Kryddað graskerskökubrauð
7. nóvember, 2006
Þetta kökubrauð er upplagt að gera þegar maður á svolítinn afgang af graskeri því maður þarf bara 225 g af graskeri í uppskriftina. Kökubrauðið er kryddað og sætt og passar vel með sunnudagskaffinu. Grasker er mjög hollt, fullt af Beta-Carotine sem er andoxunarefni og á að hjálpa okkur að sporna t.d. gegn krabbameini. Brauðið er best sama dag og maður bakar það en einnig má frysta brauðið og hita upp við annað tækifæri.
Athugið að þið þurfið matvinnsluvél eða blandara og stórt brauðform til að útbúa þessa uppskrift.
Þessi uppskrift er:
- Án mjólkur
- Án eggja
Þessa uppskrift er auðvelt að gera:
- Án hneta
Kryddað graskerskökubrauð
Gerir 1 kökubrauð
Innihald
- 185 g spelti
- 0,5 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
- 0,5 tsk múskat (enska: nutmeg)
- 1,5 tsk kanill
- 0,5 tsk negull (enska: cloves)
- 2 tsk vínsteinslyftiduft
- 130 g rapadura hrásykur (eða annar hrásykur)
- 250 g grasker, soðið og maukað
- 1 msk kókosolía
- 2 egg, lauslega hrærð
- 1 msk agavesíróp
- 50 g pecanhnetur, saxaðar (má sleppa)
Aðferð
- Afhýðið graskerið, fræhreinsið og skerið í bita. Setjið í pott með vatni og sjóðið í um 20 mínútur eða þangað til mjúkt. Kælið lítillega. Setjið graskerið í matvinnsluvél eða blandara og maukið í um 30 sekúndur eða þangað til mjúkt. Þið þurfið 225 g af graskeri en getið fryst afganginn ef einhver er.
- Í stóra skál skuluð þið blanda saman spelti, salti, lyftidufti, kanil, negul og múskati. Hrærið vel.
- Blandið saman spelti, salti, sykri og vínsteinslyftidufti.
- Í aðra skál skuluð þið blanda saman maukaða graskerinu, kókosolíu, eggjum, agavesírópi og rapadura hrásykri. Hellið út í stóru skálina og hrærið varlega (rétt svo þannig að hráefnin blandist saman). Deigið á að vera það blautt að það leki af sleif í stórum kekkjum og ekki t.d. það þurrt að hægt sé að hnoða það.
Saxið hneturnar ef þið notið þær og blandið þeim varlega saman við. - Klæðið brauðform með bökunarpappír og hellið deiginu í formið. Gætið þess að það fari vel í öll horn.
- Bakið við 180°C í um 60 mínútur.
Gott að hafa í huga
- Ef kakan er ekki tilbúin eftir 60 mínútur en er orðin dökk að ofan getið þið sett álpappír á toppinn og bakað lengur.
- Þegar kökubrauðið hefur kólnað er best að skera það í sneiðar og frysta hverja sneið fyrir sig. Þannig er auðvelt að kippa einni og einni sneið út og setja t.d. í brauðrist eða bakaraofn.
- Ef kókosolían er hörð má stinga krukkunni í heitt vatn í nokkrar mínútur þar til hún verður fljótandi.
- Nota má hreint hlynsíróp (enska: maple syrup) í staðinn fyrir agevesíróp.
- Notið hamingjuegg ef þið mögulega getið.
- Ef afgangur er af maukaða graskerinu getið þið fryst það og notað síðar.
- Hægt er að kaupa maukað grasker í dósum í stærri matvöruverslunum. Kaupið ósykurbætt grasker.
Tengdar uppskriftir
© CafeSigrun 2013








Ummæli um uppskriftina
Engin ummæli hafa verið rituð
Skrifa ný ummæli