Nýja flugvél keisarans
Ætli maður endi ekki á því að vera berrassaður í flugi á næstu árum, fólk verður klætt í glærar 'kápur' og allir verða með 'glærar' handtöskur o.s.frv. Meira ruglið. Það verður fróðlegt að sjá hvernig foreldrum tekst að hafa ofan af börnunum þegar enginn Game Boy, ipod eða annað slíkt má vera um borð.
Skil ekki alveg samt afhverju maður má vera með fartölvu um borð en hvorki ipod né farsíma? Ég hringdi í Flugleiði og spurði þá nefnilega. Það er 7 sinnum stærri rafhlaða í fartölvu en ipod eða farsíma svo ég fatta ekki alveg lógíkina. Ekki það, það er ekki fræðilegur séns að ég setji 150 þúsund króna fartölvu með öllum gögnunum mínum á (ok bökkuð upp annars staðar en sama er) í ferðatösku. No way.
Verður fróðlegt.
Ummæli
12. ágú. 2006
borðaðu bara vel áður en þú ferð um borð það hlýtur nú að vera hægt að fá vatn í flugvélunum.
Góða ferð mamma.