Bloggið

Góð grein á íslenskt.is

Fékk þassa áhugaverðu grein senda til mín af íslenskt.is (íslenskt grænmeti) og ég er svooo sammála því sem kemur fram í henni um sykurneyslu barna:

http://www.islenskt.is/?webID=1&i=4&s=17&f=view&id=391  

Mér blöskrar alveg rosalega hvað fólk á auðvelt með að gefa börnum sínum sælgæti. Ég hef svo oft séð foreldra gefa börnum sínum sem eru jafnvel innan við árs gömul súkkulaði og ís (ekki bara eitt dæmi heldur þúsund). Það er klárt mál að barnið bað ekki um það þar sem það hefur ekki einu sinni vit á þessu enn þá. Þetta eru svakalega slæm skilaboð varðandi heilsu og mataræði og ekki gott veganesti í lífið.

Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It  

Punjab

Fórum á indverskan veitingastað í gær sem heitir Punjab www.punjab.co.uk. Hann var rosa fínn. Við höfðum sko verið búin að leita að góðum indverskum stað alveg síðan við fluttum frá Harrow þar sem við bjuggum 2001-2004. Þar bjuggum við nefnilega í Indverjahverfi og indversku veitingastaðirnir voru rosalega góðir. Svo einhvern tímann þegar við vorum stödd í London rétt eftir að við vorum flutt fyrir ári síðan aftur til London ákváðum við að skella okkur á indverskan stað og þvílík vonbrigði. Það var álíka góður indverskur matur og kínverskur matur er í Kínahverfinu í London, ojjjjjj. Það hjálpar sko alveg rosalega að fá álit þeirra sem eru af því þjóðarbroti sem viðkomandi veitingastaður tilheyrir. Til dæmis þekkir Jóhannes indverska stelpu sem er meira að segja frá Punjab héraðinu á Indlandi. Hún benti okkur á Punjab veitingastaðinn. Hún sagði að hann væri ekki sá besti í UK en allavega sá besti í London. Þetta er elsti Norður-indverski veitingastaðurinn í Bretlandi og búinn að starfrækja í hálfa öld. Við fengum rosa gott að borða allavega, þjónustan var frekar þurr en samt alveg fín (ég þoli ekki fíflalega þjóna sem fara að segja manni brandara og spyrja hvaðan maður sé og svoleiðis, ég er komin á veitingastaði til að borða en ekki til að blaðra við aðra eða fá skemmtiatriði), þjónarnir voru flestir eldri menn með vefjahetti og töluðu allir einhverja indverska mállýsku. Loksins erum við búin að finna góðan indverskan stað sem við getum farið með fólk á. Alveg vonlaust að vita ekki um traustan indverskan stað. Við fengum okkur forrétt, aðalrétt, naan brauð og grjón og eftirrétt með vatni á 30 pund (3100 krónur) sem er auðvitað grín. Jóhannes fékk sér Korma kjúkling (í karrý og kókossósu) og ég fékk mér grillað Tandoori grænmeti. Dáldið sterkt en gott engu að síður. Eftirréttirnir voru mangóís og gulrætur soðnar í mjólk og þurrkuðum ávöxtum. Það var rosa gott og ég ætla að reyna að finna uppskriftina einhvers staðar. 

Svo er Jóhannes líklega búinn að þefa upp kínverskan stað af einni kínverskri konu sem vinnur með honum. Ég vinn reyndar með einni frá Singapore en hún borðar aðallega nammi svo ég treysti ekki alveg hennar smekk. Kannski hún eigi gamla ömmu eða eitthvað sem gæti bent okkur á eitthvað sniðugt. Við höfum nefnilega ekki verið hrifin af matnum í Kínahverfinu í London. Það eru yfirleitt svona 1000 réttir á matseðlinum sem bragðast allir eins og eru syndandi í sterkju þannig að oftar en ekki er eins og maður sé að borða hor eða marglyttur eða álíka (geri lítið af því að borða hvoru tveggja, ég er þá bara að tala um áferðina).  Þjónustan er yfirleitt hörmuleg (þeir grípa af manni diskana áður en maður er búinn að borða til að koma næsta viðskiptavini að) og hávaðinn er líka yfirþyrmandi. Ég hlakka til að prófa alvöru kínverskan mat.  Annars ætlum við að fara að gera skurk í að prófa grænmetisveitingastaði og það er einn Hari Krishna staður hérna víst rosa góður.

Allavega við mælum með Punjab á Neal Street í London!

Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It  

Sushiupphitun

Fórum í gær á Gili Gulu (sushifæriband dauðans). Mmmm. Frekar fyndinn hópur sem við fórum með svona eiginlega óvart. Ein af þeim sem ég vinn fyrir heima á Íslandi var stödd í London á leið til Frakklands í kastalapartí. Já já, alveg eins, he he. Hún, eins og þær báðar sem ég vinn fyrir eru yndislegar konur og alltaf jafn gaman að fara með þeim eitthvað út, hvort sem þær eru á Íslandi eða annars staðar. Þær eru MJÖG hressar :) En já ég fékk sms í gærdag varðandi það hvort við værum ekki til í sushi. Jú heldur betur, sláum aldrei hendinni á móti sushi frekar en alkahólistinn á móti áfengi. Við trítluðum niður í bæ, fengum okkur kaffi og svona og hittum svo bæði hana (yfirmann minn) og manninn hennar. Við ákváðum að labba af stað og byrja bara þar sem fleiri ætluðu svo að bætast í hópinn. Við sem sagt enduðum 9 við 6 manna borð og í hópnum voru fyrrverandi samnemandi hennar úr Mastersnámi hér í UK (franskur), stjúpbróðir hennar (íslenskur), vinkona (sænsk eða þýsk), ein frænka og maðurinn hennar (Íslendingar). Sko. Jóhannes sat næstur færibandinu og yfirleitt þegar hann situr við það, koma stór skörð í færibandið og starfsmenn Gili Gulu hafa sig alla við (með kvíðasvip og svitaperlur á enni) að fylla á bandið. Það var orðið svoleiðis í lokin að starfsmenn voru farnir að setja í stað sushis, Sojasósu, Wasabikrukkur og eitthvað svoleiðis rugl á bandið og við vitum ekki alveg hvort það var til að rugla Jóhannes í ríminu, til að stríða okkur eða hvað. En já sem sagt það var ekki á bætandi að við værum 9 á einu borði. Við eiginlega þurrkuðum færibandið upp. Ein og ein vesæl rækja sigldi fram hjá okkur. Ég er ekki að skrökva því, ég held hún hafi skolfið úr hræðslu við okkur :) Annars vorum við hrædd um að sumir kæmust ekki á áfangastað, eiginmaður konunnar sem ég vinn fyrir fór og náði í fólk af Leicester Square lestarstöðinni og var aaaaansi lengi á leiðinni. Það voru nokkrir möguleikar hér: A) hann hefði verið numinn brott (ólíklegt nema hann hafi verið ginntur með bjór), B) gleymt sér og farið á pöbb (ekkert ólíklegt), C) villst (mjög líklegt), D) týnt farsímanum og ákveðið að bíða á pöbb (sérlega líklegt) og E) farið í búðarráp (ekki fræðilegur möguleiki nema B hafi spilað rullu) en ekkert af þessu reyndist rétt. Það sem gerðist var að hann hitti indverskan dverg (okkar maður er yfir 2 metrar og RUMUR) sem vildi snúa okkar manni í trúmálum út frá einhverjum Billy Graham pælingum. Sá var svo hrifinn af dvergnum (hefur eflaust hugsað sér að hafa hann á öxlinni) að hann ætlaði ekkert að skilja við hann. Það tókst þó að draga hann frá dvergnum og hann komst á áfangastað þar sem honum var tekið vel.

Þetta var hin fínasta kvöldstund og góð upphitun fyrir Jónsa og Auðun www.audunol.com sem eru að koma í heimsókn. Við ætlum að sjálfsögðu að kíkja á Gili Gulu en það verður upphitun fyrir 2 sushiboð sem eru plönuð þegar ég fer heim í næstu viku. Veiiiiii sushi.

Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It  

Hryllingskakan

Ég varð svo aldeilis bit fyrir nokkrum dögum. Einn sem vinnur með mér, Suður-Afríkubúi keypti köku. Hann kemur með kökuna í vinnuna og segir: "Viljið þið ekki fá ykkur köku". Allir sögðu "veiiiiii" (nema ég auðvitað, ég fékk mér bara gráfíkju he he). Allir sögðu "naaaammmmm hvað þetta er góð súkkulaðikaka" og enn fremur spurði fólk "Hvert er svo tilefnið????". Ég átti sko afmæli sagði Suður-Afríkubúinn. "Já til hamingju með afmælið!!!". "Ja nei sko ég átti afmælið fyrir 2 vikum síðan og það var svo mikið að gera þegar ég keypti kökuna þá að ég vildi ekki koma með hana þá. Ég geymdi hana því og kom með hana bara í dag".

 OK SÁUÐ ÞIÐ þetta???? Kakan var 2ja vikna gömul en var ALVEG eins og NÝ, enginn tók eftir neinu. Ég skoðaði hana og það var ekki séns að sjá að hún væri þetta gömul!! Ég er oft svo pirruð yfir því hvað það sem ég baka geymist illa (þ.e. ef Jóhannes nær ekki að klára allt á einu bretti eins og oft gerist he he) en ég held ég sé bara mjög sátt við það. Ég gæti ekki hugsað mér að gera líkamanum það að borða þenann viðbjóð. Ojjjjjjjjj barasta.

Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It  

Skipt um lögheimili :)

Hef ákveðið að skipta um lögheimili. Mun framvegis taka við pósti á 22 Torrington Place, WC1 7HJ. Ástæðan? Fann búð sem er eins og heil pláneta. Hún er FABULOUS. Við erum að tala um himnaríki fyrir hollustuspírur eins og mig. Svona 100 X stærra en Heilsuhúsið og 100 x ódýrara (svona hér um bil). Þarna er allt lífrænt ræktað, það er bakarí, bókabúð, kaffihús, kjötvörur af happy hænum og öðrum hamingjusömum dýrum, hlaðborð með mörgum réttum til að kaupa úr og heil verslun auðvitað með lífrænt ræktuðum og framleiddum vörum. GEÐVEIKT. Búðin heitir Planet Organic (Lífræn Pláneta) og ber nafn með rentu. VÁ. Ok hún er ekki eins ótrúlega flott og girnileg og Whole Foods Market http://www.wholefoodsmarket.com/ í USA en samt sem áður Gorgeous. Reyndar í mjög svipuðum stíl og Fresh and Wild http://www.freshandwild.com/ (sem er nú ekki slæmt) sem er ein uppáhalds búðin mín í London. Þessi búð sem ég var að uppgötva er rétt við Tottenham Court Road. Ef maður labbar upp Oxford Street í átt að Centre Point (frá Marble Arch) og beygir upp Tottenham Court Road, þá er hún á hægri hönd. Maður beygir bara inn á horninu á Habitat og Barclays bankanum!! Veiii við ætlum að kíkja næsta sunnudag í heilsuleiðangur!

Já af öðrum málum er það svo að frétta að ég er búin að kaupa ný eldhússkæri í staðinn fyrir þau sem innbrotsþjófarnir tóku. Þau eru beittari og stærri en þau sem við áttum og kostuðu bara 300 kall í Indverjabúð. Vildi sem sagt ekki mæta innbrotsþjófum með þessi :-( Hlakka til að fara að klippa allt sem ég hef ekki getað klippt að undanförnu. Ótrúlegt hvað mann vantar skæri oft!

Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It  

Lottóvinningurinn

Já við unnum í lottóinu. Við keyptum auðvitað miða því ég átti jú lukkupening. Þar sem lottóvinningurinn var orðinn 80 milljón pund og þar sem við hefðum alveg verið sátt við svo sem eins og 1/80 af því (samt 108 milljónir sko) þá grunaði mig ekki annað en að við myndum vinna í lottóinu. Við unnum jú, vorum rosa spennt, komin með 1.....2.....3 rétta en nei það varð ekki meira. Þvílík vonbrigði :( Við vorum samt vongóð um að fá alveg nokkur hundruð pund fyrir þrjá rétta... en sáum svo seinna að líkurnar á því að fá 3 rétta er 1:39 svo þið getið ímyndað ykkur hver upphæðin var. Heil 5 pund eða álíka.

Erum annars búin að panta ferðina til Mombasa í Apríl. Jóhannes pantaði beint flug fyrir okkur þann 7. apríl - 22. apríl frá London til Mombasa, frábært að fá beint flug og þurfa ekki að skipta í Nairobi (þó ég hefði annars verið til í að skreppa á kaffihús og svona).  Mér skilst að sé orðið fullt í ferðina hjá Borgari og Elínu http://www.uu.is/serferdir/kenya. Svo er Jóhannes óðum að verða tilbúinn í Mt. Kenya ferðina http://www.afrika.is/Pages/TripInfo.aspx?id=12 Mikil tilhlökkun þar.

Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It  

Veðurfregnir

Aumingja Brasilíubúinn sem var plantað við hliðina á mér á skrifstofunni. Ég er með mestu reynsluna af starfsfólkinu hér á skrifstofunni í London svo því er plantað við hliðina á mér og ég er yfirleitt ungamamma í svona viku. Öllu heldur held ég að nýju fólki sé alltaf plantað við hliðina á mér til að láta það "Þola Sigs" í viku ("Going through the Sigs-week"). Er sko stundum kölluð Sigs hér). Ef nýtt fólk þolir viku við hliðina á mér, þá er það nokkurn veginn seif. Ég er sem sagt ekkert voðalega mikið fyrir að tsjatta og nenni yfirleitt ekki að blaðra við neinn nema sé talað við mig af fyrra bragði og vil að fólk sé að vinna vinnuna sína, þoli ekki hangs og rugl og ég hef yfirleitt það mikið að gera að ég hef ekki tíma fyrir eitthvað bull (já já ég veit ég á að vera opnari og allt það, er alltaf að reyna). Það hlýtur að taka á taugarnar fyrir nýtt fólk hehe. Einn gerði þau mistök að spyrja mig fyrsta daginn sinn þegar hann ætlaði að fara út í hádegismat. "Er kalt úti". Ég svaraði auðvitað: "Ok skilgreindu kulda" því í fyrsta lagi veit ég ekki hvað honum finnst kalt (komandi frá Frakklandi) og í öðru lagi er mér alltaf kalt svo það er ekki hægt að spyrja mig um hitastig. Hann var ekkert rosalega hrifinn af því svari og finnst ég eflaust merkileg með mig en ég meina hvað átti ég að segja. Ég gat í alvörunni ekki svarað spurningunni nema fá meiri upplýsingar :(

Aumingja brasilíski strákurinn sem var að byrja í síðustu viku sat svo við hliðina á mér í 2 daga. Veit ekki hvort hann gafst upp og lét færa sig eða hvað en hann sagði við mig fyrsta daginn sinn: "Það er kalt hérna í London". Ég sagði "já ég veit, þess vegna er ég í Merino ullarpeysu, bómullarpeysu og annari þykkri peysu utan yfir, með ullartrefil og í ullarsokkum, það er skítkalt og ég er að krókna úr kulda, eins og alltaf". "Já eins gott að maður klæði sig" sagði strákgreyið á mjög bjagaðri ensku. "Já eins gott, því annars deyr maður bara úr kulda". "Hvaðan ertu annars?". "Ég er frá Íslandi". "Íííííís-landi?". Hann horfði á tölvuskjáinn og sagði ekki meir. Hann horfði af og til á mig yfir daginn og sagði ekki neitt við mig og hefur voða lítið sagt við mig, enda innpakkaður í dúnúlpu mest allan daginn. Við erum góð saman í kuldakastinu á meðan hinir eru á bol. Held hann hafi í alvöru haldið að ég væri að gera grín að honum því flestir halda að vetrartíminn í London sé eins og hitabylgja yfir sumartímann á Íslandi, sérstaklega þeir sem koma úr 40 stiga hita í Brasilíu he he. Er annars að spá í að setja upp skilti á skrifborðið mitt: "Engar veðurupplýsingar fáanlegar hér" :)

 

Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It  

Urban Mania Ltd.

Jæja þá erum við orðin fyrirtækiseigendur í London :) Veiiiii. Við erum búin að stofna fyrirtækið Urban Mania Ltd. og er fyrirtækið metið á hvorki meira né minna en 100 pund (um 11 þúsund krónur). Ójá. Björtu hliðarnar eru þær að það er auðvelt að stækka fyrirtækið, auka hagnað o.s.frv. Alltaf betra að fara upp en niður. Línuritið ætti því að vera mjög svo flott fyrir árið 2006. Ég á 50 hluti í fyrirtækinu og Jóhannes 50. Erum að spá í að bjóða út hluti, hver getur keypt 1 hlut á 1 pund sko og svo búum við til Urban Mania Group. Miklu meira kúl en Ltd. Nei nei bara grín. Annars er þetta nú bara til þægindaauka fyrir okkur því við þurfum svona að borga miklu minni skatt sem fyrirtæki (og rukka inn sem slík) heldur en ef ég er verktaki. Jóhannes er búinn að stússast í þessu upp á síðkastið.

Við erum annars búin að vera að rífast yfir því hver eigi að vera Managing Director o.s.frv (Framkvæmdarstjóri). Það þarf að vera einn ritari og svo framkvæmdarstjóri en til að tryggja heimilisfriðinn held ég að við verðum bæði skrá sem MD (eiiiiiins gott líka, glætan að ég ætli að vera ritari. Þó ég skrifi betur þá getur kjeeeeeeeelllllinnn sko vel verið ritari). Jóhannes ætlar aftur á móti að borga mér 1 krónu meira í laun en hann fær og krefjast þess að mér verði vikið úr starfi vegna kynjabundinnar mismununar he he. Þetta verður fróðlegt.

 Já hvað gerir Urban Mania Ltd.? Góð spurning..... Seljum "pappír og berjaljós" kannski? Nei nei, þetta verður tölvutengd ráðgjöf eins og það heitir og eins og ég segi, þetta er til þægindaauka frekar en nokkuð annað :). Speeennnnandi. Allavega kúl að eiga fyrirtæki í London, nú má Baugur Group, Kaupthing Group og öll þessi Group fara að vara sig.

Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It  

Afsaki hlé

Jóhannes er að uppfæra bloggið mitt svo ef verða einhverjar truflanir á útsendingu næstu daga þá "afsakið hlé" bara :) Þið ættuð ekki að verða vör við neitt en EF svo skyldi vera þá vitið þið af hverju.

Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It  

Skrýtinn dagur

Já eitthvað furðulegt fólk í kringum okkur í dag. Við fórum í ræktina áðan. Veiiii í fyrsta skipti sem ég fer í 5 vikur. Á eftir að deyja úr harðsperrum á morgun í efri partinum. Get ekki tekið neðri partinn alveg strax, enn þá bólgið og vitlaust hnéð. Samt gott að fara í ræktina, þó sé ekki nema til að viðra íþróttafötin. Alveg nauðsynlegt.

Allavega þessi dagur er búinn að vera eitthvað spes. Þegar við vorum á leiðinni í gymmið var maður sem labbaði á eftir okkur í dáldinn tíma. Hann tók fram úr okkur eftir smá spöl og sagði "eruð þið að fara á bátasýninguna??". Ööööööö nei sögðum við (enda held ég að bátasýningar í London séu afar sjaldgæfar sko, svona af því að London er ekki mjög nálægt sjó). Hann labbaði því næst fram úr okkur og fór beint í kínversku kirkjuna sem er í einni hliðargötunni. Hann var samt ekkert kínverskur. Kannski ítalskur, eða grískur en alls ekki kínverskur. Ég sem hélt alveg niðri í mér andanum þegar hann spurði. Var alveg viss um að þarna væri komin lukkan okkar..... að hann ætlaði að gefa okkur snekkju.....eða eitthvað annað fínt. En nei nei ekkert svoleiðis :( Var heldur ekki með lukkupeninginn í vasanum akkúrat þá. Kannski hefði hann gefið okkur fínan bát?

Jæja, við fórum í ræktina og svo heim og þar beið eftir okkur balletsmiðurinn góði. Við heyrðum flautið í honum langar leiðir. Hann spurði okkur þegar við komum hvort að hefði verið rosa partí hjá okkur í gær, hann hefði heyrt í glösum brotna, hárri tónlist og í fullt af fólki. Hann var MJÖG sannfærandi, með rosa balletsveiflur í höndunum og leikræna tilburði. Við reyndum að útskýra fyrir honum að við hefðum verið mjög róleg, við tölvurnar að vinna (mjög sorgleg bæ ðe vei, á laugardagskvöldi) en hann sannfærði okkur eiginlega um að við hefðum verið með rosa partí (að minnsta kosti að hefði verið fullt af fólki í hausnum á okkur, svo sannfærandi er hann). Svo sagði hann "Nei bara að skálda sko, ég er svo leikrænn alltaf". Við föttum ekki aaaaalveg húmorinn hjá honum. Hann á það til að horfa á hurðina sem hann er búinn að vera að laga og segja "en fallegt, en fallegt, ég er svo klááááár, svooo klááár", bara við sjálfan sig. Held hann sé líka skotinn í aumingja Howard á efstu hæðinni (sem er um 60 prófessor og býr einn). Balletsmiðurinn er samt giftur japanskri konu og á barn og allt það, það þarf nú ekki að segja alla söguna samt. Hef heyrt balletsmiðinn segja tvisvar sinnum við Howard. "Mikið líturðu vel út núna Howard, svo fallegur frakkinn þinn sem fer þér svo vel". Aumingja Howard roðnar bara. Kannski að Howard sé skotinn í balletsmiðnum???

Er búin að vera rosa dugleg annars í eldhúsinu og búin að baka fullt (sjá tenglana hérna fyrir neðan). Paul sagði við Howard þegar Howard var að smakka Pistasjóbrauðið "And she made them with her fair hands" (og það fylgdi með góð sveifla á höndunum). Allt sem hann segir og gerir er eins og hann standi á sviði og sé að flytja söngleik. Ég hugsa að hann teygi fyrir og eftir vinnu, geri svona alvöru teygjuæfingar með slá og alles. Ef hann pússar spýtu þá beygir hann sig eins og hann sé í balletsveiflu. Hann tekur alveg sóló ef hann þarf að saga eða negla nagla. Mjöööög spes náungi. Indæll... en speeeeeees..

Já hér er það sem ég er búin að vera að baka yfir helgina. Mæli sérstaklega með Pistasjóbrauðinu, var ekkert smáááá gott.

Gulrótar- og bananakaka

Grískar möndlusmákökur

Jógúrtís með ananas og kiwi

Mangó- og kókosís

Pistasjóbrauð með appelsínukeim

Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It