Jólablogg

Kæru notendur og lesendur cafesigrun (og aðrir).

Kærar þakkir fyrir allar heimsóknirnar, kommentin og fyrirspurnirnar á árinu sem er að ljúka. Ég vona að ég heyri sem oftast frá ykkur á næsta ári líka! Ég vona að næsta ár verði jafn skemmtilegt og ég ætla auðvitað að vera dugleg og setja enn fleiri uppskriftir og enn fleiri myndir á vefinn.

Hafið það sem best um jólin og munið að borða hollt og gott!

GLEÐILEG JÓL

Sigrún

Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It  

Ummæli

Jón Örvar
26. des. 2006

Gleðileg Jól elskan! Leiðinlegt að ég skyldi ekki komast í þorláksmessukaffið! :( Auðun sagði að ég hefði misst af miklu. Kisskiss og ég hlakka til að sjá ykkur Joe á nýju ári og verða yfirsmakkari :)

CafeSigrun.com
26. des. 2006

Leiðinlegt að þú gast ekki komið!! Þorláksmessu-sushiið var mega gott!

Hlökkum til að sjá þig á nýja árinu.

Sigrún

Alma María
27. des. 2006

Takk sömuleiðis Sigrún.

Síðan þín hefur verið mér mikill innblástur og hjálpað mér mikið í hollustuháttum mínum og fjölskyldunnar.

Gleðileg jól og hlakka til að fylgjast með síðunni þinni á komandi ári.