Búin að opna jólauppskriftaflokkinn
Jæja, ég sé að ég get ekki dregið lengur að opna jólauppskriftaflokkinn, búin að fá nokkrar fyrirspurnir varðandi það hvenær ég ætlaði að opna..og ekki eftir neinu að bíða svo sem :) Fyrir þá sem ekki vita þá opnaði ég flokkinn í fyrra í kringum jólin, var með hann opinn til 6. janúar en lokaði svo aftur. Skellti hérna inn mynd af nýrri uppskrift sem ég set bráðum inn í jólaflokkinn (ásamt fleiri uppskriftum).
Fyrir áhugasama þá eru kökurnar ofan á diski sem ég keypti á Zanzibar í september síðastliðnum. Ég keypti hann í fornminjabúð og á hann er ritað 4 nöfn allah (en hann á víst 99 nöfn). Konan í búðinni, frekar gömul múslimakona tók af mér loforð um að ég myndi ekki nota diskinn í neitt ósæmilegt eins og sígarettur því diskurinn er yfirleitt notaður til skreytingar á veggjum og til að fá góða anda í húsið. Ég lofaði henni að nota hann ekki í neitt nema undir smákökur...hún samþykkti það. Diskurinn situr svo ofan á stól sem við keyptum í kirkjubúð í Englandi áður en við fluttum heim. Pínulítill handsmíðaður stóll fyrir börn. Múrsteinsveggurinn í íbúðinni okkar er svo í baksýn með jólaseríunni bleiku sem er reyndar uppi allt árið um kring því mér finnst hún svo falleg. Já takið svo eftir að myndin er tekin á nýja þrífætinum sem ég keypti í staðinn fyrir vetrardekk á bílinn eða skó....er þetta ekki allt annað líf he he (mjög mikilvægt að réttlæta kaupin með öllum hugsanlegum ráðum...sérstaklega þegar er farið að kólna ískyggilega mikið). Þar hafið þið það...leyndardómar gullnu piparkakanna.
Og smá insider info. Ég gerði held ég bestu hnetusteik sem ég hef á ævinni smakkað núna um daginn (þó ég segi sjálf frá). Ég set hana líka inn bráðum.
Ummæli
24. nóv. 2007
Frábært framtak hjá þér nú fer maður að baka á fullu.Ég fer á síðuna þína mjög oft og er dugleg að prufa uppskriftir,þetta er frábær síða hjá þér og mig hlakkar til að sjá verðkönnuna á matvælum hér og í London(fer þangað bráðlega og væri allveg til í að vita hvar búðin sem þú ert að oft að tala um væri) það er nefnilega grátlegt hvað vörurnar hér eru hrikalega dýrar.En takk takk og ég bíð eftir þessari frábæru hnetusteik:) kveðja úr Keflavík "ein ókunnug"