Kynning á ferð

Smá tilkynning fyrir þá sem hafa áhuga!!:

Þann 8. - 23. febrúar 2007 verður farin spennandi ferð á Kilimanjaro, sem er hæsta fjall Afríku, rétt tæpir 6000 metrar á hæð. Einnig verður ferðast um Kenya og m.a. farið í safarí í Tsavo þjóðgarðinum og buslað í Indlandshafinu á Diani ströndinni, rétt sunnan Mombasa. Þetta er ævintýraleg ferð fyrir alla sem vilja kynnast landi, lífi og þjóð og takast á við þetta stórkostlega fjall.

Afríka Ævintýraferðir, í samvinnu við Úrval Útsýn, verður með kynningu á ferðinni fimmtudaginn 21. desember í húsakynnum Múltí Kúltí, Ingólfsstræti 8 í Reykjavík. Húsið opnar kl 17.30 en kynning hefst klukkan 18. Boðið verður upp á léttar veitingar á staðnum gegn vægu verði. Nánar um ferðina

Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It