Vanræksla á háu stigi!
Afsakið vanræksluna. Hún er tilkomin vegna þess að við erum upptekin við að njóta þess sem London hefur upp á að bjóða. Við erum búin að vera dugleg að koma okkur fyrir í nýja húsnæðinu sem er við Riding House Street í London. Nú erum við hætt að búa í ferðatöskum og við erum farin að sjá í gólfið. Við þurfum heldur ekki lengur að spila Tetris með allt okkar hafurtask og reyna að koma því fyrir þar sem ekkert pláss er. Hverfið er rólegt og gatan sömuleiðis. Hér á næsta horni er dásamlegt kaffihús, Kaffeine (uppgötvuðum það við mikla gleði Jóhannesar). Við erum stutt frá öllu og við erum 5 mínútur að nálgast flest það sem við þurfum, hvort sem það er læknir, matvörur eða annað. Það er líka notalegt að rekast á vini sína, þau Mariu og Pete. Það er notalegt því London er jú 8 milljón manna borg og við þekkjum ekki svo marga þrátt fyrir að hafa búið hér lengi.
Við fórum annars á þennan stað (Zilli Fish) síðasta laugardag (Maria átti afmæli) og ég mæli með honum fyrir þá sem vilja prófa góðan fisk í London. Fiskurinn er ferskur og maturinn er reglulega góður.
Ummæli
26. júl. 2010
loksins kom færsla!
Af því ég heyri jú aldrei í þér í tölvupósti, nei nei ;-)
27. júl. 2010
hef labbað grilljón sinnum framhjá þessum stað..... oft pælt í að fara inn en enda alltaf á kulu kulu aðeins lengra í götunni.... kannski fer ég núna í ágúst :D víiii hlakka svooo til :D:D:D