Ódýra uppskrift vikunnar #6: Fiskibollur
Fiskibollur
Hollustueiginleikar: Fiskibollur eru einfaldur en um leið hollur og góður matur. Ýsa (og þorskur) er próteinrík og mögur (fitusnauð) en inniheldur helling af góðum vítamínum eins og B6, B12, B3 og omega 3 fitusýrur (þó ekki eins mikið og lax). Einnig inniheldur ýsan steinefni og snefilefni. Ýsan er góð fyrir hjartað, getur stuðlað að því að hindra heilablóðfall, ekki síst vegna þess að omega 3 fitusýrurnar eru blóðþynnandi og B12 og B6 vítamínin stuðla að heilbrigðum æðaveggjum. Fiskur getur líka hjálpað til við að lækka blóðþrýsting (og ekki bara þegar við horfum á þá svamlandi í fiskabúri tannlæknisins). Neysla á ýsu (og þorski) getur líka hjálpað til við að hindra myndum krabbameinsfruma, sérstaklega í ristli og nýrum. Einnig á neysla á ýsu og þorski að hjálpa til við að hægja á hrörnun í heila og Alzheimers en þar koma omega 3-fitusýrurnar inn. Laukur hefur svo ýmsa góða eiginleika eins og að innihalda helling af andoxunarefnum og B6 vítamínum (sérstaklega hvítlaukurinn), C vítamín, trefjar o.fl.
Í gamla daga voru fiskibollur steiktar upp úr smjöri. Ég segi gamla daga því ég hef ekki smakkað þannig fiskibollur í um 15 ár en kannski steikir einhver þær enn þá upp úr smjöri. Að mínu mati ætti aldrei, aldrei að steikja mat upp úr fitu ef maður getur bakað matinn í staðinn (ég baka allt nema grænmeti sem þarf að snöggsteikja). Þessar fiskibollur innihalda í raun eins litla fitu og hægt er en samt þannig að hún er alveg nóg og ég nota auðvitað kókosfeiti sem passar vel með fiskibollunum. Fiskibollurnar má gera mjög ódýrar með því að kaupa frosin ýsuflök í búðinni. Þessi máltíð kostaði um 500 krónur fyrir okkur 2. Það er um að gera að gera stóran skammt og frysta en einnig má gera karrísósu og brytja bollurnar út í. Það má líka baka fiskibollurnar með t.d. rótargrænmeti (gulrótum, sætum kartöflum, rófum) o.fl. Þær eru líka mjög góðar kaldar í nestisboxið með smá slettu af tamarisósu eða jafnvel hvítlauks-jógúrtsósu.
Fyrir 2
Innihald:
- 450 gr ýsa (einnig má nota þorsk). Ódýrast er að kaupa frosinn fisk
- 1/4 laukur, saxaður gróft
- 1/4 blaðlaukur, saxaður gróft (má nota lauk í staðinn)
- 1 hvítlauksgeiri, saxaður gróft
- 1/2 tsk saxað, ferskt engifer (má sleppa)
- 1 egg
- 1/2 dl sojamjólk (einnig má nota hrísmjólk, haframjólk eða undanrennu)
- 3 msk kartöflumjöl eða spelti
- 1 tsk pipar
- 1 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
- 1 tsk kókosfeiti
Aðferð:
- Setjið laukinn, hvítlaukinn, engiferið og blaðlaukinn í matvinnsluvélina og blandið í 10 sekúndur.
- Setjið fiskinn saman við laukinn og maukið ágætlega (þannig að hann losni vel í sundur).
- Bætið speltinu, saltinu og piparnum saman við og blandið í nokkrar sekúndur eða þannig að úr verði eins konar deig.
- Bætið mjólkinni saman við eins og þurfa þykir, deigið ætti ekki að vera of blautt.
- Bætið kókosfeitinni saman við.
- Notið bollur með matskeið (gott að vera í plasthönskum og dýfa skeiðinni í vatn inn á milli).
- Setjið bökunarpappír á bökunarplötu.
- Raðið bollunum á plötuna.
- Bakað í ofni við 180° C í um 15-20 mínútur.
- Snúið við og bakið í 10-15 mínútur.
- Berið fram með góðu salati, bygggrjónum eða hýðishrísgrjónum og tamarisósu.
- Bollurnar má geyma í kæli og hita daginn eftir og upplagt er að taka þær með í nestið.
Ummæli
05. apr. 2009
Sæl Sigrún,
Takk kærlega fyrir þessa frábæru uppskrift af fiskbollum, kom skemmtilega á óvart hversu ljúfengar þær voru bakaðar í ofni.
Í pistlinum þínum talar þú um að ef til vill séu enn einhverjir sem steiki fiskbollur upp úr smjöri!! Þegar ég var að alast upp voru fiskbollur steikar upp úr smjörlíki, sem er enn verra að mínu mati.
Algjörlega frábært að baka fiskbollur i ofni, hefði ekki dottið í hug að útkoman væri svona góð.
Takk fyrir glæsilegan vef sem ég nota mjög mikið.
06. apr. 2009
Reglulega gaman að heyra Erla að þær hafi tekist svona vel...og já sammála...að steikja upp úr smjörlíki er verulega ógeðfellt...og eiginlega verra en smjörið!