Hvað er með rólegheitin?
Vefurinn verður gjörólíkur því sem þið þekkið en verður samt kunnuglegur, með sömu flokkum og sama skipulagi. Það verður þó mun auðveldara að leita eftir hinu og þessu og t.d. verður hægt að sníða leit eftir t.d. glúteinlausum uppskriftum, mjólkurlausum, eggjalausum, hnetulausum o.fl. Einnig verða nýjustu uppskriftirnar og þær vinsælustu. Ég er líka að uppfæra allar uppskriftirnar og lagfæra orðalag, villur o.fl. Uppskriftirnar eru nú orðnar rúmlega 540 talsins svo það tekur tíma! Einnig verður hægt að skrifa komment við hverja uppskrift. Svo verða auðvitað ýmislegt fleira sem bætist við. Okkur vantar bara andsk. hafið það fleiri tíma í sólarhringinn!
Það hjálpar heldur ekki að vera að flytja á milli landa, að vera endalausum ferðalögum og aldrei kyrr á sama stað. Við erum núna búin að búa á samtals 6 stöðum síðan 1. maí og við erum búin að búa í ferðatösku í 3 mánuði. Ég er ekki búin að hafa aðgang að eldhúsi nema í skókassastærð og það er svo heitt í íbúðinni sem við erum í (þ.e. þegar hitabylgja er í gangi) að ég svitna bara við að skrúfa lok af mjólkurbrúsa. Sem betur fer eigum við viftur sem eru í gangi allan daginn.
Við fáum húsnæðið sem við komum til með að vera í, í Fitzrovia í London, um miðjan júlí. Þá fæ ég loksins eldhús, get farið að elda, taka myndir og gera eitthvað af viti. Nú er ég líka komin með svakalega fína myndavél (og er að safna mér fyrir draumalinsunni) og mér er ekki til setunnar boðið. Ég hef ekki einu sinni þorað að skoða uppskriftasíður í langan tíma því ég fæ bara sting í magann. Þetta hlýtur að vera svipað og fyrir Formúlu ökumann að missa bílprófið (ekki það að ég sé jafn klár að elda og formúlu ökumaður er að aka en þið vitið hvað ég meina).
En já, ef ég er óvenju þögul á blogginu mínu, þá er þetta ástæðan…..!
Ummæli
29. jún. 2010
Hlakka til að sjá nýjan vef, takk fyrir allar uppskriftirnar. Það eru algjörlega dásamlegar uppskriftir á síðunni þinni ;o)
29. jún. 2010
Hlakka til að sjá nýjan vef, veit hann verður góður. Hef nýtt mér þennann vef svo mikið svo býð spennt hvað þið eruð að bralla :)
kveðja frá dk
29. jún. 2010
Sé alveg fyrir mér Jóhannes að vinna í nýja vefnum og þú með kökukeflið yfir honum ha, ha
Leiðinlegt að geta ekki eldarð :/ en það stendur jú allt til bóta.
Veit að þetta er örugglega mikil vinna þ.e. að smíða nýjan vef og ég bíð bara róleg, þakka bara kærlega fyrir að hafa aðgang að síðunni.
29. jún. 2010
hefurðu prófað að láta keflið bara vaða á fingurna hans á lyklaborðinu og sjá hvort eitthvað gerist?
ps. knús á Jóhannes
15. júl. 2010
Hlakki hlakk
Skil vel þetta tímaleysið. Sólarhringurinn þyrfti að vera amk 30klst.