Umfjöllun í Gestgjafanum og röfl um kjúklinga :)
Rakst á umfjöllun um CafeSigrun á vef Gestgjafans í gær. Fyrir glögga lesendur Gestgjafans var fjallð um CafeSigrun á blaðsíðu. 11 í tölublaði 2. Bara gaman að því og ekki leiðinlegt þegar fjallað er um eitthvað sem tengist manni í uppáhalds íslenska blaðinu manns. Held að sé nú samt bið á því að fjallað verði um vefinn í Delicious eða Olive (uppáhalds bresk matreiðslublöð) en maður veit aldrei :)
Nú er mig farið að klæja í fingurna yfir að geta búið til eitthvað gómsætt og gott en ég get ekkert gert á meðan ég hef ekkert í eldhúsinu nema 2 matskeiðar og 2 plastdiska. Ég hugsa stöðugt um safapressuna mína...hlakka svooo til að fá hana í hús. Vonandi verður það fyrir helgi. Ég á líka svo margar skemmtilegar safabækur sem mig langar að prófa uppskriftir úr. Svo þarf ég reyndar að henda eldavélinni út sem er núna í íbúðinni og setja nýju eldavélina inn (sem við erum ekki búin að kaupa reyndar). Þá fer maður nú að gera eitthvað af viti. Ég hlakka líka til að fá páskaeggjamótið mitt úr skipinu því ég ætla að gera carob-páskaegg (eða reyna það, tókst nú ekkert ægilega vel í fyrra :).
Við skráðum okkur í ræktina síðasta laugardag og fórum svo á sunnudaginn til að taka aðeins á því. Mikið hrikalega þarf maður á því að halda. Maður er alveg ónýtur ef maður kemst ekki í svona langan tíma. Ég finn það bara á vöðvunum og liðunum hvað þeim líður miklu betur við að fá hreyfingu. Ég er bara mest fegin því að borða ekki ruslfæði því það væri auðvelt að detta ofan í þann pakka þegar maður er ekki búinn að koma sér fyrir, allt er út um allt og maður er á ferðinni á kvöldmatartíma. Talandi um óhollustu. Ég var einmitt í búð um daginn og konan fyrir aftan mig var með SVO óholl innkaup. Það var kremkex, súkkulaðikex og snakk, kók, vínarbrauð (tilbúin í poka og með LANGAN geymslutíma, þ.e. ekki nýbökuð þannig að þið getið ímyndað ykkur E-efnin og viðbjóðinn), rjómi, sælgæti, sykraðir svaladrykkir, sykraðir jógúrtdrykkir, kjöt í sósum (tilbúið), pylsur, kókó pöffs, og margt fleira. Það var ekki einn ferskur ávöxtur, ekkert ferskt grænmeti, enginn ferskur ávaxtasafi, ekkert gróft hrökkbrauð, speltbrauð eða annað gáfulegt. Ekkert sem talist gæti hollt. Í staðinn var allt tilbúið með mikið geymsluþol, með hrúgu af alls kyns vondum efnum. Ekkert af þessu var íslensk framleiðsla nema mjólkurvörurnar. Það er sárt að sjá þegar neyslan er orðin svona 'gervileg' þ.e. komin svo langt frá uppruna sínum eins og hjá þessari konu. Hjónin hafa verið ágætlega efnuð (sýndist mér, voru í vönduðum fötum og héldu á lykli að bíl sem var dýr) svo það var ekki vandamálið og þau voru að kaupa alveg helling inn. Fyrir utan það, það væri betra að kaupa minna inn en meiri gæði í staðinn, vanda hráefnisval, lesa aftan á umbúðir, þekkja uppruna vörunnar, velja íslenskt ef mögulegt er, velja lífrænt. Ég yrði ekki hissa þó að alvarlegir sjúkdómar myndu hrjá þetta fólk síðar meir. Ekkert skrýtið að líkaminn segi "NEI TAKK" við svona rugli.
Ég ætla annars að fara að kynna mér kjúklingamál hér á landi, hringja á nokkra staði og spyrjast fyrir um meðferð dýranna, fóðrið sem kjúklingarnir fá, hvort þeir fái að vappa um frjálsir, hvort þeir fái einhver viðbætt efni í fóðrið þ.e. hvort fóðrið sé lífrænt, hvernig þeim er slátrað og fleira. Ég skil ekki að það séu ekki upplýsingar um þetta að finna á vefjum viðkomandi fyrirtækja. Ef þetta er ekki í boði, mun ég ekki kaupa kjúklingakjöt hér á landi og fara fram á að úr verði bætt svo að neytendur geti allavega haft val. Mér finnst fáránlegt að nú sé 2007 en fólk sé að borða dýr sem hafa alið allan sinn aldur í búrum bara til að drepast fyrir okkur. Það skil ég ekki. Þó ég borði ekki kjúkling þá finnst Jóhannesi kjúklingur góður.
Ég ákvað að kanna fyrst vefi fyrirtækja (áður en ég fer að rífast):
Þetta stendur á vef ísfugls: "Kjúklingar eru ekki hafðir í búrum eins og varphænur, heldur á gólfi þar sem borið er undir þá þykkt lag af hefilspónum. Hitastig í kjúklingahúsum er 31° í upphafi eldistíma og er síðan lækkað smátt og smátt niður í 21° - 22° þannig að betra er að hafa aðgang að ódýrri orku því hún er stór liður í eldinu"
Hmmmmmm......
Það voru engar upplýsingar á vef Holtakjúklings (Reykjagarðs). Fylgist með.......
Ég vil taka fram að ég hef ekki gaman af því að skemma fyrir öðrum og það væri voða leiðinlegt ef svo væri (þ.e. slæm auglýsing o.s.frv.) en hins vegar finnst mér ég eiga rétt á því að fá 100% réttar upplýsingar um það sem ég læt ofan í mig, ég á rétt á góðri og heiðarlegri þjónustu og mér finnst að þið eigið rétt á því líka. Vona því að enginn móðgist og ef svo er má hafa samband við mig beint í tölvupósti. Það er nú þannig að ef maður þegir, gerist ekkert....
Að lokum fann ég skemmtilega grein af vef Hvanneyris um lífræna vottun matvæla