Snilldarkokkurinn smái
Við skemmtum okkur konunglega ég og Jóhannes yfir morgunmatnum í morgun við að horfa á þennan snilldarkokk. Það munaði engu að við yrðum sein í vinnuna því við vorum alveg límd við þennan frábæra matreiðslumann. Hann útbýr alls kyns mat eins og spaghettisósu, smákökur og fleira. Hann er ekki hár í loftinu en geislar af sjálfsöruggi (takið eftir því þegar hann ætlar að segja sögu um eldamennskuna sem og þegar hann segir að best sé að versla allt local. Brilliant). Hann er ekki að flýta sér að hlutunum, hann sleikir fingurna, hann er líka klaufi og er ekki alltaf viss um hvað hann á að setja næst en þetta verður enn þá fyndnara fyrir vikið.
Ummæli
08. jan. 2009
Var að horfa á þetta með börnunum og þessi drengur er náttúrlega bara frábær. Þetta var alveg kjörið fyrir svefninn í staðinn fyrir lestur ;)
Að mínu mati þá var fullmikil sykurgleði þarna undir lokin. Við hér á CafeSigrun erum ekki vön svona takteringum!
Takk takk, við ætlum að horfa á annan þátt á morgun.
08. jan. 2009
Hann er snillingur drengurinn...maður verður bara að líta undan þegar olían og sykurinn fara í skálina :) Búin að sjá fyrsta þáttinn? Ég sprakk...þegar hann sagði "I have too much time to talk" :)
09. jan. 2009
Æðislegur kokkur, mér fannst best þegar hann sagði brúnaþungur, 'these citrus boys are not easy to make' og klóraði sér í höfðinu yfir vandræðunum.
10. jan. 2009
Nú mega Jamie Oliver og Nigela fara að gæta sín.
10. jan. 2009
Satt segirðu Gústi