Detox uppskriftir 2009

Ég var að bæta inn nýjum detox uppskriftum inn á vefinn. Það kennir ýmissa grasa og t.d. er hér að finna drykki, kökur og límónur, avacado, sítrónur, appelsínur, engifer og mynta koma sterkt við sögu. Svo er ein aukauppskrift sem er ekki mjög detox en mjög 2009 í staðinn þ.e. ódýr, holl og góð og frábær til að drýgja grautarafganga. Detox er fyrir mér smá tiltekt því ég er á móti alls herjar líkamshreingerningum. Mín kenning er sú að líkaminn eigi að fá allt árið um kring hollan og góðan mat og því eigi ekki að vera þörf á sérstöku detoxi. Smá tiltekt skaðar þó ekki og hér eru nokkar uppskriftir sem hjálpa ykkur aðeins áfram. Munið bara að tala við lækni eða næringarfræðing áður en þið farið út í detox ævintýri, en sérstaklega á það við um ófrískar konur, fólk sem er heilsuveilt fyrir, börn/unglinga o.fl.

Njótið vel!

Frá vinstri:

Engiferöl , Hreinsandi sítrusdrykkur, Avacado-, ananas- og rauðlaukssalat, Myntute, Límónu- og macadamiukökur, Pecanhnetu- og cashewmaukskökur, Hörfræskex, Grjónaklattar

Engiferöl
Hreinsandi sítrusdrykkur
Avacado- ananas og rauðlaukssalat
Myntute
Macadamia- og límónukökur
Pecanhnetu- og cashewmaukskökur
Hörfræskex
Grjónaklattar
Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It  

Ummæli

Lisa Hjalt
09. jan. 2009

Varð að segja takk fyrir þennan skammt þar sem enginn hefur kommentað hér.

Hlakka til næstu sendingar ;)

Sigrún
09. jan. 2009

Takk Lísa mín :)

Helena
15. jan. 2009

Flottar myndir af hrikalega girnilegum mat :)

Elva
16. jan. 2009

Mæli mikið með 'hreinsandi sítrusdrykknum', hann er algjört ÆÐI! Gaf vinkonu minni með mér og hún næstum sleikti glasið að innan!