Ísinn og litla barnið
Þar sem þetta var einn af fyrstu sólardögunum í London og barnið það ungt, reiknaðist mér til að það hefði aldrei smakkað ís áður. Ég sá það líka á viðbrögðum foreldranna að þetta var eitthvað nýtt og spennandi í lífi barnsins, og þeirra. Pabbinn rétti ísinn að barninu (takið VEL eftir hér að barnið færði sig ekki nær ísnum. Þetta er algjört lykilatriði). Barnið sleikti ísinn. Svipurinn var fyrst svolítið skrítinn (kuldinn) og foreldrarnir æptu úr spenningi. Það var sérlega áhugavert að fylgjast með framhaldinu og ég hafði ekki augun af fólkinu (og passaði vandlega að þau sæu ekki að ég væri að fylgjast með því). Barnið nánast umturnaðist. Fyrst var það brosandi og fór svo yfir í að verða afar pirrað þegar pabbinn var ekki nægilega fljótur að rétta ísinn. Barnið greip því næst í súkkulaðikexið sem stóð upp úr ísnum og át. Pabbinn sleikti ísinn sinn og rétti barninu aftur á meðan mamman tók myndir á símann sinn í gríð og erg, organdi úr hlátri enda barnið útatað í ís og súkkulaði. Barnið endaði á því að klára ísinn, í brauðforminu og með súkkulaðikexinu. Barnið varð að lokum brjálæðislega pirrað á því að fá ekki meiri ís og það orgaði hátt. Það hefur líklega orgað með magapínu eftir að heim var komið enda var sykur-, súkkulaði-, og mjólkurmagnið mikið miðað við lítinn búk.
Það er svo margt rangt við þessa mynd. Barnið hefur ekki huuuuugmynd um hvað ís er. Barnið hugsar ekki vá hvað ég á skemmtilega foreldra sem gefa mér ís af því það er sól og við erum í garði. Barnið hugsar SÆTT, SÆTT, SÆTT, SÆTT, SÆTT, GOTT, GOTT, GOTT, MEIRA, MEIRA, MEIRA, NÚNA, NÚNA, NÚNA, NÚNA. Börn eru með ólíkindum fljót að læra og hvað haldið þið að eigi eftir að gerast í náinni framtíð þegar foreldrarnir fá sér ís? Akkúrat þegar tennurnar eru að koma upp? Ég er ekki að segja að börn eigi ALDREI á sinni ævi að fá sykur og ALDREI á sinni ævi að fá ís. Það er jú staður og stund fyrir allt. Hins vegar, ef barnið veit ekki hvað ís er, er ekki ágætt að bíða með að gefa slíkt þangað til það er orðið aðeins eldra og getur allavega beðið sjálft um ís? Það að gefa barninu ís eða sælgæti á þessum aldri er einungis fyrir foreldrana, eitthvað sem þeim finnst sniðugt og fyndið og halda að sé skemmtilegt fyrir barnið. Barnið gerir t.d. engan greinarmun á rjóma og ís. Ef foreldrarnir fá sér ís væri þess vegna hægt að setja þeyttan rjóma í skál, með t.d. maukuðum bönunum og láta barnið borða. Það yrði alsælt, myndi fá vítamín og fitu í kroppinn og maginn yrði líklega sáttur.
Afkvæmið kláraði þessa nokkra Cheerios hringi sem ég hélt á í lófanum og gæddi sér svo á heimatilbúnu mauki með lífrænt framleiddu mangoi, bönunum og svolitlu af grísku jógúrti. Þetta var svo gott mauk að það sem hún kláraði ekki gæddi ég mér á. Það hefði þess vegna mátt frysta maukið og nota sem ís. Það er allt betra en að gefa svona ungu barni hvítan sykur, rotvarnarefni og annað í þeim dúr. Kannski gefa þau barninu aldrei aftur ís, kannski fær barnið ís einu sinni í viku, hvað veit ég. Það var bara þetta með að rétta ísinn að svona litlu barni (sem vissi ekki hvað ísinn var) sem truflaði mig svo mikið.
Þetta er þó bara mitt persónulega mat og ég er óendanlega þakklát þeim sem ýta ekki sykri að Afkvæminu....Ég er sjálf enn þá með heilar og óskemmdar tennur (og glerungurinn eins og í 13,5 ára sagði tannlæknirinn mér) og ég ætla að gera mitt til að stuðla að því að þannig verði það líka hjá þeirri stuttu..Það verða líka næg tækifæri síðar þegar hún er orðin eldri, að heimta sælgæti. Það verður reyndar aldrei keypt á heimilinu (fyrr dytti ég dauð niður) en í staðinn verður ávallt til hollt konfekt, ávextir o.fl. og vonandi verður það til þess að tennurnar verði fínar!!!!
Ummæli
15. júl. 2010
Hæ, takk fyrir frábæra síðu... styðst oft við uppskriftir þínar:)
Og búandi í London má ég til með að segja þér að ég fann ósykrað Cherrios í litlu Deli á St. Johns wood High street, frekar dýrt en mér fannst alveg glatað að dóttir mín myndi ekki alast upp við að tína þetta uppí sig og ekki gef ég henni sykurhúðaða draslið.
Bestu kveðjur,
16. júl. 2010
Takk fyrir að deila þessum mikilvægu upplýsingum Hadda!!!!!!!!!!!!!!! Mergjað!
16. júl. 2010
Svo gvudvelkomid, hropadi upp yfir mig af gledi tegar eg sa skinandi gulann pakkann i hillunni
Tetta er stadurinn
http://www.panzers.co.uk/