Pósturinn Páll

Ég er eiginlega svolítið ringluð.......og ég skil ekki alveg.......

Ég fór á pósthúsið í gær og var að senda skjöl (280 gr) frá Íslandi til UK.

Sending sem er 251-500 gr kostar 725 kr (A póstur) og 435 kr (B póstur). Sending sem er 101-250 gr kostar 410 kr (A) og 280 kr (B). Bilið á milli 251 og 500 gr er risastórt, sérstklega þegar verið er að send skjöl o.þ.h. þar sem hvert blað telur. Það munar 445 kr á því hvort að skjölin eru 250 gr eða 251 gr. Ég greiddi 1135 krónur fyrir sendinguna (því hún þurfti að komast á venjulegum hraða til UK)

Ef við skoðum svo hvað kostar að senda FRÁ UK til Íslands er í fyrsta lagi rukkað með nánast alltaf 20 gr bili þ.e. 10 gr, 20, 40, 60, 80.......300

Verðinu er enn fremur skipt upp í bréf, smáa böggla og prentaðan pappír (ódýrara að senda prentaðan pappír en böggul).

Næsti verðflokkur fyrir ofan hleypur einnig á 20 grömmum þ.e. 320 gr, 340, 360......620.

Ef ég hefði verið að senda sömu skjölin (280 gr) frá London og til Reykjavíkur hefði það sem sagt kostað mig 2.04 pund sem eru um 320 krónur miðað við svimandi hátt gengi pundsins í dag. Það munar því 815 krónum á því hvora leiðina sendingin fer. Nú segi ég bara WHAT the F***? Er ég að missa af einhverju hérna?

Verðskrá Royal Mail í UK

Verðskrá Póstsins á Íslandi

Ég er pissed off.

Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It  

Ummæli

Hildur Ýr
16. ágú. 2008

Ég borgaði 650 kr um daginn fyrir að senda 220 gramma bréf TIL AKUREYRAR...

Sigrún
16. ágú. 2008

Uss uss....meiri klikkunin

Skrifa ný ummæli

Vinsamlegast athugið að reiti merkta með * þarf að fylla út.
 
Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
Þessi spurning hér að neðan er til að varna því að spamvélar geti sett inn sjálfvirkar færslur.
Vinsamlegast leggðu saman tölurnar og skrifaðu niðurstöðurnar. T.d. fyrir einn plús þrír, skaltu skrifa 4.
ellefu plús núll eru