Forsíða CafeSigrun.com
Fara beint í leiðarkerfi vefjarins
Í dag er 3. september, 2010
 

Komment

Þessi síða er hugsuð sem gestabók, athugasemdabók og í rauninni bara fyrir hvað sem ykkur langar til að segja, um vefinn, um mat, um uppskriftir eða bara um lífið sjálft, þess vegna :) Endilega látið í ykkur heyra ef ykkur liggur eitthvað á hjarta.

Fyllið inn í formið hér hér að neðan og það sem þið skrifið mun birtast fljótlega á síðunni!

Ef þið hafið spurningar um vefinn, uppskriftir, innihald, aðferðir eða annað er best að senda mér fyrirspurn.

Viltu segja eitthvað?


 
 
Sólveig S. Finnsdottir sagði:

siðan ég fékk prentarann þá er ég alltaf að skoða mataruppskriftir frá þér og nota mikið td í siðustu viku þá var ég með kjúklingasalat ( frá þér ) þannig að það er frábært að fá uppskriftirnar og ég tala nu ekki um “möffinsinn”
Kveðja mamma.


 
 
Dagný H.Vilhjálmsdóttir sagði:

Var að detta inn á þessa síðu. Á örugglega eftir að skoða hana nánar,sýnist hún forvitnileg.

Kveðja. Dagný Heiða.


 
 
Anonymous sagði:

Þessi síða er æðisleg. Vildi bara að hún væri á ensku líka svo ég gæti bent vinum og kunningjum hér í Svíþjóð á hana.
Síðan ég datt hérna inn hef ég aðallega verið að prófa drykkina með syni mínum og vini hans sem hefur glutenóþol.
Takk fyrir okkur,
mamman.


 
 
Ósk sagði:

Mér var sagt frá frábærri síðu og þetta er hún, flottar uppskriftir og bara flott hjá þér og við smá nánari skoðun sé ég að þú verður fararstjóri í ferðinni sem ég / við erum að fara í til Kenya
Takk fyrir mig. Kveðja Ósk


 
 
Agnes Ósk sagði:

Ég er svona eins og fluga á vegg að skoða bloggsíðuna þína og er farin að halda að ég þekki þig. Sem er trúlega svoldið “krípí” fyrir þig þar sem þú veist ekkert um mig ;o)

Mér finnst þessi síða þín bara alveg frábær, svo mikið af góðum uppskriftum og hugleiðingum um hollt mataræði. Takk fyrir mig!
Kv. Agnes


 
 
Erna sagði:

Hæ var rétt í þessu að klára chile con elote. Og nammi ofsa gott. Eina ég var ekki viss hvað kúrbítur var svo ég keypti og notaði eggaldin í staðinn og bara æði.
Eitt hérna ég er að pæla í að fara fikra mig áfram í soja vörum, Gaman væri að vita svona hvort þú eða þeir sem lesa þetta hafa eitthvað gott eða slæmt um það mál að segja.
Annars bara æðisleg síða og ég á pottþétt eftir að hafa samband aftur.. ;)
kveðja Erna


 
 
Eygló sagði:

Frábær og girnileg síða hjá þér!

Kveðja, Eygló (frillan hans Antons)


 
 
Anna Stína sagði:

Hæ !! Góð síða – bendi líka óspart á hana bæði í skólanum og í vinnunni. Vona að sé gaman hjá ykkur í Afríkunni. kv. Anna Stína – alein heima á klakanum :-(


 
 
Amma-Jenta sagði:

Þessi ágæta heimasíða er verulega spennandi.
Mig langar til að hafa upp á góðri uppskrift af eplaskífum. Leitaði fyrir mér á dönskum síðum, þar er sannarlega nóg að finna. – En oftast með þvílíku magni af sykri að mann verkjar í munninn af tilhugsuninni um að borða afraksturinn.
Ef þú hefur rekist á vænlega uppskrift af eplaskífum þá væri gaman að sjá hana. Eins sé ég, hjá fleirum en mér, að það er misjafnt hvernig gengur að baka þær þannig að þær séu vel bakaðar, hver er galdurinn við það ?
Hilsen.


 
 
Barbietec sagði:

Ó guð! geðveik síða. Ætla með nýju eldhúsi að taka innihaldið í skápunum í gegn og gera komur mínar í heilsubúðirnar að reglulegum viðburði. Þessi síða mun sannarlega hjálpa mér að finna hugmyndir. Þú þyrftir að vera með RSS á síðunni sem segir frá þegar þú bætir inn nýjum uppskriftum :)


 
 
Inga Lóa sagði:

Góð síða ;-) skoða hana oft og mikið.
Langaði að segja ykkur að það er alveg geðveikt gott að nota haframjólk í boozt. (blanda svo hverju sem maður vill saman við)
Veði ykkur að góðu.


 
 
Jónsi sagði:

Hæ skvís, var að endavið að gera súkkulaði möffins, sjúklega góðir hjá mér ef ég segi eins og er :) svona er að vera kominn með almennilegann ofn, við vitum bæði hvernig fór síðasta tilraun til að gera möffins, það flæddi allt útum allt eins og hraun.


 
 
Vanda sagði:

Hæhæ,
langar að þakka fyrir frábæra síðu. Rambaði inn á hana fyrir slysni, fyrir nokkrum mánuðum. Hef verið fastagestur síðan.


 
 
Erna sagði:

þetta er æðislegur vefur hjá þér og takk fyrir að leifa okkur að njóta þess líka með þér .


 
 
magga sagði:

Sæl og blessuð. Til hamingju með frábæra síðu. Mikið er gott að fá að njóta afraksturs tilrauna þinna! Takk fyrir að deila þessu með okkur hinum sem hafa ekki svona mikið hugmyndaflug ;-) . Kem hér oft inn og skoða, er ekki mikið farin að prófa en hlakka til!


 
 
Elín V Þorsteinsdóttir sagði:

Þetta er frábær síða sem ég þarf að benda nokkrum konum á, þar sem ég var í magaminnkunaraðgerð fyrir tveimur mánuðum og þegar ég fæ gesti vil ég hafa hollt og gott meðlæti sem ég get líka sjálf nartað í. Langar líka að benda þér á “rjómann” sem ég nota í staðinn fyrir þennann óholla sem ég þoli ekki. Hann er svona;

3 eggjahvítur,
1 dós 10% sýrður rjómi,
strásæta, nutra sweet,

Eggjahvíturnar eru stífþeyttar og sýrði rjóminn settur laust saman við og svo strásætan, magnið af henni fer eftir smekk.

Þetta nota ég mikið með ferskum niðursneyddum ávöxtum ef ég vil gera vel við mig og mína.


 
 
Guðrún sagði:

Frábær síða hjá þér. Ég er sérstaklega ánægð með að hafa fundið uppskrift af gulrótarbuffi, þú trúir ekki hvað ég er búin að leita mikið að uppskrift af því. Hlakka til að prófa :)


 
 
Svava sagði:

Sæl Sigrún og hjartans þakkir fyrir verulega góðan vef!
Ég rak augun í það að manninum þínum þykja Burritos góðar..líkt og mér sjálfri..ég bý oftast til tortillurnar sjálf, og nota til þess uppskrift frá Sollu á grænum kosti sem er alveg stórgóð og það besta er að maður er svo litla stund að henda þessu saman og baka á þurri pönnu!Og þúsund sinnum betra en þessar tortillur út úr búð…
5 dl spelt
2 msk sesamfræ
1 tsk sjávarsalt
1/2 dl ólífuolía
150-175 ml soðið vatn
Þurrefnum blandað saman og olíunni nuddað í speltið. Vatni bætt út í og hnoðað. Rúllað upp í nokkrar tortillur og bakað á þurri pönnu við meðalhita. Ógeðslega gott!
Kær kveðja
Svava


 
 
Jenta-amma sagði:

Sæl Sigrún.
Velkomin til Evrópu.
Ég var nú á dögunum að spyrja þig um eplaskífuuppskrift, svo auðvitað átti vinkona mín eina hreinræktaða sem er ættuð frá móðurömmu hennar en hún var yndisleg dönsk frú frá Tinglev á Suður-Jótlandi. Hún hét Ingeborg Christesen, ég fannst reyndar lengi vel að hún héti “mormor.”
Uppskriftin:
500 gr. hveiti ( spelt er fínt)
250 brætt smjör. ( skipta út fyrir góða olíu )
3/4 ltr. volg mjólk.
7 stk. egg.
5.gr. salt.
1/2 tsk. kardemommur.
3. tsk. lyftiduft.
rifinn sítrónubörkur/sítrónudropar.

Taktu eftir, – enginn sykur, og þessar eru bestar !

Kveðjur frá Patró til ykkar Jóhannesar.

Jenta.


 
 
Bára sagði:

Sæl Sigrún
og takk fyrir skemmtilega síðu sem ég heyrði af í gegnum vinnufélaga.
Ég hef ekki prófað uppskriftirnar þínar (en á örugglega eftir að gera það) en það sem mér finnst gaman að og áhugaverðast er að lesa það sem þú skrifar um London.
Takk fyrir.


 
 
Dísa sagði:

Mig langar nú bara að hæla þér fyrir þessa mögnuðu síðu, ég á án efa eftir að nýta mér hana heilmikið og pottþétt eftir að senda einhverjar uppskriftir og hugleiðingar, Gangi þér vel með þetta.
kv. Dísa


 
 
Drífa Hrönn sagði:

Ég útbjó í gærkvöldi Kjúklingasalat með mangó-karrísósu sem ég fékk uppskriftina af hér á síðunni. Yndislega bragðgóð dressing.

Á eftir að prófa miklu fleiri uppskriftir :) takk, takk.


 
 
Ásta Ólafsdóttir sagði:

Hæ hæ kæra Sigrún,

Enn og aftur hafa uppskriftirnar þínar “gælt” við bragðlauka mína og vina minna.

Bauð vinkonum mínum í dekur í gær og snilldin var sú að ég heildarundirbúningur/matreiðsla tók um 1 klst. Ég bauð þeim uppá New York salatið þitt og Dökku súkkulaðikökuna (án súkkulaðis)…. þær hreinlega “fríkuðu út”… súkkulaðikakan er náttúrulega bara TÆR snilld!!!!

Var einnig með “mína” útgáfu af Gazpacho kaldri tómatsúpu sem vakti lukku … ef þú/þið hafið áhuga:

4 stórir og fallegir tómatar
1 rauð paprika
1/2 – 1 fennel (má vera laukur en ég er með fennel-æði þessa dagana)
1/2 agúrka
2 msk góð olivuolia (má vera meira ef fólk vill meiri fitu)
4 msk gott balsamic edik
vatn e. smekk (ég set ekki svo mikið vill hafa hana þykka)
1-2 sneiðar spelt brauð (skorpan tekin af)
2 lítil hvítlauksrif (má vera meira en þarf að passa sig því hvítlaukurinn tekur auðveldlega yfirhöndiina í þessum félagsskap)
sjávarsalt

Svo er þessu öllu bara skellt í blandarann og látið maukast í örfáar mínútur og viti menn…. tilbúið og yndislegt!!!

Var svo með tortilla kökur sem ég setti sojaost á og lét undir grillið í ofninum í nokkrar mínútur eða þar til kökurnar urðu nokkuð stökkar og osturinn bráðinn… skar í þríhyrninga svona til að maula með.

Bestu kveðjur að heiman

Ásta


 
 
Sibba sagði:

vá vá frábær síða ég á eftir nota hana mikið ….
kveðja Sibba


 
 
Kristin Gunnarsdóttir sagði:

Dóttir mín (Sibba) var að senda mér þessa síðu hlakka til að prufa uppskriftirnar.gott framtak.


 
 
Hrafnhildur sagði:

Sæl Sigrún. Og takk fyrir frábæra síðu, ég er alveg húkt á að skoða og velta vöngum yfir ýmsum uppskriftum og reyna að breyta þeim, eins og þú hefur verið að gera, alveg dásamlegt, en það er eitt sem mig langar að spyrja um hvað sætuefni ertu að tala um, er það xylitol canderíl eða eitthvað annað, og svo sá ég að þú hafðir búið til orkustöng en fann ekki uppskriptina af henni. Við erum að fara í útilegu og þá væri gott að vera með eitthvað svoleiðis. Enn og aftur takk fyrir mig kær kveðja Hrafnhildur


 
 
Korinna sagði:

Þetta er mjög fínt hjá þér. Ég hlakka til að prufa eitthvað af þessum uppskriftum, er þó alltaf að breyta og prufa mig áfram líka.
ég borða mjög lítinn sykur og ekkert hvitt hveiti en ég leyfi mér stundum (afmæli, árshátið o.þ.h.) þar sem mér finnst gott að finna rétta jafnvagið í öllu sem ég geri. Mér finnst mikilvægt að borða einnig fitu og borða ég smjör þó ég gerði það ekki í mjög langan tíma og geri eiginlega einnig bara á Íslandi. Sama gildir um rjóma. Fyndið. Hráefnið hérna er bara allt öðruvísi og á meginlandinu.


 
 
Gróa sagði:

Sæl Sigrún.
Síðan þín er alveg frábær og þakka þér kærlega fyrir að fá að njóta hennar. Ég rakst á hana fyrir tilviljun í vetur. Þú hefur lagt mikla vinnu í þetta og er óeigingjarnt af þér að deila henni með okkur.
Ég fékk grænmetisæturnar í hljómsveitinni Hjálmum til mín í mat um daginn, en sonur minn er einn af hljómsveitarmeðlimum þótt hann sé ekki bara grænmetisæta. En ég fletti upp á þér til að nálgast uppskriftir og þeir voru nú aldeilis heppnir. Það sem ég gerði var:
Bakaði kókos-brauðbollur
New York salatið
Grænmetisböku og
Austurlenskar “fimm-krydda” grænmetis-eggjanúðlur

Núðlurnar þóttu mér sístar, en hitt var aldeilis frábært allt saman hvert öðru betra.

Ég á örugglega eftir að prófa meira af uppskriftunum þínum og kannski skrifa ég aftur um það hvernig til tókst.

Kær kveðja,
Gróa


 
 
Elsa Dögg sagði:

Sæl Sigrún. Takk fyrir að halda út þessari frábæru síðu. Ég fer mikið inn á hana og hef eldað mjög mikið af uppskriftunum þínum. Þær hafa allar verið góðar. En sjávarréttarsúpan er vinsælust hjá mér og Hýðisgrjóna paellan.
Kærar þakkir fyrir mig.


 
 
Fríða María Harðardóttir sagði:

þetta er alveg frábær vefur.. ótrúlegt að ég hef ekki skoðað hann almennilega fyrr.. best að fara að elda bara held ég..
en datt í hug að það mætti bæta í tenglana:
http://www.anaestugrosum.is/

bkv. Fríða María Harðardóttir


 
 
Ella Hafnarfirði sagði:

Loksins, loksins, loksins
Ég veit varla hvernig ég fann þessa síðu en ég er í skýjunum yfir henni. Er núna með Jesútertuna í frystinum og stelst í hana við og við. Meira að segja kallinn, sem veit fátt betra en sykur og súkkulaði, finnst hún æði. Ef hinir réttirnir eru jafngóðir og hún þá er sko veisla framundan. Takk fyrir mig
Ella


 
 
Svava sagði:

Er þetta aspartam ekki í lag í litlu magni…held ég hafi heyrt að maður þurfi að neyta kannski baðkars af aspartami svo það skaði mann eitthvað…????


 
 
silla sagði:

hæhæ þetta er flott síða, gaman að þú deilir þínum uppskriftum með svona mörgum, af hverju uppgötvaði ég hana ekki fyrr hehe:)

en mér finnst mjög spes þetta með fituna, að þú forðast hana svo. Fitan er nauðsynleg og mjög fituskertar vörur eru yfirleitt óhollar. fitan á að vera um 20% af fæðunni, bara passa að hafa holla fitu, t.d. í hnetum ávöxtum, kaldpressuðum olíum og fiski. neyti menn of lítillar fitu getur líkaminn minnkað framleiðslu á gleðihormónum og manni getur orðið kalt. fita þarf ekki að vera fitandi, sé hennar neytt rétt, það gera kolvetnin.


 
 
CafeSigrun.com sagði:

Það er reyndar misskilningur að ég orðist fitu. Jú ég forðast smjör og þess háttar en ég nota mikið af hnetum í uppskriftirnar mínar. Ég nota reyndar litla fitu en sú fita sem ég nota er holl fita eins og í avacado, hnetum, ólífuolíu, fiski o.s.frv. Ég nota heldur ekki rjóma í mat því mér finnst það ólystugt. Ég aðhyllist ekki Atkins eða þess háttar kúra en ég reyni alltaf að hafa gott hlutfall af fitu, kolvetnum og próteinum í matnum mínum. Við þurfum fitu fyrir liðina, beinin og vöðvana okkar og þess vegna er mikilvægt að borða feitan fisk, taka inn lýsi o.s.frv. Ef þú skoðar uppskriftirnar sérðu að mikið af þeim innihalda holla fitu en ég sneiði mikið fram hjá fitunni sem má finna í mjólkurvörum þar sem hún er ekki holl.


 
 
Elsa Dögg sagði:

Sæl Sigrún. Ég varð bara að láta vita að ég var að prófa Austur Afrísku grænmetissúpuna og hún er himnesk.
Takk fyrir mig.
Elsa Dögg


 
 
Ingibjörg sagði:

Heil og sæl! Ég tók eftir því að þegar þú bakar möffins setur þú bökunarpappír í formin til að þau festist ekki. Mig langaði að benda á að það er hægt að fá alveg frábær tefal möffins form í IKEA (tekur 12 möffins í einu) og ef þau eru spreyuð létt með PAM spreyi (eða öðru slíku) þá hreinlega flýgur möffinsið úr eftir baksturinn ;)


 
 
Sigrún sagði:

Takk fyrir frábæra síðu sem ég rambaði á fyrir tilviljun. Hlakka mikið til að prófa uppskriftirnar. Virkilega gott framtak hjá þér.
Kærar þakkir fyrir að leyfa okkur hinum að njóta með þér!


 
 
Hulda Björk sagði:

Kæra Sigrún, mig langar að setja inn uppskrift af pizzabotni sem ég gerði í gær, heppnaðist svona líka listavel!! Ég vafraði á netinu þar til ég fann pizzabotn án gers,og aðlagaði hana að mínu hráefni.
Ég nota helst alltaf lífrænar vörur, og olíu sem þolir betur hita, (sólblómaolía til steikingar) og vínsteinslyftiduft.

SPELTPITSA, gerlaus

Botn:

2 msk sólblómaolía
3 bollar spelt
4 tsk lyftiduft
heitt vatn
1 tsk salt
smá krydd (ég notaði reyndar töfrakryddblöndu frá pottagöldrum, salt í henni)

þurrefnin & olían eru sett í hrærivél eða þeytara & blandað vel saman
vatninu bætt útí á meðan hrærivélin er á hægri ferð
deigið á að vera smá klístrað
deigið er flatt út & bakað við ca 200°c í ca 4-5 mín
smyrjið tómatmaukinu á botninn – raðið síðan restinni af fyllingunni ofaná
bakað við ca 200°c í ca. 7-10mín
Mæli með að setja bara nóg af dóti ofaná…. það er svo miklu betra.
Ég setti pepperoni, banana og lauk, og rifinn mozzarella yfir.
Best þótti mér að nota nýja gúmmídúkinn sem leysir smjörpappír og þvott á ofnskúffum af hólmi!! Alger snilld.

bestu kveðjur og þakkir fyrir frábæran vef, hulda.


 
 
addi sagði:

hæ Sigrún og Jóhannes!
húrra vei! snilldarvefir hjá ykkur
báðir tveir bookmarkaðir og verða mikið skoðaðir!

ég vil svo fá að koma í einn góðan expressó einn veðurdag?
hvar í heiminum er það í dag?

besta kveðja
addi


 
 
Selma Björnsdóttir sagði:

Sæl Sigrún mín!

Ég brosti þegar ég sá þig í blaðinu í morgun :) Gaman að sjá að nammibindinið frá því í 12 ára bekk er ennþá í gildi. Frábærar uppskriftir!! Hver veit nema maður hætti í sykrinum og hveitinu einhvern tíma á næstu árum :) Til hamingju með síðuna

Kveðja
Selma


 
 
Kristin Stefansdottir sagði:

Takk fyrir flotta síðu,kem til með að kíkja oft í heimsókn til að fá
uppskriftir af hollum réttum.kveðja Kristín


 
 
Ingibjörg sagði:

Takk fyrir flotta síðu, kem örugglega til með að nota uppskriftir héðan þar sem ég er að reyna að bæta hollustuna í mataræði heimilisins, hef þegar séð margar girnilegar!

Kveðja,

Ingibjörg


 
 
Katrín sagði:

Hæ hæ!!
Frábær síða. Ég prufaði kartöflu- og gulrótarbuffið, snilld!!!
Ég er líka búin að stúdera “Af bestu lyst II” og þar er svaðalega gott eggaldinlasagna, mæli með því að bæta við dós af kjúklingabaunum.
Kveðja Kate


 
 
Elín sagði:

Takk fyrir frábæra síðu. Kíki oft inn og fæ hugmyndir.
Grófa fjölkornabrauðið frá þér er í ýmsum útfærslum er orðið vinsælasta brauðmetið á heimilinu hjá stórum og smáum. Einfalt og gott.
kveðja
Elín


 
 
Alma sagði:

Hér luma ég á frábærri súpu sem ég fann í hollensku blaði. Holl og frábær á bragðið.

PAPRIKU OG TÓMATSÚPA

4 rauðar paprikur
660g trostómatar (tómatar á stöngli, auðvitað hægt að nota hvernig tómata sem er)
2 skallotlaukar eða 1 venjulegur (lítill)
1 avocado
2 hvítlauksrif
sítrónusafi sett yfir avocadóið ef þið eruð búin að skera það niður nokkru áður en það fer í súpuna til að það dökkni ekki.
alfa alfa spírur (gerir gott bragð en líka hægt að sleppa)
1 msk olía
1 msk tómatpúrra
500 ml – 1L vatn með grænmetiskrafti (1L í uppskrift en mér fannst það of mikið, þá varð súpan of þunn svo ég notaði ekki allt vatnið)
salt og pipar
125-150 g rækjur

Paprikurnar skornar í 4 sneiðar og fræhreinsaðar. Settar inn í heitan ofn og grillaðar þar í nokkra stund. Þá eru þær settar í plastpoka og leyft að kólna þar í 15 mín. Þá er auðveldara að ná hýðinu af þeim.
Tómatar settir í sjóðandi vatn og síðan skellt í kalt vatn. Þá er líka auðvelt að ná hýðinu af þeim :)
Olía hituð á pönnu og smátt saxaður laukurinn (eða laukarnir) settur út í. Síðan fer tómatpúrran ofan í. Eftir 1 mín eru paprikurnar og tómatarnir settir út í ásamt 2 pressuðum hvítlauksrifjum og látið malla í 10 mín. Þá 500ml- 1L af grænmetissoði (2 teningar) og látið sjóða í 5 mín.
Þessu er svo öllu skellt í mixer og svo aftur skellt í pottinn (eða pönnuna) og látið haldast heitt þar á meðan 1 avocadó er skorið í bita.
Þetta fer svo í súpuskálina og avocado og rækjur ásamt alfa alfa spírum yfir.


 
 
Þórdís Jakobsdóttir sagði:

heil og sæl varð bara að þakka fyrir þessa síðu alveg meiriháttar síða opnaðir algjörlega nýjan heim fyrir mér í sambandi við að elda hollan og góðan mat, hef sérstaklega verið að nýta mér brauð uppskriftirnar sem ég er algjörlega heilluð af takk takk kærlega fyrir að leyfa okkur hinum að nýta okkur þína þekkingu og hæfileika bestu kveðjur frá Ísafirði


 
 
Hafdís sagði:

Sæl Sigrún.

Ég er ein af þeim sem er viðkvæm fyrir alls kyns matvörum, en hef því miður ekki verið dugleg að breyta um mataræði en oft hugsað mér það. Fram að þessu hefur mér fundist það svo mikil fyrirhöfn. Ég held ég hafi verið leidd að þessari síðu þinni sem ég datt inná fyrir algjöra tilviljun.
Ætla að leyfa mér það að fá að notast við uppskriftirnar þínar og þiggja góðu ráðin sem eru á síðunni þinni.
Til hamingju með þessa síðu og ég er nú þegar búin að senda slóðina á systur mínar.


 
 
Valdís í DK sagði:

hæ hæ,

frábær síða hjá þér stelpa! Allt svo hollt og lúkkar samt líka gómsætt út.

Vinkona mín benti mér á þetta þegar ég var að væla yfir að hafa horft á Du er hva du spiser hérna í Danmörkinni og var mjög pirruð yfir því hversu erfitt er að finna HOLLAR uppskriftir.

Langar bara að þakka þér kærlega fyrir að deila uppskriftunum þínum hérna á netinu.

Þú ert lifesaver!


 
 
Hulda sagði:

Frábær síða. Hlakka til að prufa ALLT.

Þú ættir nú bara að gefa þetta út sem matreiðalubók. Ég myndi allavega kaupa hana. Vildi að textinn þinn myndi prentast út með uppskriftunum. Þar koma fram góðir punktar og svo ertu skemmtilegur penni í ofanálag.

Kveðja Hulda S.Kristjánsdóttir.


 
 
Margrét sagði:

Sæl og til hamingju með þessa flottu síðu þína.Sé að ég þarf endilega að skoða þetta betur hjá þér :)
Samt er það eitt sem ég er að spá í þar sem þú virðist hugsa ansi mikið um heilsuþáttinn í þessu hjá þér og það er notarðu sykursætu þe gervisykur!! Ég er allavega að forðast aspartam eins og pestina.
Með bestu kveðju,
Margrét


 
 
Guðný Anna sagði:

Sæl og blessuð.
Takk fyrir frábærar uppskriftir.
Leyfði mér að setja tengilinn þinn á síðuna mína.
Ég er í því að prófa afríska rétti núna og finnst þeir yndislega öðruvísi – og góðir.
Bestu kveðjur,
GAA


 
 
Rósa sagði:

Sæl Sigrún.
Þakka þér fyrir að gera uppskriftirnar þínar aðgengilegar öllum. Ég veiktist fyrir nokkrum árum og fitnaði mjög mikið meðan ég var í sterameðferðum en hefur nú tekist að léttast aftur og hef breytt mataræði í þá átt að nota eins gott hráefni og ég get fundið í það sem ég ætla að borða. Að sjálfsögðu sleppi ég sykri, hvítu hveiti og nota mjög litla fitu. Mér líður miklu betur, krónískir verkir hafa minnkað og ég er hressari.
Ég hef aldrei verið mikið fyrir matreiðslu eða bakstur en núna er ég að byrja að baka Speltbrauð og finnst það gaman. Mér datt í hug að nota te sem ég átti sem krydd í fyrsta brauðið mitt og það varð alveg meiriháttar gott. Teið (í lausu að sjálfsögðu) er Yogi Tea og heitir Himalaya. Innihaldslýsingin segir: Anis, Fennel, Lakkrís, Cardimommur, Svartur pipar, Kanill, Negull. Af þessari teblöndu notaði ég 3 -4 tsk. Ég notaði líka Sólblómafræ og Sesamfræ. Kryddbragðið er ekki yfirgnæfandi og maður bítur ekkert í svarta piparkúlu ! Anísbragðið kom mest fram fannst mér. Ég á eftir að testa þetta betur !
Ég er farin að hlakka til að prófa meira af uppskriftunum þínum.
Kær kveðja
Rósa.


 
 
Eva Úlla sagði:

Blessuð Sigrún,

ég fékk upplýsingar um síðuna fyrir ca 2 vikum og er mjög hrifin, en ég vissi samt ekki hver væri eigandi hennar fyrr en ég las greinina í Fréttablaðinu.
Mér finnst þetta alveg frábært framtak hjá þér og takk fyrir mig.
Virkilega gaman að fá að rekast svona á þig á netinu.
Gangi ykkur vel, ég er líka búin að kíkja á espressó síðuna!

Kveðja
Eva Úlla


 
 
Melkorka sagði:

Ég tek undir það sem þegar hefur komið fram að ég myndi kaupa matreiðslubókina ef þú gæfir þetta efni út. Svo finnst mér líka kommentin þín á undan uppskriftonunum svo skemmtileg og fræðandi að þau mættu að mínu mati fylgja þegar maður prentar uppskriftirnar út.


 
 
CafeSigrun.com sagði:

Vegna ítrekaðra áskorana (frá allavega 2 notendum hahahahaaha) prentast textinn fyrir ofan uppskriftina þegar maður prentar hana út. Ég var svo viss um að fólk vildi ekki þennan texta því hann lengir jú síðurnar sem maður prentar á en ef fólk vill þetta… þá er það sko miklu meira en sjálfsagt. Sem sagt, búin að breyta :)

Sigrún


 
 
Melkorka sagði:

Ég hef stundum brugðið á það ráð að ,,copy paste” uppskriftirnar yfir á skjal áður en ég prenta þær út til að fá textann þinn með en þetta er miklu betra.
XXX Takk fyrir :)


 
 
Þórhildur sagði:

Sæl

Frábær síða hjá þér. Nóg af uppskriftum, ekki veitir af þegar maður er nýlega hættur að elda kjöt og veit stundum ekkert hvað maður á að hafa í matinn.

Mig langar að senda þér uppskrif frá Sollu á Grænum kosti af frábæru grænmetis lasagna (kom í hagkaupsbæklingi fyrir stuttu síðan). Mjög gott og einfalt.

. Grænmetislasagna

2 msk lífræn kókosfita
½ rauðlaukur, smátt saxaður
2-3 hvítlauksrif
3-4 msk. tómatpúrra
1 stk sæt kartafla smátt skorin
½ blómkálshöfuð smátt skorið
1 stk gulrót smátt skorin
1 stk rauð paprika smátt skorin
1/6 sellerirót smátt skorin
1 dós tómatsósa eða maukaðir niðursoðnir tómatar
2-3 tsk oregano
smá basil
sjávarsalt og nýmalaður pipar
1 dós kókosmjólk (sýrður rjómi eða kotasæla)
rifinn ostur (soja eða venjulegur)
1 pk lasagnaplötur

Mýkið laukinn í feitinni 2-3 mín. Bætið við hvítlauk og tómatpúrru og blandið í um 1 mín. Restinni af uppskriftinni bætt í og látið malla í um 15-20 mín.

Sett í eldfast form: eitt lag fylling, lasagneplötu, smá ostur. Endurtekið 1-2 sinnum. Bakað í ofni við 200C í um 30 mín


 
 
Elva sagði:

Hæ, hó vinkona!

Á kommentunum hér fyrir neðan að dæma eru fjölmargir á því að þú barasta verðir að gefa út uppskriftabók, hvernig væri það? Uppskriftirnar þínar eiga erindi við svo marga.

Þín Elva (aðdáandi númer 1)!


 
 
Edda Halldórs sagði:

Hæ Sigrún,

Til lukku með frábæra síðu. Við Agnes vorum einmitt að rifja það upp áðan þegar þú hættir að borða nammi :) …eru þetta virkilega orðin 20 ár – ótrúlegt.
Biðjum að heilsa Jóhannesi.

kveðja
Edda og Agnes


 
 
Jón Viðar sagði:

Hæ,,

Sá í blaðinu í dag að þú heldur úti þessari síðu og vatt mér umsvifalaust í að kíkja á djásnið. Alveg er þetta dæmalaust frábært framtak hjá þér að deila þessum uppskriftum með okkur hinum.

Vildi endilega þakka þér framtakið. Sjálfur er átti ég nýlega 48 ára afmælisdag og setti mér það markmið að verða í mínu besta formi
fyrir fimmtugt.. :-) Ég hreyfi mig allnokkuð minnst klst. á dag
(röskur göngutúr) og hjóla einnig og stöku sinnum fer ég í sund.

Þolið er því nokkuð gott, en vantar uppá að styrkja vöðva í efri hluta líkamans og eins og ekki síst þarf ég að taka á matraæðinu.. Þar kemur síðan þín til skjalanna.. Fram til dagsins í dag hef ég etið það sem að mér hefur verið rétt ,, nánast og þykir flestur matur góður. Síðustu 3-4 árin hef ég engu að síður meira og meira hugsað um það sem ég læt ofaní mig og veit að þar er hægt að bæta mikið úr til batnaðar..
Ég ætla að prufa eitthvað af uppskriftunum þínum og sjá hvort það sé ekki eitthvað sem ég get tileinkað mér..

Enn og aftur takk fyrir að setja þetta efni á vefinn, það gerir mörgum lífið léttara í átaki til hollara lífernis ,, ekki nokkur spurning um það.. :-) ..


 
 
Helga sagði:

Sæl Sigrún

Er tíður gestur hér á síðunni þinni og er yfir mig hrifin af uppskriftum þínum. Hlakka til að prófa allar þessar girnilegu jólasmákökur :)

Bestu kveðjur, Helga


 
 
Ragnheiður sagði:

Sæl, Var að skoða síðuna þína og ná í uppskrift af dökkri súkkulaðiköku sem ég ætla að prófa í saumaklúbbnum á morgun. Mjög flottar uppskriftir, mig langar mikið að fara alveg út í þína línu. Mig langar samt að benda þér góðfúslega á að þorskfælni okkar Íslendinga er vegna þess að hér á árum áður var þorskjur veiddur á grunnsævi og þá var töluvert af ormi í honum og er enn, þar sem selurinn er nærri. Hins vegar er þorskur veiddur langt úti á miðum, besti fiskur sem hægt er að fá, miklu stinnari og bragðbetri en ýsan og engir ormar. Kv.
R


 
 
Harpa sagði:

Já skemmtileg síða,, kíki örugglega á uppskriftir hjá ykkur.
Einmitt í mínum anda, takk fyrir það.
En bökunarsóda nota ég ekki – bara vínsteinslyftiduft.
Langar að spurja hversvegna þú notar bökunarsóda.
Kveðja til ykkar Harpa Ágústsdóttir.


 
 
Oddný Ólafsdóttir sagði:

Sæl og blessuð

Ég hef aðeins eitt að segja og það er- til hamingju með þessa síðu þetta er frábært að fá allar þessar upplýsingar á einum stað og allur þessi fróðleikur váa— ég á ábyggilega eftir að nýta mér þessar upplýsingar og uppskriftir.

Takk fyrir mig
Oddný


 
 
Finney Rakel sagði:

Frábær síða :)


 
 
Melkorka sagði:

Mig langar að deila með ykkur æðislegustu köku sem ég hef fengið uppskrift að til þessa. Hún er bæði rosalega holl og æðislega góð. Ég fékk uppskriftina í Vikunni kökublaði sem kom út fyrir nokkrum vikum en ég er búin að breyta henni soldið.

1 bolli saxaðar döðlur
1 bolli valhnetur, hakkaðir eða bara muldir í c.a. 4 bita hver
1/4 bolli-1/2 bolli dökkt súkkulaði (eða karob), saxað gróft
1 tsk vaniludorpar
2 stk egg
1 tsk lyftiduft
2 matskeiðar sykur t.d. ávaxtasykur (átti að vera einn bolli sykur en 2 msk er alveg nóg)

-öllu skellt saman
-inní ofn á 180 gráður í c.a. 30 mínótur
-ofaná er gott að hafa t.d. rjóma og banana en þeir sem vilja ekki rjóma… ég veit nú ekki hvað þeir geta haft í staðinn. Það þarf allavegana eitthvað milt til að vega á móti kökunni því hún er bragðmikil.


 
 
Aníta sagði:

Hæhæ !

Var að uppgötva þessa síðu rétt í þessu, var að googla í leit að einhverju sniðugu til að nota allar Pecan hneturnar sem ég var að kaupa mér og rakst á þessa skelfilega djúsi uppskrift af Bláberja-Pecan muffins… naaamm…
Annars sit ég bara hér í slefinu mínu og fletti í gegnum allar þessar hrikalega girnilegu en bráðhollu uppskriftir.
Þessu síða er alger fjársjóður, þakka þér kærlega fyrir að hafa þetta svona opið fyrir okkur öll til að njóta..

Bestu þakkir, Aníta.


 
 
Ellen sagði:

Þetta er svo flott síða hjá þér á CafeSigrun

bestu þakkir.


 
 
Sædís sagði:

Sæl, þakka þér fyrir þessa fínu og bragðgóðu heimasíðu.
Ég prófaði í kvöld að gera kartöflumauksúpuna þína og verð að segja að hún var frábær. Ég nennti ekki að setja hana í gegnum matvinnsluvélina og bar hana því fram með lauknum og kartöflubitunum í. Kom mjög vel út. Ég átti líka ekki púrrulauk og notaði því heilan rauðlauk í staðin. Nammi namm. Ég get ekki beðið eftir að smakka fleira. Ætla mér að prófa brauðin þín – ef þú átt eitthvað meira með hveitikími þá væri gaman að sjá það. Ég hef séð svona hveitikím – pönnubrauð þar sem ýmis krydd eru sett útí eða salsa. Rosalega gott en ég á ekki uppskriftina.

Takk aftur, ég á eftir að kíkja oft við.

Kveðja
Sædís


 
 
Oddný sagði:

Sæl,þakka þér fyrir þessa frábæru síðu.
Ég er með ferðaþjónustu og nota oft uppskriftir af síðunni,Það er líka frábært að geta nálgast uppl. um fæðófnæmi því a.m.k. okkar gestum er alltaf að fjöllga sem hafa alls konar ofnæmi og óþol.
Bestu kveðjur Oddný


 
 
Oddný sagði:

Þetta er æðislega síða. Hefur komið sér vel að notum við hinar ýmsu máltíðir. Takk!


 
 
Ble sagði:

Hæhæ, takk fyrir frábæra og fróðlega síðu.
Ein ábending varðandi fitu, smjör er ekki óhollt ef þú færð það hrátt eða gerir sjálf t.d. ghee
ég tek t.d. hálfa teskeið af smjöri (ghee) sem fæðubótarefni á dag til að fá minn skammt af A og D vítamíni, ofan í það tek ég lýsi (ekki lýsi hf) því sagt er að lýsi og ghee saman sé kraftaverka blanda!! En A og D vítamín eru nauðsynleg fyrir upptöku allra annarra vítamína og steinefna.
mæli alls ekki nota ólifu oliu í eldun eða bakstur því hún skemmist við hitun og verður nánast hættuleg. Kókosolia og pálmafeiti er held ég eina olían sem ekki skemmist við hitun fyrir utan alla aðra góðu eiginleikana sem hún hefur þá er hún frábær í eldun og bakstur, hægt er að fá virgin kókosoliu sem er meira bragð af en betri fyrir eldun er hreinsuð kókosolia, eiginlega ekkert kokosbragð.
takk
ble


 
 
CafeSigrun.com sagði:

Ég nota kókosfeiti (hreina) í allan bakstur og alla eldun. Ég forðast dýraafurðir eins og smjör og mjólkurmat (en nota reyndar AB mjólk, ost og jógúrt). Ég nota hins vegar extra virgin ólífuolíu ofan á salöt, bruschetta o.fl. Pálmolíu nota ég aldrei vegna þess að vinnsla á olíunni er að eyðileggja regnskóga heimsins, sérstaklega í Malasíu og Indónesíu og þar með lífríki bæði plantna og dýra (eins og Órangúta og Súmatra tígrisdýrum). Að auki er barnaþrældómur víða þekktur í þessum löndum þar sem pálmolía er notuð því þeir anna ekki eftirspurn. 1 af hverjum 10 vörum í stórmarkaði inniheldur pálmolíu vegna þess hve ódýr hún er (m.a. vegna ólöglegra vinnsluhátta og þrældóms). Út frá mannúðar- og náttúruverndarsjónarmiðum er því ekki gott að nota pálmolíu nema maður kaupi frá aðilum eins og Nairns (sem búa til hollt hafrakex) því þeir eru meðvitaðir og eru að stemma stigu við vandamálinu.


 
 
Sóveig Basdursdóttir sagði:

Sæl Sigrún. Við bendum á áhugaverðar netsíður í blaðinu okkar og mér var vent á þína. Mér líst vel á hana og svo frétti ég að þú værir að fara af stað með réttir og uppskriftir sem væru miðaðar við börn. Er þetta rétt?

B.kv.
Sólveig


 
 
Unnur sagði:

Hæhæ, mér lýst rosalega vel á þetta hjá þér. Þetta var akkurat það sem mig vantaði!!! Mér lýst sértaklega vel á allar brauðuppskriftirnar og grænmetisréttina. Áramótaheitið mitt var einmitt enginn hvítur sykur og ekkert hvítt hveiti :)
kv. Unnur


 
 
Ingibjörg sagði:

Sæl Sigrún,
ég var að uppgötva síðuna þína og mér finnst hún stórkostleg. Hér er að finna allt sem finna þarf í hollum og góðum uppskriftum. Hafðu kæra þökk fyrir framtakið.
Ingibjörg


 
 
BH sagði:

Þú ert frábær,

Rakst á síðuna þína fyrir algjöra slysni.
Takk fyrir að deila öllum þessum uppskriftum og fróðleik með okkur hinum

Kveðja
fá einni ókunnugri.


 
 
Hjalti Þorsteinsson sagði:

Góð síða hér á ferð.

Væri sniðugt að þýða hana, t.d á ensku, enn hún á fullt erindi fyrir heiminn.


 
 
Sara sagði:

Sæl Sigrún
Hann Borgar sagði mér frá síðunni þinni fyrir skemstu. Ég hef einmitt verið að forðast hvítan sykur, hvítt hveiti, ger og þess háttar um skeið og það erfiðasta við það er eiginlega hvað fólk hefur lítinn skilning og er neikvætt gagnvart þessu. Ég hef því miður leift öðrum að hafa áhfrif á mig og slakað á mataræðinu mínu. En nú ætla ég að leyfa mér að innspírerast af þér og vera betri við sjálfa mig. Ég hef líka verið á Ayurvedic fæði í um 4 ár. Þekkirðu uppskriftarsíður á netinu með slíku fæði?


 
 
Sólveig Guðmundsd sagði:

Sæl Sigrún, ég nota vefinn þinn mikið hann er frábær ! Ég á barn með glúteinóþol og er búin að búa til mikið af uppskr. fyrir hann af allskonar mat og kökum, en vantar uppskrift af maistortillum, (pönnukökum) er búin að reyna sjálf en honum fannst þær ekki góðar :) geturðu hjálpað mér ?

kv. Solla


 
 
Haukur sagði:

Það væri gott að hafa á upphafssíðu link þannig maður geti sent vini síðuna. Án þess að þurfa fara inná eigin email.

Kær kveðja Haukur


 
 
Helen sagði:

Hæ Sigrún,

enn og aftur vildi ég bara láta þig vita hvað þetta er alveg frábær safn af uppskriftum sem þú ert með hérna á síðunni. Takk kærlega fyrir að deila þessu með okkur hinum.
Var einmitt að búa til indversku grænmetissúpuna, ofsalega góð!

takk takk og kveðja frá Kaliforníu,

Helen


 
 
halldóra sagði:

sæl Sigrún og takk fyrir síðast (þorláksmessu) er búin að lesa síðuna þína og finnst hún alveg stórskemmtileg og fróðleg,
prentaði út nokkrar uppskriftir og ætla að prófa og læt þig vita hvernig tekst til
sagan um þorskinn var frábær- gleymi aldei þegar ég átti að setja þorsk í pott þegar ég var 15 ára, ojjj sem sagt ég borða ekki þorsk og orma
bið að heilsa Jóhannesi,kveðja Halldóra


 
 
vivian sagði:

frábær síða, hefur hjálpað mér mikið ;)


 
 
Ingibjörg sagði:

Frábært, að hafa þessa síðu til að prufa eitthvað nýtt. Svo er þetta allt svo hollt (það sem ég hef séð). Til hamingju með þetta. Og takk fyrir að leyfa okkur að sjá og nota.


 
 
Steinunn sagði:

Frábær síða hjá þér á eftir að koma sér vel fyrir marga:) Fékk ábendingu um hana í dag í vinnunni og mun alveg örugglega benda á hana. Til hamingju með gott framtak!!


 
 
Inga Rún sagði:

Stórkostlegt framtak hjá þér – alveg nauðsynlega síða fyrir þá sem þola ekki óhollustuna en hafa litla reynslu að baki í heilsusamlegra mataræði.


 
 
Gummi Jóh sagði:

Ég er búin að prufa nokkar uppskriftir héðan og þær hafa allar verið frábærar.

Takk kærlega.


 
 
Geitin sagði:

Þetta er sú flottasta síða sem ég hef dottið niður á lengi lengi og þvílik himnasending. Er inn á þessari línu en frábært að fá allar þessar flottu hugmyndir á silfurfati. Þú hlytur að vera hálf brjáluð að nenna að henda þessu inn á netið :)
Flott framtak hja þér.


 
 
Sólveig Hrönn Sigurðardóttir sagði:

Halló,

Ég sá hjá þér í “algengar spurningar” umfjöllun um lífrænt kjöt og langaði þess vegna að segja þér frá því að ég hef keypt lífrænt lambakjöt frá Brekkulæk í Miðfirði undanfarin tvö til þrjú ár. Kjötið er það besta sem ég hef nokkur sinni fengið auk þess að vera hagstætt í innkaupum. Mæli eindregið með því!! Ég get sent á þig auglýsingu sem ég á frá þeim á tölvutæku formi ef þú vilt en annars þá heita þau Friðrik og Henrike og eru með rik@simnet.is eða síma 451 2977.

Á síðunni http://lifraent.hvanneyri.is/adalsida.htm sá ég líka að sagt var frá því að fimm íslenskir bændur ræktuðu lífrænt lambakjöt sem er nú aldeilis framför frá því sem var.

Takk fyrir að halda úti skemmtilegri síðu :-)

Sólveig Hrönn


 
 
Sigrún Jóhannesdóttir sagði:

Hæ Sigrún.

Langaði að segja að mér finnst síðan þín æði. Bakaði Afmælisdöðlutertuna fyrir afmæli í dag, hún sló í gegn.

Ég borða helst ekki sykur, og finnst snilld að geta fundið góðar, sykurlausar uppskriftir hérna inni.

Takk fyrir frábært framtak.

Kv. Sigrún.


 
 
Ella sagði:

Sæl Sigrún.

Ég datt óvart inn á síðuna þína á flakki mínu um vefinn og gladdist mjög við að finna uppskriftir af barnamat, einmitt það sem mig hefur vantað!!! Nú fær litli stubburinn minn sko nóg af góðum og hollum mat að borða (og fjölbreyttari en hingað til)!!!


 
 
Harpa sagði:

Sælar,
Vildi bara segja hversu frábær síða þetta er hjá þér! Þú átt heiður skilinn fyrir að standa í þessu :)

Kv. Harpa


 
 
Arnheiður Sigurðardóttir sagði:

Sælar og takk fyrir frábæra síðu, hef verið að bend mæðrum á að skoða hana. En ég er hjúkrunarfræðingur og brjóstgjafaráðgjafi og er því oft að benda mæðrum á fyrstu fæðuna þá er gott að benda á þína síðu.
Það er mikilvægt að kenna foreldrum að hafa börn á brjósti og svo að gefa þeim næringaríka fæðu en sorglegast er að 4 hvert barn er of feitt og má sjá hvert stefnir strax í smábarnavernd.
Gangi þér vel.
kv Arnheiður


 
 
Mæðgur! sagði:

Rakst óvart á þessa snilldar heimasíðu þegar ég var að googla e-ð healthy! Kemur sér án efa mjög vel fyrir alla sem vilja lifa heilbrigðu lífi en vantar tilbreytingu í matargerðina. Allar uppskriftirnar mjög spennandi og alveg frábært framtak að “posta” þessu öllu á netið fyrir almenning. Átt hrós skilið fyrir það :D
Kv, Tóta og mamma ;)


 
 
Rannveig Þórhallsdóttir sagði:

Blessuð og sæl.

Ég nota uppskriftirnar þínar mikið og þakka þér fyrir frábært framtak!

Bestu kv.
Rannveig, Seyðisfirði


 
 
Dagný sagði:

Langaði bara að segja þetta er töff síða og ég á örugglega eftir að nota hana mikið núna eftir að ég hef uppgötvað hana;)


 
 
Hrafnhildur Þ sagði:

Vildi kvitta fyrir konu mína á þessa snilldar síðu! Á örugglega eftir að elda slatta af þessum uppskriftum sem líta ansi vel út. :)


 
 
Sigríður Gunnarsdóttir sagði:

Ástarþakkir fyrir að halda úti þessari síðu. Hún er full af uppskirftum sem vantaði!


 
 
Sólveig sagði:

Þessi síða er algjör perla. Takk takk takk


 
 
Sunna Þorsteinsd. sagði:

…mjög flott síða og nytsamleg en hvernig væri að hafa líka link sem segir “Hver er Sigrún” …bara fyrir forvitna – hehe.


 
 
Gerður sagði:

Frábærar upplýsingar fyrir mig sem foreldri. Bý erlendis og hef verið frekar óörugg um hvað ég eigi að setja ofan í 7 mánaða gamla dóttur mína en nú er augljóslega ekki lengur þörf á því.
Takk kærlega!


 
 
Sigríður sagði:

Þetta er algjör snilldar síða!
Góðar og hollar uppskriftir og flestar mjög auðveldar og mjög aðgengilegar!
Mér finnst að þú ættir að gefa út bók með þessum uppskriftum… hugsa að hún myndi mokseljast því það eru margir sem vilja lifa heilbrigðum lífsstíl, en halda að það sé of erfitt… sem það er ekki :)
Frábært framtak…


 
 
Halla sagði:

Þetta er æðisleg síða og frábært framtak,- takk fyrir mig;-) Mun gera hana að matarbiblíu á mínu heimili, loksins komin síða með hollum mataruppskriftum sem ekki eru fáránlega flóknar eða óspennandi….


 
 
Guðný M sagði:

Vááá hvað þetta er fott síða hjá þér!
Ég var einmitt sest fyrir framan tölvuna í þeim tilgangi að leita uppi hollustu-uppskriftir með engum/litlum sykri eða fitu. Síðan þín var önnur síðan sem ég datt inn á ….og ég þarf ekki að leita lengra!…. Ég sem sá fyrir mér nokkurra kvölda vinnu við að safna uppskriftunum saman. Æðislegt! Ég hlakka til að prufa uppskriftirnar!
Kveðja Guðný M


 
 
Guðrún sagði:

Sæl Sigrún
Sá viðtalið við þig í Morgunblaðinu og kíkti á síðuna þína.
Hlakka til að prófa réttina þína þeir eru hver öðrum girnilegri.
Takk fyrir að deila þessu með okkur.


 
 
Eiríkur sagði:

Sæl Sigrún. Sá viðtalið við þig í Morgunblaðinu og kíkti á síðuna þína, sem er auðvitað umhverfisvæn náttúruperla. Er töluverður súpukall og mun örugglega prófa einhverja súpuna við fyrsta tækifæri, en verð fyrst að sanka að mér öllu þessu kryddi sem þarf. Sum af því er mér ókunnugt.
Bið að heilsa Jóhannesi.


 
 
Bergný Jóna sagði:

Sæl Sigrún
Rosalega lýst mér vel á þessa síðu hjá þér. Hér er margt mjög spennandi og ég barasta á leiðinni að prufa mig áfram :)

Kveðja Bergný Jóna


 
 
Melkorka sagði:

Flott viðtalið í Morgunblaðinu á föstudaginn. Myndirnar af matnum girnilegar og þú kemur vel út bæði á mynd og í viðtalinu sjálfu.


 
 
Bogga sagði:

Sæl verð bara að kvitta og segja að síðan þín er frábær og mikið að skoða,prófa pottþétt eithvað hér og ég er sammála því að uppskriftirnar væru flottar í bók sem mun rokseljast ekki spurning.Gangi þér vel kveðja Bogga


 
 
Ásdís sagði:

Sæl Sigrún
Langaði bara að þakka þér kærlega fyrir að halda úti svona síðu. Skoða hana alltaf regluglega og hún er algjör snilld. Ekki margar svona aðgengilegar og notendavænar eins og þín.

Takk takk
Ásdís


 
 
Bogga sagði:

Hæ hæ vil byrja á því að klappa fyrir þessum frábæra vef,kíki á hverjum degi og nota uppskrift dagsins mjög oft,takk takk.En þú gætir bætt við í tenglum lífræna grænmetið og ávextina hjá Græna Hlekknum http://www.akurbisk.is þar er ég í áskrift og fæ sent vikulega ísl.lífrænt grænmeti og hollenska ávexti,mæli með þessu.Kærar kveðjur Bogga í keflavík:)


 
 
Karen sagði:

Flott framtak! Ég dáist að dugnaðinum í þér og finnst gaman að nýta mér þennan gnægtarbrunn! Takk fyrir.


 
 
Inga Jóna sagði:

Sæl Sigrún
Mér finnst frábært að geta farið inná svona góða uppskriftasíðu sem er svona auðveld í notkun. Held ég eigi loksins eftir að verða “alvöru húsmóðir” Ætlaði fyrst að prenta út fullt af uppskriftum og setja í “uppskriftamöppuna” en auðvitað er best að nýta sér tölvutæknina og hafa fartölvuna með síðunni þinni uppi á eldhúsborðinu..þó í hæfilegri fjarlægð frá matvinnslusvæðinu (…eða þannig).
Kveðja Inga Jóna


 
 
Ingibjörg sagði:

Sæl Sigrún. Ég hef í langan tíma haft síðuna þína mér til trausts og halds í eldhúsinu. Í dag bjó ég svo til dökku súkkulaðikökuna þína í fyrsta skipti og hún var alveg æðisleg! Henni til hróss tók ég hana með mér í kaffiboð áðan þar sem nokkrir fílefldir karlmenn hámuðu hana í sig af bestu lyst, en þessir sömu karlmenn vilja ekki heyra svo mikið sem minnst á eitthvað sem heitir hollt og gott! Þeir stóðu í þeirra trú að hér væri rosaleg súkkulaði-bananakaka á ferðinni og hafa nú lagt inn pöntun fyrir annari slíkri ;)


 
 
Helena sagði:

Sæl Sigrún
Þetta er flottasta matarsíða sem ég hef séð – allt svo aðgengilegt og þvílíkt magn af uppskriftum!
Kær kv. Helena.


 
 
Esther sagði:

Hæ Sigrún
Þessi síða hjá þér er alveg frábær í alla staði!
Bestu kveðjur Esther.


 
 
T.H.Reykdal sagði:

Framúrskarandi síða, frábært framtak!


 
 
Ragnhildur sagði:

Sæl Sigrún!
Takk fyrir frábært framlag í matarflóruna. Það var virkilega þörf fyrir þetta. Matarverð hér á Íslandi er hátt og mjög hátt ef varan er hollustuvara. Ég fer nú orðið svo til eingöngu inn á vefinn þinn og það sem ég hef prófað er mjög gott (það er líka mjög gott að uppskriftirnar eru ekki flóknar).
Takk kærlega fyrir.
Ragnhildur.


 
 
Ásta sagði:

Sæl Sigrún.
Ég er búin að vera eins og óð manneskja á vefnum að reyna að leita mér upplýsinga um ger og sykurlaust matarræði. Rosalega er lítið til um þetta. Fann að vísu enskar síður en þá er aðalega verið að útiloka Candida sveppinn og það er frekar “heavy”.
Fyrir slysni rakst égá síðuna þín og hún er nú komin í favorits hjá mér og öllum vinkonuhópnum :)
Rosaleg er ég glöð að þú þurftir stað til að halda utan um allar uppskriftirnar þínar hehe….
1000 þakkir!!!!!!!!!!
Ásta


 
 
Dóra sagði:

Takk fyrir frábæra vefsíðu,bæði uppskriftir, tengla, og allt hitt.
Ég er alltaf að reyna að borða hollt, en á það svo til að “detta
í það” og það hentar mér ekki vel. Verð hreinlega veik,bæði líkamlega og andlega þegar ég borða óhollustu.
Nú hef ég ýmislegt spennandi að elda á næstunni, þökk sé Cafesigrúnu.


 
 
Þrúður A. Briem sagði:

Takk Sigrún fyrir aðgengilega og flotta síðu og náttúrlega það sem best er mjög góðar uppskriftir. Ég er grænmetisæta og nota grænmetis- og kökuuppskriftir frá þér mjög reglulega.
Nú rétt í þessu var ég að klára að gera blómkáls-og kartöflusúpuna sem er nýkomin og ég má bara til með að koma því á framfæri að hún er ROSALEGA góð, ein besta súpa sem ég hef smakkað og það sem gleður mig mest er að krökkunum mínum finnst hún líka gómsæt!!!
Takk fyrir!
Þrúður


 
 
Guðrún Margrét sagði:

Sæl Sigrún !!

ég fékk þessa síðu hjá einkaþjálfaranum mínum,

henni Borghildi fyrir svona ári síðan, ég dáist alltaf meir og meir af síðunni og dugnaðinum í þér,

síðan er bæði stílhrein og skemmtilega uppsett, stuttar og skiljanlegar skýringar á öllu,

ég verð að hrósa þér fyrir þessa frábæru síðu,
hún hefur gefið még margar góðar uppskriftir.

Takk fyrir.


 
 
Rósa sagði:

sæl,
væri ekki hægt að vera með sér dálk fyrir nesti ,eins og skólanesti , það kæmi sér vel fyrir mig , og fleiri öruglega ,
þú spáir í það ;)


 
 
Björk sagði:

Sonur minn er með sykursýki og ég sé fullt af sniðugum uppskriftum sem við getum nýtt okkur. Takk


 
 
Stefán Pétur Sólveigarson sagði:

Sæl Sigrún

Ég heiti Stefán Pétur Sólveigarson og er hönnuður.
Þessa stundina er ég að gera litla uppskrifta spilabók
sem heitir Veiðimann.
Þetta eru stærri gerð af spilum með 17 fisktegundum og
uppskriftum fyrir hvern fisk.
Fyrir tilviljun rakst ég á “ferskur túnfiskur og eggjanúðlur”
uppskriftina þína á síðunni þinni.
Á öllum hjörtunum í spilinu eru heilsusamlegar fisk uppskriftir
og frábært væri ef ég mætti nota hana á eitt spilið í stokknum.
Að sjálfsögðu verður þín getið neðst á spilinu sem
gefandi uppskriftarinnar.
Eða ef þú vilt auglísa fyrirtækið eða heimasíðuna þá gæti
gefandinn allt eins verið annað hvort.

Endilega hafðu samband ef þú ert jákvæð.

Kær kveðja
Stefán Pétur Sólveigarson
hönnuður
Vinnustofa Atla Hilmarssonar
stefan@hrutaspilid.is
S: 861 0057

ps. á hrutaspilid.is er hægt að sjá spil sem ég gerði fyrir ári
og fyrir helgi opnar heimasíðan veidimann.is þar sem
hægt verður að sjá betur út á hvað veiðimann gengur.


 
 
Sara sagði:

Uppáhalds fiskisúpan mín

Upprunaleg uppskrift:
500 gr þorsksflök (má nota annan ljósan fisk)
1 búnt vorlaukur
2 paprikkur
1 tsk engifer rifinn fínt
1 líter súpukraftur
1 dós kókosmjólk létt

Mín´og betri útgáfa (samkvæmt mér)

500 gr þorsksflök (má nota annan ljósan fisk)

3 paprikkur (ein græ, tvær rauðar)
1 tsk engifer rifinn fínt
1 líter heimagerður kraftur (olía með uppáhaldskryddunum: smá hing (austurlenskt krydd), paprikukrydd, chili, cayennapipar, salt og pipar. Magn af hverju og einu fer eftir smekk en athugið að allt eru þetta bragðmikil krydd.
1 dós kókosmjólk (ég nota ekki létta)

Ég tek út allan lauk í matnum, því hann fer illa í mig og enn hef ég ekki fundið lauklausan súputening. Allir súputeningar sem ég hef prófað finnst mér vondir og einnig hef ég orðið fyrir vonbrigðum af að pantamér súpur á fínum veitingahúsum vegna súputeningabragðsins.


 
 
Guðbjörg Garðarsdóttir sagði:

Mér var bent á þessa síðu og vil í framhaldinu til að þakka kærlega fyrir þetta flotta framtak. Ég mun örugglega notfæra mér þennan fróðleik og fjölskyldan mun fagna góðri tilbreytingu
í matargerð.

Kveðja Guðbjörg G


 
 
Selma Guðnadóttir sagði:

Sæl Sigrún,

Takk fyrir síðast í Naivasha vonandi var túrinn til Zansibar frábær. Frábær síða hjá þér og gaman að geta eldað eitthvað af þessum góða mat sem við fengum í Kenya.

Kveðja, Selma


 
 
Anna Kristín sagði:

Sæl Sigrún,

Takk fyrir þessa frábæru síðu. Ég hef öllu jöfnu borðað tiltölulega hollan mat í gegnum tíðina en var farin að finna fyrir því að mig skorti hugmyndaflug sem og tíma til að finna út úr uppskriftum. Þessi síða þín hefur algjörlega umbylt matarmennignunni á mínu heimili þ.e. ég finn uppskriftir hjá þér sem eru einfaldar, bragðgóðar og ekki kemur að sök að oft á ég allt til í þær heimavið en hefði aldrei áttað mig á hvernig ég gæti komið þessu heim og saman án þinnar aðstoðar. Kæar þakkir.
Anna Kristin og fjölskylda


 
 
Inga sagði:

Sæl Sigrún

Ég var að kynnast síðunni þinni um daginn og fynnst hún alveg frábær. Reyndar svo frábær að mig langar til að nota uppskrift í hönnun sem ég er að vinna að. Geturðu haft samband við mig svo við getum rætt um það?
Inga


 
 
Anna Stína sagði:

Hæ skvís – missti af þér í gær – greinilega álíka busy í okkar vinnum !
Vildi bara segja “hafðu það gott í London-vona að þú njótir þess”.
Bestu kveðjur frá okkur öllum :-)


 
 
Ásdís sagði:

Sæl

Vildi bara segja hvað mér finnst þessi síða frábær. Er með glúteinóþol og verið í vandræðum með að finna mér fjölbreytt fæði og þar með talið kökur og sætindi. Verið leiðinlegt að geta ekki fegnið sér neitt.

Bestu kveðjur


 
 
Melkorka sagði:

Ég bíð spennt eftir jóla uppskriftaflokkinum. Verður hann ekki núna eins og fyrir síðustu jól?


 
 
CafeSigrun.com sagði:

Melkorka…þú ert örugglega skyggn :) Á meðan þú varst að skrifa kommentið, var ég sennilega að ýta á ‘opna jólaflokk’ hnappinn :) Ég opnaði hann bara rétta áðan! Ég er að fara að bæta við fleiri jólauppskriftum (senda á póstlistann) mjög fljótlega!


 
 
Emma Vilhjálmsdóttir sagði:

Frábær síða hjá þér! Fróðlegt að lesa hugleiðingarnar um matarvenjur og uppskriftirnar ætla ég að fá að nýta mér :)
Takk fyrir upplýsingarnar :)
kv. Emma


 
 
Anna Magnúsdóttir sagði:

Sæl og blessuð Sigrún!
Enn eru jól og þá leita ég í smiðju til þín. Í fyrra bakaði ég jólakökuna með ensku ívafi og nú verða engin jól nema baka hana. Fleiri uppskriftir verða prófaðar í ár og er ég búin að prenta út konfekt og smáköku uppskriftir og hlakka til að smakka þær.
Mig langar að þakka þér kærlega fyrir frábæra þjónustu og faglega unnar uppskriftir.
Kærar kveðjur,
Lóló.


 
 
Friðgerður Baldvinsdóttir sagði:

Fæ alltaf póst frá Sollu og þar sá ég þessa heimasíðu.
Alveg frábært að fá allar þessar uppskriftir.
Hafðu þökk fyrir.
KV/Friðgerður
Ísafirði.


 
 
Þorsteinn Gunnarsson sagði:

Sæl vertu. Fékk ábendingu í dag, frá dóttur minni, um þessa síðu og þó svo að ég sjái nú ekki um baksturinn á heimilinu þá rak forvitnin mig inn. finnst mér síðan frábær. Einföld, snyrtileg, smart og hraðvirk. Eitthvað sem alltof fáir hugsa um. Enn og aftur til hamingju með frábæra síðu.


 
 
Gurra sagði:

Sæl Sigrún.
Mig langaði bara að þakka þér fyrir frábæra síðu og gott framtak. Ég er eins og þú 99% grænmetisæta og vil helst ekki borða neitt annað en grænmeti. Mig vantar oft hugmyndir og góðar uppskriftir og sé nú að þær verða aðgengilegar á vísum stað!


 
 
Anna María sagði:

Hæ hæ

Vildi bara þakka fyrir frábæran vef. Ég hef nú en sem komið er bara nýtt mér uppskriftir fyrir smáfólkið, þarf að fara demba mér í hinar uppskriftirnar. Er að byrja að gefa einni að borða, alltaf eitthvað svo flókið svona í fyrstu. Frábært að geta kíkt hingað.

Takk takk


 
 
alva ævarsdóttir sagði:

Sæl Sigrún og takk fyrir síðuna þína. Ég las um hana í Vikunni og er alveg orðlaus yfir þessu hjá þér, alveg hreint yndisleg síða og svo aðgengilegt allt á henni, fróðleikurinn og uppskriftirnar. Enn og aftur takk fyrir.


 
 
Rebekka sagði:

Frábær síða. Byrjaði fyrir ári síðan að hugsa um mataræðið mitt og hefur alltaf vantað uppskriftir, þetta er allveg snilld:)


 
 
Oddny sagði:

hae hae… eg er stodd i Bandarijunum og eg er ad leita af vinsteinslyftidufti, hvert er enska heitid fyrir tad?


 
 
CafeSigrun.com sagði:

Það heitir yfirleitt bara ‘Glutein free baking powder’ eða ‘baking powder without wheat’ eða álíka. Heitir líka stundum Tartar baking powder (en athugaðu samt hvort að sé nokkuð glutein í því til öryggis..)

Kv
Sigrún


 
 
Melkorka sagði:

Æðislegur þessi nestisflokkur!!!


 
 
Hallfriður sagði:

Mig langar að þakka kærlega fyrir fallega vefsíðu, stórgóðan fróðleik sem þar er að finna, heillandi uppskriftir og persónulegt viðmót. Ég er nýbúin að frétta af CafeSigrún og verð hér eftir fastagestur ykkar…
Bestu kveðjur.


 
 
Helen sagði:

Blessuð!
Langt síðan ég hef kíkt hingað inn eða kommentað. En vildi bara segja að ég er hjartanlega sammála Melkorku hér að neðan… Frábært nestisflokkur! æðislega sniðugt hjá þér!
kveðja,
Helen


 
 
Inga sagði:

Sæl, vil bara þakka fyrir frábæra síðu! Fróðleikurinn um ungbarnamatinn er alveg að bjarga mér nú þegar ég er að byrja að gefa barninu mínu að borða.

kv. Inga


 
 
Margret sagði:

Godan dag. Eg vildi bara thakka fyrir mig. Las um thessa sidu i vikunni og er buin ad lesa alla siduna i gegn sidan. Otrulega adgengileg, skemmtileg og frodleg sida.
Frabært framtak.


 
 
Gerða sagði:

Takk fyrir frábæra síðu. Ég rakst á þessa síðu fyrir langa löngu og í dag kíki ég alltaf inn á hana þegar mig vantar góða uppskrift. Vona að þú haldir áfram að setja inn hollar og góðar uppskriftir , því það er fullt af fólki sem kann vel að meta það sem þú ert að gera.


 
 
Dísa sagði:

Þessi síða er snilld! Brilliant! Algjörlega ÆÐI! Takk kærlega fyrir!

Dísa


 
 
Svava Theodórsdóttir sagði:

Ég rakst á uppskriftirnar þínar í Sjónvarpsdagskránni og þar sem ég er byrjuð mína vegferð við að breyta mataræði mínu til hollari, lífrænni vegar þá gladdist ég mjög. Og enn meira gladdist ég þegar ég loksins náði því að það væri til vefsíða með þessum frábæru uppskriftum. Hún er nú þegar búin að hjálpa mér mikið og á örugglega eftir að hjálpa mér meira.
Ástarþakkir fyrir framtakið og síðan er mjög falleg hjá þér!
Kveðja
Svava Theodórsdóttir


 
 
Kristín sagði:

Vá, þetta er ekkert smá. Manni finnst einhvernveginn bölvað vesen og dýrt að elda á hollan hátt, en þegar allt kemur til alls þá líður manni miklu betur og af hverju ekki að eyða pening í heilsuna, þó maður sé á námslánum ;)

Ég er núna með eina 5 mánaða sem mun njóta góðs af uppskriftunum þínum og við skötuhjúin ætlum að færa okkur smám saman yfir í þennan lífsstíl því við viljum ekki bjóða dóttur okkar upp á óhollustuna!

Takktakk!


 
 
Þorbörg Rún sagði:

kæra Sigrún, langaði bara til að þakka kærlega fyrir mig. Ég fæ uppskrift hjá þér nánast í hvert skipti sem ég held matarboð. Hef prófað td. hnetu- engiferréttinn afríska- furðulegasti réttur sem ég hef eldað, en sérdeilis góður þó. Kökurnar hef ég líka fengið margar og eru þær hver annarri betri. Í kvöld er ég með matarboð og er að byrja á gulrótarköku og zanzibar baunarétti frá þér. Takk fyrir mig.
kv. Þorbjörg


 
 
Sigga sagði:

Sæl Sigrún og Jóhannes

Takk fyrir frábæra síðu.
Er búin að glugga heilmikið í uppskriftirnar og nota þær í bland
við mínar þær vega heilmikið upp á móti óhollustuni í mínum.
get allveg sagt að ég vildi vera í ykkar sporum í Afríku
góða skemmtun
kv
Sigga


 
 
Anonymous sagði:

Do you have an english version of these delicious looking recipes?


 
 
Fanney sagði:

Halló!
Ég fann mig knúna til að ,,klappa þér á bakið” fyrir þessa stórmögnuðu heimasíðu. Hef nokkrum sinnum rambað hingað inn gegnum bloggsíður og stoppað við þessar ótrúlega girnó uppskriftir. Ég bíð spennt eftir fyrstu uppskriftarbókinni kona, og þeirri næstu!
Takk fyrir að leggja þessa vinnu á þig svo aðrir geti uppgötvað yndislega hollan og girnilegan mat!
Kv.
Fanney


 
 
Sigga sagði:

Sæl Sigrún
Ég sé að þú ert að kvarta yfir kjálkavandamálum.
Hefur þú prófað höfuðbeina og spjaldhryggsmeðferð?
Ég átt í svona veseni fyrir ca. fjórum árum og fór í svona meðferð og hef ekki fengið verki síðan.
Er aðeins byrjuð að fynna fyrir spennu í kjákum aftur en er að
byrja nýja meðferð í dag.
Datt í hug að láta þig vita að svonameðferðir virka.
kv Sigga


 
 
Berglind G. sagði:

Sæl Sigrún, mig langar að þakka þér svo innilega fyrir að halda úti þessari frábæru síðu. Það er þó nokkuð langt síðan ég fór að kíkja hingað inn, og ég fæ alltaf einhvern innblástur í heimsóknunum. Ég var að lesa gamalt blogg áðan frá þér um náungann sem varð svo pirraður að hann lokaði vefsíðunni sinni um tíma, til að minna fólk á almenna kurteisi í samskiptum. Ég fattaði þá að ég hef svo oft komið hingað inn, sótt uppskriftir og nýtt mér vefinn en aldrei kommentað eða sýnt nokkurn þakklætisvott fyrir þetta óeigingjarna framtak þitt. Mig langar því hér og með að segja: kærar þakkir fyrir þennan frábæra vef og allt sem á honum er að finna, og gangi þér allt í haginn í framtíðinni.
Bestu kveðjur
Berglind


 
 
Elín Ösp sagði:

Gott framtak hjá þér!


 
 
Svava Jones sagði:

Takk fyrir mig Sigrun, er ad taka fyrstu skrefin af alvoru til hollari lifstils eftir araradir af “yo-yo dieting”. Uppskriftirnar thinar hafa synt mer ad tad er vel haegt ad skemmta ser i eldhusinu an tess ad nota smj0r, sykur og rjoma!


 
 
Jakobína sagði:

þvílík snilld
takk fyrir þessa frábæru síðu


 
 
ingibjörg Jónasdóttir sagði:

Takk fyrir mig. hér er allt sem þarf til að vera góður kokkur. Frábær síða og ekki spillir hollustan.


 
 
Silla vinkona Halldóru sagði:

Þetta er ekkert smá glæsileg síða hjá þér og þú ert algjör PERLA að hafa hana opna.
Komdu endilega við hjá okkur á Stórhöfðanum þegar þú verður á ferðinni í bænum :-)
Bkv.Silla


 
 
Inga Rósa sagði:

heil og sæl
Vildi bara fá að þakka fyrir frábæran vef, ég fer alltaf fyrst hér og leita að uppskriftum allt svo hollt og gott takk takk kv Inga


 
 
Bogga Stein sagði:

Sæl ég vil fyrst kynna mig ég heiti Bogga og er mikill notandi af síðunni þinni bæði nota ég uppskriftir og rýni í góð ráð og fl.Takk fyrir frábæra síðu.Mér langar að ath.hvort þú getir bent mér á annahvort námskeið eða síðu um matreiðslu fyrir leikskólabörn.Þannig er að ég er að fara að taka við eldhúsi á leikskóla hér í bæ (keflavík)og langar að hafa hollan og góðan mat.Hef farið á nokkur námsk.hjá Sollu og á eftir að nota fullt þaðan.Æi takk fyrir aftur og fyrigefðu frekjuna í mér.Kveðja Ingibjörg Steingrímsdóttir (Bogga) í keflavík


 
 
kristín sagði:

Er bara að uppgötva þessa frábæru hollustu uppskriftasíðu….takk takk kærlega fyrir að gera mér lífið auðveldara í baráttunni við óhollustuna….;-)

kveðja
Kristín


 
 
Arna Dís sagði:

Mér finnst æðislegt þegar þú hefur myndir af matnum þ.e.a.s. þegar maður sér hvernig uppskriftin lítur út á endanum. Má ver ameira af þessum myndum.


 
 
Svava sagði:

Sæl Sigrún og þakka þér enn og aftur fyrir að halda úti þessari frábæru síðu. Hef prófað margar uppskriftir frá þér og á eftir að prófa enn fleiri. Þar sem ég er nýlega orðin móðir var ég í ungbarnaeftirlitinu í dag með krílið og þar var mælt með síðunni þinni varðandi ungbarnafæðið! Vildi bara láta þig vita hversu mikils metin þessi síða hjá þér er í ungbarnaheiminum! Klapp á bakið fyrir það! Bestu kveðjur


 
 
Rut sagði:

Takk ;)


 
 
Sigga sagði:

sæl!
Er mikið búin að prófa af uppskriftunum þínum að undanförnu, var með Helgukjúkling(tandoori) í matinn um daginn og hann var æði, prófaði svo að baka bananamuffins og þær voru ekki lengi að hverfa. Þessi síða hjálpar mér heilmikið í að takast á við að breyta mataræðinu hjá mér og öðrum fjölskyldumeðlimum til hins betra. bestu þakkir fyrir frábæra síðu
Sigga


 
 
Inga sagði:

Langaði bara að til þess að þakka þér kærlega fyrir að vera með þessa frábæru síðu í gangi, nota hana heilmikið í stríði við slæmt mataræði. hipp hipp húrra húrra !!!!!!!


 
 
Dagmar Ósk sagði:

Komdu sæl
Ég var bara að sjá þessa síðu í fyrsta sinn og hún er alveg frábær og hefur margar uppskriftir sem mig langar að prófa ég er nýliði í heilsusamlegu mataræði og er að stíga mín fyrstu spor í grænmetisfæði. Ég hef verið að hreyfa mig reglulega sl ár og misst 30 kíló og núna loksins er áhugi minn vakinn á heilsusamlegu mataræði ég er mikið að spá í baunir og spelt og mun nota þessa síðu mikið á næstu mánuðum

Takk fyrir mig
Dagmar á Egilsstöðum


 
 
Erna Sigurdardóttir sagði:

Frábærar uppskriftir,kíki oft inn.Mér finnst alveg frábært ad geta breytt uppskriftunum í Hollar upppskriftir,ég sneidi nefnilega frá geri,hvítu hveiti og hvítum sykri….Go girl !


 
 
Eva sagði:

hæ Sigrún
snilld að rekast á þessa síðu, alveg ekta þú að vera svona skipulögð !!

annars er ég bjarnadóttir og þú nafna mömmu ;)

bið að heilsa jóhannesi, og auðvitað restinni af pakkinu þínu :D
Eva


 
 
Hanna sagði:

Hæ Sigrún,

Þessi síða þín er algjör snilld.
Það er ofsalega gaman að geta gert svona góða rétti og eingöngu úr hollu hráefni. Ég nýti mér síðuna mjög mikið og fæ alltaf góðar hugmyndir hérna hjá þér.

Takk yndislega fyrir
Kveðja Hanna


 
 
Berglind Arndal sagði:

Sæl Sigrún,

Ég vil segja, takk fyrir frábæra síðu!! Á eftir að nýta mér hana mikið.

Fékk ábendingu frá vini…

kv.
BAA


 
 
Katrín . Friðriksdóttir sagði:

Sæl Sigrún!
Mig langaði bara að senda þér línu þar sem ég er orðin gjörsamlega húkkt á síðunni þinni.
Það virðast allir vita af henni og lofa henni háttstert. Ég hef prufað mikið af þínum uppskriftum, próteinbari í útileigunum, margar margar kökur og svo aðra rétti svosem fiskrétti og fleira.
Allt sem ég hef tekið af síðunni þinni er svo gott og allt þetta hráefni sem þú mælir með er algjör snilld. Mér finnst einhvernveginn íslendingar ekki nærrum því nógu duglegir að hrósa öðrum og því langaði mig að senda þér línu og segja þér frá ánægju minni og gleði af síðunni þinni. :) Ég er dugleg að segja vinkonum og vinum frá henni og allir enda á því að prófa margar af þessum frábæru uppskriftum og í leið nýta sér öll þau heilræði sem þú gefur.
Það er greinilegt að mikið effort er lagt í síðuna og hlakka ég til að halda áfram að fá að fylgjast með.
Bestu kveðjur,
Katrín


 
 
Melkorka sagði:

Það er yndislegt að hafa aðgang að þessari frábæru heilsu uppskriftasíðu! Ég hef sagt það áður að ég myndi fagna ef það kæmi út bók. Ég sé fyrir mér að liggja uppí rúmi með grænt te og hollustusmákökur á náttborðinu og fletta í gegnum slíka bók fyrir svefninn. Allir sem eru sammála, látið í ykkur heyra, smá hópþrýsting!!!


 
 
Bogga sagði:

Já ég er sko algjörlega sammála Melkorku ef þú gæfir út bók væri það örugglega söluhæðsta bókin fyrir jólin híhíhí :)


 
 
Dísa sagði:

Snilldar síða!!
Fæ vatn í munninn og hlakka BARA til helgarinnar. Ætla að prófa einhverja kökuna þína á “nammidaginn” minn :)
Komin í favourites!!

kv.
Dísa RVK


 
 
Oddný sagði:

prófaði avakadó ísinn. Kom mér á óvart hversu ljúffengur hann er. Hann sló í gegn. Ætla að gera epla- og valhnetubökuna á eftir… hlakka mikið til!
Takk:D


 
 
dísa sagði:

Sæl Sigrún

Lengi hef ég notað síðuna og ekki sagt múkk hversu góð hún virkilega er.. ég verð einfaldlega að hrósa því að þú takir myndir af matnum og segir aðeins frá honum. Það er virkilega þæginlegt.. þá fær maður bæði betri innsýn og lærir inná uppskriftirnar. Þær eru orðnar ófáar uppskriftirnar sem eru reglulegar gerðar, komnar af cafesigrun..

takk æðislega og keep up the good work!!


 
 
Hildur Hödd sagði:

Sæl Sigrún, vil bara þakka fyrir frábæra síðu :) Ég er að snúa blaðinu við hjá mér, taka út slæma fitu, sykur, ger og hvítt hveiti, og hef ég staðið á gati með hvað ég á að borða. Svo þúsund þakkir fyrir þessar frábæru uppskriftir.
Ég bið þig bara um að taka þetta ekki af netinu :D

Kv. Hildur Hödd


 
 
svandís sagði:

Sæl Sigrún

Gætiru nokkuð fjallað um Cheerios? bæði borðaði ég það í mörg ár í morgunmat og er oft það fyrsta sem börn byrja að tyggja á..

Með þökk og takk fyrir frábæra heimasíðu!

-Svandís


 
 
Oddný sagði:

hæ Sigrún,
ég var að velta fyrir mér hvort sniðugt væri að nota Stevia sem sætuefni í bakstur. Hvað finnst þér um það? og veistu nokkuð hvaða magn, hlutfallslega, maður myndi nota í stað sykurs?


 
 
CafeSigrun.com sagði:

Hæ Oddný…varðandi Stevia.

Stevia er svolítið notuð af hráfæðisfólki og ég hef heyrt almennt vel látið af henni en þykir þó “controversial” og hefur verið bannað í Bandaríkjunum. Ég hef lesið rannsóknir á rottum sem voru með skert insúlínþol eftir mikla neyslu (en þú veist hvernig þessar rannsóknir eru stundum……)

Stevia er 200-300 sinnum sætara en hvítur sykur sem þýðir að þú getur notað 1 teskeið fyrir hvern bolla af sykri! Hins vegar þarf þá að bæta upp fyrir sykurmagnið með einhverju öðru t.d. meira af öðru innihaldi í því sem þú ert að búa til.

Þú getur skoðað upplýsingar um Stevia t.d. á Wikipedia
http://en.wikipedia.org/wiki/Stevia

og hér:
http://www.rense.com/general37/stev.htm

Ég er sjálf mjög óviss með Stevia og þori eiginlega ekki að byrja að nota það fyrr en það er rannsakað ofan í kjölinn..


 
 
Rósa sagði:

hæjj,
er ekki að koma fleiri þáttakendur æi óhollustusamkeppnina :D
ég er ótrúlega spennt yfir henni, frábært framtak !!


 
 
Ásdís sagði:

Sæl Sigrún

Ég datt inn á þessa síðu hjá þér og mikið líst mér vel á hana, ég á örugglega eftir að notfæra mér einhverjar uppskriftir hérna.
Takk!
Ásdís í Ástralíu


 
 
Ann Sigríður Pétursdóttir sagði:

Ég hef lesið síðuna reglulega og hef alltaf gaman af en einnig læri ég eitthvað. Hollustugreiningin er sérlega skemmtileg. Vonandi finn ég eitthvað sem ég “held ” að sé hollt. Kv með þökk Anna Sigga


 
 
svavs sagði:

hæ,

ég hef stundum eldað uppskriftir hér og ég er alltaf mjög ánægð. Langaði bara að láta vita að þessi síða er að gagnast mér og örugglega MIKLU fleirrum.

Keep up the good work!

svavs


 
 
Asta Salný sagði:

VÁ segi ég bara,þetta er ekkert smá flott síða hjá þér. Ég fæ bara vatn í munninn. Skritið að vera ekki búin að finna þessa síðu fyrr.
Gaman að prufa þetta sem fyrst!!!
Vissi að það væri til einhverjar hollar uppskriftir sem væru góðar á bragið:)ummm
Kveðja til familíunnar:)


 
 
María sagði:

Sæl Sigrún.
Vildi bara segja hjartansþakkir fyrir frábæran vef. Það er frábært að til sé fólk eins og þú sem ert tilbúin að deila fróðleik með okkur hinum. Ég er með eina 5 mánaða sem er að byrja að borða svo uppskriftirnar þínar fyrir smáfólkið koma sé aldeilis vel.
Takk takk, María


 
 
Svava sagði:

Þetta er alveg frábær síða hjá þér.

Haltu áfram.


 
 
Jóhanna H. Oddsdóttir sagði:

Mig langar bara að hrósa þér fyrir þennan einstaka og frábæra vef og þakka þér kærlega fyrir. Gangi þér allt í haginn. Kærar kveðjur, Jóhanna.


 
 
Helga Björk Óskarsdóttir sagði:

Var að uppgötva þessa síðu hjá þér, er bara hreint út sagt alveg frábær. Þvílíkt spennandi uppskriftir hjá þér. Gott hjá þér fallega kona. Á sko alveg eftir að missa mig í þessum frábæru uppskriftum. Lifðu heil með Guðs Blessun.

Kærleikskveðjur
Helga Björk
Heilsu- og næringarfræðingur.


 
 
Elín Sif Sigurjónsdóttir sagði:

Sæl.
Vildi bara þakka þér fyrir þessa frábæru síðu þína, fann hana þegar ég var að flakka á netinu og er gjörsamlega heilluð af þessari síðu þinni á eftir að koma oft hér og prufa uppskriftir.
Kveðja Elín


 
 
Anna Hulda sagði:

Þetta er frábært framtak!
Ég er yfir mig hrifin :)

kv. Anna


 
 
Ingibjörg sagði:

ég elska þessa síðu!! kíki oft hérna inn og hef gaman af ódýra flokknum þar sem ég er fátækur námsmaður :) ættir að gefa út bók! :)


 
 
Harpa sagði:

Þetta er alveg snilldar góð síða :) hrós fyrir þig. Finnst allar uppskriftirnar frábærar, skoða hérna reglulega og svo finnst mér gaman að lesa bloggið þitt :) haltu áfram góðum hlutum.


 
 
Rakel sagði:

Æðisleg síða, er búin að nýta mér mjög margar uppskriftir hérna, takk æðislega.


 
 
Katrín sagði:

Þetta er æðisleg síða hjá þér! Alveg það sem ég er búin að vera að leyta að:) En ég veit ekki hvar ég á að byrja, það er úr svo mörgu að velja:D En nú fara jólin að nálgast svo þú mátt endilega skella inn jólasmáköku uppskriftum:)

Kveðja Katrín


 
 
Guðrún Margrét sagði:

Sæl Sigrún
ég er ein af þessum sem skoða síðuna þina reglulega.

ég verð að segja þér að ég fékk tölvu póst um ímyndað samtal þitt við drenginn sem þú ert að styrkja, um ástandið hér.

ég var nýbúin að lesa það og áttaði mig á því hvað við hefðum það gott
ef þú vilt þá get ég sent þér póstinn?
bkv GMG


 
 
Ásta gamli nágranni sagði:

Hvenig væri nú að fara að starta þessu alvöru cafe Sigrún kannski niður í bæ eða einhverstaðar. Fyrir svona glatað lið eins og mig sem kann ekki að búa til neitt og þarf að geta keypt bara tilbúið hjá þér:)


 
 
Fanney Dögg sagði:

Ég notast mikið við uppskriftirnar þínar fyrir smáfólkið og er æðislega ánægð!!! Frábær síða-takk fyrir mig!


 
 
Ólöf Helga sagði:

Mín kæra “jólasmákökumóðir”
Nú þegar jólin nálgast – finn ég “nýju smákökuuppskriftirnar mínar” sem eru að verða víðfrægar. Og meirihluti þeirra frá þér. Sesamtoppar og Hlynsíróps- og sesamsmjörssmákökur. “Viltu gefa mér uppskriftina sem ég fékk í fyrra eða hitteðfyyra.” segja vinir og vandamenn. Loksins vill fólk fara að búa til og borða hollar jólasmákökur. Haf þökk og hróður þinn vex í mínum vinahóp.
kær kveðja Ólöf


 
 
Stella sagði:

Vá þessi síða er æðisleg!! guð hvað ég er fegin að hafa ramblað hingað inn haha, ég er rosa spennt að fara að elda í kvöld ;) ætla að prófa eitthvað af þessum girnilegu og hollu uppskriftum hjá þér..takk kærlega fyrir mig :D


 
 
Unnur Agnes Holm sagði:

Þetta er æðisleg síða :) Til hamingju með hana :)
Auðlesnar, skiljanlegar og flottar uppskriftir.

Takk fyrir þetta :)


 
 
Signý sagði:

Æ Sigrún…dæs…ég vildi að ég mætti bara vera í fæði hjá þér í öll mál!! Það er allt svo girnilegt hérna hjá þér að ég þjáist af miklum valkvíða núna! Bara jólaflokkurinn fór með mig í þetta skiptið! Ég öfunda hann Jóhannes SVO mikið að eiga þig að! :) Knús, Signý


 
 
Katrín sagði:

Ég prófaði hjá þér bakaðan byggréttur með spínati, hvítlauk og sveppum og var hann alveg afbragð:) Takk fyrir mig


 
 
Snjólaug Svala Grétarsdóttir sagði:

Ég vildi þakka þér innilega fyrir þessa heimasíðu, ég hef notað hana mikið. Hef alltaf haft unun af því að elda góðann heilsusamlegann mat. Þú átt hrós fyrir og ættir í raun að taka þessa hugmynd um heilbrigt líferni og hollt mataræði lengra.
Til hamingju með síðuna :) og þakka þér kærlega fyrir.


 
 
diane sagði:

I wish I could speak Icelandic to read your delicious recipes! Any chance of posting them in English too?


 
 
Jóhanna sagði:

þetta er æðisleg heimasíða ég er búin að prófa að gera fitulitla súkkulaðiköku,gulrótaköku og döðlu og bananaköku þær eru allar alveg æði! nú þarf maður sko ekki að kvíða fyrir jólunum með þetta í höndunum:D en mér langaði svo til að gera holla snúða eins og kanelsnúða áttu eitthverja uppskrift af þvi:)?


 
 
Elín sagði:

Hæ, kærar þakkir fyrir frábæra síðu. Nota uppskriftirnar frá þér mjög mikið. Frábært að fá uppskriftirnar að kökunum svona rétt fyrir jólin þegar allt er fljótandi í smjöri og sykri.
Takk, takk
Elín


 
 
Guðbjörg sagði:

mig langaði bara að segja TAKK fyrir frábæra uppskriftarsíðu, nýbúin að “kynnast” síðunni þinni :) búin að vera að baka og baka á fullu undanfarið og við maðurinn minn borðað allt með góðri samvisku. bragðast líka eiginlega bara miklu betur heldur en smjör-sykurs-fitu uppskriftirnar
Bestu kveðjur


 
 
stebbi & linda sagði:

sæl sigrún.. viltu hafa samband við okkur lindu.. erum á leið á zansibar og vantar upplýsingar sem bróðir þinn sagði að þú værir með og tilbúin að deila! :)

takk


 
 
Louise Kinch sagði:

Hej! jeg vil så gerne kunne læse dine opskrifter…..men er de oversat nogen steder? Til engelsk, dansk eller fransk? Jeg kommer fra Canada men bor i Danmark.

med venlig hilsen
Louise Kinch


 
 
CafeSigrun.com sagði:

Hej Louise og tusind tak

Jeg har ikke oversat dem allerede men det skal jeg nok gøre i fremtiden, jeg lover ;)

Hvis det er en opskrift du gerne, gerne ville have, du kan godt fortælle mig og jeg skal sende den til dig på dansk eller engelsk.

Sigrun


 
 
Svanlaug Guðnadóttir sagði:

Sæl Sigrún.
Frábær síða hjá þér, mig langar að smakka rosalega margt. Átt þú einhverjar sniðugar uppskriftir þar sem ég get notað reykt paprikuduft í?
Kveðja
Svana


 

 
 
Anna Málfríður sagði:

Sæl,
mér datt í hug að senda þér þessa uppskrift til að prófa. Ég reyni að halda mig frá ýmsum afurðum sem fara illa í mig og þar á meðal mjólkurafurðum. Þar sem mér finnst heimagerði ísinn hennar mömmu ómissandi á jólunum þá datt mér í hug að prófa að gera hann mjólkurlausann. Ég bý núna í Edinborg og hef svona smám saman verið að finna þær vörur sem ég vill nota í matargerðina og fann t.d. þennan þeytanlega soyja-rjóma sem ég nota í ísinn. Veit ekki hvort hann fæst heima. En hérna er uppskriftin:

Soyja –ís með suðrænni sveiflu
Þessi uppskrift er blanda af uppskrift af Mangó-kókos ís frá cafesigrun.com og gamla klassíska ísnum hennar mömmu, nema að í þessum eru engar mjólkurafturðir.

2 pk. Soyja þeytirjómi, ég notaði „Organic Cremo Vita“ frá granoVita (hvor pakki 300ml)
1 pk. Coconut Cream (1/4 liter) þetta er eins og kókosmjólkin nema þykkra og er í fernum.
2 stór vel þroskuð Mango
¼ -1/2 sítróna
3 eggjarauður
2-3 msk. Fínn hrásykur

Takið allt kjötið af Mangóunum og maukið með töfrasprota eða í matvinnsluvél. Blandið kókosrjómanum saman við og þeytið smá.
Þeytið saman eggjarauðurnar og sykurinn þangað til það er orðið ljóst og létt.
Þeytið soyja rjómann þar til hann er nokkuð stífur, þarf ekki að vera alveg orðinn mjög stífur.
Blandið eggjablöndunni varlega út í rjómann með sleif og svo Mangó-kókosblöndunni.
Þar sem mér fannst ekki mjög mikið bragð af þessu þá tók ég hálfa litla sítrónu og notaði safann úr henni samanvið. Það jók á bragðið. Einnig held ég að það væri gott að setja t.d. kókosmjöl eða meira af Mangó eða kókosrjómanum. Um að gera að prófa sig áfram.

Mjög ferskur ís en samt „creamy“ og ofsalega einfallt.

Gleðileg jól !!!


 
 
Kristjana Stefánsdóttir sagði:

Vildi bara þakka fyrir frábæra síðu með dásamlegum uppskriftum.
Kv,Kristjana


 
 
Guðrún Sóley Gestsdóttir sagði:

Kæra Sigrún,

Hef verið mikill aðdáandi síðunnar þinnar árum saman, og vil þakka þér kærlega fyrir gómsætan hafsjó uppskrifta sem hér er að finna og hefur komið sér vel í gegnum tíðina! Svo hef ég líka ofsalega gaman að athugasemdunum þínum og uplýsingunum sem þú lætur fylgja með uppskriftunum – semsagt, þúsund þakkir fyrir frábæra síðu.

Svo langaði mig að koma einni uppástungu á framfæri, hvort þú lumaðir mögulega á einhverri góðri uppskrift að humar? Þetta er bara svona hugmynd, ég held svei mér þá að það sé það eina sem ég hef ekki fundið á síðunni þinni, og væri ofsalega gaman að fá þína útgáfu að góðum humri matreiddum á hollan hátt…


 
 
Aðalheiður Árnadóttir sagði:

Flott síða…er alltaf að reyna að koma mér í hollari mat…kannski það gerist á nýju ári með hjálp síðunnar þinnar :)


 
 
Kristín Margrét sagði:

Sæl Sigrún og gleðilegt nýtt ár og takk fyrir allann póstinn frá þér á síðustu fimm árum ca.
Ég verð enn og aftur að hrósa þér og segja þér hvað mér finnst gaman að fá póst frá þér en ég er samt því miður ekki nógu dugleg að prófa uppskriftir frá þér en finnst rosa gaman að skoða þær.
Ég var meira duglegri að prófa þegar ég var í fæðingarorlofi 2004 og 2006 en þá var nógur tími til að prófa og smakka og vissulega skildi það eitthvað eftir í matarstíl mínum og venjum:)

Ertu nokkuð með eitthvað prógramm á detox sem þú mælir með?
þá hversu oft hitt og þetta og hvað marga daga í senn?

En annars eru allir að tala um þetta og þá sérstaklega Jónu Ben ferðirnar til Póllands en maður vill nú helst bara gera svona heima og þá fara eftir ráðleggingum.

Takk enn og aftur og hafðu það sem allra best.

kv,
Kristín
þinn einlægur mataraðdáandi.


 
 
Ingibjörg sagði:

Sæl.

Ég eldaði fiskréttinn frá Góa í kvöld og verða að segja að þetta er það allra besta og einfaldasta karrý sem ég hef búið til. Aldrei þessu vant borðuðu allir fjölskyldumeðlimir ýsuna með bestu lyst!

Takk fyrir frábæra síðu,

kveðja, Ingibjörg


 
 
CafeSigrun.com sagði:

Frábært að heyra Ingibjörg :)


 
 
Björk sagði:

Vildi bara segja þér að mér finnst þessi síða þín algjör snilld og myndirnar rosa flottar mun nota þessa síðu það er allveg á hreinu en spurningin sem brennur á vörum mínum er HVER ER KONAN á bakvið síðuna ?


 
 
Hrafnhildur ástþórsdóttir sagði:

Heil og sæl.
Ég heiti Hrafnhildur og er forstöðumaður barnaverndarúrræðis fyrir unglinga í Kópavogi. Mig langar bara að þakka þér frábæran vef og afar góðar uppskriftir sem að við notum mikið í þeirri vinnu okar að breyta og bæta mataræði bæði starfsmanna og ekki síður ungmennanna sem við vinnum með.
Bestu þakkir og kveðjur, við í Unglingasmiðjunni!


 
 
Hjördís sagði:

Kominn tími til ad takka fyrir mig.
Fann síduna tína fyrir algjöra tilviljun fyrir ca 2 árum. Tad var tvílíkur “eye opener” fyrir mig. Tad sem er til annad en hvítt hveiti, sykur og smjör…algjör snilld.
Búin ad prófa mjög margar uppskriftir og laera svooo mikid…. allt jafn gómsaett!
Ein af mínum uppáhalds sídum.

Einlaegur addáandi.
Hjördís


 
 
Signý sagði:

Ég er nýlega búin að uppgötva síðuna þína, bæði hér og á facebook og mér finnst þetta alveg magnað.
Skemmtilegast finnst mér að lesa um innihaldið þegar þú lýsir því hvernig hitt og þetta sé hollt og gott og stútfullt af vítamínum :) þú ert örugglega jákvæðasta manneskjan á internetinu.

Prufaði að gera ferska salsa salatið og það er ekki aftur snúið, þetta verður fast á matseðlinum sem meðlæti, æðislegt með kjúllaréttum og passar fullkomlega á burrito mmm….

Kærar þakkir fyrir mig.


 
 
Katrín sagði:

Ég elska alveg þessa síðu og á eftir að prófa mikið. Ég er að hugsa að reyna að prófa allt einhvern timann :)
Ég eldaði í gær einfaldan grænmetisrétt og hafði Jógúrt/Kvarg (skyr) bollur með og það var alveg æðislegt.
Hollustan í fyrirrúmi en það einhvern veginn gengur ekki fyrir þegar þarf að baka og elda sjálfur :)
Takk fyrir mig Katrín


 
 
Berglind sagði:

Frábær síða, ég elda oft eftir uppskriftum frá þér og er ég sérstaklega ánægð með “fyrir smáfólkið” þar sem ég er með eina 6 mánaða sem er að fara að fá að borða í fyrsta sinn.

takk kærlega
Berglind


 
 
Birna sagði:

Mikið er þetta frábæt síða hjá þér ég hef notað hana margoft og átt þú þakkir skilið. Takk takk


 
 
Sigurlína H Styrmisdóttir sagði:

Frábær vefsíða hjá þér til hamingju.


 
 
Diana Parker sagði:

Nice page, I don’t undersand it hahaha
I think you got New detox menu and maybe gulten free menu. breackfast and supper. Tell me about it!!!
Love you Diana


 
 
Bryndís Ísfold sagði:

frábær síða – ég er alltaf að prófa e-ð nú í kvöld Ruwanda réttinn sem var frábær!

takk fyrir mig


 
 
Jóhanna Vala sagði:

Hæhæ,

Bakaði frönsku súkkulaði kökuna hennar Lísu fyrir Valentínusardaginn hérna úti. Hún var æðisleg!! Ég notaði 1,5 desilíter rapadura sykur eins og þú gerðir.. ég brosti út að eyrum þegar ég smakkaði hana.. slurp.. hún var svo hrikalega góð! Annars hefur allt smakkast rosalega vel sem ég hef gert af síðunni þinni.. :)

Takk fyrir mig

Kær kveðja frá Flórída,
Jóhanna Vala


 
 
Sesselja sagði:

Sæl Sigrún.
Fékk linkinn inn á síðuna þína á vefnum hennar Sollu.
Er alveg himilifandi- eins og að detta ofaní dótakassa ( eða konfektkassa)!
Takk
Sesselja


 
 
Bryndís sagði:

Vildi bara láta þig vita að þessi vefur er alveg frábær. Svo skemmtilegt að lesa lýsingarnar á réttunum og ilmnum sem fylgir og hvað Jóhannes er ánægður með þig :) . Þú ert bara one of a kind.

Takk fyrir að deila með okkur.
Kveðja
Bryndís


 
 
Heiða sagði:

Þetta er mjög fróðleg og flott síða hjá þér og stefni ég á að prufa slatta af uppskriftum frá þér þar sem ég og bóndinn höfum sett okkur það markmið að fara að borða hollar.

Eina sem ég sé því til fyrirstöðu er að ég bý út á landi og margt í uppskriftunum ekki hægt að fá, meira að segja eitthvað af grænmetinu..

Það verður svo frólegt að sjá mig og manninn minn standa inn í búð klórandi okkur í hausnum að leita af því sem þarf í flesta réttina þar sem í hverri uppskift er margt sem ég hef aldrei notað og veit jafnvel ekki hvernig lítur út :)


 
 
Anna Margrét Árnadóttir sagði:

Halló Sigrún . . . mig langar að læra að elda núðlurétt sem fæst á Nings og er í miklu uppáhaldi hjá dætrum mínum
Kreppa = elda sjálf
Þetta eru núðlur með eggjum og brokkolí og gulrótum og soðnum kjúklingabringum . . . held að þetta sé heilsuréttur

aðallega hvaða sósur og krydd þarf að nota
Síðan þín er frábær . . . takk fyrir framtakið !


 
 
Rakel Gísladóttir sagði:

hæhæ var að fá ábeding um þessa síðu:) Á einn prins sem er 5 mán og þarf að fá ábót. Vildi bara segja að þetta er frábær síða fyrir mig sem veit lítið um hvað ungarnir meiga borða:) Ælisleg síða
Kveðja Rake og Magnús Bjarni:)


 
 
Ingibjörg Sigfúsdóttir sagði:

Sæl. Takk fyrir að deila þessu öllu með okkur.
Ég kíkti á páska eggið og datt í hug að segja þér að um árabil bakaði ég páskaegg. Ég bjó til hringi úr degi og setti saman líkt og kransaköku. Setti í það margs konar salgæti sem ég taldi ekki eins óholt og í súkkulaðieggjum. Límdi þaðsvo saman með súkkulaði.
Kveðja
Ingibjörg


 
 
Erla sagði:

Æðislegur vefur kærar þakkir fyrir að deila öllum þessum frábærum uppskriftum :)


 
 
Margrét Rós sagði:

Hæ, hæ.

Þetta er alveg frábær síða, aðgengileg og svo skemmtileg!
Takk kærlega fyrir að deila þessu öllu á netinu.


 
 
Elsa Dögg Gunnarsdóttir sagði:

HÆ HÆ. Það er svo langt síðan ég hef kommenterað að ég má til. Í kvöld er tómatsúpa Höddu og gulrótarbrauð í matinn hjá mér. Á hverjum miðvikudegi elda ég eitthvað af vefnum þínum. Kærar þakkir fyrir frábærar uppskriftir.
Elsa Dögg


 
 
Erna Hauksdóttir sagði:

hæhæ
Var að renna yfir síðuna þína og ég held að ég sé nokkurn veginn búinn að setja upp matseðill næsta mánaðar upp í kollinum, allt svo girnilegt, flest einfalt og svo hollt sem er auðvitað best:) Takk kærlega fyrir að leyfa okkur að njóta..kv Erna


 
 
Sonja sagði:

Þetta er rosalega öflug síða hjá þér og flott!


 
 
Kolbrún Rakel Helgadóttir sagði:

Sæl Sigrún og takk fyrir þetta óeigingjarna starf sem þú ert að vinna í þágu okkar allra. Hollur og góður matur er grunnur að góðu lífi. Takk fyrir mig, kv.Rakel


 
 
Helena sagði:

Tær snilld. Verð fastagestur her eftir :)


 
 
Þórður sagði:

Flott síða hjá þér!!!


 
 
Hafþór sagði:

Sæl
Þetta er æðisleg síða hjá þér ég er búinn að baka nokkur brauð eftir þessum uppskriftum og þau eru æðisleg.
Ég er að leita af uppskrift að langömmubrauði enn finn ekkert sem gæti flokkast undir hollustu nú treysti ég á þig og vonast til að þú getir galdrað framm eina slíka.

Með fyrirfram þökk
Hafþór


 
 
Steinunn Eik Egilsd. sagði:

Takk fyrir ÆÐISLEGA síðu!!
Kíki mjög oft hingað inn og finn alltaf eitthvað sem mig langar til að malla :)


 
 
Hrönn sagði:

Sæl Sigrún,

mig langar að þakka þér fyrir alla þá vinnu sem þú leggur í að viðhalda þessari frábæru heimasíðu. Ég er fastur gestur hérna og er mjög hrifin af uppskriftunum þínum. Í dag langaði mig að baka hollar (eða hollari – fer samt eftir því hvað maður setur á þær!!!) amerískar pönnukökur en fann enga slíka uppskrift á síðunni þinni, þess vegna ákvað ég að senda þér uppskriftina mína. Ég fann uppskrift á http://www.recipezaar.com af Banana Pancakes with Spelt – en breytti henni aðeins (tók út maple syrup og setti agave í staðinn, tók út lyftiduft og setti vínsteins lyftiduft í staðinn). Hérna kemur uppskriftin:
2 1/2 dl Spelt
1 msk vínsteinslyftiduft
1/4 tsk salt
1 vel þroskaður banani, stappaður
1 egg (má sleppa)
1 tsk Agave síróp (má sleppa)
1 1/2 msk Extra Virgin Olive Oil
1 dl heitt vatn (gæti þurft pínu meira, deigið á að vera frekar þykkt ca eins og vöffludeig)

Öllu blandað saman í skál og hrært með handkrafti
Hita pönnukökupönnuna vel – baka síðan á meðal hita.
Snúa við þegar lofbólur hafa myndast á hliðinni sem snýr upp.

Borðið með ferskum ávöxtum og evt. pínu Agave sírópi.

Bestu kveðjur
Hrönn


 
 
Aslaug sagði:

Sæl Sigrún – langaði að þakka þér fyrir frábæra síða og elju við að halda uppi heilsusamlegri umræðu og ekki síst glæsilegum uppskriftum. Hingað leita ég þegar mig vantar hugmyndir og innblástur af skemmtilegum uppskriftum. Núna í kvöld eldaði ég fylltar paprikur sem er virklega góður réttur og börnin hámuðu þetta í sig. Þúsund þakkir. Kveðja Áslaug og co.


 
 
Þurí sagði:

Hví hef ég ekki séð þessa síður fyrr!:P
Mögnuð síða, allt svoo girnilegt =D
Takk kærlega fyrir hana ;)


 
 
Dísa sagði:

Sæl Sigrún :)
Ég verð bara hrósa þér fyrir þessa síðu, hún er alger snilld!! ég nota hana alveg ofboðslega mikið.. er reyndar ekki grænmetisæta, en finnst samt alveg svakalega gaman að búa til þannig mat og ekki má gleyma “hollu” smákökunum. Ég gerði hrákökuna með cashewfyllingunni um daginn og jeminn hún sló í gegn!! :D
Bara takk æðislega fyrir þessa síðu!!
kv.Dísa :D


 
 
vigdís sagði:

sæl
takk kærlega fyrir góða síðu ég og mamma mín erum mikið búin að nota þessa síðu til að finna góðar uppskriftir,

kær kveðja,
Vigdís


 
 
Gísli Rafn sagði:

Geggjuð síða, vantaði einmitt hugmyndir að mat sem er hollur (allt sem er auðvelt að nálgast virðist ekki hollt)
Guð blessi ykkur!


 
 
Guðrún Jónína sagði:

Sæl Sigrún,
ég verð bara að commenta ;+), þessi síða er tær snilld og mig langar að þakka þér fyrir.


 
 
Diljá Marín sagði:

Frábær síða hjá þér, mjög skemmtilegar og hollar uppskriftir fyrir þá sem vilja breyta til og svona. ég sé að þú ert með marga kjúklingarétti , en langar að senda þér einn sem er í miklu uppáhaldi hjá mér:)það er mjöög gott kjúklingasalat

1 poki klettasalat(rucula)
1 stk rauðlaukur(má sleppa)(mér persónulega finnst laukur virkilega vondur)
1 box kirsuberjatóimatar
1 poki ristaðar furuhnetur
1 stk avokado frekar vel þroskað sem þú getur skorið í bita.
svo hálfur poki tortilla snakk
1 krukka feta ostur

sósan:
olía af fetaostinum
dijon sinnep
hvítlauksmauk
agavesíróp
balsamedik

kjúklingabringurnar eru skornar í strimla og steiktar á pönnu og kryddaðar eftir smekk, teknar af pönnunni og helt yfir BBQ sósu en það er alltaf hægt að nota eitthvað annað sem er hollara:), svo blandaru þessu saman við

vona að þér líki þetta:)

p.s hvað er soyakjöt og hvar er hægt að fá þannig?


 
 
helga jonsd sagði:

þessi síða er bara æði rosalega ertu örlát að gefa allar þessar uppskriftir frá þer eg er að byrja í aðhaldi og þetta var eimitt það sem mig vantaði eg segi bara húrra. magga sem er í fitness hun notar þessa síðu muikð og benti mer á hana vissi ekki af hennni en læt boðskapin berast ut ekki spurning takk kv helga haug


 
 
Birkir sagði:

Þú ert snillingur! Takk fyrir að deila :)


 
 
Ingibjörg sagði:

Vá þetta er algjör snilldarsíða hjá þér :) Og kærar þakkir fyrir að deila öllum þessum dýrindis uppskriftum :)
Langar svo að spyrja þig, áttu nokkuð uppskriftir sem líkjast Heilsuklöttunum og Heilsukexinu sem fást í Heilsubúðinni?

Bestu kveðjur,
Ingibjörg


 
 
Berglind Ingibertsd sagði:

Hæhæ
Ég bara varð að senda þér smá skilaboð. Ég “uppgötvaði” síðuna þína fyrr í sumar og ég er grínlaust búin að vera hooked á henni. Ég var mikið matgæðingur en hinsvegar hafði ég ekki verið mjög ástríðufullur kokkur, en eftir að ég komst á snoðir um síðuna þína þá hef ég byggt upp ástríðu fyrir matseld.
Ég bara verð að þakka þér fyrir að deila öllum þessum ótrúlega ljúffengum, hollum og dýrindis góðum réttum með okkur hinum. :D


 
 
María sagði:

Takk fyrir frábæra síðu, er að vinna í því að breyta mataræðinu og þessi síða hjálpar mikið :)


 
 
Hildur Jónsdóttir sagði:

Hæ Sigrún!

Hildur hér, kærastan hans Dóra sem fór með ykkur til Afríku – Kilimanjaro 2007 :) verð bara að segja að barnasíðan ‘Fyrir smáfólkið’ er besta síðan um ungbarnamat á netinu! Eignuðumst stelpu í febrúar og hún er að byrja að borða…

Bestu kveðjur, ba heilsa Jóhannesi,
Hildur


 
 
Sólrún Gunnarsd sagði:

Sæl Sigrún !
ÉG vil þakka þér kærlega fyrir að deila þessum uppskriftum með okkur hinum. Er nýfarin að prófa uppskriftirnar og er að fara að gera hollu gulrótarkökuna fyrir klúbb í kvöld. Mjög spennandi.
Vonandi heldurðu áfram að leyfa okkur að fylgjast með.
Bestu kveðjur
Sólrún


 
 
Heiða sagði:

Ástarþakkir fyrir að gefa okkur aðgang að uppskriftunum þínum.
knús og hlýjar kveðjur
Heiða


 
 
JoymnrorTunny sagði:

Here are some of the best new Go Daddy codes. I just used OK9 today to purchase some .com domains and it worked great.

OK7 – 10% off any item
OK8 – 20% off any order of $50 or more
OK9 – 30% off Domain Renewals or New domain registration.

**Special Godaddy Promo Code Valid until 08/31/09.
Godaddy Promo Code OK25 25% Discount on all hosting plans or any order of $91 or more.


 
 
Ragnheiður Þóra sagði:

Sæl Sigrún. Langaði eingöngu að hrósa þér fyrir þennan frábæra vef. Ég fer mjög oft inn á þessa síðu ef mig vantar hugmyndir og vittu til, ég finn alltaf eitthvað nýtt :-) Þakka þér fyrir alla hjálpina við eldamenskuna og baksturinn …..


 
 
Lora sagði:

Hæ vildi bara þakka þér fyrir frábæran vef, vegna hækkandi matarverðs finn ég mig knúna til að leita nýrra leiða til að borða hollan mat í stað þess að snúa alfarið í ruslfæði sem er óneitanlega ódýrara.. Þetta var akkúrat innblásturinn sem ég þurfti, takk kærlega fyrir mig..


 
 
Guðrún Cortes sagði:

Sæl Sigrún.
Ég fann síðuna þín a þegar ég var að leita að uppskriftum á google
Þetta er alveg frábærlega góð síða og ég hlakka til að fara að prófa uppskriftirnar þínar.
Kær kveðja og þakkir,
Guðrún.


 
 
Guðný sagði:

ef þessi síða er ekkibara buin að bjarga mér í átakinu þá veit eg ekki hvað :)
þakka þer kærlega fyrir , mjög góðar uppskriftir og sniðugar:)


 
 
Róbert sagði:

Ekki skrýtið að þú hafir fengið verðlaun SVEF fyrir besta einstaklingsvefinn. Ég prófaði cashew/pekan kökuna og borðaði með bestu lyst.

Takk fyrir að opna augu mín fyrir uppskriftum sem innihalda ekki hveiti, ger eða hvítan sykur.

Núna er ég farinn að borða meira lífrænt og hollt!

Bestu kveðjur,
Róbert


 
 
Inga Rún sagði:

Takk fyrir góðan vef. Hef nokkrum sinnum eldað kókósgrillaða kjúklingaréttinn og hann er án efa besti kjúklingaréttur sem ég hef smakkað, gæti borðað hann í öll mál.


 
 
Guðrún Ó. Gunnarsdóttir sagði:

Ég vil bara þakka fyrir þessa frábæru síðu,

kveðja Guðrún


 
 
Hulda Þórisdóttir sagði:

Takk fyrir þessa geggjuðu síðu, fynst ég hafa fundið gull.

Keðja Hulda


 
 
Heiða sagði:

Ég einfaldlega elsda þig fyrir að deila þessum uppskriftum með okkur !
Takk takk og takk, takk takk


 
 
Heiða sagði:

og þá meina ég elska….


 
 
Þórgunnur sagði:

Þakka þér kærlega fyrir þennan frábæra vef. Á mínu heimili er hann mikið notaður , sérstaklega bakkelsið.
Takk fyrir okkur


 
 
Ásta María sagði:

Mér finnst ég skyldug til þess að skilja eftir kveðju hér á þessari frábæru síðu þinni Sigrún.

Ég hef notast við síðuna í hátt á þriðja ár í margvísilegum tilgangi, bakstur, eldamennsku, hugmyndir fyrir próteinríkt fæði og svo framvegis. Hún er hátt skrifuð í væntumþykjulistanum mínum:)

Takk kærlega fyrir mig!


 
 
Katrín sagði:

Núna datt ég í lukkupottinn. Hef verið að umbreyta matarræði fjölskyldunnar en vantaði góð ráð og fjölbreyttar uppskirftir og hér er fjársjóðurinn samankominn á einum stað. Mín innri matreiðslugyðja er svoleiðis vöknuð til lífsins og vitundar að ég á erfitt með að hemja hana enda eigum við ómældar sælustundir í eldhúsinu og heimilið hreinlega ilmar af framandi kryddilmum og hollustu…og hamingju.
Takk kærlega fyrir að deila þessum uppskriftum með okkur hinum…og eitt enn. Þú ert líka skemmtilegur penni og gefandi manneskja. Það hreinlega skín í gegnum skrifin þín og uppskriftirnar.

Kærleiksknús og endalaust þakklæti.


 
 
Tóta sagði:

Ástarþakkir fyrir mig! Ég á karl sem er algjör óhollustukarl og fussar og sveiar yfir allri hollustu en þegar ég elda réttina frá þér þá heyrist iðulega: “Veistu, þetta er ég bara til í að borða einhvern tímann aftur.” Alveg stórkostlegt að komast í svona hollar uppskriftir sem eru líka góðar og fá svona góð ráð. Takk takk takk :o )


 
 
Margrét Rós sagði:

Takk fyrir þennan frábæra vef (aftur… ég held alveg örugglega að ég hafi þakkað fyrir mig áður).

Undanfarið er ég búin að vera ótrúlega dugleg í muffinbakstrinum, þær eru alveg frábærar. Fullkomnar í nesti! Annað sem ég hef prófað eru nokkrar súpur, hjónabandssæla, mango mauk og ýmislegt fleira. Þetta slær allt í gegn!


 
 
Ingibjörg sagði:

Til hamingju með þessa síðu og takk fyrir hana! Fékk ábendingu frá ljósmóður minni að kíkja á hana (varðandi ungbarnamat) og er afar ánægð að ég lét verða af því, er þegar búin að gera nokkur mauk “Fyrir smáfólkið”. Það góða er að þetta er svo einfalt og gott, var búin að reyna krukkumat en mín litla kærði sig sko ekki um hann en hámar í sig þetta mauk “natural”.
Takk takk


 
 
Eva Magnúsdóttir sagði:

Verð bara að þakka fyrir þessa síðu, ekki er langt síðan mér var sagt frá henni. Ég fer ansi oft inn á síðuna og finn mér uppskriftir. Ég nota aðallega brauðuppskriftirnar. Aðeins byrjuð á kökunum prófaði reyndar gylltu piparkökurnar í morgun en þær urðu alveg hrikalega harðar hjá mér þegar þær kólnuðu á eftir að prófa þær aftur, þær eru bragðgóðar.
Takk fyrir


 
 
Guðný sagði:

Frábært framtak hjá þér Sigrún!
Takk fyrir að setja þessa síðu upp.

Kveðja Guðný


 
 
Guðlaug Erna Karlsdóttir sagði:

Glæsileg síða hjá þér Sigrún. Frábær í alla staði. Ef þú gefur út bók mun ég svo sannarlega kaupa eintak :)

Kær kveðja
Guðlaug


 
 
Valdís Svanhildur sagði:

æðislegur upplýsingabanki hjá þér! Mæli með þér við alla sem ég þekki. Baka oft speltbrauðið með öllu mögulegu í :) Takk fyrir mig.


 
 
Þóra Björg Jónsdóttir sagði:

Þetta er frábær síða! Takk :-)


 
 
Guðríður B. Kristinsdóttir sagði:

Mig langar bara til að lýsa ánægju minni yfir því að hafa aðganga að svona frábærri síðu til að leita mér að uppskriftum með hollu hráefni í. TAKK!


 
 
Guðrún Helga sagði:

Sæl Sigrún og takk fyrir þessa frábæru síðu. Við erum með einn þriggja ára dreng sem heitir Hlynur og er greindur einhverfur. Við tókum þá ákvörðun að tala allt gluten, sykur, ger, mjólk, soja, öll E efni og allt unnið, einnig borðar hann nánast ekkert kjöt, hann borðar þá helst hreinan kjúkling en aðalega fisk. Á þrem vikuk á nýja mataræðinu fór hann frá því að segja ekki neitt yfir í að reyna setja saman 2-3 orð. Einnig er hann farinn að leika við aðra krakka og okkur finnst hann skilja nánast allt núna. Það er frábært að komast í allar glutenlausu uppskriftirnar hjá þér :) . Mig langar að vita hvort að það sé best að nota gluteinlausa rice mjölið eða þetta hvíta gluteinlausa mjöl sem þeir selja í pökku? Erum að fara td. piparkökur og ég þarf að prufa mig árfam. Kær kveðja, Guðrún Helga


 
 
Kolbrún Björnsdóttir sagði:

Sæl Sigrún, mig langaði að spurja hvort ég mætti nota eitthvað af uppskriftum frá þér í bók sem ég er að skrifa? Að sjálfsögðu mundi ég birta nafnið þitt undir hverja. Ég er að skrifa bók um hvernig á að byggja upp meltingarkerfið. Það er dagskrá yfir mataræðið og ég ætla að láta fylgja uppksrift af þeim mat semá að elda. Það verða sumar eftir mig en mig vantar fleiri.

Kolbrún grasalæknir
p.s síðan þín er frábær og ég læt marga sem koma til mín vita af henni


 
 
Bergþóra Snæbjörnsdóttir sagði:

Mér fannst vera kominn tími til að þakka fyrir allar uppskriftirnar eftir að hafa notað vefinn þinn óspart í rúmt ár! Takk fyrir frábæran vef og fyrir að gera lífið ögn hollara…


 
 
Eva María Þórarinsdóttir sagði:

Frábært framtak hjá þér Sigrún! Ég er að stíga mín fyrstu skref í hollara líferni og síðan þín hjálpar mikið.

Þúsund þakkir :-)


 
 
Anna Kristín sagði:

Frábær síða:)


 
 
Ásta Ágústsdóttir sagði:

Sæl Sigrún
Ég vildi bara þakka fyrir mig. Ég byrjaði að kíkja inn á síðuna þína fyrir meira en ári síðan og vildi bara hrósa þér og segja að hún er frábær. Ég hangi mikið inn á henni og gramsa. Ég er búin að prófa nokkrar uppskriftir og finnst þær frábærar.
Þú ert greinilega búin að prófa og smakka allt. það munar mikið um það.
Og svo er síðan mjög vel uppsett, stílhrein og snyrtileg.

Takk fyrir mig og gangi þér vel.


 
 
Freyja sagði:

Sæl Sigrún
Takk kærlega fyrir að halda úti þessari frábæru síðu, hef notað hana reglulega síðustu árin.


 
 
Sigrún G. sagði:

Sæl Sigrún. Mig langar að þakka þér fyrir þessa frábæru síðu. Það sem mér finnst sérstaklega gott við hana er hversu góðar leiðbeiningar fylgja með öllum uppskriftunum, allt mjög vel útskýrt og oft hugmyndir að öðrum útfærslum – skiptir mjöööög miklu máli þegar maður er að reyna að tileinka sér hollari lífsstíl og það að elda hollan mat frá grunni :D . Hún er líka mjög aðgengileg. Takk kærlega fyrir mig.


 
 
Þórir Kjartansson sagði:

Gleðilegt heilbrigt næringarár !
Fann síðuna
í gamalli ” VIKU ” 3.jan 2008,sem ég ætlaði að henda.
Síðan ykkar er sú langfrumlegasta af heilsusamlegum síðum,
sem ég hef skoðað og skemmtilegar og fróðlegar kynningar hitta í mark. Nú verður gaman í eldhúsinu !!!!

Kveðja Þórir K.


 
 
Melkorka sagði:

snilli þessi hjónabandssæla! Gaman væri að fá hollari uppskrift að kornfleks kökum (kornfleks, síróp, suðusúkkulaði, smjör). Þessar kökur eru svo vinsælar í barnaafmælum.


 
 
Soffía sagði:

Sæl Sigrún.

Mér finnst síðan þín mjög skemmtileg og ég fæ fullt af hugmyndum af því að skoða hana. Margar uppskriftirnar þínar eru mjög góðar og núna langar mig til að prufa að búa til mitt eigið hnetusmjör en ég veit ekki hvar ég á að kaupa hneturnar í það. Getur þú eitthvað leiðbeint mér með það?

Kveðja,
Soffía.


 
 
Jónína sagði:

Ég ætlaði bara að hrósa þér fyrir þessar dásamlegu uppskriftir…


 
 
Guðbjörg sagði:

Ég er sammála Jóhannesi varðandi grjónagrautinn, sjóðandi heitur, hnausþykkur grautur með kaldri mjólk og kanilsykri er himneskur


 
 
Sólveig S. Finnsdóttir sagði:

þykkur grjónagrautur með berjasaft útá er hunang og best af öllu. kv m.


 
 
Sif Steingrímsdóttir sagði:

Sæl Sigrún! Mig langar að þakka þér fyrir að halda uppi þessari frábærlega gagnlegu (og bráðskemmtilegu) síðu. Þú hefur veitt mér mikinn innblástur varðandi hollt mataræði og opnað augu mín hvað matargerð varðar. Ég er fátækur námsmaður og var alveg föst í ódýrum og óhollum skyndibita, en ekki lengur, þökk sé þér :) Kv, Sif


 
 
birnaagustsdottir sagði:

Takk frábær vefur. Akkúrat það sem mig vantaði.


 
 
Viktoría sagði:

Enn og aftur fann ég það sem ég leitaði að :)
Yndislegur vefur með skemmtilegum og frumlegum uppskriftum.

Keep up the good work!


 
 
Sandra Fannarsdóttir sagði:

sæl Sigrún
nú er ég alveg orðin háð vefnum þínum, nú eru komnar 3 vikur án sykurs og hveitis, goss og sælgætis. ÉG prófa látlaust og það sem kemur mér á óvart er hversu gott þetta er.
Tvær spurningar samt….
sést það eitthvað á vefnum þínum ef þú hefur bætt inn nýjum uppskriftum????????
og annað, ég hef margfaldað grænmetisinntöku mína með alls konar mauksúpum sem ég er að prófa af vefnum þínum. En hvernig er það með þá kenningu að maður eyðileggi næringagildi grænmetis með því að elda það? Ég hélt alltaf að ef maður notaði soðið sem maður eldar grænmetið í þá fái maður þetta allt í kroppinn.
Takk enn og aftur með ómetanlega hjálp
Sandra


 
 
Magnea sagði:

Ég <3 þessa síðu !!!

Frábært framtak – ég elda hvorki né baka nema að kíkja hér inn :)

GO VEG !!!


 
 
Björg Helgadóttir sagði:

Ég er í tannlæknanámi og á að vera að lesa rannsóknir því tengdu í augnablikinu en ég get ekki hætt að lesa uppskriftinar þínar.

Þær hljóma nákvæmlega eins og það sem ég vil borða, ég hlakka til að fara að prufa þær sjálf og minnkað þannig að kaupa mat á grænmetisvetingastöðum borgarinnar…

Takk fyrir allar uppskriftirnar og hugmyndirnar ;)


 
 
Hrönn Svansdóttir sagði:

Sæl Sigrún

Langar að byrja á því að þakka þér fyrir frábæran vef sem ég er búin að nota töluvert og benda mikið á.
Ég er CrossFit þjálfari og er með einka- og hópþjálfun undir merki CrossFit Reykjavík. Ég vinn með fólki sem er að breyta um lífsstíl með kraftmikilli hreyfingu og hollu mataræði. Ég legg mikla áherslu á útiloka sykur, hvítt hveiti að sem mestu leiti og að borða ekki mikið unninn mat – hafa þetta einfalt og orginal – annars borða fjölbreytt og reglulega. Ég bendi aðallega á síðuna þína og svo hef ég gert nokkrar uppskrifti sjálf sem við notum.
Ég er að opna nýja siðu nú um helgina og mun fljótlega bæta við uppskriftum og fróðleik um mataræði, mig langar að hafa beinan link inn á síðuna þína og vil hér með leita eftir leyfi til þess? Og jafnvel ef þú átt pistla sem ættu heima á síðunni minni þá væri frábært að birta þá.

Bestu kveðjur
Hrönn Svansdóttir


 
 
Ingibjörg sagði:

Síðan þín er frábær :o )


 
 
Sigga sagði:

Ég rakst alveg óvart á þessa síðu þegar ég var að vafra um á netinu. Mér finnst þetta er alveg ótrúlega flott síða og skemmtilega uppsett. Ég mun skoða hana mikið í framtíðinni.
Gangi þér vel og takk fyrir.


 
 
Guðrún sagði:

Bestu þakkir fyrir alla þína vinnu við þessa síðu sem ég hef oft skoðað og stundum notað eða stuðst við. Það er ómetanlegt að hafa aðgang að svona upplýsingum og þú átt heiður skilinn. Gangi þér sem allra best.


 
 
Rakel sagði:

Haustsúpa með kartöflum og kjúklingabaunum

Æðiselga flott og góð súpa


 
 
Ásta sagði:

frábær síða …uppskriftinar sem ég hef verið að leita að eru allar hér. Takk, takk.


 
 
Erla Guðrún sagði:

Ég hef legið yfir þessari síðu nú í hartnær tvo mánuði, hef eldað heilan helling af ljúffengum uppskriftum. Þrátt fyrir að hafa prófað nokkuð margar þá held ég samt að ég hafi einungis prófað brotabrot af því sem síðan hefur upp á að bjóða.

Þessi síða inniheldur akkúrat uppskriftir sem ég er að leita eftir, grænmetisréttir og kökur án bílfarma af sykri. Það er þvílíkur munur að geta fundið á sama stað bragðgóðar og hollar uppskriftir.

Ég hef eina spurningu, hefur þú gefið út bók með uppskriftunum þínum? Mig langar í uppskriftarbók eftir þig.

Takk kærlega fyrir mig.


 
 
Sigrún sagði:

Sæl Erla og takk fyrir hrósið

Nei ekki búin að gefa út uppskriftabók enn þá…..þetta kemur allt saman að lokum :) Ég er núna að uppfæra vef CafeSigrun þ.e. nýtt útlit og ný virkni, opna hann innan skamms :)


 
 
Sara sagði:

Sæl Sigrún,

Þetta er dásamleg síða, ég tek undir með Erlu, uppskriftarpókin er möst :)

Kveðja,
Sara


 
 
Guðmundur Áskelsson sagði:

Ég vildi bara hrósa þér fyrir frábæra síðu. Mér finnst frábært að þú skulir hafa lagt alla þessa vinnu á þig til að deila frábærum uppskriftum og fróðleik fyrir hvern sem er.
Gummi.


 
 
Hildur Mist sagði:

Æðisleg síða, er einmitt að gæða mér á köldu hrísgrjónasalati akkúrat núna. Frábært að geta fundið hér hollar og góðar uppskriftir :)
Gangi þér sem allra best


 
 
melkorka sagði:

Takk fyrir ad deila öllum tessum yndislegu og heilsusamlegum uppskriftum..tegar ég byrja ad skoda,tá get ég hreinlega ekki haett..frábaert..TAKK..


 
 
Anna Guðný sagði:

Frábær síða hjá þér. Þú ert mögnuð :) Takk fyrir


 
 
Hrafnhildur sagði:

Sæl Sigrún,
Langaði bara að hrósa þér og þakka fyrir frábæra síðu. Ég kíki reglulega við hérna. Þessi síða er alveg bráðnauðsynleg : )

Bestu kveðjur,
Hrafnhildur


 
 
Diljá Marín sagði:

ég gerði alveg snilldar kjúklingarétt sem ég fékk á bodyrock.tv.
ég eeelllska sterkan mat, en hinsvegar er kallinn að kafna af því hehe.

600gr kjúklingabrigur(eða bara 3 vænar)
6 lauka(finnst það of miið notaði 2)
3 tómata
ein dós hrein jógúrt
1 bolli kókos
1bolli blandaðar hnetur
vænda slettu af sítrónusafa
2-3 geirar af hvítlauk eða nota 1 msk krydd
1/2-1 dl mjólk

krydd
1 láviðarlauf
hálfa tsk múskat
slatta af engiferi(ég notaði 1 tsk af kyddi
1 tsk Chillipipar
Slatta af sætri papriku

fyrst setja laukanna í tvennt(3 og 3), 3 á pönnu hinn í pott.
blanda saman hvítlauknum og engiferinu saman.
blanda við það chilliinu, múskatinu og láviðarlaufinu
steikja laukinn úr ólífuolíu, þangað til þeir verða mjúkir.
skera tómatana í bita
bæta út í laukanna í pottinum 2 msk af karry og setja svo setja tómatanna og hvítlauks blöndunni saman við.þgar tómatarnir eru mjúkir
bæta við einum bolla af jógúrti og hneturnar
líka setjaslettu af sítrónusafa og svo einum bolla af kókos.
síðan mjólk og sætu paprikunni.

síðan eru kjúklingurinn skorinn í bita og steiktur á pönnunni með lauknum. blandasvo öllu sman þegar hann er tilbúin

borið fram með grjónum og salati;)


 
 
Sigrún H. Kristjánsdóttir sagði:

Þetta er bara einfaldlega frábær síða!
Þú ert að vinna alveg einstakt brautryðjendastarf. Margfaldar þakkir fyrir að vilja deila þessari síðu með okku hinum… og okkur sem erum smátt og smátt að feta brautina að hollara mataræði. TAKK


 
 
Fríður Norðkvist sagði:

Þetta er algjörlega frábær síða, ég nota hana mikið, þvílíkur fróðleikur hér og HOLUSTA.
TAKK TAKK að deila þessu með okkur !
Þakkar kveðja,
Fríður


 
 
Jóna Guðrún Ásgeirsdóttir sagði:

Uppskrift dagsins í dag orkubitar, þessa smakkaði ég hjá spilafélaga á Golfhring um daginn og þeir eru algjört æði, nú ætla ég að prófa að gera þetta sjálf. Ég á eftir að skoða þessa síðu aftur og aftur, það sem ég er þegar búin að sjá finnst mér alveg meiriháttar.

Kærar þakkir

Jóna Guðrún


 
 
Bjarney sagði:

Frábær síða :) hlakka til að prófa uppskriftirnar þínar :)


 
 
Berta María sagði:

Alveg meiriháttar síða, aðgengileg og vel uppsett. Er búin að prenta út fullt af uppskriftum og ætla að byrja að baka strax á morgun :)

Takk fyrir,
Berta


 
 
Harpa sagði:

Frábær síða! Ég finn alltaf hollar, góðar og ódýrar uppskriftir hér. Takk fyrir mig.