Sjampóvísitalan....aftur

Sjampó í Hagkaupum

Ég var bálreið í búðinni áðan. Ég athugaði verð á sjampóinu sem ég nota sem verðviðmið (L'oreal Elvital Colour Vive 250 ml). Hér er verðþróunin síðan ég flutti heim í mars 2007.

Mars 2007: 487 kr. Nóvember 2007: 528 kr. Ágúst 2008: 629 kr (sjá mynd).

Síðan við fluttum heim hefur þessi vara hækkað um 142 krónur.

Við skulum skoða nokkur dæmi úr Boots og Waitrose í London (sjá einnig myndir hér að neðan). Waitrose er með dýrari búðum í London og Boots er apótek...það er samt sama verðið á sjampóinu í báðum verslunum (og já yfirleitt 2 fyrir 1 tilboð í Boots). Verðið er 2.19 pund (um 400 krónur miðað við óhagstætt gengi íslensku krónunnar!). Það hefur (Í London) hækkað úr 1.97 pundum síðan í mars. Hækkunin er 22p eða um 33 krónur (ef gengið væri það sama og þá væri hækkunin um 25 krónur). Engin ósköp.

Takið líka eftir verðinu á bleiku hárnæringunni....748 krónur. Í London eru öll sjampóin á sama verði þ.e. 2.19 pund. Á Íslandi aftur á móti er bleika sjampóið á 748 krónur? Hvað á það eiginlega að þýða?

Waitrose sjampó

Myndin hér að ofan er af vefsíðu Waitrose í London. Rauða sjampóið á myndinni er á 2.19 pund.

Boots sjampó

Myndin hér að ofan er af vefsíðu Boots í London. Rauða sjampóið á myndinni er á 2.19 pund. Takið eftir því að það er tilboð, 2 fyrir 1 á sama sjampói (mjög algengt).

Ég skil ekki...Ég bara skil ekki.....hver er að stýra okkur í kaf?

Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It  

Ummæli

Lisa Hjalt
03. ágú. 2008

uuuh … græðgi

mér dettur bara ekkert annað í hug!

Lena
03. ágú. 2008

Verðbólgann....

Alma María
04. ágú. 2008

Þú þyrftir að senda þetta á hann Dr.Gunna eða gera viðlíka könnun og hann gerir. Þetta er auðvitað bara óþolandi. Ég fór nú í Hagkaup í gær og blöskraði svo svakalega verðið á svo mörgun að ég fór bara með helmingi minna út en ég ætlaði. Einn salatpoki (ekki einu sinni ferskt) kostar nú meira en 400kr. Ætlaði að kaupa múslí en hætti við þar sem enginn poki af flottu múslí var á eðlilegu verði. Pokarnir voru allir á um 500kr (keypti æðislegt múslí í Fjarðarkaup fyrir helgi sem kostaði rúmar 200kr).

Jóhanna
04. ágú. 2008

Hæ Sigrún

Langaði að benda þér (og öðrum) á þessa grein hér: http://www.dailymail.co.uk/femail/article-1041224/Dying-beautiful-Are-be...

Grunar að það sé fullt af ógeðs efnum í þessu Elvital sjampói.

Þarf maður ekki vera samkvæmur sjálfum sér og líka hugsa hvað maður setur á sig eins og maður setur ofan í sig ;-)

Kv. Jóhanna

Sigrún
04. ágú. 2008

Ahhhh Jóhanna... he he ég sagði aldrei að ég notaði sjálf sjampóið heldur að ég notaði það sem verðviðmið því þetta væri eitthvað sem fengist í öllum þeim búðum sem ég er að bera saman verð í (bæði London, Íslandi og meira að segja Afríku). Hefði alveg eins getað tekið tannbursta sem viðmið en tók þetta sjampó :)

Jóhanna
04. ágú. 2008

Ó... hehe. Það hlaut líka eiginlega að vera. Mér fannst það svolítið stinga í stúf að vera svona "healthy" en nota svo svona sjampó ;-)

Sigrún
04. ágú. 2008

Ég segi nú bara "don't you people know me AT ALL?" He he....ég á ekki einu sinni að þurfa að taka svona fram :)

gestur
06. ágú. 2008

Hæ. Í hvaða búð kaupir þú þetta sjampó ?? Mér er spurn.

kv m.