Eskifjördhur, Kevlavik á Regent Street

Bolur með nafninu Eskifjördhur framan áSáum sniðugan bol í Esprit búðinni á Regent Street áðan. Vorum að skoða jólagjafir og svoleiðis og ég sá ansi kunnuglegt heiti þó það væri pínu brenglað. Eskifjördhur, Kevlavik. Hef nú ekki hugmynd hvers vegna verið er að nota nafnið Eskifjörð á bol! Alveg spes en fyndið :) Þeir voru til í nokkrum litum, mjög flottir. Ef einhver er á leið til London og býr á Eskifirði eða þekkir einhvern sem býr þar, þá er þetta nú barasta upplögð jólagjöf í ár!!!!

Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It  

Ummæli

Kristín Ósk
24. okt. 2006

Hrikalega fyndið - kallinn minn er einmitt frá Eskifirði - ég þarf að kíkja í Esprit :o)