Rokk og ról mataræði
Matseðill gærdagsins
- Ég hef mjaðmabrotnað
- Ég hef farið mjaðmabrotin á hestbak (löng saga)
- Ég hef fengið 300 kg hest ofan á kálfavöðvann á mér (sem rifnaði við það)
- Ég hef verið handleggsbrotin í viku án þess að nenna að láta athuga það
- Ég hef viðbeinsbrotnað
- Ég hef kjálkabrotnað
- Ég hef fótbrotnað, tábrotnað, puttabrotnað og 3var handleggsbrotnað
- Ég hef keyrt vélsleða á staur þannig að vélarhlífin fór beint í sköflunginn á mér. Ég er enn þá með kúlu á beininu og hef sennilega brotnað án þess að ég nennti að láta athuga það
- Ég hef hundrað sinnum tognað, marist, snúið mig, fengið heilahristing, sprengt varir o.s.frv.
- Ég hef sem sagt alveg ágætlega háan sársaukaþröskuld og er nokkuð vön því að bíta á jaxlinn.
Ekkert af þessu kemur nálægt því sem þetta #$#% hné er að gera mér. Sjúkraþjálfunin er þannig að mig langar helst að tæma töfluboxið áður en ég mæti....Æfingarnar heima eru svo sem ekki skárri en það er þó ekki 120 kg og 2ja metra maður að hamast á hnénu. Það sem ég þarf að gera á hverjum einasta degi, oft á dag er að rífa upp það sem er að vaxa saman (þið hafið líklega ekki hugmynd um hversu sársaukafullt það er...sem betur fer). Það eru himnur o.fl. sem eru að gróa og til að þær grói ekki saman þarf ég stanslaust að vera að hreyfa hnéð og helst beygja það eins mikið og ég get. Það er hægara sagt en gert. Það er miklu betra að beinbrotna því þá er maður kyrr í svolítinn tíma á meðan brotið grær. Það sem ég er að gera er eins og að brjóta bein 50 sinnum á dag eða jafnvel verra (ég tala af reynslu).
Í fyrradag gafst ég upp og sagði við lækninn að ég þyrfti sterkari verkjalyf. Hann símsendi seðil í apótek og ég byrjaði vongóð um að nú myndi þetta takast....lyfin eru þau sömu og krabbameinssjúklingar fá (en vægari) einhver morfínlyf og ógleðilyf á undan. Það gekk vel um kvöldið og ég borðaði allt af rokk og ról matseðlinum (töflurnar á myndinni). Ég vaknaði fín og með minni verki...gerði æfingar og var ótrúlega glöð. Upp úr 11 leytið í gærmorgun fór mig að svima og líða illa og ég lagðist í sófann. Ég vaknaði ekki fyrr en um klukkan 17. Ég rumskaði þó nóg í nokkrar mínútur yfir daginn til að skrifa Jóhannesi einn tölvupóst (en náði ekki að klára allt sem ég ætlaði að segja) og ég sendi líka 1 sms. Á msn sagði ég við Jóhannes þetta "zzzzzzzzzzz". Svo var ég sambandslaus. Ég fór ekki einu sinni á klósettið (þurfti það ekki....ég pissaði ekki í sófann ha ha) ...ég var í fáránlegu móki og m.a. sá ég bjöllur og ýmislegt fleira skríðandi í sófanum. Fáránlegt.
Þegar Jóhannes kom heim byrjaði ég að kasta upp (ekki samt af því hann kom heim he he)...ég lá yfir klósettinu til klukkan 22.30 og þvílík uppköst hef ég ekki upplifað áður. Ég náði að borða 1/2 hrísköku yfir daginn og reyndi að borða 1/2 banana.....Allt fór sömu leið. Mjög mikið rokk og ról.
Ég vaknaði sem sé í morgun greinilega laus við lyfin úr líkamanum (svona það mesta) því mér er meira illt í hnénu en mér var í gær....spurningin er því uppköst og vanlíðan eða verkur í hné (og vanlíðan)....erfitt að velja á milli kúk og skíts.
Ég var þó glöð fyrir tvennt. Að þurfa ekki að taka inn þessu lyf vegna alvarlegra veikinda (t.d. krabbameins)...ég hef áður sagt að ef ég yrði mikið veik yrðu það lyfin sem dræpu mig.....ég þoli illa svona innrás í líkamann sem er ekki einu sinni vanur íbúfeni. Ég var líka glöð með að vera heima hjá Jóhannesi sem hjúkraði mér mun betur en hjúkrunarfræðingurinn ($#%%$" nurse Rached) á Landspítalanum....Jóhannes passaði að ég drykki vatn, borðaði eitthvað pínulítið, lyfti sænginni, gaf mér kæligel OG ég gat farið í sturtu þegar ég vildi, skipt um föt og lagst í mitt eigið rúm (þar sem var enginn hávaði nema "malið" í Jóhannesi)....Mér finnst að Jóhannes eigi líka að fá launahækkun :)
Ummæli
10. júl. 2008
Mér finnst leiðinlegt að þú þurfir að ganga í gegnum þetta. Mér finnst þú taka þessu ótrúlega vel. Ég held að ég myndi algjörlega glata skopskyninu í svona aðstæðum. En það hefur þú greinilega ekki gert.
10. júl. 2008
Æi finn til með þér,þú ert nú svo mikið hörkukvendi,ert farin í ræktina áður en þú veist af.Vildi bara þakka þér fyrir þessa frábæru síðu enn og aftur nota hana mjög mikið og er að fara elda og baka oní 90 krakka svo þetta er allgjör gullmoli.Prófaði bollur og brauð og snittubrauð,bananamuffurnar slóu rækilega í gegn....frábært og takk fyrir alla þessa frábæru vitneskju..kveðja Bogga (daglegur gestur hingað)úr Keflavík
11. júl. 2008
Elsku Sigrún!! þetta er alveg svakalegt!! á eiginlega bara ekki til orð...og þvílík manneskja sem á enn til skopskyn og er algjör Pollýanna!! Þú ert algjör hetja og Jóhannes á alveg skilið fálkaorðuna fyrir umönnunina og þú stórriddarakrossinn fyrir umburðarlyndi í veikindum!!
RISA knús í veikindunum!! Vonandi fer þetta að batna hjá þér líðanin!!
11. júl. 2008
Mér finnst eiginlega vanta uppskrift með þessari girnilegu mynd!!!
Þú varst lofsungin í saumó í gær því ég mætti með konfektið góða. Vona að allir þessir góðu straumar skili sér til þín í 101 Reykjavík og hafi góð áhrif á batann.
11. júl. 2008
Takk Melkorka, Bogga, Ingibjörg og Lísa...og já straumarnir skila sér :)