Gulrótarmauk

Gulrótarmauk hentar vel sem fyrsta grænmetismaukið og flest börn eru mjög hrifin af mildu, sætu bragðinu. Upplagt er að nota gulrætur sem grunnmauk og það hentar vel með fiski, kjöti og öðru grænmeti sem og ávöxtum eins og t.d. maukuðum eplum og perum. Gulrætur innihalda A vítamín og eru mikilvægar til að stuðla að góðri heilsu augnanna og ekki síst nætursjón. Gulrætur eru mildar í maga og valda afar, afar sjaldan ofnæmi. Eins og með allt rótargrænmeti er mikilvægt að það sé lífrænt ræktað.

Athugið að skammtastærðin er einungis viðmið. Sum börn þurfa meira og önnur minna. Einnig getur skipt miklu máli hvort barn er byrjað að skríða og hreyfa sig, varðandi hversu mikið það borðar.
 


Gulrótarmauk, svo hollt og gott

Þessi uppskrift er:

Gulrótarmauk

Gerir 6-8 skammta

Innihald

  • 350 g gulrætur, skrældar, þvegnar og saxaðar gróft
  • 1 tsk kókosolía (eða önnur olía) eða smjör
  • 1-2 tsk soðvatn eða móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk

Aðferð

  1. Skrælið gulræturnar, þvoið og saxið gróft.
  2. Gufusjóðið gulrætur í um 10-12 mínútur eða þangað til þær eru mjúkar.
  3. Notið töfrasprota til að mauka gulræturnar en einnig má nota matvinnsluvél eða blandara. Fyrir yngri börn skal gæta þess að engir stórir bitar séu eftir en fyrir börn sem eru nær 9 mánaða mega vera litlir bitar í maukinu. Ef erfitt er að mauka gulræturnar bætið þá aðeins af soðvatninu saman við og maukið áfram.
  4. Bætið olíu og mjólk saman við og hrærið vel.
     

Gott að hafa í huga

  • Gott er að frysta maukið í ísmolabox. Setjið svo molana í góða frystipoka. Merkið pokana með innihaldi og dagsetningu. Í góðum frysti geymist frosinn barnamatur í nokkra mánuði.
  • Börn eiga misjafnlega auðvelt með að kyngja mat svo bætið við meira af vatni/mjólk ef ykkur finnst það henta.
  • Gott getur verið að bæta við meira magni af móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk út í maukið í fyrstu skiptin, þannig fæst kunnuglegt bragð sem sumum börnum líkar vel.
  • Gott er að blanda svolitlu af hrísmjöli/maísmjöli/hirsimjöli saman við grautinn til að fá matarmeiri graut.
  • Ég nota einungis lífrænt ræktað hráefni í barnamat og ég gufusýð alla ávexti og allt grænmeti.
  • Vörur frá Holle, Babynat, Baby Organic og Organix eru mjög góðar og mæli ég með þeim.
  • Ef þið eruð stödd þar sem þið getið ekki blandað hráefnið má bjarga sér með hvítlaukspressu (fyrir litla skammta)!
     
Ekkert, notaði: 5