Uppskrift af CafeSigrun.com
Gróft, fjölkornabrauð
Ég setti alltaf 1 dl af hörfræjum í þessa uppskrift en fékk svo hroðalega í magann af þeim að ég er farin að setja mun minna. Maður getur alveg fiktað með innihaldið í þessu brauði því uppskriftin er svo einföld og sveigjanleg. Sérlega próteinríkt, trefjaríkt og vítamínríkt brauð. Sannkallað hollustubrauð.
Gerir 1 brauð
- 1/8 dl hörfræ
- 1/2 dl sesamfræ
- 1/2 dl sólblómafræ
(ath má skipta sesamfræjunum út fyrir t.d. haframjöl, birkifræ, hveitiklíð eða eitthvað annað)
- 600 gr spelti
- 2 msk vínsteinslyftiduft
- 2 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
- 1/2 lítri jógúrt/létt súrmjólk eða létt AB-mjólk (eða undanrenna) (má líka nota sojamjólk, haframjólk eða möndlumjólk og þá er gott að setja 1 msk af sítrónusafa með)
- 1-2 dl vatn
Aðferð:
- Hrærið öll þurrefnin saman. Bætið vökvanum út í, deigið á að vera frekar blautt/klístrað.
- Setjið bökunarpappír í brauðform.
- Hellið deiginu í brauðformið.
- Bakið í 175°c heitum ofni í 1 klst (ef eru gerðar bollur þarf minni tíma, eða um 30 mínútur). Gott er að athuga brauðið eftir um 45 mínútur (stinga prjóni inn í brauðið, ef hann kemur hreinn út er brauðið tilbúið).
- Brauðið hentar vel til frystingar og það er líka mjög gott að búa til brauðbollur úr þessu deigi
- Til að fá harða skorpu allan hringinn, takið þá brauðið úr forminu og leggið það á hvolf á bökunarplötuna síðustu 10-15 mínúturnar