Sveskju- og perumauk

Fyrsta maukið sem börnin fá, ætti helst ekki að vera sveskjumauk þar sem það getur verið of gróft í magann og getur verið hægðarlosandi. Það er upplagt að byrja að blanda sveskjurnar út í eplamauk, perumauk eða bananamauk í litlum skömmtum. Sveskjur eru nefnilega sérlega járnríkar og ef maður blandar C vítamínríkum ávexti saman við, aðstoðum við upptöku á járninu. Járn er sérlega mikilvægt eftir 6 mánaða aldurinn þegar járnbirgðar eru uppurnir. Gott er að bæta við svolitlu af appelsínusafa (ef barnið er ekki viðkvæmt fyrir honum) til að auka enn frekar á upptöku járnsins.

Athugið að skammtastærðin er einungis viðmið. Sum börn þurfa meira og önnur minna. Einnig getur skipt miklu máli hvort barn er byrjað að skríða og hreyfa sig, varðandi hversu mikið það borðar.
 

Þessi uppskrift er:

  • Án glúteins
  • Án eggja
  • Án hneta

Þessa uppskrift er auðvelt að gera:

  • Án mjólkur
  • Vegan (fyrir jurtaætur)

Sveskju- og perumauk

Gerir 6-8 skammta

Innihald

  • 150 g steinalausar sveskjur, saxaðar gróft
  • 200 g perur skrældar, þvegnar og kjarnhreinsar og saxaðar gróft
  • 1-2 tsk soðvatn eða móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk
  • 1 tsk kókosolía (eða önnur olía) eða smjör
  • 1 tsk appelsínusafi
     

Aðferð

  1. Saxið sveskjurnar gróft (til að ganga úr skugga um að engir steinar séu til staðar).
  2. Skrælið peruna, þvoið hana og kjarnhreinsið og saxið svo gróft.
  3. Gufusjóðið perurnar í 10 mínútur.
  4. Bætið perunum saman við sveskjurnar og gufusjóðið áfram í 10 mínútur.
  5. Notið töfrasprota til að mauka sveskjurnar en einnig má nota matvinnsluvél eða blandara. Fyrir yngri börn skal gæta þess að engir stórir bitar séu eftir en fyrir börn sem eru nær 9 mánaða mega vera litlir bitar í maukinu.
  6. Bætið perunum saman við og blandið áfram í nokkrar sekúndur, eftir því hvernig áferð þið viljið á maukinu.
  7. Bætið appelsínusafa, olíu og mjólk saman við og hrærið vel.
     

Gott að hafa í huga

  • Nota má epli í staðinn fyrir perur (eða á móti perunum).
  • Gott er að frysta maukið í ísmolabox. Setjið svo molana í góða frystipoka. Merkið pokana með innihaldi og dagsetningu. Í góðum frysti geymist frosinn barnamatur í nokkra mánuði.
  • Börn eiga misjafnlega auðvelt með að kyngja mat svo bætið við meira af vatni/mjólk ef ykkur finnst það henta
  • Gott getur verið að bæta við meira magni af móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk út í maukið í fyrstu skiptin, þannig fæst kunnuglegt bragð sem sumum börnum líkar vel.
  • Gott er að blanda svolitlu af hrísmjöli/maísmjöli/hirsimjöli saman við grautinn til að fá matarmeiri graut.
  • Ég nota einungis lífrænt ræktað hráefni í barnamat og ég gufusýð alla ávexti og allt grænmeti.
  • Vörur frá Holle, Babynat, Baby Organic og Organix eru mjög góðar og mæli ég með þeim.
  • Ef þið eruð stödd þar sem þið getið ekki blandað hráefnið má bjarga sér með hvítlaukspressu (fyrir litla skammta)!