um ýmsar kaffitegundir og kaffihús aðallega á Íslandi en einnig í Bretlandi, Bandaríkjunum og örugglega fleiri löndum innan tíðar. Mér finnst vefurinn hans mjög skemmtilegur en ég er auðvitað ekki óháður aðili hí hí.

Íslenskt grænmeti
Það er hægt að finna margar fínar uppskriftir á islenskt.is og ekki verra að uppskriftirnar séu unnar úr íslensku, hollu grænmeti. Nammi namm.

Gestgjafinn
Fínn vefurinn hjá Gestgjafanum. Blaðið er að verða betra og betra með hverju ári að mínu mati og það er frábært að fá þessa viðbót á vefinn.

Kaffitársuppskriftir
Það er hægt að finna fullt af skemmtilegum uppskriftum á vef Kaffitárs. Gaman að þeir skuli birta þessar uppskriftir því þær eru frábrugðnar öðrum uppskriftum og sérstakar sökum þess að aðalinnihald er oftar en ekki kaffi!

Maður Lifandi
Fullt af skemmtilegum og hollum uppskriftum frá Maður Lifandi sem er snilldarverslun. Ef vöruverðið væri svona 30% lægra (og sambærilegt við t.d. London) myndi ég gera öll mín innkaup þarna.

Hráfæðisuppskriftir
Þetta er heimasíða með hráfæðisuppskriftum. Mér finnst pælingin í sjálfu sér sniðug þó ég sé ekki endilega að fylgja þessu út í eitt. Það sem mér finnst samt sniðugast er að uppskriftirnar sjálfar eru svo góðar og hollar (minna á Grænan Kost mikið af þeim), mikið notað af þurrkuðum ávöxtum, enginn sykur og voða mikið lífrænt ræktað og hentar því minni stefnu í uppskriftarmálum mjög vel. Endilega kíkið á þessa heimasíðu.

Uppskriftir á vef BBC
Margar fínar uppskriftir hér. BBC er með marga matreiðsluþætti og eru uppskriftirnar meðal annars úr þeim. Hægt er að leita eftir tilteknum kokkum eða innihaldi ásamt fleiru. Mjög góð viðbót!

Heimasíða Tjarnar í Vatnsnesi - Íslenska landnámshænan
Skemmtilegur fróðleikur um íslensku landnámshænuna sem ræktuð er af alúð og hugsjón að Tjörn í Vatnsnesi, Hvammstanga. Held að ég geti fullyrt að hamingjusömustu hænur landsins búa hér. Skemmtilegar uppskriftir líka!

Grænmeti í áskrift
Heimsending á lífrænum ávöxtum og íslensku grænmeti. Sniðugt framtak, sérstaklega fyrir þá sem komast ekki alltaf í stærri verslanir.

Móðir náttúra
Flott fyrirtæki, uppskriftir, fróðleikur og fleira.

Fræið-Fjarðarkaupum
Fullt af fróðleik í þessu fína heilsuhorni í Fjarðarkaupum.

Krakkamatur (hentar börnum með ýmiss konar ofnæmi)
Þetta blogg er að sögn höfundar hugsað til að hjálpa foreldrum barna sem þurfa að vera á glúteinlausu, mjólkurlausu og sykurlausu mataræði að finna uppskriftir sem prófaðar hafa verið af börnum og fallið í góðan jarðveg hjá þeim


 

Fróðleikur

Fæðuóþol og fæðuofnæmi
Ég fann þennan bækling á netinu og datt í hug að þið gætuð haft gagn af honum. Ég veit að margir sem eru að skoða vefinn eru með annað hvort ofnæmi fyrir einhverjum mat eða einhvers konar óþol og mér fannst þess vegna upplagt að birta slóðina að honum.

Grein Ölmu Maríu Ragnarsdóttur um grænmetisneyslu barna
Þessi grein er frábær og fjallar um hvernig má auka grænmetisneyslu ungra barna. Ansi þarft málefni. Greinina skrifaði hjúkrunarfræðingurinn Alma María Rögnvaldsdóttir, ein af ráðgjöfunum í 'Fyrir smáfólkið' flokkinn á CafeSigrun.


 

Fyrir grænmetisætur

Himnesk hollusta
Sólveigu (á Grænum kosti og Himneskri hollustu) þarf ekki að kynna fyrir neinu áhugafólki um hollustu og grænmeti (né fyrir öðrum líklega). Brautryðjandi í þessum málum á Íslandi og gaf út eina bestu matreiðslubók sem út hefur komið á Íslandi fyrir nokkrum árum (að mínu mati). Bókin er skyldueign fyrir alla! Það er líka alltaf gott að borða á Grænum kosti.

Æðisleg síða fyrir grænmetisfólk
Þetta er alveg frábært síðusafn, bara með grænmetisréttum. Vefurinn er eingöngu ætlaður grænmetisætum þannig að ef þið eruð í svoleiðis hugleiðingum, þá er þetta síðan fyrir ykkur. Endalausar hugmyndir. Frábær vefur.


 

Fyrir smáfólkið

Heimasíða Annabel Karmel
Annabel Karmel er einn þekktasti gúru í matargerð ungra barna. Bækur hennar hafa selst um allan heim og hún vill aðeins það besta fyrir yngsta fólkið. Heimasíðan hennar er skemmtileg og fræðandi.