Sveskjumauk

Þetta mauk er afar hollt og gott. Lítil börn eru yfirleitt mjög hrifin af sveskjum en þess þarf að gæta að þau séu vel maukuð. Yfirleitt er best að nota síu eða sigti til að fjarlægja allar flyksurnar sem annars geta verið of stórar fyrir lítil kok. Það má blanda t.d. banana eða peru saman við sveskjurnar eða hvað sem ykkur dettur í hug. Sveskjur og gulrætur og sveskjur og bananar eru líka góð blanda. Það er ekki gott að byrja á sveskjunum sem fyrsta mauki, þær eru svolítið grófar í magann til að byrja með (og geta verið hægðarlosandi). Ef þið gefið yngri börnum sveskjur er gott að blanda þær með hrísmjöli. Ég bæti alltaf svolítið af appelsínusafa út í sveskjumaukið til að aðstoða upptöku á járni en sum börn eru viðkvæm fyrir appelsínusafa svo prufið ykkur varlega áfram. Maukið hentar frá 9 mánaða en getur hentað fyrr, allt eftir því hvað þau eru vön að fá að borða).

Athugið að skammtastærðin er einungis viðmið. Sum börn þurfa meira og önnur minna. Einnig getur skipt miklu máli hvort barn er byrjað að skríða og hreyfa sig, varðandi hversu mikið það borðar.
&;


Kannski ekki fallegt á litinn en afar hollt mauk engu að síður

Þessi uppskrift er:

  • Án glúteins
  • Án eggja
  • Án hneta

Þessa uppskrift er auðvelt að gera:

  • Án mjólkur
  • Vegan (fyrir jurtaætur)

Sveskjumauk

Gerir 6-8 skammta

Innihald

  • 350 g steinalausar sveskjur, saxaðar gróft
  • 1-2 tsk soðvatn eða móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk
  • 1 tsk kókosolía (eða önnur olía) eða smjör
  • 1 tsk hreinn appelsínusafi
     

Aðferð

  1. Saxið sveskjurnar gróft og gufusjóðið í um 10-15 mínútur eða þangað til mjúkar.
  2. Notið töfrasprota til að mauka sveskjurnar en einnig má nota matvinnsluvél eða blandara. Fyrir yngri börn skal gæta þess að engir stórir bitar séu eftir en fyrir börn sem eru nær 9 mánaða mega vera litlir bitar í maukinu. Gott er líka að nota sigti til að pressa sveskjurnar í gegnum, sérstaklega fyrir yngri börnin.
  3. Bætið appelsínusafa, olíu og mjólk saman við og hrærið vel.
     

Gott að hafa í huga

  • Gott er að nota sveskjumaukið í bland við perumauk, bananamauk, mangomauk eða eplamauk.
  • Sveskjur, aprikósur, spínat og lambakjöt er góð blanda og sérlega járnrík.
  • Maukið má frysta en athugið að það verður ekki fallegt á litinn.
  • Gott er að frysta maukið í ísmolabox. Setjið svo molana í góða frystipoka. Merkið pokana með innihaldi og dagsetningu. Í góðum frysti geymist frosinn barnamatur í nokkra mánuði.
  • Börn eiga misjafnlega auðvelt með að kyngja mat svo bætið við meira af vatni/mjólk ef ykkur finnst það henta.
  • Gott getur verið að bæta við meira magni af móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk út í maukið í fyrstu skiptin, þannig fæst kunnuglegt bragð sem sumum börnum líkar vel.
  • Gott er að blanda svolitlu af hrísmjöli/maísmjöli/hirsimjöli saman við grautinn til að fá matarmeiri graut.
  • Ég nota einungis lífrænt ræktað hráefni í barnamat og ég gufusýð alla ávexti og allt grænmeti.
  • Vörur frá Holle, Babynat, Baby Organic og Organix eru mjög góðar og mæli ég með þeim.
  • Ef þið eruð stödd þar sem þið getið ekki blandað hráefnið má bja