Sykur í mat eykst
Helmingi meiri sykri er bætt í mat miðað við magnið sem notað var fyrir 30 árum síðan. Þetta kemur fram á vef DailyMail Það er áhugavert að bera saman innihaldið í myndunum tveimur. Mér finnst sérstaklega áhugavert að sjá að í Kellogs Special K árið 1978 (var löngu byrjað að framleiða það þar áður en það kom til Íslands) var 10gr af sykri í hverjum 100 gr. Núna árið 2007 eru það 17gr af sykri. Þeir sem halda að þeir séu að borða hollustu þegar þeir borða Kellogs Special K.....eru að misskilja feitt. Ég hef líka verið að rífast um þetta undanfarin ár.
Hér samanburðurinn í heild sinni:
Kellogs Special K 2007=17gr, 1978=10gr
Tómatsúpa 2007=4gr, 1978=2,6gr
Heilhveitibrauð 2007=3,7gr, 1978=2,1gr
All-Bran 2007=17gr, 1978=15,4gr
Rice Krispies 2007=10gr, 1978=9gr
Ummæli
08. maí. 2007
Það sem verra er: Trefjaríkar vörur sem þykjast innihalda lítinn sykur innihalda oft þeim mun meira salt, eins og t.d. Special K sem inniheldur meira salt en salthnetur pr.100 gr skv. þessari frétt: http://www.nrk.no/programmer/tv/puls/1.2311864
P.S. Takk fyrir frábæra heimasíðu og hugsjónablogg!
13. jún. 2007
árans rugl er þetta með sykurinn,
eg bíð alltaf eftir jógúrtinni sem aðeins er sættuð með ávöxtunum einum saman...