Bloggað um fréttir

Ég verð að láta þetta flakka. Hvernig hefur fólk tíma og hvernig nennir fólk að blogga um fréttir á mbl á hverjum einasta degi? Það eru þarna ákveðnir bloggarar sem að í rauninni endurorða fréttirnar á blogginu sínu upp á hvern dag og ég verð alltaf jafn ótrúlega pirruð yfir því. Ef ég les blogg þá langar mig að lesa um hugrenningar, upplifanir o.s.frv. Langar þá rosalega að skrifa fréttir, vera fréttamenn en hafa aldrei haft tækifæri? Leiðist þeim gríðarlega og hafa allt of mikinn tíma? Kannski hafa sumir svona mikinn áhuga á fréttum og langar að tala um þær en ég myndi ekki nenna því. No way. En svo sem.....nú er ég að nöldra í blogginu mínu um fólk sem bloggar um fréttir..ég hef greinilega tíma til þess ha ha :)

Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It