Penelope trailerinn kominn

Vá en spennandi! Trailerinn að Penelope myndinni er tilbúinn. Pöbbinn þar sem þið sjáið Reese Witherspoon og Christina Ricci tala saman er í næsta húsi við íbúðina okkar í London og sumt af tökunum er beint framan á húsið okkar! Ef þið sjáið myndina og sjáið Christina Ricci hlaupa út af bar...þá var ég einmitt að horfa á það skot þegar það var tekið. Líka þegar foreldrar hennar standa og öskra Penelope!!! fyrir utan annan bar. Það skot var tekið nákvæmlega beint fyrir utan hjá okkur..það var kvikmyndatökulið fyrir utan hjá okkur marga daga í röð. Eins gott að við förum að huga að íbúðarkaupum áður en allt hækkar gríðarlega í verði í þessari frægu götu he he. Svo sem ekki í fyrsta skipti sem bíómyndir eða auglýsingar eru teknar upp í götunni...það er bara eitthvað við hana..svo ótrúlega sætt.
Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It