Soulgyðjan
Við fórum á eina bestu tónleika sem við höfum farið á í gær. Við sáum Candy Staton í Camden Jazz Cafe og guð minn góður hvað hún er ROSALEG. Röddin er eins og blanda af Whitney Houston og Arethu Franklin og ef væri hægt að líkja röddinni við mat þá er hún eins og unaðslegur piparrjómaostur með selleríbitum. Svo djúp og fyllt röddin, svo kraftmikil og svo tær líka en samt hrjúf og skörp. Hún tók mörg af bestu lögunum sínum með frábæran undirleik hljómsveitarinnar. Hún var með með fólk á trommur, trompet, saxafón, gítar, bassa og svo tvo frábæra bakraddasöngvara (konu og mann). Hún tók meðal annars lög af nýju plötunni sinni ásamt Nights on Broadway, Young Hearts Run Free og uppáhalds, uppáhalds, uppáhaldslagið mitt (sko með öðrum listamönnum en U2), You Got the Love. Ég fékk 3var sinnum gæsahúð við að hlusta á það (og það var ekki kalt þarna inni). Takturinn, söngurinn, undirleikurinn. Jeminn. Ég fékk gæsahúð alveg frá hægri ökkla og alla leið upp í hársrót (það er gæsahúðin sem ég fæ þegar ég upplifi eitthvað rosalegt eins og þetta. Reyndar fæ ég þessa gæsahúð þegar ég þarf að pissa en það er ekki alveg það sama samt). Ég náði meira að segja að fá gæsahúð aftur við að hugsa um lagið þegar við vorum á leið heim úr strætó. Röddin var svo miklu betri en ég hélt hún væri. Hún er ROSALEG. Ég er svo glöð að hafa upplifað þetta lag á tónleikum. Það er svo miklu, miklu, miklu betra en á diski. Þetta var síðasta lagið á eftir Young Hearts Run Free og svo fór hún af sviðinu en hljómsveitin hélt áfram. Hún fór ekki langt og kom aftur inn á sviðið og ég hugsaði með mér "ohhh nú kemur eitthvað annað lag og það verður aldrei hægt að toppa þessa upplifun" en nei hún hélt áfram með lagið!!!!! Bara snilld. Enda trylltist liðið. Þetta var fullkominn staður fyrir tónleikana, bara um svona 500 manns. Hvernig DETTUR fólki í hug að hlusta á Britney Spears, Girls Aloud og annað rugl þegar það getur hlustað á svona hæfileika? Ég skil það ekki.
Við höfum séð nokkuð marga listamenn um ævina og farið á nokkra góða tónleika. Til dæmis höfum við séð U2 2var (m.a. á Slane Castle. Írlandi sem er löngu orðnir sögufrægir tónleikar vegna þess að tónlistarfræðingar telja það vera eina bestu tónleika þeirra fyrr og síðar), Sigurrós 3var, Tom Waits, Macy Gray, Lenny Kravitz, Moby, Stereophonics, Cassandra Wilson djazzsöngkonu o.fl. Þessir tónleikar með soulgyðjunni komast þokkalega á topp 5 ltónleikalistann minn.
Topp 5 tónleikarnir mínir eru:
1. U2 Slane Castle, Írlandi, ágúst 2001 2. U2 Twickenham, ágúst, 2005 3. Candi Staton, Djazz Cafe, Camden ágúst 2006 (við erum alltaf á tónleikum í ágúst greinilega :) 4. Tom Waits, Hammersmith, Apollo, nóvember 2004 5. Sigurrós, Hammersmith, Apollo, febrúar 2005
Mig langar á George Michael, væri alveg til í að sjá Madonnu og Rolling Stones (bara svona upp á skemmtanagildið, ekki af því ég fíla þau eitthvað sérstaklega). Svo ætluðum við að sjá LAMB fyrir 2 árum en þeir aflýstu tónleikunum og hafa síðan hætt svo við erum enn þá með tárin í augunum yfir því.
Jæja, best að fara að pakka, við förum á flugvöllinn eftir nokkra tíma á leið til Köben.